Tíminn - 23.03.1939, Side 4
142
TÍMMN, finimtnclagiim 23. marz 1939
35. blað
„SUltfJ¥Aéé
er bezta Ijósaolíau.
Hún er hrein og tær og veitir
BEZTA BIRTU.
Olíuverzlun Islands h.í.
(Sölufélag fyrir Ang’lo-Iranian Oil Co. Ltd.).
"GAMLA BÍÓ"
BROADWAY
MELODY
1938
Bráðskemtileg og skraut-
leg amerísk dans- og
söngvamynd. — Aðalhlut-
verkin leika:
ROBERT TAYLOR
og
ELEANOR POWELL
UPPREISIVB\
I PESHAWAR
(The Drum)
Stórfengleg og íburðar-
mikil kvikmynd frá United
Artists er gerist í Indlandi.
Aðalhlutv. leika: Roger
Livesey, Valerie Hobson og
indverski drengurinn Sabu
Öll myndin er tekin í eðli-
legum litum.
Aukamynd:
HÆNSNA RUMBA
Það tilkynnist viiium og aÖstandend-
um að faðir okkar og tengdafaðir
Jón dannehrogsmaður Jónsson
á Hafsteinsstöðum, andaðist a«V heimili
sínu 20. þ. mán.
Börn og tengdabörn.
I
Börn fá ekki aðgang. — {
Nýkomið sérlega mikið úrval af
Karlmanoafataeinum
og káputauum
Einnig allar tegundir og litir af lopa.
V erksmið j uútsalan
Gefjun — Iðunn
Aðalstræti.
25 ára aimælismót
Skíðaiélags Reykjavíkur
og THULE-MÓTIÐ 1939
hefst í H\eradölum föstudaginn 24. marz kl. 1 e. h. með
18 kilómetra kappgöngu.
Laugardaginn 25. marz fer fram svigkeppni (slalom)
og byrjar kl. 1 e. h.
Sunnudaginn 26. marz fer fram keppni í stökki
kl. 1 e. h.
Hinn heimsfrægi skíðakappi,
BIRGER RUUD,
mun opna svighrautina á laugardaginn
og hina nýju stökkbraut á sunnudaginn.
Farmiðar seldir hjá L. H. Miiller fyrir félagsmenn
daginn fyrir hverja keppni, frá kl. 1 til 5, en frá kl. 5 til
6 til utanfélagsmanna, eftir því sem farkostur leyfir.
Aðgöngumerki að mótunum á föstudag og laugardag
kosta kr. 1.00, og á sunnudaginn kr. 2.00.
Skíðafélag Reykjavíkur.
O
O
O
o
O
»♦♦♦♦♦<
Hanvetningafélagið.
NkemmtikYöld
Hótel Borg þriðjudaginn 28. marz kl. 8,30 stundvísl.
Aðgöngum. á kr. 1,50 seldir í Manchester og Brynju.
Stjórnin.
MOLAR
Þessa dagana er mest rœtt um
striðsundirbúning i Evrópu og
ýmsar stórfelldar ráðstafanir í
sambandi við hann. En sem bet-
ur fer, er þó einnig hugsað um
fleiri mikilvœgar fyrirœtlanir,
sem jafnframt eru líklegri til
annars og gifturíkari árangurs.
Meðal slíkra fyrjrœtlana má
nefna þrjá skipaskurði, sem eru
í undirbúningi. Tvo þeirra hafa
Þjóðverjar á prjónunum. Annar
þeirra á að tengja saman Oder
og Dóná og mynda á þann hátt
nýja siglingaleið milli Eystra-
saltsins og Svartahafsins. Skurð-
ur þessi liggur aðallega um Ték-
koslóvakíu. Hinn skurðurinn á
að tengja saman Rín og Dóná og
verður þá hœgt að fara fljóta-
leiðina milli Norðursjávarins og
Svartahafsins.
Þriðji skipaskurðurinn er und-
irbúinn af Rúmenum og Pólverj-
um í sameiningu. Hann mun
tengja saman Weichsel og Pruth
og mynda þannig nýja siglinga-
leð milli Eystrasaltsins og
Svartahafsins. Er þessi skurður
talinn mjög þýðingarmikill fyrir
Pólverja, sem fá þá stórum
greiðari aðgang að Svartahaf-
inu, og verða ekki eins háðir að-
flutningum um Eystrasalt.
Allir þessir skipaskurðir verða
til þess að gera þungavöruflutn-
inga á þessum slóðum miklu
auðveldari og ódýrari en þeir eru
nú.
* * *
7 sambandi við þetta má nefna
eina framkvœmd enn, sem ný-
lega hefir náðzt samkomulag um
milli Rúmena og Jugoslava. Hún
er sú, að byggður verðí á nœst-
unni breiður bilvegur, sem ligg-
ur þvert yfir Jugoslaviu ■ og
Rúmeníu eða frá Adriahafinu
til Svartahafsíns. Verður hann
1200 km. langur. Er hann talinn
mjög þýðingarmikill fyrir sam-
göngur og sambúð þessara landa.
* * *
Þegar þýzki herinn réðist inn
í Tékkoslóvakíu á dögunum,
skiptust íbúarnir þar þannig
eftir þjóðflokkum: Tékkar
65.8%, Slóvakar 22.2%, Ruthen-
ar 5.3%, Þjóðverjar 3.9%, Ung-
verjar 1.0% og Gyðingar 1.3%.
Allur fólksfjöldinn var 9.807 þús.
* * *
Tekjuhœsta kona í heimi árið
sem leið, hefir sennilega verið
norska skautadísin Sonja Henie.
Hún sýndi listir sínar í ýmsum
helztu borgum Bandaríkjanna
og hlaut ótrúlega mikla aðsókn.
Jafnframt lék hún í nokkrum
kvikmyndum. Talið er að tekjur
hennar hafi numið 4.500 þús. kr.
Til samanburðar má geta þess,
að árslaun brezka forsætisráð-
herrans eru rúm 220 þús. kr.
* * *
Útlendingar, sem dvalið hafa
i Þýzkalandi, kunna margar
sögur af þvl, hversu mikið er nú
reynt að knýja þýzku þjóðina til
að dýrka Hitler eins og guð.
Ein sagan er á þessa leið: Á
húsmœðraskóla einum lagði
kennarinn nýlega eftirfarandi
ÚR BÆIVUM
Skautafélagið
hélt skemmtifund að Hótel Borg í
gærkvöldi. Gunnlaugur Claessen flutti
erindi um skautahöll. Að því loknu var
sýnd skautakvikmynd og síðan dansað.
Knattspyrnufélagið Fram
heldur skemmtifund fyrir íélaga og
gesti þeirra í Oddfellowhúsinu 1 kvöld
klukkan 9.
M.-A.-kvartettinn
syngur í næstsíðasta sinn i Gamla
Bíó í kvöld klukkan 7.
Fimleikasýning
úrvalsflokks kvenna úr K. R., sem er
á förum á hátíðafimleikamótið danska,
fór fram í Iðnó í gærkvöldi. Stjórn-
andi er Benedikt Jakobsson. Húsfyllir
var og fögnuðu áheyrendur óspart.
Skíðamótið
í Hveradölum hefst á rnorgun og
verður þá keppt í 18 km. skíðagöngu.
Eru keppendur nær 40, frá félögunum
í Reykjavík, ísafirði, Skutulfirði, Siglu-
firði og Akureyri. Á laugardaginn verð-
ur keppt í svigi og í stökkum á sunnu-
daginn. Hinn heimsfrægi norski skíða-
kappi, Birger Ruud, er kom hingað
ásamt konu sinni með Lyru i fyrradag,
mun dvelja uppi í Hveradölum meðan
skíðamótið stendur yfir og sýna þar
listir sínar, meðal annars vígja svig-
brautina á laugardaginn. Mjög snjólítið
var orðið hér í grennd við Reykjavík,
en föl, sem fallið hefir hina síðustu
daga, hefir stórum bætt aðstöðu skíða-
fólksins.
Norski skíðakappinn,
Birger Ruud, flytur erindi og sýnir
kvikmyndaþætti í Nýja Bíó í kvöld
kl. 7. Mun hann tala um skíðaíþróttina
og eigin reynslu á því sviði.
Guðspekifélagið.
Reykjavíkurstúkan heldur fund
föstudaginn 24. þ. m. kl. 9. Hólmfríður
Árnadóttir flytur erindi.
Leikfélag Reykjavíkur.
Húrra-krakki verður leikinn í næst-
síðasta sinn á morgun.
Gestir í bænum:
Árni Hafstað bóndl í Vík í Skaga-
firði, Björn Pálsson bóndi á Guðlaugs-
stöðum í Blöndudal, Siehvatur Davíðs-
son á Brekku í Lóni, Sigurður Ólafsson
á Eyri í Svínadal, Ragnar Jóhannesson,
forstjóri á Siglufirði.
spurningu fyrir nemendurna:
Hvar á foringinn Adolf Hitler
heima?
í Berchtesgaden, svaraði ein
stúlkan. Kennarinn hristi höf-
uðið.
í ríkiskanslara bústaðnum í
Berlín, sagði þá önnur. Aftur
hristi kennarinn höfuðið.
í Múnchen, svaraði þá þríðja
stúlkan, en þar hefir Hitler
einkaíbúð. Enn hristi kennarinn
höfuðið.
Nú varð löng þögn. Þá reis
kennarinn á fœtur og hrópaði
einbeittri röddu:
Adolf Hitler á heima í hjört-
um allra sannra Þjóðverja.
Auglýsfng.
Til kaups og ábúðar frá næstu far-
dögum, ef viðunandi boð fæst, verða
tveir fimmtu (%) partar, úr jörðinni
Tunghaga í Vallahreppi (útparturinn).
Tún er girt og ibúðarhús nýlega byggt.
Kauptilboð sendist Helga Finnssyni
búanda á Geirúlfsstöðum fyrir 5. maí
n. k., og gefur hann allar frekari upp-
lýsingar.
Um Strandarkirkju
(Framh. af 3. síðu)
inn ætti að virða það til metn-
aðar, að kirkjan græddi og
byggði upp landið, að sínu leyti
eins og hún til forna byggði upp
auðnarlönd og merkur með
heiðnum mönnum og stofnaði
þar til kirkjuríkja, þaðan er
löndin voru kristnuð í allar
áttir.
Þá er og talið, að móðurkirkj-
unni hafi blessazt betur auður-
inn en öðrum stofnunum vel
flestum, fyrir það, að hún hefir
jöfnum höndum fest fé sitt í
fasteignum og arðbærum at-
vinnutækjum í sambandi við
þær. Ætti því ekki að vera nein
goðgá þótt ein kirkja íslenzk
ætti fasteignir og gæfi með því
kirkjustjórninni færi á að sýna
stjórnvizku sína í verki, kirkj-
unni til dýrðar, og sóknarbörn-
unum til blessunar og betrunar,
en öðrum landsmönnum til fag-
urs fyrirdæmis.
Væri heldur eigi með ólík-
indum að einhverjum prestanna
væri í mun að vita, hversu
kirkjuríki í nýjum sið kynni að
farnast hér í landi.
Og það er trúa mín, að ekki
mundi saka þótt klerkastéttin
léði landgræðslunni og skóg-
græðslunni, þeim hugðarmálun-
um, er örðugast eiga uppdráttar,
mikilsvert og þakksámlegt fylgi
sitt. Gróinn blettur blessun ljær.
Næstu mánuðir verður
stríðshættan mest
(Framh. af 1. síðu)
slóvakíu hefir skapað gegn
þeim, mikið á sig fá. Nú í vik-
unni hafa þeir með hótunum
um vopnaða innrás neytt Lit-
hauen til að afhenda sér Memel.
Að vísu er þar um nær alþýzk-
an landshluta að ræða, og
myndu því flestar þjóðir hafa
gert kröfu um innlimun hans
í þeirra sporum. En sú leið, sem
þeir hafa farið til að koma kröfu
sinni fram, er eigi að síður jafn
fordæmanleg og mun líka verða
til þess eins að treysta enn bet-
ur þau samtök, sem nú eru að
skapast gegn þeim.
Nýr tekjustofn fyrir
bæjar- og sveítarfélög’
(Framh. af 1. síðu)
og sveitafélögum er ástandið
svo slæmt, að ríkissjóður hefir
orðið að hlaupa undir baggann
og veita styrk umfram jöfnun-
arsjóðstillagið, og í fleiri sveitar-
félögum dregur sýnilega til hins
sama. Verður því ekki hjá því
komist að athuga, hvort ekki er
hægt að afla bæja- og sveita-
sjóðum tekna með nýju fyrir-
komulagi.
Hér er lagt til, að heimilað sé
að leggja vörusöluskatt á allar
smásöluverzlanir til tekna fyrir
hlutaðeigandi bæja- og sveita-
félög. Getur skatturinn víða
orðið mikill styrkur fyrir þau.
Hefir hann þá kosti fram yfir
hækkuð útsvör, að hægt verður
að innheimta hann, og að hann
nær jafnt til kaupfélagsverzlun-
ar, áfengisverzlunar ríkisins og
kaupmanna, en það gera útsvör-
in ekki, að því er félagsmanna-
viðskiptin í kaupfélögunum
snertir. Loks hefir hann þann
kost fram yfir styrk frá ríkis-
heildinni, að hann er miklu nær
því að vera sjálfbjörg."
Eitt af því, sem út á hann
verður vafalaust sett, er að hann
kunni að verða greiddur sveita-
eða bæjasjóðum, sem ekki
þurfa hann eða vilja nota hann.
En til þess að bæta úr því, gerir
frumvarpið ráð fyrir, að bæjar-
eða sveitarstjórn megi skila
honum til viðskiptamanna í
réttum hlutfalli við verzlun
þeirra á skattgreiðslustaðnum
(sbr. skil verzlunararðs í kaup-
félagi).
Á krossgötmn.
(Framh. af 1. síðu'
útlent jólatré til þessara hluta, en
ekki kom það að sök. Einn ungmenna-
félaginn smíðaði gervitré, haglega
gert, sem geyma má ár frá ári og bar
ekki á öðru en að það gerði sitt gagn.
Útlendingar fá engin
flugréttindi á Islandi.
(Framh. af 1. síðu)
hans, skýrt frá þessum málsat-
riðum, en eftir komu nefndar-
innar frá „Deutsche Lufthansa“
hefir þetta verið skýrt fyrir
nefndinni með viðræðum, sem
staðfestar hafa verið bréflega í
dag. Um leið var af ríkisstjórn-
arinnar hálfu skýrt frá því, að
eins og sakir standa, sé hún
staðráðin í því að veita ekki
neinu erlendu flugfélagi rétt til
að halda uppi flugferðum til ís-
lands, og eru þar með niður-
fallnar umræðurnar við fulltrúa
hins þýzka félags.
Er það fyrst og fremst hin
mikla óvissa og uggur er nú
ríkir í alþjóðamálum, sem hefir
ráðið þessari niðurstöðu ríkis-
stjórnarinnar og sá ásetningur
FATNAÐARVÖRUR.
Hattar, húfur, ullarpeysur, sokkar,
nærföt, sportsokkar, ullarsokkar fyrir
drengi og telpur. Axlabönd, sokkabönd
o. m. fl. — Handunnin hattaviðgerð á
sama stað, Hafnarstræti 18.
Karlmannahattabúðin.
hennar að forðast það að nokk-
ur aðstöðumunur sé hér á landi
um möguleikann til reglubund-
ins flugs erlendra þjóða til ís-
lands. Þá er þess og vænst, að
þess muni ekki verða ýkja langt
að bíða, að íslendingar geti
sjálfir átt þátt í því að halda
uppi slíku flugi, og í því haft
nokkra forgöngu á sama hátt
og nú er orðið um aðrar sam-
göngur við útlönd.
Umræðurnar fóru mjög vin-
samlega fram.
Útbreiðið TfMANN
306 Andreas Poltzer:
arlaus á ungu stúlkuna. Hann lét vinstri
hendina síga, hægt, svo að síður yrði
tekið eftir því. Og til þess að draga at-
hygli ungfrú Alice frá því, fór hann að
tala.
— Þér eruð ekki með öllum mjalla,
ungfrú Bradford eða hvað þér heitið.
Sjúkt hugmyndaflug hefir skapað skoð-
anir sem enginn maður trúir....
— Verið þér ekki að hafa fyrir þessu,
Duffy aðalfulltrúi. Ég verð því miður að
kalla yður því nafni, þó að enginn hafi
borið það heiti jafn óverðugur í Scot-
land Yard eins og þér.... Farið yður
hægt! Þér eruð afhjúpaðir og samsæris-
menn yðar hafa verið teknir fastir. í
enska heimsveldinu er ekki nokkur lif-
andi sál, sem ekki telur yður hafa unnið
til gálgans....
Lengra komst Alice Rake ekki. Það
blikaði á skammbyssu í hendi Duffys.
Það heyrðist aðeins einn hvellur, enda
þótt skotið væri með tveimur byssum.
Kúla aðalfulltrúans snerti hár ungu
stúlkunnar. í sama augnabliki sá hún,
að skammbyssan datt úr hendi hans.
Hún hafði hitt hann. En rétt á eftir
heyrði hún rödd hans:
— Látið yður ekki detta í hug að þér
hafið sært mig... .
En nábleiki fölvinn, sem lagðist yfir
andlit hans, talaði öðru máli. Höfuð
Patrícia 307
hans hné aftur á bak ofan á svæfilinn.
Svo heyrðist stuna af vörum hans. Alice
Rake gekk að honum. Hún tók upp
skammbyssuna, sem hann hafði misst.
Kuldalega og með harðneskjusvip leit
hún á andlit afbrotamannsins. Sími stóð
á litla borðinu við hliðina á sófanum.
Hún hringdi.
* * *
Duffy aðalfulltrúi var enn á lífi, þegar
hópur manna með Sir William í broddi
fylkingar, kom inn í hina skrautlegu
íbúð í Linden Gardens. En afskræmdur
munnur hans opnaðist ekki til svars.
Lögreglulæknirinn, sem var i hópnum,
taldi hann af.
Sir William stundi.
— Mér er þetta alveg óskiljanlegt enn-
þá, Whinstone. Aðalfulltrúi Scotland
Yard og stórglæpamaður! Ég bið um
lausn frá embætti. Að þetta skyldi þurfa
að koma fyrir mig! Þessi maður hefir
drýgt glæpi sína árum saman, svo að
segja fyrir augunum á okkur. .. . Hann
var potturinn og pannan í því nær öllum
stærstu glæpum síðustu ára, án þess að
verkfæri hans hefðu hugmynd um, hver
þessi dularfulli maður væri, sem stjórn-
aði gerðum þeirra, og hann fengu þeir
aldrei að sjá. ... Ég sé í, anda allar fyrir-
sagnir gífurtíðindanna á morgun: Hátt-
settur embættismaður í leynilögreglunni