Tíminn - 28.07.1937, Blaðsíða 4
128
TlMINM
Utan úr heimi
Framh. af 1. síOu.
Úr sjálfstæðisbaráttu Ind-
lands, hefir ei'tt nafn á síðari
árum borið hæst í vitund hins
vestræna heims. Það er nafnið
Gandhi. Allir hafa heyrt getið
um Gandhi, spekinginn og
meinlætamanninn, sem var
foringi einkennilegustu upp-
reisnar í heimi, þegar ind-
versku sjálfstæðismennimir,
þúsundum saman lögðust niður
á járnbrautirnar, svo að her-
menn Breta höfðu nóg að gera
að bera þá í burtu. Gandhi
heíir alltaf verið á móti blóð-
ugri uppreisn. I hans augum í
xrelsisbarátta Indlands að vera
bará'tta andans gegn hnefarétti
og auðvaldi Bretlands. En öld-
ungurinn Gandhi er ekki full-
trúi hinnar nýju kynslóðar.
Með nýjum tíma koma nýir
menn.
Maðurinn, sem nú er foringi
hins indverska sjálfstæðis-
flokks, og haft hefir forystu í
baráttunni gegn hinni nýju
stjórnarskrá Indlands, heitir
Jawaharlal Nehru og er rúm-
lega fimmtugur að aldri, og
er lögfræðingur frá brezkum
háskóla. 15 ára gamall fór
hann til Englands til náms, og
kom aftur eftir einn áratug.
liann hafði margt lært, en engu
gleymt!
Verulegan hluta fullorðinsár-
anna hefir hann setið í fang-
tlsum Breta fyrir að hafa beitt
„ólöglegum“ baráttuaðferðum
eða neitað að hlýða lögum.
Alls hefir hann setið sjö sinn-
um í fangelsi. I síðasta sinni,
sem hann var í fangelsinu,
notaði hann tímann til að skrifa
æfisögu sína og þá um leið
.sögu ninna pólitísku viðburða,
sem hann hefir tekið þátt í.
Bók hans, um 600 bls. að
stærð, kom út í apríl í fyrra,
og í ágústmánuði sama ár var
búið að gefa hana út tíu sinn-
um.
Stór hluti bókarinnar fjallar
um dvöl hans í Englandi. Hann
segist hafa eignazt þar marga
vini, en þó var hann einmana
jafnvel í þeirra hóp, því að
eins og Kipling sagði: „^ustr-
ið er austur og vestrið vestur
— og þau tvö munu aldrei
mætast“. En við námið var hinn
austræni' sveinn enginn eftir-
bátur félaga sinna. 0g í skól-
anum hlaut hann ei'tt sinn að
verðlaunum bók um ítölsku
írelsishetjuna Garibaldi. Að á-
hrifum þeirrar bókar bjó hann
löngum síðan. Garibaldi Ind-
verja vildi hann vera. Þegar
hann er um tvítugsaldur fara
sð berast fregnir úr austurvegi
um uppreisnartilraunir gegn
Bretum í Indlandi. Og þessar
fréttir verða honum óblandið
íagnaðarefni. En það er samt
allt of snemmt að snúa heim,
því að enn er margt að sjá og
læra. Nehru ferðast um megin-
land Evrópu, m. a. til Noregs.
En 1912 kemur hann heim, að
loknu háskólaprófi, tveim árum
áður en heimsstyrjöldin brýzt
út.
Og svo kom stríðið. Indverj-
ar fylgdust ekki mikið með
þeim atburðum fyrst í stað,
segir hann, en svo var farið að j
safna liðsmönnum þar eystra í
her Breta, og vöruskorturinn
að hafa áhrif á verðlagið. „Það
var ekki mikil samúð með Eng-
landi“, segir hann, „þótt ekki
vantaði hollustuyfirlýsingar í
orði kveðnu. Það var sama,
hvort í hlut áttu hægfara menn
eða róttækir, öllum þótti í raun
og veru vænt um hina þýzku
sigra. Við vorum ekkert sér-
lega vinveittir Þjóðverjum, en
það gladdi okkur ósjálfrátt, að
þeir, sem réðu yfir okkar eigin
Tilkynning
til allra
íslenskra bænda
frá Efnagerðinni Sjöfn
Reynslau og fjöldi tilrauna hafa sannað, að bezta ráðið til að fá gerilhreina
mjólk er, að gæta alls hreinlætis 1 meðferð kúnna. Sérstaklega skal hver góður
bóndi gæta þess, auk annars, sera snertir kúahirðingu, að júgrinu sé haldið heil-
brigðu. Flestir sjúkdómar, sem þjá kýr okkar, koma einmitt fram í þessu við-
kvæma líffnri, en afleiðingin er minni mjólk, svo að kúahaldið þess vegna ber sig
oft ekki. Af algengum júgursjúkdómum má nefna: Streptokokk júgurbólgu, bólgu-
lopa, bólgublástur í júgurhúðinni, húðbólgu, smitandi útþot, júgurbólu, kýlabólgu og
júgurdrep.
Búnaðarfrömuðir og sérfræðingar í útlöndum hafa fyrir löngu sannað og sýnt,
að bezta, þægilegaBta og ódýrasta ráðið til að hirða júgrið vel, sé að bera á það
daglega sérstök smyrsl.
Eins og að dagleg notkun sápu er sjálfsagður hlutur hverjum siðuðum manni, svo
ætti sórhver hagsýnn og framsækinn bóndi að nota daglega júgursmyrsl.
Mjólkurrannsóknir landbúnaðarráðanna við þýzku háskólana hafa leitt í ljós, að
án notkunar júgursmyrsla fundust I nýmjólkaðri mjólk yfir 3000 gerlar í hverjum kubikcenti-
metra. Væri aftur á móti mjólkað með höndum bleyttum i mjólk, smurðum með tólg
eða öðrum dýra- og jurtafitum, þá var lágmark gerlatölunnar langt yfir 8000.
Rannsóknirnar sýndu ennfremur, að gerlafjöldinn komst niður í merkllega lága
tölu, eða 300 I kubikcm. mjólkur, væri notuð beztu júgursmyrsl.
Júgursmyrsl eru því notuð nú i næstum öllum nýtízku kúabúum í þýzkalandi,
Englandi, Sviss, Danmörku og mörgum öðrum löndum Mörg mjólkursamlög þess-
ara landa krefjast þess af félögum sínum, að þeir noti stððugt júgursmyrsl.
Samkvæmt þessari víðtæku reynslu kemur Efnagerðin „SJÖFN“ á Akureyri með
JÚGURSMYRSL
á markaðinn
E>essí ágætu júgursmyrsl Efnagerðarinnar „SJÖFN“ er ekkert óreynt efni.
Þau eru framleidd, að viðhafðri allri hreinlætisvarkárni, af sérfræðingi vorum,
sem hefir að baki sjer margra ára nám og verklega reynslu erlendis.
Framleiðslan er undir eftirliti dýralæknis.
Bírgdír í Reykjavík lijá
Sambandi ísl. samvinnufélaga
!
frelsi, fengju sjálfir að auð-
mýkjast. Það var þrá hins
vanmáttuga til að láta annan
hefna sín“.
En eftir styrjöldina blossaði
mótstaðan upp í Indlandi. Og
síðan hefir baráttan staðið
látlaust að heita má í ýmsum
myndum. Nehru fullyrðir, að á
þessum tíma hafi eigi færri en
?>00 þúsundir Indverja setið í
fangelsum lengri eða skemmri
tíma, af pólitiskum ástæðum.
Indland hefir nú, eins og fyr
var getið, fengið nýja stjómar-
skrá. Samkvæmt henni er land-
inu skipt í mörg sambandsríki,
sem hvert um sig hefir sér-
stakt þing og stjóm. En hið
æðsta vald er þó í höndum hins
brezka landstjóra í eins'tökum
sambandsríkjum og undirkon-
ungsins brezka, sem settur er
yfir keisaradæmið í heild. Eins
og kunnugt er af blaðaskeyc-
um, tók Nehru og flokkur hans
(Congressflokkurinn) í fyrstu
upp þá aðferð að neita að
mynda stjórn í þeim sambands-
ríkjum, þar sem flokkurinn
hafði meirihluta, en það var í
öllum hinum stærstu ríkjum.
Frá því hefir þó síðar verið
fallið. En baráttan fer harðn-
andi.
Hússtj órnar skólinn
á Isafirði
starfar eins og að undanförnu með tveim námskeiðum
Fyrra námskeiðið hefst 1. október, og stendur til 1. Febr.
Síðara námskeiðið frá 1. Febr. til 1. júní.
Kennslugreinar: Matreiðsla, hússtjórn og búreikningahald,
vefnaður, næringaefnafræði, og hjúkrun. Inntökugjald
75,00 kr.
Umsóknir sendist formanni skólanefndar frú Kristinu Sig-
urðardóttir Silfurtorgi 1. Isafirði, sem veitir umsóknum
móttöku í fjarveru forstöðukou frk. Dagbjartar Jónsdóttur
sem nú dvelur í Svíþjóð og Danmörk til kynningar í
þeim Hússtjórnarskólum sem fer mest orð af.
Skólanefndin.
Ullartuskur
Haldið til haga öllum ULLARTUSKUM sem tö falla
á heimilinu, og seljið þær, eða látið vinna úr þeim
í ullarverksmiðju.
011 kaupfélög landsins kaupa hreinar og vei
meðfamar ullartuskur. Ennfremur ULLARVERK-
SMIÐJAN GEFJUN.
Samband ísl. samvínnuíélaga
Sauðfjáreigendur
öll stærstu sauðfjárrwktarlönd heimsins nota
COOFERS-B AÐLTF
Það læknar hverskonar óþrif betur en nokk-
urt annað baðlyf.
COOFERS-B AÐLYF
eykur vöxt og gæði ullarinnar fremur en
nokkurt annað baðlyf.
COOFERS-B AÐLYF
duft,
lögur
sápa
fæst hjá öllum kaupfélögum.
Samband isl. samvinnufélaga
Sími 1080.
Að geínu tílefní
skal pess getið, að pýðingarlaust
er að sækja um inntöku í Sam-
vinnuSkólann fyrir árið 1937—
1938, vegna pess, að skólanum
hafa nú pegar borist fleiri um-
sóknir en hægt verður að taka
á móti.
Jónas Jónsson,
skólastjóri.
Húðir og skinn
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar hlíðÍP og
skinn, H®m falla til á heimilum þeirra ættu þeir að
biðjakaupfélag sitt að koma þesaum vörum í verð.—,
Samband ísi. samvinnuféiaga selur nauigripahúðir,
hrosshúðir, kálfskinn, iambskinn og selskinn til út-
landa og kaupip þessap vöpup lil súfunar. — Nauf-
gpipahúðir, hrosshúðip og kálfskinn er best að »alta-
en gera verður það strax að lokinni alátrun. Fláningu
verður að vanda *ðm bezt og þvo óhreinindi og blóð
af skinnunum. bæði úr holdroaa og hári, áður en aalt
að er. öóð og hreinleg meðferð, á þesaum vörum sem
öðrum, borgar sig.
lUkii toimiiin
með pví að bera
KALKSALTPÉTUR
á túnin að loknum fyrsta slætti.
Mikið og góð háarspretta getur bœtt
upp lélegan fyrríslátt.