Tíminn - 23.03.1939, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.03.1939, Blaðsíða 3
35. lilað TtMlNN, ftmmtadaglim 23. marz 1939 141 ÍÞRÓTTIR Kuattspyruufélag Reykjavíkur 40 ára. Knattspyrnufélag Reykj avík- ur minntist 40 ára afmælis síns um miðjan þennan mánuð með fjölmennu samsæti á Hótel Borg og sérstakri íþróttasýningu í fimleikahúsi Jóns Þorsteins- sonar. Fór þetta hvorttveggja hið bezta fram og var öruggt vitni um hinn mikla áhuga, sem nú er ríkjandi innan félagsins. Félagið gekkst einnig fyrir innanfélagskeppni í íþróttum um likt leyti og fór hún fram í íshúsinu við Tjörnina, sem fé- lagið hefir nú á leigu fyrir æf- ingar í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Á þessu móti var sett nýtt íslenzkt met í hástökki, án atrennu. Gerði það Sveinn Ingvarsson. Stökk hann 1.42 m. Knattspyrnufélag Reykjavík- ur var stofnað í marzmánuði 1899 og voru áhrifin að félags- stofnuninni runnin frá skozkum prentara, sem dvaldi hér um skeið og hafði mikinn áhuga fyrir knattspyrnu. — Nefndist félagið fyrst „Fótboltafélag Reykjavíkur". Það yrði of langt mál að rekja hér sögu félagsins til hlítar. Skal því látið nægja að benda á nokkur atriði, sem gefa glöggt til kynna, að það hefir verið sig- ursælasta íþróttafélag landsins. En slikt hefði vitanlega ekki getað orðið, ef ekki hefði mikil vinna verið af hendi leyst. Félagið hefir alls á þessu tímabili háð 477 kappleiki i knattspyrnu við önnur félög. Eru þá taldir kappleikar í öllum flokkum. Hefir það unnið í 302, gert jafntefli í 74 og tapað 101. í frjálsum íþróttum hefir fé lagið verið sigurvegari á öllum helztu mótum hér í síðastl. 11 ár. Af 18 víðavangshlaupum hefir það unnið 10, og af 16 drengj ahlaupum 12. — Af 14 drengjamótum í frjálsum í þróttum hefir það unnið 8. Fyrir riokkru síðan byrjaði félagið að gangast fyrir skíða- ferðum og hefir nú komið sér upp vönduðum skíðaskála við Skálafell. Hefir þessi starfsemi borið þann árangur, að félagið hefir betri skíðamönnum á að skipa en hin íþróttafélögin í Reykjavík. Frjálsar íþróttir og sund hef ir félagið einnig iðkað talsvert, en þó ekki eins mikið og hinar iþróttirnar. Fyrir 10 árum siðan festi félagið kaup á fundarhúsi, sem það hefir síðan notað fyr ir innanhússæfingar. Glímu lét félagið einnig æfa á tímabili, en því miður hefir A X IV A L L Afmæll. Guðrún Sigurðardóttir, Óðins- götu 20 B varð sextug 16. marz síðastliðinn. — Hún er fædd og alin upp að Arnarstapa á Snæfellsnesi. — Innan við tví- tugt fluttist hún inn í Dala- sýslu og giftist þar manni sín- um, Guðmundi Jónassyni kennara. Bjuggu þau þar í sýslunni á ýmsum jörð- um, lengst í Geirshlíð í Miðdöl- um, þar til árið 1934, að þau fluttust til Reykj avíkur. Fimm uppkomin börn eiga þau hjónin á lífi. — Guðrún er kona vel gefin og hin mesta dugnaðar- og þrekmanneskja. Um smjörsamlög (Frcimh. af 2. síöu) lendum gjaldeyri. Framleiðslu- aukningin má þvi ekki verða hinum einstöku framleiðendum né þjóðarbúinu í heild of kostn- aðarsöm. Stofnun smjörsamlaga myndi hafa sáralítinn kostnað í för með sér, en hún myndi án efa vinna þrekvirki á sviði vötu- aukningarinnar og vörugæð- anna. Ennfremur myndu smjörsamlögin leiða framleiðsl una inn á heilnæma þróunar- braut, þvi þegar samgöngur batna og þjóðin vex, mun ef til vill gefast tækifæri og tími til að breyta smjörsamlögunum í fullkomnari framleiðslutæki. Sveinn Tryggvason. sú starfsemi félagsins fallið nið- ur aftur. Hinn mikli starfsárangur fé lagsins stafar ekki sízt af því, að það hefir jafnan átt ötulum forystumönnum á að skipa. Má sérstaklega geta þriggja: Guð- mundar Ólafssonar, sem lengst- um hefir verið knattspyrnu- þjálfari félagsins, Kristjáns Gestssonar, sem mesta forgöngu hefir haft í öðrum íþróttagrein um, og Erlends Péturssonar, sem nú er formaður félagsins. TRÚLOFUN ARHRIN G AN A, sem æfilöng gæfa fylgir, selur SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Sent gegn póstkröfu hvert á land sem er. Sendið nákvæmt mál. SIGURÞÓR, Hafnarstræti 4, Reykjavík Strandarland, ekki aðeins á girðingarsvæðið heldur og á allt heiðarlandið, sem þegar lá und- ir skemmdum. Og með þvi átaki og ákvæði um þjóðveg alla leið frá Reykjaréttum i Ölvesi tii Hafnarfjarðar, er þeir báru fram Jónas Jónsson fyrir hönd Framsóknarflokksins og Jón Baldvinsson, beztu minningar, fyrir hönd Alþýðuflokksins, á þingi 1936, er grundvöllur lagð- ur að því, að Selvogurinn verði aftur sama góðsveitin, til lands og sjávar, og hún var á dögum lögmannanna, er gerðu Strand- argarðinn frægastan, búin hinum beztu skilyrðum til að taka við öllum þeim framförum, akuryrkju og trjárækt, sem hin nýja landnámsöld ber í skauti sér. Landfagurt er mjög í Selvogi og unaðsleg sveitarsæla. Mætti því vel svo fara, að efnamenn hyltust til að hafa þar sumar- dvalir sínar, ekki sízt sunnan undir hlíðunum, þar er sætur hunangsilmur angar úr jörðu. VI. Frá Strönd var til forna eitt hið bezta útræði og útvegur þaðan bæði mikill og farsæll. Er landið blés upp varð illfært að verka þar fisk fyrir sand- foki, og í annan stað barst sand- ur í lendinguna, svo að sund- leiðina tók af, og lagðist þá ver- stöð þar niður. Mætti því vel búast við, er sandburðurinn rén- aði, að Strandarsund dýpkaði, svo þar yrði aftur lending. Fyrir því fengu þingmenn Árnesinga samþykkta þingsályktunartil- lögu, þess efnis, að leiðin þar yrði mæld upp. En úr framkvæmd á því varð þó aldrei. Hafnarverkfræðingur sendur í þeim erindum, lenti á Vogbóndanum, sem lagði til að ráðnar yrðu jarðir undan Strandarkirkju, og kvað þess enga þörf. Þótti verkfræðingn- um þetta ráð makindalegra í góðviðrinu, og hvarf aftur erindi feginn. Veit ég ekki til að slíkt erindi hafi verið slælegar rekið að hverju sem verður. í Herdísarvík var sömuleiðis ágæt verstöð allt fram að 1920 og er enginn vafi á að þar má gera góða lendingu með tiltölu lega litlum kostnaði, en þar virðist kjörin verstöð fyrir vél- snekkjur, því fiskisælasta mið landsins, Selvogsgrunnur, er þar rétt fram af. Er þjóðvegurinn nær þangað, má búast við að þar eigi eftir að verða myndar- legasta fiskistöð, og sumir ætla jafnvel Herdísarvík meiri hluta en hinum verstöðvunum í Ár nessýslu samanlögðum. Nú er í ráði, að mæla upp víkina, og má vænta að betur takist til en fyrri daginn. VII. Af öllu því, sem hér hefir ver ið tínt, mætti mönnum skiljast, að varlegra muni vera að miða ekki nýja kirkjubygging á Strönd við þann söfnuð, sem nú er, og þá ekki síður fyrir það. að vel má gera ráð fyrir að kirkjan yrði að sumarlagi tals vert sótt af ferðalöngum. Virð ist ráð í því, að kirkjan sem nú er, verði látin standa meðan hún endist, og stórbreytingar verða ekki í sveitinni. En þegar að bygging hennar kemur, ætti að sjálfsögðu að gera hana sem veglegasta að tök eru á, fyrir utan prjál, utan og innan, því 3að hús ætti sennilega eftir að standa um aldaraðir.*) Til þess mundi þurfa ófa fé, og trúlegt, að sjóður hennar, þó gildur sé, gerði ekki miklu betur en end- ast til byggingarinnar. Bótin að sjóður hennar hraðvex nú af sjálfu sér, að ógleymdum áheit- unum, sem ekki mun við spar- að héðan af, því svo rik er helgi kirkjunnar orðin í hugum allrar alþjóðar, að þeim, sem það reyndi, mundi verða ærið brekkuþungt, svo ekki sé fastar að kveðið. En víst ex um það, að kirkjan mun langa æfi þurfa allra sinna muna með, því að ætlunarverk hennar munu sí- stækkandi með vaxandi mætti hennar. VIII. Sú breyting hefir orðið á við- horfi prestastéttarinnar, að nú er hún orðin ólm í að endurreisa Selvogsþingin. En það er með 3eim sérhætti, að þau eiga að verða einskonar heiðursbrauð fyrir gamla góðpresta; en þótt sú hugsun sé að sumu þekkileg, er á henni mikill ljóður. Fyrst er það, að því verður ekki komið við, svo tryggt sé, nema með því að svifta söfnuðinn kosningar- réttinum, og búið að Alþingi mundi seint ljá slíku harka- bragði samþykki sitt. Hitt mundi ekki síður þungt á metunum, að Strandarkirkju bíða svo mörg og merkileg viðfangsefni, að full Dörf mun þar manna í fullu fjöri, er fylgdust vel með tím- ans straumi á þessari hraðfara breytingaöld. Er þetta ekki sagt fyrir það, að meta beri lítils reynslu eldri manna, heldur hins, að tímans hjól snýst nú orðið svo ótt, að eldri kynslóðin hlýtur að verða aftur úr, og má fyrir engan. mun miða við þá tíma, er breytingarnar voru svo hægfara, að varla sást mjakast úr stað á hverjum mannsaldr- inum. En vitanlega er kirkjuprest- inum ætlað að vera forgangs- maður þeirra Strenda, og leið- togi til menningar og mann- dáða annarsvegar, en hinsvegar ráðunautur kirkjustjórnarinnar um athafnir allar. IX. Áður hefir verið sagt frá Hafnargirðingunni og Strandar- girðingunni og gróðri á því sandflæmi öllu saman. En þar með eru þó eigi að fullu leyst sandgræðslumálin þar í vogin- um. Er þá frá því að segja, að í „Miðvognum“, en svo eru kölluð býlin 9 út frá Nesi og að Strönd, er landið, mælt með túngörð- um, einir 800 faðmar á breidd og mjókkar í odda alla leið upp í Geitafell, og því afar óhentugt til afnota ef annara landa nýtur eigi við. Nú er það land allt, neðan Selvogsheiðar og Kvennagönguhóla, sandorpið sakir sandágangs og ofbeitar. Getur Strandarlandi orðið hætt þaðan ef uppblástur ágerist frá því sem nú er. Því mun liggja næst fyrir að græða það land hvað eftir er og láta Miðvogs- menn njóta góða Strandarj arða meðan á uppgræðslunni stendur gegn því að takmörkuð verði sauðfjáreign þeirra og hrossa, að ítölu réttri, að settum lögum um samþykktir um ítölu búfjár á sandjörðum. Er það mál allt saman bæði stórt og alls ekki vandalaust, en um nánari skipun þeirra mála væntist-að Búnaðarfélag íslands, með ráði sandgræðslu- stjóra, bei’i fram tillögur eftir því sem tímar leyfa og aðstæður allar færast í lag. Mætti þá vel svo fara, að gagnsamt þætti, að Strandarkirkja bætti við sig löndum frá því sem nú er. Nú mætti búast við, eftir því sem undan er farið, að slíkt verkefni þyki liggja fyrir utan verksvið kirkjunnar, en því er til að svara, að kirkjan er engu síður ætluð söfnuðinum en söfnuðurinn kirkjunni. Væri það og fullveglegt starf kirkjunni að græða upp sveitina, svo að hún verði alfögur. Og klerkdómur- (Framh. á 4. síðu) LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR »Húrra-krakkí«! Gamanleikur í 3 þáttum eftir ARNOLD & BACH. Staðfært af Emil Thoroddsen. Aðalhlutverkið leikur: HARALDUR Á. SIGURÐSSON. Sýning í kvöld kl. 8. Næst síðasta siiin. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag. Beztu kolin lliltælijirafgeyiar ACCUMULATOREN-FABRIK, DR. TH. S0NNENCHEIN. GEIR 0EGA Símar: 1964 og 4017. Nú hlakka ég til að fá kaffi- sopa með Freyjukaffibætis- dufti, því þá veit ég að kaff- ið hressir mig Kaupum íslenzk frímerki ávalt hæsta verði. ÖnÍUK Lækjarg. 3. Sími 3736. 37440 tölur 5 Hafið þér athugað það, að Freyju-kaffibætisduft inni- heldur ekkert vatn, og er þvi 15% ódýrara en kaffi- bætir í stöngum REYNIÐ FREYJU-DUFT a aura stykkið, seljum við svo lengi sem birgðir endast. Tölurnar eru: Kjóla-, Peysu-, Blúsu-, Buxna-, Vestis , Jakka , Frakka- og Káputölur, innfluttar 1938. K. EINARSSON & BJÖRNSSON Bankastræti 11. Vimtið ötuUega fyrir Títnann. pPREYJA” KAFFJBÆTIRN^w-bi SKIPAUTCERÐ * Kaup og sala - Ullarefni og silki, jjjjE §nðin margar_ tegundir. BLÚSSUR, austur um land t strandferð n. k. laugardag kl. 9 síðd. KJÓLAR o. fl. nýkomið. SAUMASTOFAN UPPSÖLUM. Simi 2744. Flutningi veitt móttaka hádegis á föstudag. tu 308 Andreas Poltzer: Patricia 305 *) Víðfróður maður hefir bent á, að bezt œtti við að kirkjan yrði byggð með rómversku sniði (hvolfkirkja), því að fyrir kaþólskan átrúnað var hún byggð í fyrstu. Með því lagi sé og auðveldast að gera litlar kirkjur veglegar. stjórnar bófaflokki! Hryðjuverk lögregu- bófans Duffy! Þetta er óttalegt, Whin- stone. Og án yðar hefðum við líklega aldrei haft hendur i hári hans.... — Sir William! Minn heiður af þessu máli er minni en þér haldið, svaraði Whinstone hæversklega. Ég hefi lengi haft grun á Duffy, en það var Alice Rake, sem kom honum á kné. Og afrek hennar er að því skapi meira, sem hún hafði engar lögreglusveitir að styðjast við, eins og ég hefi haft. Hún og Favart samherji hennar hafa farið langsamlega fram úr Skotlnd Yard.... —Já, Alice Rake er gimsteinn af kven- manni! Þegar hún kom til mín fyrir tveimur árum og bað mig um að taka sig hingað í Scotland Yard, þá var mér um og ó. Ekki svo að skilja: ég hfei aldrei haldið, að ofurstinn, faðir hennar, hafi verið sekur! Það var ekki fyrr en eftir að ég hafði ráðgazt við innanríkisráðu- neytið, að ég þorði að verða við ósk hennar. Af skiljanlegum ástæðum, tók hún við þessari undirtyllustöðu sinni undir nafninu Alice Bradford. Enginn mátti vita, að hún væri dóttir fyrrver- andi varaforstjóra Scotland Yard, þess er dáið hafði með svo sviplegu móti.... Henni tókst með sniðugum brögðum að fá pláss á skrifstofu Duffys. Mér finnst það beinlínis óskiljanlegt ennþá, að starði á Alice Rake. En hún hélt áfram: — Þér flæmduð föður minn út í dauð- ann. Því að hann hafði komizt að glæp- um yðar. Þess vegna urðuð þér að ryðja honum úr vegi. Með djöfullegum brögð- um tókst yður að koma hræðilegum gi'unsemdum á föður minn. Hann átti að hafa rekið njósnir fyrir erlent ríki... . En til hvers er ég að rifja þetta upp fyrir yður? Þér vitað bezt sjálfur, hve fimlega þér riðuð lyganetið.... hvernig grunurinn lagðist á föður minn. Jafnvel þó að vinir hans og yfirboðarar fengjust ekki til að trúa neinu illu um hann, þá var grunurinn vakinn.... Og skuggi af þeim grunsemdum hefðu ávallt loðað við hann. Það má vera, að faðir minn hafi tekið fljótfærnislega ákvörðun og flýtt fyrir sér um of að taka afleiðing- unum. En hann lét eftir sig skrifaðar heimildir. Og dauða hans skyldi hefnt! Ég sór við kistu hans, að unna mér ekki stundlegs friðar, fyrr en ég hefði eyði- lagt yður! Alice Rake færði sig skrefi nær, með byssuna i hendinni. — Það er sorglegt, að skítmenni eins og þér, skuli ekki geta dáið nema einu sinni. Því að þér verðskuldið sannarlega margfalt líflát fyrir alla glæpi yðar — Duffy aðalfulltrúi! Aðalfulltrúinn hafði hlustað hreyfing-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.