Tíminn - 28.08.1935, Qupperneq 1

Tíminn - 28.08.1935, Qupperneq 1
©jaíbbagt b i a 6 jj i r, p et I. Jéoi I&Eaattautfun foatac 7 {*• ^fereifrsfc* ®8 lnníjclmta á iaagaoeg 10. €iml 2353 - Póot&iii 6&* XIX, árg. Reykjavík, 28. ágúst 1935. 36. blað Hin nýja fiskíramleiðsla (hraðfrysting), sem Fiskimála- nefndin er að gera tilraunir með, til söiu erlendis. Myndin sýnir umbúðir og innihald úr '/> kg. pakka af hraðfrystum fiski. Sbr. grein á öðrum stað í blaðinu. Afbrot og álmenningsálit Tveir lyfsalar, annar sunn- an~, hinn norðanlands, eru kærðir fyrir það, að hafa smyglað inn vínanda undir fölsku nafni. Þetta vekur þó enga sérlega undrun manna, á meðal. Á al mannafæri kveður við „að þetta hafi svo sem verið auð- vitað“, eða eitthvað á þá leið. Og aðeins örfáir menn virðast gera sér það ljóst, að hér sé annað en næstum því mein- laust spaug' á ferðum. Miklu betur myndi það svala nýungagirni manna, ef inn- brotsþjófur hefði brotið stóra spegilglerrúðu í einhverri verzlun og stungið upp ramm- læstan peningaskáp, þótt hann iiefði lítið fé borið úr býtum. En næðist innbrotspjófurinn og það kæmi í ljós, að hann væri sæmilega vel metinn borg- ari, þá væri honum fyrirlitning og fordæming vís, fyrir að hafa getað lagt sig niður við atvinnu af þessu tagi í hjá- verkum sínum. Og væri mað- urinn það sem kallað er „menntaður maður“, þá þætti fyrst kasta tólíunum. Þá gætu allir góðir borgarar tekið undir með sálmaskáldinu: „Ég sló þá á mitt lær er ég sá þetta.“ Hér virðast brasköldur ófrið- aráranna hafa borið þá skoðun á land, og hún náð sér of al- mennt niðri, að sum brot gegn hegningarlögunum séu ekki sérlega glæpsamleg, heldur eig- inlega „fínt sport“, sem sé fjárvænlegt og því býsna aðdá- unarvert, meðan það heppnast, en hættan ekki stórkostleg, þótt upp komizt, samanborin við hagnaðinn. Slíkur hugsunarháttur er allt of almennur í sambandi við allskonar „spekulationir“, gerðar í því skyni, að auðgast skjótlega; allskonar fjárpretti, fjártöku úr eigin hendi, smygl, víxilriddaramennsku o. s. frv. Ein mesta lífsnauðsyn ís- lenzku þjóðarinnar er sú, að þessi hugsunarháttur breytist. Og hér þarf annaðhvort eða hvorttveggja, að breyta hegn- ingarlöggjöfinni til íþyngingar við gróðabrallsmenn, eða má- ske breytingu á úreltum hugs- unarhætti aldraðra, dómára, sem álíta t. d. sauðaþjófnað frá einstaklingi hættulegri, eða óvirðulegra, athæfi, en gróða- brallsafbrot, er veltur e. t. v. á tugum þúsunda og snertir bókstaflega allþ, þjóðfélagið, veldur því oft stórtapi beinlín- is og enn meiru óbeinlínis, með skaðvænu fordæmi, sem stein- steypir tilfinningar yngri og eldri fyrir þeim mun sem er á réttu og röngUj sé einhver hagnaður í aðra hönd. Hestamarkað- ur i Danmörku Með Gullfossi kom hingaö til Reykjavíkur hr Chr. Hei- den, fulltrúi D. A. K. (Danske A ndelssvineslagteriers Ködop- skæringsfabrikker), sem1 er langstærsta samband sinnar tegundar í Danmörku. Eru í ]'ví 13 svínasláturfélög. Meðal annarrar framleiðslu þessa risiafyrirtækis, eru allskonar bjúgu. En félagið er svo voldugt, að það seilist ekki ein- ungis til Norðurálfuianda með þessa og aðra framleiðslu sína, heldur keppir í Bandaríkjun- um við tröllið Swift & Armour. Tíminn hefir nýlega haft tal af hr. Heiden. — Er það satt, sem við höf- um heyrt, hr. Heiden, að þér séuð hér komnir til þess að líta á hesta? — Já, ég líitti Jón Árnason fi'amkvæmdastjóra í vetur og hann bar upp þá hugmynd, að selja íslenzka hesta til sam- vinnufélaganna í Danmörku. Sambandið íslenzka og sam- vinnufélögin dönsku önnuðust verzlunina, svo að hestarnir færu beint frá íslenzkum selj- anda til dansks bónda, án „að- stoðar" hinna venjulegu milli- liða. Ættu þá báðir að komast að betrj kaupum en áður, ís- lenzki og danski bóndinn. Auð- vitað mun verða leitazt við að velja úr hestum til þessara við- skipta. Myndi það þá herða á íslenzkum bændum að leggja rækt við góða kynstofna, svo að kaupandi gæti sem fljótast farið að reiða sig á, að ís- lenzkir hestar væru góðir vinnuhestar. En í byrjun verða, sjálfsagt nokkrir örðugleikar á þessu, því að danskir hesta- kaupmenn bjóða nú íslenzka hesta til sölu í Danmörku við mjög lágu verði. — Hafa ekki danskir smá- býlabændur keypt töluvert af íslenzkum hestum? — Fyrr á árum. En fyrir það tók mjög, er hestar frá Póllandi og Lithaugalandi fóru að flytjast til Danmerkur. Þeir eru miklu stærri — (6IV2—66 þml.) — og þrekmeiri en ís- lenzkir hestar, og aðeins um 50 kr. dýrari. — Eru þá íslenzkir hestar samkeppnisfærari nú ? — Já, m. a. af því, að inn- flutningur hesta er nú mjög takmarkaður frá Póllandi og Lithaugalandi. Og í rauninnf hæfa íslenzku hestarnir ágæt- lega smábýlisbóndanum danska Ilann fer líka skyn- samlegar með þá en nokkrir aðrir rnenn í Norðurálfu, það er mér óhætt að fullyrða. Hann gefur þeim nægan tíma til ]>ess a.ð venjast loftslags- og fóðurbreytingum, en slíkt er afar mikilvægt. Og haust- keyptur hestur er vart þekkj- anlegur að sumri, enda er það ótrúlegt, sem íslenzki hestur- inn afkastar í höndunum á dönskum bónda. — Kaupið þér nú í umboði Framh. á 4. »íðu. A víðavangi Leiðrétting. 1 grein Páls Zophóníassonar: „Kjötsalan“, í nýútkomnu blaði af Tímanum, hafa fallið niður nokkur orð í 1. d. 4. síðu, og getur það valdið misskiln- ingi. í greininni átti að standa: ,,— — kaupmennirnir slátr- uðu margir hverjir ekki nema liluta af því, sem þeim var leyft, eða eins miklu og þeim var leyft að selja á innlenda markaðinum. Af þessu leiddi, að þeir áttu ekki nema 9,4% ] af (öllu útflutta kjötinu, en ca. 20% af) öllu sláturfénu. — Ilverjum manni má því vera ljóst, að í þetta sinn seldu þeir hlutfallslega meira á innlend- um markaði en félögin og hefðu því átt að geta gefið hærra verð“. Orðin, sem niður féllu, eru hér prentuð innan sviga. Andradeilan leyst. Samkomulag náðist í Andra- deilunni í gær. Lagði sáttasemjarj ríkisins tillögur sínar fyrir fulltrúa beggja aðilja í gær. Voru þær samþykktar af báðum, þó með þeim fyrirvara af fulltrúum Félags járniðnaðarmanna, að tillögurnar yrðu samþykktar af félagsfundi. Var haldinn fundur í Félagi iárniðnaðarmanna í gærkveldi og samþykkti hann tillögurnar. Aðalatriði samkomulagsins, sem náðst hefir með tillögum sáttasemjara, eru þessi: Verksviftingu og verkfalli verður aflétt. Félag járniðnaðannanna lofi því, að gera ekki eftirleiðis verkfall til að hafa áhrif á, livar viðgerðir skipa verða íramkvæmdar, þar til Alþingi setur lög, sem lúta, að viðgerð- um skipa. Báðir aðiljar lofa að beitast fyrir því, að viðgerðir skipa verði framkvæmdar í landinu. Allir nemendur, sem voru í vinnu, þegar verkfallið hófst, verða teknir í vinnuna aftur. Þar sem samkomulag er íengið, hefst vinna í dag í verksmiðjunum og Slippnum!. Karfaveiði. Ríkisverksmiðjurnar hafa boðið Fiskimálanefndinni að kaupa karfa af tveim togurumi fram til 15. sept. fyrir kr. 4,00 málið. Hefir náðst samkomulag um það, að togararnir Snorri goði og Gulltoppur taki að sér að stunda veiðarnar. — Munu ríkisverksmiðjurnar greiða kr. 4,00 fyrir málið af karfanum, en verði halii á rekstrinum, hefir Fiskimálanefndin ákveðið að standa. straum af honum, þó ekki meiru en sem svarar kr. 0,50 á mál. Verður það greitt af ]>ví, sem hún hefir undir liöndum og verja skal til mark- aðsleita og nýrra verkunarað- ferða. Áðurnefndir tveir togar- ar munu, ásamt togaranum Sindra, sem búinn er að stunda þessa veiði í nokkurn tíma með ágætum árangri, leggja karf- ann upp á Sólbakka. — Hefir Sólbaklc a verksmiðj an alveg nýlega fengið ný tæki til þess- arar framleiðslu og getur því afkastað mun meiru en áður. Ferðalög til útlanda. Vísir hefir nú nýlega gert að umtalsefni ferðir núverandi ráðherra til útlanda. Telur blað- snepill þessi óþarft að láta ráð- herrana hafa erlendan gjald- eyri til slíkra ferðalaga og hef- ir um það mikið orðagjálfur. Það liggur nú raunar í augum uppi, að ef nokkrir menn hafa á annað borð erindi til annara landa, þá eru það fyrst og fremst þeir, sem eiga að hafa á hendi æðstu stjóm á málefn- um þjóðarinnar. Hitt væri sönnu nær að finna að því, eins og utanríkismálin nú eru orðin nmfangsmikil, að ráðherramir verðu of litlum tíma til utan- ferða, því að eins og nú standa sakir, ríður áreiðanlega ekki minna á því, að ríkisstjómin fylgist með úrlausnarefnum er- lendis en landsmálunum hér heima fyrir. En úr því að tilefni gefst úr þessari átt, er ekki úr vegi að fara nokrum orðum um þá gjaldeyrisnotkun til utanferða, sem nú á sér stað, því að þar er áreiðanlega um að ræða talsvert af ferðalögum, sem þjóðin hefir næsta lítið gagn af. Það er t. d. mjög vafasamt gagn eða sómi að því fyrir þjóðina að verja erlendum gjaldeyri til að senda utan fjölmenna knattspyrnuflokka til þess að keppa við erlenda knattspyrnumenn, án þess að hafa nokkur skilyrði til þess að geta haldið hlut sínum og frem. ur hljóta að rýra en auka það álit, sem útlendingar hafa haft á manndómi og atgerfi íslend- inga. Þá er hitt í mesta máta ó- viðkunnanlegt, enda þar ekld lítið í lagt, að senda utan marga tugi af kaupsýslumönn- um! til þess að útvega ný verzl- unarsambönd í miður nauðsyn- legum vörum, sem bezt væri fyrir þjóðina að vera alveg laus við á þessum vandræðatímum. En slíkir legátar hafa nú í vor og sumar verið á flökti suður um alla álfu og eytt stórfé Mættu gjarnan vera meiri hömlur á ferðum þeirra. Þegar hann „gat ekki orða bundizt“. Það er býsna afkáralegt að heyra, hvernig niðursetningur Kveldúlfs (höf. mosagreinar- innar) hrín í Mbl. í vikunni sem leið, út af greininni „Þeir munu ógildir falla“, í síðasta, blaði Tímans. Og nærri mun nú láta, að „öll Reykjavík hlæit;, þegar ]>essi kámugasti sorpritari í- haldsins, að Magnúsi í Storm- inúm ekki undanteknum, lætur letra stórum stöfum yfir marga Morgunblaðsdálka: „Ég get ekki orða bundizt“!! Því hver er sá, sem frá fcann að segja, að téður sorpritari hafi nokkurntíma getað orða bundizt? Hefir hann ekki á Al- þingi vaðið elginn um hin ó- skyldustu mál, án þess að sjá- anlegt væri að hann hefði þar nokkurn skapaðan hlut til brunns, að bera, nema fram- hleypnina eina og sjúklega löngun til að sparka úr ldauf í menn og málefni? Hefir hann ekki sjálfur, vegna æstra skapsnfuna (að því er hann sjálfur segir) gert sig sekan í svo fáránlegum munnsöfnuði um þá stétt, sem hann á líf sitt að launa, að ekki hefir annað tjáð en að biðja fyrir- gefningar á fjölmennum mann- fundi? Var hann ekki sendur burt úr bænum í fyrTavor af sínum eigin flokksmönnum, til þess að koma í veg fyrir, að hann spillti fyrir sjálfum sér í kosningunum, með því að minna á þá seinheppilegustu liðsemd, sem Morgunblaðinu hefir verið veitt? Hefir hann ekki orðið upp- vís að því í blaðagreinum nú nýskeð, að bera fram svo blá- köld og auðsæ ósannindi um skjalfestar staðreyndir, að jafnvel flokksmenn hans rekur í rogastanz og segja að mað- urinn hljóti að vera „aum- ingi“? Það er svo sem engin furða, þó að þesisi maður „geti ekki orða bundizt“! Og það er heldur engin furða, þó að þeim Kveldúlfs- mönnum og öðrum Morgun- blaðsbroddum, sé farið að verða dálítið órótt út af því, hvernig stjórnarblöðin hafa flett ofan af aðbúð þeirra að hagsmunum Islands og Islend- inga erlendis. Sjálfir hafa þeir þar hafið alvarlegan leik. Og þeir þurfa ekkert að furða sig á því, þó að bæði stjórn landsins og all- ur almenningur hafi meiri gæt- ur á athæfi þeirra í þessum efnum hér eftir en hingað til. Uian úr heimi L. S. (Landboernes Sammen- slutning), sem fyrir skömmu gekkst fyrir kröfugöngu danskra bænda á fund kon- ungs, hefir ákveðið að hefja gjaldeyrisverkfall. Formaður L. S. félagskapar- ins heitir Knud Baoh og er stóreignamaður. En mest hefir borið á hreyfingunni í Suður- Jótlandi, og er talið, að það sé vegna áhrifa frá nazismanum í Þýzkalandi. Með þessu einkennilega verk- falli, er ætlunin að knýja, fram kröfur L. S., sem m. a. gera ráð fyrir stórauknum ríkis- styrk til handa landbúnaðinurn og ennfremur, að tafarlaust verði hætt öllum nauðungaupp boðum í sveitum landsins. Einnig stefnir L. S. að því, með þessum aðgerðum, að fá gengi dönsku krónunnar lækkað. Fyrirætlanir L. S. eru þess- ar: í stað þess, að enskir inn- flytjendur fá nú 10 daga greiðslufrest fyrir vörur frá Danmörku, á að framlengja greiðslufrestinn svo að hann verði þrír mánuðir. Fyrír þann tíma ætlar L. S. að neita að taka á móti greiðslum þaðan, Þegar þessir þrír mánuðir eru liðnir, er ætlunin að draga það eins lengi og mögulegt er, að skipta ensku myntinni í danska peninga. Á þennan hátt á að leggja hömlur á athafna- líf Dana — hömlur, sem L. S. álítur að muni leiða til þess, að þing og ríkisstjórn neyðist til að sinna kröfum þess, jafn- framt því, sem krónan falli. Ennþá er ekki ráðið, hve mörg af sláturhúsunum og mjólkurbúunum munu fylgja á- skorun L. S. um gjaldeyrisverk- fall. L. S. býst við að öll m|jólk- urbúin og sláturhúsin muni taka þátt í verkfallinu. Sé þetta rétt, sem þó verður að telja mjög vafasamt, mundi það ieiða til þess, að á áðumefnd- um þremur mánuðum myndi þetta ná út yfir 6,5 milj. ster- lingspund eða 150 milj. danskra króna af þeim gjaldeyri, sem búizt er við að Danir hafi yfir að ráða. Það er almenn skoðun, a,ð ekki sé hægt að framkvæma gjaldeyrisverkfallið og menn hafa enn minni trú á því, að slíkar aðgerðir myndu bera ]iann árangur, sem L. S. ætlar. Því er haldið fram, að Þjóð- bankinn hafi yfir svo miklum gullforða að ráða, að hann geti auðveldlega. hrundið tilrauninni til að fella verðgildi krónunnar. Auk þess ganga flestir þing- menn gegn fyrirætlunum L. S. I samtali við „Politiken“ segir Stauning forsætisráðherra, að áform L. S. séu sprottin af gróðabralls- og hefndarhug. Ef bændur og búalið hafi efni á því, að láta peninga sína liggja ónotaða erlendis, sé það gleði- legur vottur þess, að þeir séu þegar komnir yfir örðugasta hjallann. Þegar kröfur L. S. komu til umræðu í danska þinginu fyrir skemmstu, greiddu ekki nema 4 þingmenn (af 150) þeim at- kvæði, þar af aðeins einn úr bændaflokknum (vinstri).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.