Tíminn - 05.01.1939, Blaðsíða 4
8
TÍMIM, íiiwmtndagiim 5. jamiar 1939
2. blað
isœstyngsti aðalráöherrann í
brezku stjórninni, er Malcolm
Mac Donald nýlendumálaráð-
herra. Hann er 37 ára gamall.
Hann er sonur Ramsay Mac
Donald fyrrv. forsœtisráðherra.
Að loknu háskólanámí hauð
hann sig fram til þings 1924, en
beið ósigur. Hann náði kosningu,
þegar hann bauð sig fram i
þriðja sinn, 1929. Á þessum árum
fékkst hann einkum við blaða-
mennsku eins og faðir hans
hafði gert fyrr á árum. Hann fór
einnig, ásamt tveim stúdentum
frá Oxford, i fyrirlestraferð víðs-
vegar um hnöttinn, og hélt hann
um 250 fyrirlestra í því ferðalagi.
Þegar faðir hans myndaði
þjóðstjórnina 1931, varð hann
aðstoðarráðherra í nýlendu-
málaráðuneytinu. Þótti flestum
hann óverðugur til þeirrar tign-
ar og töldu að hann nyti ein-
göngu föður slns. En með elju-
semi og skyldurœkni vann Mal-
colm sér vaxandi álit og i nóv-
ember 1935 varð hann samveldis-
ráðherra. Um líkt leyti féllu þeir
feðgarnir báðir í þingkosningum,
en fengu von bráðar ný kjör-
dœmi.
Stœrsti sigur Malcolms sem
samveldisráðherra var samning-
urinn við íra, sem gerður var sl.
vetur. Er hann af flestum talinn
mesta afrek Chamberlainstjórn-
arinnar, því með honum var
aldagamalt deilumál til lykta
leítt. Með þessu verki vann Mal-
colm sér almenna viðurkenn-
íngu, því samningurinn er fyrst
og fremst þakkaður lœgni hans
og festu.
Á sl. vori varð Malcolm ný-
lenduráðherra. Undir ráðuneyti
hans heyra nú m. a. tvö mestu
vandamál enska heimsveldisins,
óeirðirnar í Palestinu og ný-
lendukröfur Þjóðverja.
Malcolm er nú foringi hins
litla verkamannaflokks, sem
fylgdi föður hans og styður núv.
ríkisstjórn. Hefir þetta flokks-
brot eflzt nokkuð undir forystu
hans.
Malcolm er miklu mínni rœðu-
maður en faðir hans var og
skortir glœsileik hans og höfð-
ínglega framgöngu. Hann líkist
meira móður sinni. Hann er
heldur lltill vexti. Álit sitt á
hann að þakka þeirri élju og
samvizkusemi, sem hann þykir
jafnan hafa sýnt í störfum sin-
um.
Hann er leikfimismaður mikill
og er fjölhœfasti dansmaðurinn
í ensku stjórninni. Það er fœrt
í frásögn, að hann hafi gengið á
höndunum eftir löngum sal,
þegar honum bárust þau tíðindi,
að hann hefði unnið í aukakosn-
ingu 1936.
Malcolm er ókvœntur.
* . * *
íli B/ETVtJM
Bæjarstjórnarfundur
verður í dag kl. 5 í Kaupþingssalnum.
Mörg mál eru á dagskrá. Meðal þeirra
er fjárhagsáætlun bæjarins fyrir þetta
ár.
Snæfellingamót
verður haldið að Hótel Borg næstk.
laugardagskvöld. Mótið hefst með sam-
eiginlegu borðhaldi kl. 7.
Biskupaskiptin.
Jón Helgason biskup lét af störfum
nú um áramótin, eftir 22 ára starf.
Flutti hann kveðjuræðu í dómkirkj-
unni á gamlaárskvöld, og lagði út af
textanum í Efes-bréfi, 5, 20.: „Þakkið
jafnan guði fyrir alla hluti í nafni
drottins vors Jesú Krists.“ — Hinn ný-
skipaði biskup, Sigurgeir Sigurðsson,
kvaddi söfnuð sinn á nýársdag með
messu. Hefir séra Sigurgeir þjónað
embætti sínu þar vestra í 21 ár. Biskup
kemur alkominn til Reykjavíkur laust
fyrir miðjan mánuðinn.
Á metaskránni
í íþróttafréttum í seinasta blaði hafa
leynzt tvær prentvillur. Met það, er
Geir Gígja setti 1927 var í 1500 stiku
hlaupi. Haukur Einarsson setti met í
5000 stiku kappgöngu 19. júní 1932.
skrá. í Falkenau fengu þeir
37,950 atkv., en 37,260 voru á
kjörskrá.
Við atkvœðagreiðsluna fengu
Þjóðverjar hvíta seðla, en Tékk-
ar grœna. Á seðli Þjóðverja stóð:
Viðurkennir þú foringjann Adolf
Hitler sem frelsara Sudetalands-
ins og greiðir þú atkvœði með
stefnu Nazistaflokksins? Á seðlí
Tékka stóð: Viltu vera löghlýð-
inn þegn í hinu nýja riki, rœkja
skyldur þínar með samvizkusemi
og greiðir þú atkvœðí með kosn-
ingastarfsskrá foringjans, Adolfs
Hitlers?
Ferðalag Daladiers.
(Framh. af 1. síSu)
byggja ítalir á því, að íbúar
hlutaðeigandi landa krefjist
umskiptanna. Það er heldur
ekki hægt. Þeir vilja ekki skipta
á yfirráðum frönsku lýðstjórn-
arinnar og ítölsku harðstjórn-
arinnar, enda hefir t. d. ný-
lendustjórn Prakka í Tunis ver-
ið talin til fyrirmyndar. En frá
sjónarmiði hins menntaða
heims á það vissulega að vera
vilji hlutaðeigandi íbúa, sem
ræður því, hverra yfirráðum
þeir lúta.
I lsvörin hækka.
(Framh. af 1. síðu)
endur bæjarins þolað slíka
stjórn? Og hvernig dirfast þeir
menn, sem játa opinberlega á
sig óhæfilega eyðslusemi, eins
og gert er í framangreindum
ummælum Mbl., og gera þó ekk-
ert til að draga úr henni, að
reyna að telja þjóðinni trú um
að þeim sé treystandi til hag-
sýnnar fjármálastjórnar?
Nýtízku steinhás.
Nokkur nýtízku steinhús til
sölu. Ennfremur mikið úrval af
eldri húsum. Hús og aðrar fast-
eignir teknar í umboðssölur.
HARALDUR GUÐMUNDSSON,
Hafnarstræti 15.
Símar 5415 og 5414 heima.
Hraðfrystur, beínlaus fískur fæst í
Í*lm*niiiiini,mí 3259
Flakaður koli 0,75 pr. kg.
Klipptur koli 0,40 -
og margar fleiri tegundir, ódýrt.
Sími 3359.
Terdlaun
Teiknistofa landbúnaðarins efnir til verðlaunasamkeppni
um tillöguuppdrætti að húsgögnum í stofu á sveitaheimili.
1. verðlaun kr. 300,00
2. — — 150,00
3. — — 50,00
Fimm manna dómnefnd úthlutar verðlaununum.
LEIKFÉLAG
RSYKJAVÍKUR
„FróOá‘é
Sjónleikur í 4 þáttum, eftir
JÓHANN FRÍMANN.
Sýiiing í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 i dag.
Útbreiðið TlMANN
Átfunda eígin-
kona
Bláskegfpfs
Bráðskemmtileg og mein-
fyndin amerísk gaman-
mynd eftir
Ernst LuMtsch.
Aðalhlutv. leika:
CLAUDETTE COLBERT H
og
GARY COOPER. \\
SÝJA BÍÓ"'ÍÍÍTTtvrtttltt'
Börn óveðnrsins
(THE HURRICANE)
Stórfengleg amerísk kvikmynd,
er vakið hefir heimsathygli fyrir
afburða æfintýraríkt og fjölþætt
efni u°- framúrskarandi „tekn-
iska snilld. — Aðalhlutverkið
leikur hin forkunnarfagra
DOROTHY LAMOUR
og hinn fagri og karlmannlegi
JON HALL
j| Börn inuan 12 ára fá ekki aðg.
♦ ♦
iiiœmmmiímisœmmmmœiima
RyðYarnariiiálmng
Málnáng á húseignum er ekki aðeins vörn
gegn skemmdnm, heldur eykur hún jafu-
framt verðmæti eigna, veitir margvísleg
þægindi og setur menningarbrag á lieiin-
ilin.
NAFN OKKAR ER TRYGGEVG
VÖRL!
FYRIR VANDAÐRI
í atkvœðagreiðslunni í Súdeta-
héruðunum kom það fyrír á
tveimur stöðum, að lista nazista
voru greidd fleiri atkvœði en
kjósendur voru á kjörskra. í Joa-
chimstahl fengu nazistar 11,431
atkvœði, en 11,357 voru á kjör-
Tillögum sé skilað fyrir 1. april 1939. Þær skulu vera dul-
merktar, en nafn og heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi.
Þátttakendur vitji nánari upplýsinga á teiknistofuna.
TEIKNISTOFA LANDRLNAÐARINS
Búnaðarbankanum, Reykjavík.
174 Andreas Poltzer:
beztu sporhundunum í Scotland Yard, þó
hann sé ungur ennþá. í næsta skipti gæti
hugsast, að hann hefði heppnina með
sér, og þá væruð þér í slæmri klípu, sagði
Sluice aðvarandi.
Brosið var horfið af andliti ungu stúlk-
unnar. Hún tók rósrauða sígarettuöskju
upp úr vasanum og bauð Sluice.
— Þakka yður fyrir, ég veit ekki hvort
ég þoli þessar ilmuðu sígarettur, sagði
litli maðurinn.
Alice Bradford stakk sígarettu milli
varanna. Þjónninn flýtti sér að kveikja
í hjá henni, áður en hann helti whiskí-
inu á glösin. Hann furðaði sig á hve mr.
Ford hafði granna og kvenlega hönd.
Hann mundi enn eftir uppþotinu, sem
varð í fyrsta skipti, sem Mr. Ford kom í
klúbbinn. Maður einn, allkendur, sem
var gestkomandi í klúbbnum þetta kvöld,
hafði móðgað mr. Ford og hagað sér af
lítilli kurteisi síðar um kvöldið. Hann var
að minnsta kosti hálfu öðru höfði hærri
en Ford, en eigi að síður hafði Ford gefið
honum hnefahögg, svo vel útilátið, að
maðurinn fékk nægju sína, og langaði
ekki til að halda leiknum áfram.
Alice Bradford saug reykinn að sér 1
djúpum teygum, og þegar þjónninn fjar.
lægðist þau, sagði hún í hljóði:
— Whinstone fulltrúi er í þakklætis-
skuld við mig — hann hafði villst inn í
Patricia 175
,,hvelfinguna“ og komst ekki út aftur.
Ég hjálpaði honum út .... Það hefði
hæglega getað farið illa fyrir honum!
Sluice kinkaði kolli alvarlegur.
— Það er ekki vafi á því, Alice! Ég sá
fulltrúann í skotinu, en mér datt ekki í
hug, að hann hefði komizt að leyndar-
máli Pallas Aþenu.
— Það hlýtur að hafa verið tilviljun.
Annaðhvort hefir læsingin hlaupið af
sjálfu sér, eða enhver komið við hana að
innanverðu. Ég var á burtu um stund,
og líklega hefir þetta gerzt á meðan.
Þegar ég kom aftur sá ég hvergi Whin-
stone. Ég hlustaði og heyrði undirgang
bak við skotið. Mér datt í hug, að það
væri Whinstone. Ég barði og það var
barið aftur, og þá lét ég skotið snúast.
— Veit hann, að það voruð þér, sem
hleyptuð honum út?
— Ég held ekki. Ég kom mér undan
eins fljótt og ég gat. Vonandi ætlar hann
sér ekki að hreinsa til í hreiðrinu .... ?
— Hann reynir að njósna um yður
heima við húsið hjá yður aftur.
Alice Bradford ypti öxlum.
— Ég fer yfir þakið.
Sluice virtist ekki vera meira en svo
ánægður með það.
— Seinast þegar þér fóruð þá leiðina
lá við að þér hálsbrytuð yður! Mér er
Á víðavangi.
fFramh. af 1. síðu)
Mbl. birtir nýlega grein, sem
ekki verður skilin öðruvísi en
svo, að mjólk úr sveitum hér
sunnanlands sé banvæn. Til að
skera úr þessu, myndi vel fara á
að Dungal væri sendur til að
athuga kýrnar í Svignaskarði,
Arnbjargarlæk, Grund í Skorra.
dal, Móeiðarhvoli og Núpi í
Fljótshlíð, til að nefna nokkur
staðgóð heimili á mjólkursölu-
svæðinu. Ef það sannast með
hinum nákvæmu og óyggjandi
rannsóknum Dungals, að þessi
mjólk sé banvæn fyrir fólk í
Reykjavík, þá kemur óneitanlega
tíl kasta heilbrigðisstjórnarinn-
ar, hvort nokkuð er hægt að gera
við Borgarfjörð og Suðurlág-
lendð, nema að leggja það i eyði
og flytja þá, sem ekki eru orðnir
veikir af mjólkinni til Reykja-
víkur og láta þá lifa þar á al-
mannaframfæri.
* * *
Mbl. kvartar um, að ekki sé
framleidd sérstök „barnamjólk“
til sölu í Reykjavík. En um þetta
efni ætti blaðið, að snúa sér til
„stórbóndans“ á Korpúlfsstöð-
um. Hann var á sínum tíma beð-
inn að gera bú sitt að fram-
leiðslustöð fyrir barnamjólk, en
neitaði að beygja sig fyrir lækn-
iseftirliti og öðrum skilyrðum, er
setja verður um framleiðslu
mjólkur, sem seld er undir slíku
vörumerki. Væri betur, að Mbl.
gæti komið því til leiðar, að
Korpúlfsstaðabóndanum snerist
hugur, þótt seint sé.
Námskeið
í meðferð ungbarna hefst á vegum Rauða
Kross íslands mánudaginn 8. janúar. Allar
upplýsingar á skrifstofum R. Kr. í Hafnar-
stræti 5. — Sími 4658.
Áý lækningastofa
Frá deginum í dag tek ég á móti sjúklingum I Pósthússtræti
17, sími 2059, virka daga kl. 2—4 síðd. Lögð verður stund á
náttúrulækningar, að svo miklu leyti, sem ástæður leyfa. —
Heima Grettisgötu 67. Sími 5204.
Jónas Kristjánsson
læknir frá Sauðárkróki.
Snæíellíngamótið
verður Iialdið að Hótel Rorg n. k. langar*
dag þ. 7. Jan. 1939. Mótið hefst með sam-
eiginlegu borðhaldi kl. 7 e. hád.
Aðgöngumiðar í Tóbaksverzl. London.
Austurstræti 14 og Skóbúð Reykjavíkur,
Aðalstræti 8.