Tíminn - 24.01.1939, Blaðsíða 4
40
TÍMIM, þrigjndaghm 24. janúar 1939
10. blað
„Ríki og fcyltin^
höfuðrit Lenins, er nýkomið út á íslenzku. Er þetta fyrsta ritið
eftir Lenin, sem birtist í íslenzkri þýðingu. Hver maður, sem vill
kynna sér kenningar sósíalismans, þarf að lesa þessa bók.
Verð kr. 4,50. Félagar í Máli og menningu fá bókina á kr. 3,80 í
BÓKAVERZLUN HEIMSKRINGLU
Laugaveg 38 Sími 5055
MOLAR
Georges Bonnet, utanríkísráð-
herra Frakka, hefir í mörgu að
snúast þessa dagana. Kommún-
istar og sósíalistar krefjast þess
að Frakkar veiti spönsku stjórn-
inni lið, og frá henni hafa komið
erindrekar á fund hans til að
grennslast eftir, hvaða hjálp
Frakkar muni veita flóttamönn-
um, ef Franco sigrar. Auk þessa
eru svo landakröfur ítala.
Bonnet er fimmtugur að aldri.
Faðir hans var dómari og á
námsárum sínum lagði hann
einkum stund á lögfræði og
heimspeki. Að náminu loknu
skrifaði hann bœkur og tímarits-
greinar um lögfrœðileg efni.
Þegar heimsstyrjöldin hófst,
gekk hann strax l herinn og var
orðinn liðsforingi í stórskotalið-
inu, þegar því lauk. Eftir styrj-
öldina hélt hann ritstörfum sín-
um áfram og ritaði þá öœkur um
pólitísk og fjárhagsleg efni. —
Þóttu bœkur hans lýsa mikilli
rökfestu og skarpskyggni og
unnu þær honum mikið álit.
Hann byrjaði einnig að gefa sig
að stjórnmálum og varð einn af
leiðandi mönnum í hægra armi
radikala flokksins. Árið 1925
varð hann ráðherra i fyrsta sinn.
Síðan hefir hann alls átt sœti
í 14 ráðuneytum og oftast verið
fjármálaráðherra. Er hann tal-
inn einhver snjallasti og lœrðasti
fjármálamaður Frakka.
Bonnet er starfsmaður mikill
og viðurkenna andstœðingar
hans fúslega gáfur hans og
dugnað. En hitt láta þeir líka
óspart í té, að þeir gruni hann
þeim mun meira um grœzku.
Þykir hann manna lagnastur að
koma málum sinum fram, en
starfsaðferðir hans eru líka mis-
jafnlega rómaðar. Hann er ágæt-
ur rœðumaður.
Ýmsir spá því, að ef stjórn
Daladiers fellur og mynduð verði
hœgristjórn í Frakklandi, muni
Bonnet verða aðalmaður hennar
og forsœtisráðherra.
* * *
Allan ársins hring er hveiti-
uppskera einhvers staðar á
hnettinum. í janúar er hveiti-
uppskerutímí i Nýja Sjálandi og
Chile, i febrúar og marz i Ind-
landi og Efra-Egyptalandi, l apr-
íl í Indlandi, Neðra-Egyptalandi,
Sýrlandi, Persíu og Litlu-Asíu,
í mai i Kína, Japan, Mið-Asíu,
Marokko og Algier, l júní i suður-
fylkjum Bandaríkjanna, Suður-
Rússlandi, Rúmeníu, Búlgaríu,
Austurríki, Ungverjal. og Þýzka-
landi, i ágúst i norðurfylkjum
Bandarikjanna, Kanada, Mið-
Rússlandi, Póllandi og Englandi,
í september í Norður-Rússlandi
og Skotlandi, í október í Svíþjóð
og Noregi, i nóvember í Suður-
Afríku, í desember í Ástralíu og
Argentínu.
* * *
— Það hlýtur eitthvað að vera
hœft i gamla orðtakinu, að heim-
urinn sé litill. Að minnsta kosti
er hann ekki nógu stór til að
geta tekið á móti öllum, sem
vilja fara frá Þýzkalandi. (New
Yorker, New York).
tn BÆIVUM
Farfuglafund
heldur XJ. M. F. Velvakandi í Kaup-
þingssalnum í kvöld kl. 9. — Allir ung-
mennafélagar velkomnir.
Skátafélag Reykjavíkur
hélt aðalfund sinn sunnudaginn 15.
þ. m. Félagið, sem er sameining skáta-
félaganna Vœring)ar“ og „Emir“, tel-
ur nú 610 félaga að meðtöldum ylfing-
um og starfar í 6 deildum auk skáta-
sveitar á Seltjarnarnesi. Fundurinn
kaus stjórn fyrir félagið og skipa hana:
Björgvin Þorbjörnsson, félagsforingi, í
stað Leifs Guðmundssonar, sem baðst
undan endurkosningu, Daníel Gíslason
og Hörður Jóhannesson, aðstoðarfé-
lagsforingjar, Sveinbjöm Þorbjömsson,
gjaldkeri, Þórarinn Bjömsson, ritari.
Framsóknarfélögin í Reykjavík
efna til skemmtunar að Hótel Borg á
morgun, miðvikudaginn 25. þ. m., sem
hefst kl. 8,30. — Þar verður spiluð
Framsóknar-whist, ræða atvinnumála-
ráðaherrann og dans — Vegna mikill-
ar aðsóknar er betra að trv°-"ja sér að-
göngumiða hið fyrsta. Þeir fást á afgr.
Tímans, Lindargötu 1 D. Sími 2323 og
við innganginn.
Á krossgötum.
'Framh. al 1. síöu)
300 krónur: Skúli Magnússon til sálar-
fræðináms, Helgi Bergsson til hag-
fræðináms, Sölvi Blöndal til hagfræði-
náms, Guðni Guðjónsson til náttúru-
fræðináms, Hermann Einarsson til
dýrafræðináms, Vésteinn Guðmunds-
son til verkfræðináms, Guðmundur
Matthíasson til tónlistarnáms, Gunn-
laugur Pálsson til húsabygginganáms,
Már Rikarðsson til húsabygginganáms,
Pétur Símonarson til vélfræðináms,
Gunnlaugur Bjömsson til búnaðar-
náms, Slgurður I. Sigurðsson til bún-
aðarnáms, Stefán Björnsson til mjólk-
uriðnaðarnáms, Ingvar Bjömsson til
efnafræðináms, Hallgr. Björnsson til
iðnaðarverkfr.náms, Ásk. Löwe til nátt-
úrufræðináms, Þórhildur Ólafsdóttir til
að nema meðferð ungbarna, Glúmur
Björnsson tll verkfræðináms, Sveinn
Pálsson til verkfræðináms, Hjalti
Gestsson til búnaðarnáms, Geir Tóm-
asson til tannlækninganáms.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. sí8u)
330 brýr og vegir alls lagðir fyrir
25 millj. kr. íslendingar eigi
síma og útvarp og nýtízku sjálf-
virka símastöð í höfuðstaðnum.
* * *
Greinin endar á þessum orð-
um: „Þeir, sem nú eru að rann-
saka á hvern hátt auðveldast sé
að afla brezku þjóðinni matvæla
á hættutímum, ættu að athuga
það í fyrsta lagi, hve skammt er
héðan til íslands, samanborið
við aðrar vegalengdir, t. d. til
Argentinu. Og í öðru lagi, hve
miklu auðveldara myndi vera
fyrir Norðursjávarflotann, að
vernda matvælaflutninga frá
íslandi til Skotlands, en t. d. frá
Danmörku til Englands."
* * *
Mbl. sem út kom sl. sunnudag,
viðurkennir, að kunnugt sé
nokkurn veginn nákvæmlega,
hversu margir af styrkþegum
Reykjavíkurbæjar fylgi Sjálf-
stæðisflokknum að málum. —
Styður þetta þá skoðun, sem
útbreidd er í bænum um óheppi-
legt samband milli þurfama,nna-
framfærisins og kosningastarf-
semi Sjálfstæðisflokksins.
tr bréfi til Tímans
(Framh. af 2. síðu)
um fólkið, vegna þess að önnur
atvinnugreinin sé arðvænlegri
en hin.
En það verður að gera þessum
tveimur atvinnugreinum fram-
leiðslunnar það hátt undir höfði,
að fólkinu finnist ekki lífvæn-
legra að stunda allt annað en að
framleiða þau verðmæti, sem
þjóðin þarfnast mest til lífvæn-
legrar afkomu, bæði inn á við og
út á við.
En hvert er bezta ráðið til að
koma á verðhækkun á fram-
leiðsluvörunum? Bezta ráðið
verður að finnast; ég vil aðeins
minnast á það atriðið, er hugur
minn hefir helzt staðnæmzt við,
er ég hefi hugsað um þessi mál,
og það er lækkun hinnar ís-
lenzku krónu. Það skal játað, að
verðsveiflur eru alltaf vondar og
mikil nauðsyn á að stuðla að því
að þær verði ekki nema þegar
nauðsyn krefur; en ég sé ekki að
lengur verði hjá því komizt að
lækka krónuna, vegna fram-
leiðslunnar í landinu, til að gjöra
framleiðsluna í landinu verð-
meiri en hún er. Framleiðsluna,
sem þjóðarbúskapurinn grund-
vallast á, verður að auka að
verðmæti og vöxtum. Það er það
nauðsynlegasta nú af öllum
nauðsynlegum hlutum.
Nú er það verðlækkun krón-
unnar, sem kemur hart niður á
bönkunum, vegna greiðslu þeirra
út úr landinu. Lækkun krón-
unnar kemur líka illa við þá er
innieignir eiga, en þeir, sem
skulda bönkunum og öðrum
peningastofnunum, græða. Ekki
gerir það mikið til þó að léttist
eitthvað skuldabyrði þeirra
manna, sem erfitt eiga með að
standa í skilum með vexti og
afborganir af skuldum sínum og
ekki lifa neinu óhófslífi, og
lækkun krónunnar gæti líka
orðið til þess að ýmsum væri
gert kleift að greiða sínar skuld-
ir, er alls ekki gætu það eins og
sakir standa nú um fjárhags-
örðugleika þeirra.
En svo eru allir hinir stóru,
sem skulda mikið og eiga miklar
eignir og lifa á allan hátt eyðslu-
lífi. Það er vont að þeim séu
gefnar upp stórar upphæðir með
lækkun krónunnar. í því sam-
bandi detta mér í hug ýms stór-
fyrirtæki, sem illa hafa farið
með fé, er þau hafa meðhöndl-
að. Þeim þarf að koma á réttan
kjöl, áður en krónan er lækkuð.
Við lækkun krónunnar lækkar
kaup launamannanna. Ekkert
gerir til, þó að lækki laun þeirra
manna, sem bezt eru settir;
það getur komið til mála að
hækka eitthvað laun þeirra, er
lægst hafa launin; en um verka-
Rússland
og llóttamennirnir
(Framh. af 1. síðu)
lands og sú viðleitni, að reyna
að komast hjá þvi að móðga
þennan volduga nágranna á
nokkum hátt og skrifa því mjög
lítið og hógvært um Gyðingaof-
sóknirnar, bendir einnig i sömu
átt.
Það má líka teljast fullvíst,
að Rússar séu fyrir löngu hættir
að veita spönsku stjórninni
stuðning. Meðan hún hafði
nokkra von um sigur og ýmsar
líkur bentu til að kommúnistisk
stjórn gæti komizt til valda á
Spáni, styrktu Rússar hana á
margan hátt. En síðan sigurvonir
hennar minnkuðu og veldi Þjóð-
verja hefir vaxið í Mið-Evrópu,
hafa Rússar alveg hætt þessari
hjálp. Stalin vill ekki gefa hinum
vígþyrsta nábúa sínum, Hitler,
ástæðu til að hefja illdeilur við
Sovét-ríkin og telur því að ein-
angrunin og afskiptaleysið henti
þeim bezt.
Ekkert stórveldi virðist nú
hafa meiri geig af Þjóðverjum,
og þora að gera þeim minna á
móti skapi en Sovét-Rússland.
fólkslaunin skal það sagt, að þau
eru nú þegar orðin nokkuð há,
þó þau teljist kannske of lág, ef
krónan yrði lækkuð mikið. En
mestu varðar að mínu áliti, að
vinnan sé ekki stopul, að at-
vinnuleysið geti horfið, og það
hygg ég að sé aðalatriðið til þess
að atvinnuleysið geti horfið, að
framleiðslan sé aukin og gerð
sem arðvænlegust og iðngreinum
fjölgað eftir því sem hægt er.
í bréfi því, er miðstjórn Fram-
sóknarflokksins skrifaði trúnað-
armönnum sínum nú síðast, var
þess óskað, að menn gerðu tillög-
ur um hvernig ráða skuli fram
úr fátækramálum sveita- og
bæjarfélaga og kaupstaða, og
mín tillaga er þetta:
Það verður að efla framleiðsl-
una á allan hátt, svo að það sé
meir aðlaðandi fyrir fólkið að
vera sem flest framleiðendur og
svo að fleiri og fleiri geti komizt
að atvinnu við framleiðsluna
sem framleiðendur, í stað þess
að nú sækist fólkið mest eftir
því að sæta daglaunavinnu, af
því fólkinu finst hún bezt borg-
uð. En þegar of mikið er orðið
um framboð á vinnu við fyrir-
tæki eða framleiðslu, sem ekki
ber sig, þá kemur atvinnuleysið,
sem endar með því að fleiri og
fleiri verða sveitarstyrksþurfi,
eða sveitirnar og ríkið verður að
hjálpa fólkinu frá því að fara
á sveitina eða bæinn, með því að
veita því atvinnubótavinnu, sem
oft kemur að litlum notum.
K. B.
206
Andreas Poltzer:
Patrícia
207
Hljómsveit Reykjavíkur.
Eftir svo sem ár skaut honum upp í
París á ný. Hann reyndi að taka saman
við fráskildu konuna sína aftur, og af
því að Juliette elskaði hann ennþá, gekk
þetta liðugt.
Juliette hafði vonað það undir niðri,
að hún gæti haft góð áhrif á Meller.
En i þetta skipti var það eíngöngu í þeim
tilgangi að koma glæpsamlegu áformi
í framkvæmd, að hann tók saman við
hana aftur. Hún vildi ekki segja Whin-
stone, hvert þetta áform stefndi. Juli-
ette Duprés lét nægja að tæpa á því, og
þetta fannst Whinstone benda á, að hún
myndi elska Meller ennþá. Meller tókst
1 þetta sinn að hramsa alla skartgripi
frúarinnar og álitlega fjárupphæð, og
að svo búnu hvarf hann.
Svo hafði hún ekki orðið vör við hann
í fjögur ár. Fyrir tilviljun komst hún að
því, að hann myndi hafast við í London,
og þar hafði honum tekizt að verða
einkaritari Kingsley lávarðar. Henni var
hulið, með hvaða ráðum þetta hefði
tekízt.
Juliette fór þegar til London. Var það
tilgangur hennar, að ná einhverju aftur
af því, sem Meller hafði stolið frá henni
fyrir fjórum árum? Whinstone hafnaði
þeim möguleika með sjálfum sér. Það,
sem hafði knúð hana til ferðalagsins,
var ást hennar á Meller — eða hatur.
Sennilegra að það væri ástin. Þvi að ef
þessi franska kona vildi hefna sín, þurfti
hún ekki að fara til London. Það hefði
nægt, til að ná sér niðri á Meller, að kæra
hann fyrir frönsku lögreglunni.
— Hvað tókuð þér svo til bragðs, frú,
er þér voruð komnar hingað til London,
spurði Whinstone.
— Ég fór beint af járnbrautarstöðinni
til Berkeley Square, en hitti ekki mann-
inn minn í húsi lávarðarins. Ég skrifaði
honum nokkrar línur og skildi þær eftir.
— Viljið þér segja mér, hvað stóð í
því bréfi? spurði Whinstone.
— Ég man ekki orðalagið. Ég skrifaði
honum eitthvað á þá leið, að ég ætlaði
að koma til hans daginn eftir....
— Þér skrifuðuð ekki neitt annað?
Frú Meller varð hálf vandræðaleg og
sagði svo með semingi:
— Ég setti ofan í við hann og ég er
hrædd um, að hann hafi skilið það á þá
leið, að ég ætlaði að kæra hann fyrir
lögreglunni.... Þegar ég kom á heimili
Kingsley lávarðar daginn eftir, var mér
sagt, að Meller væri ekki kominn. Ég
fékk heimilisfang hans, en tókst ekki
heldur að hitta hann þar sem hann
átti heima.... Hann hafði flutt sig
þaðan þá um morguninn....
Frú Meller þagði. Whinstone efaðist
ekki um, að hún segði satt. Og nú var
Meyjaskemman
verffur leikin annaff kvöld
kl. 8y2.
IVæstsíðasta sinn.
Affgöngumiffar verffa seldir f
dag kl. 4—7 og eftir kl. 1 á
morgun í Iffnó. — Sími 3191.
Venjulegt leikhúsverð
„Brúarloss<(
ler væntanlega í kvöld
um Vestmannaeyjar, til
Aberdeen, Leith o g
Kanpmannahalnar.
mmmtmmoAMT.A bíói
VÉR nÖLDUM
HEIM — —
Áhrifamikil og listavel
leikin amerísk stórmynd,
gerð eftir skáldsögu hins
heimsfræga rithöfundar,
Erich M. Remarque.
Myndin er framhald af
„Tíffindalaust
á vesturvígstöffvunum“
og sýnir m. a. síðustu nótt-
ina í skotgröfunum, bylt-
inguna og flótta keisarans.
Myndin er bönnuff fyrir
börn innan 14 ára.
NÝJA
Prinsinn
og betlarinn.
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros, samkv. hinni
heimsfrægu sögu með
sama nafni, eftir hinn
dáða ameríska ritsnilling
MARK TWAIN.
Aðalhlutv. leika:
ERRAL FIYNN
og tvíburabræðurnir
BILLY og
BOBBY MAUCH
Börn yngri en 12 ára fá
ekki aðgang.
:::œ»
Kaupum tómar ílöskur
- pessa viku til föstudagskvölds. -
Flöskunum veítt móttaka í Nýborg.
Áfengisverzlun ríkisins.
vliiitjifilgeiniiii.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
■
■
Tilkynning
fráByggmgarsamvínnufélagiReykjavíkur
t ráði er að byggja nokkrar íbúðir í sum-
ar. I»eir félagsmenn, sem vilja tryggja sér
þessar íbúðir, gefi sig fram við gjaldkera fé-
lagsins, Elías Halldórsson, á skrifstofu Fiski-
veiðasjóðs tslands, Lækjartorgi 1, eða for-
manninn, Guðl. Rósinkranz, í Samvinnuskól-
anum (Oftast við kl. 2—3, sími 5099) fyrir 1.
febr. n. k. og sýni um leið félagsskírteini sitt.
Ennfremur er eitt af einbýlishúsum félagsins
til sölu og eru væntanlegir kaupendur beðnir
að gefa sig fram á sama hátt.
STJÓRIVIV.