Tíminn - 31.12.1938, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúsi, Lindargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
22. árg.
Reykjavík, laagardagmn 31. des. 1938
84. blað
Um áramótin
Eftir Jóuas Jónsson
form. Framsóknarflokksíns
Á vegamótum tveggja ára líta
menn yfir nýfarinn veg og
reyna að spá um næstu fram-
tíð. Þeir, sem að þjóðmálum
starfa, líta þá jöfnum höndum
á hin sameiginlegu verkefni út
á við og þau störf, sem þarf að
vinna í landinu sjálfu.
ísland hefir tvennskonar ut-
anríkismál fyrír utan hið dag-
lega þrátt um augnabliksvið-
skipti. Hin gömlu utanríkismál
íslendinga voru um stjórnar-
farslega aðstöðu landsins gagn-
vart Danmörku. Innan 5 ára á
þjóðin að hafa bundið enda á
þau merkilegu átök. Innan
fimm ára getur þjóðin á þeim
vegum verið algerlega frjáls ef
hún vill. Það er algerlega á valdi
íslendinga sjálfra hvort þeir
hika nú með frelsiskröfur sín-
ar eftir meir en hundrað ára
baráttu og segja, að nú þyki
þeim nóg komið. Þeir vilji ekki
fullkomið sjálfstæði, eða séu
jafnvel ekki færir um að fara
með það. Menn gætu auðveld-
lega búizt við, að þessi væri
hugur íslendinga, þvi að síðan
1918 hefir næsta lítið verið ráð-
gert um það hvað þjóðin ætti
að gera um frelsismál sín á
næstu missirum eftir 1940.
Þessi þögn stendur í sambandi
við einkennilega veilu í skap-
ferli íslendinga. Þeir eiga erfitt
með að taka mikið á nema þeir
séu heitir. Og mótgerðir sann-
anlegra eða ímyndaðra and-
stæðinga hleypa kappi í kinn
íslendinga. Málstaður Dana
gegn sjálfstæðiskröfum lands-
manna frá 1830 til 1918 gerði
sambandsmálið við Danmörku
að hitamáli. Eftir 1918 tóku
Danir upp það prýðilega ráð að
skipta sér lítið af íslendingum,
halda samningana vel, viður-
kenna jafnrétti þjóðanna eins
vel og hægt er, þegar gætt er
að stærðarmun, mun á auði og
margra alda yfirþjóðaraðstöðu
Dana. Sennilega starfar ekki
nokkur maður, sem les íslenzku
viðunanlega, við neitt af stærri
blöðum Dana. Danir hafa orðið
hálfþreyttir á sífelldum kröfum
og óánægju íslendinga. Þeir
viðurkenndu löndin jafn rétthá
1918, og láta þar við sitja. Segja
að íslendingar geti farið eða
verið í meira eða minna sam-
bandi við Dani eftir 1943. Þessi
rólega aðferð hefir að miklu
leyti svæft íslendinga, af þvi
að við kunnum illa að taka á
stórmálum nema í hita. Og
. Danir eru hættir að gera sam-
band landanna að hitamáli, þó
að þeim þyki það nokkru skipta.
Þeir fylgja hinu viturlega ráði
sr. Matthíasar:
„Samvista vorra sé endir,
bróðurlegt orð.“
Á síðustu missirum hafa lýð-
ræðisflokkarnir þrír sett sam
bandsmálið á dagskrá að nýju,
og því verður haldið áfram. Al-
þingi, ríkisstjórn og utanríkis
nefnd hafa starfað þar saman,
og þokað áfram góðan spöl til
endanlegrar lausnar vandasam-
asta þætti sambandsmálsins, en
það er að finna leið til að ísland
geti sjálft farið með utanríkis-
Gleðilegt ár!
npr 0
Timmn
Jónas Jónsson.
mál sín án þess að reisa sér
burðarás um öxl. íslendingar
hafa leyst á viðunandi hátt tvö
veigamikil sambandsmál síðan
1918. Þeir hafa skapað íslenzkan
hæstarétt, sem nýtur trausts
innlendra og útlendra manna,
og þeir hafa með Ægi og hinum
vopnuðu vélbátum komið á
landhelgisgæzlu, sem verndar
ungfiskinn í landhelginni. Tak-
ist að byggja íslenzkt skipulag
á utanríkismálum, án þess að
ofbjóða gjaldþoli þjóðarinnar,
3á má segja, að þjóðin geti á
næstu árum lokið frelsistöku
sinni á eðlilegan hátt.
Það er reynsla norrænna
þjóða, að þær dafna bezt og
kemur bezt saman, ef þær eru
frjálsar og að öllu leyti jafnar
þeim efnum. Samkomulag
Svía og Norðmanna varð ást-
úðlegt á fáum árum, þegar
enginn aðstöðumunur var um
frelsi þjóðanna. Sama er reynsla
íslendinga um skiptin við
frændþjóðir sínar á Norður-
löndum. En þessi sambúð verður
þó aldrei fyllilega eins og hún
á að vera, fyrr en íslendingar
hafa endurheimt til fulls hið
forna frelsi.
% Skipti Norðurlandaþj óðanna
innbyrðis hafa jafnan verið fyr-
Frh. á 2. síðu.
Úll BÆNUM
Guðsþjónustur úm áramótin:
í dómkirkjunni: Á gamlaárskvöld kl.
6, Jón Helgason biskup prédikar, séra
Priðrik Hallgrímsson þjónar fyrir alt-
ari. Kl. 11, Sigurbjöm Á. Gíslason pré-
dikar, séra Sigurjón Þ. Ámason þjónar
fyrir altarinu. Á nýársdag kl. 11, séra
Bj. Jónsson, kl. 5, sr. Fr. Hallgrímsson.
í fríkirkjunni: Á gamlaárskvöld kl.
6, séra Árni Sigurðsson. Á nýársdag kl.
2, séra Ámi Sigurðsson.
í Laugarnesskóla: Á nýársdag kl. 10,
barnaguðsþjónusta, kl. 5, séra Garðar
Svavarsson.
í kaþólsku kirkjunni: A gamlaárs-
kvöld kl. 6,30, þakkarguðsþjónusta. Á
nýársdag kl. 10, hámessa, kl. 6 guðs-
þjónusta með - rédikun og blessun með
sakramentinu.
Á Elliheimilinu: Á nýársdag kl. 2.
í Betaníu: Á nýársdag kl. 3.
/ Hafnarfjarðarkirkju: Á gamlaárs-
kvöld kl. 11,15, séra Garðar Þorsteins-
son. Á nýársdag kl. 2, séra Garðar
Þorsteinsson.
/ fríkirkjunni í Hafnarfirði: Á
gamlaárskvöld kl. 11, séra Jón Auðuns.
Á nýársdag kl. 2, séra Jón Auðuns.
Á Kálfatjörn: Á gamlaárskvöld kl. 6,
séra Garðar Þorsteinsson.
Að Bjarnastöðum: Á nýársdag kl. 4,
séra Garðar Þorsteinsson.
Dagskrá útvarpsins.
Á gamlárskvöld: 18,00 Aftansöngur í
dómkirkjunni. Prédikun: herra Jón
Helgason biskup, kveðjuorð. Fyrir alt-
ari: Síra Friðrik Hallgrímsson. 19,15
Nýárskveðjur. 20,00 Fréttir. 20,15 Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur. 20,45 Gaman-
vísur, Bjarni Bjömsson leikari. 21,05
Danshljómsveit Bjama Böðvarssonar
leikur 'og syngur. 21,35 Annáll ársins
1938, V. Þ .G. 23,55 Sálmur. 24,00
Klukknahringing,- 00,05 Áramótakveðja.
Dagskrárlok.
Á nýársdag: 9,45 Morguntónleikar,
plötur: a) Píanókonsert, eftir Bach. b)
Symfónía í B-dúr, eftir J. Chr. Bach.
c) Konsert í C-dúr fyrir hörpu og
flautu, eftir Mozart. 10,40 Veðurfregnir.
11,00 Messa í Dómkirkjunni, síra Bjarni
Jónsson. 12,15 Hádegisútvarp. 13,00
Ávarp forsætisráðherra. 14,00 Messa í
fríkirkjunni, síra Árni Sigurðsson 15,30
Miðdegistónleikar frá Hótel Borg. 17,40
Útvarp til út. (24,52m). 19,10 Veðurfr.
í dag
er síðasti reglulegur starfsdagur Jóns
biskups Helgasonar. Mun hann i til-
efni af þvi flytja kveðjuorð í dómkirkj-
unni klukkan 6 í kvöld.
Aistaða Bandaríkjanna
Eínn mikilvægasfi víðburður ársíns
Chamberlain forsætisráðherra
sagði 19. þ. m. í neðri málstof-
unni, að hann væri að bíða eft-
ir því, að þýzka stjórnin sýndi
nú sama vilja og hann til að
vinna fyrir friðinn og bæta
sambúð ríkjanna. Þýzkka
stjórnin hefir svarað i opin-
berri tilkynningu, að hún muni
ekki gera neinar nýjar tilraun-
ir, sem gangi i þessa átt, þvi
slíkar tilraunir hennar hafi að
engu verið metnar áður.
Flest virðist nú benda til þess
að Roosevelt forseti hafi horfið
frá hlutleysisstefnunni svo-
nefndu og að bæði áhrifamiklir
andstæðingar hans og almenn-
ingur vestra yfirleitt séu honum
fylgjandi í þeim efnum.
Hlutleysisstefna Bandaríkj-
anna var um skeið mikið á-
hyggjuefni lýðræðislandanna í
Evrópu. Hún var í stuttu máli
í því fólgin, að Bandaríkin hefðu
sem minnst afskipti af málum
utan Ameríku og reyndu eftii
megni að vera hlutlaus í deilu-
málum annarra stórvelda. Það
var þessi stefna, sem bar Wilson
forseta ofurliði og varð þess
valdandi að Bandaríkin gengu
ekki í Þjóðabandalagið. Og fram
til þessa árs virðist hún hafa
verið sjónarmið meginþorrans
af Bandaríkjamönnum. Um það
vitna m. a. hlutleysislögin, sem
þingið samþykkti nokkrum ár-
um eftir að Roosevelt kom til
valda.
Það, sem ollað hefir hinni
skyndilegu breytingu á afstöðu
Bandaríkjamanna, er hinn vax-
andi yfirgangur einræðisríkj-
anna. Sérstaklega hefir Kína-
styrjöldin og undirróður Þjóð-
verja átt sinn þátt í að opna
augu þeirra. Vaxandi veldi Jap-
ana er ískyggilegur hnekkir fyr-
ir afstöðu Bandaríkj anna í
Kyrrahafinu og undirróður
Þjóðverja í ýmsum löndum Suð-
ur-Ameríku er mjög hættulegur
fyrir sjálfstæði þeirra. Til að
vinna gegn þessu hvortveggja
er hlutleysísstefnan illa fallin.
Seinustu vikurnar hafa a. m.
k. fimm atburðir gerzt, sem sýna
þetta breytta viðhorf Banda-
ríkjanna. Þeir sýna að Banda-
ríkin ætla sér ekki aðeins að
bjóða einrækisríkjunum byrg-
inn, heldur að taka að sér for-
ystu lýðræðisríkjanna í barátt-
unni gegn yfirgangi þeirra.
Þessir atburðir eru:
1. Heimkvaðning sendiherrans
í Berlín og hin hörðu ummæli
Ickes innanríkisráðherra um
Gyðingaofsóknirnar í Þýzka-
landi. Hann lét m. a. svo um
mælt, að ofsóknir miðaldanna
Roosevelt.
A.
- Togari seldur. — Ráðningarkjör á togurum. — Veðráttan
Nýtt Framsóknarfélag. — Fundur F.U.F. á Skeiðum. — Hríð
Minningarrit um Bjarna í Hólmi.
Búnaðarþingið
á Austurlandi •
á Norðurlandi. — Gunnar Gunnarsson.
Stjórn Búnaðarfélags íslands hefir
ákveðið að kveðja búnaðarþingið sam-
an 4. febr. næstk. Er það í fyrsta sinn,
sem búnaðarþing, kosið samkvæmt
hinni nýju búnaðarlöggjöf, kemur sam-
an. Eiga nú 25 menn sæti á búnaðar-
þingi. Starfstími búnaðarþingsins er
óákveðinn, en það hefir oft staðið í
mánuð eða lengur.
i r t
Togarinn Otur, sem um langa hríð
hefir verið í eign Útvegsbankans og
legið aðgerðalaus, hefir nú verið seldur
nýstofnuðu útgerðarfélagi í Hafnarfirði
á 160 þúsund krónur. Fer skipið á veið-
ar í dag. Togarinn hefir jafnframt
hlotið nýtt nafn og heitir nú Óli Garða
í höfuðið á öldruðum sjómanni og
kunnum formanni og sjósóknara á
Álftanesi. — Annar togari hefir um
þessar mundir verið auglýstur til sölu
hér í Reykjavík, er það Reykjaborgin.
t f t
Samningar sjómaima og togaraeig-
enda um ráðningakjör á togurum eru
útrimnir um áramótin og hafa nýir
samningar ekki tekizt. Til stöðvimar
á togaraflotanum mun þó ekki koma
og hafa aðilar komið sér saman um
að kjör sjómannanna á togurunum
skuli fyrst um sinn út janúarmánuð
vera hin sömu og giltu 9 mánuði ársins
1938.
t t t
Frá nágrannalöndunum berast stöð-
ugt fréttir um frost og miklar fann-
komur, en hér hefir mátt heita snjó-
laust í flestum héruðum það sem af er
vetrinum, og frost verið sáralítil, í
símtali, sem tíðindamaður blaðsins átti
við Eiða 1 gær, var honum sagt, að
ekki gæti talizt að snjó hefði enn fest
þar eystra, sauðfé og hestar gengu
langvíðast sjálfala og á sumum bæjum
væri enn ekki búið að taka lömb á
gjöf. Tvo undanfama daga hafði þó
verið með kaldasta móti. Frost hafa
verið lítil, sem m. a. má marka á
þeirri frétt, sem Tímanum hefir borizt
úr Mjóafirði, að þar hafi talsvert verið
unnið að plægingu í þessum mánuði.
t t t
Félag Framsóknarmanna var nýlega
stofnað í Borgarhreppi í Mýrasýslu.
Stofnendurnir voru 14, allir bændur.
Formaður er Grnmar Jónsson frá Öl-
valdsstöðum. Bjami Ásgeirsson alþing-
ismaður var mættur á stofnfundinum.
t t t
Ungir Framsóknarmenn á Skeiðum
boðuðu til fimdar að Brautarholti á
flmmtudaginn. Hófst fundur þessi um
klukkan sex og stóð lengi fram eftir
kvöldi. Úr Reykjavík voru á fundinum
og fluttu ræður Jón Helgason, Guðm.
V. Hjálmarsson og Magnús Gíslason.
Úr hópi heimamanna fluttu ræður Ei-
ríkur Jónsson bóndi í Vorsabæ, Jón
Bjamasón á HLemmiskeiði og Ólafur
Gestsson bóndi á Efri-Brúnavöllum.
Að umræðum loknum flutti Jón
Bjamason erindi tun félagsmálaþróun.
Að því búnu var um hríð spiluð Fram-
sóknarvist og verðlaunum úthlutað að
venju. Var spilað á sex borðum. Sam-
komunni lauk um miðnætti.
r t r
Stórhríð var um Norðurland í gær,
einkum norðaustan lands. Sömuleiðis
var hríðarveður á Ströndum með all-
mikUli fannkomu. Hefir norðanátt
haldizt við norðurströndina í nokkra
daga, en áður hafði verið þar tiltölu-
leg hlýviðri eftir harðindakaflann um
mánaðamótin.
r r r
Eins og kunnugt er, flytur Gunnar
Gunnarsson skáld heim á komandi
vorl og hefir keypt stórbýlið Skriðu-
klaustur. Er nú byrjað að grafa þar
fyrir stóru húsi, sem Gunnar hefir í
hyggju að láta reisa þar að vori. Einn-
ig ætlar hann að koma upp rafstöð og
fleiri umbætur hefir hann í hyggju
að framkvæma á jörð sinni.
r t r
Nokkrir vinir Bjarna í Hólmi hafa
bundizt samtökum um útgáfu á minn-
ingarriti um hann. Er svo ráð fyrir
gert, að í því verði úrval af frásögnum
ýmissa manna víðsvegar af landinu,
sem kynni hafa haft af Bjarna, og
þannig með varanlegum hætti forðað
frá gleymsku sögnum um afrek hans,
við störf, ferðalög o. s. frv. Slíkt rit
mun áreiðanlega eiga vinsældum að
fagna.
hyrfu í skuggann, ef þær væru
bornar saman við Gyðingaof-
sóknirnar í Þýzkalandi nú. Þýzka
stjórnin hefir krafizt þess að
Bandaríkjastjórn bæðist afsök-
unar á þessum ummælum, en
hefir jafnan fengið það svar,
að þau væru í samræmi við
skoðun stjórnarinnar og Amer-
íkumanna yfirleitt. Það er líka
vitanlegt, að sendiherrann var
kvaddur heim frá Berlín í mót-
mælaskyni gegn Gyðingaof-
sóknunum og að hann verður
ekki sendur þangað aftur, fyrr
en Bandaríkjastjórn telur að
Þjóðverjar hafi að einhverju
leyti bætt fyrir afbrot sín. Sú
andúð, sem þýzku stjórninni er
sýnd með þessu, hefði nægt til
þess að hún hefði rofið stjórn-
málasambandið, ef smáríki
hefðu átt í hlut. En í sambúð-
inni við Bandaríkin telja Þjóð-
verjar sér heppilegra að fara
gætilega.
2. Bandaríkjastjórn hefir ný
lega veitt kínversku stjórninni
allstórt lán, sem hún notar aðal-
lega til hernaðarþarfa. Hefir
þetta hlotið þunga dóma í jap-
önskum blöðum og þau sagt, að
afleiðingin gæti ekki orðið önn-
ur en verri sambúð Japana og
Bandaríkj amanna.
3. Bandaríkjastjórn hefir ný
lega ákveðið að senda spönsku
stjórninni mánaðarlega mikið af
hveiti, til að bæta úr matar-
skorti, sem er orðinn mjög til-
finnanlegur 1 þeim landshlutum,
er hún ræður yfir. Jafnframt
hefir Bandaríkjastjórn skorað á
aðrar ríkisstjórnir að gera slíkt
hið sama. í ítölskum og þýzkum
blöðum hefir verið deilt harðlega
á Bandaríkin fyrir þessa ráð
stöfun.
4. Verzlunarsamningur milli
Englands og Bandaríkjanna, er
undirritaður var fyrir skömmu
síðan, byggist á miklu meiri til
slökun af hálfu Bandaríkjanna
en hugsanleg þótti fyrir fáum
mánuðum. Þykir það bera þess
vott, að Bandaríkjastjórn telji
það miklu skipta, að sambúðin
geti verið sem bezt milli hinna
enskumælandi stórvelda og að
samvinna þeirra sé öruggasta
vörnin gegn yfirgangi einræðis-
ríkjanna. Engum erlendum
stjórnmálamanni hefir heldur
verið eins vel tekið í Bandarikj-
unum og Anthony Eden, þegar
hann var þar á ferð fyrir
skemmstu.
5. Fyrir frumkvæði Banda-
ríkjastjórnar, koma fulltrúar
lýðveldanna í Ameríku saman
til fundar öðru hvoru. Slíkur
fundur hefir nýlega verið hald
inn í Lima. Mættir voru fulltrú-
ar frá 21 lýðveldi. Þar var sam-
þykkt að þola ekki neina er-
lenda íhlutun í þessum löndum
og yrði nokkurt þeirra fyrir
slíkri árás, skyldu hin rikin ræða
málið og koma til aðstoðar, ef
þurfa þætti. Er þessari sam-
þykkt vitanlega fyrst og fremst
beint gegn áróðri Þjóðverja
Jafnframt var samþykkt að það
væri sameiginlegt áhugamál
þessara ríkja að vernda skoð-
ana- og trúarbragðafrelsi allra
sem byggja lönd Vesturálfunn-
ar.
Það sýnir þó gleggst, að
Á víðavangi
Vísir var nýlega að hnjóta í
verðlagsnefndina og þó sérstak-
lega í formann hennar. Telur
blaðið að nefndinni hafi verið
mislagðar hendur er hún ákvað
hámarksálagningu á þurrkuð-
um ávöxtum, þar eð þessi vara
fáist nú hvergi og sé ekki útlit
fyrir að hún fáist á næstunni.
Til upplýsingar fyrir Vísi skal
þessu sambandi á það bent, að
nóvember og desember var
leyfður innflutningur á ávöxt-
um fyrir ca. 25 þús. kr. og gekk
nokkuð af leyfunum til kaupa
þurrkuðum ávöxtum. Þannig
mun eitthvað af þurrkuðum
ávöxtum hafa komið I allar
matvöruverzlanir í bænum fyrir
ólin. Ávextir þessir munu yfir-
leitt hafa verið seldir í smásölu
sem hér greinir:
Sveskjur á 1,50 pr. kg.
Rúsínur á 1,75 pr. kg.
og er innifalin í þessu verði há-
marks verzlunarálagning sú, er
verðlagsnefnd ákvað, en það var
10% í heildsölu og 40% í smá-
sölu eða til samans á kostnaðar-
verð varanna að meðtöldum
flutningskostnaði, tolli o. s. frv.
54%.
* * *
Áður en nefnd verðlagsákvæðí
voru sett, fengust hér á nokkr-
um stöðum í bænum sveskjur og
rúsínur, sem kostuðu 4 kr. pr.
kg., og var þó um sömu eða lík
vörugæði að ræða eins og á á-
vöxtum þeim, sem fluttir voru
inn i yfirstandandi mánuði og
að ofan greinir. Innflytjendur
lessara dýru ávaxta munu ekki
hafa þurft að gjalda fyrir þá í
innkaupi hærra verð en þá, sem
fluttir voru inn í yfirstandandi
mánuði, og sést því, að álagn-
ingin á nefndum vörum hefir,
áður en verðlagsákvæðin voru
sett, numið um 300% ofan á
kostnaðarverð, að meðtöldu
flutningsgjaldi, tollum o. fl.
* * *
Almenningur í landinu mun
líta svo á, að verzlunarálagning
sú, sem verðlagsnefnd leyfði á
ávöxtum nú fyrir hátíðirnar
hafi verið fullkomlega nóg fyrir
verzlanirnar. Fjöldinn af verzl-
unarmönnunum sjálfum viður-
kennir þetta einnig. En til eru
þó óánægðir verzlunarmenn, og
það eru þeir, sem ætluðu sér að
taka 300% ágóða af þessum
jólaglaðningi almennings. Einn
af þessum óánægðu kaupsýslu-
mönnum hefir látið til sín heyra
i Vísi og sagt að afskipti verð-
lagsnefndar af okrinu verði ekki
þoluð. Hitt mun sanni nær, að
óvíst er hvað lengi neytendur
þola mönnum af hans tagi að
misnota innflutningsleyfin til
hagnaðar fyrir sjálfa sig.
* * *
Vísir áfellir atvinnumálaráð-
herra fyrir að hafa sett í fiski-
mat á ísafirði ungan mann úr
einu kröftugasta íhaldsheimili
við Djúpið, og telur manninn
vanta kunnáttu. En Vísir studdi
þá framkvæmd að bægja Er-
lingi Pálssyni frá Sundhöllinni,
en velja í þess stað mann, sem
ekki kunni að synda, og tapaði
auk þess talsverðu af annara fé
á verzlun. Til þess að um minni
starfsþekkingu sé að ræða hjá
hinum nýja fiskimatsmanni,
heldur en hjá hinum sérfróða
sundhallarstjóra Vísis, mætti
hann ekki þekkja sporð frá
höfði. Reynslan sker úr hvort
fiskimatsmaðurinn er miður
fær en sundhallarstjórinn.
Bandaríkin ætla sér meira en að
tala með um þessi mál, að þau
hafa ákveðið að auka vígbúnað
sinn stórkostlega og verða eitt-
hvert öflugasta herveldi heims-
ins. Verður að telja það ein-
hvern merkilegasta og mikil-
vægasta viðburð þessa árs, að
Bandaríkin hafa skipað sér á-
kveðnar í fylkinguna gegn yfir-
gangi einræðisríkjanna og að
hin stórveldin, sem fylgja lýð-
ræðinu, geta nú vænzt þar
meira trausts og fylgis en áður.