Tíminn - 01.04.1939, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.04.1939, Blaðsíða 2
156 TtMlM, langardaginn 1. apríl 1939 39. blað Hlutariltg:erd Greinargcrdín fyrir fromvarpinu um hlutarútgerdaríéiög <§4mmn Laugardaginn 1. apríl Um þjóðstjórn o. il. Þótt ekki sé enn búið að mynda hina marguntöluðu þjóð- stjórn, eru árásirnar á hana fyrir löngu byrjaðar í blöðum kommúnista. En þar, sem þjóð- stjórnin er ekki ennþá til og hefir þá vitanlega ekkert starf- að, eru árásarefnin eins og gef- ur að skilja nokkuð af handa- hófi. Og dálítil áhætta gæti það verið fyrir þá, sem standa að þessari ádeiluframleiðslu á þjóðstjórnina, ef hún svo þegar til kæmi gerði eitt og annað allt öðruvísi en ádeilumennirnir nú gera ráð fyrir. Væri þá óneitan- lega talsvert erfiði til einkskis unnið. Það getur kannske hljómað nokkuð trúlega í eyrum sumra manna, að þjóðstjórnin, ef til kemur, sé mynduð til að breiða yfir „svindl“ stórútgerðarmanna og kúga verkamannastéttina í landinu. En þeir, sem hlýða á slíkar sögur eða lesa um það feitletraðar trúboðsgreinar í Þjóðviljanum, ættu samt að skoða vel huga sinn áður en þeir gleyþa það með öllu hrátt, sem þar er fram reitt. Þegar nánar er að gætt, er það ekki beinlínis líklegt, að verið sé að breiða yfir „svindl“ stórút- gerðarfyrirtækja eða ívilna „svindlurum", á sama tíma sem settur er inn í Landsbankann ungur og afburða duglegur bankastjóri, sem allir viður- kenna fyrir hæfileika og skör- ungsskap og á sama tíma sem verið er að setja hin skuldug- ustu fyrirtæki undir nýja stjórn og undirbúa eðlilegt uppgjör þeirra. Þetta væru a. m. k. ákaf- lega einkennilegar aðferðir til að ívilna þessum fyrirtækjum eða breiða yfir „svindl“ hjá þeim. Enda væri það mála sann- ast, að ef þjóðstjórnin væri mynduð með einhverja slíka yf- irbreiðslu fyrir augum eða hefði hana í huga, þá ætti hún vissu- léga harðan dóm skilið og myndi líka fá, og það án alls tilverkn- aðar frá kommúnistum í land- inu. En hver er þá sú kúgun verka- mannastéttarinnar, sem geipað er um, að þjóðstjórnin myndi framkvæma? Þar mun fyrst og fremst vera átt við ráðagerðir þær um gengislækkun, sem uppi hafa verið. Því er haldið fram, að gengislækkun myndi þýða tilsvarandi tekjurýrnun hjá verkamönnum og afturför í kjörum þeirra. En því fer mjög fjarri, að þetta sé rétt. í fyrsta lagi kæmi gengislækkunin a. m. k. fyrst í stað, aðeins fram á verði erlendra lífsnauðsynja. í öðru lagi hefir ætíð verið ráð fyrir því gert, að verkamönn- um yrði að einhverju leyti bætt upp hækkun framfærslukostn- aðarins, þegar séð yrði, hver hann reyndist. í þriðja lagi — og það er stærsta atriðið — eru það einmitt nú aðalrökin fyrir réttmæti ' gengislækkunar, að hún myndi verða til þess að lengja atvinnutíma flestra verkamanna, sem ekki hafa fasta ársvinnu og skapa atvinnu handa mönnum. sem nú eru at- vinnulausir. Það er ákaflega heimskuleg skoðun, að kauphæðin ein, tímakaupið, vikukaupið eða mánaðarkaupið, skipti öllu máli fyrir verkamanninn. Einmitt á síðustu tímum hefir það kom- ið greinilega í ljós um allan heim, að höfuðhættan fyrir verkamanninn er sú, að hann geti enga 'vinnu fengið eða þá svo stopula, að hún nægi ekki til lífsframfæris. Háir kaup- taxtar eru honum þá lítils virði. Það er því höfuðatriði nú fyrir verkamennina, að hægt sé að efla atvinnulífið þannig, að vinnan verði meiri en hún .nú er, jafnvel þótt kaupmáttur hverrar krónu yrði eitthvað minni vegna gengislækkunar eða hliðstæðra ráðstafana. Og vel skyldu daglaunamenn og sjómenn landsins gæta að því, að vera ekki hafðir að leiksoppi af hinu betur setta fastlaunaða fólki (á skrifstofum og víðar), sem dylur sína eigin óánægju með því að tala um, að verka- menn séu hart leiknir. Tíminn hefir fyrir nokkru getið frumvarps þess til laga um hlutarútgerðarfélög, sem flutt er af þremur Framsóknarmönn- um í neðri deild. Fylgir því ítar- leg greinargerð. Þar sem hér er um mjög merkílegt mál að ræða, þykir rétt að birta greinargerð- ina í heilu lagi, en áður hafa nokkur atriði hennar verið laus- lega rakin hér í blaðinu. Er hún á þessa leið: „Það má öllum vera ljóst, að þar sem sjávarútvegurinn er annar aðalatvinnuvegur þjóðar- innar, er það mjög þýðingar- mikið, að þeim atvinnuvegi sé fundið það rekstrarfyrirkomulag, sem bezt hentar. Er þess mikil þörf, að finna þann starfsgrund- völl, sem veitir þeim mönnum, sem að útgerðinni vinna, mesta tryggingu fyrir réttlátum starfs- launum, og þeim stofnunum, er lána fé til sjávarútvegsins, mest fjárhagslegt öryggi. Sjávarútvegurinn er nú að mestu rekinn af einstökum mönnum, samlagsfélögum fárra einstaklinga eða hlutafélögum. Þó hafa á síðasta áratug verið stofnuð nokkur fiskveiðasam- Fyrir þeim, sem undanfarið hafa beitt sér fyrir myndun þjóðstjórnar, hefir það vakað að gera stórt og myndarlegt átak til að auka framleiðsluna og atvinnuna í landinu, svo að um munaði. Þeir hafa álitið að um þetta ættu sem allra flestir að taka höndum saman, til að eyða misskilningi og tortryggni í þessu efni. En það eru líka önn- ur og eigi síður alvarleg við- fangsefni, sem nú gera mynd- un þjóðstjórnar æskilega. Sam- bandsmálið bíður úrlausnar og um það þarf þjóðin að vera sam- taka. Og á meginlandi Norður- álfunnar er ný stórstyrjöld yf- irvofandi. Sanngjörnum og greindum mönnum getur ekki dulizt það, að ef nokkurntíma er ástæða til að mynda þjóðstjórn og vera samtaka, þá er sú ástæða fyrir hendi einmitt nú. Hitt er svo annað mál, hvort þessi öryggis- ráðstöfun reynist möguleg. Bæði Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæð- isflokkurinn virðast eiga þar við mikla örðugleika að stríða. En hvort sem þjóðstjórn verð- ur eða ekki, ættu menn að fara varlega í að taka mark á ádeil- um og ásökunum, sem fram eru bornar algerlega út í loftið og við engin rök hafa að styðjast. Fyrir nokkrum dögum var óttast að næsta markmið Hit- lers væri að ná Rúmeníu undír þýzk yfirráð. Þessi hætta virð- ist nú liðin hjá í bili, sökum hins nýja verzlunarsamnings milli ríkjanna, sem er Þjóðverjum mjög hagstæður. En Hitler er samt ekki af baki dottinn. í stað Rúmeníu hefir hann nú beint hug sínum að Danzig og Póllandi. Þaðan bú- ast menn nú daglega við stór- tíðindum. Eftir heimsstyrj öld- Danzig. ina urðu Þjóðverjar að láta um 46 þús. ferkm. lands til hins nýstofnaða pólska ríkis. Næstum allt þetta land, eða 42 þús. ferkm., hafði heyrt undir pólska ríkið áður. Þjóðverjar héldu áfram talsvert stórum landshluta, sem þeir fengu við skiptingu Póllands 1772 og 1793. Auk þessa var hafnarborgin Danzig aðskilin frá Þýzkalandi og látin fá sjálfstjórn undir vernd Þjóðabandalagsins. Var þessi ráðstöfun byggð á þeirri forsendu, að Danzig var þá eig- inlega eina hafnarborg Póllands og Pólverjar óttuðust afarkosti, ef hún væri áfram undir stjórn Þýzkalands. Frá því snemma á miðöldum og þangað til 1772 hafði borgin líka lengstum heyrt undir Pólland, en þó nokkrum sinnum haft fullt sjálfstæði. Hinsvegar mælti það gegn aðskilnaðinum, að meiri- hluti íbúanna var þýzkur, enda vinnufélög, og í einu bæjarfé- lagi hefir verið rekin bæjarút- gerð. Á togurunum hafa skip- verjar að mestu fast kaup, án tillits til afkomu útgerðarinnar, og svo er einnig að nokkru leyti á smærri skipum, en á mörgum mótorbátum og öðrum smærri skipum eru þó skipverjar ráðnir gegn ákveðnum hluta af afla. Flest þau fiskveiðasamvinnu- félög, sem stofnuð hafa verið á undanförnum árum, munu hafa orðið til fyrir knýjandi þörf, vegna þess að útgerðarfyrirtæki einstakra manna eða hlutafélaga á viðkomandi stöðum hafa verið lögð niður, venjulega fyrir þá sök, að þau voru komin i þrot fjárhagslega vegna taps á út- gerðinni. Stofnun samvinnufé- laganna hefir því verið viðleitni til að afstýra neyðarástandi á viðkomandi útgerðarstöðum, og bæja- og sveitafélög, ásamt ríkissjóði, hafa í einstöku tilfell- um tekið á sig ábyrgðir vegna slíkra fiskveiðasamvinnufélaga. En yfirleitt munu þessi félög ekki hafa verið rekin á hreinum samvinnugrundvelli, þó að nöfn þeirra bendi til þess. Þau munu hafa ráðið starfsmenn að nokkru leyti fyrir fastákveðið kaup, bæði tl lengri og skemmri tíma, en aðeins nokkur hluti af starfsliði þeirra fengið breytilegar launa- greiðslur eftir rekstrarafkomu félaganna eða með aflahlut. Fé- lögin sjálf hafa því orðið fyrir töpum eins og útgerðarfyrirtæki einstakra manna eða hlutafé- laga. Rekstur bæjarútgerðarinnar hefir að engu leyti verið frá- brugðinn einstaklingsrekstri öðru en því, að ábyrgðin á fyrir- tækinu hvílir á viðkomandi bæj- arfélagi. Frumvarp það um hlutarút- gerðarfélög, sem hér er fram borið, er að efni til mjög svipað frumvarpi til laga um útgerðar- samvinnufélög, sem flutt var á Alþingi fyrir tveim árum af þremur þingmönnum Framsókn- arflokksins, þeim Bergi Jónssyni, Gísla Guðmundssyni og Bjarna Ásgeirssyni, en það frumvarp náði ekki samþykki á Alþingi. Ákvæði 7. gr. þessa frumvarps um sjóðstofnun til að tryggja þátttakendum í útgerðinni lág- markstekjur er þó nýmæli. Með frumvarpi þessu, ef að lögum verður, er byggður grund- völlur til að reisa á félagsleg samtök um fiskveiðar og aðra starfsemi í sambandi við þær, með almennri þátttöku þeirra, höfðu Þjóðverjar óspart reynt að útrýma þjóðerni Pólverja þar á árunum 1772—1918. Síðan Hitler kom til valda í Þýzkalandi hefir flokkur naz- ista í Danzig eflzt mikið og ræð- ur hann nú lögum og lofum á þingi borgarinnar. Andstæðing- ar hans hafa verið sviptir flest- um réttindum. Flokkurinn hefir notið mikils stuðnings frá Þýzkalandi. Það hefir stutt nokkuð að gengi hans, að verzl- un borgarinnar og siglingum þangað hefir hrakað mikiö í seinni tíð, sökum hinnar nýju hafnarborgar Pólverja, Gdynia. Þrátt fyrir það myndi inn- limun Danzig í Þýzkaland geta haft slæmar afleiðingar fyrir utanríkisverzlun Pólverja, því mikill. hluti hennar fer enn um borgina. Kjör hinna pólsku íbúa borgarinnar myndi sömuleiðis versna. Bæði af þessum og sögu- legum ástæðum munu Pólverjar því gera sitt ítrasta til að hindra innlimun Danzig í þýzka ríkið. M e ð a 1 þess „Korridorinn“. 1 a n d s, sem Pólverjar end- urheimtu frá Þjóðverjum eftir heimsstyrjöldina, er talsvert breið landspilda, sem nær alla leið til sjávar og klýfur Austur- Prússland frá Þýzkalandi. Þótti Þjóðverjum það strax harður kostur, að landi þeirra skyldi þannig skipt í tvennt, enda þótt þeim væri tryggðar góðar sam- göngur á milli. Til þessarar ráðstöfunar lágu sem að því starfa. Gert er ráð fyrir, að allir, sem að útgerðinni vinna hjá slíkum félögum á sjó og landi, séu félagsmenn, en þó gert ráð fyrir, að um undantekn- ingu geti verið að ræða að því er snertir ráðningu skipverja um stundarsakir í forföllum annara. Ábyrgð félagsmanna á skuld- bindingum félagsins er takmörk- uð við 300 krónur. Þá er svo á- kveð'iö, að allir fastir starfsmenn félagsins og skipverjar á skipum þess skuli ráðnir gegn ákveðnum hluta af afla, en ekki fyrir fast kaup. Með þessu er að því stefnt, að allir, sem að útgerðinni vinna á sjó og landi, sjómenn, verka- fólk, sem vinnur að verkun afl- ans í landi, skrifstofumenn, framkvæmdastjórar og stjórn- endur, fái vinnu sína greidda með aflahlut í stað fastra launa. Er þetta því miklu víðtækara hlutaskiptafyrirkomulag heldu1- en áður hefir tíðkazt, þar sem nú munu það eíngöngu vera sjó- mennirnir, sem taka aflahlut fyrir vinnu sína. Verður það að teljast réttast skipulag í útgerð- armálunum, að allir, sem í þeirri atvinnugrein starfa, taki laun eftir því sem aflast, og verður það ekki betur tryggt á annan hátt en þennan. Með þessum hætti verður það hagur þeirra allra hlutfallslega jafnt, þegar vel aflast og verð afurðanna er hátt, og aftur á móti leggjast byrðarnar af aflaleysi og lágu afúrðaverði hlutfallslega jafnt á alla þátttakendur í útgerðinni, en ekki aðeins á nokkurn hluta þeirra, eins og nú tíðkast. Því hefir verið haldið fram, að eigi myndi unnt að koma við hlutaskiptum að því er snertir þá menn, sem vinna að verkun og hagnýtingu aflans í landi. Þetta mun þó auðvelt, ef vilji er fyrir hendi. Verður að teljast vel hægt fyrir landverkafólk að taka þátt í slíkum félagsskap og taka að sér fiskverkun gegn ákveðn- um hluta af aflanum í verka- laun, og yrði sá aflahlutur mis- munandi stór, eftir því á hvaða verkunarstigi fiskurinn yrði seldur. Fyrirkomulag hlutaskiptanna á hverri tegund skipa skal á- kveðið í samþykktum félaganna. Skal þar ákveðinn hlutur allra skipverja, yfirmanna og háseta og annara starfsmanna, fram- kvæmdastjóra og skrifstofu- fólks. Ennfremur hlutur skips- ins og annara eigna, sem notað- ar eru við öflun fiskjarins eða hagnýtingu hans. í frumvarpinu er ákvæði um stofnun tryggingarsjóðs, í þeim tilgangi að tryggja félagsmönn- um lágmarkstekjur. Á síðustu árum hefir það farið í vöxt, að sjómönnum, sem ráðnir eru fyr- ir aflahlut, hafa verið tryggð lágmarkslaun yfir útgerðartím- ann, venjulega allmiklu lægri en einkum tvær ástæður: Pólverj- urn var nauðsynlegt að hafa að- gang að sjó og meginþorri íbú- anna í þessum landshluta var pólskur. Má m. a. marka þjóð- ernislega afstöðu þeirra á því, að þrátt fyrir öflugar aðgerðir Þjóðverja til útrýmingar pólsku þjóðerni, höfðu þeir jafnan kos- ið Pólverja til að mæta fyrir sína hönd á ríkisþingi Þýzka- lands. Að frádregnum árunum 1308—1454 hafði líka þessi landshluti tilheyrt Póllandi í næstum 1000 ár. Landshluti þessi er venju- lega nefndur „korridorinn" (gangurinn). Pólverjar hafa nú reist nýja hafnarborg, Gdynia, á þessum stað og gengið að því verki með fágætum dugnaði. Má nokkuð ráða, hve stórfelld þessi fram- kvæmd er, á því, að Gdynia, sem hafði fyrir tuttugu árum nokk- ur hundruð íbúa, hefir nú um 120 þús. íbúa. Munu þess ekki dæmi, að stórborg hafi risið upp á jafnskömmum tíma og Gdynia, þegar miðað er við svipuð skil- yrði. Þótt Þjóðverjum Efri-Schlesia. félli illa að missa þennan lands- hluta, var þeim þó enn óskap- feldara að láta Pólverjum eftir nokkurn hluta Efri-Schlesíu, sem er á landamærum Þýzka- lands, Tékkóslóvakíu og Pól- lands. Að vísu fengu Pólverjar þar ekki nema um 4000 ferkm. af landi, en fyrir margra hluta sakir var þetta einhver auðug- asti blettur Þýzkalands. Þar eru einna mestar kolanámur í Evrópu og margvíslegur stór- kaup fastlaunaðra sjómanna. Þó að þessi trygging sé ekki miðuð við liátt kaup, eru þess dæmi, að mjög erfitt hefir orðið fyrir einstaka útvegsmenn að uppfylla þessar kröfur um lág- markskaup, þegar illa árar, því að þá er af engu að taka hjá útgerðinni. Er þess því mikil þörf að koma þessum trygging- um þannig fyrir, að viðráðan- legt sé fyrir útgerðarfyrirtækin, en þó nokkurt öryggi um af- komuna fyrir sjómennina. Er hér ákveðið, að leggja skuli í tryggingarsj óðinn á k v e ð i ð hundraðsgj ald af verðmæti afl- ans, miðað við verð hans upp úr skipi, og að bæjar- eða sveitar- félag, þar sem hlutarútgerðarfé- lagið á heima, skuli leggja jafn- háa fjárhæð í sjóðinn á móti til- lagi félagsins. Þetta ákvæði er byggt á því, að rekstur útgerð- arinnar sé svo þýðingarmikill fyrir viðkomandi bæjar- eða sveitarfélög, að réttmætt sé að leggja á þau nokkra kvöð til að tryggja þeim mönnum, sem að útgerðinni vinna, lágmarkslaun fyrir unnið erfiði. Má benda á, að vafasamt er, að hér yrði um raunverulega útgjaldaaukningu að ræða fyrir bæjar- eða sveit- arfélögin, þar sem þau yrðu sennilega að veita fé til atvinpu- bóta eða á annan hátt til stuðnings atvinnulausum mönnum, ef útgerðarstarfsemi félli niður. Því verður tæplega mótmælt með skynsamlegum rökum, að rétt sé, að þeir, sem vinna fram- leiðslustörfin, fái stuðning ann- arra, sem hafa betri afkomu, ef einhverjir finnast, þegar illa árar fyrir framleiðsluna. Að þesskonar jöfnun á kjörum manna er stefnt með ákvæði þessa frumvarps um trygging- arsjóði, sem séu að hálfu leyti myndaðir af tillögum annara en þeírra, sem að framleiðslunni starfa. En vegna þessarar greiðsluskyldu bæjar- og sveit- arfélaga, er svo fyrir mælt, að bæjar- og sveitarstj órnir skuli samþykkja reglugerðir um lág- markslaun, sem greiðist úr tryggingarsjóði. Samþykktir félaganna og reglugerðir um tryggingarsjóði skulu einnig staðfestar af stjórnarráðinu. Allar breytingar, sem gerðar eru á samþykktum og reglugerðum hlutarútgerðar- félaga, skulu einnig staðfestar af sömu aðiljum til þess að öðl- ast gildi. Þegar hlutarútgerðarfélag hættir störfum, skal tryggingar- sjóður þess ávaxtaður áfram á nafni viðkomandi bæjar- eða sveitarfélags, og má eingöngu verja innstæðu hans til greiðslu á tillögum í tryggingarsjóði annara hlutarútgerðarfélaga á sama stað. Eitt af því, sem mjög hefir iðnaður. Af íbúunum, sem voru um 900 þús., var þriðjungurinn þýzkumælandi. — í atkvæða- greiðslu, sem fram fór um það 1921, hvoru landinu íbúarnir vildu fylgja, veitti Þjóðverjum betur. Eigi að síður fengu Pól- verjar þessi héruð. Það er víst, að fyrst eftir heimsstyrj öldina þótti Þjóðverj- um langsamlega verst að missa það land, sem Pólverjar fengu. Sérstaklega hörmuðu þeir miss- ir „korridorsins" og Efri- Schlesiu. Kom þetta í ljós á margan hátt. Viðskiptastríð reis milli landanna á tímabili og urðu afleiðingarnar þær, að á árunum 1923—34 minnkuðu við- skiptin milli þeirra um helming. Vegna hinna sífelldu erja milli ríkjanna kom það því mjög á ó- vart, þegar þau gerðu með sér vináttusamning,sem gilda skyldi í 10 ár. Það var 1934. Ýmsir telja að Hitler hafi átt frumkvæði samningsins. Árangur hans varð m. a. sá, að stuðningur Pólverja við lýðræðisríkin varð ótraust- ari en áður. Hitler hefir því hagnazt talsvert á samningnum, en nú þykist hann tæpast þurfa þess lengur með og að tími sé til þess kominn að rifja upp gamlar væringar. Saga Pólverja hefir Raunasaga frá fyrstu tíð verið Pólverja. hálfgerð r a u n a - saga. Ef til þess dregur nú að þeir þurfi að verja frelsi sitt með vopnum, er það vissulega engin nýjung í sögu þeirra. Fyrstu sagnir um ríki Pólverja eru um 1000 ára gamlar. Þeir torveldað efnalitlum mönnum að koma á fót útgerðarfyrir- tækj-'um, er það, að erfitt hefir reynzt að fá nema lítinn hluta af verði skipanna að láni gegn veði í þeim vegna þeirrar sjó- veðshættu, sem á skipunum hvílir samkvæmt gildandi lög- um. Með hlutarútgerðarfyrir- komulaginu er sjóveðshættan mjög lítil, og ætti því slíkum fé- lögum að verða miklu auðveld- ara að fá lán gegn veði í skip- um heldur en fyrirtækjum, sem skuldbinda sig til að greiða á- höfninni fast kaup, sem sjóveðs- réttur fylgir. Enn er ótalinn sá kostur við þetta rekstrarfyrirkomulag, að með því er komið í veg fyrir, að reksturinn stöðvist vegna á- greinings milli útgerðarmanna og sjómanna um kaup og kjör, en slíkir árekstrar hafa oft átt sér stað að undanförnu og vald- ið þjóðarheildinni miklu fjár- hagslegu tjóni. í frumvarpinu er loks ákvæði um, að félög, sem stofnuð verða samkvæmt lögunum, skuli und- anþegin greiðslu tekjuskatts af varasjóði og tryggingarsjóði og heimilað að undanþiggja þau útsvari. Með lögum frá síðasta Alþingi voru togaraútgerðar- fyrirtækjum veitt svipuð hlunn- indi um nokkurra ára skeið, og virðist ekki ósanngjarnt, að hlutarútgerðarfélögin n j ó t i einnig þeirra hlunninda.“ „Frjáls vcrzlun“ Kaupmenn hér í bænum eru byrjaðir að gefa út nýtt blað, sem nefnist „Frjáls verzlun“. Eins og nafnið bendir til mun blaðið eiga að berjast fyrir af- námi innflutningshaftanna ög frjálsum aðflutningi frá út- löndum. Eins og vænta má, þar sem um slíkan málstað er að ræða, kenni iðulega töluverts ósam- ræmis í málflutningnum. í sein- asta tölublaðinu er t. d. mikið skammast yfir því, að nokkrar vanskilaskuldir hafa safnazt hér á undanförnum árum. „Ef ekkert verður að gert“, segir blaðið, „halda vanskilaskuld- irnar áfram að vaxa þangað til þjóöin fær ekki við þær ráðið“. Skyldu þessir menn virkilega halda að söfnun vanskilaskuld- anna minnkaði, ef höftin yrðu afnumin? Eru ekki einmitt van- skilaskuldirnar sönnun þess, að meðan útflutningurinn ekki eykst, sökum þess að kaupmenn og þessháttar legátar standa gegn kjarabótum handa út- flutningsframleiðslunni, er frekar þörf að auka höftin en draga úr þeim? Sem dæmi um rithátt blaðsins má nefna eftirfarandi kafla úr ÍFramh. á 4. siðu) hafa jafnan þótt merkileg þjóð fyrir margra hluta sakir. Bólc- menntir þeirra eru mjög merki- legar og á fleiri sviðum hafa þeir staðið framarlega. Þeir hafa og þótt góðir hermenn. En inn- byrðisdeilur og sundurlyndi hefir venjulega staðið þeim fyrir þrifum. Á miðöldunum voru borgarastyrjaldir og upp- reisnir mjög tíðar. Þessi innri á- tök gerðu nábúaríkjunum mjög auðvelt að ráða miklu i landinu með því að styrkja sér hliðholla menn til valda. Kom svo að lok- um, að þeim þótti það ekki nægilegt, heldur ákváðu að leggja landið undir yfirráð sín. Árið 1772 komu Rússar, Þjóð- verjar og Austurríkismenn sér saman um að skipta verulegum hluta af landinu á milli sín. Ár- ið 1793 framkvæmdu þeir nýja skiptingu á meginhluta lands- ins og 1795 voru seinustu leifar hins pólska ríkis lögð undir er- lend yfirráð. Pólverjar reyndu eftir megni að verja frelsi sitt, en þó ekki fyrr en það var orðið um seinan að snúa saman bökum. Á 19. öldinni gerðu þeir fjölmargar tilraunir til að brjótast undan hinu erlenda oki og kom oft til blóðugra uppreisna, sem hinir erlendu drottnarar börðu niður með vægðarlausri harðýðgi. Á árunum 1772—1918 urðu Pólverjar að þola alla þá bölv- un, sem getur fylgt erlendri undirokun. Bezt voru kjör þeirra í þeim héruðum, sem heyrðu undir Austurríki. Hinsvegar voru þau verst í þeim landshlutum, sem lágu undir Þýzkaland. Þjóð- verjar reyndu á allan hátt að Pélland

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.