Tíminn - 18.03.1939, Blaðsíða 4
134
TÍMIVN, laugardaginn 18. marz 1939
33. blað
Meðan skipín bíða
(Fravih. af 3. síöu)
á sama hátt fyrir og eftir kosn-
ingar. Hitt er annað mál, að
ekki verða alltaf farnar sömu
leiðir. Það er hægt að rétta hlut
sjávarútvegsins eftir mörgum
leiðum, þó að þær séu misgóðar,
og fer valið á leiðunum nokkuð
eftir orku samstarfsmanna, sem
vinna að lausninni. Það eitt er
ófrávíkjanleg stefna Framsókn-
armanna. Útveginn á að rétta
við. Framvegis á hann við hlið
landbúnaðarins að verða undir-
staða þjóðlífsins á íslandi. En
vegna þessarar stefnu munum
við ekki horfa með öllu aðgerða-
lausir á að fólk eins og Gísli
vélstjóri og Eggert Kristjánsson
geti komið til leiðar þeirri ó-
gæfu að veiðiskipafloti Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar liggi
bundinn við festar á vertíð í
vetur, með þeim afleiðingum,
sem sú nýbreytni hefir fyrir af-
komu manna í bænum og í
landinu öllu. En meðan skipin
liggja, geta þeir, sem á undan-
förnum níu árum hafa auðgazt
óeðlilega og ranglega á niður-
lægingu útvegsins, reynt að
nota ímyndunarafl sitt til að
gera mynd af því, hvernig þeirra
afkoma verður, þeirra föstu
tekjur og þeirra sparisjóðsbæk-
ur, þótt geymdar séu undir
koddanum, ef þeim tekst með ó-
afsakanlegri skammsýni að
gera ómögulegt að halda uppi
útgerð við Faxaflóa, þar sem
þriðjungur landsmanna býr í
tveim bæjum og er algerlega
háður því, hversu mikill auður
berst á land fyrir tilverknað
þeirra, sem sjóinn stunda. En
anars væri dauðdagi útvegsins
við Faxaflóa óumflýjanlegur, ef
Gísli vélstjóri og hans nótar
eiga að standa yfir höfuðsvörð-
um þessarar merkilegu atvinnu-
greinar. J. J.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
tJR BÆNUM
Húnvetningasaga.
Magnús Björnsson bóndi á Syðra-
Hóli dvelur hér í bænum um þessar
mundir. Er hann að rannsaka heim-
ildir að Húnvetningasögu og fram-
kvæma undirbúning að samningu
slíkrar bókar. Magnús er fræðimaður
hinn mesti og vel kunnur því öllu, er
lýtur að sögu Húnvetninga.
Leikfélag Reykjavikur.
sýnir á morgun Þyrnirósu fyrir börn,
en um kvöldið verður sýning á gam-
anleiknum Húrra-krakki.
Gestir í bænum.
Magnús Vigfússon oddviti í Þorkels-
hólshreppi, Magnús Jónsson hrepp-
stjóri á Sveinsstöðum í Þingi, Björn
Pálsson oddviti á Löngumýri í Svína-
vatnshreppi, Magnús Björnsson oddviti
á Syðra-Hóli i Vindhælishreppi, Þór-
mundur Erlingsson bóndi í Stóra-Botni
við Hvalfjörð, Þórhallur Sæmundsson
lögreglustjóri á Akranesi.
Um heypurrkun
í Svíþjóð
(Framh. af 3. síðu)
Mér finnst það ekkert úr vegi,
að einhver íslenzkur bóndi tæki
sér ferð á hendur til Svíþjóðar
til þess að kynna sér þessa hey-
verkun. Það er áreiðanlegt að
| margur hefir farið utan og haft
i minna erindi en hér er um að
ræða.
Það er áreiðanlega ávallt tíma-
bært að íslenzkir bændur læri
að hagnýta sér einhverja hag-
kvæmari heyverkunaraðferð en
þeir hafa notað, og tryggi sér
þannig nokkuð af óhröktu heyi
ár hvert. Það er von mín, að
efnhverjir íslenzkir bændur viji
ríða á vaðið og gera tilraunir í
þessu efni, og gefist ekki upp
þótt að fyrsta tilraunin mis-
heppnist.
Ég óskaði þess oft, á meðan ég
var heima á íslandi, og vann á
hverju sumri við heyskap, að
takast mætti að finna nýtt ráð
til þess að þurka heyið, og svo
mun vera með alla, sem að hey-
skap vinna.
Ég vil svo enda þessar línur
mínar, með því að segja, að ég
er viss um, að hin sænska hey-
verkunaraðferð á erindi til ís-
lenzkra bænda.
Rakarameistarafélag Reykjavíkur
tilkynnir heiðruðum bæjarbúum: Vegna stöðugrar hækkunar á
rekstri undanfarandi ára og síaukins kostnaðar í iðninni hækk-
ar frá og með laugardeginum 18. þ. m. rakstur í 50 aura — láti
menn klippa, þvo eða greiða hárið um leið, er raksturinn eins og
áður, 40 aurar. 10 rakmiðar kosta kr. 4.50. Kvenklippingar eldri
en 14 ára: drengjakollur kr. 1.60, passíuhár kr. 1.40. Drengja-
klippingar til 14 ára aldurs: snoðkl. kr. 1.00, með topp kr. 1,25 og
herraklipping kr. 1.50. Hárþurrkun eftir liðun 40 aura. — Aðrir
liðir verðskrárinnar eru óbreyttir. Sama verð í öllum rakara-
stofum bæjarins. 16. marz 1939.
Stjórnm.
BÍÓC
Galdrabrúðan
„The Devil’s Doll
Framúrskarandi spenn-
andi Metro Goldwyn May-
er sakamálakvikmynd.
Aðalhlutverkiö 1 e i k u r
hinn ágæti leikari
LIONEL BARRYMORE
er nýlega lék skipstjórann
í „Sjómannalíf“.
nýja Bíóstnttttrímns,
nAmar
SALOMONS
eftir H. Rider Haggard,
sem ensk stórmynd frá
Gaumont British.
Aðalhlutv. leika:
Paul Robeson,
Sir Cedric Hardwick,
Roland Young o. fl.
Aukamynd:
SVIFFLUG.
Amerísk fræðimynd um
svifflug og kennslu í svif-
flugi. — Börn innan 10 ára
fá ekki aðgang.
Gefíð börnunum hið íjörefnaríka
Nýjnn^!
Þorskalýsí með
píparmyntubragði
G^kaupféfaqiá
Byggmgarsamviimufélag Rcykjavíkur.
Framhaldsaðalfundur
verður í Kaupþingssalnum mánudaginn 20. marz kl. 8.30 síðdegis.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
STJÓRNIN.
Íshúsíð á Eyrarbakka
er til sölu.
Upplýsiogar gelur:
Jón SteSánsson á Hoii.
nreinar
léreftstuskur
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1 D.
298 Andreas Poltzer:
og glæpamennirnir. Heimildarmaður
yðar er tvímælalaust í öðrum hvorum
flokknum.
— Alveg rétt! sagði blaðamaðurinn.
En hann nefndi ekki nafn mannsins, sem
hafði gefið honum upplýsingarnar.
— Úr því að þér þegið, þá skal ég
nefna nafnið á honum, sagði Whin-
stone.
— Nú er ég forvitinn.
— En þér verðið að lofa mér einu áður,
Hurst! Ef nafnið, sm ég nefni, er ekki
rétt, þá verðið þér að gleyma því, að ég
hafi nefnt það.
Hurst kinkaði kolli en sagði ekki neitt.
Whinstone færði sig nær honum, eins og
hann væri hræddur við að einhver myndi
heyra, þegar hann hvíslaði nafnið. Svo
gerði hann það. Hann sá þegar, að hann
hafði getið rangt, þvi að svipur Hurst
lýsti undrun. Fulltrúinn flýtti sér að
segja:
— Þér megið ekki gleyma loforði yðar!
Blaðamaðurinn svaraði, ekki þykkju-
laust:
— Þér hafið drengskaparorð mitt fyrir
því.
— Það er mér alveg nóg, sagði Whin-
stone afsakandi. Svo bætti hann við:
— Ef það er ekki maðurinn, sem ég
nefndi nú, þá var það Estoll, fyrrverandi
forstjóri Old Man’s Club. Hann benti
Patricia 299
yður á ráðning þeirrar gátu, hvernig á
arinhilluþjófnaðinum stæði.
Whinstone gat einnig í þetta sinn lesið
svarið í svip Hurst: í þetta skipti hafði
honum ekki skjátlazt!
— Já, það var Estoll, sem sagði mér
það, svaraði Hurst. Ég þekkti sambönd
hans í undirheimum Lúndúnaborgar, og
úr því að hann sór og sárt við lagði, að
hann segði sannleikann, þá hafði ég
enga ástæðu til að rengja hann. Og
gesturinn i Battersea var þessi sami
Estoll.
Hurst þagði. Honum hafði allt í einu
dottið nokkuð í hug. Hann spurði upp-
vægur:
— Þér munið ekki halda því fram, að
Estoll og maðurinn sem þér nefnduð, séu
í samvinnu?
Whinstone studdi vísifingrinum á
munninn.
— Ekki eitt orð um það, fyrsta kastið.
Hann sá, að blaðamaðurinn kvaldist
af forvitni og flýtti sér að halda áfram:
— Ég vil ekki vera vanþakklátur,
Hurst! Ég hefi fengið hjá yður mjög
mikilsverðar upplýsingar og þess vegna
lofa ég yður þessu: Þér skuluð vera sá
allra fyrsti, sem fær fréttir af málinu.
En lofið mér því, að minnast ekki einu
orði á neitt fyrr en tími er til kominn
— það verður ekki svo langt þangað til.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 20. þ. m. kl. 6
síðdegis til ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar. Þaðan sömu
leið til baka.
Farþegar sæki farseðla sem
fyrst.
Fylgibréf yfir vörur komi sem
fyrst.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
»Húrra-krakki« !
Gamanleikur í 3 þáttum eftir
ARNOLD & BACH.
Staðfært af Emil Thoroddsen.
Aðalhlutverkið leikur:
HARALDUR Á. SIGURÐSSON.
Sýning á morgiin kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un. —
„ÞYRNIRÓSA"
Æfintýraleikur fyrir böm
Sýnd á morgun kl. 31/>
— Síðasta sinn. —
Aðgöhgumiðar seldir frá kl. 5
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun
Sltrónur
, ,iyrir Framsóknarrefi‘ ‘ ?
Almenningi til leiðbeiningar birtist hér með eftirfarandi listi
yfir þá er fengu keypta hina mikið umræddu 100 hálfkassa af
sitrónum, sem Grænmetisverzlun ríkisins flutti inn með e/s.
„Dettifoss" 9. þ. m. — Samanber ummæli dagblaðsins Vísis, mánu-
daginn 13. marz, um sitrónur fyrir Framsóknarrefi. —
Verzlanir utan Reykjavíkur fengu 37 kassa, er skiptast þannig:
Jón Matthiesen, kaupm., Hafnarfirði ..........
Stefán Sigurðsson, kaupm., Hafnarfirði .......
Gísli Gunnarsson, kaupm., Hafnarfirði ........
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi............
Kaupfélag Stykkishólms, Stykkishólmi .........
Sigm. Jónsson, kaupm., Þingeyri ..............
Verzlun G. B. Guðmundssonar, ísafirði ........
Kaupfélag ísfirðinga, ísafirði ...............
Húsmæðraskólinn, ísafirði ....................
Sig. Pálmason, kaupm., Hvammstanga ...........
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga ..
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi .............
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki ..........
Kristinn Briem, Sauðárkróki ..................
Haraldur Júlíusson, Sauðárkróki ..............
Verzlunarfélag Siglufjarðar, Siglufirði ......
Kjötbúð Siglufjarðar, Siglufirði .............
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri ...............
Nýja Kjötbúðin, Akureyri .....................
Verzlun Ben. Benediktssonar, Akureyri ........
Verzlunin Esja, Akureyri .....................
Öl- og gosdrykkjagerð Akureyrar ..............
Kaupfélag • Þingeyinga, Húsavík ..............
Verzlun St. Guðjohnsen, Húsavík ..............
Verzlun Jóns G. Jónassonar, Seyðisfirði ......
Kaupfélagið Fram, Norðfirði ..................
Verzlun Björns Björnssonar, Norðfirði ........
Brynjúlfur Sigfússon, kaupm., Vestm.eyjum ....
ísfélag Vestmannaeyja, Vestm.eyjum ...........
Magnús Bergsson, kaupm., Vestm.eyjum..........
Kaupfélag verkamanna, Vestmannaeyjum .........
1 kassa
1 —
y2 _
l —
1 —-
1 —
1 —
1 —
1 —
1 —
2 —
2 —
2 —
1 —
1 —
1 —
1 —
2 —
2 —
1 —
1 —
1 —
2 —
2 —
i/2 _
1 —
1 —
1 —
1 —
1 —
1 —
Alls selt utan Reykjavíkur
37 kassar
í Reykjavík voru seldir 63 kassar, er skiptust þaning:
Silli & Valdi, Aðalstræti ...................... 2 kassa
Sláturfélag Suðurlands ......................... 2 —
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis ............. 2 —
Innkaup ríkisstofnananna ...................... 2 —
Pétur Kristjánsson, Ásvallagötu 19 ............. 1 —
Verzlunin Goðaland, Bjargarstíg 16 ............. 1 —
Verzlunin Kjöt og Fiskur, Baldursgötu........... 1 —
J. C. Klein, Baldursgötu 14 .................... 1 —
Sig. Halldórsson, Öldugötu 29 .................. 1 —
Verzlunin Vaðnes, Klapparstíg 30 ............... 1 —
Verzlunin Grettisgötu 2 .................'..... 1 —
Hótel Borg ..................................... 1 —
Kaupfélag Borgfirðinga, Laugavegi 20............ 1 —
Lansspítalinn ................................. 1 —
Verzlunin Drífandi, Laufásvegi 58............... 1 —
Hjalti Lýðsson, Grettisgötu 64.................. 1 —
Jóh. Jóhannesson, Grundarstíg 2................. 1 —
Þorsteinsbúð, Grundarstíg 12 ................... 1 —
Matardeild Sf. Sl„ Hafnarstræti................. 1 —
Halli Þórarins, Vesturgötu 17 ................. 1 —
Tómas Jónsson, Laugavegi 2 ..................... 1 —
Kiddabúð, Þórsgötu 14 .......................... l —
Liverpool, Hafnarstræti 5 ...................... 1 —
Ávaxtabúðin, Týsgötu 8 ......................... 1 —
Tjarnarbúðin, Tjarnargötu 10 ................... 1 —
Verzlunin Þórsmörk, Laufásvegi 41 .............. 1 —
Nathan & Olsen ................................. l —
Verzlunin Rangá, Hverfisgötu 71 ................ 1 —
Verzlunin Vegur, Vesturgötu 52 ................. 1 —
Verzlunin Von, Laugavegi 55 .................... 1 —
Guðjón Jónsson, Hverfisgötu 50 ................. 1 —
Guðm. Guðjónsson, Skólavörðustíg 21 ............ 1 —
Jóhann Ólafsson & Co............................ 1 —
Björn Jónsson, Vesturgötu 27 ................... 1 —
Guðm. Gunnlaugsson, Njálsgötu 65 ............... 1 —
Verzlunin Fell, Grettisgötu 57.................. 1 —
Kjötbúðin Borg, Laugavegi 78.................... 1 —
Ármannsbúð, Týsgötu 1 .......................... 1 —
Verzlunin Varmá, Hverfisgötu 84 ................ 1 —
Verzlunin Brekka, Bergstaðastíg 33 ............. 1 —
Verzlunin Vísir, Laugaveg 1..................... 1 —
Pöntunarfélagið Grímsstaðaholti ................ 1 —
Skipt í smáskamta (25—75 sitrónur í stað) til
ýmsra heildsala, verzlana, sjúkrahúsa, refabúa
o. s. frv„ í Reykjavík ........................ 17 —
Alls selt í Reykjavík: 63 kassar.
Þess skal getið, að þegar umræddir 100 hálfkassar komu til
landsins, lágu fyrir hjá Grænmetisverzlun ríkisins pantanir i á
sjöttahundrað kassa af sitrónum, er því vonandi skiljanlegt þótt
ekki væri hægt að afgreiða neitt til ýmsra verzlana er báðu um
sitrónur eftir að sendingin var komin og farið að afgreiða hana.
í niðurlagi skýrslu minnar, hér að ofan, um úthlutun á sit-
rónum, er skýrt frá því að 17 kössum hafi verið skipt í smá-
skammta til ýmsra heildsala, verzlana, sjúkrahúsa og refabúa í
Reykjavík. Dagblaðið Vísir ranghverfir þetta á þann veg, að það
segir: „í Reykjavík fóru 17 (kassar) í refina“. Sannleikurinn
er sá, að úr þessum 17 kössum fóru samtals 75 sitrónur til
manna, sem reka refabú. Stendur til boða, að ég birti nöfn þeirra
kaupmanna og sjúklinga er Visir svívirðir, enn á ný, með þvi að
kalla þá refi og þar fram eftir götunum.
Reykjavík, 18. marz 1939.
Pr. GRÆNMETISVERZLUN RÍKISINS.
Árni G. Eylands.
y