Tíminn - 10.12.1938, Page 3
76. blað
TÍMINN, laugardaginn 10. des. 1938
303
R Æ K U R
Theodór Arnbjörnsson frá
Ósi: Járningar. Útgrefandi:
Búnaffarfélag: íslands, Rvík
1938. 99 bls. Verff 3 kr. heft,
4 kr. í bandi.
Þetta er fimmta bindiö af
búfræðiritum Búnaðarfélagsins.
Gætir í riti þessu mikillar
þekkingar á því, er það fjallar
um, og mikillar elju og natni
við að raða efninu niður og
drag^a það saman.
Fyrsti kaflinn fjallar um
byggingu hófa og hestfóta.
Annar kaflinn er um hirðing
hófanna. Þriðji um járningar
og er þar nákvæm fyrirsögn um,
hvernig sjálfar skeifurnar eigi
að vera, hvernig skynsamlegast
og mannúðlegast sé að með-
höndla hestana meðan á járn-
ingunni stendur, hvernig draga
eigi skeifur undan, tálga hóf-
inn, neglá og hnykkja. í síðasta
kaflanum er rætt um aðgerðir
og meðferð ' á meiddum eða
skemmdum hófum. Um þetta
efni hefir ekkert verið ritað áð-
ur á íslenzku. Vegna rangrar
meðferðar á hófum hafa ís-
lenzkix hestar oft og tíðum enzt
ver en ella og er því hlutaðeig-
endum hin mesta nauðsyn að
kynna sér þetta efni.
Sverre S. Amundsen: Mar-
coni. Bókaverzlun Sigurff-
ar Kristjánssonar gaf út.
Reykjavík 1938. 166 bls. —
Verff: 4,75 stífheft.
Þessi bók er einkum ætluð
drengjum og segir frá hinum
fræga ítalska uppfinningar-
manni, Guglielmo Marconi,
eins og nafn hennar bendir til.
Er þar rakin hin merkilega
saga þessa merkilega manns.
Sagt frá elju hans og eirni við
hverskonar athuganir og rann-
sóknir, þegar á barnsaldri, síð-
an uppgötvunum hans og af-
rekum í þágu vísinda og nú-
tíma menningar.
Á bókinni hefir verið gerð of-
urlítil breyting frá því, sem var
frá hendi höfundarins. f stað
kafla um viðgang og notkun
loftskeyta í Noregi, er sagt frá
gangi þessara sömu mála hér
heima á íslandi.
Þórunn Magnúsdóttir:
Dætur Reykjavíkur III. —
Voriff hlær, síffari hluti.
Þetta þriðja hefti af sögu-
flokki Þórunnar Magnúsdóttur,
Dætur Reykjavíkur, gerist á ör-
fáum dögum vorið 1930, seint í
júnímánuði, meðan alþingishá-
tiðin stendur yfir. Hefst frá-
sögnin hinn fyrsta dag hátíðar-
innar, með flutningi hátíðar-
gestanna austur til Þingvalla,
en endar á dálitlu gildi í Reyk-
javík að hátíðinni lokinni. Er
HEIMILIÐ
Barnaföt.
Myndin hér að ofan sýnir
prjónuð föt. Það er peysa, skó-
hlífarbuxur og húfa, allt prjón-
að með sléttu prjóni, nema
brugðningar neðan á peysunni,
í kraganum og framan á erm-
unum. Efnið er gróft, hvítt
band, og ofurlítið svart og rautt
í randirnar. Svona föt má hafa
bæði á drengi og stúlkubörn á
aldrinum eins til tveggja ára.
Fötin, sem sýnd eru á mynd-
inni, eru prjónuð í höndum, en
þeir sem vilja, geta prjónað
þau á vél, og mætti þá sauma
randirnar í á eftir, þyki það
hentugra.
Vegna þess, að ekki er hægt
að ákveða grófleika á bandinu,
sem hin ýmsu heimili fram-
leiða, hefi ég ekki gefið upp á-
kveðinn lykkjufjölda, og um-
ferðafjölda, en þrátt fyrir það
veit ég, að margar hagleikskon-
ur muni geta búið til svona föt,
með þeirri einu leiðbeiningu
að sjá myndina.
J. S. L.
þarna brugðið upp skyndi-
myndum af nokkrum börnum
höfuðstaðarins, en að sjálf-
sögðu eru það þó fjölmennir
hópár æskulýðsins í bænum,
sem ekki eiga fulltrúa í bókinni.
Slíkt er heldur ekki nema eðli-
legt.
Frásögnin öll er miðuð við
gang hátíðarhaldanna og því
rifjað upp margt, er gerðist á
Þingvöllum þessa einstæðu og
minnisstæðu daga.
kröfu sinni framgengt. Það er
lítill ávinningur, en sigur þó.
Að sjö vikum liðnum sitja
tveír sólbrenndir, tötralegir
menn við eldinn utan við
bjálkahúsið og telja 20 peso*)
hvor. Þeir hafa ekkert séð af
hámenningu Evrópumannsins
og því er lífsspeki þeirra önn-
ur. Þeir álykta sem svo: Þessi
upphæð nægir hvorugum til að
kaupa nýja skyrtu og skó og
komast til borgarinnar. En ef
annar fær allt, dugir það hon-
um.
Að varpa hlutkesti er of
barnalegur leikur, þegar um svo
dýrmæta fjármuni er að tefla.
Azteka-einvígi á að skera úr
málinu. Aztekaeinvígi er spjóts-
oddaleikur, og tilgangurinn er
ekki að annarhvor gangi af
hinum dauðum. í bjarmanum
frá kulnandi eldinum heyja
tveir menn einvígi um aleigu
sína, örir af áhættunni. Sem
félagar ganga þeir síðan til
svefns saman á hörðu gólfinu
og þerra sár sín með — baðm-
ull. En sá sigraði og snauði
vaknaði ekki aftur.
Nokkru síðar situr sigurveg-
arinn á bekk í skemmtigarði í
ókunnri borg og hlustar á ang-
urværan hijóðfæraslátt í kvöld-
kyrrðinni. Hann líður kvalir
hins seka. Á næsta bekk sefur
einhver auðnuleysingi. Það er
bannað að sofa á bekkjunum.
Lögreglumaður rekur hann burt
með svipuhöggi. „------Skotsár
getur gróið, en svipuhögg
aldrei. Það étur sig dýpra og
*) Peso = 100 centavos.
dýpra inn í holdið, alla leið inn
til hjartans. Að síðustu nær
það heilanum og þá heyrist
angistarvein, svo jörðin skelfur.
Hefnd-------“.
„Hvísa rósin“ er ekki eins
rómantísk bók og nafnið bend-
ir til, því „Hvíta rósin“ var olíu-
kelda og um drottna olíunnar
er ekki hægt að segja margt
fallegt. Meginþráður sögunnar
er samandreginn í niðurlags-
orðunum: „Það skiptir minnstu
um mennina. Er ekki olían að-
alatriðíð?"
Það mætti hugsa sér að Tra-
ven hefði orðið ljóðskáld, ef
hann hefði ekki flakkað um
heiminn sem verkamaður og
sjómaður (farmennskunni lýs-
ir hann í „Dauðra skipinu")
eins og bækur hans bera ótví-
ræðan vott um.
Þar sem hann lýsir ferð
mexikanskra kúreka, sem
flytja nautgripahjörð til mark-
aðar í fjarlægri borg, fær frá-
sögnin þíðan, hressandi blæ.
Það ríkir friður og samræmi í
kyrrð sléttunnar, þegar nóttin
nálgast. Hjörðin legst til hvíld-
ar, óróleg í fyrstu og skimandi
eftir utanaðkomandi hættu. En
rekstursmennirnir fara kring
um hópinn og syngja. Það sefar
skepnurnar, sem skynja að
þeim er traust að nálægð
mannsins. Og maðurinn finnur
að hann er verndari þeirra.
Traven hefir skrifað sögu um
móðurást frumstæðrar konu.
Hún heitir „Brúin í skóginum“
og er tileinkuð mæðrum allra
þjóða. Leit Indíánanna í næt-
urmyrkrinu að líki drengsins,
Er mjúk sem rjómi og
hefir yudislegan rósailm
Fæst í öllum verslunum
s*'m leggja áhersln á vöni-
gæði.
Nkórnlr
komnir
Ennfremur nýtt
úrval af .
Karlm ann af ataefnum,
Bandi og kápuefnum.
Verksmiðjuútsalan
Oef jnn - lOiinii
Aðalstræti.
AY BLOSSOM
. VIRCINIA CIGARETTUR 1 1
2 0 S T K. PAIiRIM KOSTAR K R . 1.70
BLIKKSMIBJAA GRETTIR
Grettisgötu 18, Reykjavík. Sími 2406.
Smíffar eftir pöntun:
Vatnskassa, olíubrúsa, ljósker og eldhúsáhöld í skip, þakrennur,
þakglugga, rennujárn og allt, sem tilheyrir blikksmíði við húsa-
byggingar. — Sent gegn póstkröfu um land allt.
Vönduff vinna! — Fljót afgreiffsla! — Sanngjarnt verff!
Hjá Veru Simillon
Laugavegi 15.
g;etið pér nú fengið nýtízku
permanenthárliðun. — Einnig
gott fyrir iitað og lýst hár.
Gróa Sígmundsdóttir.
Sími 3371.
- Kaup og sala -
Ullarefni og silki.
margar tegundir. BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomið.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
érðbréfabankinrA
C A^sturstr. 5 sími 3652.Opið kl.11-12o9«>-b^
Annast kaup og sölu verðbréfa.
H1 j ótf f æraverkstæði
Fálmars ísólfssonar.
Sími 4926. Óffinsg. 8.
Allar viðgerðir á píanoum
og orgelum.
Framleiðir ný píanó.
Kaupir og selur notuð hljófffæri.
Daglega 50% hráolíusparnaður
eru drjúgar tekjur fyrir skozka
síldarútgerð með Kelvin-Diesel.
Uppboð.
Opinbert uppboff verffur hald-
iff í Tryggvagötu 28 (Vifftækja-
útsölunni) fimmtudaginn 15. þ.
m. kl. 2y% e. hád. og verffa þar
seld:
Ca. 10 vifftæki fyrir útvarp.
Greiðsla fari fram viff ham-
arshögg.
Lögmaðurmn
í Reykjavík.
TRÚLOFUNARHRINGARNIR,
sem æfilöng gæfa fylgir, fást
SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Sent
gegn póstkröfu hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mál.
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4, Reykjavík.
N Ý B Ó K
•1 ís r b11 bb §*■ a r
eftir Theodór Arnbj arnarson.
Verð kr. 3,00 heft og kr. 4,00 í bandi.
Fæst hjá Búnaffarfélagi íslands.
N Ý B Ó K
SIGURDUR EINARSSON:
Miklir íneiin
Hitler — Benes — Russell — Krishnamurti —
Cardenas — Daladier — Chautemps — Miaja
— Mussolini — Nansen — Thyssen — Gustav
V. - Per Albin Hansoa — Stauníng — Masaryk -
Chamberlain — MacDonald — Roosevelt Stalin
FÆST HJÁ BÓKSÖLUM.
144
Andreas Poltzer:
Patricia
141
ÚTSÖLUMENN
TÍMANS
Munið að gera skil til
iimhcimtu blaðsins í
Rvík fyrir áramótin.
Innheimtumenn út um
land ættu einnig að
senda skilagrein sem
fyrst.
sem féll í ána, er áhrifamikil
lýsing og að líkindum sönn.
Viðfangsefni hans eru mörg,
og sum snerta ekki þjóðfélags-
mál þeinlínis. En lesandinn
finnur stöðugt að réttlætistil-
finning höfundarins er nálæg
og vakandi.
Þannig skrifa allir mannvin-
ir.
Oddný Guðmundsdóttir.
var ekki svo mikill ofstækismaður, að
hann gæti ekki gert undantekningar,
Aðeins þrennt af því nýja hafði fund-
ið náð fyrir augum hans: ryksugan, nið-
ursoðinn ananas og dósahnífurinn. í
sama bili og hann hafði oþnað dósina
hringdi síminn. Philip setti upp gremju-
svip. Samt þorði hann ekki að láta eins
og hann hefði ekki heyrt hringinguna.
Daginn áður hafði hann átt leiðinlega
viðræðu við húsbóndann, og það var ein_
mitt út úr Símanum.
Þjónninn gekk fram í anddyrið með
mesta semningi, og án þess að flýta sér,
og tók upp heyrnartólið.
Fimm mínútum síðar kom hann fram
í eldhúsið í frakka og með hatt á höfð-
inu. Hann var með leðurtösku í hend-
inni. Hann renndi angurblíðum augun-
um til lostætu og ljósgulu ávaxtanna í
dósinni og slökkti á ljósinu. Það var
sterinkerti — hann notaði ávallt kerta-
ljós, þegar hann var einn heima, því að
enginn gat fengið hann ofan af því, að
maður yrði blindur af rafmagnsljósinu
með tímanum.
Hann læsti vandlega útidyrunum og
var kominn út í kuldann á götunni.
Hann bretti upp frakkakraganum og
gekk hratt í áttina til Notting Hill Gate.
Þjónninn var ekki fyr kominn í hvarf
en einhver mannvera kom fram úr
— Það er aðeins einn þjónn i húsinu
og ég skal sjá til þess, að hann verði
ekki heima þegar þér komið, hvíslaði
Meller.
—- En ef húsbóndinn kemur heim
sjálfur . .. .? sagði Branco og maldaði í
móinn.
— Það er að kalla öruggt, að hann,
— Það er al kalla öruggt, að hann
gerir það ekki. Við skulum sjá til þess,
að hann hafi um annað að hugsa!
— Og hvernig á ég að finna skjölin
á svona stuttum tíma? spurði Branco
og virtist enn vera hikandi og deigur.
Það virtist ætla að fjúka í Meller.
Honum datt sem snöggvast í hug, hvort
ekki væri réttast að reka þennan leik-
ara út. En hann vissi, að maðurinn var
séður, og svo langaði hann ekki til þess
að þurfa að fara að leita sér að nýjum
aðstoðarmönnum. Bezt að hafa eins fáa
í vitorði og unnt var! Þessvegna kæfði
hann í sér reiðina og sagði:
— Vefið þér ekki svona fjandi hug-
laus! Þér hafði tíma til þess að leita að
skjölunum. Það eru aðeins fá herbergi
í íbúðinni. Ég er viss um, að þér finnið
skjölin í fyrstu skrifborðsskúffunni, sem
þér leitið í! Þér fáið fimmtíu pund ef
þér finnið skjölin.
— Hafið þér ekkert annað handa mér