Tíminn - 10.11.1938, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.11.1938, Blaðsíða 4
256 Tjmgnv, fimmtndagimi 10. ítóv. 1938 64. blað Boris Búlgariukonungur er 44 ára gamall og hefir verið kon- ungur síðan 1918. Hann er mjög vinsœll meðal þegna sinna og er tvimœlalaust áhrifamesti maður landsins, þó slíkt sé óalgengt með konunga nú á dögum. Valda því vinsœldir hans og stjórnmálahœfileikar. Hann er mjög vel menntur og talar og les fjögur erlend tungu- mál, ensku, frönsku, ítölsku og þýzku. Boris konungur gengur iðu- lega aleinn um götur höfuðborg- arinnar eða ferðast um landið í bifreið með fáa fylgdarmenn. Á þessum gönguferðum sínum og ferðalögum spjallar hann um daginn og veginn við marga þá, sem verða á vegi hans, og er sagt, að hann muni fleiri nöfn og þekki fleiri andlit en nokkur annar landi hans. Yfirleitt er framkoma hans mjög alþýðleg og á það mikinn þátt í vinsœld- um hans. Boris er orðlagður fyrir blóma- rœkt sína og áhuga fyrir öllu, sem viðkemur járnbrautum. Hann fékk réttindi sem lestar- stjóri fyrir 25 árum síðan, og er það því síður en svo óverðskuld- að, að landssamband búlgarskra járnbrautarstjóra hefir gert hann að heiðursfélaga sínum. Boris kvœntist ítalskri prins- essu fyrir allmörgum árum síðan. Á heimssýningunni í New York verða sýndar ýmsar nýjar uppfyndingar. Ein þeirra er fólgin í því, að lœkna ölvaða menn. Er höfuð sjúklinganna látið i sérstakt áhald, og er það andrúmsloftið og loftþrýsting- urinn þar, sem eyðir áhrifum ölvunarinnar á skömmum tima. Um 40 slík áhöld verða höfð á sýningunni, því að gert er ráð fyrir að þurfa að nota þau meira en til sýnis. Silkispjara sólin rara, sin með ber augu, hún er að fara að fara að fara að fá sér gleraugu. Káinn. ÚR BÆHTUM Skíffaferðir. Dágott skíðafæri er nú komið upp til fjalla hér suðvestanlands. í gær fóru allmargir menn upp á Hellisheiði á vegum Skíðafélagsins. Fengu þeir indælis veður og létu vel af skíðafær- inu. Um síðastliðna helgi höfðu einnig nokkrir menn farið á skíði. Nú hefir Skíðafélagið ákveðið að láta bíl fara daglega með skíðafólk upp að skála sínum, ef góðviðrið helzt. A bíllinn að fara frá Austurvelli kl. 10 árdegis. Leikfélag Reykjavíkur heldur í kvöld kl. 8 frumsýningu á leiknum Návígi, eftir W. A. Somin. Börn fá ekki aðgang að sýningunni. Leikendur eru aðeins tveir, Soffía Guð- laugsdóttir og Indriði Waage Reykjavíkurstúkan heldur fund föstudaginn 11. þ. m. kl. 9 síðdegis. Fundarefni: Sitt af hverju. Listasafn Einars Jónssonar verður lokað þar til eftir nýár. Guðrún Guðbrandsdóttir frá Ólafsvik, sem varð fyrir bílslysinu síðastl. laugardagskvöld og skýrt var frá í þriðjudagsblaðinu, lézt í gær á Landsspítalanum. Hún kom aldrei til meðvitundar eftir að hún varð fyrir slysinu. Gangleri. Samkvæmt auglýsingu í blaðinu í dag, geta þeir, sem óska að verða á- skrifendur að Ganglera, tímariti Guð- spekifélagsins, fengið eldri árganga þess ókeypis. Gestir í bænum. Jóhann Albertsson, bóndi í Klukku- felli í Reykhólasveit. Sigurður Krist- jánsson bóndi í Kollabúðum í Reyk- hólasveit, Jón Magnússon bóndi á Sig- mundarstöðum í Þverárhlíð. Einar Þor- steinsson bóndi á Bjarmalandi í Hörðu- dal. Markús Torfason bóndi í Ólafsdal. Bergur Þórmundsson frá Bæ í Borgar- firði. Eggert Ólafsson í Laxárdal í Þistilfirði. Erlendar fréttír (Framhald af 1. síðu.) Kína nýlega rætt við Chiang Kai Shek. Fundarstaðnum var haldið leyndum, en sennilegt er að Bretar vilji fá Chiang Kai Shek til að láta undan Japönum og semja frið, þar sem þeir óttast orðið mjög um hagsmuni sína í Kína, ef styrjöldin heldur á- fram. Pólskur Gyðingur skaut nýlega á þýzkan starfsmann í sendiráði Þjóðverja í París og særði hann til ólífis. Hafa þýzk blöð lýst því yfir, að þessi árás muni hafa hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir Gyðinga í Þýzkalandi og hafa Gyðingaofsóknir aukizt þar síðan þessi atburður gerðist. Ódýrastir í bænum Kringlur og skonrok, ef tekið er minnst 5 kg. í einu, 90 aura pr. kíló. — Verulega þurrt og gott brauð. Tvíbökur, smáar, velþurrkaðar, á aðeins kr. 2.00 pr. kíló. Ódýrara í stærri kaupum. Pantanir afgr. út um allt land gegn póstkröfu. SVEINAB AKARÍIÐ Sími 3727. Frakkastig 14, Reykjavík. Bcztu þakkir til allra, sem sýndu vin- semd við andlát og útför Jóruunar syst- ur minnar. Bjarni Bjarnason. Auglýsieg um hunda hr eí nsun. Hundahreinsun fer fram hjá hreinsunarmanni Guðmundi Guðmundssyni, Rauðarárstíg 13, n.k. föstu- dag, og ber öllum hundaeigendum í umdæminu að skila hundurn sínum þangað fyrir hádegi þann dag að viðlagðri ábyrgð samkvæmt lögum. Rétt er að láta hundana svelta í sólarhring, áður en þeir eru færðir til hreinsunar. Heilbrígðisneíndín. Litla bókiu mín.--Bækur yngstu barnanna. Nr. 4. Töfrasleffinn og Bangsi málar dagstofuna sína. Sleðinn þaut áfram. Nr. 6. Labbi Hvíta-skott og Leit að örkinni hans Nóa. Er gaman að vera héri? Nr. 5. Lítill Kútur og gestir hans. Herra Froskur smurði kökuna. Nr. 7. Stubbur missir skottiff. „Berðu þrjú högg í borðið.“ — Við fyrsta höggið kom diskur — hviss! V'crð hverrar bókar 50 anrar. Hljóðfæraverkstæði Pálmars Isólfssonar, Sími 4926. Óffinsg. 8. Allar viðgerðir á píanoum og orgelum. Framleiðir ný píanó. Kaupir og selur notuð hljóðfæri. 94 Andreas Poltzer: Patricia 95 LnSSiinuivíUK ,Aávígiw Sjónleikur í 3 þáttum, eftir W. A. SOMIN. Frumsýning í kvöld kl. 8. ttimtttnttGAMLA GOTT LMD Hin marg-eftirspurða Metra Goldwyn Mayer kvikmynd af hinni heims- frægu skáldsögu PEARL S. BUCK Aðalhlutverkin tvö, O- lan og Wang Lung, leika: LOUISE RAINER og PAUL MUNI. Sýnd kl. 9. Affgöngum. frá kl. 1. nýja Bíóttnttttttttttttn CHARLIF CHAN í MONTE CARLO Bráðskemmtileg og spennandi amerísk lögreglumynd frá Fox, um nýjustu afrek hins slynga lögreglumanns, Cliarlie Chan. Aðalhlutverkin leika: Warner Oland Keye Luke, Virginia Field o. fl. Aukamyndir: Talmyndafréttir frá Fox og frá Marokkó. Börn fá ekki aðgang. nnttttt! Sleðaferðír barna Eftírtaldir staðir eru leyfðir fyrir sleðaferðir barna. Austurbær: 1. Arnarhóll. 2. Torgið fyrir vestan Bjarnaborg milli Hverf- isgötu og Lindargötu. 3. Afleggjarinn af Barónsstíg sunnan við Sundhöllina. 4. Bragagata frá Laufásvegi að Sóleyjargötu. 5. Egilsgata frá Barónsstíg að Hringbraut. 6. Bjargarstígur milli Óðinsgötu og Bergstaða- strætis. Vestnrbær: 1. Biskupsstofutún, norðurhluti. 2. Vesturgata frá Seljavegi að Hringbraut. 3. Bráðræðistún, sunnan við Grandaveg. Bifreiðaumferð um þessar götur jjafnframt bönnuð. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 9. nóv. 1938. Jónatan Hallvardsson settur. „GANGLER 1“ Tímarit um guöspeki og andleg mál. Útgefandi: íslandsdeild Guðspekifélagsins. Ritstjóri Grétar Fells. Kemur út tvisvar á ári. Verð árg., 10—12 arkir, 5 kr. Nýir kaupendur að yfirstandandi árg., sem senda andvirðið (kr. 5,00) með pöntun, fá tvo síðustu árg., í kaupbæti, svo lengi sem upplagið endist. — Duglegir útsölumenn óskast sem víðast á landinu. Sölulaun 20%. Kynnist hinni merkilegu lífs- og heimspekistefnu Guðspekinnar með því að kaupa Ganglera og lesa. Skrifið til afgreiðslumanns- ins: Guðbrandar Guðjónssonar, Hverfisgötu 104 C, Rvík„ sem gef- ur allar nánari upplýsingar um ritð. GÍSLI SIGURÐSSON. EFTIRHERMVR í Gamla Bíó í kvöld kl. 7. Samtiðarmenn í spéspeglí — G I S L A. Hr. Tage Möller aðstoðar. Aðgöngumiðar fást í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar — Við megum ekki trufla yður, herra. Við kveðjum yður hérna. Þessi orð virtust koma fulltrúanum vel. Hann afsakaði sig og kvaddi í flýti og skálmaði burt. Patricia og Violet sáu, að hann flýtti sér í humátt eftir stúlk- unni prúðbúnu, sem hvarf í áttina til Regent Street. — Þessi ungi maður kann illa manna- siði, sagði Violet og svipur hennar var eins og á móðgaðri drottningu. Patricia svaraði engu, en í hjarta. sínu var hún sannfærð um, að Violet dæmdi Whinstone allt of vægt. Hann hafði fyrirgert sér í hennar augum, um aldur og æfi. Meðan ungu stúlkurnar voru að for- dæma fulltrúann hélt hann áfram á eft_ ir ókunnu stúíkunni. Hún fór ekki langt. Hún sveigði inn í Jermyn Street og stað- næmdist þar fyrir utan hús. Nú vissi Whinstone hversvegna hún hafði stigið út úr bifreiðinni undir eins á Piccadilly Circus. í þessu húsi í Jermyn Street var leynilegur næturklúbbur. Gestunum var bannað að aka upp að húsinu, til þess að vekja ekki athygli. Þessi klúbbur kallaði sig Old Mans Club. Það var orðið erfitt núna, að átta sig á þýðingunni á þessu nafni. Whin- stone beið þangað til stúlkan var komin í húsið. Þá gekk hann að hliðinu og hringdi. Hann notaði ekki hnappinn, er var til hægri við dyrnar. Hefði hann gert það, þá hefði hann orðið að biða þess lengi, að komið yrði til dyra. En til vinstri við hliðið, ekki nema svo sem fet frá jörðu, var lítill, svartur hnappur, sem fáir tóku eftir nema þeir, sem voru kunnugir. Stuttu eftir að fulltrúinn hafði þrýst á hann, opnaðist hurðin. Whinstone kom inn í þröngt, upplýst anddyri. Dyravörðurinn var nálægt feti hærri en fulltrúinn, sem þó var allhár vexti. Hann líktist mest glímukappa, sem er orðinn of stór á alla vegu. Hann stóð grafkyrr í anddyrinu og varnaði Whin- stone inngöngu. — Gott kvöld! sagði fulltrúinn kurt- eislega. Hann fékk ekki annað svar en óskilj- anlegt urr. — Mig langar til að fá að komast áfram, sagði fulltrúinn vingjarnlega. Risinn sýndi ekki nein merki þess, að hann ætlaði að hreyfa sig. Whinstone vissi ofurvel eftir hverju hann var að bíða. En hann vissi því miður ekki inn- gangsorðið. — Heyrið þér ekki, að ég vil komast Börn fá ckki aðgang. og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur, Lækjargötu 2. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag. Drekkið morgun- og eftirmið- dagskaffið í hinum vistlegu og björtu sölum Oddfellowhússins. — Kaffi með pönnukökum og mörgum öðrum kökutegundum. MánaÖarfæði. — Vikufæði. Lausar máltíðir frá kr. 1.25. Reiaeígendur. Höfum til HVEITISPÍRALMJÖL. Samband ísL samvinnuiélaga Kol! Koks! Smíðakol! Vtnnið ötullega fyrir Tímann. Uppskipun slendur yfir. Kolasalan S.f. Símar 4514 og 1845.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.