Tíminn - 24.07.1935, Page 4
124
11 M1N.IT
Afkoma
atvinnuvega
Framih. af 1. síðu.
þjóða er komið, og erfiðleikum
atvinnuveganna þar af leið-
andi, er hin brýnasta þörf á
því, að hinnar fyllstu hagsýni
sé gætt um allan tilkostnað
við framleiðslu og þó ekki
hvað sízt sjálfra undirstöðu-
atvinnuveganna.
Og að sjálfsögðu verður að
hafa sterka gát á hinni þjóð-
hagslegu hlið, þegar mörkuð
eru spor um frambúðaratvinnu-
hætti, að skihð sé glöggt á milli
hins erlenda og innlenda til-
kostnaðar.
Þegar erlendir markaðir
ganga saman svo sem raun er
á, þá er það þjóðamauðsyn að
sérhver atvinnurekandi til
lands og sjávar, athugi sem
gaumgæfilegast hvemig bezt-
um árangri verðum náð m!eð
sem minnstum erlendum að-
kaupum, og jafnframt er sjálf-
sagt að rannsóknir fari fram á
þessu mikilsverða viðfangsefni
fyrir opinbera miUigöngu.
Fréttir
Ólíua Andrésdóttir skáldkona
andaðist hér í bænum 19. þ. m.
þessarar merku konu verður
minnst síðar hér í blaðinu.
Nýtt mjólkurbú. 16. þ. mán. tók
til starfa Mjólkursamlag Skagfirð-
inga. Hefir það reist vandað
mjólkurbú, sem kostar upp komið
nokkuð á annað hundrað þúsund
krónur. í samlaginu eru 80—90 fé-
lagsmenn og er ráðgert að fyrst
í stað verði mjólkurmagn þess um
1000 lítrar á dag. Úr mjólkinni
mun það aðallega vinna osta og
smjör.
pýzkur knattspymuílokkur hefir
í síðastl. viku háð fjóra kappleiki
hér í bænum við Reykjavíkurfé-
lögin. Vann hann alla leikina, sigr-
aði K. R. með 3 : 0, Fram með 6 : 0,
Val með 7:0 og úrvalslið félag-
anna með 2 :1. Leikimir voru á-
kaflega vel sóttir og er áhugi fyrir
knattspyrnu mikill hér í bænum
úm þessai' mundir. Er farið að
tiðkast allmikið að starfsmenn
ýmsra fyrirtækja heyji kappleiki.
pannig hefir farið fram keppni
milli Áfengisverzlunarinnar og Tó-
bakseinkasölunnar, Mjólkursamsöl-
únnar og Mjólkurfélags Reykja-
vikur, bankanna o. fl.
Drukknun. Aðfaranótt 18. þ. m.
drukknaði i lendingunni á Krossa-
nesi við Vaðlavík eystra, Elis
Sigurðsson, bóndi á Krossnesi. Var
hann á bát ásamt tveimur mönn-
um öðrum. Steytti báturinn á flúð
og kom gat á hann og hvolfdi hon-
um við næsta útsog. Hinir menn-
irnir björguðust.
Einar Kristjánsson söngvari
söng nýlega i Kaupmannahöfn og
hlaut mikið lof.
Bifreiðarslys varð á Akranesi
síðastl. sunnudagskvöld. Hvolfdi
„boddy“bíl með 20 farþegum og
meiddust ellefu þeirra meira og
minna, en þó enginn hættulega, að
því er talið er.
Soryleyt slys varð á Álftavatni
síðastl. sunnudag. Hvolfdi bát úti
.á vatninu, olhlöðnum af fólki, og
drukknuðu tvö böm Sveins Jó-
hannssonar kaupmanns hér í bæ,
Kort Sævar; 8 ára og Stella, 10 ára.
Líkin náðust eftir þrjá stundar-
íjórðunga og voru lífgunartilraun-
ir reyndar lengi, en árangurslaust.
Samvinnan, 2. hefti yfirstand-
andi árgangs er komið úí. Flytur
það eftirfarandi greinar: Tuttugu
ára viðskiptaafmæli S. í. S. eftir
■Tónas Jónsson, Samvinnustarfið
innanlands, Verzlunarstarfsemin
tuttug uára, eftir Guðlaug Rósin-
kranz, Innlenda fæðan inniiheldur
beztu bætiefnin, eftir Auði Jónas-
dóttur, Islenzk heimili og skólar
eftir Jónas Jónsson, Innan lands
og utan, og svo framhaldssagan
eftir Tagore. Ritið er prýtt fjölda
mynda og er mjög smekklega frá
því gengið.
Svafar Guðmunds-
son segir ósatt
í síðasta blaði Tímans var
frá því skýrt, að til tals hefði
komið á „flokksfundi“ hjá
sprengiliðinu, að Tr. Þórhalls-
son væri rekinn úr hinum svo-
svokallaða Bændaflokki, og að
Svafar Guðmundsson hefði ver.
ið framsögumaður þessa máls.
Fyrir þetta þrætir Svafar í
blaði sínu. En vita má Svafar,
að um þetta mál verður öðrum
betur trúað en honum. Og’ skal
hann hérmeð varaður við að
endurtaka þessi ósannindi sín,
því að heimildimar fyrir þessu
eru bæði margar og sumar a.
m. k. ónotalega sterkar fyrir
Svafar eins og á stendur.
Sláttur er nú almennt byrjaðui'
um allt land. Hefir Páll Zophónías-
son ráðunautur, sem er nýkominn
úr ferðalagi um Norður- og Aust-
urland sagt blaðinu, að grasspretta
sé minni en í meðllagi í Múla- og
þingeyjrsýslum, en í meðallagi í
Eyjafjarðar-, Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslum. — Skepnuhöld
sagði hann vera mjög misjöfn á
þessurn slóðum^ og afurðamissir
mundi verða verulegur, sökum
þess, hve margar ær hefðu orðið
iamblausar. í Norður-Múlasýslu
myndi t. d. óhætt að segja, að
fjórða hver ær hefði verið lamb-
laus.
Ekki unnið fyrir yýg. Bókafor-
Iagið Methuen & Co. í London
hefir nú um nokkurra ára skedð
verið að gefa út leiðsögubækur
fyrir ferðamenn, sem allar hafa
titilinn „So You’re Going to (Eng-
land, France, Switzerland, etc.)“,
þ. e. „Svo þú ætlar til (Engíands,
Frákklands, o. s. frv.)“. — þessar
bækur hafa náð svo mikilli þylli,
að fádæmum sætir, og höfundur-
inn, stúlka að nafni Clara E.
Laughlin, hefir hlotið frægð á við
vinsælan skáldsagnahöfund. Orðs-
tír hennar hefir orðið meiri en
nokkur líkindi eru til að hana
liaíi órað fyrir, því nú hafa Frakk-
ar gert hana að riddara í heiðurs-
fylkingunni fyrir bók hennar um
Frakkland. þetta hefir sem vænta
mátti, vakið ekki all-litla athygli
og samfagnaðarskeytum hefir
rignt yfir Miss Laughlin úr öllum
áttum. Frakkar hafa enn einu
sinni minnt á það, að þeir láta
ekki á sér standa að meta það,
sem þeim er gert til gagns eða
sæmdar.
„Pourquoi-pas?“ kom til Færeyja
í fyrrakvöld. Er það á leið til fs-
lands. Dr. Carcot, hinn alkunni
v ísindamaður, er með skipinu og
liefir hann ráðgert, að þetta verði
síðasta ferð hans til íslands.
Fyrsta mjatésíldiu var söltuö á
Akureyri á sunnudaginn hjá Stef-
áni Jónssyni. Síldin var af mótor-
skipinu „þingey", og er söltuð
samkv. undanþágu um söltun á
reynslusendingu, saltaðri fyrir 25.
júlí. Voru saltaðar um 40 tn.
Einar Kristjánsson söngvari
fékk ágæta dóma fyrir söng sinn í
Tivoli. M. a. segir „Politiken"
svo um söng hans: „Rödd Einars
Kristjánssonar gengur manni al-
veg að hjartarótum, hinir blíðu,
mjúku og ástríðuþrungnu tónar
og livernig hann leikur sér með
þá létt og eðlilega. Ríkisópera
okkar þarf að fá annan lyriskan
og góðan tenórsöngvara auk hr.
Marius Jacobsen. Ef Einar Krist-
jánsson yrði ráðinn þangað, gæti
hann tekið að sér bæði hlutverk
Belmonte og Pedrillo í „Bortför-
elsen", sem þar á að sýna á
næstunni. Ráðið Einar Kristjéns-
son þangað.” — (Sendiherrafrétt).
Kolaverzlun
SIGURBAR ÓLAFSSONAR
Símn.: KOL. Reykjavík. Simi 1933
Ritstjóri:
Gísli GuBmundsaan.
Prentamiðjan Aeta.
CARBORUNDUM
Ijábrýní
No. 198
eru viðurkennd fyrlr gæði.
Carbor-
undum ljá-
brýni eru alger.
lega eitlalau's og slétt.
Carborundum brýni eru ekki
brothætt, og vatn hefir engin
áhrif á þau. — Carborundum brýni
gefa hárbeitta, varanlega egg í ljáina. —
Notið ætíð C a r b o r u n d’u m brýni.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA.
P. W. Jacobsen & Son
Timburverzlun
Simnefni: Gr&nfuru. Stofnað 1824.
Carl Lundsgade Köbanhavn.
Afgreiðum frá K&upmannahðfn bæði stórar og litlar pantanlr og
hedla skípefarma frá Svlþjóð. — Sía og umboðasalar onnaat pantanir.
:: :: :: :: Effi OG EFNl t ÞILFAR TIL SKIPA. :: :: :: ::
Ef bœndur nota ekki til eigin þarfa allar hÚðÍP og
skinn, sem falla til á heimiluni þeirra ættu þeir að
biðja kaupféiag sitt að koma þessum vörum í verð. —
Samband ísl. samvinnufelaga seldi nauigripahúðip,
hposshúðip, káifskinn. lambskinn og seiskinn síðast-
liðið ár til útlanda fyrir fullar 80 þús. krónur. Naui-
gpipahúðip, hposshúðip Og kálfskinn er bezt að salta,
en gera verður það strax að lokinni slátrun. Fláningu
verður að vanda sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af
Kaupum flöskur
til laugardags. — Literflöskur, hálfflöskur og heilflösk-
ur með slóttum botni.
Móttaka í Nýborg allan dagínn.
Afengisverzlun rikisins.
Kalksaltpétur
Víðáttan og yfirferðin er ekki
aðalatriðið. Það er meira um
vert að fá fulla eftirtekju af
því, sem ræktað er.
Notíð kalksaltpéíur milli slátta og
tryggið ykkur góðan seinni slátt.
Ferdamenn
ættu að skipta við Kaupfélag
Reykjavíkur. — Þar hafa þeir
tryggingu fyrir góðum og ó-
dýrum vörum.
skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður en saltað er.
Góð og hreinleg meðt'erð, á þessum vörum sem öðrum.
borgar sig.
er viðurkennt að fullnægi hinum ströng-
ustu kröfum.
YOUNG’S baðdnft: Drepur algerlega lús
og annan óþrifnað.
YOUNG’S »Red Uabel Paste«-baðlyf:
Auk þess að lækna kláða og drepa öll
snýkjudýr, hefir það þann mikla kost, að
að útrýma algerlega nit (færilúsaeggjum)
YOUWS „Springbok“-baðlyf: Er fram-
úrskarandi gott til allra venjul. notkunar.
Allar nánari upplysingar gefur
Samband ísl. samvínnufélaga
Búið tii hjá:
Robert Young & Company Uimited,
Glasgow, Scotland.
John kudis & Sons Þ
Millers,
Leith Edinburgh 6.
Vörur vorar eru alþektar á íslandi FYRIR GÆÐI:
INGLIS — blandað hænsnafóður.
INGLIS — alifuglafóður.
INGLIS — maísmjöl.
INGLIS — maís kurlaður og fleiri fóðurvörur.
Alltí „Blue Staru-sekkjum.
Pantanir annast.
Samband ísl. samvinnufélaga.
VEGGMYNDIR,
Rainmar og innramm-1
anir, bezt á
Freyjugötu 11.
Sími 2105.