Tíminn - 12.08.1936, Side 2
128
TÍMINN
Ihaldið og Danir
íhaldsflokkurinn íslenzki er
á ýmsan hátt mjög' spaugileg-
ur félagsskapur. I honum eru
allskonar andstæður. Þar eru
nálega allir Danir, sem búsett-
ir eru hér á landi og allir
„dansk-fæddir“ menn eins og
dönsk blöð nefna syni Thor
Jensen. Efnaðir menn af
dönsku þjóðerni, eins og t. d.
eigandi annars kvikmynda-
hússins og annars gistihússins
í bænum, styðja íhaldsflokk-
inn með ríflegum fjárframlög-
um við kosningar. Um eitt
skeið áttu danskir menn meg-
inið af hlutafé Mbl. og Jón
Kjartansson mun hafa verið
ráðinn að blaðinu af dönskum
mönnum og úti í Kaupmanna-
höfn.
Flokkur íhaldsmanna gengur
enn í sömu velvildarátt við hin
dönsku áhrif, er hann hefir að-
alátrúnað á algerlega dönskum
manni og velur fyrir formann
flokks síns mann, sem er hálf-
danskur að ætt og uppeldi. Þar
að auki hafa flestir helztu
áhrifamenn íhaldsins stundað
nám í Danmörku eða dvalið þar
langdvölum. Dönsk tunga er
það tungumál, sem þeim er
tamast, að fráskildu móður-
máli sínu. Ef þeir lesa útlend
blöð, þá eru það aðallega dönsk
blöð, og þá einkum það af
blöðum Dana, sem jafnan sýn-
ir íslendingum lítilsvirðinga
meðan þeir lifa og óvirðir þá
dána. Þegar íhaldsmenn vitna
til útlendra dæma, þá eru þau
langoftast frá Danmörku eða
úr dönsku þjóðlífi. í raun og
veru er Danmörk í augum
flestra þessara manna sama og
alheimurinn, að fráteknu Is-
landi og himnaríki. Einn íhalds-
maður hefir játað opinberlega
þessa heimsskoðun fyrir sitt
heimafólk.
Mér dettur alls ekki í hug
að áfellast Dani á íslandi fyrir
að vera í íhaldsflokknum eða
leiðtoga íhaldsins fyrir að vera
mótaða innst og yzt af dönsku
þjóðlífi, máli og menningu. Ef
litið er á allar ástæður, má
segja að þetta sé eðlilegt.
Danir, búsettir á íslandi, eru
ílestir riðnir við kaupmennsku
og sú stétt fylgir enn sem kom-
ið er Mbl. mjög að málum. Og
á hinn bóginn leiðir það af
hinni löngu pólitísku sambúð
íslands og Danmerkur, að mik-
ill hluti af leiðtogum íhaldsins
hefir mótazt í höndum Dana.
En nú kemur að hinni hlið-
inni. Þar eru málpípur íhalds-
ins allt af að niðra Dön-
um, væna þá um ágengni
og lævísi gagnvart Islandi og
íslendingum. önnur hlið íhalds-
ins íslenzka er aldönsk. Hin
hliðin er íslenzk með þeim
hætti að liún er full af hatri og
rangsleitni gagnvart Dönum og
dönsku þjóðinni.
Ég vil nefna nokkur dæmi
þessu til stuðnings. Dr. Knud
Berlin var harðasti og þrótt-
mesti andstæðingur Islendinga
í landsréttindabaráttunni á 20.
öldinni, og átti í löngum og
hörðum rökræðum við íslend-
inga um sjálfstæðismálið. En
hann tapaði í leiknum af því
að þrír af fjórum þingflokkum
Dana, allir nema danska íhald-
ið, vildu semja við íslendinga
um viðurkenningu á ríkisrétt-
indum okkar 1918.
Fáum árum síðar kemur dr.
Knud Berlin til Reykjavíkur
sem ferðamaður. Hann hefir
lagt frá sér vopnin, eftir að
hafa barizt hart, en með full-
um sóma. Hann vill kynnast
þeirri þjóð, sem hann hefir átt
kappleik við. Þá gerast þau
undur, að hið ómerkilega blað,
„Vísir“, ræðst á hinn útlenda
gest með hörku ádeilu — fyrir
það eitt að koma til landsins.
Svo lítill var drengskapur,
mannslund og mannasiðir
þeirra íhaldsmanna, sem áttu
Vísi.
Þegar danskur vísindamaður,
dr. Koch, kemur hér til lands
og vill leggja fram fé og orku
til náttúrufræðarannsókna hér
á landi, þá rísa Vísir og Mbl.
með fáryrðum gegn þessum
manni.
Nú vill svo til, að ísland er í
jarðfræðilegum efnum eitt af
þeim löndum í álfunni, sem
vísindin hafa mest gagn af að
rannsaka. Hingað hafa komið
vísindamenn á undangengnum
áratugum frá öllum helztu
menningarlöndum heimsins, og
svo mun jafnan verða í fram-
tíðinni. Á að loka landinu fyrir
vísindamönnum ? Eða vill sá
eini flokkur á Islandi, sem er
sérstaklega gegnsýrður af
dönskum innflutningi og dönsk-
um hugsunarhætti, virkilega
halda því fram, að hin öldnu
fjöll íslands muni fara úr
skorðum, þó að einn danskur
náttúrufræðingur styðji hér
um stutta stund að rannsókn-
um á eðli landsins?
Fyrir ári síðan er einn af
þingmönnum íhaldsmanna
staddur á nemendamóti í Dan-
mörku. IJann er þar gestur
Dana. Samkoman var alþjóðleg
og fyrsta boðorð allra var að
stunda hlutleysi og góða sam-
búð. En íhaldsþingmaðurinn
var ekki á því. Hann byrjar
að gefa yfirlýsingar fyrir Is-
lands hönd um viðhorf Islend-
inga til dönsku þjóðarinnar á
ókomnum árum. Hann gerir
þessar yfirlýsingar um efni,
sem var algerlega óviðkomandi
fundinum, og sem hlaut að
vekja óánægju hjá meirahluta
fundarmanna, af því að það
var óviðeigandi. Félagar þessa
snáða gerðu allt sem þeir gátu
til að fá piltimi til að byrja
ekki á yfirlýsingum og spá-
dómum um væntanlegar deilur
á ókomnum árum. Og reyndur
og gætinn íslendingur, sem vel
þekkir til í Danmörku og
hafði áður fyrr verið voldugur
liðsmaður í flokki Mbl., gerði
sitt til að fá íhaldsþingmann-
inn til að láta vera að hefja
deilukenndar umræður í hlut-
lausu heimboði. En allt kom
fyrir ekki. Ihaldsþingmaðurinn
vildi fá að gera sér og sínum
flokki til minnkunar og gerði
það. Væntanlega lærir þessi ná-
ungi einhverntíma síðar, að
heimboð eru ekki vígvellir.
I vor kemur einn af þing-
mönnum íhaldsins, Thor Thors
til Danmerkur og eftir blaða-
frásögnum talar hann þar
tveim tungum eins og íhaldið.
I einni skálaræðu, þar sem
hann er með nokkrum þing'-
mönnum Dana, hælir hann með-
ferð þeirra á utanríkismál-
um íslendinga og hefir um þau
vinnubrögð sterk hrósyrði. Á
öðrum stað kvartar hann um,
að gengið sé á rétt íslenzkra
stúdenta í Danmörku. Þessi að-
dróttun var fullkomlega í anda
Vísis og Mbl., enda var henni
mótmælt af stúdentum sjálfum
sem algerlega tilhæfulausri. —
En litlu minni gifta fylgir
hrósi Thors um meðferð utan-
ríkismálanna, því að síðan
hann kom heim hafa verið þrot-
lausar árásir á dönsk stjómar-
völd í blöðum þess flokks, sem
þessi maður tilheyrir og þar
kveðið freklega að orði um
ónytjungsskap Dana við að
vinna að íslenzkum málum.
Einn spaugilegasti þáttur í
sókn hinna „danskfæddu" Is-
lendinga á hendur Dönum er á-
róður út af landhelgisgæzlunni.
Hefir lítilfjörlegur dálkafyllir
frá tíð Sig. Eggerz verið mjög
margorður og illorður um
vinnubrögð yfirmanna á dönsku
varðskipunum hér við land. Nú
vill svo til, að hér í bænum er
búsettur íyrverandi danskur
sjóliðsforingi, hr. Broberg.
Hann kunni ekki við að sitja
þegjandi undir hinni ómaklegu
árás og birti úr dagbókum sín-
um skrá yfir skipatökur sínar,
þann stutta tíma, sem hann
annaðist gæzluna. Hafði danska
varðskipið þá tekið lögbrjóta í
tugatali, og sektir þær, sem
runnu í ríkissjóð álíka mikið
fé eins og öll fjölskylda Jen-
sens dregur út úr atvinnulífinu
árlega til sameiginlegra þarfa.
Þessi hirting dugði í bráðina,
því að síðan þessi grein kom
hafa íhaldsblöðin ekki treyst
sér til að halda því fram, að
vinna dönsku varðskipanna
væri alltaf og æfinlega tóm
aktaskrift.
Stuttu síðar kom flugvélin
inn í spilið. Danir áttu að vera
byrjaðir að brjóta niður ís-
lenzka landhelgisgæzlu í því
skyni að hremma land og þjóð
í áþján. Nú átti flugvél að
koma með danska varðskipinu
og með komu hennar töldu
íhaldsblöðin að frelsi og heið-
ur Islendinga væri glatað.
öðrum mönnum var óskiljan-
legt hve mikil aukin hætta
var að því að danska varð-
skipið, sem starfar hér meiri-
hluta árs hafi með sér flugvél,
sem „tæki“ við gæzluna. Varð-
skipið er hér samkvæmt samn-
ingi sem íhaldið sjálft hefir
gert. Það má hafa fallbyssur og
hverskonar grimmileg vígtæki,
en bara ekki flugvél!
Þegar málið var athugað bet-
ur hafði þetta voðamál komið
upp í sambandslaganefndinni.
Danir höfðu alls ekki beðið um
þann heiður að mega senda
þessa hættulegu flugvél hingað
til lands. Við Magnús Guð-
mundsson, Magnús Jónsson og
Jón Baldvinsson höfðum verið
sammála um að álíta þetta eðli-
lega og hættulausa fram-
kvæmd. Enginn okkar lagði
sérstaka áherzlu á þessa til-
raun, en engum okkar datt í
hug að til væri svo heimskir
menn á íslandi að þeir byrjuðu
að bera Dönum brigsl og hrekk-
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð
við andláft og jarðarför Frú Sígríðar Ás-
geírsdóttur, Hjarðarholti í Borgarfirði.
Vandamenn.
vísi á brýni fyrir það, að full-
trúar allra íslenzku flokkanna
vildu gjaman að prófað væri
að hafa flugvél við gæzluna.
I marga daga var flugvélar-
málið höfuðárásarefni íhalds-
blaðanna á dönsku þjóðina. En
þegar það kom í ljós, að tveir
af leiðtogum íhaldsins voru
riðnir við málið, þá varð sókn-
in að engu. Allir geta samt séð,
að ef frelsi landsins var í hættu
af völdum flugvélarinnar, þá
var sú hætta jafn yfirvofandi
og geigvænleg þó að tveir af
þingmönnum íhaldsins væru
samþykkir öðrum mönnum í
þessu efni.
Árás íhaldsblaðanna á dönsku
þjóðina út af ferð konungs hér
á landi og heimsókn Staunings
var skýrð hér í blaðinu í gær.
I þeim árásum hefir hin sjúka
árásarhneigð hinna „dansk-
fæddu“ náð hámarki sínu.
Ég mun í grein hér í blað-
inu innan skams skýra þessa
dularfullu gátu hversvegtia
hinir „danskfæddu“ .Islending-
ar eru fullir af ósanngimi og
ókurteisi í garð þeirrar þjóðar,
sem þeir hafa þegið frá sinn
litla andlega lífsmátt. Jafn-
framt því mun ég leiða rök að
því að sú aðferð íhaldsblaðanna
að ráðast á aðra þjóð í
veikri von um að afla sér
flokksfylgis er óþekkt í mennt-
uðum löndum, nema í blöðum,
sem eru miðuð við lægstu verur
mannfélagsins.
J. J.
Heiðafélagið danska
Heiðafélagið er ein virðuleg- |
asta stofnun dönsku þjóðarinn-
ar.
Á 11. öld var Jótland talið
skógivaxið, að því er forn heirn
ildarrit telja. En þar fór eins
og hér, að skógurinn eyddist
bæði af völdum náttúrunnar og
mannanna. Meira en annan
C. E. Flensborg
fl'amkvæmdastjóri Heiðafélags-
ins danska. Hann hefir verið á
ferð hér á landi í sumar og
skýrt Tímanum frá starfsemi
Heiðafélagsins.
| hvern dag að meðaltali bar
vestanáttin með sér sand, sera
mæddi á öllum gróðri, og um
1850 hefir danska þjóðin tap-
að fjórða hlutanum af Jót-
landsskaganum, en það sam-
svarar sjötta hlutanum af állri
Danmörku, undir sand, þar sem
ekki þreifst akuryi-kja lengur
heldur aðeins fátæklegur lyng-
gi-óður, sem lítt megnaði að
framfleyta búfénaði bændanna
sem ekki höfðu þegar flúið hina
hörðu lífsbaráttu.
Stjórnarvöldunum var ljós
hættan sem yfir vofði. Árið
1723 eru þeir menn leystir und-
an herskyldu, sem setjast vilja
að á józku heiðunum og þeim
jafnframt heitið öðrum fríðind-
um. En allir kusu fremur her-
skylduna.
Á árunurn 1758—60 eru þús-
und Þjóðverjar sóttir suður í
Rínarlönd til þess að nema
land á Jótlandsheiðum. Þeim
var sérstaklega treyst til þess
að kenna þjóðinni hvemig
fara ætti að því að rækta
heiðalöndin. En allur sá mikli
tilkostnaður endaði með skelf-
ingu.
Skýrsla Kjötverðlagsnefndar
Um miðjan ágúst síðastlið-
inn var endurskipað í kjötverð-
lagsnefnd til eins árs. Þá varö
ekki önnur breyting ánefndinni
en að Jón kaupfélagsstjóri 1-
varsson lét af formannsstarfi,
eftir eigin ósk, en í stað hans
var Páll ráðunautur Zóphónías-
son skipaður formaður, en
hann hafði verið varaformaður
nefndarinnar frá byrjun og
gegnt formannsstörfum í fjar-
veru Jóns.
Eins og skýrsla nefndarinnar
frá 7. ágúst 1935 ber með sér,
var 1. ág. 1935 talið óselt af
kjöti í landinu 122 smálestir af
freðkjöti og 175 tn. af spað-
höggnu saltkjöti. Við þetta
hefði þó verið rétt að bæta 25
smálestum af freðkjöti af
rosknu fé sem Sláturfélag Suð-
urlands átti en ætlaði til vinslu
og því ekki talið í birgðum þess
til nefndarinnar. Raunverulega
voru því freðkjötsbirgðimar 1.
ág. 1935, 147 smál.
Leyft var að byrja slátrun í
Reykjavík 12. ágúst (þann dag
eru sláturleyfin afgreidd) en út
um land var leyft að byrja
nokkru fyr, þar sem um kjöt-
sölu var að ræða og þar sem
ekki var hægt að koma við að
selja freðkjöt.
Við veitingu sláturleyfa var
þeirri reglu fylgt, að veita þeim
slátrunarleyfi, sem áður höfðu
haft slátrun, og hafa leyfin
það rúm, að þeir sem þau
fengu, gætu slátrað svipaðri
fjártölu og þeir voru vanir. —
Margir höfðu sótt um leyfi til
að slátra miklu fleira fé, en
nokkrar líkur voru til að þeir
hefðu þörf fyrir og miklu meira
en þeir höfðu slátrað 1933 og
1934, og var þeim vitanlega ekki
veitt það. — Hinsvegar var
þeim mönnum, sem fengu
fleira sláturfé, en leyfi þeirra
hljóðuðu upp á, veitt viðbóta-
slátrunarleyfi, en langflestir
slátruðu hvergi nærri þeirri
sláturfjártölu er þeim var leyft
í fyrstu. Samvinnufélögin sóttu
flest um slá-trunarleyfi fyrir
svipaða fjártölu og þau slátr-
uðu. Nefndin vill vekja athygli
manna á því, að það er mikils
virði að fá strax þegar sótt er
um slátrunarleyfi sem gleggst-
ar upplýsingar um hve mörgu
verði slátrað, því þá er hægara
að skipta kjötmagninu milli
innlenda og erlenda markaðsins
og láta skiptinguna verða rétt-
láta milli þeirra er slátrunar-
leyfin fá.
Á innlendum markaði var
leyft að selja það kjötmagn,
sem talið var líklegt að þar
mundi seljast. Söluelyfin voru
fyrst og fremst miðuð við það,
að markaðurinn á hverjum stað
yrði notaður af þeim sem þar
slátruðu. Því voru innanlands-
söluleyfin misjöfn í slátrunar-
stöðunum eða frá 100 til 20%
af kjötþunga alls sláturfjárins.
Þar sem innanlandssala á slátr-
unarstað var lítil eða engin
voru innanlandssöluleyfin mið-
uð við það tvennt, að nægjan-
legt kjöt yrði til sölu í landinu
til viðbótar við það, sem slátr-
að var á þeim stöðum sem
markaður er fyrir meira kjöt
en þar er slátrað og að innan-
landssalan gengi sem jafnast yf
ir. Hinsvegar var ekki tekið
neitt fram um það í slátrunar-
og söluleyfunum í hvernig
verkuðu ástandi menn seldu
kjötið sem leyft var að selja
innanlands, og máttu leyfishaf-
ar því sjálfir ráða því.
Þeim sem fengu slátrunar-
leyfi má skifta í tvo hópa: 40
samvinnufélög, sem eru í SlS,
9 önnur samvinnufélög og 77 .
kaupmenn. Auk þessara slátrun
arleyfa fengu ýmsir að láta
kunningja sína og venzlamenn
fá eina og eina tunnu. Hangi-
kjötssala var frjáls manna á
milli og verð á því aldrei ákveð-
ið af nefndinni.
Milli þessara aðila skiptist
sláturfé og kjötmagn þannig:
Af kjötinu sem selt var inn-
anlands seldu sambandsfélögin
36,82%, önnur samvinnufélög
34,74%f kaupmenn 25,92% og
einstaklingar 2,45%. Kjöt það,
sem út var selt skiptist þannig
að sambandsfélögin seldu 82,87
%, önnur samvinnufélög 6,87%
og kaupmenn 10,26%.
Af útflutningskjöti annara
samvinnufélaga hefir SlS flutt
út 94,4% og því alls flutt og
selt úr landi 89,4% af öllu því
kjöti sem selt hefir verið úr
landi.
Af þessu sést það, að samb.-
félögin, sem hafa 60,9% af öllu
kjötmagninu, selja ekki nema
28,9% á innlendum markaði, en
félögin sem ekki eru í SlS og
hafa ekki nema 20,2% af öllu
kjötmagninu selja 82,3% af því
í landinu. Kaupmenn sem ekki
hafa nema 17,7% af öllu kjöt-
magninu selja yfir 69% af því
innanlands.
1 þessu sambandi er rétt og
sjálfsagt að geta þess, að 82
kaupmenn hafa selt meira af
kjöti innanlands en þeim var
leyft af nefndinni og alls hafa
þeir selt yfir 90 smál. meira
Sambandsfélögin slátruðu 224782 fjár, 60,8% 3051568 kg. kjöt 60,9%
Önnur samv.fél. slátruðu 77056 fjár, 20,9% 1011471,9 kg. kjöt 20,2%
Kaupmenn slátruðu 67620 fjár, 18,3% 889355,5 kg. kjöt 17,7%
Kjöt milli manna 58523,0 kg. kjöt 1,2%
Alls 369458 fjár,100,0% 5010918,4 kg. kjötlOO %
Af sláturfénu voru 345164 dilkar með 4463271,6 kg. kjöt
12144 geldfé með 275110,2 kg. kjöt.
12150 milkar ær 214012,7 kg. kjöt.
Samtals 369458 4952394,5 kg. kjöt
Til enn frekari glöggvunar á því, hverjir seldu kjötið úr
landi og hverjir notuðu innanlandsmarkaðinn, skal þetta yfir-
lit gefið:
Selt innanlands Selt úr landi
Kg. % Kg. %
Sambandsfélögin 888428,0 28,9 2168189,5 71,1
önnur samv.félög 831771,9 82,3 179700,0 17,7
Kaupmenn Kjöt milli manna 620798,5 58523,0 69,8 100,0 268557,0 30,2
2894521,9 47,8 2616396,5 62,2