Tíminn - 24.04.1935, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.04.1935, Blaðsíða 1
^fetEifcsía O0 tenfjeltnta á Saugaocg JO. 6inU 2353 — ?>6bt{>ótí 961 XIX. árg. Yfir efni Nú á tíinum er mikið talað um skuldasöfnun. Mest er talað um tvær höfuðástæður til skuldaaukningar. Aðra þá, að atvinnuvegirnir beri sig ekki. Það er stundum rétt hjá sum- i um atvinnurekendum, en mjög fjarri réttu hjá atvinnurekend- um sem heild. Árið 1932 jukust t. d. skuldir hjá bændum al- mennt vegna þessa, en síðan ekki. Svipað má segja um út- gerðina. Og alltaf hafa einstaka atvinnurekendur 1 öllum at- vinnugreinum sýnt, að atvinnu- reksturinn hefir borið sig hjá þeim og þar með talað móti þeirri staðhæfingu, að hann þurfi að reka með halla. Hin höfuð ástæðan er talin sú, að ráðist sé í of miklar fram- kvæmdir. Hér er efamálið hvað eru of miklar framkvæmdir. Það er vitanlegt, að fæstir eru svo efnum búnir, að þeir geti ráðist í stórframkvæmdir án lána, og þegar lánunum er var- ið til arðbærra fyrirtækja, þá eru þau ekki vítaverð. Og svo hefir verið með meginið af því lánsfé, sem, bændur hafa tekið, að því hefir annaðhvort verið varið til arðbærra framkvæmda (jarðræktarlánin) eða nauðsyn legra umbóta, sem voru óum- flýjanlegar (byggingarlánin). En sú skuldasöfnun, sem ber að víta, er sú, sem minnst er talað um, en hún er hjá mönn- unuin, sem lifa yfir efni fram, mönnunum, sem ekki kunna að sníða þarfir sínar eftir tekjun- um1. Þessi skuldasöfnun er eink. um í bæjunum og sérstaklega í Reykjavík. Það þekkja allir kunnugir, að hér í Rvík geta menn reist sér „villur" og keypt í þær mörg þúsund króna húsgögn, þó þeir verði að gera það allt í skuld. Það vita margir, að hér geta menn keypt pelsa, kjóla og ann- að, sem þeim finnst nauðsyn- legt til að fylgja tízkunni, þó þeir eigi ekkert til að kaupa fyrir. Það vita margir, að hér fara menn á dansleiki og drekka og eyða tugum króna og hundr- uðum króna á einni nóttu og borga allt með víxlum, gefnum út upp á von í tekjum einhvern tím!a í framtíðinni. Menn, sem hafa 3—400 kr. fast kaup á mánuði hverjum, hafa gert þær kröfur til lífsins, að þær hrökkva ekki og láta svo bæjarsjóð borga sér sveit- arstyrk, svo þeir geti fullnægt þeim. Allir þessir og margir fleiri lifa yfir efni fram. Þeir hlaða á sig og sína aðstandend- ur eða ábyrgðarmenn skuldum, sem eiga að borgast af komandi tekjum, sem oft er lítil von í og stundum engin. Af þessu stafar þjóðfélaginu hætta. Móti þessum skuldum myndast engin verðmæti. Þær eru og verða baggi á komandi kynslóð. En því miður er hér umi að ræða hugsunarhátt og venjur, sem mörgum finnst ekkert athugavert við. Og þar liggur þjóðarhætta. Þess vegna eiga blöðin að legjast á eitt með að hjálpa til að breyta þessu. Það verður að verða al- menningsálit, að það sé meiri Framh. A 4. aiða Reynslan dæmir Einn veigamesti þátturinn i baráttu Framsóknarmanna við íhaldið undanfarinn hálfan ann_ an áratug hefir verið um það, hvort ríkið ætti að verja mikl- um eða litlum fjármunum til að lialda uppi jafnvægi milli at- vinnuveganna í landinu og draga úr fólksstraumnum úr sveitunum. Atvinnupólitík íhaldsins var frá upphafi ákaí- lega einhliða. Áhrifamenn íhaldsins, sem allir voru undir áhrifum stórútgerðarinnar og spekulationsgróðans í Reykja- vík vildu láta lífið „ganga sinn gang“ eins og það er kallað, og láta ráðast, hvert „einstak- lingsframtakið“ og hin „frjálsa samkeppni“ bæru þjóðina. Þeir höfðu ekkert við það að athuga, að öllu veltufé þjóðarinnar væri varið í hin nýju atvinnu- og verzlunarfyrirtæki bæjanna og til að byggja ný heimili fyrir nýja innflytjendur, sem yfir- gáfu sína fyrri lífsmöguleika. Þeir byggðu allt sitt traust á hinum! ágæta og takmarka- lausa markaði fyrir íslenzkan saltfisk í Suðurlöndum, sem allt til fárra ára þurfti lítið eða ekkert fyrir að hafa. Blöð þeirra unnu að því að gylla fyr_ ir almenningi út um sveitimar bina ágætu afkomumoguleika í höfuðstaðnum, hinn glæsilega fj árhag (!) Reykj avíkurbæ j ar og hina digru máttarstólpa at- vinnulífsins, sem standa myndu óbrotgjamir um aldur og æfi. Þeir voru á móti því að afla ríkissjóði tekna S því skyni að efla landbúnaðinn og bæta lífs- ekilyrðin í sveitunum:. Glögg- lega kom þetta fram í „skríl- vikunni" sælu vorið 1931, þegar æstir skapsmunlr gerðu ýmsa af þessum mönnum berorðari og hreinskilnari en endranær. Þá var hrópað „niður með bændavaldið" úti fyrir svölum1 Varðarhússins. Þá var skrifað í dagblöð íhaldsins um hinn „deyjandi atvinnuveg ölmusu- mannanna“, eins og landbúnað- urinn þá var nefndur í þeim herbúðum. Og krafan um breytta kjördæmaskipun var að verulegu leyti borin uþp af þeirri hugsun, að nú skyldi þeim atkvæðum fækka á Al- þingi, sem tækju fé af arði þjóðarbúsins til að veita í ræktun landsins, vegi og síma út um byggðimar, bætt húsa- kynni, frystihús og mjólkurbú, skóla fyrir æsku sveitanna og aðrar þvílíkar framkvæmdir. Framsóknarmenn sögðu hin3_ vegar: Það er gott, meðan fiskimiðin eru auðug og mark- aðurinn ótakmarkaður fyrir saltfiskinn. En það er óvarlegt að trúa því, að svo hljóti að verða um alla framtíð. Þjóðm þarf að vera við því búin að sá gjaldeyrir, sem inn kemur fyr- ir þessa framleiðslu verði tak- mörkum háður. Og þá ríður á að eiga þann atvinnuveg, sem getur framleitt matvæli og ann_ að það, sem þjóðin sjálf getur notað. Það er einskonar líf- trygging fyrir framtíðina. Hér þarf ekki framar að deila. Dómuf reynslunnar er A víðavangi Skattamir til Reykjavíkurbæjar. öllum sem nokkuð hugsa, hlýtur að hrjósa hugur við út- gjöldunum í Reykjavíkurbæ. Þau vaxa ár frá ári, en sam- hliða minnkar atvinnan í bæn- um1, og möguleikamir til að ná inn tekjuhum. Árið 1934 var jafnað niður 2475800 kr. eða nærri hálfri þriðju miljón. Árið 1935 á að jafna niður 3108150 kr. eða um 25% meira en í fyrra. Samhliða er nokkur hluti af tekjum rafveitunnar og gasstöðvarinnar látinn renna í bæjarsjóð, til að lækka út- svörin á þeim sem breiðust hafa bökin og mest burðarþol- ið, en koma þeim jafnt yfir á hvern ljósatíma og gastening3- metra sem bæjarmenn nota. Þetta er meir en lítil aukning á einu ári, og hvar lendir með sama áframhaldi? Hve lengi rísa bæjarbúar undir? Og hvað myndi verða sagt u!m! svo gíf- urlega skattahækkun hjá rík- inu? Á þingi 1934 töluðu íhalds- menn mikið um spamað. Þó loru allar tillögur þeirra í gagnstæða átt og hefðu stór- hækkað fjárlög og sett á þau mikinn tekjuhalla, ef sam- þykktar hefðu verið. I bæjar- stjóm ræður íhaldið. Og gegn- um þá hækkun, sem það nú gerir á útgjöldum bæjarins, sjá menn vilja þess ómengaðan af stefnum annara flokka. Og hann er þessi: 25% hækkun á útsvörunum. Þar er spamaður- inn! — Og svo leyfa þessir menn sér að vitna hástöfum uih spamað í blöðum sínum og á mannfundum! Lán og launakjör. Þeir, sem ímynda sér að hægt sé að taka Isafold alvar- lega, þegar hún þykist vilja hvetja til gætni í fjármálum landsins, þekkja ekki fjár- stjóm íhaldsins í Reykjavík. Þeir halda kannske, að íhalds- meirihlutinn í Reykjavík taki aldrei lán. Þó safnar bæjarsjóð. ur skuldum með ári hverju. Og það er ekki ennþá misseri síð- an Reykjavík tók sex miljóna lán í útlöndum. Og hinir vísu fjármálaspekingar íhaldsins urðu að biðja „rauðu ríkis- stjórnina" að ábyrgjast fyrir sig lánið. — Menn halda líka ef til vill, að íhaldið hafi lækkað laun hjá starfsmönnum bæjar- ins, síðan kreppan byrjaði. En það bólar bara eltki á því enn- þá. Nei, launin hjá bæjarsjóði Reykjavíkur hafa ekki verið lækkuð um einn eyri. Bærinn elur enn ihálaunamenn með 18 —20 þúsundum, og heldur uppi fallinn. Hinir góðu fiskmarkað- ir gátu, því miður brugðizt. Þjóðin er farin að takmarka innkaup sín. 1 bæjunum er nú atvinnuleysi, sem kostar mil- jónir. Hver sú framkvæmd um- liðinna ára, sem forðar bæjunum frá nýju innstreymi atvinnu- leysingja, eða miðar að því að þjóðin geti fætt sig sjálf, er vígður þáttur í frelsi landsins. dýrtíðaruppbót. Ríkið hefir lækkað laun sinna starfsmanna, bæði með beinum niðurfærsl- um og nú með auknum skatti á hálaun. Dýrtíðaruppbót rílc- isins var á síðasta þingi alveg felld niður á laun yfir 5 þús. kr. Sá sparnaður nemur 70—80 þús. En íhaldið í Reykjavík heldur hálaunagreiðslum uppi bæði hjá bæjarsjóði og í einka- rekstrinum. Það gerir ríkinu erfitt og í sumum' tilfellum ómögulegt að lækka laun. Og svo berja þessir menn sér á brjóst á kjósendafundum og þykjast vilja launalækkanir! Hvað segja íhaldsmenn í sveitunum? Hvað myndu kjósendur íhaldsins í Dölum eða Rangár- vallasýslu segja, ef þeir sæu at- vinnumálahugleiðingar þær, er flokksblað þeirra, Visir, birtir í gær? Auðvitað er þeim ekki ætlað að sjá þær. En Vísir er þar að skamma stjórnina fyrir það, að hún muni ekki láta verja eins miklu fé til a£vinnu:- bótavinnu í Reykjavík, eins og Magnús Guðmúndsson hafi gert í fyrra. Magnús er þar lofaður liástöfum fyrir það, að undir hans stjórn hafi verið unnið í atvinnubótavinnu fyrir hátt á áttunda hundrað þúsund króna á einu ári í Reykjavík. Finnst íhaldsmönnum úti um sveitir þetta koma vel heima við það, sem frambjóðendur þeirra eru1 vanir að segja um atvinnubóta- vinnuna? Það gerir það víst ekki. En það kemur vel heima við tillögur Jakobs Möllers á síðasta Alþingi, þar sem hann vildi láta ríkið greiða eina miljón í atvinnubætur (í stað Yz milj. nú), en bæiúa ekki neitt! Vísir segir líka, að nauð- synlegt sé að byggja hús í Reykjavík í ár fyrir 6V2 mil. jón. Er það til að stöðva fólks- strauminn? Og hvað ætti þá að byggja m'ikið á öllu landinu? Geta ekki svona upplýsingar opnað augu einhverra fyrlr falsi þeirra íhaldsmanna, sem eru látnir tala við fólk úti lún byggðir landsins? Hvert stefnir S jálfstæðisflokkurinn ? Nýársboðskapur Ólafs Thors nú fyrir nokkrum mánuðum, um, að „óvæntir atburðir" ættu að verða núverandi ríkisstjórn bráðlega að falli, hefir orðið mörgum að umtalsefni, eins og vænta mátti. Þessi boðskapur var birtur í Mbl. rétt eftir að íhaldsflokkurinn hafði farið að dæmi erlendra ofbeldisflokka og gengið burt af þinginu. Hann birtist rétt sömu dagana og Mbl. var að bollaleggja um að „losa sig við þingið“. Og þegar það jafnframt berst almenningi til eyma, að sami Ólafur Thors hafi sagt, í þinginu, að Jón Baldvinsson skyldi verða „dreginn niður úr forsetastólnum" og Sigurður Kristjánsson hafi hreytt því að mönnum úr stjómarflokk- unum, að sjálfsagt væri að fleygia þingmönnum út(!) þá er engin furða þó að friðsamir borgarar staldri við og spyrji: Hvað á svona framkoma og svona yfirlýsingar að þýða? Gleðilegi sumar Starf bóndans er meir sam- tvinnað náttúrunni en flestra annara. Hann starfar að því að yrkja jörðina og fullkomna. — Hann er stöðugt að hjálpa nýju lífi til að gróa, þroskast og dafna. Hann er stöðugt að hjálpa skepnunum til að verða sem fullkomnustum. Með öllu þessu vinnur hann að endurbót- um, endursköpun á sjálfri nátt- úrunni. Og honum tekst því að eins að hjálpa henni áfram til meiri fullkomnunar, að honum takizt að vinna í samræmi við lögmál hennar. Með því skapar hann sér arð, með því bætir hann hag komandi kynslóða og með því þroskar hann og full- komnar sjálfan sig. En vegna þessa fær góður bóndi annað viðhorf gagnvart starfinu og lífinu en flestir aðr_ ir. Hann verður að sjá hlutina frá sjónarmiði framtíðarinnar og sjónarmiði þjóðarheildar- innar. Veturinn er senn að kveðja, sumardagurinn fyrsti nálgast. Veturinn er undirbúningstími vorsins og sumarsins, eins og bamsárin eru undirbúningur unglings og fullorðinsáranna. Á þeim kemur þroskinn og upp- skeran. Ég er vinnumaður bændanna. Mitt starf er að bera boð milli þeirra og fá þá til þess að hugsa rrieira um starf sitt og stéttarbræðra sinna en þeir ella mundu gera. Þessvegna sendi ég þeim nú kveðju mína og sumaróskir. Og mín bezta sum- arósk til handa þeim er sú, að sumarið verði þeim gleðilegt, ag það færi þeirn gott starf og góðan árangur af starfinu. Þá veit ég að þeir vaxa með starf. inu, og að það er mikill maður sem stöðugt getur vaxið í starfi sínu. Gleðilegt sumar, gott starf og góðan árangur af því. Páll Zóphóníasson. Hvert stefnir Sjálfstæðisflokk- urinn? Eins og byltingaflokkurl En það eru líka aðrar eftir- tektarverðar hliðar á fram- komu Sjálfstæðisfloksins um þessar mundir? Afstaða Sjálf- stæðismanna í fjármálum landsins á þingum í vetur hefir verið eins og þar væri hreinir óvitar á ferðum. Hvað eftir annað hefir flokkurinn risið upp með írafári og heimt- að, að felldir væru niður tekjustofnar ríkisins, svo að miljónum skiptir, en jafnframt þverneitað að sjá fyrir nokkr- um peningum í staðinn. Og al- veg um sama leyti bera svo þessir menn fram tillögur um að hækka útgjöld ríkisins um miljónir! ~ Það hefir verið reiknað út, að ef þingmeirihlutinn hefði verið svo fjarri skynsamlegu viti í fjármálum, að fara al- gerlega eftir stefnu íhalds- manna, þá myndi greiðslu- hallinn á fjárlögunum 1935 Framh. á 4. síðu. Uian úr heimi V íg búnaðarkapphlaupið. Anthony Eden, enski ráð- lierrann, kom heim fyrir nokkru úr leiðangrí sínum um Mið. og Austur-Evrópu. Fór Eden þessa ferð í þeim tilgangi að komasfc eftir hvaða aðstöðu hinar ýmsu valdstjómir hafa um undir- skrift nýs friðarsáttmála. Þetta hefir verið erfitt og vandasamt starf og má m. a. sjá það af því, að Eden varð sjúkur af þreytu, þegar hann kom aftur beim til Englands. Einnig er það kunnugt, að ferðalag Edens hefir ekki að fullu borið tilætl- aðan árangur. Hann hefir fengið æskileg svör við tillögum sínum í Frakklandi, Rússlandi cg Tékkóslóvakíu, en vald- stjórnir Þýzkalands og Póllands voru andstæðar uppástungum hans. Síðan hafa fulltrúar Breta, Frakka og ítala haft íund með sér. Og loks var haid- inn fundur í ráði Þjóðabanda- lagsins. Ráðið samþykkti einum rómi ávítur til Þjóðverja út af Iiroti á Versalasamningunum. Einn maður í ráðinu, fulltrúi Norðurlanda, Munch utanríkis- ráðherra Dana, sat hjá við at- kvæðagreiðsluna- Þýzka stjóm- in hefir mótmælt kröftuglega. En nú segja síðustu fréttir, að Frakkar og Rússar séu í þann veginn, að undirrita samning um opinbert varnarbandalag sín á milli. Til þess að leggja áherzlu á það, að full alvara sé bak við kröfúr Ítalíu til Þýzkalands, hafa Italir enn á ný aukið her- aflá sinn að mun. Samtímis hafa Frakkar nú samkv. síðustu fregnum 400 þús. manna undir vopnum við landamæri Þýzka- lands. Þar að auki hafa ]æir kallað heim 72 þús. negraliermanna og hafa nú alls undir vopnum um 504 þús. manna. Þjóðverjar hafa þegar allt að 500 þús. manna her. ítalir hafa 600 þús. manna und_ ir vopnum og Rússar á aðra miljón. Um vígbúnað 1 lofti liefir John Simon utanríkis- málaráðherra upplýst það í enska þinginu, að Þjóðverjar hafi nú þegar álíka mörgurn hernaðarflugvélum á að skipa og Englendingar. Hefir John Simon heimildir um þetta frá Hitler, sem varla hefir sagt herafla Þjóðverja meiri en hann í raun og veru er. Eitt þeirra fáu landa, sem hafa ákveðið að auka ekki víg- búnað sinn, er Kanada. Og enn. fremur hefir komið fram í neðri málstofu þingsins ein- beitt krafa um það, að tilkynna brezku ríkisstjóminni, að Kan- ada muni ekki rétta Englend- ingum hjálparhönd ef þeir fari í stríð um málefni, sem ekki skipti Kanadabúa nokkru máli. Páfinn hefir sent út nýjan friðarboðskap þar sem hann varar þjóðirnar við að stofna til heimsstyrjaldar. Hann endar boðskapinn með þessum kröft- ugu orðum: Ef nokkur vogar sér að drýgja þennan guðlausa glæp, get ég ekki annað en beo- ið til Guðs með eftirfarandi orðum: — Glataðu þeim, sem æskja styrjaldar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.