Tíminn - 27.11.1935, Side 3
TÍMINN
199
Fræðslumálaskrifstofuna vantar í skýrslusafn sitt prentaðar skýrsl-
ur um eftirtalda skóla fyrir þau ár, er hér fara á eftir:
Um Eiðaskóla 1893—’94, 1899—1904, 1909—'10,
1916—’19 og 1922—’23.
„ Flensborgarskóla : 1884—’98, 1900—'05,
1912—’13 og 1919—’'20.
„ Hólaskóli: 1883—1904 og 1923—’28.
„ Hvanneyrarskóla : 1897 —1907.
„ Kennaraskólann: 1908—’13.
„ Kvennaskólann í Reykjavík: 1923—’24.
„ Menntaskólinn í Reykjavík: 1840 —’54, og
1875—’76.
„ Möðruvallaskóla : 1900—'01.
„ Verzlunarskólaíslands: 1913’14 og 1919-’20.
Þeir, sem hafa þes3ar skýrslur í fórum~síhum og góðfúslega vilja
láta skrifstofunni þær í té, eru beðnir að senda þær við fyrstu
hentugleika til fræðslumálaskrifstofunnar í Reykjavík.
Auk ofantaldra skýrslna væri vel þegið, að fá aðrar gamlar
skýrslur um þá skóla, sem lðngi hafa starfað.
Fræðslum álast j órinn.
Pólitískt
leirskáld
í umræðunum á Alþingi nýl.,
vildi það til, að Sigurður Krist-
jánsson vitnaði til Nýja Dag-
blaðsins í ræðu sinni og til-
færði þaðan setningu, er hon-
um þótti vel sögð, viðvíkjandi
máli, sem allmikið hefir verið
á döfinni her 1 bæjarblöðun-
um.
Ólafur Thors reis þá upp og
veitti Sigurði áminningu fyrir
að láta sig henda það að vitna
þannig í blað andstæðinga.
• Mörgum þótti þetta kátlegt
fyrirbrigði.
En Ólafi er vorkunn. Því að
blöð íhaldsmanna eru þannig á
sig komin andlega, og hafa
jafnan verið, að engum dettur
í hug að tilfæra úr þeim ann-
að en vitleysur til spotts og
athlægis. Greindari menn í-
haldsins segjast verða heimsk-
ir af að skrifa í Mbl., hvað þá
að lesa það. Jafnvel flokks-
mennirnir hafa það sér til
dægrastyttingar að tína upp
úr því fjólumar, — en aldrei
finna þeir þar neitt, sem vert
sé þess, að eftir því sé munað.
Þess vegna tekur Ólaf það
sárt, þegar hann verður þess
var, sem ósjaldan er, að um-
mæli úr blöðum eða ræðum
andstæðinganna lifa á vörum
almennings — og þegar flokks-
menn hans geta ekki stillt sig
um að hafa þau yfir.
Árum saman hefir ólafur
sjálfur á Alþingi streizt við að
deila við formann Framsóknar-
fiokksins, Jónas Jónsson. Við-
ræður þeiyra fylla sjálfsagt
mörg hundruð dálka samtals í
þingtíðindunum.
En þar hefir verið ójafn
leikur.
Það mun ekki vera til nokk-
ur sá maður innan þings né
utan, sem man eina einustu
setningu úr öllu því innantóma
orðagjálfri, sem Ólafur hefir
látið frá sér fara í sennum
þessum. En Jónas hefir hvað
eftir annað hirt Ólaf svo að
landfleygt hefir orðið. Einstök
orðatiltæki hans úr þeim við-
ræðum eru höfð að orðtaki,
elcki aðeins í þingsölunum,
heldur út um allt land.
Ólafur hefir óljóst hugboð
um, að hann sé vesall og ó-
merkilegur flokksforingi, „lít-
ill karl“, sem aldrei segir
neitt, sem hægt er að muna.
Honum svíður það.
En á þessu verður aldrei bót
ráðin. ólafur er eins og leir-
skáldin. Einkenni leirskáldanna
er það, að enginn getur lært
vísur þeirra. Þess vegna er
þeim líka mörgum hverjum —
eins og ólafi — raun að ljóð-
um þeirra manna, er vel kveða.
Klakstöðvar
Við Laxá í Þingeyjarsýslu
og Laxá f Kjós
Á fyrrihluta þingsins kom
fram frv. frá þeim Jónasi
Jónssyni og Jóni Baldvinssyni
um stofnun klaksjóðs og bygg-
ingu klakstöðva. Var frv.
fiutt að tilhlutun landbúnaðar-
ráðherra, en undirbúið af
Skipulagsnefnd.
Samkv. frv. skal stofnaður
klaksjóður, sem varið skal til
að standast rekstur tveggja
stórra klakstöðva, sem ríkið
lætur reisa. 1 sjóðinn skal rík-
issjóður greiða 5000 kr. árlega
í næstu 5 ár, og auk þess skal
renna í sjóðinn sérstakt klak-
sjóðsgjald, er nemi 10 aruum
á kg. af seldum laxi. Þá skulu
og klakstöðvar ríkisins selja
fiskiræktar- og veiðifélögutn
laxaseiði fyrir eigi meira verð
en 8 kr. þúsundið flutt í á þá,
sem seiðin eru ætluð í. Klak-
stöðvarnar skulu vera það
stórar, að hvor þeirra geti
framleitt allt að 2*4 milj. lax-
seiða.
Landbúnaðarnefnd efri deild-
ar hefir haft þetta mál til at-
hugunar og hefir nú skilað sér-
stöku Hiti. Segir svo í nefndar-
álitinu:
„Nefndin er sammála um, að
nauðsyn beri til þess að reisa
klakstöðvar við hentugar veiði-
ár og að þær beri að velja einn-
ig með tilliti til þess, að sem
auðveldast sé að flytja laxa-
seiði í sem flestar veiðiár í
landínu.
Eftir að hafa athugað þetta
allítarlega, hefir það orðið of- .
an á, að velja til þess Laxá í
Kjós fyrir Suðurland og Laxá ,
úr Mývatni fyrir Norðurland. J
tJr Laxá í Kjós er skammt að j
flytja seiði í hinar beztu og j
líklegustu veiðiár á Suður-
landi og t. d. norður í Húna-
vatnssýslu, og jafnvel Skaga-
fjörð. En úr Laxá úr Mývatni
eru eigi allerfiðir flutningar
seiða um Austurland og auð-
veldir vestur á bóginn“.
Samkvæmt þessari niður-
stöðu leggur nefndin til að
bætt verði inn í frumvarpið
eftirfarandi heimild fyrir rík-
isstjómina:
,,a) að kaupa eða taka á
leigu öll veiðiréttindi í Laxá í
Kjósarsýslu, ásamt veiðimanna-
húsinu Ámesi við Laxá með
tilheyrandi landspildu, og öll
veiðiréttindi í Bugðu og Meðal-
fellsvatni í sömu sveit.
b) að taka á leigu veiðirétt-
indi öll í Laxá úr Mývatni.
Takist ekki hagkvæmir samn-
ingar, að dómi ríkisstjórnarinn-
ar, um kaup eða leigu á veiði-
réttindum í a- og b-lið, skal
ríkisstjóminni heimilt að taka
þau eignamámi“.
Úrval af allskonar vörum til
Tækifærlsgjafa
HARALDUR HAGAN
Símj 3890. Austurstrseti B.
Ferðamenn
ættu að skipta við Kaupfélag
Reykjavíkur. — Þar hafa þetr
tryggingu fyrir góðum og ó-
dýrum vðntm.
Með þessari ráðstöfun hefir
Mjólkursamsalan tryggt mjólk-
urneytendum framvegis full-
komna gerilsneyðingu á mjólk-
inni.
Þó segja megi með nokkmm
rétti, að það sé Mjólkurstöð
Mjólkurfélags Reykjavíkur að
kenna, að gerilsneyðingunni
skuli hafa verið svo mjög
ábótavant og mjólkurbúunum
að þau hafa ekki getað fram-
leitt gott skyr.og góðan rjóma,
þá verður að telja að þetta
hvorutveggja sé bein afleiðing
skipulagsleysisins og eftirlits-
leysisins, sem áður var og
þarna hefir komið fram í sinni
eorglegu mynd.
Raunverulegt eftirlit með
framleiðslu og meðferð á mat-
vælum almennings í bæjunum
hefir ekki verið til. Á þessum
hlutum hefir verið hin argasta
óreiða og afskiptaleysi, og eft-
irlitsleysi; og eftirlitsleysið
með mjólkinni er aðeins einn
hluti þessa vanrækta starfs,
þar til nú að Mjólkursamsölunni
er fengið málið í hendur.
Forráðamenn Samsölunnar
hafa gert sér ljóst, að hlutverk
hennar er margþætt og vanda-
samt — trúnaðarstarf almenn-
ings, starf sem þarf að vinna
bæði fyrir neytendur og fram-
leiðendur. Hún hefir því látið
það vera sitt fyrsta verk að
koma á eftirliti og rannsókn á
vörugæðunum, mjólkinni, skyr-
inu og rjómanum — og gera
ráðstafanir til umbóta sem með
þarf. —
Þetta er einn þátturinn í
starfi Mjólkursamsölunnar og
ef hún fær að starfa áfram í
svipaða átt að hinum marg-
þættu umbótastörfum, þá mun
hún geta leyst mjólkurmálið úr
miklum álögum til ómetanlegs
gagns ‘ f yrir neytendur og
framleiðendur.
Kolaverzlun
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Símn.: KOL. Reykjavík. Síml 1933
bót af annara fé, fyrir
sliemmda síld, var félagsskap-
ur þeirra Sveins og Jóns bygð-
ur á braskkendum vonum Jóns
um auknar vegtyllur og hé-
góma, en af Sveins hálfu um
að geta með því að sundra
fulltrúum núverandi stjórnar-
flokka, komið ár sinni svo fyrir
borð, að verksmiðjureksturinn
færi allur í ólestri, eins og
'framkvæmd einkasölunnar
gömlu, eftir að íhaldið tók þar
völd, og að þessi fyrirtæki
kæmust úr eign almennings og
í hendur gróðabrallsmanna og
fésýslupúka.
Þegar Þormóður Eyjólfsson
kom heim, voru þeir félagar
búnir að makka mikið saman
og gera ýmsar heimskulegar
ráðstafanir og óframbærilegar,
ef ábyrgðin á verksmiðjunum
átti að hvíla á fulltrúum
stjómarflokkanna. Margt af
því var leiðrétt, er formaður
kom á fundina. Félagsskapur
Jóns og Sveins var enn á byrj-
unarstigi, meira vonir um
framtíð í huga beggja, heldur
en fullskapað bandalag.
Eitt af fyrstu og þýðingar-
mestu verkum stjómarinnar
var að velja framkvæmda-
stjóra. Norskur maður hafði
stýrt vinnubrögðum þar fram
að þessu, en nú fór hann að
verksmiðju Alliance á Strönd-
um. Sveinn vildi koma að í-
haldsmanni frá Siglufirði, en
Þormóður Eyjólfsson lagði til
að ráðinn yrði Jón Gunnars-
son verkfræðingur frá Blöndu-
bakka í Húnaþingi. I það sinn
fylgdu jafnaðarmenn formann-
inum og Jón Gunnarsson var
ráðinn til forstöðunnar, og hef-
ir í byrjun marzmánaðar ver-
ið þar eitt ár.
Jón Gunnarsson er einstak-
ur dugnaðar- og reglumaður.
Hann hefir, með eigin orku,
brotizt í gegnum nám í Nor-
egi og Bandaríkjunum, þannig,
að hann er nú bezt mennti
maður á Islandi í sínum grein-
um verkfræðinnar. Jón hafði
marga höfuðkosti, sem með
þarf í þessari stöðu. Hann var
mikill áhugamaður, sívinnandi,
reglumað,ur mesti, og óeigin-
gjam í starfi fyrir almenning.
Meðan Jón Gunnarsson stýrði
vinnubrögðum verksmiðjunnar
gat þjóðin verið örugg um að
öll vinnubrögð væru miðuð við
heill fyrirtækisins, en ekki við
eiginhagsmunabrölt hégóm-
legra „atkvæðamanna".
Sveinn undi illa við sinn hlut.
Ilann sá kominn að verksmiðj-
unni vel færan og duglegan
mann, einbeittan og reglusam-
an, sem ekki fór í manngrein-
arálit, heldur einbeitti kröftum
sínum að því að láta rekstur-
inn bera sig. Festa og reglu-
semi kom allsstaðar fram í
starfinu. Eitthvað af óreglu-
sömum mönnum kunnu þessu
aðhaldi illa, en dugnaðarfólk
verksmiðjunnar skildi að ör-
yggi fyrirtækisins lá í reglu
og stjómsemi framkvæmda-
stjórans. Sást það bezt er á
reyndi.
Sveini Benediktssyni var nú
ljóst, að hann hafði til lítils
orðið þess valdandi, að heim-
ili og ætt Guðmundar Skarp-
héðinssonar fór í rústir. Hann
var í minnahluta í stjórninni.
Formaðurinn var framsýnn og
laginn og framkvæmdastjórinn
einbeittur og eljusamur. — í
fljótu bragði virtist spil Sveins
vonláust.
En alveg eins og það verður
að telja sigur fyrir Björn Lín-
dal og Ásgeir Pétursson að
hafa lokkað Steinþór Guðm. yf-
ir til sín og framkvæmt með
hans hjálp stefnumál sitt, að
leggja einkasöluna í rústir,
þannig verður að teljast, að
Sveinn hafi fengið allmikla
uppreisn hinna fyrri hrakfara
og svívirðinga, er hann hafði
orðið fyrir af hálfu verka-
manna á Siglufirði, er hann
náði valdi yfir hinum svokall-
aða leiðtoga þeirra.
VIII.
Þóknun þeirra Sveins og
Jóns Sigurðssonar fyrir að
vera í stjórn verksmiðjanna,
er 4000 kr. á mann, og ferða-
peningar er þeir fara eitthvað
í embættismálum. Sveini þótti
þetta þó ekki nóg fyrir sig og
erfingja Guðm. Skarphéðins-
sonar. Hann bjó til einskonar
hreiður fyrir sig og þá. Sveinn
og socialistamir Jón og Páll,
bjuggu um sig í einu verk-
smiðjuhúsinu, viðuðu að sér
húsgögnum á kostnað verk-
smiðjunnar og lifðu nánu fé-
lagslífi saman, þegar þeir voru
á Siglufirði. Byrjaði nú strax
iullkomið leynimakk milli þess-
ara þremenninga. Þeir gerðu á
laun margháttaðar ákvarðanir
og leyndu þeim fyrfr formanni
og framkvæmdastjóra. Allt
ráðabrugg þeirra var utan
funda, og hefir smátt og smátt
verið að koma í Ijós. Sveinn
fékk Jón til að gera leynisamn-
ing við norskan spekulant, sem
kom til Siglufjarðar, um að
hann skyldi vera umboðsmaður
framvegis, en sagt upp stóru
og tryggu firma, sem verk-
smiðjan hafði skipt við frá
upphafi. En aðalbaráttan var
þó um að koma Jóni Gunnars-
syni úr stöðunni, til þess að
geta leikið með verksmiðjuna
að eigin vild.
Verkamönnum á Siglufirði,
sem þekkt höfðu framkomu
Sveins þar í bænum og átt þátt
í að banna honum þar búsetu,
var hin mesta sltapraun að
framkomu Jóns, og flatsæng-
ur sambýli hans við höfuð-
fjanda þeirra. Verkamennirnir
höfðu sýnt Sveini, að þeir
vissu hver hann var. Jón Bald-
vinsson hafði sýnt, að hann
skildi að Sveinn var óhæfur
til að koma nærri verksmiðj-
unum. En Jón Sigurðsson „er-
indreki“ sá sinn kost vænstan
að búa með Sveini og vera
viljalaust verkfæri í höndum
hans.
Síldveiðin hætti snemma í
sumar sem leið, og þegar sumri
tók að halla, flutti Sveinn
suður og hafði Jón með sér.
Sendu þeir þá nokkru síðar
orð Þormóði Eyjólfssyni að
koma til Reykjavíkur og halda
með þeim fund, til að geta
rekið Jón Gunnarsson frá verk-
smiðjunni. Þegar á fundinn
kom, var „allt í lag'i" hjá
þeim vinunum. Sveinn skipaði
fyrir, en Jón hlýddi. Á sama
fundinum var J. G. sagt upp
frá byrjun marzmánaðar n. k.,
en ungur og alls óreyndur mað-
ur, skólabróðir Sveins Bene-
diktssonar, ráðinn frá 1. janú-
ar 1936, með 1000 kr. launum
á mánuði. 1 tvo mánuði áttu
að vera tveir framkvæmda-
-stjórar, nýi maðurinn átti að
læra af þeim sem rekinn var.
Því miður mun námstíminn
verða of stuttur.
Aðrar ákvarðanir þremenn-
inganna á þessum fundum voru
sambærilegar við byrjunina.
Þeir voru þyrstir í að eyða
peningum. Þeir ákváðu að borga
allmörgum verkstjórum kaup
fyrir rnargar vikur, sem ekki
var unnið, af því að síldin var
þrotin. Þeir ákváðu að borga
nokkrum verkamönnum 500
kr. fyrir nokkra klukkutíma,
þegar þeir gátu ekki unnið
fyrir óveðri. Þannig voru allar
ráðagerðir þessara manna, al-
veg ótvíræð sönnun þess, að
verksmiðjurnar undir stjóm
þeirra er voði eins og hárbeitt-
ur rakhnífur í höndum ómálga
bams.
Sannarlega var þó ekki á-
stæða til fyrir þá félaga að
kasta burtu fé verksmiðjunn-
ar. Þeir höfðu gegn mótstöðu
Þormóðs Eyjólfssonar brotið
stofnlög verksmiðjunnar. í stað
þess að taka við sfld af út-
|^Ie^^iímT,,,^ömíu^^dður!"
kenndu og ágætu gæðavöru,
Herkúles þakpappa
sem framleidd er á verk-
smiðju vorri „Dorthets-
minde“ frá því 1846 — þ. e.
rúm 80 ár — hafa nú verið
þaktar í Danmörku og Is-
landi margar miljónir fer-
metra þaka.
Fæst alstaðar á Islandi.
Hlutafélagið
]ens NIék íÉiUir
Kalvebodsbrygge 2.
Köbenhavn V.
vegsmönnum og sjómönnum, og
greiða út á hana 70% af áætl-
uðu sannvirði hennar, þá hafði
Sveinn með ráðnum hug beitt
sér fyrir stórfelldri hækkun á
síldarverðinu í vor sem leið, og
keypt síldina í stað þess að taka
hana í umboði framleiðenda. Nú
komu syndagjöldin um leið og
þremenningamar komu til að
relca burtu framkvæmdarstjóra
sinn af því að hann var reglu-
samur, alvarlegur, einbeittur
og gersamlega óháður, þá urðu
þeir að játa, að töp þeirra á
rekstrinum er mikil fjárhæð.
— Hitt var verra, að
þetta tap var að mestu sjálf-
skaparvíti og beinlínis af því,
að stofnlög fyrirtækisins höfðu
verið brotin. Nú var það hlut-
skipti þeirra félaga, samhliða
og þeir eyddu fé á fávíslegan
hátt, að ganga bónleiðir milli
búða, er þeir leita að fjár-
magni í stað þess, sem var
runnið út í sandinn.
Skólabróðir Sveins, sem ráð-
inn er framkvæmdarstjóri
verksmiðjanna og þarf að fá
2000 krónur í kaup í janúar og
febrúar meðan hann er að bíða
eftir starfi sínu, heitir Gísli
Halldórsson, Hann er ekki með
öllu ókunnugur verksmiðjunni
á Siglufirði, og er sú kynning
þess eðlis, að hún gefur góðar
vonir um framtíð verksmiðj-
anna, ef svo er haldið fram
stefnunni.
Annar af vinum og stall-
bræðram Sveins heitir Guð-
mundur Jónsson og kallar hann
sig vélfróðan mann. Guðmund-