Tíminn - 11.02.1939, Side 1

Tíminn - 11.02.1939, Side 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON Cábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 1d. SÍMAR: 4373 og 2353. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. 23. árg. Reykjavík, laugardaginn 11. febr. 1939 18. blað Endurskoðun löggjaíarinnar um íátækramál og íjárreiður sveíta- og bæjaríélaga Fjármálarádherra heiir íalið fimm mönnum athugun pessara mála Frelsísstríð Kataloniumanna Atvinnumálaráðherra hef- ir fyrir alllöngu síðan falið fimm mönnum að athuga fátækraframfærsluna og gera tillögur um endurbæt- ur á henni. Munu þeir nú hafa lokið störfum að mestu og verða tillögur þeirra lagðar fram á næsta þingi. Þeir menn, sem atvinnumála- ráðherra hefir falið þessa at- hugun, eru Karl Kristjánsson oddviti á Húsavík, Benedikt Guttormsson kaupfélagsstjóri á Stöðvarfirði, Jens Hólmgeirs- son bæjarstjóri á ísafirði og Friðjón Skarphéðinsson bæjar- stjóri í Hafnarfirði. Auk þess mæltist hann til við bæjar- stjórn Reykjavíkur, að hún til- nefndi fimmta manninn. Hefir Ólafur Sveinbjarnarson, sem er starfsmaður Reykjavíkurbæjar, aðallega mætt fyrir bæjarins hönd, en Tómas Jónsson borg- arritari í fjarveru hans. Þeir hafa einkum tekið þrenn lög til athugunar, framfærslulögin, útsvarslögin og lög um eftirlit með fjárreiðum sveita- og bæj- Piu s p áf i látinn Píus páfi. Píus páfi XI. andaðist í gær- morgun nær 82 ára að aldri. Hann hafði verið páfi síðan í febrúar 1921. Fyrir margra hluta sakir er hann einn af merkustu páfum á síðari árum. Hann starfaði á margan hátt í samræmi við sinn tíma með því að sýna meira frjálslyndi á ýmsum sviðum en fyrirrennarar hans. Sérstaklega ber að minnast í þeim efnum hinnar ákveðnu mótstöðu hans gegn nazisma, kommúnisma og kynþáttakenningunum. Það getur haft mjög víðtæka þýðingu fyrir stjórnmála- ástandið í heiminum, hver eft- irmaður hans verður, því kat- ólska kirkjan hefir enn mikil áhrif. Sérstaklega getur það haft þýðingu í sambandi við Spán, sem er ramm-katólskur. arfélaga. Munu þeir gera meiri eða minniháttar breytingar við þau öll. Jafnframt hafa þeir athugað hvernig úthlutun atvinnubóta- fjár kaupstaðanna hefir verið háttað og til hvaða fram- kvæmda því hefir verið varið. Mun einnig vera tillagna að vænta frá þeim um það efni. Tillögur sínar munu þeir af- henda til ríkisstj órnarinnar og má síðar vænta þess, að þessi mál verði tekin til rækilegrar meðferðar á Alþingi. Eru þau tvimælalaust meðal allra mestu vandamála þjóðarinnar og sem einna brýnust þörf er að leysa. Búnaðarþingfid Fyrir búnaðarþingið er nú búið að leggja 35 mál og er von á mörgum fleirum. Undanfarna daga hafa verið stuttir þingfundir, því málin eru enn til athugunar í nefnd- um. í gær voru þó afgreidd tvö mál. Annað var um að mæla með stofnun dýralæknisem- bættis á Vestfjörðum, en hitt var viðkomandi erindi frá frú Rakel Þorleifsson, um hörrækt og hörvinnslu. Samþykkti þing- ið að fela tilraunastöðvum það mál til frekari rannsóknar. í gær lagði Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri fram reikninga félagsins og gerði grein fyrir þessu með all- langri ræðu. Þá hafa verið flutt nokkur er- indi af starfsmönnum félagsins. Samkvœmt bráðabirgðayfirliti hag- stofunnar hefir útflutningurinn numið 2.822 þúsund krónum í janúarmánuði. Innflutt hefir verið fyrir 3.254 þúsund krónur. í fyrra nam útflutningurinn 1.419 þúsund krónum, en innflutning- urinn 2.556 þúsund krónum. Hefir verzlunarjöfnuðurinn því verið óhag- stæður um 432 þúsund krónur í janú- armánuði í ár, en um 1.137 þúsund krónur í fyrra. Helztu útflutningslið- irnir nú voru ísfiskur fyrir 660 þúsund krónur, saltfiskur fyrir 500 þúsund krónur, síldarolía fyrir 400 þúsund krónur, síld fyrir 375 þúsund krónur og síldarmjöl fyrir 280 þúsund krónur. t t t Ríkisstjórnin hefir ákveðið að hefja samningaumleitanir við stjórn Francos á Spáni um verzlunarviðskipti á milli landanna. Hefir Helgi P. Briem verið kvaddur til þessa erindrekstrar ásamt Kristjáni Einarssyni framkvæmdar- stjóra. Norðmenn hafa einnig hafið svipaða samninga við stjórn Francos. t t r Dálítil snjókoma og allhvasst var við suðurströndina, og þó einkum suðvest- urströndina, í fyrrinótt, en hlánaði, þegar leið að morgni. Norðanlands var veður betra og úrkomulítið. Mun úr- koman lítið hafa náð norður fyrir Seyðisfjörð að austan og Patreksfjörð að vestan. Nokkrar smávegis símabil- anir urðu. Suðurlandslínan slitnaði af Forystumaður iallínn TÓMAS JÓNASSON Meðal þeirra níu manna, er farizt hafa með vélbátnum Þengli, í hinu hörmulega slysi við Sauðanes síðastliðna þriðju- dagsnótt, er einn af fremstu forystumönnum Skagafjarðar, Tómas Jónasson kaupfélags- stjóri á Hofsósi. Með hinu ó- vænta fráfalli hans er stórt skarð orðið fyrir skildi meðal samvinnumanna landsins. Tóm- as hafði tekið sér far með bátn- um, til að komast til Siglufjarð- ar í veg fyrir skip, sem hann ætlaði með til Reykjavíkur. Tómas Jónasson var maður enn á bezta starfsaldri, fæddur 5. ágúst 1887 í Skagafirði og af skagfirzkum foreldrum. Hann ólst upp á Beingarði í Hegra- nesi, en hóf síðar búskap á Miðhóli. Hann stofnaði Kaup- félag Fellshrepps og var fram- kvæmdastjóri þess til æfiloka. Hafði félagið í fyrstu aðeins starfsemi í einum hreppi, en nú nær það yfir margar sveitir í utanverðum Skagafirði austan vatna. — Um þennan mæta mann og hið sviplega fráfall hans mun verða nánar ritað hér í blaðinu. völdum ísingar hjá Flögu i Skaftár- tungu og var sambandslaust þar fyrir austan í gærmorgun. Á Holtavörðu- heiði slitnaði ritsímaþráður og á milli Kalastaðakots og Vogatungu urðu smá- vegis línubilanir. Viðgerðum á þessum bilunum var lokið um miðján dag í gær. t r r í fyrravetur kostaði fræðslumála- stjórnin einn mann til farkennslu í skíðaíþrótt á Vestfjörðum. Gafst þessi nýbreytni vel og voru námskeiðin fjöl- sótt. í vetur hefir þessi starfsemi verið aukin og starfa þrir menn að þessari farkennslu á vegum fræðslumála- stjórnarinnar nú í vetur. Halda þessir skíðakennarar námskeið á Austfjörð- um, í Eyjafirði og Suður-Þingeyjar- sýslu og á Vestfjörðum. Byrjaði kennslan að þessu sinni um eða litlu fyrir áramótin og stendur hvert nám- skeið í 1—2 vikur. Fræðslumálastjórnin geldur kennurunum venjulegt farkenn- arakaup, en sveitir eða skólar, sem verða kennslunnar aðnjótandi, sjá um dvalarkostnað þeirra og flutning milli kennslustaða. r t r Nokkrir stúdentar hafa ákveðið að gangast fyrir félagshreyfingu, er nái vítt um land og miði að því, að gera fólki kieift að ferðast um landið á ódýran hátt, og hvetji fólk tll ferðalaga Heimsblöðin flytja daglega hinar hörmulegustu lýsingar á aðbúnaði flóttafólksins, sem streymir frá Kataloniu inn í Frakkland. En jafnframt minna þau á, að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem slíkar hörmungar ger- ast. í seinustu tuttugu aldirnar hafa Kataloniumenn háð fjöl- mörg frelsisstríð, sem að jafn- aði hefir lyktað með ósigri þeirra. Eftir að uppreisnin hófst, þótti tvísýnt í fyrstu, hvort Katalonia myndi óskipt fylgja stjórninni, enda þótt hún hefði borið hærra hluta í Barcelona. En stjórnin tryggði sér fylgi Kataloniumanna næstum ó- skipt með því að heita þeim sjálfstjórn að styrjöldinni lok- inni. Á sama hátt hlaut hún fylgi Baskanna. Franco lýsti því hinsvegar yfir, að markmið hans væri að sameina Spán undir eina stjórn. Sigur hans þýddi því afnám þeirra sérrétt- inda, sem fall konungsvaldsins hafði veitt Kataloniumönnum, og sömu undirokunina og þeir höfðu áðuT verið beittir. Frá sjónarmiði Kataloniu- manna var styrjöldin því ekki fyrst og fremst barátta um yf- irráð uppreisnarmanna eða stjórnarinnar. Hún var barátta um frelsi Kataloniumanna til að ráða sem mestu af málum sínum sjálfir og þess vegna tóku þeir þátt í styrjöldinni með þeim eldmóði, sem lengi verður minnst. Þess vegna skipuðu þreir sér til baráttu á móti Franco, án verulegs tillits til eldri flokkaskipunar. Kataloniumenn hafa löngum verið orðlagðir fyrir frelsisvilja sinn. Fyrsta frelsisstríð þeirra var háð fyrir um 20 öldum liðn- um. Þá höfðu Kartagomenn komið þar upp blómlegu at- vinunlífi. Það voru Rómverjar, sem lögðu Katalonin undir sig, í það sinn. Seinna komu Atanir, Vestur-Gotar og Márar. Hörðust var barátta þeirra við Márana, Síðan hafa Kataloniumenn sem sjálfstæður aðili tekið þátt í öll- um borgarastyrjöldum á Spáni, með það fyrir augum, að heimta sjálfsstjórn og helzt fullt frelsi. En það hefir langoftast mis- á reiðhjólum eða fótgangandi. Er fé- lagsskapur þessi nefndur farfugla- hreyfingin og eru svipuð samtök út- breidd víða um lönd. Þeir, sem fyrir þessum félagsskap beita sér, hafa í hyggju að leita samvinnu við ung- mennafélög landsins og er fyrirhugað að fá að nota fundar- og samkomuhús og skólabyggingar sem gististaði, og búa þau eldfærum og teppum, svo a? ferðalangar geti gíst þar með litlum kostnaði. í öðrum löndum hafa félög þessi víða reist sér sína eigin gisti- staði. Fyrsta farfuglafélagið var stofn- að af nemendum menntaskólans í gær. Gengu 150 manns í þetta nýja félag. Formaður þess var kosinn Kiistbjörg Ólafsdóttir. Næstu vikur verða slík fé- lög stofnuð víðar. r t r Fjárveitinganefnd danska þingsins hefir ákvarðað að veita 25 þúsund krónur á ári næstu fimm ár til undir- búnings að samningu íslenzkrar orða- bókar og útgáfu fornaldarsagna. Eiga þýðingar orðanna að vera bæði á ensku og dönsku. Hafði forstöðunefnd Árna- safns sótt um 50 þúsund króna árlegan styrk til þessa. Eigi nægir þó þessi fjár- veiting nándar nærri til að standast kostnað af þessari útgáfu. heppnazt eða sigurinn orðið skammær. Aðstaða og auðæfi Kataloniu valda því, að erlendum yfir- gangsmönnum hefir þótt land- ið eftirsóknarvert. Að vísu er meginhluti þess frekar harðbýll, en sléttan meðfram ströndinni er líka lang-frjósamasti hluti Spánar. Þar eru víða mjög auð- ugar námur og að öllu saman- lögðu, er Katalonia eftirsókn- arverðasti hluti Pyreneaskag- ans. Sennilega hefir frelsisbarátta Kataloniumanna aldrei verið jafn frækileg og í þessari styrj- öld. Um langt skeið hefir skort- ur matvæla verið svo tilfinnan- legur, að meginþorri fólksins hefir liðið sult. Barnadauði fór því stöðugt vaxandi og allskon- ar veikindi fóru í kjölfar hung- ursins. En Kataloniumenn vildu heldur þola hungrið en að gefast upp. Þeir héldu velli þangað til skotfæri þeirra gengu til þurrðar og öll mótstaða varð því þýðingarlaus. En uppgjöf þeirra var samt ekki algjör. Allir, sem vettlingi gátu valdið, vildu komast hjá því að þjóna hinum nýju vald- höfum. Ekki aðeins karlmenn- irnir, sem höfðu barizt á víg- vellinum og máttu því óttast refsingu, heldur einnig konur, börn og gamalmenni kusu frek- ar hin erfiðu kjör flóttamanns- ins en að biðjast griða og semja sig að boðum hinna nýju hús- bænda. í þúsundatali hefir þetta fólk streymt úr borgum og sveitum Kataloníu og reynt að komast yfir frönsku landamær- in. Og á leiðinni hafa flugvélar Francos sveimað yfir því og varpað á það sprengjum í þeim tilgangi að reyna að hræða það til að snúa aftur. Ekki nema nokkur hluti þessa fólks hefir komizt yfir frönsku landamærin og þó skiptir tala spánskra flóttamanna þar orð- ið mörgum tugum þúsunda. Er- lendir blaðamenn segja, að með- fram öllum þeim vegum, sem þetta fólk hefir farið, sé stráð líkum þeirra, sem hafa gefizt upp af þreytu, hungri eða kulda og biðið dauða síns, þar sem þeir voru komnir. Hinir, sem hraustari voru, hafa orðið að flýta ferðinni og ekki getað sinnt þeim. Hvarvetna á vegun- um liggja eins og hráviði mun- ir, klæðnaður og matvæli, sem flóttamennirnir hafa ekki treyst sér til að bera lengur. Iðulega hefir meginþorri þeirra orðið að leita sér náttstaðar undir berum himni, því húsa- skjól hefir hvergi verið að fá. Veðrátta hefir þó oft verið stirð þenna tíma, bæði fann- koma og mikil frost. Eftir að komið var til Frakk- lands hafa kjör þessa fólks mikið batnað. Það hefir fengið nægilegan mat, en erfiðara hef- ir verið að veita því öllu húsa- skjól. Sjúku fólki hefir flestu verið komið á hjúkrunarstöðv- ar. Annála erlendir blaðamenn mjög hversu myndarlega og skipulega Frakkar hafa ráðið fram úr þessum málum. En hvað bíður svo þessa fólks? Frakkar geta ekki haft það til lengdar. Flest mun það því verða sent heim aftur, nema þeir, sem þurfa að óttast lífláts- dóm og meiriháttar refsingar vegna þátttöku sinnar í styrj- öldinni. Það verður því fyr en síðar að beygja sig undir það vald, sem það var að flýja. Kataloniumenn hafa beðið mikinn ósigur. Þeir hafa misst frelsi sitt, en enginn veit hversu lengi það varir. Reynist þeir trúir fortíð sinni, verður þetta ekki seinasta frelsisstríð þeirra, því engin kúgun er nógu sterk til að sigra þann þjóðstofn, sem vill lifa. * A víðavangi Það er orðið alþekkt fyrir- brigði, að ef hallað er í ræðu eða riti á stjórnarfar hinna erlendu einræðisríkja, er eins og stutt sé á viðkvæman blett á „Sjálf- stæðisflokknum“ íslenzka. Þetta kemur t. d. greinilega fram i Mbl. í dag. í síðasta blaði Tím- ans var rætt nokkur hinna dýr- mætustu mannréttinda, sem lýðræðisskipulagið verndar en einræðisríkin viðurkenna ekki. Mönnum var bent á, hvers virði þessi réttindi væru og það þjóð- skipulag, sem tryggir þau öllum almenningi. En þetta hefir aðalmálgagn Sjálfstæðisflokks- ins ekki þolað, og þótzt þurfa að bera fram varnir fyrir hina „brúnu“ og „svörtu“ vini sína. Sýndist þetta þó svo tilefnis- laust, sem verða má, því að í grein Tímans var ekki vikið að Sjálfstæðisflokknum einu orði. * * * Vörnin, sem Mbl. hefir fram að færa fyrir einræðið að þessu sinni, er þó næsta rýr. Hún er sú, að Tíminn hafi ekki viljað birta grein eftir Aðalstein Sig- mundsson um veitingu fræðslu- málastjórastarfsins. Með þeim ætlar blaðið sér víst að sanna, að á íslandi, sem er lýðræðis- land, ríki ekki prentfrelsi, og sé þetta dæmi þess, að með lýð- ræðisþjóðskipulagi séu hin þýð- ingarmestu mannréttindi engu betur tryggð en í ejnræðisþjóð- skipulagi! * * * En einmitt þessi málfærsla Mbl. er gott dæmi um þá blygðunarlausu rakafölsun, sem nú er beitt gegn lýðræðinu víða um lönd. Það er kunnugt, að öll blöð hér á landi, þar á meðal Mbl. sjálft, synja um birtingu greina, sem þau hafa ekki rúm fyrir eða af einhverjum ástæð- um kæra sig ekki um að birta. Slikt á ekkert skylt við tak- mörkun prentfrelsis. Önnur af greinum A. S. hefir komið út í Alþýðublaðinu. Hina mun höf. gefa út sérprentaða. Morgun- blaðinu sjálfu er velkomið að birta þær báðar, ef það vildi, og myndi áreiðanlega engin hindr- un verða á það lögð af hálfu stjórnarvalda landsins, enda hafa þau engin afskipti af þessu máli haft. í einræðisríki er þetta á allt annan veg. Ef ein- hver skrifar t. d. blaðagrein, sem hin opinbera ritskoðun tel- ur athugaverða, má hún hvergi koma út. Blað, sem leyfði sér að birta slíka grein, væri tafarlaust gert upptækt og bæði ritstjór- inn og greinarhöfundurinn sett- ir í fangabúðir. Þannig er á- standið, þar sem prentfrelsið er ekki lengur til. Og vonandi tekst dulbúnum andstæðingum lýðræðisins ekki að rugla dóm- greind almennings í þessu efni. * * * Mbl. 10. þ. m. kallar það „broslegt“, að „allir sem vinna við útgerð á sjó og landi, taki laun sín í hlut og afla“. Þetta fyrirkomulag hefir þó viðgeng- izt í mörgum verstöðvum lands- ins öldum saman, án þess, að nokkur hafi að því „brosað“. Englendingar og Norðmenn nota líka mikið hlutaskipti á fiskiflota sínum og hafa ennþá ekki orðið að athlægi fyrir það hjá öðrum þjóðum. — Hitt þyk- ir Mbl. þó enn broslegra, að „sett verði lög um laun opin- berra starfsmanna, er tryggi það í framtíðinni, að launin taki breytingum til hækkunar eða lækkunar, eftir verði á fram- leiðsluvöru landsmanna á hverjum tíma og vinni gegn ó- samræmi á kjörum framleið- enda og launastétta“. * * * Út af ummælum Mbl. um frumvarp milliþinganefndar- innar í launamálum, er rétt að taka það fram, að samþykkt þess myndi hafa þýtt hækkun en ekki lækkun á launagreiðsl- um ríkisins í heild. Og það er áreiðanlega talsvert almennt á- (Framh. á 4. síðu) A KROSSGÖTUM Verzlunarjöfnuðurinn. — Viðskiptasamningar. — Símabilanir. — Farkennsla í skíðaíþrótt. — Ný félagshreyfing. — Dönsk styrkveiting.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.