Tíminn - 05.01.1939, Side 1

Tíminn - 05.01.1939, Side 1
23. árg. Reykjavík, flmmtudaglim 5. janúar 1939 2. blað Utsvörin í Reykjavík hækka um 400 þús. kr. á þessu ári Fasteígnagjöldin hækka um 250 þús. kr. Ferðalag Daladíers Rökstuðníngur Itala fyrir landakröfunum Fjárhagsáætlun fyrir Reykjavíkurbæ á þessu ári hefir enn ekki verið sam- þykkt. Mun það fátítt að jafnstór bæjarfélög skuli ekki hafa lokið fjárhags- áætlunum sínum áður en árið byrjar, enda er það með öllu óforsvaranlegt. Til þessarar breytni forráða- manna bæjarins liggja þær á- stæður, að þeir vilja fara með tvennt í felur fyrir bæjarbúum eins lengi og unnt er. Annað er fjárhagsáætlunin, sem undan- farin ár hefir stöðugt farið hækkandi, og hitt er útsvars- skráin, sem sýnt hefir bæjar- mönnum áþreifanlega, hvernig komið er með fjárhag bæjar- ins. Frumvarp bæjarstjórnar- meirahlutans til fjárhagsáætl- unar fyrir bæinn á þessu ári mun verða lögð fram til 1. umr. á bæjarstjórnarfundi í dag. — Hefir Tíminn átt þess kost að sjá það. Gerir það ráð fyrir, að útgjöld bæjarins á árinu verði 6.956.910 kr. og er það rúmum 626 þús. kr. meira en áætlað var í fjárhagsáætluninni fyrir síðastliðið ár. Til að vega á móti þessari út- gjaldaaukningu, er lagt til að fasteignagjöldin hækki um 247 þús. kr. eða úr 623 þús. kr. í 870 þús. kr. og útsvörin hækki um 402 þús. kr. eða úr 4.318 þús. kr. í 4.720 þús. kr. Aukning útgjaldanna liggur aðallega í auknum kostnaði við þurfamannaframfærsluna, því þrátt fyrir aukinn styrk til elli- og örorkubóta er ráðgert að hún muni vaxa nokkuð. Það mun vekja nokkra furðu meðal skattgreiðenda bæjarins, ekki sízt meðal margra þeirra, sem enn telja sig fylgjandi b æ j a r stjórnarmeirahlutanum, að gert skuli ráð fyrir auknum kostnaði við fátækraframfærsl- una. Liggur til þess sú ástæða, að aðalblað Sjálfstæðisflokks- ins, Morgunblaðið, benti á það, þegar útsvarsskráin var birt á seinasta vori, að hægt væri að koma stórfelldum sparnaði á þessí útgjöld, og ætti forráða- mönnum bæjarins vitanlega að standa nær að fara þær leiðir en að leggja auknar álögur á bæjarbúa til að geta haldið eyðslunni áfram. f Morgunblaðinu 24. maí síð- astliðinn birtist löng grein und- ir svohljóðandi fimmdálkaðri fyrirsögn: „45% af útg-jöldum Reykjavíkur til fátækra beint og óbeint. — Gagngerð endur- skoðun fátækramálanna óum- flýjanleg". í greininni féllu síð- an orð á þessa leið: „Fátækramálum Reykjavík- urbæjar er þannig komið nú, að fjárhagslegur voði bíðux bæjarfélagsins, ef ekkert verður aðgert til umbóta á því sviði. Margt kemur til athugunar í þessu sambandi. T. d. sýnist það vera tímabært fyrir bæjar- félagið að setja einn fram- kvæmdastjóra yfir þessi mál. Duglegur og hagsýnn maður í þeirri stöðu MYNDI ÁREIÐAN- LEGA GETA SPARAÐ BÆNUM MIKIÐ FÉ. Hann myndi koma auga á ýms úrræði til sparnað- ar án þess að styrkþegarnir myndu neitt við það líða. Sam- eiginlegt mötuneyti og innkaup matvæla í stórum stíl, MYNDI ÁREIÐANLEGA SPARA MIK- IÐ. Bæxinn á jarðir hér I ná- grenninu. Athugandi væri, hvort ekki mætti nota þær til þess að létta á fátækrabyrðinni, láta styrkþega vinna þar að ræktun og ýmiskonar starf- rækslu .... Margt fleira getur komið til gxeina, en stefnan á yfirleitt að vera sú, að draga úr beinu peningaframlagi til styrkþega og láta í þess stað mat og klæði, og umfram allt, að krefjast vinnu af þeim, sem heilbrigðir eru. Oft hefir verið á það minnst, að bæjarbúar fylgdust of lítið með þessum málum, þeix hefðu t. d. ekki hugmynd um hverjir og hve margir væru á framfæri bæjarins. Hefir því komið fram krafa um það, að birt yrði ár- lega skrá yfix styrkþega bæjar- ins og sýnist ekkert vera því til fyrirstöðu. Gæti e. t. v. nokk- urt aðhald verið í þvi. En hvað, sem þessu líður, má ekki lengur láta fátækramál bæjarins reka á reiðanum. Verður nú þegax að taka þau öll til gagngerðrar endurskoðunar". Þessi var tónninn í Mbl. dag- ana, sem bæjarbúar voru að kynna sér efni útsvarsskrár- innar í vor. Allar umbótatil- lögur Framsóknarflokksins í fátækramálunum voru viður- kenndar. Það var hvað eftir annað játað, að fyrirkomulag fátækramálanna væru í þvílíku ófremdarástandi, að hægt væri með skynsamlegum Xáðstöfun- um að koma á stórfelldum sparnaði. En ekkert af þessu hefir enn verið gert. Síðan þetta var skrifað eru liðnir 7 mánuðir og bæjarstjórnarmeirihlutinn hef- ix haldið áfram „að láta reka á reiðanum“. Og í fjárhagsáætl- uninni fyrir þetta ár virðist hann einnig gera ráð fyrir að haldið verði áfram „að láta reka á reiðanum", því álögur á skattgreiðendum eru hækkaðar til þess að hægt sé að standa undir vaxandi sveitarþyngslum. Hvað lengi geta skattgreið- (Framh. á 4. síðu) Samkvœmt samtali, sem tíðindamað- ur Tímans átti norður á Akureyri í gær var þar nú komið fremur hægt veður, en þó helzt enn éljagangur. Allar bifreiðasamgöngur um Eyja- fjörð eru teptar, og ekki einu sinni fært bifreiðum um götur Akureyrar- bæjar. Ekki er enn hafinn þar snjó- mokstur og þess beðið, að fannkom- unni linni. Mjólkurflutningar til bæj- arlns fara nú að mestu fram á sleð- um, og að nokkru leyti á bátum, aust- an yfir fjörðinn. Víða hafa bændur engum mjólkurflutning getað komið við. Til að mynda hefir ekki komið mjólk úr Svarfaðardal, Hörgárdal né Öxnadal þessa dagana og svipuðu máli gegnir um fleiri byggðarlög. Póstflutn- ingar hafa einnig truflazt stórlega norðan lands. Hafa landpóstar orðið veðurtepptir dögum saman og póstbát- urinn ekki getað lagt úr höfn. t t t Holtavörðuheiði hefir undanfama daga verið torfær bifreiðum vegna fanna og norður í Húnavatnssýslu er mikill snjór. Á þriðjudaginn fór snjó- bifreið með póst yfir heiðina, en viku áður fóru áætlunarbifreiðar norður yfir, en hafa verið snjótepptar í Húna- vatnssýslu fram að þessu. Er fönnin þar barin saman í mikla skafla eftir látlaust hriðarveður og stórviðri í Sala landbúnaðar- aiurða síðastlíðíð ár Tíminn hefir snúið sér til Jóns Ámasonar framkvæmdastjóra og fengið hjá honum eftirfar- andi upplýsingar um sölu land- búnaðarafurða á síðastl. ári: — Ull er öll seld, mestur hlut- inn til Þýzkalands. Verðið var um 45% lægra en árið áður eða kr. 2.50—2.70 fyrir kg. af fyrsta flokks ull, eftix gæðum, kominni á skipsfjöl. Gærur eru allar seldar, nema sá hluti, sem unninn ex i land- inu sjálfu (afulluð og sútuð). Mikið af gærum var selt í Þýzkalandi, en þó nokkuð ann- arsstaðar, einkum til Englands og Norðurlanda. Verð mun yfir- leitt hafa verið um kr. 1.55 fyr- ir kg„ komið á skipsfjöl, og er það um 12% lægra vexð en ár- ið áður. Saltkjöt er allt selt. Verðið var lítið eitt hærra en árið áð- ur eða um kr. 110.00 fyrir tunnu á skipsfjöl. Til Noregs er selt allt, sem heimilt ex að selja þangað með tollívilnun, og nokkuð til Danmerkur og Sví- þjóðar. Var heldur greiðari sala á saltkjöti, bæði í Noregi og Svíþjóð, en verið hefir undan- farin ár. Alls munu vera flrutt- ar út'um 7000 tn. af saltkjöiti. Freðkjöt hefir verið selt til Englands eins og undanfarið. Er búið að flytja þangað um 1250 smál. Sala hefir verið frekar treg og verðið um 10 aurum lægra fyrir kg. en á sama tíma árið áður. Freðkjöt, sem enn er óselt og er ætlað til út- flutnings, er um 1000 smál. — Sala byrjar til Norðurlanda eft- ir áramótin og einn farmur verðux fluttur til Englands í fe- brúar eða marz. Má telja góðar horfur á, að hægt verði að selja allt kjötið, en hætt við að verð- ið hækki ekki frá því, sem nú er. Af innýflum (lifur, hjörtu o. fl.) hafa verið fluttai um 35 smál. til Englands og selzt þar fyrir fyllilega eins hátt verð og árið sem leið. Verð á görnum var um 20—25% lægra en árið áður. marga daga. Á þriðjudagirm var byrj- að að moka snjónum af veginum og þá um morguninn lögðu bifreiðarnar af stað frá Blönduósi. Var ætlunin að brjótast suður yfir Holtavörðuheiði og til Borgarness í gær og í nótt. t t t Síðastliðið sumar tóku dönsku land- mælingamennirnir kvikmynd hér á landi, með tilstyrk ríkisstjórnarinnar. Upphaflega var til þess ætlazt, að kvikmyndin yrði tilbúin 1. desember síðastliðinn og að hún yrði þá sýnd í fyrsta skipti. Úr þ*d gat ekki orðið og er nú í ráði, að frumsýningin fari fram á Íslandshátíð, sem danska blaðið Berlingske Tidende efnir til i þessum mánuði. Myndrænmn er um 1400 metrar að lengd og er nokkur hluti myndarinnar tekinn úr lofti. Stendur sýning myndarinnar yfir í hálfa klukkustund. Hún hefst á íslenzkri tón- list og eru lögin valin af dönsku tón- skáldi, en leikin inn í myndina af danskri hljómsveit. Gert er ráð fyrir að myndin verði sýnd á heimssýning- unni í New York. t t t Að Sólbrekku í Vestmannaeyjum var í haust veturgömul kind er vóg 84 kg. lifandi. Hún var stór vexti og 135 centimetrar ummáls aftan við bógana. Kind þessi var tvisipar rúin á siðast- Á nýársdag lagði Daladier af stað í hina fyrirhuguðu ferð sína til Korsika og Tunis. Áður hafði þingið lagt fullnaðarsamþykki sitt á fjárlögin, er jafnvel var búizt vð að yrðu stjóminni að falli. Hefir Daladier gengið betur að fá þau og viðreisnarlögin samþykkt en á hoxfðist í fyrstu. í för með Daladier eru ýmsir helztu embættismenn hersins. Daladier kom til Korsika á mánudaginn og hlaut þar glæsi- iegri viðtökur en nokkru sinni hafa þekkzt á þeim stöðum. Til Tunis kom hann á þriðjudaginn. Móttökurnar þar voru á sömu leið. Tóku Arabar engu minni þátt í hyllingarlátunum en Frakkar, sem þar eru búsettir. Hefir komið fram miklu meiri samúð með Frakklandi á báðuní stöðum, en búizt var við fyrir- fram og er ferðalag Daladiers talinn mikill sigur fyrir Frakka, jafnframt því, sem það er per- sónulegur sigur fyrir hann sjálf- an og mun styrkja hann í sessi. Daladier hefir haldið ræðu á báðum stöðunum og lýst því yf- ir, að Frakkland muni ekkert land láta af hendi, án vopna- viðskipta. í Tunis mun hann nota dvöl sína til að kynna sér landvarnir Frakka þar, ásamt hinum herfróðu förunautum sínum. í ítölskum blöðum sést greini- lega, að hinar glæsilegu móttök- ur, sem Daladier hefir hlotið, hafa orðið ítölum mikil von- brigði. Reyna þau að gera sem minnst úr ferðalaginu og segja að það sé farið til að egna ítali. Fréttaritari Göteborgs Han- dels- och Sjöfartstidning í Róm hefir nýlega gert nokkra grein fyrr þeim rökstuðningi, sem ít- alir færa fyrir landakröfum sín. um. Lega Tunis er þannig, að þeir, sem þar ráða ríkjum, hljóta jafnan að ráða miklu við Mið- jarðarhafið. Um það vitnar saga Karthago bezt. Fyrir 15 árum lét Mussolini þau orð falla, að þegax „Karthago féll, varð Miðjarðar- hafið rómverskt innhaf". Þessi skoðun virðst eiga djúpar rætur i Ítalíu. Að undanskildum Nilar- dalnum, er Tunis langfrjósam- asti landshlutinn á norðurströnd Afríku og þaðan eru lengstar og greiðastar leiðir inn í landið. Á 19. öld byrjuðu ítalir að liðnu ári, og í febrúarmánuði í fyrra- vetur og í júlímánuði í sumar. Saman- lögð þyngd beggja reifanna var 4% kg. r t r í fyrrinótt var vörubifreiðinni R 171 ekið út af vegínum á milli Seláss og Árbæjar. Voru í henni tveir menn, Jón Gunnsteinsson frá Nesi og Magnús Júlíusson, til heimilis á Vesturgötu 20. Hlaut Jón mikil meiðsU og fannst síðar um nóttina liggjandi í blóði sinu innan um brak úr bílnum. Var hann þá meðvitundarlaus. Magnús flúði í örvinglun frá slysstaðnum og fannst ekki fyrr en um miðjan dag i gær. Við yfirheyrslur hjá lögreglunni hefir frá- sögn Magnúsar verið mjög ósamhljóða. Auðsætt er þó, að mennirnir hafa verið drukknir, sérstaklega þó Jón. Þriðji maðurinn, er slóst í hópinn með þeim félögum þetta kvöld, varð eftir í Bald- urshaga. Jón kom fyrst til meðvitundar í nótt. t r t Árdegis á gamlaársdag féll snjóflóð úr Hafnarfjalli við Siglufjörð, skammt sunnan við Höfn. Sópaði það burtu öll- um túngirðingum, er fyrir urðu, hey- stakk og eyðilagði ljósaþræði. Einnig tók það með sér svonefndan Goosbæ, svo að ekki stóð eftir nema veggirnir, eera eru úr toríl. Enginn bjó I bænum. Daladíer flytja til Tunis. Þeim féll land- námið vel, enda eru skilyrði að ýmsu leyti svipuð og í Suður- Ítalíu. 1869 neyddu þeir soldán- inn þar til að gefa þeim leyfi til að halda ítölskum borgararétt- indum, þó þeir settust þar að. Þessum réttindum halda ítalir enn, og samkv. fransk-ítalska samningnum frá 1935, gilda þau til 1965. Börn, sem ítalir í Tunis eignast eftir þann tima, skulu verða franskir borgarar. En vegna þessa fyrirkomulags, hefir meginhluti þeirra ítala, sem búa í Tunis, neyðst til að ganga í ít- alska fasistaflokkinn, sem hefir þar öflug samtök. Öll blöð og félög ítala í Tunis eru undir yfir- stjórn fasista á ítaliu. Árið 1881 sendu Frakkar her til Tunis og settu landið undir frönsk yfirráð. ítalir höfðu ætlað sér að verða fyrri til, en orðið að hætta við, vegna ýmsra örðug- leika. Voru þeir Frökkum mjög gramir fyrir þetta og er þeim það ekki enn úr minni liðið. Lengi vel voru fleiri ítalir en Frakkar í Tunis. Manntalsskýrsl- ur nú telja, að þar séu 108 þús. Frakkar og 94 þús. ítalir, en ítalir telja þær skýrslur falsað- ar. í Tunis eru nú um 2.5 millj. Ibúa. Korsíku keyptu Frakkar 1769 og hefir hún verið undir yfir- ráðum þeirra síðan. Þaðan eru 15 km. til Saidíniu og frá 150— 200 km. til næztu borga i ít- alíu. Eiga Frakkar þaðan skemmstu leið til loftárása á Ítalíu og segja ítalir þvi, að eyjan „sé eins og byssa, sem beint sé gegn Ítalíu". Menning- arlega standa Korsíkubúar nær ítölum en Frökkkum. Savoy og Nizza komu í eign Frakka 1860. Áður tilheyrðu þessi héruð ítölum. Með Savoy fengu Frakkar yfirráð yfir greiðfærustu fjallvegum til ít- alíu og hafa þess vegna miklu sterkari hernaðarlega aðstöðu en ítalir, ef þessar þjóðir vildu sækja hvor aðra heim, því varnir eru miklu öxðugri Ítalíu- megin við landamærin. ítalska konungsættin rekur uppruna sinn til Savoy og telja ítalir sig því þurfa að endurheimta hana af þjóðernislegum ástæð- um. Á Vínarfundinum 1815 var ákveðið, að hluti af Savoy skyldi vera hlutlaust og óvíg- gixt land, vegna þeirrar hernað- arlegu þýðingar, sem það gæti haft. Þessu lofuðu Frakkar að halda óbreyttu, þegar um það samdist milli þeirra og ítala, að Frakkland fengi Savoy. Þetta hafa Frakkar ekki efnt. Þegar ítalir fóru í heimsstyrjöldina 1915, kröfðust þeir að fá Sa- voy og Nizza að launum. Djibouti krefjast ítalir vegna yfirráða sinna í Abessiníu. Þaðan liggur eina járnbrautin til frjósömustu hluta Abessiníu og er Djibouti því aðalhafnar- bæx fyrir Abessiníu. Á friðar- fundinum í Versölum 1919 kröfðust ítalir þess að fá Dji- bouti. Engar af landakröfum sínum (Framh. á 4. síðu) A víðavangi í ræðu Péturs Magnússonar 1. des., sem Mbl. og ísafold hafa ekki kært sig um að birta, voru m. a. eftirfarandi ummæli: „í stað þess að reyna að sameina kraftana um lausn hinna vandasömustu viðfangsefna, gengur þj óðmálastarfsemin yf- irleitt út á það, að sundra þeim, vekja tortryggni og hatur. And- stæðingurinn er stimplaður sem óvinur þjóðfé)agsins“. Þessi orð „óvinur þjóðfélagsins“ notuðu Mbl. og ísafold í haust um Ey- stein Jónsson ráðherra og sögðu, að hann gleddist yfir því að sjá fátæktina í landinu vaxa. Vilj- andi eða óviljandi hefir því P. M. þarna rétt flokksblöðum sínum „sneið“, sem þau hafa tekið til sln með því að birta ekki ræðuna. * * * Sigurður Kristjánsson „mosa- skeggur“, er samur við sig í garð bændastéttarinnar. í gær ritar hann um mj ólkursamsöluna einhverja þá ógeðslegustu og rætnustu grein, sem sézt hefir hér á landi í seinni tíð. Segir hann þar að mjólk bændanna austanfjalls hafi „valdið van- heilsu og barnadauða á fjölda heimila hér i bæ“ og „þeir sem fyrir þessu standa eru því full- komnir glæpamenn, ef þeir vita, hvað þeir eru að gera“ o. s. frv. Eigi hefix ritsnápur þessi hug til að tilgreina þá menn með nöfnum, er hann hér með gefur „glæpamanns“-heitið. — En hversu lengi á óviti þessi að vera framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins og skrifa trún- aðarbréf í hans nafni? * * * Árni frá Múla virðist vexa eitthvað heyrnarsljór á nýja ár- inu. í Mbl. í dag segir hann, að forsætisráðherra hafi haldið því fram í nýársræðunni, að C bæti- efni hefði enga þýðingu fyxir heilsufar manna. Þetta sagði ráðherrann vitanlega ekki, en hinu hélt hann fram, að hér á landi ætti fólk að fá C-bæti- efnið úr kartöflum og öðru garðmeti, en ekki útlendum á- vöxtum, sem aðeins 5% þjóðar- innar hafa ráð á að kaupa. Um nauðsyn bætiefnaríkrar fæðu hefir hvergi verið meir né fyr ritað en einmitt í blöðum Fram- sóknaimanna, sbr. t. d. hinar ágætu greinar Helga Ingvars- sonar yfirlæknis á Vífilsstöðum. En ágreiningur er um leiðirnar til að afla þeirra, milli appel- sinulæknanna annarsvegar og beirxa, sem vilja láta framleiða bennan heilsugjafa innanlands hinsvegar. Vel má á það minna 1 þessu sambandi, að Norðmenn hafa undanfarið lagt mikla áherzlu á nýja aðferð til að geyma kál, svo að það tapi ekki bætiefnum sínum. Þar er við- fangsefnum fyrir oss íslendinga í stað þess að hlusta á hjal app- elsínulæknanna og manna eins og Sig. Kristj. og Árna frá Múla. jJ; Hið góða skip, Ægir, brá sér nýlega til Sauðárkróks og tók sýslumanninn þar, Sigurð frá Vigur, mjög vanheilan, úr um- sjá hins ágæta læknis Jónasar Kristjánssonar og flutti hann til Reykjavíkur. Eftir prentuðum heimildum í Mbl. og opinberum málsskjölum, hefir téður sýslu- maður áður sýnt virðingarverð- an, en breytilegan áhuga fyrir heilsufari Skagfirðinga. Sjálfur hefir hann verið átta sinnum hjá huldulækni, einskonar fram- hjátekt við Jónas Kristjánsson. Auk þess hefir hann skriflega beðið Pétur Jónsson á Akureyri að koma til Sauðárkróks. Þar næst róið undir að skorað væri á Úlfar Sveinsson frá Kleppi að koma til Sauðárkróks. Að lokum náði hann saman ýmsum nefndum og skoruðu þær á heil- brigðisstjórnina að senda ein- hvern brúklegan lækni. Vafa- laust hefði sýslumaðux ekki á móti einhverjum huldulækni, ef hann væri viðlátinn! (Framh. á 4. slöu) A. KBOSSGÖTITM Fannkyngi í Eyjafirði. — Samgöngur um Holtavörðuheiði. — Dönsk íslands- kvikmynd. — Óvenjuleg kind. — Bílslys vegna ölvunar. — Snjóflóð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.