Tíminn - 01.04.1939, Blaðsíða 4

Tíminn - 01.04.1939, Blaðsíða 4
158 TÍMIMV. langar<laglim 1. apríl 1939 39. blað IsÆOXjJLI?/ Francisco Franco, sem nú er orðinn einrœðisherra Spánar, er rúmlega hálffimmtugur að aldri. Franco er kominn af miðstétt- arfólki. Faðir hans var birgða- vörður i þjónustu flotans. Seytj- án ára gamall hóf Franco nám sitt á herforingjaskóla. Eftir að hafa lokið námi við góðan orð- stir, fór Franco til Marokko og starfaði í spanska hernum þar. Vann hann sér þar skjótt mikið frœgðarorð fyrir hugrekki og herkœnsku. Má m. a. marka það á því, að hann hlaut majorstitil tœplega 23 ára gamall og er það nœstum einsdœmi að menn á þeim aldri nái þeirri virðingar- stöðu. Franco sœrðist oft í orrustum á þessum árum og einu sinni mjög hœttulega. Á þessum árum byrjuðu Spán- verjar að skipuleggja í Marokko hinar svonefndu utlendingaher- sveitir. Voru í þeim œfintýra- menn víðsvegar úr heiminum. Það féll í hlut Francos að vera einn aðalstjórnandi þessara nýju hersveita, sem bráðlega þóttu kjarni spanska hersins í Marok- ko. Jafnframt vann Franco að því að koma upp sérstökum Márahersveitum. Hann gat sér miklar vinsœldir meðal þessara framandi hermanna, enda hafa þeir veitt honum örugga fylgd í borgarastyrjöldinni. Nokkru eftir að Primo de Ri- vera varð einrœðisherra Spánar, sœmdi hann Franco hershöfð- ingjatitli og gerði hann að for- stöðumanni hernaðarháskólans í Saragossa. Hefir enginn maður fyrr né síðar í spanska hernurn hlotið hershöfðingjatitil jafn- ungur og Franco. Árið 1929 kom ný stjórn til valda á Spáni og lokaði hún skólanum, sem Franco veitti for- stöðu. Dvaldi hann þá um skeið í Þýzkalandi og Frakklandi og kynnti sér hernaðarvísindi. Er hann talinn manna víðlesnastur og fróðastur í þeim efnum. Þegar vinstri flokkarnir töp- uðu í kosningunum 1933 og hœgri menn komust til valda, var Fran- co skipaður formaður herfor- ingjaráðsins. Þegar Georg VI. Bretakonungur var jarðsunginn, mœtti hann við þá athöfn, sem fulltrúi spanska ríkisins. Veturinn 1936 unnu vinstri flokkarnir kosningasigur. Hin nýja stjórn vék Franco úr stöðu hans, en þorði þó ekki, vegna vinsœlda hans, að gera hann burtrœkan með öllu. Hann var því sendur til kanarisku eyjanna og skipaður yfirmaður hersins þar. Það hindraði hann samt ekki í því, að taka þátt í undir- búningi uppreistarinnar og jafn- skjótt og hún hófst, flaug hann þaðan til Marokko, þar sem út- lendinga- og Márahersveitirnar gengu strax í lið með hinum gamla foringja sínum. Upphaflega átti Franco ekki að vera leiðtogi uppreistar- manna. Forustan var ætluð San- jurio hershófðingja. Hann var landflótta í Portugal, en flaug þaðan samtímis og Franco frá kanarisku eyjunum. Á leiðinni ÚR BÆNUM Aðalfundur Ferðafélag^ins var haldinn að Hótel Borg í fyrra- kvöld. Forseti félagsins, Geir G. Zo- éga vegamálastjóri, gerði grein fyrir starfi þess síðastliðið ár. Hafa sæluhús- byggingarnar verið helztu framkvæmd- irnar. Var lokið byggingu sæluhúss í Kerlingarfjöllum og byggt og að mestu gengið frá upphituðu sæluhúsi á Hveravöllum. Þrjátíu og þrjár skemmti ferðir voru farnar á vegum félagsins á árinu og þátttakendur í þeim voru nær 1300. Félagsmenn eru nú um 2500. Stjórnarkosning fór fram og voru endurkosnir Geir G. Zoéga forseti og Steinþór Sigurðsson varaforseti og meðstjórnendur Pálmi Hannesson, Jón Eyþórsson og Guðmundur Einarsson frá Miðdal. Auk þess voru kosnir í stjórnina Lárus Ottesen kaupmaður og Gísli Gestsson bankamaður í stað Rannveigar Tómasdóttur og Axels Kaaber. Árbók Ferðafélagsins árið 1939 átti að fjalla um Austur- land og var ráðið, að Benedikt Blöndal ritaði hana. Hafði hann eigi lokið því verki, þegar hann varð úti í vetur. Var þá horfið að því ráði að láta ár- bókina fjalla að þessu sinni um ís- lenzka fugla og hefir Magnús Björns- son náttúrufræðingur verið fenginn til þess að annast samningu hennar. Árshátíð Norræna félagsins verður haldin í kvöld að Hótel Borg, og hefst með borðhaldi kl, 7.30. Sundkeppni á milli skóla bæjarins fór fram í Sundhöllinni í gærkvöldi. Var boðsund háð um bikar, gefinn af stúdentaráði háskólans. Sigraði háskólinn. Annar varð Verzlunarskólinn, þriðji iðnskól- inn, gagnfræðaskólinn í Reykjavík fjórði og gagnfræðaskóli Reykvíkinga fimmti. Menntaskólinn var dæmdur úr leik vegna óhapps. Keppendur voru alls tuttugu úr hverjum skóla. Ráðleggingastöð fyrir barnshafandi konur, er opin fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði, klukkan 3—4, í Templarasundi 3. Bankarnir verða lokaðir á laugardaginn fyrir páska. Danssýning. Rigmor Hansson danzkennari sýnir að Hótei Borg á mánudagskvöldið nýjan tízkudans, sem aldrei hefir sézt hér áður, og nefnist Park Parade. Dans þessi var sýndur í London i fyrsta skipti 8. marz í vetur, eða fyrir þrem vikum. Dans þessi er saminn af Miss Adele England, en hún hefir einnig samið Lambeth Walk og fleiri slíka dansa. hrapaði flugvélin og öll áhöfnin fórst. Franco er frekar lágur vexti. Hann er sagður ólíkur Spán- verjum i lunderni, rólyndur, fá- mœltur og heldur lítill gleði- maður. Hann berst lítið á, en er sagður röskur starfsmaður. Hann hefir hingað til haft litil afskipti af auðmönnum og að- alsmönnum og hyggja ýmsir, að hann muni ekki stjórna eins milcið eftir þeirra höfði og þeir sjálfir óska eftir. * * * Á þessu ári eru liðín 70 ár frá opnun Suez-skurðarins. — Hann er 101 mílu langur og eru skipin venjulega í röskar 11 klst. að fara eftir honum. Lágmarks- breidd skurðarins er 60 m. Skip, sem rista dýpra en liy2 m. mega ekki fara um hann. Árið 1937 fóru 6637 skip um skurðinn. Samanlagt var smá- lestatala þeirra 36.491.332. H. GUSTAFSSON forstjóri andaðist í Stokkhólmi síðd. í gær F. h. vandamanna Björn G. Björnsson. Messur á morgun: í dómkirkjunni kl. 11, Ólafur Ólafs- son kristniboði, kl. 2, séra Garðar Svavarsson, barnaguðsþjónusta, kl. 5, séra Sigurjón Þ. Árnason. — í fríkirkj- unni kl. 2, séra Árni Sigurð'sson, barna- guðsþjónusta, kl. 5, Ólafur Ólafsson kristniboði. — í Skerjafjarðarskóla kl. 10, barnaguðsþjónusta. — í Laugar- nesskóla kl. 10, barnaguðsþjónusta Engin síðdegismessa. — í elliheimilinu kl. 2, barnaguðsþjónusta. — í Betaníu kl. 3, barnaguðsþjónusta. — í Hafnar- fjarðarkirkju kl. 11, barnaguðsþjón- usta. — í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 5, Sigurbjörn Á. Gíslason, cand. theol. Blindravinafélag íslands hélt aðalfund sinn í Kaupþingssaln- um í gærkvöldi. Stjórn félagsins var öll endurkosin og skipa hana Þorsteinn Bjarnason, Þórey Þorleifsdóttir, Helgi Elíasson, Helgi Tryggvason og Guð- mundur Ragnar Ólafsson úr Grindavík. Leiðrétting. X neðanmáli blaðsins í dag hefir í nokkrum liluta upplagsins fallið niður ein lína í kaflanum um Efri-Schlesíu. Á greinin að hljóða þannig: Að vísu fengu Pólverjar þar ekki nema um 4000 km. af landi, en fyrir margra hluta sakir var þetta einhver auðug- asti blettur Þýzkalands. Þar eru o. s. frv. Það, sem er skáletrað, hefir fallið niður. Gestir í bænum: Guðmundur Stefánsson, bóndi á Fitjum í Skorradal, Ársæll Jónsson, bóndi í Eystri-Tungu í Vestur-Land- evjum, Jóhann Guðjónsson bóndi á Leirulæk, Bergþór Bergþórsson gest- gjafi í Borgarnesi. Furðulegar fregnir nm Island (Framh. aj 1. síðu) lagi er mjög einföld: Þriðja rík- ið undirbýr á íslandi að koma fyrir flugstöðvum og kafbáta- lægjum, sem myndu, ef til stríðs kæmi, gera því fært að ógna al- varlega sjóleiðinni og umferð- inni frá Ameríku til Stóra- Bretlands og Frakklands. (Let- urbreyting blaðsins sjálfs)“. Þó grein þessi sé að nokkru leyti frábrugðin frásögninni í Manchester Guardian bendir niðurlag hennar til, að hún styðjist við svipaðar heimildir og þar kemur líka einmitt fram sama röksemdin og tíðust er í kommúnistablöðunum hér heima. Á víðavangi. (Framh. af 1. síðu) sem enginn hér heima þekkti deili á, fengi hér einkaleyfi til málmvinnslu, án nokkurs veru- legs gjalds eða vitneskju um það, hvaða auðæfi þjóðin væri raun- verulega að afhenda útlending- um til umráða. Loks játa þeir, að þeir byggi blaðaútgáfu sína fyrst og fremst á erlendri hjálp. Slík framkoma bendir vissulega til þess að kommúnistum finnist þeir vera ættjarðarlausir og fer þá jafnframt að skýrast afstað- an til fleiri mála, sem meira snertu hag þjóðarinnar inn á við síðastliðið haust. Nú hlakka ég til að fá kaffi- sopa með Freyjukaffibætis- dufti, því þá veit ég að kaff- ið hressir míg Hafið þér athugað það, að Freyju-kaffibætisduft inni- heldur ekkert vatn, og er því 15% ódýrara en kaffi- bætir í stöngum REYNIÐ FREYJU-DUFT PÁSKA-ÚTSALA hefst laugardagsmorgun á DÖMUTÖSKUM. KAUPIÐ V ORTÍZKUNA fyrir lítið verð. Útsalan hættir þriðjudagskvöld. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ. „Frjáls verzlun44. Framh. af 2. síðu) bréfi til ritstjórans, sem birt er í blaðinu: „Hversvegna svarar ekki „Frjáls verzlun“ árásum Jónas- ar á verzlunarstéttina? Eiga pólitískir stigamenn að fá að halda uppi árásum á verzlunar- stéttina og verzlunarfrelsið? Menn eins og Jónas, sem með æfistarfi sínu hafa leitt meira böl yfir þjóðina en dæmi eru til áður“. — 6 Lettice Ulpha Cooper: skipt um klæðnað, en kom þó upp til þess að horfa á. Við stóðum þarna báðar góða stund og horfðum á, en svo gengum við niður á neðra þilfarið og út að öðrum borðstokknum. Það var kyrrt veður þetta kvöld, til allrar hamingju fyrir dansfólkið, og við styttum okkur stundir við að horfa á gárana, sem mynduðust á haffletinum, þegar skipið plægði sjóinn. Það var ákaflega dimmt. Ég man ekki hvað leiddi talið á þessa braut. Ég held, að ég hafi látið orð falla á þá leið, að eftir fimm daga yrðum við komin til Englands. Hún gaf frá sér hljóð, annaðhvort af hugraun eða þá aðeins til samþykkis því, er ég hafði sagt. Ég spurði, hvort hana langaði til að vera horfin til Madeira aftur. — Það skiptir mig ekki framar neinu hvar ég er, svaraði hún hæglátlega. Ég gat ekki séð framan í hana. En ég hefi sjaldan heyrt jafn raunalega röddu. Ég svaraði ekki og hún endurtók orð sín: — Það skiptir mig engu, hvar ég er. Hví ætti mér ekki að vera sama? Ekkert skiptir máli fyrir mig framar. Ég hafði tvívegis heyrt fólk láta svipuð um- mæli falla. í bæði skiptin voru það ungar mann- eskjur, þrungnar sárri örvæntingu. Hún var ekki örvæntingarfull; hún var heldur ekki mjög ung. Hún talaði róle'ga, líkt og sá, er teflir fram í hug- aðri og óhagganlegri staðreynd, eins og ég trúði þá, og trúi enn, að hún væri að gera. Ég hefði ekki lagt mikið upp úr slíkum orðum af vörum Málarinn 7 ástríðuheits unglings, en ég vissi ,að hún flik- aði þessu ekki í neinu fljótræði. Ég vissi ekki hvað ég átti að segja. Við vorum í rauninni ekki nema rétt málkunnugar. Ég spurði hana í vandræðum mínum, hvort hún ætti engan að heima, sem hún gæti leitað til. — Ójú, sagði hún. Föður og móður. Faðir minn er prestur uppi í sveit, bætti hún við. Ég hefi aldrei fyrr verið að heiman í langan tíma, nema eitt ár, sem ég var í skólanum. Það var fyrir heimsstyrjöldina. Ég er orðin þrjátíu og fjögurra ára gömul. Ég gat lítið unnið fóstur- jörðinni til gagns á ófriðarárunum, ég bara prjónaði og saumaði og því um líkt. Mamma var alltaf veik um það leyti og ég gat ekki yfir- gefið hana. Ég gat séð í hug mér allt hennar líf. Sveitina og æskuumhverfið, umhyggjusamlegt uppeldi, látlaust og hreinlegt heimilið, þar sem foreldr- arnir bjuggu, sem efalaust þótti innilega vænt um hana. Ég skildi hversvegna hún, þrjátíu og fjögurra ára gömul, var svo óreynd, næstum barnaleg. Ég sagði eitthvað á þá leið, að foreldrar hennar myndu verða glöð yfir heimkomu hennar. — Já, svaraði hún. En svo bætti hún allt í einu við: — Það var allt svo ókunnuglegt, ólíkt öllu öðru, þarna á Madeira, fannst mér. Það hlýtur að hafa verið. Ég bar saman í hug- anum prestssetrið inni i miðju Englandi og þessa fögru, sólvermdu, fjarlægu eyju. Ólafur Thorlaclus lætur af störfiim. (Framh. af 1. síðu) uðstaðinn, enda ekki von að sveitaþjóðin þekkti einangrun- arlögmál þéttbýlisins fyrirfram. En fyrir bragðið væri hann nú betur undirbúinn umskiptin, að setjast nú í helgan stein. Ólafur Thorlacius hefir unnið mörg og þýðingarmikil störf fyrir landið við forstöðu lyfja- deildarinnar og um margt verið ráðunautur hins opinbera í þessum málum. En þó mun honum sjálfum þykja vænst um það trúnaðarstarfið, þeg- ar hann tókst á hendur forstöðu geðveikrahælisins á Kleppi, eins og þá stóð á. í þeim hörðu á- tökum naut Ólafur aðstoðar ungs námsmanns, Kristins Stef- ánssonar frá Völlum í Svarfað- ardal, sem nú verður eftirmað- ur hans, eftir að hafa á hinn fullkomnasta hátt búið sig und- ir að taka við hlutskiptinu. Á sjötugsafmæli Ólafs buðu Sunnmýlingar hér í bænum þeim Búlandsneshjónum, Ólafi og Ragnhildi Thorlacius til sam- kvæmis. Kom þar m. a. fram hinn mikli hlýhugur, sem þessi lijón eiga í hugum samferða- manna sinna. G. M. Y"—“'""‘GAMLA BÍÓ’"—'*—• | Islands- | kvikmyndÍE 1 sem Orlogskapteinn Dam | tók hér í fyrrasumar. | Sýnd í kvöld kl. 8 og 9.15. Aðgöngumiðar seldir frá j kl. 4. (Lækkað verð). ,H* NÝJA BÍÓ-h-~— j Kraftaverka- j iiiaðurinn. j (The man who could work ! miracles). Afburða sérkennileg og I athyglisverð kvikmynd frá j United Artists. Eftir sam- j nefndri sögu enska stór- ; skáldsins H. G. Wells. Aðalhlutv., kraftaverka- ! manninn, leikur ROLAND SONNY. j Aukamynd Míckey á hálum ís. Litskreytt Mickey Mouse j teiknimynd. I j ; i j Jörðin SKEGGJASTÁÐIR í Mosfellssveit er til sölu nú þegar. J ö r ð i n liggur 20 km. frá Reykjavík. Nýtt íbúðarhús og fjós úr steinsteypu. Laxveiði, sími og ö n n u r nútíma- þægindi. — Semjið við Jón Hjartarson Kárastíg 9. Sími 5186. íbúðarhúsið Trjáræktarnámskeið vcrðnr haldið á Hallormsstað í vor. — 4~5 stúlkur geta komíst að. — Umsóknir sendist skógarverðinum á Hallormsstað fyrir apríllok L| óðskáld ténskáld íslands Sjómannadagsráðið hefir ákveðið að efna til samkeppni meðal ljóðskálda og tónskálda um sérstök sjómannaljóð fyrir daginn með viðeigandi göngulagi (March). Verður fyrst snúið sér að ljóðskáldunum og veitt verðlaun fyrir tvö beztu kvæðin sem verðlaunahæf þykja að mati dómnefndar. Dómnefndin verður skipuð þessum mönnum: Guðmundi Finnbogasyni landsbókaverði, Sig- urði Nordal prófessor og Geir Sigurðssyni skipstjóra. Fyrstu verðlaun verða kr. Í50.00 — hundrað og fimtíu krónur — önnur verðlaun kr. 50.00 — fimtíu krónur. Sjómannadagsráðið hefði kosið að ástæður leyfðu að verðlaunin væri miklu hærri en hér er ákveðið, en væntir hinsvegar að vimsemd skáldanna til sjómannastéttarinn- ar hvetji þau heldur til að sinna þessari málaleitan. Þau skáld sem vilja sinna þessu, sendi kvæði sín til Sjómannadagsráðsins Ingólfshvoli, Reykjavík fyrir 20. apríl n.k. Kvæðið og nafn skáldsins verða að vera sitt í hvoru umslagi auðkendu með sama merki. Einu skilyrðin eru þau, að ekki séu færri en þrjú er- indi í kvæði, hvert erindi minst sex ljóðlínur, og að brag- arhátturinn sé vel fallinn til að semja við göngulag. Á eftir verður svo leitað til tónskáldanna um lag við kvæðið. Stjérn Sjómannadagfsins. Málverkasýníngu o p n a r Guðmumlur Einarsson frá Mfödal á Skólavörðustíg 43 (viniiustofuimi). —— Opið frá 10 f. h. íil 7 e. h. limgangur kr. 1.00 (skólafólk „ 0,50) Hangikjötspantanir fyrír páskana verða að berast oss sem fyrst Samband ísLsamvinnufélaga Sími 1080.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.