Tíminn - 29.01.1936, Qupperneq 4
16
TlMINN
skilvindurnar eru ætíð
þær beztu og sterkustu,
gem fáanlegar eru Nýj-
asta gerðin er með
algerlega sjálfvirkri
smurningu, og skálar
og skilkarl ár ryðfriu
efni.
Samband
isl.
samvinnuiélaga.
OSRAM Dekalumen (DLm.) Ijóskúlur
eru 20% Ijóssterkari en e!dri gerdir.
A háls hverrar ljóskúln er letr&ö i j ó s-
marnið (DLm.) og rafstraums-
n o t k u u i n (Watt).
lega verð, sem fæst fyrir vör-
una, hefir verið gefið upp og
nokkrar skýrslur ókomnar, þeg-
ar bráðabirgðauppgjörið fer
fram. Þessi hækkun hefir
stundum numið allt að 10%.
Næsta ár á undan nam hækkun
þessi um 7%. Greiðslujöfnuð-
urinn mun því verða nokkru
hagkvæmari en hann virðist
vera eftir skýrslunum. Ef mað-
ur gerir ráð fyrir að hækkunin
verði nokkru meiri á útflutn-
ingnum en innflutningnum, má
alltaf gera ráð fyrir, að verzl-
unarjöfnuðurinn i ár verði
rúmum 2 millj. kr. hagstæðari
og eitthvað komi inn í ósýnileg-
um tekjum, farmgjöldum o. fl.
Má því ætla, að greiðslujöfnuð-
urinn verði ekki óhagstæður,
eða rúml. 6 millj. kr. hagstæð- 1
ari en árið áður.
Ríkisbúskapurinn.
Ekki er hægt með nokkurri
vissu að segja ákveðið um rík-
isbúskapinn og afkomu ríkis- :
sjóðs. Ennþá er allmikið óinn- ■
heimt eins og alltaf um ára- |
mót og öll útgjöld ekki komin
fram. Tekjur munu þó verða
svipaðar og í fyrra, þrátt fyrir ;
minnkandi innflutning og þó
minni tolltekjur hafi orðið af
þeim ástæðum, sökum tekju- j
aukalaganna, sem samþykkt i
voru á haustþinginu 1934. Út- :
gjöld ríkissjóðs hafa hinsvegar
orðið minni svo afkoman verð- '
ur nokkru betri en í fyrra.
Eins og kemur í ljós af þessu !
yfirliti um viðskiptalíf ársins 1
1935 er afkoman mun betri en
næsta ár á undan. Vöruverð
hefir farið hækkandi, sérstak-
lega á landbúnaðarvörum og
miklu meiri gjaldeyrir fengist !
fyrir þær inn í landið en í
fyrra. Byrjað hefir verið með
nýjar atvinnugreinir og nýjar
útflutningsvörur, sem vel hef-
ir gengið að selja og nýir mark-
aðir hafa unnizt. Væri því af >
þeim ástæðum ekki óeðlilegt j
að líta björtum augum fram á |
komandi ár. En miklir erfið- !
leikar eru þó á viðskiptunum j
sérstaklega við Suðurlönd, :
þar eð þau gera strangar
kröfur til okkar um kaup
á vörum, og má jafnvel ætla,
að sala til þeirra þverri enn
nokkuð. — Engu skal þó hér
spáð um afkomu þessa árs, i
enda mjög erfitt á slíkum
cfriðar- og viðskiptahaftatím-
um, sem nú eru.
Guðl. Rósinkranz
Benedikt
á Auðnum níræður
Framh. af 1. síðu.
ar stundir líða fram, reist
brjóstlíkön þeirra Benedikts á
Auðnum og Péturs frá Gaut-
iöndum. Þessir tveir menn áttu
lengst starf og mest i félags-
menningu sýslunnar, þar sem j
unnið var að því, að bera inn
í líf kynslóðanna nokkuð af
orku þeirrar heitu vakningar,
sem fór eldi um hugi Þingey-
inga á síðasta fjórðungi næst-
liðinnar aldar og bar með sér
kaupfélagshreyfinguna inn í líf
þjóðarinnar.
Það hefir verið víðsýnt af
sjónarhæðum Benedikts á
Auðnum. Enginn alþýðumaður
BETEIB
J. CBITNO’S
ágæta holienzka reyktóbak
AROMATISCHER SHAG kostar kr. 1,05 V20 ^g.
FEINRIECHENDER SHAG — — 1,15----
fæst í ölium verziunum
á Islandi mun vera víðlesnari,
fjölfróðan né gagnmenntaðri en
hann. Kunningjum hans verða
minningasamar dvalirnar á
þeim sjónarhæðum. Minningin
um þá leið, sem Benedikt hefir
þegar gengið og um starf hans
vakir í minni vitund eins og
fallegt æfintýri, þar sem vonir
æskunnar rísa móti hverri
nýrri dagrenningu. Engan
mann þekki ég bjartsýnni en
nann né betur kominn að þeim
eplum Iðunnar, sem lífið hefir
rétt honum og sem hafa haldið
honum svo ungum og varpað
svo óvenjulega mikilli birtu yf-
ir líf hans, svipmót hans allt,
persónu og þjóðnytjastörf.
Þeir verða margir, alúðarvin-
ir Benedikts og góðkunningj-
ar, sem nú senda þessum ní-
ræða æskumanní Þingeyingja
hlýjar kveðjur og þakklæti.
Jónas Þorbergsson.
A víðavangi
Framh. af 1. síðu.
yigurðssonar Goodrich hjólbarða
80X5 á 125,00 kr. pr. stk.
Revkjavík, 28/12. 1935.
(sign) Friðleifur F. Friðleifsson
bifreiðastjóri."
II.
„Að gefnu tilefni vottu ég
undirritaður, sem hefi átt bif-
reiðina RE 736 og elcið hefir verið
með Pirelli hjólbörðum síðan 18.
júli s. 1., að vegalengd 9.273 km.,
oð hjólbarðarnir virðast alveg ó-
siitnir enn sem komið er, og má
því vænta mjög góðrar endingar á
þeim; jafnframt vil ég taka
fram, að bifreiðinni hefir verið
ekið mjög mikið í utanbæjar-
keyrslu á vondum vegum á þeim
tíma, t. d. 5 sinnum austur að
Geysi, 'svo og margar ferðir í Ár-
1 ‘s-ýslu og Víðar.
Reykjávík, 10. janúar 1936.
(sigm) Gunnar Olafsson. "
Umsögn þessa vottorðs hefir
ennfremur verið staðfest af
þekktum gúmmíviðgerðar-
manni í Rvík.
G. Sv. hélt því fram á Ai-
þingi, sennilega að órannsökuðu
máli og því alveg út í loftið,
að Bifreiðaeinkasala ríkisins
seldi vondar og dýrar vörur*).
Gætir þetta fljótfæra og grunn-
skreiða yfirvald sín væntanlega
betur næst, að fara ekki með
fieipur eitt og staðlausa stafi,
ef íhaldið hættir á að senda
hann í útvarpið í annað sinn.
thaldsuppeldið í Reykjavík.
Fyrir skömmu voru um 50
—60 unglingar úr gagnfræða-
sltóla Reykjavíkurbæjar á í-
þróttaferð í Skíðaskálanum.
Þrír ferðamenn komu þar inn
að fá sér hressingu, og var
Jónas Jónsson frá Hriflu einn
•
af þeim. Bólaði þá fljótt á, að
| um það bil helmingur ungling-
anna komst í geðæsing, og
sýndi ýmiskonar merki um
vöntun á mannasiðum. Þegar
skólastjórinn, próf. Ág. H.
Bjarnason vissi þetta, hélt
hann stranga áminningarræðu
yfir unglingunum og benti
þeim á, hvílík hætta vær’ fyrir ,
þá, ef þeir ekki kynnu að
hegða sér eins og sæmilegir |
menn. Ráðlagði hann þeim að j
biðjast skriflega afsökunar og ,
gerðu þeir það. En þegav (
skjalið var fullbúið náði Pétur
Halldórsson borgarstjóri í það
') Pirclli-hjólbarÖarnir eru frá
ítölsku heimsfirma, sem Bifreiða-
oínbfluQlDn alrir\+ív« Qinlrnm vift
Munntóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHÖFN
Bíðjið kaupmann yðar um
unntóbatið
Fæst allsstaðar.
Kvennaskólinn í Reykjavík
Eins og áður er auglýst, hefst næsta nám-
skeið í húsmæðradeild skdlans þ. 4. epríl,
stendur til 1. júní n. k. — Skrifleg umsókn
sendist sem fyrst.
Fo-rstöðukonan
og stakk því undir stól. Byrjaði
Mbl. síðan deilur um málið, og
æsti böm íhaldsheimilanna upp
til að vilja ekki læra manna-
siði. Komst upp að Árni frá
Múla stóð fyrir þessu uppeldi í
siðleysi og þótti ekki illa til
valinn forustusauðurinn. En
rétt er að segja það til hróss
meginþorra af fylgjendum
Mbl., að þeir litu eins á málið
og Ágúst H. Bjarnason og óska
einkis fremur en að börn
þeirra fari aðra og betri götu
en hinn auðnulausi sonur Jóns
í Múla.
Nokkur orð
um kreppuláuín
Það er öllum vitanlegt, að
veitt hafa verið lán úr kreppu-
lánasjóði, bæði með veði í fast-
eignum og lausafé.
Sagnir ganga um það, að
misjafnt hafi verið lánað út á
eignirnar, og víst er um það,
að meðan sumar jarðir voru
hækkaðar um meir en helming
frá fasteignamati, svo að hægt
væri að lána nægilega mikið út
á þær, þá voru aðrar lækkaðar,
svo hægt væri að lána nógu
lítið út á þær, og í báðum til-
fellum Hefir geðþótti stjórnar
sjóðsins ráðið hvað gert var.
Vafalaust er eftir að ræða
um þessi mál í blöðum lands-
ins, og því skulu þau ekki rædd
hér frekar í þetta sinn.
En ég vildi benda á annað,
cg það er hvernig sjóðurinn
leyfir mönnum að verzla með
lausaféð, sem sjóðnum er veð-
sett 0 g yfirfæra lánin frá
manni til manns.
Á þessu hefir mjög borið
hér í sýslu. Lausafé, sem er
veðsett sjóðnum, hefir gengið
kaupum og sölum milli manna,
i og stjórn kreppulánasjóðs hefir
leyft Pétri og Páli að kaupa
hinar veðsettu skepnur og taka
að sér hluta af kreppuláninu,
sem æmar, kýrnar eða hrossin
stóðu að veði fyrir, og það al-
veg eins þó kaupandinn hafi
verið einhleypur umrenningur,
1 og hafi strax að haustinu farg-
að ánum í kaupstað, og eigi
engar til að setja að veði þegar
veturnæturnar koma. En þetta
hefir orðið til þess að ærnar
I hafa gengið kaupum og sölum
I töluvert hærra, en ef átt hefði
! að borga þær strax.
1 Það er nefnilega töluvert
; annað að kaupa ær og mega
! borga þær á 40 árum eða að
! eiga að borga þær strax eða
að haustinu. Með þessu hefir í
vor verið skapað of hátt verð
á ám í sýslunni, eða falsverð,
! og það hefir aftur gert mikinn
skaða á margan hátt.
í annari sýslu á landinu hefi
ég frétt að þetta hafi líka átt
sér stað, en í minna mæli en í
Húnavatnssýslu.
I Þetta er óhæfa, sem verður
að stöðva. Það mun yfirleitt.
hafa verið Jón Jónsson, sem
hefir leyft þetta, enda munu
allir þeir, sem fengið hafa
þessi leyfi, telja sig flokks-
menn hans.
Væntanlega stöðvast þetta þá
líka, þegar Jón Jónsson hættir
að leggja sínar óhappahendur
1 að stjómarstörfunum, en því
er bent á þetta nú, að dæmin,
eins og þau, sem áttu sér stað
hér í sýslu í vor, mega og eiga
ekki að endurtaka sig, og um
það þarf stjórn kreppulána-
sjóðs og landsstjórn að sjá.
Húnvetningur.