Tíminn - 07.03.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR: \
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 b. )
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA \
OG A UGLÝSINGASKRIFSTOFA: \
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 d. .
Sími 2323. )
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í. S
Símar 3948 og 3720. \
23. árg.
Hoykjavík. þriðjjudagimi 7. marz 1939
28. blað
Löggjöf um íþróttir
Tillögur íþróttanefndarinnar, sem forsæt-
isráðherra skípaði síðastliðið vor til að
undirbúa slíka löggjöí
Myndin sýnir Djibouti og járnbrautina, sem liggur þaðan til Addis Abeba.
Franska Somaliland er lítið og þykir líklegt, að ítalir vilji í framtíðinni
ná því og Brezka-Somálílandi á vald sitt, en bœöi þessi landssvœði eru
umkringd af nýlendum ítala eins og sjá má á myndinni.
Fyrirætlaiiir Itala
Forsætisráðherra skipaði
sl. vor níu manna nefnd til
að gera tillögur um ráðstaf-
anir til aukinnar íþrótta-
starfsemi og líkamsræktar
meðal þjóðarinnar. Nefndin
hefir nú lokið við samningu
á ítarlegu frv. til íþrótta-
laga og hefir það verið lagt
fram í neðri deild.
Frv. er í sex köflum og verður
hér gerð nokkur grein fyrir
hverjum þeirra um sig.
Fyrsti kafli fjallar um stjórn
íþróttamála. Skal kennslumála-
ráðherra hafa yfirstjórn allra
íþróttamála að því leyti, er ríkið
lætur þau til sín taka. Til að-
stoðar honum skulu vera sér-
stakur íþróttafulltrúi, launaður
úr ríkissjóði, og þriggja manna
íþróttanefnd. Skipar ráðherra
einn mann í nefndina, í. S. í.
einn og U. M. F. í. einn. Vinnur
nefndin og fulltrúinn sameigin-
lega að umsjón og endurbótum
á þessum málum og er þeim,
sérstaklega íþróttafulltrúanum,
falið mjög margþætt verkefni í
frv. íþróttafulltrúinn skal m. a.
vera íþróttafélögum og öðrum
aðilum til leiðbeiningar og að-
stoðar um íþróttamál eftir því,
sem óskað er.
Annar kafli fjallar um í-
þróttasjóð. Skal stofna sérstak-
an sjóð til eflingar íþróttum í
landinu og skal Alþingi sjá hon-
um fyrir nægilegum tekjum.
Styrki úr sjóðnum má veita til
hverskonar íþróttastarfsemi eða
mannvirkja og tækja, sem bæta
aðstöðu til íþróttaiðkana. Styrki
má veita til félaga í í. S. í. og U.
M. F. L, skóla, hreppsfélaga og
sýslufélaga.
Þriðji kafli fjallar um íþróttir
í skólum. Eru þar fyrirmæli um
Rannsóknír á vita-
mínauðgí íslmjólkur
Að tilhlutun mjólkursamsöl-
unnar hafa að undanförnu far-
ið fram rannsóknir á vitamin-
auðgi íslenzkrar mjólkur. Hefir
rannsóknarstofa háskólans,
undir handleiðslu prófessors
Níelsar Dungal, haft þær rann-
sóknir með höndum. Voru
fjöldamörg sýnishorn tekin af
mismunandi mjólk, bæði frá
einstökum búum hér í grennd-
inni, kaldhreinsaðri mjólk og
samhelltri, gerilsneyddri mjólk.
Tvær athuganir voru gerðar
með gerilsneydda mjólk og
leiddi önnur þeirra í ljós, að í
mjólkinni voru 14 mgr. af c-
vitamini í hverjum lítra, en hin
sýndi 13 mgr. skammt af c-
vitamini í hverjum lítra.
Öll mjólkursýnishorn voru
tekin í janúarmánuði og febrú-
armánuði, sem óhætt mun að
álita þá mánuði ársins, sem
mjólkin yfirleitt sé einna rýrust
að bætiefnum, en að vorlagi og
sumarlagi mun hún hinsvegar
stórum auðugri að þeim efn-
um, þannig að ef tekið væri
þá meðaltal af vitaminauðgi
mjólkurinnar, myndi útkoman
verða enn glæsilegri.
í árásargreinum í Morgun-
blaðinu hefir Jónas Sveinsson
læknir fullyrt, að í góðri út-
lendri mjólk væri 10 mgr. af c-
vitamini í hverjum lítra. Sé
nokkuð upp úr þeirri staðhæf-
ingu leggjandi hefir komið á
daginn, að íslenzk mjólk er að
minnsta kosti 30—40% bæti-
efnaríkari heldur en gerist um
útlenda mjólk.
fimleikakennslu í barnaskólum
eftir því, sem aðstæður leyfa.
Öll börn á landinu skulu læra
sund, nema þau séu óhæf til
þess að dómi skólalæknis. Leik-
fimi skal kennd i öllum æðri
skólum. Allir fastir barnaskólar
og æðri skólar skulu hafa til
umráða hæfilegt landssvæði
eða leikvang til þess að iðka
knattleiki og útiiþróttir. í öllum
barnaskólum og öðrum almenn-
um skólum skal fara fram
kennsla um heilsuvernd, gildi
íþrótta og skaðsemi eitur-
nautna.
Fjórði kafli fjallar um
íþróttakennslu. Samkvæmt
honum getur enginn orðið
íþróttakennari, nema hann hafi
(Framh. á 4. síðu)
Furðulegar fregnír
í brezku stórblaðí
í útvarpinu birtist í gærkvöldi
svohljóðandi fréttaskeyti frá
Kaupmannahöfn:
„Samkvæmt símskeytum til
sænskra og danskra blaða flyt-
ur blaðið „Manchester Guar-
dian“ grein, sem vekur mikla
eftirtekt, um starfsemi Þjóð-
verja á íslandi.
Blaðið segir, að Þjóðverjar
óski að koma á yfirráðum naz-
ista á íslandi til þess að setja
þar á laggirnar kafbátastöð og
flugflotastöð.
Telur blaðið möguleika á
vopnaðri stjórnbyltingu á ís-
landi og skýrir frá því, að vopn-
um sé smyglað inn í landið.“
Skeyti þetta er birt í dagblöð-
unum i Reykjavik í morgun. En
útvarpið mun hafa gert ráðstaf-
anir til að fá nánari fregnir um
efni hinnar umræddu greinar i
Manchester Guardian.
Halldór Eggert Sigurðsson bóndi á
Staðarfelli á Fellsströnd er gestkom-
andi hér í bænum um þessar mundir
og hefir tíðindamaður Tímans hitt
hann að máli. Tíðarfar var þar vestra
gott til loka janúarmánaðar, en þá brá
til óstilltrar veðráttu og var ýmist
fannkoma eða blotar. Hafa hagar verið
mjög slæmir lengst af síðan og beit
ekki notazt ’vegna umhleypinga og
rosa, þótt eigi hafi verið jarðbönn með
öllu. Hefir verið innistaða á sauðfé og
á flestum bæjum eru einnig allir hest-
ar á gjöf.
i I I
Mæðiveikin hefir enn gert lítinn usla
í hreppnum, en þó hefir hennar orðið
vart á tveimur bæjum, þar sem hún
hefir þegar valdið nokkru tjóni. Hún
kom fyrst upp á þessum slóðum haust-
ið 1937. — Refabú eru fimm í sveitinni,
öll heldur smá, en þó eiga fleiri heim-
ili ítök í þeim. Binda ýmsir nokkra
von við loðdýraræktina, ef hin geig-
vænlega fjárpest leggur sauðfjárbú-
skap að rneira eða minna leyti í rústir,
um skeið að minnsta kosti.
t t f
í janúarmánuði var stofnað fiski-
ræktar og veiðifélag í sveitinni og
standa að því tólf jarðir í hreppnum.
Árnar, sem hér er stofnað fiskiræktar-
félag um, eru Flekkudalsá, Kjarlaks-
staðaá og Tunguá. Lax gengur ekki í
árnar, en dálítið af silungi er í Kjar-
laksstaðaá og Tunguá. Flekkudalsá er
hinsvegar ekki geng laxi eða silungi,
Aðalíundur
Flóabúsíns
Útborgað mjólkurverð
til bænda hækkað um
tvo aura á líter á síð-
astliðnu ári
Aðalfundur Mjólkurbús Flóa-
manna var haldinn að Þingborg
á Skeggjastöðum síðastliðinn
laugardag. Mættir voru um 300
félagsmenn og fulltrúar úr
ílestum hreppum Árnes- og
Rangárvallasýslu.
Á fundinum var gefin ítarleg
skýrsla um starfsemi búsins á
liðna árinu. Alls hafði verið tek-
ið á móti 5.629.722 lítrum af
mjólk á árinu, en næsta ár á
undan var tekið á móti 4.835
þús. lítrum. Aukningin stafar
að mestu leyti af því, að Mjólk-
urbú Flóamanna og Kaupfélag
Árnesinga keyptu Ölfusbúið
um mitt sumar í fyrra og fékk
Flóabúið eftir það mjólk af því
svæði, sem áður hafði sent hana
til Ölfusbúsins. Ölfusbúið er nú
eingöngu notað til ostagerðar.
Það var selt framangreindum
aðilum á 132 þús. kr.
Útborgað yerð á mjólkinni til
bænda varð að meðaltali 23.4
aurar á hvern lítra og er það
rúmum tveimur aurum meira en
greitt var árið áður. Frá þessu
verði dregst flutningskostnaður
á mjólkinni til búsins.
Eignir búsins voru afskrifað-
ar á árinu um 30 þús. kr. og af
tekjum ársins voru um 56 þús.
kr. yfirfærðar til næsta árs.
í árslok voru í búinu 784 fé-
lagsmenn og höfðu 156 félags-
menn bætzt við á árinu. Flestir
nýju félagsmennirnir eru á því
svæði, sem áður sendu mjólk til
Ölfusbúsins.
Á fundinum var samþykkt að
verja 5000 kr. til byggingar
kvennaskóla á Laugarvatni og
500 kr. til héraðsbókasafns.
Stjórn búsins skipa nú
Egill Thorarensen kaupfélags-
stjóri (formaður), Sigurgrímur
Jónsson bóndi í Holti og Dagur
Brynjólfsson bóndi í Gaulverja-
bæ.
vegna ókleifra fossa. Hyggst hið ný-
stofnaða félag að ráða bót á því, þegar
fram líða stundir. Ólafur Sigurðsson
fiskiræktarráðunautur skoðaði ámar
í sumar og leizt honum mjög vel á þær
til fiskiræktar. Formaður fiskiræktar-
félagsins var kosinn Magnús Jónasson
í Túngarði, en meðstjórnendur hans
Guðmundur Ólafsson á Ytra-Felli og
Jóhannes Jóhannesson á Kjarlaksstöð-
um. Eru framkvæmdir af hálfu félags-
ins í undirbúningi.
t t t
í Staðarfellsskóla eru í vetur 24
námsmeyjar, en fleirum getur skólinn
ekki veitt móttöku. Nemendur þessir
eru víðsvegar að af landinu, og yfir-
leitt mjög áhugasamir. Forstöðukona
skólans er Ingibjörg Jóhannsdóttir
frá Löngumýri í Skagafirði, og hefir
hún verið það tvo síðastliðna vetur.
Fastakennarar eru þrír. Umsóknir eru
þegar farnar að berast fyrir næsta
vetur, en ekki er þó skólinn fullskip-
aður næsta ár ennþá. í sl. sumri stóð
til að skblinn yrði raflýstur, en af þvi
gat þó ekki orðið vegna óviðráðanlegra
atvika. Eru allar líkur til að þessari
umbót skólanum til handa, verði kom-
ið í kring á næsta sumri. ,
t t r
Afráðið hefir að á komandi sumri
verði hafin rannsókn á fornum bæja-
rústum í Þjórsárdal. Hafa danskir
fornfræðingar fengið styrk úr Carls-
bergssjóði og sænskir fornfræðingar úr
sjóði Wennergrens til íslandsfarar í
Sama þófið heldur enn áfram
í Spánarmálunum. Meiri líkur
eru þó taldar fyrir vopnahléi en
áður, því nú um helgina gerðist
sá atburður á Mið-Spáni, að
stjórn Negrins var steypt af
stóli og hafa nú hinir hægfara
flokkar, sem studdu lýð-
veldisstjórnina upphaflega, tek-
ið völdin í sínar hendur. Kom-
múnistar hafa í fyrsta sinn
síðan styrjöldin hófst, verið úti-
lokaðir frá þátttöku í stjórn-
inni.
Hin nýja stjórn virðist njóta
bæði stuðnings hersins og al-
mennings. Markmið hennar er
talið það, að semja um frið við
Franco á þeim grundvelli, að
allir útlendir hermenn verði
fluttir af Spáni og stjórnarsinn-
ar njóti fullra griða. Náist ekki
samkomulag á þeim grundvelli,
því skyni að eiga kost á að taka þátt
í uppgreftri rústanna. Finnskir forn-
fræðingar hafa einnig hug á að taka
þátt í þessum rannsóknum. Matthias
Þórðarson fornminnjavörður mun
hafa með höndum stjórn og umsjón
með verkinu, og munir þeir, sem
finnast kunna, falla í eign Þjóðminja-
safnsins. Einkum er það lega bæjar-
rústanna og byggingarlag, sem athuga
á. Alls munu vera um tuttugu bæjar-
rústir í Þjórsárdal og auk þess forn
grafreitur að Skeljastöðum, sem í ráði
er að rannsaka. Er óvíst hvort þar
er um að ræða grafreit frá kristinni
tíð, en munnmæli herma, að kirkja
hafi verið að Skeljastöðum, eða bein
þau, er þar eru, séu frá heiðnum
tíma. Mjög er þessi grafreitur nú orð-
inn uppblásinn. Talið er að byggð hafi
eyðzt í dalnum laust fyrir miðja 14.
öld af völdum eldgoss. Eigi er þó sann-
að svo hafi verið og telja ýmsir að
of mikil búnýting og sauðfjárbeit hafi
átt meiri þátt í eyðingu dalsins, en
hingað til hefir verið talið.
r t t
Tveggja mánaða vefnaðarnámskeið
hefir staðið yfir í Neskaupstað í Norð-
firði og er nú nýlega lokið. Níu konur
tóku þátt í námskeiðinu. Var haldin
sýning á vefnaði þeirra að námskeið-
inu loknu, og var góður rómur að
gerður. Kvenfélagið Nanna gekkst fyr-
ir námskeiði þessu, en stjórnandi þess
var Sigurlína Sigurðardóttir.
ætlar stjórnin að berjast til
þrautar. Er talið að hún hafi
um 500 þús. sæmilega æfðra
hermanna á að skipa og er það
lið mun betra en Kataloníu-
herinn var. Sömuleiðis er hann
betur vopnum búinn. Vörn hans
er þó talin vonlaus til lengdar,
sökum skorts á skotfærum og
matvælum.
Það er álitið, að Franco hafi
beðið Mussolini að kveðja ít-
alska herliðið heim, en hann
hafi neitað að verða • við þeim
óskum. Þykir sennilegt, að
Mussolini vilji fá Frakka til að
veita sér ýms hlunnindi áður
en hann kallar Spánarlið sitt
heim og sé hann þess mjög
fýsandi, að haldin verði ráð-
stefna um þau mál.
Mörg erlend blöð halda því
fram, að ítalir meini ekki
landakröfur sínar á hendur
Frökkum alvarlega og þess
vegna hafi þær aldTei verið
bornar fram í nafni stjórnar-
innar. Það, sem fyrir ítölum
vaki, sé að fá Frakka til nokk-
urra tilslakana nú, án þess að
þeir þurfi að láta nokkurt land
af hendi, í þeirri von, að slíkt
undanhald muni hjálpa til að
lama mótstöðukraft þeirra í
framtíðinni.
Tilslakanir þær, sem Musso-
lini óskar að Frakkar geri nú,
eru taldar þessar:
1. Höfnin Djibouti í Franska-
Somalilandi verði gerð að frí-
höfn fyrir ítali og fái þeir að
setja þar upp sérstök hafnar-
mannvirki og vöruskemmur.
Jafnframt fái þeir umráð yfir
járnbrautinni frá Djibouti til
Addis Abeba, höfuðborgarinnar
í Abessiniu. Djibouti er nú aðal-
hafnarbær Abessiníu og þang-
að liggur eina járnbrautin frá
hinum frjósamari hlutum
landsins til strandarinnar.
Járnbrautarlagning til annarra
hafnarstaða er miklum erfið-
leikum bundin. ítalir geta því
tæpast hagnýtt sér yfirráð sín
í Abessiníu, nema þeir fái stór-
um bætta aðstöðu í Djibouti.
2. ítalir fái aukna hlutdeild
í stjórn Suesskurðarins, sem
tengir saman Miðjarðarhafið
og Rauðahafið og öll ítölsk skip,
sem ganga á milli Ítalíu og A-
bessiníu þurfa að fara í gegn-
um. Suesskurðurinn var opnað-
ur til umferðar 17. nóv. 1869.
Egipzka stjórnin átti upphaflga
50% af hlutafénu, Frakkar 44%
og ítalir afganginn. Árið 1885
(Framh. á 4. síðu)
A víðavangi
Blaðið Vísir virðist nú fyrir
alvöru hafa tekið að sér það
hlutverk að túlka málstað þeirra
manna innan Sjálfstæðisflokks-
ins, sem ekkert raunverulegt
samstarf vilja við aðra flokka og
ekkert vilja á sig leggja fyrir
sjávarútveginn. Er blaðið með
einhverskonar ólíkindalæti um
það, að „ríkisstjórnin sé á bak
við tjöldin að leita samkomu-
lags um einhverjar tillögur um
lausn þessara mála“ og talar
um „pukur“ I því sambandi. En
aðstandendur Vísis vita áreið-
anlega fullvel, að viðræður hafa
átt sér stað milli flokkanna og
um hvað þær viðræður hafa
snúizt. Þeir vita líka vel, að það
er ekki líklegasta leiðin til sam-
komulags að leggja tillögur eins
flokks „opinberlega fram á Al-
þingi“ og hefja um þær baráttu
í ræðu og riti áður en möguleik-
arnir til samstarfs hafa verið
gaumgæfilega athugaðir.
* * *
Þá talar Vísir um það í gær, að
Framsóknarflokkurinn ætti að
láta sér nægja að sæmilegt at-
kvæðamagn fengist á þingi til
að koma fram lögum til við-
reisnar sjávarútveginum, þótt
ekki fengist jafnframt þriggja
flokka samvinna um að standa
með þeim lögum í framkvæmd-
inni. En á þeim tveimur er, eins
og allir skilja, mikill munur.
Þeir, sem kunnugir eru pólitísk-
um veðrabrigðum síðustu tíma,
geta vel hugsað sér það ástand,
að þingmenn úr ákveðnum
flokki greiði atkvæði með lögum,
sem erfið eru í framkvæmd, en
að eftir á sé af mönnum úr hin-
um sama flokki leynt og ljóst að
því unnið að vekja andúð gegn
lögum og gera framkvæmdina
torvelda fyrir þá, sem af henni
hafa vandann. „Vinir sjávarút-
vegsins“ verða að gera sér það
ljóst, að stuðningur þeirra við
lagasetningu á þingi, er ekki
nema hálfur stuðningur, ef þeir
hliðra sér hjá að bera ábyrgðina
á því, sem á eftir fer.
* * *
Það væri synd að segja, að
Mbl. hafi með skrifum sínum
undanfarnar vikur gert sitt til
að stuðla að samstarfi því milli
flokka, sem til umræðu hefir
verið. Allan þann tima, sem við-
ræðurnar hafa staðið, hefir
blaðið forðast það eins og heitan
eldinn, ef svo mætti segja, að
birta nokkurt orð, sem til þess
gæti verið að greiða fyrir, að
viðræðurnar bæru árangur. En
nú hefir blaðið sennilega, hjá
einhverjum flokksmönnum sín-
um fengið bágt fyrir frammi-
stöðu sína í þessu máli. Og í for-
ystugrein í dag, reyna ritstjór-
arnir að þvo hendur slnar.
* * *
Blaðið þykist hafa það sér til
afsökunar að einmitt þessa
sömu daga hafi Tíminn verið að
birta „hinar svívirðilegustu get-
sakir og aðdróttanir í garð
Sjálfstæðismanna“! Þessu er
þeim ætlað að trúa, kjósendum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
sem ekki lesa Tímann, og vita
því ekki, hvað í honum hefir
staðið um þau mál, sem nú er
reynt að finna lausn á í viðræð-
um flokkanna. Þeim, sem Tim-
ann lesa, þýðir ekki að segja, að
hann hafi spillt fyrir samstarf-
inu. Það vita ritstjórar Mbl.
mæta vel.
* * *
Þjóðviljinn er í dag með lang-
an heilaspuna um það að Fram-
sóknarflokkurinn muni vilja
„kæfa niður alla rannsókn á
stórútgerðinni", „gefa Kveld-
úlfi eftir“, „banna hverja þá
flokka, sem ekki vilja bera
ábyrgð á svindlinu", o. s. frv.
Ekki er gott að vita, hvaðan
blaðinu kemur þessi vizka, og þá
heldur ekki, hvernig það kemst
að þeirri niðurstöðu, að gengis-
Iækkun myndi hækka laun for-
stjóranna i Sölusambandi ísl.
f iskframleiðenda!
Tíðarfar í Dölum. — Úr Fellsstrandarhreppi. — Fiskiræktar-
Fellsströnd. — Staðarfellsskóli. — Uppgröftur bæjarrústa í
Vefnaðarnámskeið í Neskaupstað.
og veiðifélag á
Þjórsárdal. —