Tíminn - 14.03.1939, Blaðsíða 4
126
TÍMBSfjy, þrigjudagiim 14. rnarz 1939
31. blað
Rekstraraikoma
Mjólkursamsölunnar
(Framh. af 1. síðu)
tali fullir 26 aurar pr. lítra,
en bændur á bæjarlandi Reyk-
javíkur, sem hafa tilskilið land,
fá á sama hátt 30 aura pr. lítra.
Mismunurinn á útborgunar-
verði til bænda og útsöluverði
mjólkurinnar í bænum, að frá-
dregnum reksturskostnaði
Mjólkursamsölunnar og Mjólk-
urstöðvarinnar, hefir runnið til
verðjöfnunarsjóðs, ýmist sem
verðjöfnunargjald eða tekjuaf-
gangur.
Afstaða útgerðar-
manna til gengismáls>
ins og samvinnu
stjórumálailokkanna
(Framli. af 1. síðu'
frá Framsóknarflokknum um
viðreisn sjávarútvegsins og
benti á nokkur dæmi því til
sönnunar.
Hann mælti fast með gengis-
lækkun og taldi, að í skjóli
rangrar gengisskráningar hefðu
ýmsir menn byggt sér upp
sterka fjárhagsaðstöðu meðan
atvinnuvegirnir hefðu verið að
hrynja. Það væri þó rangt fyrir
þessa aðila að reyna að halda á-
standinu óbreyttu, því sá gróði,
sem væri í öfugu hlutfalli við
afkomu atvinnuveganna, væri
falskur og gæti ekki haldizt til
lengdar.
Hann sagði, að stjórnmála-
flokkarnir hefðu skipzt á hörð-
um skeytum á undanförnum
árum, en eins og málum væri
nú komið, mætti ekki láta slíkt
vega svo mikið, að það hindraði
alla samvinnu. Það væri meira
að segja hrein svik við þjóðina,
ef hin gömlu viðhorf ættu að
hindra þá samvinnu, sem um
væri talað í tillögunum.
Hann sagði, að það, sem Al-
þingi þyrfti að gera, væri ekki
nema lítill hluti af framkvæmd-
inni og þess vegna yrði að hugsa
þessa hugsun til enda og gera
sér það fullkomlega ljóst, að vel
gæti svo farið, þó Alþingi sam-
þykkti eitthvað, að það næði
ekki framgangi, ef ekki væri
samvinna um ríkisstjórnina og
ríkisvaldið væri ekki nógu sterkt
til að halda í skefjum þeirri
mótstöðu, sem myndi beita klóm
og tönnum, til að hindra það,
að ákvarðanir þingsins yrðu
framkvæmdar.
Pétur skoraði að lokum á út-
gerðarmenn að standa fast sam-
an um kröfur sínar. Ræðu hans
var tekið með miklum fögnuði.
Fleiri töluðu á sömu leið. —
Finnbogi Guðmundsson lét svo
ummælt, að það myndi koma að
litlu haldi, þó verzlunin væri
gefin frjáls, ef framleiðslan
fengi engan stuðning og ekkert
væri því til að kaupa fyrir.
Tveir menn töluðu á móti til-
lögunum, Gísli Jónsson vél-
stjóri og Jón Fannberg.
Að loknum umræðum voru til-
lögurnar samþykktar með öllum
greiddum atkvæðum gegn
ÚR BÆNUW
Skemtun
heldur Félag ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík í Alþýðuhúsinu á
föstudagskvöldið kemur. Skemmtunin
hefst með sameiginlegri kaffidrykkju
klukkan 9. Yfir borðum verða fluttar
stuttar ræður og sungið. Síðan danzað
í þrjá klukkutíma. Aðgöngumiðar að
skemmtuninni fást á afgreiðslu Tím-
ans á fimmtudag og föstudag og við
innganginn, ef húsrúm leyfir.
Ólafur Thorlacius
fyrrv. læknir varð sjötugur á laug-
ardaginn var.
Aðalfundur kirkjuráðs.
Aðalfundur Kirkjuráðs íslands hófst
6. marz síðastliðinn. Eiga sæti í kirkju-
ráði, auk biskupsins, sem er forseti
þess, Þorsteinn Briem, Ásmundur Guð-
mundsson, Gísli Sveinsson og Ólafur
Björnsson. Fundir kirkjuráðs stóðu í
fjóra daga, en þá var þeim frestað
um sinn. Átján mál hafa verið lögð
fyrir fundinn og hafa ellefu verið tek-
in til meðferðar. Voru þau um sókna-
skipun í Reykjavík, byggingu prests-
seturhúsa, endurskoðun sálmabókar-
innar, kennslubækur í kristnum fræð-
um, eftirlaun presta, laus prestaköll,
kirkjufundi, Hallgrímskirkju í Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd, utanfarir
presta, eflingu kirkjusöngs, styrkveit-
ingar úr prestakallasjóði, og innheimtu
prestlaunasj óðsgj alda.
Rauði krossinn
hefir ákveðið að beita sér fyrir sam-
skotum til bágstadds fólks í Chile í
Suður-Ameríku, sem nú er heimilis-
laust, matarlaust og klæðlítið vegna
afhroðs, er það hefir goldið í ægilegum
jaröskjálftum að undanförnu. Hafa
þrjátíu þúsund manns látið lífið, en
fimmtíu þúsundir algerlega heimilis-
lausir og margir sjúkir og særðir.
Merkil nefndarskípun
(Framh. af 1. siðu)
á sviði tækninnar, sem ætla má
að hér gæti komið að gagni, og
láta gera nauðsynlegar athug-
anir í því sambandi.
Rannsóknir nefndarinnar og
störf skulu einkum miða að því,
að sýna á hvern hátt þjóðin
gæti bezt fullnægt þörfum sín-
um með framleiðslu nauðsyn-
legra vörutegunda, ef siglingar
að og frá landinu stöðvuðust að
miklu eða öllu leyti af völdum
ófriðar.
Herra Steinþór Sigurðsson,
magister, hefir verið ráðinn
framkvæmdarstjóri nefndar-
innar, og er honum falið að
annast öll dagleg störf fyrir
nefndina.
Til þess er ætlazt, að nefndin
hafi samstarf víð atvinnudeild
Háskólans, rannsóknarstofu Há-
skólans, Búnaðarfélag íslands,
Fiskifélag íslands, náttúru-
fræðideild Menningarsjóðs, aðr-
ar stofnanir ríkisins, starfsmenn
ríkisins og aðra, sem hafa sér-
staka þekkingu og áhuga á þeim
viðfangsefnum, sem tekin verða
til meðferðar á hverjum tíma.
Þá er einnig gert ráð fyrir, að
ráðherra geti falið nefndinni að
hafa eftirlit með rannsóknum
útlendinga hér á landi, eftir
þeim reglum, sem um það kunna
að verða settar.“
tveim. Gísli og Jón voru á móti.
Einnig var samþykkt að út-
flutningsverðlaun hefðu alla ó-
kosti gengislækkunar og auk
þess ýmsa fleiri.
Fjárhúsin og
skórnir okkar
(Framh. af 2. síðu)
þannig, að lyfta mætti með
hægu móti upp í þá hæð, sem
jötubandi nemur og kæmi þá
lokan í stað jötubands meðan
jatan er opin, þó að hærra tæki
upp. Hefði þetta marga kosti
fram yfir tvístæða garðann. T.
d. mætti þá gefa á húsin, þegar
féð er búið að éta, og geyma
þannig gjöfina til næsta máls.
Væri að því mikið hagræði fyrir
þann, sem jafnframt hefir önn-
ur störf, t. d. fjósaverk. Sparað-
ist þannig mikill tími t. d. við
morgungjafir, sem þegar beitt
er, mega helzt ekki taka langan
tíma. Þegar fé kemur misjafn-
lega snemma heim, er hægt að
hleypa því inn, sem komið er og
spara því að liggja við húsin
þangað til hitt er komið, en ó-
þægindi stundum að mega ekki
gefa á fyrr en fé er komið heim.
Þá væri þetta hentugt við fóður-
bætisgjöf. Óþægilegt er að dreifa
mjöli á tvístæða jötu, meðan
fé er inni, vegna troðnings, vill
þá sáldrast á snoppu kindanna,
sem þvælast fyrir. Með lokaðri
jötu kæmist féð jafnar að mjöl-
gjöfinni, þegar opnað væri
skjótlega.
Þessum útbúnaði myndi fylgja
nokkur kostnaðarauki og þess
vegna hæpið að menn taki hann
upp. Breidd hússins yrði nokkru
meiri, og þyrfti þó ekki fóður-
gangurinn að vera breiður, þar
sem knippið væri borið yfir
jötunum, aðeins að gengið yrði
hindrunarlaust. Nokkru meira
timbur færi í jötur. Þar sem
baöker væri steypt í garða,
mætti nota fóðurganginn ásamt
báðum jötum, fyrir sigpall (taka
burt innra jötuborð).
Hvaða leið, sem farin verður
í hverju tilfelli, verður að telja
það nauðsynlegt, að hætta þeim
ósið, að bera saur kindanna á
fótum sér í hlöður og garða. —
Nógir verða þeir kvillar, sem
hamla sauðfénu þrifa, þó að
nokkuð sé reynt að firra það því,
sem helzt verður umflúið. Og þó
að fleiri séu leiðir fyrir saur
kindanna í fóður þeirra, þá bæt-
ir þó nokkuð úr, að fækka þeim
slysabrautum. Nauðsyn á hrein-
læti með drykkjarvatn mun
flestum vera ljóst. En atriði það,
sem greinarkorn þetta fjallar
um, hefir furðu lítið verið tekið
til athugunar. Eg hygg að kalla
megi það nýjan sið, ef maður
forðast að ganga beint úr kró í
garða. Það er fyrst með rann-
sóknum síðustu tíma, á sauð-
fjárkvillum, sem plágum hafa
valdið, að mönnum hefir gefizt
kostur á, að skilja þýðingu slíkr-
ar umgengni til fulls. Þá er
næsta stigið, að gera mönnum
kleift, að bæta svo umgengni
sína, að nokkurt gagn verði að.
Væri gott að heyra þar tillögur
fleiri manna, sem til fjár-
mennsku þekkja.
2. febrúar 1939.
Pétur Beinteinsson
frá Grafardal.
títbrciðlð TtMANJV
290 Andreas Poltzer: Patrícia 291
bátsmenn hans tveir, Keaton og Vogue.
Þeir lentu í margra ára fangelsi.
Er þeir höfðu afplánað refsinguna
héldu þeir til Kokoseyja til þess að grafa
upp fjársjóðinn, sem þeir tveir vissu um.
Þegar þangað kom drap Keaton félaga
sinn.
Hann gat ekki flutt fjársjóðinn burt
einn og fór því til Englands og sagði sjó-
manni einum, Fitzgerald að nafni frá
leyndarmáli sínu. En hann sagði svo
Curzon Howe lávarði frá þessu, sem hafði
bjargað lífi hans í skipsreika.
Fjöldi leiðangra var gerður út á næstu
áratugum, en allir komu heim aftur frá
Kokoseyjum án þess að hafa orðið nokk-
urs vísari.
Þetta allt vissi Whinstone áður, en það
var honum nýtt, sem Hurst sagði nú frá:
Keaton hafði sagt öðrum manni en
sjómanninum frá leyndarmáli sínu. Þessi
maður hét Lewis og var fyrrverandi leik-
ari. Hafði hann búið til greinilegan upp-
drátt af felustaðnum, í samráði við
Keaton og eftir upplýsingum hans, og
teiknað hann á aftasta blaðið á skrifaðri
bók. Lewis fékk aldrei tækifæri til
að nota sér vitneskju sína um
felustaðinn. Hann giftist ríkri kaup-
mannsekkju og frestaði ferðinni til
Kokoseyja ár frá ári, af því að hún var
talsvert áhættusöm í þá daga. Kona hans
lifði hann og settist að uppi í sveit, er
hann dó. Hún seldi hús sitt í London. Það
var ekki fyrr en mörgum mánuðum eftir
að hún hafði selt húsið, að hún mundi
eftir bókinni með teikningunni, sem
maðurinn hennar hafði sagt henni frá.
Hún var geymd í leynihólfi í arinhill-
unni. Hún trúði nú ekki meira en svo
þessari sögu um fjársjóðinn, en í næsta
skipti, sem hún kom til London, gerði
hún sér samt ferð í gamla húsið sitt til
þess að ná í bókina — fjórblöðungsút-
gáfu af Richard III. — úr arinhillunni.
En það fór nú á annan veg. Nýi eig-
andinn hafði nefnilega látið breyta hús.
inu og hafði tekið gömlu Adams-arin-
hilluna á burt og sett aðra nýja í stað-
inn. Frú Lewis reyndi að hafa upp á
arinhillunni en henni tókst það ekki.
Húseigandinn hafði selt hana með ýmsu
rusli, í fornsölu, sem hann vissi engin
deili á.
Nú hafði einhver heyrt þessa sögu
mörgum árum síðar og datt í hug að
reyna að hafa upp á arinhillunni með
gamla handritinu. Ókunni maðurinn,
sem hafði þetta fyrir stafni, taldi víst, að
þessi gamla, verðmæta Adams-arinhilla
myndi ekki verða höfð á boðstólum en
seld einhverjum, sem hefði vit á gömlum
og fáséðum arinhillum. Þess vegna
myndi hún vera komin í eigu einhvers
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, því þá veit ég að kaff-
ið hressir mig
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
þvi 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
ltliil!iilim«GAMLA
Topp
er
(Afturgöngurnar)
Sprenghlægileg og mein-
fyndin amerísk gaman-
mynd um andatrú.
Aðalhlutverkin leika:
CONSTANCE BENET,
CARY GRANT og
ROLAND YOUNG.
nýja BíótnmmtömRj
Saga Borgar-
ættarínnar
Sýnd kl. 9.
Aðgöngumiðar
seldir frá kl. 5.
v.mtnu.
I\ý bók:
„UM SVÍÞJÓÐ O G S V í A“
Stutt en efnisríkt yfirlit yfir uppruna sænsku þjóðarinn-
ar og sögulega þróun, atvinnuvegi og andlegt líf.
Bókiu er prýdd 56 lieilsíðumyndiitti.
- Verð: kr. 3,00. -
Reykjavíkurannáll h.f.
Revyao
Fornar dygðir
model 1939
Síðasta sinn
annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag kl.
4—7 og eftir kl. 1 á morgun.
M.A.-
kvartettinn
syngur í GAMLA BÍÓ fimmtudaginn 16. marz kl. 7 sd.
Bjarni Þórðarson aðstoðar — Breytt söngskrá.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
C y\(jst(jvstr. ö sirrn 5f)52.0pið M.11-l2oq5.3Í
Annast kaup og sölu verðbréfa.
VinniS ötullega fyrir
Tímann.
- Kaup og sala -
IJllarefni og silki,
margar tegundir. BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomið.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
Alltaf ad itækka
Ný matvörubúð opnuð í dag á
II veríisjgötu 52.