Tíminn - 23.03.1939, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.03.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. 23. árg'. « acssí .. , ‘v..-■ ' j - v Reykjavík, fimmtudagmn 23. marz 1939 RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1D. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h. f. Símar 3948 og 3720. 35. blatf Nýr tekjustoín íyrír bæja og sveitaiélög Vörusöluskattur á smásöluverzlanír varnirnar sem bezt. Hér á myndinni sést loftvarnarbyssa, sem komið hefir veriö fyrir að húsabaki við eina fjölförnustu götuna í London. Maðurinn, sem stendur fremst á myndinni, heldur á einu skeytinu, sem notað er til að skjóta óvinaflugvélarnar niður. Næstu mánuði verður stríðs- hættan mest, segir Churchill Tíminn hefir áður getið nokkurra tillagna frá nefnd þeirri, sem atvinnumála- ráðherra fól að athuga fjár- hagsmál sveita- og bæja- félaga. En auk þeirra lagði hún til að bæja- og sveita- félögunum yrði tryggður nýr tekjustofn, þar sem sýnt væri að núverandi tekju- stofnar þeirra væru ónógir. Formaður nefndarinnar, Karl Kristjánsson oddviti í Húsavík, hefir skýrt Tímanum frá þessari tillögu á eftirfarandi leið: — Nefndin hafði tækifæri til að athuga fjárhagsáætlanir nokkurra bæja- og sveitafé- laga á yfirstandandi ári. Var hjá flestum tekjuhalli, enda þótt dregið væri mikið úr útgjöldum og gert ráð fyrir miklum styrk úr jöfnunarsjóði og talsverðu atvinnubótafé frá ríkinu, án til- Aðalfundur Byggíng arsamvínnufélags Reykjavíkur Aðalfundur var haldinn í Byggingarsamvinnufél. Reykja- víkur síðastliðinn mánudag. Formaður félagsins, Guðlaug- ur Rósinkranz, gerði grein fyrir starfi félagsstjórnarinnar á síð- astliðnu ári. Sagði hann að ætlun sjórnarinnar hefði ver- ið að reyna að fá lán til áfram- haldandi bygginga. Von hefði verið um að fá lán í Stockhólmi, en hefði strandað á því, að ekki fékkst ríkisábyrgð og heldur ekki nein trygging fyrir yfir- færslu á vöxtum og afborgunum af láninu, þótt það hefði feng- izt án ríkisábyrgðar. Aðalstarfið hefði því orðið, að innheimta ýmsar lausaskuldir, sem úti- standandi hefðu verið hjá fé- Igasmönnum vegna bygging- anna og hefði það gengið vel. Fyrir það fé, sem inn hefir heimzt og eftir er af því erlenda láni, sem félagið tók í upphafi til bygginganna, er nú ákveðið að byggja í sumar tvö tveggja í- búða hús. Verið er að gera fulln- aðarteikningu af þessum húsum og verða þau boðin út til bygg- inga á næstunni. Áætlað kostn- aðarverð þessara íbúða, sem verða 4 herbergi, eldhús og bað, er 17,5—18 þús. kr. Miklu fleiri sóttu um þessar íbúðir en gátu fengið, enda eru nú 218 manns í félaginu, en íbúðir hafa ekki fengið nema um 50. Þá skýrði formaður frá því að gerðar hefðu verið tilraunir til þess að fá fé til bygginganna innan- lands en alveg árangurslaust. Nokkur óánægja kom fram á fundinum út af því að ekki hafði fengizt ríkisábyrgð eða yfir- færsluloforð og starfsemi fé- lagsins þannig sama og alveg stöðvuð. Þá fór fram stjórnarkosning. Úr stjórninni áttu að ganga Sig- fús Jónsson trésmíðameistari og Stefán Jóh. Stefánsson. Stef- án Jóh. Stefánsson baðst undan endurkosningu. í stjórn voru kosnir: Sigfús Jónsson (endur- kosinn) og Steingrímur Guð- mundsson prentsmiðjustjóri í stað Stefáns. Fyrir voru í stjórn- inni Guðl. Rósinkranz (form.), Elías Halldórsson (gjaldkeri) og Runólfur Sigurðsson (ritari). Endurskoðandi félagsins er Helgi Lárusson. skilins framlags á móti. Er því sýnt, að mörg bæja- og sveita- félög vantar tekjustofna til þess að geta staðið undir lögboðnum skyldum. Ræddi nefndin þessi efni all- mikið og virtist þar fátt til úr- ræða. Samdi þó nefndin frumvarp til laga um heimild fyrir bæja- og sveitastjórnir til að ákveða með reglugerð, er atvinnumála- ráöherra staðfestir, að allar smásöluverzlanir í bæjar- eða sveitarfélaginu greiði allt að 2% af vörusölu sinni í viðkom- andi bæja- og sveitasjóði, auk venjulegs útsvars. Skattur þessi reiknist af útsöluverði vörunnar. Renni hann til þeirra bæja- eða sveitafélaga, sem kaupandi er búsettur í, nema, ef hann er ekki meira samtals úr sveitarfélagi en 50 kr. Af óreikningsfærðum viðskiptum renni skatturinn í bæjar- eða sveitarsjóð verzlun- arstaðarins. Undanþegnar skattinum séu allar innlendar landbúnaðar- og sjávarafurðir. í greinargerð segir meðal ann- ars: „Útsvör og aðrir beinir skattar, sem bæja- og sveita- félögin leggja á gjaldendur sína, virðast á mörgum stöðum naumast geta hækkað úr þessu, nema árferði og aflabrögð breytist til stórra bóta, en á það getur enginn treyst. Séu þessir beinu skattar hækkaðir, inn- heimtast þeir ekki svo, að við- unanlegt sé. Sú mikla hjálp, sem jöfnun- arsjóður bæja og sveitafélaga veitir, hefir alls ekki reynzt full- nægjandi. Fjárhagur bæja og sveitafélaga er víða orðinn svo örðugur, vegna sívaxandi út- gjalda, að bráðnauðsynlegar framkvæmdir er ekki hægt að gera vegna féleysis, og ekki er hægt að standa straum af greiðslum vaxta og afborgana, né inna af höndum daglegar greiðsluþarfir. í nokkrum bæja- (Framh. á 4. síðu) Þorsteinn Helgason bóndi í Stóra- Holti í Fljótum, skrifar Tímanum: — Fljótin eru fögur sveit, er skiptast í tvo aðaldali, sem daglega eru nefndir Austur-Fljót og Vestur-Fljót. Eru tvö vötn í hvorum dal, Hópsvatn og Flóka- dalsvatn í Vestur-Fljótum, en Mikla- vatn og Gautsstaðavatn í Austur- Fljótum. Fljótin eru tvö hreppsfélög, Haganeshreppur í Vestur-Fljótum og Holtshreppur í Austur-Fljótum. Eru rúm þrjátíu býli í hvorum hreppi og jaröhiti á sex býlum í hvoru byggðar- lagi. Fjöllin eru víða grasigróin upp undir brúnir á þessum slóðum, og sumstaðar alveg upp á brúnir. í Aust- ur-Fljótum er grösugt mjög, en snjó- þungt á vetrum, en snjóléttara og undirlendi minna í vestri byggðinni. Starlendi mikið er fram af Mikla- vatni og í Stíflu, fram af Gautsstaða- vatni. Talsvert er af silungi í öllum vötnum og æðarvarp við Hópsvatn og Miklavatn. Fyrir röskum áratug voru engir vegir í Fljótum og allar aðfluttar vörur voru reiddar á klökk- um úr Haganesvík og Siglufirði, sem eru verzlunarstaðir Fljótamanna. Voru lestaferðir erfiðar, því fen og keldur voru viða á leiðinni, og hætt við í- hlaupum. Nú er þetta óðum að færast í betra horf, þótt enn skorti mikið á um góðar samgöngur. Sérstaklega er áríðandi að veginum til Siglufjarðar verði hraðað. Eins og nú stendur, er erfitt að koma afurðum til Siglufjarð- ar, vegna bryggjuleysis í Haganesvík Útlendmgar fá engin flugréttindí á Islandi Umræðum lokið við íulltrúa „Luíthansa" Umræður þær, sem farið hafa fram, svo og umtal í nokkrum 1|| blöðum útaf komu þýzkra ||| manna til viðræðna um hugs- anlegt reglubundið flug milli ís- lands og Þýzkalands, gefa ríkis- stjórninni tilefni til þess að skýra frá því, er hér fer á eftir: Fyrir rúmri viku síðan barst ríkisstjórninni fregn frá þýzka ræðismanninum hér, um að nefnd manna frá þýzka flug- félaginu „Deutsche Lufthansa“ myndi koma hingað til Reykja- víkur þann 19. þ. m. (þ. e. með „Dronning Alexandrine") til þess að undirbúa reglubundnar flugferðir milli íslands og Þýzkalands á komandi sumri. Var þess getið í bréfi þýzka ræð- ismannsins, að í áformi sínu styddist þýzka flugfélagið við vilyrði, er gefin hafi verið fé- laginu í sambandi við uppgjör Flugfélags íslands h.f. árið 1931 um rétt því til handa til að halda uppi flugferðum yfir eða til íslands fram til 1. apríl 1940. Við athugun ríkisstjórnarinn- ar á málavöxtum þeim, er hér koma til greina, varð það ljóst að um misskilning væri að ræða af hálfu „Deutsche Lufthansa" um hvað fælist í þeim rétti, er flugfélagið gæti gert tilkall til samkvæmt fyrnefndu vilyrði. Má nú telja það ljóst, að af hálfu „Deutsche Lufthansa" hefir verið talið að annað erlent félag hefði lagalegan rétt til að halda uppi flugfeTðum til ís- lands, en þar eð ekki er um neitt slíkt að ræða, er brottu. fallinn sá grundvöllur, sem þýzka flug- félagið studdi rétt sinn á. Var þýzka ræðismanninum tafarlaust eftir móttöku erindis (Framh. á 4. síðu) og vegleysu yfir Siglufjarðarskarð. En á Siglufirði er góður markaður fyrir búsafurðir, einkum á sumrin. Frá Haganesvík er nú fært bifreiðum að Ketilási, suöaustan við Miklavatn, og búið að undirbyggja veg að Stífluhól- um. Einnig er búið að leggja brautar- stúfa yfir mestu foröðin frá Ketilási út að Hraunum. Er nú farið að nota mest kerrur og vagna til flutninga innan sveitar. t t t Aðfaranótt þriðjudagsins síðastliðins gerði hvassviðri af suðvestri við suður- ströndina og olli það miklu veiðarfæra- tapi hjá Vestmannaeyjabátum. Tapað- ist mikið af netum alveg og önnur skemmdust stórlega og ónýttust jafn- vel alveg. Er þetta með stórfelldasta veiðarfæratjóni, sem Vestmannaeying- ar hafa orðið fyrir í seinni tíð. t t t Þrír þingmenn i efri deild, Þorsteinn Þorsteinsson, Bernharð Stefánsson og Jónas Jónsson, flytja frv. um breyt- ingu á skipun útvarpsráðs. Það er nú skipað siö mönnum, þrem kosnum af Alþingi, þremur kosnum af útvarps- notendum og einum skipuðum af kennslumálaráðherra. Samkvæmt frv. verður það skipað fimm mönnum, öll- um kosnrnn af Alþingi. Með þessari fækkun og afnámi útvarpsnotenda- kosningarinnar, sparast um 5000 kr. á ári. Kjörtímabil núverandi útvarpsráðs rennur út í vetur, en kosningu þess verður frestað þangað til séð verður Undanfarna daga hafa enskir stjórnmálamenn og sendiherrar Englands erlendis átt mjög ann- ríkt. Hafa þeir unnið að því, að skapa nánari samvinnu milli þeirra ríkja, sem vilja hindra frekari yfirgang Þýzkalands. Er talið að þessum málaleitun- um þeirra hafi hvarvetna verið vel tekið. Enn er óvist í hvaða formi þessi samtök verða, en senni- lega verður fyrsta skrefið að gefa út sameiginlega yfirlýsingu. fyrir um afdrif þessa frumvarps. í útvarpsráði eiga nú sæti: Pálmi Hann- esson rektor, Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur, Árni Friðriksson fiskifræðingur (kosnir af útvarpsnotendum), Sigurður Baldvinsson póstmeistari, Valtýr Stef- ánsson ritstjóri og Pétur Guðmundsson fjölritari (kosnir af Alþingi) og Sigfús Sigurhjartarson kennari, sem var skipaður af Haraldi Guðmundssyni. t t t Kvenfélagið í Borgarhreppi í Mýra- sýslu gekkst í lok síðasta mánaðar fyrir Borghreppingamóti, sem haldið var að Brennistöðum. Hófst það með sameiginlegri kaffidrykkju og lögðu félagskonur til kaffi og kökur og var óspart veitt. Að kaffidrykkjunni lok- inni, skemmti fólkið sér við söng, dans og spil fram undir morgun. — Kven- félagið hefir á síðari árum fært út kvíarnar. Á hinum fyrstu árum hafði það einkum með höndum líknar- og mannúðarstarfsemi. Nú orðið á félagið bæði spunavél og prjónavél, sem allar félagskonur nota endurgjaldslaust, eft- ir settum reglum. Er þetta til mikilla hagsbóta fyrir mörg heimili í hreppn- um. Ennfremur hefir félagið haldið nokkur námskeið, þar sem kennt hefir verið prjón, fatasaumur og fleira. — Nqkkra síðastliðna vetur hefir kven- félagið haldið, ásamt ungmennafélag- inu Borg, sameiginlega jólatrésskemmt- un fyrir böm í sveitinni og aðstand- endur þeirra. í vetur fékkst ekkert (Framh. á 4. síðu) Komið hefir til tals að kveðja saman ráðstefnu þessara ríkja, en frá því hefir verið horfið i bili, þar sem ástandið er álitið svo uggvænlegt, að ekki sé þor- andi fyrir helztu stjórnmála- mennina að fara neitt að heim- an. Er þó ekki ósennilegt, að slík ráðstefna verði kvödd sam- an, ef útlitið yrði friðsamlegra aftur. Rikin, sem sennilega munu undirrita yfirlýsinguna, auk Englands, eru Frakkland, Pól- land, Rúmenía, Jugoslavía og Rússland. Þau lönd, sem gera sér vonir um að geta orðið hlut- laus í næstu styrjöld, eins og Norðurlönd, Sviss, Holland og Belgía, munu ekki taka þátt í þessum viðræðum að svo stöddu. Bandaríkin munu heldur ekki gerast þátttakandi í þessum samtökum, en hinsvegar má telja vafalaust, að þau myndu styðja þau eftir megni, án beinnar íhlutunar þó, ef til ó- friðar kæmi. Á viðræðum þeim, sem fram hafa farið seinustu daga, má glöggt marka, að menn óttast helzt, að Þjóðverjar geri árás á Rúmeníu til að ná hinum miklu olíunámum og landbúnaðar- framleiðslu þar undir yfirráð sín. Hafa þeir líka nýlega kraf- izt viðtækra hlunninda af rúm- ensku stjórninni, en fengið að mestu leyti afsvar. Búast menn jafnvel miklu frekar við slíkri á- rás nú en §íðar. í grein, sem Churchill hefir skrifað nýlega, segir hann að næstu mánuðirn- ir geti orðið hættulegasti tím- inn fyrir heimsfriðinn í fram- tíðinni. Ástæðan til þess sé sú, að þegar eitthvert ríki hafi kom- izt fram úr öðrum I vígbúnaði, telji það heppilegast að hefja styrjöldina, en draga það ekki þangað til að keppinautarnir séu orðnir jafnokar þess. Hinn stóraukni vigbúnaður Breta seinustu mánuðina hafi sýnt Þjóðverjum, að þess myndi ekki langt að bíða, að Bretar yrðu þeim langtum sterkari á sjónum og a. m. k. jafnokar þeirra í loftinu. Þess vegna teldu þeír sig betur búna undir styrj- A víðavangi Eitt hið ógeðslegasta, sem sést á prenti um þessar mundir er hin svokallaða útvarpsgagnrýni í dagblaðinu Vísi, sem birtist einu sinni í viku hverri. Upphaf- lega fékk Vísir Guðbrand Jóns- son til að skrifa greinar þess- ar, en endalok hans urðu svip- leg. Þessum gagnrýnanda varð lað sem sé á, að skrifa um er- indi, sem aldrei hafði verið flutt í útvarpið (en hinsvegar stað- ið á dagskrá), og varð þetta fljótlega alkunnugt, sem við mátti búast. Síðan birtir blaðið nafnlausar greinar um þetta efni. En ekkí sýnist sú breyting vera til neinna bóta. Virðast greinar þessar aðallega til þess skrifaðar að ná sér niðri á ein- um manni, Jóni Eyþórssyni, sem blaðinu af einhverjum ástæðum er ákaflega illa við. Svo klaufa- lega er þetta gert, að tilgang- urinn er auðsær hverjum með- almanni. * * * Appelsínulæknarnir í Reykja- vík eru nú önnum kafnir við að taka aftur opinberlega það, sem )eir hafa áður sagt um bætiefni og nauðsyn á innflutningi er- lendra ávaxta. Bjarni Bjarna- son lýsti yfir því nýlega, að í út- varpserindi sínu í vetur hefði hann ekkert minnst á ávaxta- innflutning. En erindið sýnir sig, því að það var prentað orð- rétt í einu af dagblöðunum. Jónas Sveinsson afsakar sig með því, að „prentvillupúkinn" hafi hlaupið 1 vísindin! * * * Margir munu hafa veitt at- hygli greinum þeim, er Magnús Torfason fyrrv. sýslumaður ný- lega hefir ritað í Tímann um sambandsmálið. Magnús var svo sem kunnugt er ákveðinn and- stæðingur sambandslaganna 1918 og greiddi atkvæði gegn þeim á Alþingi. En aðeins einn þingmaður, Benedikt Sveinsson, fylgdi honum þá að málum. M. T. álítur m. a„ að íslendingar eigi nú að taka upp á hendur Dönum hinar gömlu fjárkröfur frá tíð Jóns Sigurðssonar, og telur að miljónin, sem háskóla íslands var greidd 1928, hafi verið algerlega óviðunandi greiðsla af Dana hálfu. * * * Nokkrir aðrir hafa gerzt til þess að rita um sambandsmálið nú í vetur. Ragnar E. Kvaran leggur til, að sambandinu við Dani verði haldið sem mest ó- breyttu, og leggur áherzlu á að hinn sameiginlegi þegnréttur íslendinga og Dana sé þýðing- armikið spor í áttina til nor- rænnar samvinnu. Ólafur Frið- riksson hefir ritað grein og and- mælt þessari kenningu R. E. K. harðlega. Þá hafa stúdentaráð háskólans og Stúdentafélag Reykjavíkur efnt til funda um fleiri mál. Eins og kunnugt er, geta íslendingar krafizt endur- skoðunar sambandslagasamn- ingsins eftir árslok 1940, og sagt samningnum upp að fullu eftir árslok 1943, ef áskilinn þjóðar- vilji er fyrir hendi. öld nú heldur en síðar. Heppn- aðist það að tryggja friðinn þangað til keppinautar Þjóð- verja yrði þeim hernaðarlega sterkari, myndi skapast miklar líkur fyrir því, að hægt yrði að jafna deilumálin með sam- komulagi og koma á varanleg- um friði. Á framkomu hinna ráðandi stjórnmálamanna má sjá, að þeir bera þenna sama kvíð- boga og Churchill. Hversu á- standið er talið alvarlegt, má m. a. marka á því, að franska þingið veitti Daladier nær um- ræðulaust einræðisvald í land- varnarmálum strax eftir inn- limun Tékkóslóvakiu 1 Þýzka- land. Þjóðverjar virðast hinsvegar ekki láta hina sterku andúðar- bylgju, sem innlimun Tékkó- (Framh. á 4. síðu) A KROSSGÖTUM Úr Fljótum. — Vestmannaeyjabátar bíða stórfellt veiðarfæratap. — Frum- varp um breytingu á skipun útvarpsráðs. — Kvenfélag Borghreppinga og starfsemi þess.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.