Tíminn - 10.12.1938, Qupperneq 4
304
TÓ1I\1\, langardagiim 10, des. 1938
Albert Lebrun, núver. forseti
Fralcklands, er 67 ára gamall.
Hann var kjörinn forseti 1932
og lœtur því af störfum nœsta
vor. Hann fer rétt áður í opin-
bera heimsókn til Englands.
Lebrun lagði í uppvexti sinum
stund á verkfrœði, náði góðu há-
skólaprófi og hlaut nokkrú síðar
heiðursverðlaun fyrir vísinda-
störf. Aldamótaárið var hann
kosinn á þing. 1911 varð hann
nýlendumálaráðherra og gengdi
því starfi um nokkurt skeið.
1917 varð hann hafnbannsráð-
herra og 1918—20 veitti hann
forstöðu sérstöku ráðuneyti, sem
fjallaði um málefni Elsass-Loth-
ringen. Hann var á þeim árum
mjög andvígur Versalasamning-
unum. Taldi hann samningana
of hagstœða Þjóðverjum, enda
er hann alinn upp skammt frá
þýzku landamœrunum, þar sem
óttinn er mestur við hina „ger-
mönsku hœttu“.
Á nœstu árum átti hann sæti
i öldungadeildinni og var vara-
forseti og síðar forseti hennarum
skeið. 1931 keppti hann við Bri-
and og Doumer um forsetatign-
ina og var Doumer hlutskarp-
astur. Hann var myrtur ári síðar
og náði Lebrun þá kosningu.
Lebrun er virðulegur í fram-
komu, en ekki rœðumaður meiri
en i meðallagi. Hann hefir þótt
hyggínn og stjórnsamur. For-
setastarfinu fylgja margarskyld-
ur og vegna hinna tíðu stjórnar-
skipta í Frakklandi hefir forset-
inn þar meira vald en ella. Er
almennt talið, að Lebrun hafi
farizt starfið vel úr hendi.
Lebrun hefir öflugan lifvörð,
enda hefir reynslan sýnt að það
var nauðsynlegt fyrir fyrirrenn-
ara hans. í sumarfrii sinu gefur
hann þó lifverðinum burtfarar-
leyfi. Þá dvelur hann jafnan í
fœðingarbœ sínum, sem er í
Norður-Frakklandi, og ferðast
fylgdarlaust milli kunningjanna.
Hann ferðast þá oft á reiðhjóli
og er það talið sameiginlegt með
þeim Daladier. Lebrun hefir
gaman af veiðum og er góð
skytta. Hann á son og dóttur
og fimm barnabörn. Bœði son-
urinn og dóttirin eru verkfrœð-
ingar.
* * *
Bók Halldórs Kiljan Laxness,
Höll sumarlandsins, er nýlega
komin út á dönsku. í ýmsum rit-
dómum kemur fram sú skoðun,
að hún muni að verúlegu leyti
vera sjálfsœfisaga höfundarins.
* * *
Sœnska skáldkonan Selma
Lagerlöf átti nýlega áttræðisaf-
mœli. í Svíþjóð hafa bœkur
hennar alls komið út í 1.7 millj.
eintökum. „Ferðasaga Nielsar
Holgeirssonar“ ein hefir komið
út í 600 þús. eint. og er langvín-
sœlasta barnabók, sem komið
hefir út í Sviþjóð. Hún hefir
verið þýdd á fjölmörg tungu-
mál m. a. arabisku. Fjórtán kvik-
myndir hafa verið gerðar eftir
skáldsögum Selmu.
ÚR BÆIVUM
Framsóknarfélögin
í Reykjavík halda skemmtun á Hótel
Borg á þriðjudagskvöldið. Hefst hún
kl. 8,30 stundvíslega með Framsóknar-
vist. Verðlaunum verður úthlutað, rœð-
ur fluttar og loks dansað fram eftir
kvöldinu. Aðgöngumiðar fást á af-
greiðslu Tímans eftir helgina.
Pr j ónlessýningin
i Markaðsskálanum er opin kl. 2—H
daglega. Fólk ætti ekki að geyma það
fram á síðustu stundu að koma þangað.
Bjarni Björnsson
endurtekur minningarskemmtun sína
á morgun kl. 3 í Gamla Bíó og eru ýms
ný skemmtiatriði á skemmtiskránni.
Bjarni segist ekki muni endurtaka
þessa skemmtun hér í Reyjkavík og er
þetta því síðasta tækifærið í bili, til
að hlusta á Bjarna.
Landssamband
blandaðra kóra og kvennakóra var
stofnað 7. þ. m., fyrir forgöngu söng-
félags IOGT. Voru á stofnfundinum
mættir níu fulltrúar frá fimm kórum.
Var Jón Alexandersson kosinn for-
maður sambandsins, en meðstjórn-
endur Jakob Tryggvason og Bent
Bjarnason. — Tilganpurinn er að
efla kórsöng á íslandi og auka söng-
menntun, gangast fyrir flutningi tón-
verka, styrkja íslenzk tónskáld með
útgáfu verka þeirra, halda uppi söng-
kennslu og fleira.
Rögnvaldur Sigurjónsson
efnir til hljómleika í Gamla Bíó
þriðudaginn 13. desember kl. 7. Rögn-
valdur er löngu kunnur fyrir leik sinn
í útvarpi, en Reykvíkingum er hann
sérstaklega kunnur fyrir hina mikið
sóttu hljómleika hans undanfarið í
höfuðstaðnum. Hann hefir um hríð
stundað nám í París. Hann kom heim
í sumarleyfinu, en mun nú vera á
förum aftur til Parísar.
Framsóknarmenn
halda jólatrésskemmtun í Oddfellow
húsinu á þriðja dag jóla. Fólk er beðið
að tilkynna þátttöku sína fljótlega á
innheimtuskrifstofu Tímans.
Gestir í bænum.
Ólafur Sigurðsson bóndi á Hellu-
landi í Skaeafirði, Guðlaugur Hinriks-
son bóndi á Þrándarstöðum í Brynju-
dal.
Ný bók
Margit Ravn: Stjúpsyst-
urnar. Helgri Valtýsson
þýddi. Útg. Þorst. M. Jóns-
son Akureyri. 200 bls. Verð
4 kr. ób., 5,50 í bandi.
Margit Ravn er vel þekktur
höfundur hér á landi fyrir ung-
meyjabækur sínar, sem þýddar
hafa verið á íslenzku, t. d.
Sunnefurnar þrjár, Eins og all-
ar hinar og Starfandi stúlkur,
sem allar hafa hlotið góðar við-
tökur. Þessi nýja bók er lík hin-
um fyrri og engu lakari. Hún
fjallar um líf æskufólksins,
segir fxá vonum þess, sorgum og
óskum. Að lýsa sálarlífi nútíma-
æskunnar er eitt tíðasta við-
fangsefni skáldkonunnar og
lætur henni bezt.
Sem unglingabók er saga
þessi mjög góð, létt, fjörug en
þó lærdómsrík, og sumar per-
sónar sögunnax, t. d. Þórdís, er
túlkuð þannig, að hún mun
seint gleymast þeim er lesa
bókina.
Ný matvörubúð.
Undirritaður opnar í D A G,
laugardag, nýja matvörubúð
á VÍÐIMEL 35,
síml 5370.
Aherzla lögð á hreinlæti og
vöruvöndun.
Virðingarfylst.
Pétur Krisíjáiisson,
Ásvallagötu 19. Víðimel 35.
Sími 2078. Sími 5270.
FÖNIX = smekkleg-
ar vörur. Smekkleg-
ar vörur = FÖIVIX
Sturla í Vogum
Nýjasta skálds'aga Guöm. Hagalíns.
„Fullkomlega okatæk á mælikvarða
hvaða bókmenntaþjóðar sem er.“ —
ENGIN JÓLAGJÖF KÆRKOMN ARI.
Stjúpsysturnar
er nýjasta bókin eftir frú Margit Ravn.
Engar bækur hafa heillað eins ungar
stúlkur eins og bækur þessa höfundar.
Áður út komnar Sunnevurnar þrjár,
Eins og allar hinar og Starfandi stúlkur.
Himala j af ör In
Æfintýraför drengja til Aslu.
ÁGÆT JÓLAGJÖF. —
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
45 skólapiltar úr fimmtán skólum við
þessa vegagerð, að meira eða minna
leyti. Fimm þessara manna voru stúd-
entar, er stunda nám við erlenda há-
skóla. Voru þeir hér aðeins I sumar-
leyfi sínu, en unnu þó fyllilega fyrir því,
sem þeir þurftu að greiða í ferða-
kostnað báðar leiðir og spöruðu sér
dvalarkostnað erlendis í 2—3 mánuði.
Axlabönd
Sokkabönd
Ermabönd
Leðurbelti
Teygjubelti
Axlabandasprotar
Kvensokkabönd
Barnasokkabönd
Þvottapokar
Kaffipokar
Matarsmekkir
og
Öryggisbönd
fyrir smábörn.
„SANITA“ kven-
Hygiene-Belti.
EINU SINNI FÖNIX
= ^ALLTAF FÖNIX
Útbrelðið TÍMAXX
Verksmiðjan FÖXIXj
Reykjavík.
142
Andreas Poltzer:
að gera? Ég er ekki vel fallinn til svona
starfa ....
Meller var óþolinmóður og tók fram í.
Það var kaldhæðni í röddinni er hann
spurði:
— Munið þér eftir höll nálægt Lordia?
Ég held að systir erkibiskupsins af Zara-
gossa hafi átt hana ... .7 Eða kannske
munið þér eftir höll Monte bankaeig-
anda á Paseo del Gracia í Barcelona?
Ég get nefnt fleiri höfðingjasetur, sem
þér hafið gert heimsóknir í að nætur-
þeli ....
— Verið þér ekki að rifja upp þessar
gömlu sögur, sagði Branco ólundarlega.-
— Ég skal taka þetta að mér.
— Albert, hleypið þér Branco og prest-
inum út, sagði Meller og sneri sér að
fjórða manninum í stofunni.
Presturinn var ekki sem stöðugastur á
ganglimunum þegar hann stóð upp.
— Þér fáið tilkynningu frá mér á
sama hátt og vant er, sagði Meller um
leið og hann kvaddi prestinn, og bætti
svo við: — Ég vona, að allt gangi að
óskum í næsta skipti, jafnvel þó brúð-
urin verði ekki sú sama ....
Presturinn Aanthonus
forviða upp, en undir
augnabliki var sami
værðarsvipurinn kominn
Sagathee leit
eins á næsta
afskiptaleysis-
á andlit hans
aftur. Presturinn var, eins og áður var
Patrícía
vikið að, alveg laus við að vera for-
vitinn.
Fimm mínútum eftir að presturinn
fór, fylgdi maðurinn, sem kallaður var
Albert, hinum gestinum til dyra. Branco
var ekki fyr kominn út en Albert flýtti
sér upp stigann aftur. Hann læddist
hljóðlaust inn í stofuna. Eins og hann
hafði búizt við, var enginn maður í borð-
stofunni nú. Hann læddist varlega að
dyrunum á herberginu til hliðar við stof_
una, en hún stóð í hálfa gátt, Hann
opnaði hurðina dálítið betur og gægðist
inn. Allt í einu hrökk hann við.
Meller, sem hafði falið sig bak við
gluggatjaldið i borðstofunni, var kom-
inn fram.
— Albert! Þér skuluð ekki njósna um
mig! Það gæti kostað yður hausinn á
yður ....
Rödd Mellers var ógnandi.
* * *
Philip sat í fínu og fáguðu eldhúsinu
í piparsveinsíbúð Whinstones á Pem-
bridge Square og var í þann veginn að
opna dós með niðursoðnum ávöxtum.
Hann gerði þetta með mestu varkárni og
natni og fann bragðið að sælgætinu á
tungunni á sér. Þó að Philip væri svar-
inn óvinur allrar nýtízku, þá notaði
hann eigi að síður hníf af allra nýjustu
gerð til þess að opna dósina. Því að hann
beinkk
HAFIÐ ÞER
greitt andvirði yfirstand-
andi árg. Tímans? Sé svo
ekki, þá gerið það hið
fyrsta. Gjalddagi var 1. júní
síðastliðinn.
Hvert greitt árgjald er
mikill styrkur og hver nýr
kaupandi stór vinningur.
76. blatS
TYEIR
NJÓSNARAR
Afar spennandi amerísk
njósnarakvikmynd frá
heimsstyrjöldinni miklu.
Aðalhlutv. leika:
HERBERT MARSHALL
og
GERTRUDE MICHAEL.
Aukamynd:
Skipper Skræk sem
myndhöggvari.
Börn innan 12 ára fá H
ekki aðgang.
NÝJA BÍÓ'ííttííítvrtlííns
KVENNA-
L/EKXIRIM
Hrífandi fögur og skemti-
leg amerísk kvikmynd frá
Fax, slungin áhrifaríkum
þáttum úr mannlegu sál-
arlífi.
|| Aðalhlutv. leika:
LORETTE YOUNG,"
WARNER BAXTER og
VIRGINIA BRUCE.
Aukamynd:
Talmyndafréttir frá Fox.
Jólatrésskemmtun
Framsóknarmanna
verður haldin í Oddfellowhúsinu á 3ja í
jólum. Framsóknarmenn, sem vilja taka
þátt í skemmtuninni með börnum sínum,
eru beðnir að tilkynna það á skrifstofu
Tímans sem fyrst
Framsóknarfélög-
in í Reykjavík
halda skemmtikvöld næstkomandi þriðjudagskvöld á
Hótel Borg.
Skemmtunin hefst kl. 8y2 stundvíslega með
FRAMSÓKNAR-WHIST.
Verðlaunum verður útbýtt, ræður fluttar og loks
dansað fram eftir kvöldinu.
Aðgöngumiðar fást á afgreiðslu Tímans á mánu-
dag og þriðjudag og við innganginn meðan húsrúm
leyfir.
Framsóknarmenn fjölmeimíd!
Vegna áskorana endurtckur
Bjarni ISiöriisson
minningaskemmtun hlátursins i Gamla Bíó á sunnudag kl. 3.
SKEMMTISKRÁIN ENDURBÆTT! — Aðgöngumiðar á kr. 2.00
og 2.50 hjá Eymundsen og í Hljóðværav. Sigr. Helgad. í dag.
Skenuntunln verður ekki endurtekin.
Vegna mikillar aðsóknar eru síðustu forvöð að ná í miða.
Rögnvaldur Sigurjónsson:
PíanéhljómleikHr
í Gamla Bíó
þriðjiidaginn 13. desember kl. 7.
Aðgöngumiðar hjá Sigfús Eymundsen og Hljóðfæraverzlun
Sigríðar Helgadóttur (Katrín Viðar).
AusiHrðingafélagið
heldur fund og kvöldskemmtun að Amttnanrrs-
stíg 4 (neðri hæð) í dag, laugard. 10. des. kl. 830 sd.
F élagsst jórnin.
Bifreiðarafgevmar --
Viðtækjarafgevmar.
ACCUMUL AT 0REN-FABRIK,
DR. TH. SONNENCHEÍN.