Tíminn - 28.03.1939, Qupperneq 3
37. blað
149
TÍMINN, þriðjndaglim 28. marz 1939
ÍÞRÓTTIR
Skíðamótið
í Hveradölum.
Skíðamótinu í Hveradölum
lauk á sunnudaginn með stökk-
keppni og hafði það þá staðið
yfir í þrjá daga. Tvo fyrri dag-
ana, föstudag og laugardag,
var veður unaðsfagurt, sólskin
og heiðrikja, en á sunnudaginn
var hellirigning og með naum-
indum að orðið gæti af stökk-
keppninni.
Á föstudaginn fór fram keppni
í 18 km. skíðagöngu. Var snjór
mjög lítill, svo að til baga var,
og fór skíðafærið versnandi, er
á daginn leið vegna sólbráðar.
Keppendur í göngunni voru 36
fTá sex félögum, 10 frá Skíðafé-
lagi Siglufjarðar, 8 frá Skíða-
borg á Siglufirði, 5 frá Einherj-
um á ísafirði, 1 frá U. M. F. Ár-
mann í Skutulsfirði, 7 frá K. R.
og 5 frá Glímufélaginu Ármann.
Skíðaborg vann sigur í keppn-
inni, næst var Skíðafélag Siglu-
fjarðar og Einherjar á ísafirði
hinir þriðju.
Af einstökum keppendum náði
Magnús Kristjánsson (Ein-
herjar) beztum tíma, gekk 18
km. á 1 klst. 13 mín. 8 sek. Guð-
mundur Guðmundsson (Skíða-
félag Siglufjarðar) var 1. 14.47,
Jóhann Sölvason (Skíðaborg)
1.18.26, Gísli Kristjánsson, bróð-
ir Magnúsar (Einherjar) 1.18.57
og Jónas Ásgeirsson (Skíðaborg)
1.19.14.
Á laugardag fór fram keppni
í svigi og hélzt þá enn sama
blíðviðri og fyrr, en skuggalega
bliku tók að draga á loft, er á
daginn leið. Svigbrautin var í
fjallinu rétt ofan við skíðaskál-
ann og var hún 450 metra löng.
Keppendur voru alls 34 frá sjö
félögum, Einherjum, Skíðafé-
lagi Siglufj arðar, K. R., í. R.,
Ármanni, Skíðaborg og Knatt-
spyrnufélagi Akureyrar. K. R.
bar sigur úr býtum, Skíðafélag
Siglufjarðar var annað, og
Glímufélagið Ármann hið
þriðj a,
Hver keppandi fór tvær um-
ferðir og samanlagður tími
fimm hinna hlutskörpustu, sem
hér segir: Jón Þorsteinsson
(Skíðafélag Siglufjarðar) 1.33,5,
Jónas Ásgeirsson (Skíðaborg)
1.38,4, Magnús Kristjánsson
(Einherjar) 1.46,3, Alfred Jóns-
son (Skíðaborg) 1,46,3 og Björg-
vin Júníusson (K. A.) 1.47,5.
Beztum tíma í annari umferð
náði Jónas Ásgeirsson og rann
hann brautina á 46,2 sek. og Al-
fred Jónsson á 46,3 sek.
Á sunnudag fór fram stökk-
keppnin. Urðu eigi tök á að
nota stökkpallinn, sem til þess
hafði verið ætlaður, vegna leys-
ingar, og var gerður annar pall-
B Æ K U R
TÍMARIT.
Fjórði árgangur Búfræðings-
ins er nýkominn út, nú sem árs-
rit „Hólamannafélags“ og
„Hvanneyrings“. Er ritið prent-
að á góðan pappír og snoturt að
öllum frágangi.
Félögin tvö, Hólamannafélag
og Hvanneyringur, hafa nú
sameinazt um útgáfu ritsins og
hafa þau það á hendi sitt árið
hvort. Að þessu sinni sjá Hóla-
menn um útgáfuna.
Eru í ritinu margar góðar
greinar, sem lúta að búnaði, og
yrði of langt að telja þær upp.
Fjalla þær um ræktun ýmissa
nytjajurta, garðjurta og græn-
metis, rabarbara og fleira, hirð-
ingu véla og verkfæra, tamn-
ingu dráttarhsta, um plægingar
og jarðvinnslu, húsabyggingar,
fóðrun búpenings og margt
fleira.
Auk þessa eru ýmsir frásagn-
arþættir frá Hólum, skóla-
skýrslur frá báðum bændaskól-
unum o. s. frv.
ur skammt frá og var notazt við
hann.
Keppendur voru alls 15, þar
af aðeins einn Reykvíkingur,
hitt allt Siglfirðingar. Beztum
árangri náði Jón Þorsteinsson
(Skíðafélag Siglufjarðar), fékk
222 stig og stökk 26 og 27 m.,
Jónas Ásgeirsson (Skíðaborg)
210.8 stig, stökk 24,5 m. og 24,5
m., Helgi Sveinsson (Skíðaborg)
209.8 stig og stökk 25 og 24 m„
Stefán Þórarinsson (Skíðafélag
Siglufjarðar) 209,7 stig og stökk
25,5 og 26 m. og Þorkell Benó-
nýsson (Skíðafélag Siglufjarö-
ar) 206,3 og stökk 24 og 25. m.
Birger Ruud, norski skíða-
kappinn, var við skíðaskálann
alan tímann, sem mótið stóð
yfir. Hann vígði svigbrautina á
laugardaginn. Fór hann tvær
umferðir og var tíminn tekinn
í seinna skiptið og var hann þá
39,1 sek.
Á sunnudaginn sýndi hann
skíðastökk og stökk 32,5 m., en
lengra stökk leyfði stökkpallur-
in ekki. Auk þess stökk hann
tvívegis heljarstökk á skíðunum.
í gærkvöldi var samsæti
haldið að Hótel Borg. Var Birger
Ruud þar afhent til minningar
um hingaðkomu sína fagur bik-
ar frá ríkisstjórninni, útskorið
víkingaskip frá ' Skíðafélaginu
og áletraður skjöldur frá í-
þróttasambandinu.
Þessum gjöfum svaraði Birger
Ruud með því að afhenda sem
gjöf frá norska skíðasamband-
inu bikar, er féll í skaut bezta
skíðamanni mótsins, en það var
Jónas Ásgeirsson. Ennfremur
hafði Birger Ruud gefið Jóni
í norðvestur, stutt frá túninu,
er melkollur hár. Úr honum fauk
möl — hellulöguð — 160 m. veg
yfir túnið, svo að hreinsa varð
það með rekum og skóflum.
Víða fundust steinar allt að eitt
kílógr. að þyngd, og hraðinn
og krafturinn var svo mikill, að
mölin hjó ótal göt á bárujárnið,
sem þak og veggir kirkjunnar
eru klæddir með. Á þessu sézt
gleggst, hve þessi stormur var
kraftmikill. — Kirkjuhurðin
fauk upp, og stormurinn braut
gat á þakið á kirkjunni. Auð-
vitað brotnuðu úr kirkjunni
flestar rúðurnar. Kirkjan stend-
ur 8 metra suðvestur frá íbúð-
arhúsinu í Húsavík.
Daginn eftir og næstu daga
var tíð þurr og ekki köld. Það
var lán, undir þessum kringum-
stæðum, því margt þurfti að
gera þar, sem svona stóð á, fólk,
gripir, búslóð og matbjörg að
mestu húslaust.
Þarna fauk, í viðbót við það,
sem áður er sagt, tvær hlöður,
sem rúmuðu 350 til 400 hesta af
hey, 50 hestar af höðu, 10 af út-
heyi, fjárhús er tók 120 fjár,
partur af sjóhúsþaki, þetta allt
frá Húsavík, sjóhús frá Dal-
landsparti 7,50X375 m. port-
byggt, og járnið af hálfu þakinu
á íbúðarhúsinu á Hólshúsum,
þriðja bænum í víkinni, svo og
hluti af fjárhúsþaki þar. Á þess-
um bæjum þremur er aðal elds-
neytið svörður, hann fauk að
mestu leyti. Einn bærinn, Dal-
land skemdist ekki svo teljandi
sé. Sá bær er nokkuð. afskekktur,
lengra inn I víkurdalnum en
hinir bæirnir.
Það fyrsta, sem gert var, þeg-
ar veðrið lægði, var að ná í
kýrnar sem voru í skúrnum
austan við húsið, og áður er sagt
frá að fokið hafi; jafnframt
þurfti að leita uppi föt, en sumt
af þeim hafði fokið á sjó út.
Húsgögn og aðrir múnir brotn-
uðu nær undantekningarlaust,
og matur spilltist. .
Hreppsnefndin í Borgarfjarð-
arhreppi, hefir látið meta þetta
tjón, og sagt er að það sé lágt
metið á 10 þúsund krónur.
Nú er búið að endurreisa bæ-
inn í Húsavík. Hann er byggð-
ur úr steinsteypu með valma-
þaki úr timbri og járni. Fjár-
húsið er reist og önnur hlaðan,
svo og 100 kinda hús í stað skúr-
anna er voru við íbúðarhúsið,
þar var fjárgeymsla.
Þrátt fyrir allt, sem búið er að
starfa til endurbóta í Húsavík
í ár, er eðlilega margt ógert enn,
sem gera á á komandi sumri.
Staddur í Húsavík 5. marz 1939
Halldór Pálsson.
ACT A-
BÆKURNAR
eru alltaf
beztar og ódýrastar.
Biðjið um ókeypis verðskrá.
\
Látinn Vatnsnesingfur
Ég heyrði nýlega í útvarpinu
að Jón læknir Jóhannesson Nor-
land frá Hindisvík væri látinn,
og hugurinn hvarf óðar rúm 30
ár aftur í tímann vestur á
Vatnsnes. Vatnsnesið er í hugum
margra aðeins afskekktur út-
kjálki og hyggja menn því, að
þar búi eins og stundum í slíkum
byggðarlögum, óupplýst frum-
stætt fólk langt á eftir tíman-
um. Reynsla mín varð þó allt
önnur, er ég kom þangað ný-
vígður prestur haustið 1907, og
dvaldi þar um nokkur ár. Þar
bjuggu sjálfseignarbændur nær
því á hverri jörð, og þar eru
margar góðar jarðir og sumum
fylgja allmikil hlunnindi, svo
sem selveiði, æðarvarp og reki.
Útræði var stundum samfara
landbúnaði. Jarðirnar á Vatns-
nesinu voru tilvaldar til
að ala upp fjölhæfa atorku-
menn, efnalega sjálfstæða og
kjarkmikla, og svo hefir það
verið kynslóð fram af kynslóð.
Kynslóð sú, sem ég kynntist þar
bar glögg einkenni þessa upp-
eldis og að hún var af góðu bergi
brotin, traust og dugmikil.
Menn voru þar margir stórir og
sterkir og úrvals sjómenn, enda
samgöngur til aðdrátta út á við
mest á sjó, um langt skeið til
Borðeyrar og Höfðakaupstaðar,
en síðan til Blönduóss og
Hvammstanga.
Þegar ég kom á Vatnsnesið,
ungur og öllum ókunnugur,
kveið ég leiðindum á hinu af-
skekkta útnesi. En ég var svo
heppinn að hljóta athvarf á
ágætu heimili, Hindisvík, nyrzta
bænum á Vatnsnesinu að vest-
an. Hjónin, sem þar bjuggu, Jó-
hannes Sigurðsson og Helga
Björnsdóttir, voru fyrirmyndar-
hjón og heimili þeirra í fremstu
röð góðra sveitaheimila. Jó-
hannes í Vík, sem hann venju-
lega var nefndur, var einn af
þeim fáu mönnum, sem ég hefi
kynnzt, sem allir, er hann þekktu,
luku upp einum munni um að
væri ágætismaður, er ekki mætti
vamm sitt vita. Hann var prúð-
menni í framgöngu, skemmtinn,
söngvinn og glaðvær, en þó und-
ir niðri alvörumaður og hófleg-
ur í hverri grein, hygginn,
hreinskilinn og ráðhollur, trú-
rækinn og öllum velviljaður.
Jafnframt var Jóhannes dug-
mikill bóndi og jafnvígur til sjós
og lands. Stundaði hann um
mörg ár sjómennsku sem for-
maður og þótti með ágætum
farsæll. Svo var og um Sigurð
föður Jóhannesar er bjó í Hind-
isvík á undan honum. Var hann
talinn stórbrotinn maður, ör í
lund, mikill vexti og garpur í
hvívetna. Sigurður var sonur
Þorsteinssyni stökkskíði sín
með þeim ummælum, að honum
mætti eins vel á þeim farnast
og gefandanum sjálfum, en
hann hefir lengst stokkið á þeim
83 metra.
Eiim kemur öðrnm
meiri.
Jóns bónda Sigurðssonar í Stöp-
um og síðar í Hindisvík. Honum
er svo lýst í sögu Natans Ketils-
sonar, að hann hafi verið vitur
maður, karlmenni að burðum og
stilltur vel, eins og lýsti sér í
afskiptum hans af morðmálun-
um á Illugastöðum. Sigurður
fórst á Húnaflóa um 1890. Voru
þeir feðgar sinn á hvoru skipi
á heimleið frá Blönduósi. Var
skip Jóhannesar hraðskreiðara,
enda minna( og bar skjótar yfir.
Er vestur á’flóann kom, tók að
rökkva og missti Jóhannes þá
sjónar á skipi föður síns. Þegar
skip Sigurðar kom ekki um
kvöldið til Víkur, var gert ráð
fyrir að það hefði lent í Krossa-
nesi, sem er austan á nesinu
gegnt Hindisvík, og hefðu skip-
verjar gist þar. Þegar fréttist
morguninn eftir að svo hefði
ekki verið, þótti sýnt um afdrif
þeirra. Vissu menn ógerla um
tildrög, en þeim sem þekktu
kapp Sigurðar og metnað, þótti
sennilegt, að hann hefði látið
hækka seglin, er í sundur dró
með þeim feðgum, en skipið ekki
þolað áföllin, er skriðurinn óx
og var hlaðið mjög.
Jóni Jóhannessyni kippti
mjög í kyn föður síns og afa, en
sennilega þeim enn fjölhæfari
og fjölþættari.. Lá honum flest
í augum uppi og hafði til að
bera óvenjulegt atgerfi til lík-
ama og sálar. Hann var hagur
mjög og listfengur, hneigður til
sönglistar og skáldskapar. Ég
heyrði hann oft leika á fiðlu,
sem faðir hans átti, og harmon-
ium. Á horn kunni hann einnig
að leika. Hafði hann lært þetta
mest af sjálfum sér. Skáld-
hneigð hans var engu síður.
Smekkur hans fyrir því, sem gott
var í þeirri grein, var ósvikinn
og kunni því mikið utan að, en
dult fór hann með þessa hæfi-
leika sína og lagði litla rækt
við þá.
Fjölhæfni hans var svo mikil
að hann átti erfitt með að á-
kveöa, hvað hann skyldi helzt
taka fyrir hendur. Eftir að faðir
hans dó, datt honum í hug að
hætta námi og gerast bóndi í
Hindisvík. Á því sviði hefði hann
eflaust orðið athafnamikill.
Einkum hefði sj ómennskan látið
honum vel, þar sem oft þarf að
halda á karlmennsku, áræði og
snarræði. Hann minnti mig
stundum á suma vopnfima
kappa fornsagna vorra. Hefði
hann lifað á vopnaöldinni, hefði
hann eflaust staðið þar framar-
lega í flokki. Þó má vera að
hann hefði fremur talizt til
þeirra, sem meir voru gæddir
gjörvileik en giftu og fjellu fyrir
örlög fram, svo sem Gunnlaug-
ur ormstunga eða Kjartan
Ólafsson. Hefði hann orðið sjó-
maður þykir mér ekki ósenni-
legt, að hann hefði orðið fyrir
örlög og aldur fram í hópi þeirra
mörgu vösku Vitnsnesinga, sem
eins og Sigurður afi hans, hlutu
hina votu gröf, stundum ef til
vill vegna þess að þeir í ofur-
kappi drógu segl við hún eða
(Framh. á 4. síðu)
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar
HtÐIR og SKEVA, sem falla til á heimilum
þeirra, ættu þeir að biðja KAIJPFÉLAG sitt
að koma þessnm vörnm í verð. — SAMUAIVD
tSE. SAMVmWÉIAGA selnr TVAUTGRIPA-
RtJÐIR, RROSSHÚÐIR, KALFSKUVN, LAMR-
SKU\ og SELSKBVN til útlanda OG KAUPIR
ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUIVAR. - AAUT-
\
GRIPARÚÐIR, HROSSRÚÐIR og KÁLFSKEVN
er bezt að salta, en gera verður það strax að
lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda
sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinn-
unum, bæði úr holdrosa og hári, áður en salt-
að er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum
vörum sem öðrum, borgar sig.
Bifrellinfieyiir-
Viilzljarifieimar.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
Trísmíðafélag Reykjavíkur.
heldur fund í Iðnó í dag þriðjudaginn 28. marz, kl. 8 y2 sið
degis. — DAGSKRÁ:
1. Rætt um framkvæmd verkfallsins, sem á að hefjast mið
vikudaginn 29. þ. m.
2. Önnur mál. STJÓRNIN.
Rókamenn
og lestrarfélög!
Höfum 300 til 400 góðar og
skemmtilegar sögubækur, þýdd-
ar og frumsamdar.
Langflestar kosta 1—2 kr.
Sem dæmi um það, hvað bækur
eru ódýrar hér, má benda á, að
Vér höfum aldrei selt bókina
„Maðurinn með stálhnefana"
dýrara en 3 krónur.
FORNBÓKASALAN,
Laugaveg 18.
f eröbréfhbankinrv
Vc AustiA*Str. í> sirm 5f)52 .Opiö kl.11-t2o<)1 Jil
kaupir kreppulánasjóðs-
bréf, veðdeildarbréf og
hlutabréf í Eimskipafé-
lagi íslands h. f. — Ann-
ast allskonar verðbréfa-
viðskipti.
ÞÉR ættuð að reyna kolin og
koksið frá
Kopar
keyptur í Landssmiðjunni.
Reykjavíkurannáll h.f.
Kolaverzlun
Sigurðar Ólafssonar.
Símar 1360 og 1933.
Framh. af 2. síðu)
Þeir séu til niðurdreps fyrir
þjóðina. Þeir eigi að vinna kaup-
laust eða kauplítið. Þeir eigi að
flytja aftur upp til fjalla.
Gott dæmi er um þetta í
„Nýju landi“ í gær. Þar segir í
aðalgrein blaðsins:
„Hvaða vit er svo í því líferni,
er viðgengst í kaupstöðum
landsins, er verðskuldar þann
dóm, að þeir er þar lifa geta
ekki fslendingar talizt, þar sem
þeir sækja allt sitt framfæri til
annara landa, húsayið, kol,
olíu, fatnað, matvöru o. m. fl„
en byggja afkomu sína til
gjalds á hvikulli báru hafsins,
sem er vitlausra manna æði. —
— Verkamenn og bændur verða
að vinna kauplaust að bygg-
ingum hvers annars, sem þörfin
krefur.------Sú stefna og það
samstarf, sem nú er að hefjast
um land allt með „Nýju landi“
að málgagni, er merkasti við-
burður ársins“.
Já, mikil er trúin á mátt tvö-
feldninnar! Öm.
TRÚLOFUNARHRINGANA,
sem æfilöng gæfa fylgir, selur
SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Sent
gegn póstkröfu hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mál.
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4, Reykjavik.
316 Andreas Poltzer:
Hurst grunaði ástæðuna, og hrópaði:
— Ég óska yður til hamingju, fyrver-
andi fulltrúi Whinstone! Eigum við ekki
að skála fyrir því. En burtför yðar verður
tilfinnanlegur missir fyrir Scotland
Yard ....
— Gullhamrar! sagði Whinstone hlæj-
andi. — Annars hefir Scotland Yard
fengið fullkomna uppbót fyrir mig. Lyft-
ið glasinu, Hurst, og drekkið með mér
skál Alice Rake. Hún var skipuð fulltrúi
í Scotland Yard í gær!
* * *
Samkvæmið í litla salnum á Ritz-Carl-
ton hafði þegar hlustað á nokkrar ræður
og þessvegna kom hálfgerður ólundar-
svipur á ýmsa, þegar lítil stúlka
kringluleit stóð upp og bað um orðið:.
— Herrar mínir, frökenar og frúr!
Við erum hér saman komin til að gleðj-
ast yfir lokum óvenjulegrar sögu. Ég vil
lyfta glasi mínu eins og hinir og drekka
skál hjónaefnanna og segja: Verið þið
alltaf góð hvort við annað, Patrick og
Patriciá — og minnist stundum hennar
Violet litlu!
Patrick og Patricia þökkuðu með inni-
legu brosi. En Violet drakk glasið i botn
og hlammaði sér svo niður á stólinn. Svo
sagði hún í hálfum hljóðum:
— Eiginlega hefði ég átt að vera með
stóru brillantafestina mína í kvöld ....
Patricia 313
á þær við Sagathee. Hann kvað hafa
þekkt Indverja, sem með einskonar sefj-
un gat gert fólk alveg viljalaust. — Ég
trúi því ekki fyrir mitt leyti að þetta sé
hægt, og ýmsir læknar, sem ég hefi spurt,
neita því afdráttarlaust, að hægt sé að
gera þetta við heilbrigt fólk.
— Þakka yður fyrir. En þá var annað
atriði. Það var sannað, að Duffy hefir
sjálfur skrifað bréfið, sem fannst í bréfa-
körfu Mellers. En hvemig gat Duffy vit-
að, hver gesturinn var, sem kom í hús
Kingsley lávarðar og truflaði John Plane
þegar hann var þar til þess að stela arin-
hillunni, áður en þeir höfðu fengið upp-
lýsingar um kvenhanskann, sem þér
funduð á skrifstofu lávarðarins? Það er
ósennilegt, að John Plane hafi þekkt
ungfrú Holm ....
— Það kom mjög einföld skýring á
þessu, svaraði Whinstone. — Ungfrú
Holm hafði ekki tekið eftir því, að auk
hanskans missti hún líka annan hlut.
Þennan hlut fundum við síðar í leynibú-
stað Duffys í Linden Gardens. Það var
vasabók, með nafni og heimilisfangi ung-
frú Holm. John Plane hafði hirt bókina,
er hann flúði og fengið yfirboðara sin-
um hana. Síðan skrifaði Duffy bréfið á
ritvélina, meðan hann var staddur í húsi
lávarðsins sem lögreglumaður ....
— Jú, þetta er ofur skiljanlegt, herra