Tíminn - 04.09.1935, Side 2

Tíminn - 04.09.1935, Side 2
150 TlMINN Málverkasýtting Kjarvals Málverkasýning Kjarvals var opnuð á sunnudaginn var. Er sýningin í Menntaskóla- húsinu og hafði verið komið upp tignarlegri fánaröð fram- an, við. húsið og setti hún við- hafnarblæ á staðinn. Kl. IV2 e. hád. skipaði Lúðra- sveit Reykjavíkur sér framan við skólann og lék nokkur lög. En kl. 2 var hátíðasalur skól- ans orðinn troðfullur. Gekk þá Iíermann Jónasson forsætisráð- herra í ræðustól og flutti ræðu þá, er hér birtist á eftir. Þá flutti ræðu dr. Guðmundur Finnbogason, landsbókavörður, Þorsteinn Gíslason flutti kvæði Karlakór Reykjavíkur söng undir stjórn Sigurðar Þórðar- sonar, þrjú íslenzk lög og var síðastur þjóðsöngurinn. Svo gekk hetjan í æfintýrinu, sem Reykvíkingar eiga kost á að lesa á veggjum menntaskól- ans þessa dagana, Jóhannes Sveinsson Kjarval, í ræðustól- inn. Hann þagði örfá augna- blik, og renndi augunum yfir salinn, meðan stálfingur hans greyptu stólbrúnirnar; á þessu augnabliki einvaldur í ríki listar sinnar og meitlaður af henni sjálfur: mikilúðugur og hrærður, tiltakanlega fallegur; — tignarmaður, frá hvirfli til ilja. Svo mælti hann með stilltri, sterkri röddu: ,,Lg þakka — þakka ykkur öllum — öilum! — Lófaklapp kvað nú við og önnur alúðarmerki, en þá liðu ýmis geðhrif yfir andlit listamánnsins eins og skýjafar yfir skyggðan flöt. — 'öll var athöfnin hin virðu- legasta og var henni allri út- varpað. Um 700 manns sóttu sýning- una á sunnudaginn, og margir hafa þar verið síðan. Málverkin, sem sýnd eru, eru umj 500 að tölu, og ber það vott um, hversu mikilvirkur Kjarval hefir -verið. Af hinum nýjustu málverk- um Kjarvals, er voru fengin frá vinnustofu hans, hafa þeg- ar nokkur selzt. RÆÐA FOR- SÆTISRÁÐHERRA: Jóhannes Kjarval listmálari verður fimmtugur á þessu hausti. Þess vegna hafa vínir Iians tekið sér fyrir hendur að koma þessari sýningu á fót. Tilgangur hennar er að veita nokkurt yfirlit yfir verk lista- mannsins. Get ég þess til, að þegar menn nú ganga um þessa sali, og virða fyrir sér myndir Kjar- vals, þá undrist menn afköst hans. En þó er þetta ekki r.ema hluti, nokkur hluti, af öllu því, sem! eftir hann liggur. Ástæðan er sú, að myndir Kjarvals eru dreifðar víðsveg- ar um land 0g einnig um önnur lönd, en skortur sala-kynna er líka ein ástæðan — með góðu móti hefði ekki verið korrn'ð hér fyrir öllu fleiri myndum, — en hér í bænum er vitað um mjög mikinn fjölda af Kjar- valsmyndum í eign einstakra manna, auk þeirra semj hér eru saman komnar. En þótt þessu sé svona farið, þá mun hitt víst, að fjölbreyttni þeirra mynda, sem hér eru sýndar, sé svo mikil, að telja megi að sýningin gefi harla fullkomið yfirlit yfir fjölhæfni og mynd- auðgi þessa listamanns. Og er þá takmarkinu náð. En allt fram að þessari sýn- ingu hefir slíkt yfirlit eltki verið til. Nánustu vinir Kjarvals og aðdáendur munu ekki hafa.. haft vitneskju um, að slík væru verk hans, hvorki að fyrirferð né íjölbreytni. Hvað þá við hin, eða þjóðin í heild sinni. En því er nú svo farið, að maðurinn lifir ekki á einu sam- an br&uði. O g þótt við eigum bók- menntaarf frá forfeðrunum — arf, sem ekki verður metinn til fjár — og þótt við þann arf bætist smátt og smátt, þá mundi slíkt ekki nægja til þess að við, sem nú lifum á íslandi, yrðum taldir til ménningar- þjóða, ef ekki biytist hinn á- skapaði arfur þjóðstofnsins fram í fleiri greinum frum- legra gáfna og menningar- starfs. Þegar Kjarval var ungur maður og sýndi í fyrsta skipti myndir eftir sig, þá kom það fram í blaðagrein, að méð þessari myndasýningu væri fram komin enn ein sönnun fyrir því, að íslenzka þjóðin ætti skilið stjórnarfarslegt frelsi, og mundi verða þess megnug að taka á móti því. Hugsunin var sú, að svo mikils væri um vert, þegar listrænir hæfileikar ryddu sér braut við þá aðstöðu og þau æfikjör, sem þama var raun á. Ég lít svo á, að þetta hafi verið rétt ályktað. Frumleiki fagurra lista er sérhverri þ j óð mikilsverð nauðsyn — ég vil segja lífs- nauðsyn. * 1 Án frumlegra lista yrði líf einstáklinga og þjóða litlaus ó skapnaður. Það er ekki mitt að kveða hér upp dóm yfir verkum Kjarvals. En ég held að sá maður sé áreiðanlega eitthvað einkennilega gerður, sem geng- ur um þessa sali og skoðar þessi verk og ekki finnur til djúpra og sterkra áhrifa, og á hitt vil ég benda, að það hefir hent, allt of oft, að dómurinn, hinn rétti skilningur, hefir ekki orðið uppkveðinn í tæka tíð, yfir mörgu snillingsefninu, sem' fæðst hefir með þjóðinni. Og þess vegna hefir faríð þannig fyrir mörgum lista- manninum, að „heimurinn varð hjáleigan, en höfuðbólið draumsins ríki“. Til þess kunna að hafa legið afsakanir, sem hér er ekki tóm til að rekja. Og þess vegna er mér ljúft að opna þessa sýningu, að ég trúi því að almenningur.fái nú aðstöðu til þess að kveða upp dóminn yfir Kjarval. En listdómum fullnægir al- menningsálitið sjálft — og ber að fullnægja. Að svo mæltu lýsi ég því yf- ir, að sýningin er opnuð fyrir almenning. 59 Svarta stjórnin“ í Rvík Fyrir mörgum árum, um það leyti, sem1 íhaldið var að reyna að gleypa herleifar Sigurðar Eggerz — og tókst það — var haldinn hér í Reykjavík sam- eiginlegur fundur íhaldsmanna og gamalla „Sjálfstæðis- manna“. Á þessum fundi voru íhaldsmenn sætmæltir og fag- urmæltir og kváðust vilja rétta hinum litla Sjálfstæðis- flokki „bróðurhönd" til sam- vinnu. Þá kallaði ungur Sjálf- stæðismaður fram í fyrir í- haldinu á þessa leið: „Ég sé enga „bróðurhönd". Hér er bara „svarta liöndin“. — En „svai'ta höndin“ sigraði. Hún lagði sinn kalda lófa fyrir heiðríkjugluggann á pólitísk- um himni Sigurðar Eggerz. Og nú er hún að „kasta rekunum" á Jakob Möller. í þjóðmálunum hefir þó hinn knýtti hnefi „svörtu handarinnar" orðið að lúta í lægra haldi. En í málefnum Reykjavíkurbæjar er hann enn hið æðsfa vald. Reykjavík hefir svarta stjórn. Heildsalarnir, Kveldúlfur og Morgunblaðið eru „máttar- stólpar" hinnar „svörtu stjórnar“ í Reykjavík. Og Vísir dansar með — vesaling- urinn — á pólitískum1 moldum foringja síns. í flokki hinnar „svörtu stjómar" í Reykjavík hafa „undirróðursmenn" og róg- berar mest áhrifin, að því er skjallega var vottað af for- manni flokksins í hirðisbréf- inu góða. Borgarstjórakosning arnar fara þannig fram, að Ja- kob Möller er felldur frá þeim af „undirróðursmönnum“. Og hvernig er svo að vera þegn hinnar „svörtu stjórnar" í Reykjavík. í ríki hinnar „svörtu stjóm- ar“ hafa, skattar verið meira en tvöfaldaðir á síðustu fimm árum. I ríki hinnar „svörtu stjóm- ar“ okrar hin „svarta stjóm“ sjálf á brýnustu lífsnauðsynj um almennings. Þar er gas, vatn og rafmagn selt með 60 —100% álagningu á kostnað- arverð. I ríki hinnar „svörtu stjórn- ar“ er dýrasta húsaleiga á landinu. 1 ríki hinnar „svörtu stjórn- ar“ er mesta atvinnuleysi á landinu. Meginhlutanum af því fé, sem ríkið leggur fram til atvinnubóta, verður að eyða í ríki hinnar „svörtu stjórnar“. I ríki hinnar „svörtu stjóm- ar“ fer framleiðslutækjum fækkandi ár frá ári, jafnframt, sem fólkinu fjölgar. „Svarta stjórnin" í Reykja- vík skuldar 14,7 miljónir króna eða 445 kr. til jafnaðar á hvern þegn í ríki sínu. Og samhliða lætur „svarta stjórnin“ auglýsa fyrir lands- fólkinu í öllum sínum blöðum, hve fjárhagur hennar sé prýði- legur og hvílíkur gæfuvegur það sé, að flytjast inn fyrir landamæri hinnar „svörtu stjórnar". ísland á aðra ofurlitla „svarta stjórn“. Hún er í Vestmannaeyjum. Þessi litla svarta stjórn í Vestmannaeyj- um komst í greiðsluþrot í vor og opinberar eignir í hennar vörzlu voru auglýst ar til upp- boðs. Þannig er það í Reykjavlk, 0g þannig er það í Vestmanna- eyjum. Svona er gott að hafa „svarta stjóm“! Reykvíkingui'. öarðyrk j usýningin í tilefni af 50 ára afmæli hins íslenzka garðyrkjufélags hefir verið efnt til garðyrkju- sýningar og er hún haldin í miðbæjarbarnaskólanum og tekur yfir 5 kennslustofur. Þar er nú blómlegt um' að litast og margt að sjá, sem augað gleð- ur, því hlvað er fegurra en gróður jarðar seint á sumti áður en haustfrostin setja á hann sinn svip. Maður hlýtur að undrast yf- ir því sem þama er sýnt, af blómum og matjurtum af ýmsum tegundum', sem ná hér jafn miklum þroska eins og í suðlægari löndum, og það, þrátt fyrir óhagstæða veðráttu sumarsins. — vætu og sólar- Ieysi. En þessum árangri má ná í íslenzkri mold, þegar alúð er lögð við starfið og kunnátta er fyrir hendi. Mér verður fyrst að nefna þær jurtimar, sem til nytsemd- ar teljast, því þær varðar okk- ur mest um, íslendinga, og eru nauðsynlegar ef við eigum að halda lífi og heilsu, eins og læknavísindi nútímans hafa bezt sýnt fram á. Þarna er heill hraukur af Hvítkáli frá Boe- skov garðyrkjumanni (Blóm- vangi), eins stórt og maður á því að venjast frá útlöndum. Afbrigðið heitir Amager, lág- vaxið, og fræinu var sáð fyrst í marz. Og þama eru blóm- kálshöfuð frá Elliheimilinu, svo falleg að garðyrkjumaður- inn, sem þau hefir ræktað, myndi fá verðlaún fyrir þau, hvar sem væri í veröldinni. Loftslag Suðurlands virðist eiga svo prýðilega við þessa káltegund, að óvíða mun sjást fallegra og betur þroskað blómfræ en einmitt hér. Þess- ari sýningu á blómkáli og grænkáli frá Elliheimilinu er vel og smekklega fyrir komið. Þama eru líka sýndar af- urðir garðyrkjustöðvanna í öl- fusi, Reykjabúinu og Fagra- hvammi. Gríðarstórar gúrkur frá Guðjóni á Reykjum og það sem enn meiri undrun vekur, þroskaðar víndrúfur, bláar og fagrar, því það er margt sem! hægt er að framleiða af gróðri, þar sem jarðhitinn er, og glerhúsin eru byggð yfir. Þarna eru ennfremur rauðróf- ur, tómötur og porri, laukteg- und, sem ef til vill á framtíð fyrir sér hér á landi í heitri jörð. Þá eru og matjurtir ýms- ar frá Ingimar í Fagrahvammi og í sömu stofunni eru líka um Mesiinarsjððir]óin Danhaia Það bar við fyrir nokkrum árum, að háður var landsfund- ur íhaldsmanna í Reykjavík. Ekki voru þar margir nienn úr sveitum, fremur venju. En um einn þessara fáu, sem mættir voru úr bændastétt, er til dá- lítil saga, sem gerðist á þess- um fundi. Sá maður var Jón bóndi í Dunhaga í Eyjafirði. Jón í Dunhaga er talinn mætismaður og góður bóndi í sinni sveit. Hann er líka eins og flestir Eyfirðingar, félagi í samvinnufélagi eyfirzkra bænda. Hann hafði samt ein- hvemveginn komlzt að þeirrl niðurstöðu, að honum bæri að styðja landsmálaflokk þann, sem alltaf hafði verið á móti bændafélaginu í Eyjafirði og m. a. viljað leggja á það sem allra hæst útsvör. En þetta var sannfæring Jóns í Dun- haga, og þess vegna var hann suður kominn á landsfund í „Sæluhúsinu". Jón hafði sig þar lítt frammi um ræðuhöld, en hlýddi á mál „forráða- manna“. Margt þótti honum þar vel mælt og skörulega. M. a. heyrði hann frá því skýrt, að risin væri í höfuðstaðnum æskulýðshreyfing íhaldsmánna. Þótti Jóni í Dunhaga, sem hér mundi fagurri hugsjón í fram- kvæmd hrundið og stórnauð- synlegri fyrir flokkinn. Og, að erindi þessu loknu, kvaddi hann sér hljóðs og lýsti því yfir, að hann gæfi íhalds- flokknum 100 krónur, er leggja bæri í sérstakan sjóð, er geyma skyldi og verja til menningar ungum íhaldsmönn- um og sérstaklega til að ala upp nýj a ritstjóra handa Morg- unblaðinu. Sá Jón eigi annað, en að þessu væri góður rómur gerðui', og afhenti hann pen- ingana. En er að fundarslitum leið, var það samráð þeirra, er mannafon-áðin höfðu, að efnt skyldi til sameiginlegrar kaffi- drykkju á einu af veitingahús- umj bæjarins. Var það gert. En er greiða skyldi þegnar veit- ingar, var forstöðumönnum fjár vant. En lyktir urðu þær, að þeir tóku fé það, er áður var getið, og ætlað var til betrunar ungum íhaldsmönn- um, og luku þannig skuld fundarins. Og aldrei komu fyr- irmæli gefandans til fram- kvæmda. Þannig fór um menn- ingarsjóð Jóns í Dunhaga. Sjálfur vissi Jón ekki um þessa meðferð sjóðsins fyrr en löngu síðar. Sagan um menningarsjóð Jóns í Dunhaga er brosleg saga. Hún er býsna skopleg mynd af því, hvað bændur eru „teknir alvarlega", ef þeir setjast á bekk með Reykvík- ingum á „landsfundum" í- haldsmanna. En hún er líka merkileg saga — merkileg vegna þess, að hún bregður einkennilegri birtu yfir kjarna Reykjavíkuríhaldsins annarsvegar og hinsvegar hinn fjölmenna kjósendahóp þess víðsvegar um landið. Hún gefur tilefni til þess, að velta fyrir sér enn einu sinni spurningunni: Hverskon- ar fyrirbrigði er íhaldisflokk- urinn á Islandi? Og hvað er það, sem hefir haldið þessum flokki saman og gert hann fjölmennan í lándinu? Venjulegur sagnfræðingur, sem aðallega hugsar um að gera grein fyrir ytra borði viðburðanna, myndi svara fyrri spumingunni eitthvað á þessa leið: Ihaldið er flokkur sem1 kom fram í íslenzkri pólitík i stríðslokin, þegar innanlands- málin fóru að skipta mönnum í flokka á Alþingi. Hann varð til sem einskonar mótvægi gegn hinum nýju umbótaflokkum bænda og verkamanna og í and- stöðu við þá. Árið 1921 hét hann Spamaðarbandalag, 1923 Borgaraflokkur, 1924 íhalds- flokkur, 1928 Sjálfstæðisflokk- ur og 1934 greindist hann í Sjálfstæðisflokk, Þjóðemissinna og Bændaflokk. Síðustu kjör- tímabilin hefir hann við kosn- ingar fengið 40—50% greiddra atkvæða í landinu, og haft kjós- endur úr ýmsum stéttum, þar á m'eðal marga úr bændastétt, en sterkast fylgi hefir hann alltaf haft í kaupstöðunum og sérstaklega í Reykjavík. En til þess að svara síðari spurningunni, er nauðsynlegt að taka einskonar „röntgen“-mynd af þessum einkennilega flokki. Það þarf að gera sér grein fyr- ir því, hvers vegna flokkurinn er í upphafi til orðinn, og hvaða öfl það eru sem hafa gefið hon- um lífskraftinn. I öllum löndum er baráttan milli hinna pólitísku flokka hin sama í höfuðatriðum. Hún er baráttan um auðæfi landsins og baráttan um vinnuafl fólks- ins, sem í landinu býr. 1 þjóð- félaginu eru tvö máttarvöld að verki, ekki óhliðstæð því, sem gert er ráð fyrir í hinumj helztu trúarbrögðum. Annarsvegar er það afl, sem vill draga þau verðmæti, sem ávinnast fyrir samstarf hinnar lifandi og' dauðu náttúru, á fárra manna hendur, 0g þar með umráðarétt lífsgæðanna,. Hinsvegar er það afl, sem vill dreifa verðmætun- um og skapa öllum sem jöfnust skilyrði til að fullnægja þrá sinni til hamingju. Segja má að vísu að hér séu fleiri öfl að verki, seml togast á eftir öðrum línum. Svo er það með tog- streitu þá, sem stundum á sér stað milli einstakra landshluta eða milli sveita og borga um sameiginleg verðmæti. En þau eru þó fremur aukaatriði í hinni miklu þjóðfélagsbaráttu, því að lokum stendur stríðið milli hinna stóru máttarvalda í hverri sveit og hverri borg. Enginn skyldi vera svo fávís að ímynda sér, að þjóðfélags baráttan hér á landi væri ann- ars eðlis en umhverfis oss úti í hinum stóra heimi. Hér hefir að vísu ekki myndast auðmagn á amerískan mælikvarða. En baráttan er hin sama, hvort sem hún er um silfurpening- ana, sem Egill vildi strá um Þingvöll á 10. öld eða miljónir Rockefellers á 20. öld. Ef litið er yfir hina íslenzku stjórnmálaflokka síðustu tvo áratugina, getur enginn verið í vafa um, hvaða stjómmála- fiokkur það er, sem' vinnur að því að safna verðmætunum og umráðum lífsgæðanna á fáar hendur. Það er íhaldsflokkur- inn. Sú staðreynd var á sínum tíma vel og drengilega viður- kennd af fyrverandi foringja flokksins, Jón Þorlákssyni. Ihaldsflokkurinn berzt fyrir hagsmunum fárra manna. I því er ekkert óeðlilegt. Og það er heldur ekkert óeðlilegt, að þessir „fáu menn“, sem finna hjá sér vilja og kraft til þess, að heyja baráttu gegn almenn- ingi, geri það, og njóti þeirra sigra, sem þeir kunna að geta unnið með sínum eigin dugnaði eða í hinni ,frjálsu samkeppni“ eins og hún er leyfð innan þjóðfélagsins. En hitt er óeðli- legt, að þeir njóti stuðnings lýðræðisins og hins almenna at- kvæðisréttar sínu málefni til framdráttar. Það vita allir, sem' þessi mál þekkja og skilja, hvar þeir eru og hverjir þeir eru, sem völdin hafa í íhaldsflokknum og skapa flokksviljann. Þeir menn eiga svo að segja allir heima á nokkrum vallardagsláttum i höíuðstað landsins. Og þessir menn eru ekki mjargir. En þess- ir fáu menn ráða yfir tveim dagblöðum og tíu vikublöðum. Þeir ráða 22 atkvæðum af 49 á þingi þjóðarinnar, og þeir hafa haft á að skipa yfir 20 þúsund kjósendum í öllum' hér- öðum landsins. Hvað veldur slíkum fimum í lýðfrjálsu landi? Hvað veldur því að þúsundir manna, sem í raun og veru hvorki hafa hags-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.