Tíminn - 07.03.1939, Side 4
114
TÍMIM, lirigijiidagfim 7. marz 1939
28. blað
MOLAH,
Nýlega er látinn einn mesti
auðmaður heimsins, oliukóngur-
inn Henry Deterding. Hann var
72 ára gamall, þegar hann lézt.
Deterding var sonur skipstjóra
í Amsterdam. Faðir hans lézt,
þegar drengurinn var á ferm-
ingaraldri og varð hann að
vinna fyrir sér sjálfur eftir það.
Hann vann fyrst við blaðasölu,
síðan í banka og þar nœst hjá
hollenzka nýlenduverzlundrfé-
laginu. Þar komst hann í kunn-
ingsskap við Jorstjóra olíufé-
lagsins Royal Dutch. Honum
gazt svo vel að Deterding, að
hann réði hann strax í þjónustu
félagsins. Þar hœkkaði hann
stöðugt í tigninni, stig af stigi,
unz hann varð forstjóri félagsins
1902. Hann vann að því með
miklum dugnaði, að sameina hin
ýmsu olíufélög og þegar hann
dró sig til baka 1936, hafði hann
um nokkurt skeið verið forstjóri
eins stœrsta verzlunarfélags
veraldarinnar, Shell, og hafði
sjalfur grœtt óhemju fé.
Fyrir utan verzlunarrekstur
sinn, var Deterding frœgastur á
síöari árum fyrir andúð sina
gegn kommúnistum. Voru til
þess tvœr ástœður. Rússneska
kommúnistastjórnin tók olíu-
námur hans endurgjaldslausu
eignarnámi og um líkt leyti gift-
ist hann rússneskri furstadóttur.
Til þess að klekkja sem mest á
kommúnistum, studdi hann
Mussolini og Hitler mjög öflug-
lega og útvegaði t. d. Þýzka-
landi oft stór lán og gaf því
stórar gjafir. Auk þess veitti
hann rússneskum flóttamönn-
um, sem voru andvígir kommún-
istum, margvíslega hjálp og
kostaði m. a. nokkur hundruð
rússneska stúdenta til háskóla-
náms. •
Á síðari árum vakti það mest
umtal um Deterding, að nokkru
eftir að hann varð sjötugur,
skildi hann við rússnesku fursta-
dótturina og giftist eínkaritara
sínum, sem var helmingi yngri
en hann. Höfðu þau eígnazt
barn nokkru áður en hann lézt.
* * *
Frœgasta flugkona, sem nú er
uppi, er sennilega Jean Batten.
Hún hefir flogið eftirfarandi
leiðir einsömul:
1933: Frá Englandi til Ind-
lands.
1934: Frá Englandi til Ástra-
líu; 10.500 enskar mílur.
1935: Frá Ástralíu til Eng-
lands.
1936: Frá Englandi til Nýja
Sjálands, 14000 enskar mílur á
11 dögum og 45 mín. Hafði eng-
inn flogið þessa leið i beinu
áframhaldi áður. í þessari ferð
setti hún met á leiðinni frá Eng-
landi til Ástralíu.
1937: Frá Ástralíu til Eng-
lands á 5 dögum, 18 klst. og 15
mín. Var það met í einstaklings-
flugi á þeirri leið.
Jean Batten er af enskum
ættum, fœdd i Ástralíu.
ÚR BÆIVUM
Ferðafélag íslands
heldur skemmtifund að' Hótel Borg
í kvöld. Vigfús Sigurgeirsson ljósmynd-
ari sýnir skuggamyndir frá öræfum
landsins. Síðan verður sýnd ferða-
kvikmynd frá Svíþjóð. Dansað til kl. 1.
Húsið verður opnað kl. 8.15.
Ungmennafélagið Velvakandi
heldpr fund í Kaupþingssalnum kl. 9
í kvöld. Fjölbreytt dagskrá.
Skátablaðið
fæst keypt í ísafoldarprentsmiðju og
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Björgun.
Á sunnudaginn hvolfdi kajak undir
pilti, Edvald Eyjólfssyni að nafni,
vestanvert við grandagarðinn. Bjargaði
drengurinn sér á sundi upp á sker og
tókst að gera aðvart í land. Voru lög-
re°luþjónar kvaddir til hjálpar og
tókst þeim að bjarga drengnum af
skerinu.
M.-A.-kvartettinn
söng í Gamla Bíó á sunnudaginn var.
Var húsið troðfullt og var söngmönn-
um óspart klappað lof í lófa. Næst
syngur kvartettinn í Gamla Bíó á
fimmtudagskvöld. Hefst söngskemmt-
unin kl. 7. Aðgöngumiðar verða seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og í Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Gestir í bænum.
Halldór Eggert Sigurðsson bóndi á
Staðarfelli, Jón Kjartansson verkstjóri
á Siglufirði, Jóhannes Björnsson bóndi
á Hóli í Lundarreykjadal, Þórólfur
Jónsson smiður frá Auðnum í Laxár-
dal, S.-Þing.
Löggjöf um íþróttir
(Framh. af 1. síðu) ■
lokið’ tilteknu námi og fullnægi
settum skilyrðum.
Fimmti kafli fjallar um
frjálsa íþróttastarfsemi. Sam-
kvæmt honum er íþróttastarf-
semi utan skólanna falin frjálsu
framtaki landsmanna og fer
aðallega fram í félögum. Ræðir
síðan nánara um réttindi þeirra
og þau skilyrði, sem þau verða
að fullnægja, til að geta notið
viðurkenningar og styxks úr
íþróttasj óði.
Sjötti kafli fjallar um ýms á-
kvæði. Er þar m. a. fyrirmælt,
að hreppsfélög, bæjarfélög eða
sýslufélög skulu leggja til
endurgjaldslaust hentug lönd og
lóðir undir íþróttamannvirki,
sem styrkt eru úr íþróttasjóði
eða íþróttanefnd viðurkennir.
Er heimilt að taka slík lönd
eignarnámi, ef þörf krefur. —
í nefndinni, sem samdi
frumvarpið, áttu sæti: Pálmi
Hannesson rektor (form.), Guð-
mundur Kr. Guðmundsson
skrifstofustjóri, Jón Þorsteins-
son íþróttakennari, Steinþór
Sigurðsson skólastjóri, Aðal-
steinn Sigmundsson kennari,
Erlingur Pálsson yfirlögreglu-
þjónn, Erlendur Pétursson for-
maður K. R., Jón Kaldal form.
í. R. og Óskar Þórðarson barna-
læknir.
Borðið á Heltt og Kalt
Veltusundi 1. . Hafnarstræti 4
Nýleya var hleypt af stokkunum stœrsta orustuskipi Þjóðverja. SkipiS var
smíöað í Hamborg. Það hefir hlotið nafnið Bismark. MyncLin sýnir skips-
skrokkinn, fagurlega prýddan, litlu áður en því var rennt á flot.
Ritsafn Jónasar Jónssonar
Þeir áskrifendur að ritgerðasafni Jónasar Jónssonar,
er kynnu að hafa orðið fyrir vanskilum, eru vinsam-
lega beðnir að láta Bókaútgáfu S. U. F. vita það hið
allra fyrsta. Slíkar kvartanir séu áritaðar:
Bókaúfgáfa S. U. F., pósthólf 961, Reykjavik
Reykjavíkurannáll h.f.
IJtbreimð TÍMANN
Revyaii
Fornar dy gðir,
model 1939
Sýning á fimmtudags-
kvöld kl. 8 stundvísl.
Aðgöngumiðar seldir á mið-
vikudag frá kl. 4—7 og eftir kl.
1 á fimmtudag.
VENJULEGT LEIKHÚSSVERÐ
frá kl. 3 á fimmtudag.
Fyrirœtlanír Itala
(Framh. af 1. síðu)
buðu Egiptar ítölum sinn hluta
til kaups, en þeir þáðu ekki
boðið, og keyptu Bretar hann
þá. Hefir þessi skipting hluta-
Andreas Poltzer:
Patricia
279
átti að sér. En hún hafði lag á að leyna
tilfinningum sinum.
— Herra fulltrúi. Gerið þér svo vel að
koma inn .... Röddin virtist vera undr-
andi. En hún spurði ekki Whinstone einu
orði um hvert erindi hans væri. Hún fór
með hann inn í dagstofu sína og bauð
honum sæti.
Whinstone settist án þess að segja orð.
Eftir svolitla stund bað hann hana um
leyfi til að mega reykja. Alice Bradford
tók fram ljómandi fallegt hylki og rétti
honum.
— Gerið þér svo vel.
Whinstone tók sér sígarettu og Alice
Bradford gerði eins. Whinstone gaf henni
eld og kveikti svo í hjá sér. Það breidd-
ist einkennileg lykt um stofuna af síg-
arettunum. Fulltrúinn hnusaði. Alice
Bradford tók eftir því og sagði:
— Ég fæ þessar sígarettur frá Malta.
Það er leyndarmál verksmiðjunnar
hvernig þær eru búnar til. Ég held ekki
að það séu aðrir en ég, sem reykja þær
hér I London.
— Það er víst rétt, ungfrú Alice.
Alice kipptist við og rétti úr sér í stóln-
um og fulltrúinn hélt áfram.
— Ungfrú Alice. Þér vitið víst að allir
glæpamenn gera sig fyrr eða síðar seka
um einhverja óvarkárni, sem kostar þá
frelsi þeirra. Einnig þér, ungfrú Alice,
hafið hvað yður snertir, gert yður seka
í þesskonar — látum okkur segja — ó-
varkárni.
Whinstone benti á sígarettuna, sem
hún hafði í hendinni og hélt svo áfram:
— Sá sem einu sinni hefir fundið lykt-
ina af þessum sígarettum gleymir henni
ekki aftur. Án þess að vita af því eða
gera yður grein fyrir því, hafið þér svo
að segja skilið nafnspjaldið yðar eftir
hvar sem þér hafið komið, því að þér
eruð alltaf síreykjandi. Lyktin af þessum
sígarettum er í herberginu löngu eftir að
þér eruð farin þaðan, og eins og þér
sögðuð sjálf áðan, eruð þér eina mann-
eskjan í London, sem notar þessar sígar-
ettur.
— Og hvaða ályktun dragið þér af
því? tók Alice Bradford fram í fyrir full-
trúanum.
— Ég er t. d. í fyrsta lagi ekki í vafa
um, að súðarkytran í Upper Harley Street
hefir verið notuð af yður til mjög ein-
kennilegra og grunsamlegra gerfaskipta!
— Þrátt fyrir að þér funduð fingraför
Catherine Woodmill á hlutum þar inni?
— Já. Það er yðar að gera mér grein
fyrir, hvernig þau fingraför eru komin
þangað.
Unga stúlkan þagði.
— Jæja, ungfrú Alice?
— Ég heiti ungfrú Bradford, sagði
E.s. Lyra
fer héðan 9. þ. m. kl. 7 e. h. til
Bergen um Vestmannaeyjar og
Þórshöfn.
Flutningi veitt móttaka til
hádegis á fimmtudag.
Farseðlar sækist fyrir sama
tíma.
fjársins haldizt óbreytt síðan.
Samkvæmt samningi Breta,
Austurríkismanna, Þjóðverja,
ítala, Hollendinga, Tyrkja og
Rússa frá 1888 skal skurðinum
haldið opnum fyrir skip allra
landa, án tillits til styrjalda eða
annarra ástæðna. ítalir telja
nú að skipting hlutafjárins sé
orðin óréttlát og þeim beri
meiri hlutdeild í stjórn skurð-
arins. Einnig kvarta þeir und-
an því, að of þung gjöld séu lögð
á skipin, sem fara um skurðinn.
Miðað við smálestafjölda þeirra
skipa, sem um skurðinn fara,
nota Englendingar hann lang-
mest og ítalir þar næst. Eng-
lendingar nota hann þó 2 y2
sinnum meira en ítalir. ítalir
gera heldur ekki kröfu til þess
að svo stöddu að Bretar afhendi
þeim hlutabréf sín, heldur
beina þeir kröfunni um það til
Frakka, sem nota skurðinn
miklu minna en ítalir.
3. ítalir fái aukin réttindi í
Tunis og minni skorður verði
settar við því, að þeir geti flutt
þangað. Samkvæmt gömlum
samningi halda ítalir, sem flytj a
þangað, áfram ítölskum borg-
araréttindum og heyra undir
stjórn ítaliu, en þessi ákvæði
falla úr gildi 1965 samkvæmt
fransk-ítölskum samningi frá
1935. Vegna þess samkomulags,
sem þá náðist um Tunis, vildu
Frakkar ekki styðja Breta til
algerðra refsiaðgerða gegn ít-
alíu fyrir Abessiníustríðið og
súpa þeir nú seyðið af þeirri
framkomu sinni þá.
Gegn þessum tilslökunum
þykir líklegt að ítalir myndi
semja frið við Frakka um stund-
arsakir. Það þykir einnig senni-
legt að Bonnet utanríkisráð-
herra Frakka vilji semja á þess-
um grundvelli. En Daladier og
margir aðrir áhrifamenn
Frakka eru taldir andvígir öll-
um tilslökunum.
,»»»tmm»GAMLA Bíó»u»»nm»|
Bulidog Dfumm-
ond í iífshættu!
Afar-spennandi amerísk
leynilögreglumynd eftir
,,SAPPER“. — Aðalhlut-
verkin leika:
John Barrymore
Louise Campell
John Howard.
í SÍÐASTA SINN.
nýja bíó
Saga Borgar-
ættarinnar
Kvikmynd eftir sögu
Gunnars Gunnarssonar,
tekin á íslandi árið 1919 af
Nordisk Films-Compani.
Leikin af íslenzkum og
dönskum leikurum.
Þúsund króna verðlaunum
er hér með heitið fyrir tillögu-
uppdrætti að fullkomnu sam-
komuhúsi á lóðinni Fríkirkju-
veg 11.
1. verðlaun kr. 500.00
2. verðlaun kr. 300.00
3. verðlaun kr. 200.00
Nánari upplýsingar hjá Jóni
Gunnlaugssyni, Austurstræti 14,
2. hæð.
Húsfélag bindindismaima.
Happdrætti
Háskóla Isiands
Eínn vínningur getur ger-
breytt lífskjörum yðar.
Ung k o n a vann í
happdrættinu 10 0 0
krónur daginn eftir
að hún gekk í hjóna-
band. — Þetta mátti
kallast g ó ð brúðar-
gjöf.
U n g u r sveitapiltur
sótti um inngöngu í
Laugarvatnsskóla og
vann samtals , 1250
krónur á 14-miða. —
Kom þessi vinningur
sér mjög vel, því að af
litlum efnum var að
taka. Fólk sagði, að
þetta fé hefði komið
eins og af himnum of-
an, og dugði það til
þess að pilturinn kæm-
ist í gegnum skólann.
Margur er ríkari en hann hyggur.
Advorun.
Iðnmeistarar eru hér með, að marggefnu tilefni,
minntir á, að lögum samkvæmt ber þeim að gera skrif-
lega námssamninga við nemendur þá, er þeir taka til
kennslu.
Hér eftir verður ríkt eftir því gengið, að samningar
séu gerðir og staðfestir áður en nám er hafið. Verði
dráttur á því, að samningar séu sendir oss til áritunar,
verður tími sá, er líður frá því nám er talið hefjast og
þar til samningur er endanlega staðfestur, dreginn frá
og ekki tekinn gildur sem námstími.
Á sama hátt eru því væntanlegir iðnnemar varaðir við
að hefja nám, fyr en samningar hafa verið staðfestir.
Reykjavík, 7. marz 1939.
Idnaðarfulltrúarnir.
f ÚTBREIÐID TÍMANNt