Tíminn - 16.09.1936, Síða 3

Tíminn - 16.09.1936, Síða 3
T1MIN N 149 send bændunum sjálfum til at- hugunar og málið á þann hátt lagt fyrir þá hlutlaust. Ég tel, að með þessum lögum séu gerðar verulegar réttar- bætur fyrir þá, sem eiga að þeim að búa, og mér virðist, að með þeim sé iagður grundvöll- ur, sem miklu skipti: Það er beint og aukið áhrifavald bænd- anha sjálfra á Búnaðarfélag ís- lands, og sanngjarnt og nauð- synlegt samstai’f milli félags- ins og landbúnaðarráðherra. En gott og náið samstarf á milii þessara þriggja aðila er nauð- synlegt, ef vel á að takast. Ég játa að þessi lög, eins og önn- ur löggjöf, eru náttúrlega ekki alfullkomin, og muni þurfa at- hugunar og umbóta. Við erum sennilega ekki sam- mála um sum ákvæði þessara laga, en vissulega er sá ágrein- ingur ekki stór í sjálfu sér, ef rétt er skoðaður og áður en við förum að stækka hann í augum sjálfra okkar og annarra. Og óendanlega smár er hann, á- greiningurinn, samanborið við þá miklu nauðsyn, að þeir aðil- ar, sem eiga að vinna að um- bótum og framförum í íslenzk- um landbúnaði geti gert sam- stillt átak honum til fram- dráttar, því að þau liafa sjald- an verið fleiri stórmálin í land- búnaðinum, er kalla á lausn, en einmitt nú, og hraði breyt- inganna skapar stöðugt ný verkefni. Sum þessara mála verða ekki leyst nema með samstarfi. En ef við viljum landbúnaðinum vel, og ef við höfum allir þann eina vilja að gera fyrir hann það, sem við getum, hversvegna skyldum við þá láta ágreining sitja í fyrir- rúmi fyrir samstarfinu ? Ég staðhæfi, að það er ekki hægt að gera slíkt með skynsamlegri cg rólegri yfirvegun, heldur hlyti það að verða gert af óró- legum skapsmunum, það er ekki gert fyrir hagsmuni ís- lenzks landbúnaðar heldur gegn hagsmunum hans. Það má máske segja, að það sé óþarft að brýna þetta fyrir ykkur, góðir búnaðarþingsfull- trúar, sem flestir eruð við ald- ur og margir rólegir, hugsandi menn, en ég vil nú heldur hafa gert það en látið það ógert, því að öldur skapsmuna og öfga rísa nú á tímum svo óeðlilega hátt. Og ég hefi séð það í þessu máli ekki sízt, að það er svo stundum, að það er eins og menn deili til þess að deila, og stækki ágreining til skað- semdar fyrir málefnin, þótt á- greiningsatriðin séu sáralítils virði. Og menn ganga jafnvel svo langt, að búa til ágrein- ingsatriði af engu, aðeins til þess að geta deilt. Að svo mæltu afhendi ég ykk- ur, háttvirtu búnaðarþingsfull- trúar, þessi lög til þess að þið getið gert viðvíkjandi þeim þær ákvarðanir, sem búnaðar- þingið er nú kallað saman tíl þess að gera, samkv. ákvæðum hinna nýju laga. Ég óska þess að það verk megi fara ykkur farsællega úr hendi. Ágæt herbergi til leigu á Hverfisgötu 32 yfir lengri eða skemmri tíma. — Hentugt fyrir ferðafólk. — Sími 3454. Ferðamenn ættu að skipta við Kaupfélag Reykjavíkur. — Þar hafa þeir tryggingu fyrir góðum og ó- dýrum vörum. Álit minnihluta laganefndar <zr skipuð vap á Búnaðarþingi HI að afhuga afstöðu Bún- aðarfélags íslands Hl hinna nýju jarðrækfariaga Búnaðarfélag íslands (B. í.) hefir um langt skeið verið ráð- gefandi og til aðstoðar ríkis- stjórninni um mikinn hluta af þeim málum, sem landbúnað varðar, og hefir oft verið mælt svo fyrir í allmörgum slíkum lögum, að B. í. er ýmist falin umsjón með framkvæmd lag- anna, eða leita skal álits þess um framkvæmda atriði. Hinsvegar naut B. f. styrks úr ríkissjóði til starfsemi sinn- ar, og bar styrkurinn jafnframt uppi kostnað við þá starfsemi, sem B. 1. er falin með lögum. fhlutun um fyrirk'omulag B. í. var af löggjafarvaldinu látið afskiptalaust þar til jarðrækt- arlögin voru sett 1923, þá var lögfest með samþykki Búnaðar- þings að í notum þess, að B. í. var falin framkvæmd og um- sjón þeirra, skipaði atvinnu- málaráðherra, meirihluta í stjórn B. í. eftir tillögum land- búnaðarnefnda Alþingis. Þessi skipun um stjórn B. í. hélzt þar til hún var felld úr lögum árið 1935. í stað þess var lögfest að atvinnumálaráð- herra skipi annan endurskoð- enda félagsins. Áður en þessi breyting var gerð á Álþingi 1935 var sett at- hugasemd við styi’k til B. í. á fjárlögum svohljóðandi: „Ríkisstjórninni er falið að undirbúa tillögur urn framtíð- arskipulag félagsins, og um yfirstjórn búnaðarmála og leggja þær fyrir næsta Alþingi. Þar til sú framtíðarskipun er gerð, getur ríkisstjórnin gert það að skilyrði fyrir greiðslu á styrk til félagsins, að fjár- hagsáætlun félagsins sé sam- þykkt af landbúnaðarráðherra, svo og ráðning búnaðarmála- stjóra, er ekki sé nema einn“. Á næsta Alþingi kom ekkert frá ríkisstjóminni um skipun búnaðarmála, og drógst það til Alþingis árið 1936, að það var fellt inn í hin nýju jarðræktar- lög. Má því segja, að aldrei hafi slitnað þráðurinn hjá rík- isvaldinu að hafa sterka íhlut- un um B. I., þó að dráttur yrði á framkvæmdum stjórnarinnar um eitt ár að fullnægja vilja Alþingis. Það er vitanlegt að B.I. hefir þróast, frá því að vera félag nokkurra áhugasamra embætt- ismanna í Reykjavík um bún- aðarmál, til þess að vera mið- stöð búnaðarfélagsskapar í landinu, og jafnframt hefir það tekið að sér störf, leiðbeining- ar og framkvæmd mála fyrir ríkisvaldið, einnig er oft til þess leitað sem ráðgefandi stofnunar fyrir Alþingi og ríkis stjórn. Vegna þessarar síðasttalinn- ar starfsemi hefir ríkisvaldið haft ástæðu til að gera kröfu til afskipta af fyrirkomulagi fé- lagsins. Með tilliti til þessarar aðstöðu B. I. skal hér fara nokkrum orðum um þær kröf- ur í þessu efni, sém ríkisstjórn. in gerir hér til afskipta af skipulagi B. í. Það er vitanlegt öllum, sem til þekktu og ljóst hugsa, að þegar Alþingi sam- þykkti að fella niður ákvæðin um hina ríkisstjómarskipuðu stjórnarmenn B. í. hafði þing- meirihlutinn fyrir augum á- kvæðin, sem fylgdu fjárlögum 1935 og hugðust koma áhrifum sínum fyrir með framkvæmd þeirrar athugasemdar, enda var af B. I. veitt mótttaka styrk þeim, sem fylg'di athugasemd- inni án allra gagnkrafa, má því telja að B. í. hafi með því á óbeinan hátt lagt sig undir nýj- an samningsgrundvöll í þessu efni. Afskiptum ríkisvaldsins af B. L, sem felst í fyrsta kafla jarð- ræktarlaganna, má skipta í tvennt: I fyrsta lagi yfirstjórn og úr- skurðarvald landbúnaðarráð- herra. I örðu lagi undirbygging B. í. og kosning til Búnaðarþings. Samkvæmt öllum starfsvenj- um er búnaðarmálastjóri sá maður, sem hefir yfirlit yfir daglega starfsemi félagsins og lætur framkvæma vel flest þau mál, sem skýr og föst fyrir- mæli eru um. Meðan starfssvið B. í. er tvískipt, eins og áður er bent á, verður umboðs- mennska hans vegna B. I., bæði að framkvæma mál, sem til- heyra B. I. sem félagi, og jafn- framt að inna af hendi þau störf, sem ríkisvaldið felur B. í. með lagafyrirmælum, og mörg eru þess eðlis að þau krefjast ákveðinnar afgreiðslu, án íhlutunar stjórnar B. I., sem vitanlega tekur aðalléga ályktanir um framkvæmdir, sem ekki liggja bein fyrirmæli um. Að þessu athuguðu er íhlut- arréttur um val búnaðarmála- stjóra miklu eðlilegra afskipti fyrir ríkisvaldið, heldur en það sem áður var, þegar ríkis- stjórnin hafði á hendi val meirihluta stjórnar B. I., með þessum skilningi verður búnað- armálastjóri á vissan hátt um- boðsmaður beggja þeiri’a aðila, er hlut eiga að máli, sem skil- greining á þessu eru ákvæði þriðju greinar um framkvæmd- iv fyrir ríkisvaldið og úrskurð- arvald ráðherra í ágreinings- málurn. Fyrsta grein bæði hinna eldri og nýju jarðræktarlaga hljóð- ar svo: „Atvinnumálaráðuneytið (land- búnaðarráðherra) hefir á hendi æðstu stjórn allra ræktunar- mála“. Um þessa grein hefir ekki verið deilt. Skilgreining á því, hvernig og hvenær á að beita þessari yfir- stjórn, er í hinum nýju jarð- ræktarlögum. B. í. getur ekki verið það betra eða örwggara, að þessi yfirstjórn sé óskil- greind og ráðherra geti gripið inn í þegar honum býður svo við að horfa. Það er ljóst mál að öllum hlutaðeigendum er bezt, að val búnaðarmálastjóra sé með góðu samkomulagi, enda yrði reynsl- an sú, að þó engin fyrirmæli væru um þetta, myndi stjórn B.í. ekki stætt með að velja bún aðarmálastjóra, þvert á móti vilja þess ráðherra, sem fer með landbúnaðarmál. Samstarf og samningar stjórnar B. í. og landbúnaðar- ráðherra er svo mikil, að þetta atriði verður aldrei nema til- tölulega mjög lítill hluti af því, sem stjórn B. I. verður að semja um við hverja ráðandi ríkisstjórn. Eins og nú er fyrirkomið B. í. er undirstaða undir Búnaðar- þingi, búnaðarfélög hreppanna, með búnaðarsamböndin sem millilið. Búnaðarfélög hrepp- anna fjölguðu mjög mikið við gildistöku jarðræktarlaganna 1923, og einkum með þeim á- kvæðum, sem sett voru 1928, að allir þeir, sem njóta vilja styrks samkvæmt jarðræktar- lögunum, voru skyldaðir til að vera félagar í búnaðarfélagi hrepps eða bæjar, og var þá jaínframt ákveðið að búnaðar- félög hreppanna fengju nokk- urt starfsfé úr ríkissjóði. Með þessu og fleiru hafa búnaðar- félög hreppanna styrkzt og myndað víða sjálfstæða félags- starfsemh Búnaðarsamböndin voru sum- part stofnuð fyrir áhrif frá B. í. og sumpart sem eðlilegur þroskaferill búnaðarfélagsskap- arins í viðkomandi héraði. Þau liafa breyzt nokkuð frá fyrstu, en eftir að lög B. í. frá 1931 voru samþykkt, hafa þau gagn- vart B. í. haldist með sömu tölu og stærð,, en hinsvegar liafa þau skipzt meira heirna fyrir, og hefði sú skipting ef til vill gengið lengra, ef aðstaða þeirra til B. I. hefði ekki fa!l- ið í fastar skorður með lögunum. Þar eð fulltrúar til Bún- aðarþings, eru kosnir á aðal- fundum sambandanna, virðist það nokkuð rík venja, að auk þess sem sömu menn eru oft lengi við stjórn sambandanna, þá verður forráðamaður, eða menn, sem oftast fyrir vali sem fulltrúar á Búnaðarþing. Þetta hefir bæði kosti og gaila í för með sér. Kostirnir eru, meiri festa í störfum og dýpri þekking á þeim málum, sem um er fjallað hins vegar festist þetta ef til vill of mikið í sama farvegi, og breytt viðhorf og ný viðfangsefni eiga tregari að- gang. Eins og nú er komið þróun sambandanna eru kosnir fulltrú- ar á aðalfundi búnaðarsamband anna í búnaðarfélögum hrepp- anna. Víða einn fulltrúi fyrir einn hrepp, án tillits til hve margir félagsmenn eru í hverj- iun hreppi. Fulltrúar á aðal- lundum búnaðarsambandanna kjósa svo fulltrúa á búnaðar- þing. Með þessu fyrirkomulagi verða áhrif félagsmanna í bún- aðarfélögum hreppanna því ó- bein og mjög misjöfn, því að fulltrúar hafa mjög misjafn- lega marga fulltrúa á bak við sig. Þessi kosningaaðferð hefir verið við höfð, vegna þess að það hefir þótt léttara í vögum þrátt fyrir að mönnum hafa verið ljósir annmarkar þessa íyrirkomulags. Nú er þróunin í þá átt að gera kröfur til þess að kosning- ar séu beinar til áríðandi sýsl- ana fyrir stærri heildir, og þar sem hér er komin fram tillaga í jarðræktarlögunum, um að færa þetta í lýðræðighorf þá eru sparnaðarástæður einar- haldlitlar til þess að standa á móti þeirri réttarbót sem óbein- ar kosningar eru. Hér kemur og til greina að með því að opna áhrifavald til kosninga á Búnaðarþing, beint til allra þeirra sem landbúnað stunda, þá veitir slíkt áhrifavald bæði ábyrgðartilfinningu og áhuga á þeim málum sem varðar búnað- arfélagsskapinn í landinu. Með því fyrirkomulagi á kosningun- um rofnar sá stakkur sem Bún- aðarþingi var skorinn með lög- um þess 1931, því að fulltrúar verða nokkru fleiri og væri vel ef það gæti orðið til þess að Búnaðarþing gæti betur orðið við beim kröfum sem til þess eru og verða gerðar á hverjum tíma. Enn má benda á það, að þegar lög B. I. voru samþykkt 1931, var felldur úr lögunum aðalfundur B. í. og val full- trúa á þeim. Með því voru þurk- aðar út síðustu leifar frá þeim tíma, sem það var byggt upp sem félag einstakra áhuga- manna, og fékk það þá á sig fullkomna mynd sambands með undirdeildum, hafði frá því sjóitarmiði val fulltrúa til Bún- aðarþings á fundum búnaðar- sambandanna, rétt á sér. Eink- um með tilliti til þess að þá var verið að ganga frá leifum þess fyrirkomulags sem B. í. hafði verið að vaxa upp úr. Nú eru jarðræktarlögin bygð upi> á þeim grundvelli að fyrst og fremst ná þau til einstak- linganna og styrkja auk þess búnaðarfélög hreppanna nokkuð ’ til að halda uppi starfsemi ; sinni. Hins vegar gera þau á- J kveðnar kröfur til samband- anna og B. I. Sem framhald af þessu er eðlilegur sá skiln- ingur að einstaklingarnir hafi bein áhrif á kosningu til Búnað- arþings. Þarna mætast tvö ólík sjónarmið og undir þeim kring- umstæðum er eðlilegast að það sjónarmiðið sem gefur einstak- lingunum meiri rétt, sé tekið, þegar það auk þess á engan hátt getur skaðað það kerfi sem búnaðarfélagsskapurinn í landinu byggist á. Það virðist hafa verið tölu- verð óánægja með afgreiðslu jarðræktarlaganna á Alþingi nú og um einstök atriði þeirra. Þau eru samþykkt á Alþingi með aðstoð þess stjórnmála- floklcs sem talið er að ekki hafi sérstaklega álitið sig varða landbúnaðarmál. Auk þess þyk- ir ekki hafa verið leitað nægj- anlega álits B. í. um málið. Þessai ástæður allar eru þannig vaxnar, að það getur ekki mynd að bætta aðstöðu til að auka áhrifavald B. í. í landinu, að kasta lögunum frá sér, því að það er augljóst mál, að nær- tækara er fryir B. í. að beina áhrifum sínum til bóta, að hafa á hendi framkvæmd lag- anna, en ef þeim væri stjórnað ftá deild í stjórnarráðinu. Slík stjórnardeild myr.di sækja í að vaxa, eins og allt lögmál lífsins stefnir að, og sælast fljótlega eftir þeim mál- um sem B. í. er nú falið fyrir löggjafarvaldið. Auk þess yrði þessi stjórnardeild að , hafa trúnaðarmenn um allar sveitir landsins. Þar sem hin fjármunalega að- stoð til eflingar landbúnaði myndi þá koma í gegn um þessa stjórnardeild myndi bænd um þykja tveir tígulkongar vera lcomnir í spilin. Og gæti þá svo farið að þrátt fyrir kerfis- bundið stjórnarfyrirkomulag og góðan og göfugan vilja, myndi B. í. dragast í skuggann og v-erða máttlaust til áhrifa, bæði hjá bændum landsins og emkum hjá löggjafravaldinu. Að þessu athuguðu vill minni hluti laganefndar Búnaðarþings ins leggja til: „Búnaðarþingið ályktar að Búnaðarfélag íslands taki að sér framkvæmd hinna nýju jarðræktarlaga *og ákveður að breyta lögum sínum samkvæmt því.“ Reykjavík 14. sept. 1936 . . .Tón Hannesson ök bítur sekan Svar tll Pálma Eánarssonar Eitír Gunnar Þórðarson, bónda í Grænmmýrartungu Það eru nú liðnir fullir tveir mánuðir síðan grein mín um jarðræktarlögin birtist í Tíman- um. En ráðunauturinn hefir fundið svo berlega til sektar sinnar fyrir óréttan málflutn- ing, að hann hefir hyllst til að draga svar sitt þar til nú, að ætla mætti að ég hefði ekki tíma til andsvara fyr en eftir að aukafundi Búnaðarþings væri lokið, og málið búið að fá nokk- uð breytt viðhorf. Annars er það mest einkenn- andi við þessa grein Pálma Ein- arssonar, er birtist í Fram- sókn 10. þ. m„ hvað mikill hluti hennar er málalengingar og rætnar bollaleggingar um mig, sem ekki koma við röksemdum um málið. Svo sem að ég hafi verið fenginn til að ski’ifa, að ég hafi skrifað þetta um sláttinn, að ég hafi af einkaástæðum ætl- að að kljúfa Búnaðarsamband Vestfjarða og svo framvegis. Ég get að vísu talið mér til tekna að hann virðist gera ráð fyrir að samsýslungar mínir myndu að sjálfsögðu velja mig fyrir fulltrúa væri sambandinu skipt. En það sanna í þess umáli er, að við allir mættir fulltrúar úr Strandasýslu fluttum tillögu á sambandsfundi 1935 um að teknir yrðu til athugunar rnögu- leikar fyrir hentugri skiftingu sambandsins vegna hinna miklu samgönguörðugleika. Var því vel tekið af öllum fundarmönn- um,* og þóttu ríkar ástæður mæla með því. En hins vegar nokkrir örðugleikar á fram- kvæmd skiptingarinnar. Vil ég í þessu sambandi geta þess að ég ræddi þetta mál þá um vor- ið við Tryggva heitinn Þórhalls- son og tók hann mjög ákveðið undir það, taldi það líklegt til búnaðarfélagslegra framfara og h.ét málinu stuðningi sinum. Ráðunauturinn er jafnvel svo vonlaus um aðstöðu sína til að verja fyrri ummæli, að hann reynir að forða sér frá að standa við niðurstöður þær er hún gefur tilefni til, með því að láta í veðri vaka, að ég hafi verið með aðdróttanir urn van- í'ækslu í leiðbeiningastarfi hans út um land, sem ég hefi ekkert sagt um. Auk þess er hann með ofstækisfullan stóryrðavaðal, sem ekki er svara verður, svo sem að ég sé „djúpt sokkinn til þjónustu við þá, sem lítilsvirða bændur landsins“, að ég „ger- ist málsvari svívirðinga þeirra, sem þeim sé sýndar“ o. s. frv. Það er hvorttveggja að mörg- um finnst ráðunauturinn yfir- lætislegur froðusnakkur, enda berídir slíkur ritháttur, sem þetta, allmikið til þess. Pálmi reynir að gerast verj- andi þess að Metúsalem Stef- ánsson brást skyldu sinni sem ritstjóri að ópólitísku búnaðar- blaði, og hefir hvað eftir ann- að flutt hlutdi-æg ummæli um jarðræktarlögin. Segir hann að ég vilji útilolca starfsmenn Búnaðarfélagsins frá að hafa frjálsar skoðanir. Þetta er ekki rétt. En mitt álit er, að þeir sem annast sérstaklega trúnað- arstörf fyrir bændur, eiga að finna hjá sér skyldu til að skýra málin óhlutdrægt, en gerast eklci „agitatorar“ ófyrirleitinn-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.