Tíminn - 09.07.1935, Side 4
116
TlMINN
Aðalfundur S. I. S.
Framh. af 1. síðu.
því nauðsyn og skylda til að
veita þeim stuðning.
Skýrslia stjórnarformanns
Sambandsins.
Ingólfur Bjarnarson formað-
ur sambandsstjórnarinnar gerði
grein fyrir þeim málefnum, sem
síðasti aðalfundur hafði falið
stjóminni til athugunar og úr-
lausnar, svo sem:
Sameining kaupfélaga á þeim
stöðum, þar sem menn aðstöðu
vegna gætu verið í einu félagi.
Lýsti formaður yfir því, að
stjórain teldi rétt að vinna að
þessu og mundi gera það, en
þó með fullri gætni.
Námskeið fyrir samvinnu-
menn: Formaður skýrði frá,
að stjórain hefði ætlað að
koma slíku námskeiði á síðast-
liðinn vetur, en það hefði far-
izt fyrir af sérstökum ástæð-
um. Nú taldi hann að til stæði
að koma á námskeiði næsta
vetur, og taldi líklegt að það
mundi eiga sér stað á Akúr-
eyri.
Vinnufatagerð. — Stjómin
hefði ekki talið rétt að ráðast í
að setja á stofn sjálfstæða
vinnufatagerð á liðnu ári, en í
athugun væri hvort rétt mundi
að setja á fót vinnufatagerð í
sambandi við Klæðaverksmiðj.
una Gefjunni.
Breyting lánakjara við
Kreppulánasjóð. — Formaður
skýrði frá að fengist hefði
framgegnt ósk Sambandsfund-
ar 1934, um að bændur fengju
lán úr sjóðnum til 40 ára með
jöfnum afborgunúm.
Sam vinnuskólinn.
Guðlaugur Rósinkranz flutti
skýrslu um starfsemi skólans
s. 1. vetur. Hafði skólinn verið
fullskipaður og starfsemi hans
gengið vel.
Tímaritið „Samvinnan“.
Guðlaugur Rósinkranz gerði
grein fyrir breytingum þeim,
sem gjörðar hefðu verið á
tímaritinu í samræmi við á-
kvarðanir síðasta aðalfundar,
og lagði fram fundarmönnum
til athugunar fyrsta hefti rits-
ins í hinni nýju útgáfu. Skýrði
ræðumaður frá því á hvern
hátt hugsað væri að gera
„Samvinnuna“ sem læsileg-
asta, fróðlegasta og eiguleg-
asta. Hét hann á fundarmenn
að vinna sem bezt að útbreiðslu
ritsins, málstað samvinnunnar
til gagns. Einnig hvatti hann
menn til að senda ritinu frétt-
ir, myndir og ritgerðir um
þau efni, sem ritið hefir sér-
staklega til meðferðar.
Verksmiðjan „Gefjun".
Framkvæmdastj. verksmiðj-
unnar, Jónas Þór, flutti erindi
um starfsemi „Gefjunnar", en
þó sérstaklega um nýbygging-
ar hennar til ullarþvottar,
kambgarnsgerðar og annarar
vandaðri dúkagerðar. Gat hann
þess, að með þessum fram-
kvæmdum væru að komast í
framkvæmd óskir og sam-
þykktir fyrri aðalfunda Sam-
bandsins um starfsemi „Gefj-
unnar“.
Út af erindi þessu komu
fram margar fyrirspurnir sem
málshefjandi svaraði. Einnig'
urðu nú allítarlegar umræður
um ullarverkun og svohljóð-
andi tillaga samþykkt með öll- j
um atkvæðum:
„Fundurinn skorar á kaupfé- |
lög landsins að beitast fyrir j
því, að bændur verki ull sína
sem bezt og selji hana ekki ó-
þvegna“.
Kosningar.
a. í sambandsstjórn til
þriggja ára:
Einar Árnason,
Sigfús Jónsson.
b. Varaformaður til eins árs:
Sigurður Jónsson Arnar-
vatni.
c. Varamenn í stjórn til eins
árs:
Vilhjálmur Þór,
Jón ívarsson.
d. Endurskoðandi til tveggja
ára:
Jón Guðmundsson.
e. Varaendurskoðandi til
tveggja ára:
Guðbrandur Magnússon.
Allir voru þessir menn end-
urkosnir.
Afurðasalan.
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri flutti ítarlega ræðu um
skipulagning afurðasölunnar,
er samvinnufélögin hefðu átt
i'rumkvæði að.
Verður í næsta blaði flutt
sem nákvæmast ágrip af þess-
ari ræðu J. Á.
Jón ívarsson, formaður kjöt-
verðlagsnefndar, skýrði frá
störfum Kjötverðlagsnefndar
og viðhorfunum um þau verk-
efni, er nefndin hefir með hönd-
um. Til fróðleiks las hann upp
útdrátt úr skýrslu um slátrun
sauðfjár hjá verzlunum lands-
ins s.l. haust. Sýndi þessi út-
dráttur, að hjá samvinnufélög-
unum hafði verið slátrað 82%
en hjá kaupmannaverzlunum að
einsl8%.
Þá skýrði ræðumaður frá því,
að þrátt fyrir það, þótt sauð-
fjárslátrun hefði verið óvenju-
lega mikil síðastliðið ár, þá
væru óseldar kjötbirgðir alls
ekki óvenjulega miklar.
Að loknum ræðum Jón Árna-
sonar og Jóns ívarssonar fóru
fram víðtækar umræður um af-
urðasölumálin. Að þeim lokn-
um kom fram svolátandi tillaga
frá Kristjáni Sigurðssyni Dag-
verðareyri, sem samþykkt var
með ölíúm atkvæðum:
„Aðalfundur S. I. S. telur á-
stæðu til að láta í ljós á-
nægju sína yfir framkvæmd-
um þeim, sem gjörðar hafa
verið um skipulag á meðferð
og sölu aðalframleiðsluvara
landbúnaðarins. Telur fundur-
inn að ráðstafanir þessar
hafi þegar orðið og verði
landbúnaðinum að miklu liði.
Vill fundui’inn í þessu sam-
bandi sérstaklega þakka þeim
framkvæmdastjóra Jóni Áma
syni og landbúnaðarráðherra
Hermanni Jónassyni fyrír
þeirra öruggu forustu í
þessu nauðsynjamali“.
Reikninganefnd skilar állti.
Álit nefndarinnar var svo-
hljóðandi:
„Reikninganefnd Sambands-
fundar 1935 hefir, eftir því
sem tími vannst til, athugað
rekstur Sambandsins á liðna
árinu. Eftir þá athugun lýsir
nefndin yfir því, að hún tel-
ur hag og rekstur þess í
góðu lagi, eftir því sem á-
stæður standa til.
Ennfremur hefir nefndin
kynnt sér hag Sambands-
deildanna, rekstur þeirra og
afkomu, eftir þeim gögnum,
er fyrir lágu, og í tilefni af
, þeirri athugun vill nefndin
vekja athygli sambandsstj.
á eftirfarandi atriðum:
1. Að gera rækilega athug-
un á rakstri þeirra Sambands
deilda, er ekki hefir tekist
að varna skuldasöfnun frá
1931, enda þótt nefndin við-
urkenni, að óviðráðanlegar
orsakir geti legið til nokkurr-
ar skuldasöfnunar í einstök-
um tiifellum. Reynist það
svo, að áframhald verði á
skuldasöfnun hjá einstökum
félagsdeildum án sérstakra
orsaka, þá lítur nefndin svo
á, að þær deildir verði að
setja undir sérstakt eftirlit
S. I. S.
Nefndin vill, svo sem áður
hefir verið gert, taka það
fram, að hún telur mjög var-
hugaverðan þann reksturs-
halla, sem virðist endurtaka
sig og jafnvel aukast hjá
nokkrum félögum og 1 sam-
bandi við það beina því til
sambandsstjórnarinnar, hvort
ekki sé sérstök ástæða til að
athuga rekstur þeirra félaga
og hvort ekki sé hægt að
kippa því í lag, t. d. með því,
eins og kom fram á síðasta
aðalfundi, að fækka deildum
en stækka verzlunarsvæði
þeirra þar sem svo hagar til,
að slíkt væri hægt.
3. Nefndin vill skjóta því
til sambandsstjórnarinnar,
hvort hún ekki sjái sér fært
að setja félögunum, að af-
skrifa útlendar vörubirgðir
um hver áramót með sem lík
ustum afföllum umfram á-
langningu.
p.t. Reykjavík, 29. júní 1935.
Hannes Pálson. B. Kristjánss-
son. Þórh. Sigtryggsson. Egill
Thorarensen. Guðm Ólafsson.
Sig. Þórðarson. Ingimar Eydal.
Út af áliti reikninganefndar
og tillögum spunnust langar
umræður. Rætt var um tilgang
samvinnufélaga, ráð til að
sporna við skuldaverzlun og
framtíðarhorfur sambandsfélag
anna og Sambandsins yfirleitt.
Allir ræðumenn voru sammála
um að hagur Sambandsins sem;
stofnunar væri sterkur og ör-
uggur, en hinsvegar væri mik-
ið verkefni og erfitt eins og at-
vinnurekstri alménnt er hátt-
að, að komast hjá skuldaverzl-
un að fullu, þótt að því beri að
sjálfsögðu ag vinna af alefli.
Afgreiðsla ársreiknings 1934
Reikningar Sambandsins voru,
með áritun endurskoðenda,
bornir undir atkvæði og sam1-
þykktir í einu hljóði.
Ráðstöfun ársarðs.
Stjórn Sambandsins lagði
fyrir fundinn svolátandi tillögu
um ráðstöfun ársarðs af rekstri
Sambandsins 1934:
1. Tii stofnsjóðs . . 46.280.08
2. — varasjóðs . . 9.256.02
3. — sjótr.sjóðs . . 19.449.46
4. — Gefjunarsj. . 18.003.41
5. — reksturstrygg.
ingarsjóða: a. gæruverksm. 13.931.84
b. Garnastöðv. 12.633.37
6. — Menningarsj. 3.369.99
i 7. j Yfirfært til n. á. 22.365.33
Samtals kr. 145.289.50
Jónas Jónsson, alþm.
fimmtugur
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri flutti svohljóðandi tillögu,
sem var samþykkt með öllum
atkvæðum:
„Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga 1935
tjáir Jónasi Jónssyni alþing-
ismanni hugheilar þakkir fyr
ir hans miklu og óeigin-
gjömu störf í þágu sarn-
vinnumálanna í landinu, árn-
ar honum allra heilla í til-
efni af nýafstöðnu fimmtíu
ára afmæli hans, og óskar
þess, að þjóðin beri gæfu til
að njóta fágætra starfs-
krafta hans enn um langt
skeið“.
Tilmæli Atvinnurekendafélags
Islands.
Stjórninni hafði borist til-
mæli frá Atvinnurekendafélagi
íslands um að Sambandið gengi
í félagið.
Konr fram það álit, að þar
sem í Sambandinu eru bæði
neytendur og framleiðendur,
vinnuþiggjendur og vinnuveit-
endur, þá sé rétt að Samband-
ið gangi hvorki í félag atvinnu-
rekenda né vinnuþiggjenda.
Engin ályktun gerð, en mál-
inu vísað til stjórnarinnar.
Ljósmæðraskólí Islands
Námsárið hefst 1. október næstkomandi. Nemendur skulu
ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri en 30 ára, heilsu-
hraustar (heilbrigðisástand vei'ður nánar athugað í Lands-
spítalanum). — Konur, sem lokið hafa héraðsskólaprófi eða
gagnfræðaprófi, ganga fyrir öðrum. — Eiginhandar umsókn
sendist stjórn skólans á Landspítalanum fyrir 1. september.
Umsókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvottorð og próf-
vottorð frá skóla, ef fyrir hendj er.
Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna
ljósmóðurumdæmi að námi loknu, skulu senda vottorð um
það frá viðkomandi oddvita.
Landspítalanum, 8. júlí 1985.
Gudm Thoroddsen.
Nýræktun
þarf alhliða og algildan áburð
Notíð Nitrophoska I. G.
þá er árangurinn öruggur.
Öll efnin: köfnunarefni, fosforsýra, kali í sama pokanum
Kiæðaverksmiðjan
GEFJUN
Greiðslur úr stofnsjóði.
Svolátandi tillaga kom fram
frá Sigurði Þórðarsyni og sam-
þykkt með þorra atkv. gegn
einu að loknum umræðum:
„Fundurinn lýsir yfir því,
að hann leggur þann skilning
í ákvæði samþykkta kaupfé-
laganna um útborgun á stofn.
sjóðsinnstæðum, að kaupfé-
lagsstjórum sé óheimilt að
greiða kreppulánaumsækjend-
um stofnsjóðsinnstæður
þeirra eða afhenda þær til
skuldajafnaðar, og með til-
vísun til ákvæða gildandi
samvinnulaga um þetta efni,
vill fundurinn skora á stjórn
og framkvæmdastjóra Sam-
bandsins að vera á verði um
meðferð félagsdeilda á þess-
um málum“.
fratnleiðir beztu innlendu fataefnim
Á saumastofunni í Reykjavík eru saumaðir allskonar
karlmannafatnaðir og frakkar.
Drengjaföt og pokabuxur er afgreitt með rajög stuttum
fyrirvara. Auk þess eru drengjaföt og pokabuxur ávalt
fyrirliggjandi* og það af öllum stærðum og gerðum.
Ferðateppi, band og lopi löngu viðurkennt fyrir gæði.
Saumum eftir aðsendum málum.
Tökum ull í skiftum fyrir vörur.
Sendum hvert á land sem er gegn póstkröfu.
GEFJUN, Laugaveg 10
Simi 2838
Fundarlok.
Fundinum' laúk kl. 1 eftir
miðnætti aðfaranótt sunnudags-
ins 30. júní og hafði því stað-
ið í fjóra daga.
Næsta dag bauð stjórn Sam-
bandsins fulltrúunum, ásamt
nokkrum gestum, austur í Ár-
nessýslu. Var ekið að Laugar-
vatni, en á heimleið var komið
að Ljósafossi í Sogi, þar sem
nú er haíin vinna að stórfelldri
vatnsvirkjun, einnig var komið
við í Mjólkurbúi Flóamanna.
TRÚLOFUNARHRINGAR
ávalt fyrirliggjandi.
HARALDUR HAGAN,
Austurstr. 8. Sími 8890
Ritstjóri:
Gisll Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta.
B e z t a
Héraðsskólinii
að Laiigum
verður í haust settur 12. október, eða nokkru fyrr en xmdan-
íarið. Auk bóklegra greina verður kennt: Leikfimi, ound,
söngur og handavinna. Smíðar verða og kenndar sem sér-
nám. — Skólahúsin eru raflýst. — Umsóknir og fyrirspum-
ir um skólann séu áritaðar til mín, að Laugum, um Einars-
staði. — Æskilegt er að umsóknir séu komnar eigi síðar «n í
lok ágústmánaðar.
Lelfur Asgeirsson.
Munntóbakið
er írá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHÖFN
Biðjið kaupmann yðar um
B.B. munntóbakið
Fæst allsstaðar.