Tíminn - 18.10.1938, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOF UR:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
22. árg.
Reykjavík, þrlðjudaglnn 18. okt. 1938.
54. blað
Slátrnn
Hjáleíga Þýzkalands
Á víðavangi
Verksmíðjan í Hveragerdí hefir
framleitt 110 smálestír í sumar
lokið á 19 stöðum
A aðeins þrem stöðum
voru dilkar léttari nú
en í iyrra
Samkvæmt upplýsingum frá
formanni kjötverðlagsnefndar,
er slátrun nú lokið á 19 'slátur-
stöðum.
Fer hér á eftir yfirlit um
sláturfjártöluna á þessum stöð-
um og eru tölur frá því í fyrra
tilgreindar til samanburðar:
Slátrað 1938 Slátrað 1937
Full- Fuli-
Dilkar orðið Dilkar orðið
Borðeyri 5350 491 7492 1254
Húsavík 14353 1060 13141 1270
Króksfj.n. 3196 219 3552 87
Reykhólum 1112 1063 6
Þingeyri 5398 165 3934 36
Sveinseyri 838 15 883
Reykjarf. 461 22 378 114
Patreksf. 1090 4 1071 35
Norðurf. 1553 66 1497 50
Akranesi 2322 63 4295 421
Borgarf. 5148 103 4213 101
Mjóafirði 377 8 329 7
Hólmi 1841 34 5624 400
Siglufirði 4508 261 4715 345
Seyðisf. 1745 8 1740 10
Stöðvarf. 1189 23 1032 28
Vopnaf. 6316 314 6271 594
Þórshöfn 6376 351 5461 601
Öræfum 1404 125 1299 63
Meðal kjötþungi dilka á þess-
um stöðum hefir orðið, sem hér
segir (kg.):
1938 1937
Borðeyri 17.56 15.96
Húsavík 15.14 14.25
Króksfjarðarnesi . 16.17 15.67
Reykhólum 15.00 15.00
Þingeyri 13.81 13.46
Sveinseyri 13.48 12.99
Reykj arfirði 14.33 13.79
Patreksfirði 12.96 12.69
Norðurfirði 12.04 13.24
Akranesi 13.17 12.44
Borgarfirði 12.66 12.80
Mjóafirði 14.87 14.99
Hólmi, Síðu 13.90 12.53
Siglufirði 14.24 13.26
Seyðisfirði 13.28 13.18
Stöðvarfirði .... . 12.01 11.57
Vopnafirði 14.36 13.73
Þórshöfn 14.60 13.51
Öræfum 11.30 10.84
Eins og skýrslan sýnir, eru
dilkar vænni en í fyrra á öllum
þessum stöðum, nema þremur.
Mun Páll Zóphóníasson gera
nánari grein fyrir orsökum þess,
þegar allri slátruninní er lokið.
Slátrun lýkur víða í þessari
viku.
INNITZER KARDINÁLI
(til vinstri, sem austurískir nazistar
réðust á fyrir skömmu og síðan er
hafður í stofufangelsi.
Á síðastliðnu vori tók
þangmjölsverksmiðja til
starfa í Hveragerði, og er
það fyrsta slíka fyrirtækið,
sem rekið er hér á landi. Var
Sveinbjörn Jónsson bygg-
ingameistari einn helzti for-
göngumaður þess.
SVEINBJÖRN JÓNSSON.
Verksmiðjan var reist við dá-
lítinn gufuhver rétt við Varma
og var hann virkjaður og notað-
aður til þess að þurrka mjölið.
Verksmiðjan er miðuð við að
geta unnið 300 smálestir mjöls
á ári. Stofnkostnaður við liús-
byggingar, virkjun og vélakaup
nam um 42 þúsund krónum.
Þangið, sem unnið er, er sótt
til Stokkseyrar. Er það skorið
þar á skerjunum fyrir framan
þorpið, þegar lágsjávað er. Það
telja gamlir menn og athugulir,
að þangið vaxi að nýju á 4
árum og hið sama er álit vís-
indamanna.
Verksmiðjan hóf framleiðslu
sína í byrjun maímánaðar í vor.
Laust eftir miðjan september-
mánuð höfðu verið framleiddar
110 smálestir þangmjöls.
Aðalslátrun hjá Sláturfélagi Suður-
lands er lokið fyrir nokkru. Bezta
jafnaðarþyngd dilka sinna, af ölliirn
þeim, sem ráku sláturfé sitt til Slát-
urfélagsins, fékk Torfi Jónsson bóndi
í Gilstreymi í Lundarreykjadal. Lömb-
in voru alls um 65 og meðal kropp-
þungi þeirra 35% pund. Næst vænst
lömb átti Einar Halldórsson bóndi á
Kárastöðum í Þingvallasveit, og hefir
áður verið frá því skýrt. Hinn þriðji
í röðinni mun vera Davíð Björnsson,
bóndi á Þverfelli í Lundarreykjadal,
með nær 35 pund.
I t t
Samkvæmt heimildum Ingólfs Dav-
íðssonar grasafræðings lét atvinnu-
deild háskólans í vor sá kartöflum
af öllum þeim tegundum, sem Græn-
metisverzlun ríkisins hafði á boðstól-
um, í allstóra tilraunareiti. Eru nú
fengnar niðurstöður af þessum tilraun-
um. Nokkrar tegundir, Akurblessun
(Ackersegen), Deodora, Jarðargull
(Erdgold) og Webbs, gáfu elleffalda
uppskeru, Alpha og Eyvindur gáfu ní-
falda, en önnur afbrigði 4—8-falda
uppskeru. Grös allra hinna beztu teg-
unda, að Webbs undantekinni, stóðu
iðgræn, þegar tekið var upp úr görð-
unum. Jarðvegurinn, sem sáð var í,
er leirblandin melajörð. Voru borin
10 kg. af garða-nitrophoska í hverja
100 fermetra. Gulrófur voru einnig
ræktaðar í þessum tilraunareitum og
uxu Gautarófur, íslenzkar rófur og
Þrándhéimsrófur vel, en Banghólms-
rófur og finnskar (rússneskar) rófur
Mjölið hefir hingað til verið
selt á 19 krónur hver 100 kg., en
í ráði er lækka verðið nokkuð.
Hefir það verið notað til íblönd-
unar fiskimjöls í stað maismjöls.
Hefir það bæði verið notað sem
hænsnafóður og kúafóður.
Skepnur eru tregar til að éta
mjölið fyrst í stað, en venjast
því, þegar frá líður. Hefir mjölið
verið selt allvíða um land. Til
að mynda hefir búnaðarskólinn
á Hvanneyri keypt dálítið til
reynslu. Einnig hafa Kaupfélag
Árnesinga, Kaupfélag Eyfirð-
inga og Mjólkurfélagið keypt
talsvert.
Þangmjölið þykir, eins og áð-
ur er sagt, hentugast í stað ma-
ísmjöls og inniheldur að nokkru
leyti svipuð efni. Þó jafnast
það ekki fyllilega á við maís-
mjöl að fóðurgildi, enda all-
miklu ódýrara. Þangið er mjög
ríkt að steinefnum og joðefnum
og geymir eins og annar sjávar-
gróður ýms nauðsynleg fóður-
efni, sem heyið glatar fljótt, ef
það hrekst. Er þangmjölið því
sennilega hollt með hröktum
heyjum.
Samkvæmt erlendum rann-
sóknum, er þó efnainnihald
þangsins nokkuð mismunandi
eftir árstíðum og er einna rík-
ast af nytsömum efnum seinni
hluta sumars.
í Noregi er slík þangvinnsla
stunduð með góðum árangri og
er hér áreiðanlega um atvinnu-
rekstur að ræða, sem gefa á
fullan gaum.
Kautsky látlnn.
Karl Kautsky, einn víðkunn-
asti rithöfundur þýzkra jafnað-
armanna, lézt í Amsterdam í
gær, 84 ára að aldri. Hann var
persónulegur vinur og læri-
sveinn Karl Marx. Hann var
andvígur rússnesku byltingunni
og kommúnisma.
miður. Minnst bar á maðkskemmdum
í Gautarófunum.
t t t
Kartöflukvillar voru fremur vægir í
sumar. Myglu varð lítilsháttar vart
en tjón hlauzt ekkert af henni hér
sunnanlands. Þurrviðrin forðuðu því.
Margir garðeigendur notuðu líka varn-
arlyf í tæka tíð og æ fleiri velja sér
hraust afbrigði til útsæðis. Stöngul-
veiki gætti nokkuð, en þó minna en
í fyrrasumar. Talsverð brögð voru að
tiglaveiki, einkum Favourite, Jórvík-
urhertoga, Webbs og Böhms. Var
helmingi minni uppskera undan sjúk-
um grösum heldur en þeim heil-
brigðu. Víða var kvartað um kláða.
Er mönnum ráðlagt, að bera stækju
í kláðagjama garða, en forðast að
láta í þá ösku og kalk. — Kálmaðkur
var versta plága hér í Reykjavík, sér
í lagi í blómkáli. Hann gerði einnig
usla á Akureyri og Blönduósi. Þeir,
sem höfðu gát á görðum sínum að
vorlaginu um varptíma kálflugunnar
og vökvuöu tafarlaust með „sublimat"-
vatni, þegar þeir sáu eggin við rótar-
háls plantnanna, sluppu við þann
skaða, sem maðkurinn gerir.
r t r
í seinasta hefti Freys skrifar Páll
Zophoniasson ítarlega grein um van-
höld á sauðfé. Getur hann þess m. a.,
að dýrbítur hafi aukizt verulega á
undanförnum árum. Einkum hefir
kveðið mlkið að honum tvö undan-
farin vor á Norður- og Austurlandi.
í uppsveitum Ámes- og Rangárvalla-
Fyrir milligöngu ítala og
Þjóðverja hafa Ungverjar lofað
að taka upp samninga við Tékka
á ný, en þeir höfðu hætt þeim og
krafizt fjórveldaráðstefnu. Ung-
verska fréttastofan segir, að
Hitler og Mussolini styðji kröf-
ur þeirra.
Annarstaðar er það talið vafa-
samt, að Hitler styðji kröfur
Ungverja um sameiginleg
landamæri við Pólland. Tékkó-
slóvakía er ekki lengur þrosk-
uldur á vegi hans til aukinna
viðskipta og áhrifa austur á
bóginn. Hann hefir miklu meira
að óttast samvinnu Pólverja og
Ungverja, sem stendur stuggur
af auknum yfirráðum Þjóðverja
í Mið-Evrópu.
Enn hefir ekki verið endan-
lega gengið frá landamærum
Þýzkalands og Tékkóslóvakíu,
en í þeim héruðum, sem Þjóð-
verjar hafa tekið, eru 3.638 þús.
íbúar og eru af þeim um 850—
1000.000 Tékkar. Talsverður hluti
þeirra mun flytja til Tékkósló-
vakíu. Þjóðverjar flytja aftur
á móti þaðan til Súdetahérað-
anna. í mörgum borgum, sem
Þjóðverjar hafa tekið, eru Tékk-
ar i yfirgnæfandi meirahluta,
eins og t. d. þessum:
Tékkar Þjóðv.
Policka . .. .... 5.947 149
Petralka . .. .... 7.854 3.173
Znaim .... 33.990 30.360
Lundenburg .... 39.871 1.873
Auspitz .... .... 17.214 8.258
M.-Kromau 20.184 8.073
Prachatitz 11.168 9.341
Senftenberg .... 3.659 43
Postorna ... .... 3.595 285
Flatarmál þess lands, sem
Þjóðverjar hafa fengið, er 28
þús. ferkm. eða V5 allrar Tékkó-
slóvakiu.
f þessum héruðum eru auðug-
ar kolanámur, en lítið af málm-
um. Iðnaður er þar mjög mikill
(bómull, gler, postulín o. fl.). —
Landbúnaður Tékka hefir haft
öruggasta markað sinn í iðnað-
arborgum Súdetahéraðanna, og
þar hafa margar helztu útflutn-
ingsvörur Tékka verið fram-
leiddar. Auk þess eru miklar
tekjur af ferðamönnum í þess-
um héruðum, m. a. vegna bað-
staða. Verður hin nýja Tékkó-
sýslu hefir hann einnig gert mlkinn
usla, en minni á Vestfjörðum, þó hans
verði þar víða vart. Liggur vafalaust
til þess sú ástæða, að hann hefir
þar meira af öðru æti (sjófangi).
Páll segir í grein sinni frá einum
hreppi með samtals 2000 ám, þar sem
dýrbítur hafi grandað 300 lömbum
á síðastliðnu vori, en ails telur hann að
þau lömb, sem dýrbítur hafi drepið
undanfarin vor, skipti þúsundum á
öllu landinu. Páll segir, að til þess að
útrýma dýrbítnum, þurfi að leggja
miklu meiri áherzlu á það, að drepa
fullorðnu dýrin, bæði að vetrinum og
á vorin. Hefir það sumstaðar valdið
nokkurri óánægju, að eldri dýrin hafa
sloppið, þegar legið hefir verið á grenj-
um á vorin. Það mun líka sama og með
öllu hætt að reyna að skjóta tófur
að vetrinum, en það var talsvert gert
áður og þyrfti að halda þvi áfram.
t r r
í grein sinni segir Páll einnig frá
því, að á nokkrum stöðum hafi refir
sloppið úr eldl. Er blaðinu kminugt
um, að merktur refur var skotinn í
Húnavatnssýslu í fyrra og einnig náð-
ist í sömu sýslu i silfurref, sem slopp-
ið hefir úr eldi. Ætti þetta að vera
nægileg hvatning til þess að gerðar
yrðu strangari kröfur um refagirð-
ingar. Þá munu minnkar einnig hafa
sloppið úr búmn í nágrenni Hafnar-
fjarðar, því þeir hafa sézt þar í hraun-
inu. Minnkar eru grimmir og myndu
áreiðanlega ráðast á unglömb. ef þeir
ættu þess kost.
MUSSOLINI,
sem þrátt fyrlr yfirlýsta vináttu við
Hitler, styður kröfur Ungverja, því
hann óttast vaxandi áhrif Þjóðverja
í Mið-Evrópu.
slóvakía algerlega viðskiptalega
háð Þýzkalandi, m. a. vegna
markaðarins fyrir landbúnaðar-
afurðir.
Þjóðverjum er þetta vel ljóst,
og munu þvi vilja ráða miklu
í landinu. Talið er, að þeir krefj-
ist þess, að Tékkar hafi lítinn
her, slíti allri samvinnu við
Frakka og Rússa og taki stjórn-
arhætti Þjóðverja sér á ýmsan
hátt til fyrirmyndar. Munu
Tékkar telja sér heppilegast að
fylgja sem mest þessum ráðum.
Ábyrgð Englands og Frakklands
á landamærunum, er þeim
raunverulega einkisvirði, þar
sem t. d. Prag er nú ekki nema
30 km. frá landamærunum og
Þjóðverjar geta fyrirvaralaust
skotið hana í rústir.
Þá munu Þjóðverjar krefjast
eftirlits með framleiðslu og við-
skiptum Skodaverksmiðjanna,
sem eru þriðju stærstu vopna-
verksmiðjur í heimi. Munu þeir
leggja bann við, að verksmiðj-
urnar selji vopn til þeirra þjóða,
sem eru líklegar til að verða
andstæðar Þjóðverjum í ófriði.
Er Tékkóslóvakía þannig
raunverulega orðin einskonar
hjáleiga frá Þýzkalandi.
í þeim héruðum, sem Pólverj-
ar fá, eru búsettir 80 þús. Pól-
verjar og um 180 þús. Tékkar.
Þar voru auðugustu kolanámur
Tékkóslóvakiu.
Verða Eden og Chnr-
chill ráðherrar?
Anthony Eden hefir nýlega
haldið ræðu og hvatt til þjóð-
legrar einingar.
Talsverður orðrómur gengur
um það, að Chamberlain vilji
gjarnan fá Eden, Churchill og
jafnvel fulltrúa frá frjálslynda
flokknum inn í stjórn sína.
Liggja til þess einkum tvær á-
stæður: Þátttaka þessara manna
I stjórninni myndi á ný auka
traust'lýðræðisríkjanna og ensku
nýlendanna á forystu Bretlands,
en það hefir beðið mikinn hnekki
við Munchensáttmálann. Auk
þess myndi stjórnin þannig
skipuð hafa miklu traustara
fylgi innanlands. Hefir Cham-
berlain hvað eftir annað lýst
því yfir, að hann telji það meg-
inatriði, að þjóðin sýni sem
bezta samheldni á þessum tíma
og með þeirri forsendu neitað
kröfu frá stjórn íhaldsflokksins
um kosningar í haust. Halifax
lávarður er einnig sömu skoð-
unar. Hann er sagður vilja
draga sig til baka og helzt óska
eftir Eden sem eftirmanni sín-
um. Hittust þeir Eden oft í
sumar og hélt Eden aldrei svo
ræðu eða skrifaði blaðagrein, að
hann talaði ekki við Halifax áð-
ur. Af eldri ráðherrunum er tal-
ið, að Halifax hafi verið hlynnt-
astur Tékkum. í þingræðu
hefir hann líka lýst yfir, að
hann þakki það Benes meira
en nokkrum öðrum, að ekki kom
til styrjaldar.
Hinsvegar eru miklir örðug-
leikar á því fyrir Chamberlain
(Framh. á 4. slðu.)
Jóhann Jósefsson alþm., sem
sæti á í síldarútvegsnefnd, hef-
ir í viðtali við Mbl. neyðzt til að
ómerkja slúðursögu Vísis um
síldarsöluna til Ameríku. Lýsir
Jóhann yfir því, að síldin muni
öll seljast eins og til var stofnað.
Vísir í gær er talsvert úrillur út
af þessu og er með skæting til
Mbl. um, að það hafi sagt, að í
Chicago sé heyrnarlaus söfnuð-
ur, sem „syngi sálma á fingra-
máli“! Þetta er auðvitað ein af
hinum vel þekktu fjólum Val-
týs, en ýmsum mun þykja hnút-
an koma úr hörðustu átt. Og
tæplega ferst núverandi rit-
stjóra Vísis að setja sig á háan
hest yfir stallbræður sína hjá
Mbl., að því er kunnáttu í móð-
urmálinu snertir.
* * *
Svo skilningssljór er Vlsir í
síldarmálunum, að hann kann
ekki að gera greinarmun á nafni
verzlunarfyrirtækis þess, er
síldina kaupir, og eiginnafni
trúnaðarmanns fyrirtækisins!
Frásögn blaðsins um „eftir-
gjafir“ á andvirði síldar 1936 og
1937 eru lika þvættingur einn.
Það er allt á eina bókina lært
fyrir piltum þeim, er að þessum
síldarskrifum standa.
* * *
í gær hefir Vísir í hótunum
við kaupfélögin út af skiptingu
vefnaðarvöruinnflutningsins. —
„Af slíkum yfirgangi höfum vér
nú fengið nóg. Og því skal nú
verða barizt til þrautar“, segir
hann. Ja, miklir menn erum við,
Hrólfur minn, segir einhvers-
staðar. En ætli Vísiskaupmönn-
unum sé ekki óhætt að hafa sig
hæga, meðan þeir fá 67% af
vefnaðarvöruinnflutningnum í
landinu og 83% í Reykjavik?
* * *
Ferðamaður skrifar Tíman-
um: Það eru vandræði fyrir far-
þega, hve erfitt er að fá keypt
egg og mjólk á höfnum, þar sem
strandferðaskipin koma við,
ekki sízt á Austfjörðum. Fólk á
þessum stöðum ætti að reyna
að búa sig undir komu skipanna
að þessu leyti. Þar geta líka
verið tekjur, sem draga sig sam-
an, þótt litlar séu í hvert skipti,
og mörg sjóveik manneskjan
myndi vera þakklát, ekki slzt
vor og haust, þegar þrengst er
á skipunum.
* * *
Kosning 9 manna í stúdenta-
ráð háskólans fór fram sl.
sunnudag. Stúdentar hafa und-
anfarið skipzt i einskonar póli-
tísk félög, en sumt er þar með
undarlegum hætti. T. d. lýstu
nazistar nú yfir þvi, að þeir
vildu styðja félag „lýðræðis-
sinna“ í kosningunum og gerðu
það! Þetta finnst sjálfsagt
flestum óskiljanlegt nema þeir
viti, að í þessu svokallaða félagi
„lýðræðissinna“ eru aðallega
Sjálfstæðismenn. Hinsvegar er
til félag „róttækra stúdenta" og
eru í því a. m. k. menn af þrem
stjórnmálaflokkum. Ef stúd-
entar háskólans vilja hafa með
sér pólitísk samtök, væri eðli-
legt, að þeir hefðu með sér jafn-
mörg félög og flokkarnir eru i
landinu, eftir sömu „línum“ og
með samskonar nöfnum. Vill
Tíminn sérstaklega beina því til
Framsóknarmanna í háskólan-
um að athuga þetta mál.
* * *
Nú í seinni tíð hefir Mbl. hvað
eftir annað fjargviðrast út af
því, að leyfður sé of mikill inn-
flutningur á tóbaki. En hvað
skeður? Nú hefir ríkisstjórnin
látið hækka verð á tóbaksvörum,
til þess að minnka neyzluna og
draga þar með úr innflutningn-
um. En þá rís Mbl. upp með íra-
fári og segir, að tóbakið sé
nauðsynj avara fyrir almenning!
Hefir það nú sanpast, sem áður
var sagt hér í blaðinu, að vand-
lætingarskrifum Mbl. um tó-
baks- og brennivíns-innflutn-
inginn myndi lítil alvara fylgja.
A KBOSSGÖTTJM
Aðalslátrun í Rvík lokið. — Garðyrkjutilraunir. — Sjúkdómar í nytjajurt-
um. — Dýrbítur færist 1 vöxt. — Refir og minnkar sleppa úr eldi.