Tíminn - 04.05.1939, Blaðsíða 4
204
TÍMPnV, fimmtndagiiin 4. maí 1939
51. blað
MOLAR
Píus XI. páfi var viðfrœgur
fyrir áhuga sinn á fjallgöngum.
Eftirmaður hans, Píus XII., er
einnig dugandi íþróttamaður. í
páfagarði er salur mikill, búinn
öllum hugsanlegum leikfimí-
áhöldum, og á hverjum morgni
er páfinn einn klukktíma við cef-
ingar í þessum sal. Að morgun-
œfingunum loknum gengur hann
stuttan spöl og fer afar hœgt.
Slðan byrjar hann starf sitt, er
oft varir langt fram á kvöld.
Meðan hann gegndi kardi-
nálastörfum og bar nafnið Pa-
celli, var hann í ferðlögum víða
um heim í erindagerðum páfa.
Lét hann þá í Ijós mikinn áhuga
á flugi og ferðaðist oft með
flugvélum.
* * *
f ensku tízkublaði birtist ný-
lega allmikð af málsháttum um
konur og þeirra háttsemi. Ekki
var það allt hrós, sem þar var
sagt um hið blíða kyn. Eru hér
nokkrir málsháttanna, valdir af
handahófi:
Djöfullinn freistar allra; fal-
legar konur freista djöfulsins.
Þótt karlmaður heitist við þig
og hóti að vinna þér mein, þá
gakk rólegur til sœngur. Ef kona
hefir í hótunum við þig, þá gœttu
þln að sofna ekki í nótt.
Ein kona veitir lœknunum
meiri atvinnu en sex karlmenn.
Þrennt er það, sem þú mátt
aldrei treysta á: Haft á hesti
þínum, orð konu og ást unglings.
Minni manns er oft svikult,
eins og kvenfólkið.
Konur gráta, þegar þœr eru
sorgbitnar og þegar þcer œtla
að ginna þig.
Guðmundur Bjarnason
(Framh. af 3. síðu)
sem kennd er við nafn föður
Guðmundar og geymir hálfan
höfuðstólinn á í framtíðinni að
annast skógrækt sandgræðslu og
fóðurtryggingar í hreppnum.
Önnur deildin, sem tengd er við
nafn móður hans og geymir einn
fjórða hluta höfuðstólsins, á að
hjálpa fátækum gamalmennum,
mæðrum og börnum í hreppnum.
Og þriðja deildin, sem tengd er
við nafn stjúpu hans og fóstru
og sem geymir einn fjórða hluta
sjóðsins á að styrkja kristilegt
safnaðarlíf og stuðla að fræðslu
barna og unglinga í hreppnum —
á kristilegum grundvelli. Skipu-
lagsskránni má breyta er tímar
líða, en aðalmarkmiði sjóðsins
má aldrei breyta, því: að styrkja
og efla gróður jarðar og bætta
meðferð búfénaðar, — að styrkja
fátæka og efla kristilegt safnað-
arlíf- —
Þegar athuguð er þessi sjóð-
stofnun og skipulagsskrá hans,
hvarflar hugurinn ósjálfrátt tæp
sextíu ár aftur í tímann og nem-
ur staðar við lítið fjallakot í
Hraunhreppi í Mýrasýslu. Þar er
fjögra vetra drengur að yfirgefa
fæðingarstöðvar sínar — eina
heimilið, sem hann þá hafði
gjört sér grein fyrir að væri til.
Það var fátækt og óbrotið, — en
það var heimilið hans, þar sem
hann hafði notið allrar þeirrar
ÚR BÆIVUBl
Hekla,
heitir bamablað, er skólaböm í Ása-
og Holtahreppum í Rangárvallasýslu
hafa gefið út. Verður blaðið selt
á -ötunum í dag. Blað þetta hafa nær
30 börn innan fjórtán ára aldurs skrif-
að og er hið yngsta níu ára gömul
telpa. Auk þess eru í því myndir og
teikningar. Þeim ágóða, er kann að
verða á útgáfu blaðsins, verður varið
til að standast kostnað við skemmti-
för skólabama úr hlutaðeigandi sveit-
um. Menn ættu að bregðast vel við, ef
þeim verður boðið þetta blað hinna
ungu Rangæinga á götunum í dag.
Skemtun í skíðaskálanum.
Félög ungra Framsóknarmanna í
Ölfusi og Reykjavík halda sameiginlega
skemmtun í skíðaskálanum á laugar-
dagskvöldið. Þeim, sem sækja vilja
samkomuna héðan úr Reykjavík, verð-
ur séð fyrir ódýrum ferðum fram og
til baka og eru þeir beðnir að tilkynna
þátttöku sína fyrir hádegi á laugardag
í síma 2353. Verður lagt af stað frá
Edduhúsi við Lindargötu kl. 8.15 rétt-
stundis á laugardagskvöldið. Til
skemmtunar í skíðaskálanum verður
stutt ræða, söngur og dans.
Pétur Lárusson,
skrifstofumaður á skrifstofu alþingis,
á fimmtugsafmæli í dag.
Gísli Sighvatsson,
útgerðarmaður á Sólbakka í Gerða-
hreppi, er fimmtugur í dag.
Dagheimili Sumargjafar.
Þeim, sem hafa í hyggju, að koma
börnum sínum á dagheimili Sumar-
giafar í ár, skal bent á að kynna sér
auglýsingu á 3. síðu í blaðinu í dag.
Bryndís Zoega,
dóttir Geirs G. Zoega vegamálastjóra,
hefir verið ráðin forstöðukona barna-
heimilis Sumargjafar í Vesturborg í
sumar. Undanfarin ár hefir Bryndís
dvalið í Kaupmannahöfn við nám, er
lýtur að þeim störfum, er hún tekst á
hendur i Vesturborg.
Gestir í bænum.
Páll Þorsteinsson kennari á Hnappa-
völlum í Öræfum, Björn Lárusson í
Grímstungu í Vatnsdal, Kristleifur
Jónsson á Varmalæk í Borgarfirði.
umönnunar og ástríkis, sem
unnt var að veita honum. Hann
hafði undanfarna daga séð
ærnar hans pabba síns hníga
niður örmagna hverja af ann-
arri og sömuleiðis lömbin, sem
hann hafði fagnað svo mikið
vorið áður og bundizt tryggð-
um um veturinn. Allt hvarf
þetta sjónum hans smátt og
smátt. Hann kemur eftir langt
og erfitt ferðalag í nýtt heim-
kynni. Allt er svo ólíkt því,
sem var heima. Hann legst út af
þreyttur og sorgbitinn og grætur
innilega allt þetta, sem hann var
búinn að missa. En fóstran situr
við rúmstokkinn les með honum
bænirnar hans — og undir bless-
unarorðunum breytist sorgin í
væran svefn og blíða drauma.
Hann dreymir að hann sé orðinn
stór og sterkur; hann er kominn
heim að Haga — hann gefur fén-
aðinum hans föður síns nýtt líf
— og byrjar voryrkjuna, sem átti
að fara að hefjast þegar hann
flutti að heiman. Þessum draum
gleymdi hann aldrei — og nú á
hann að fara að rætast — ekki
aðeins í Haga, heldur og í allri
hinni víðlendu sveit Haga og
Hjörseyjar — og sem nú er að
verða einskonar landnám fátæka
drengsins, sem aldrei gleymdi
æskustöðvunum.
Bjarni Ásgeirsson.
TILKYNNING.
Áætlun Reykjavík — Kjalames og Kjós frá og með 1. maí
til 1. október 1939:
Alla virka daga frá Rvík kl. 6l/2 e. h., nema laugard. kl. 2y2 e. h.
Alla virka daga frá Laxá kl. 7 f. h. og auk þess á laugard. kl. 7 e.h.
frá Reykjavík kl. 8 f. m.
Sunnudaga og helgidaga
frá Reykjavík kl. 5.30 e. m.
frá Reykjavík kl. 10 e. m.
frá Laxá kl. 10 f. m.
frá Laxá kl. 7.30 e. m.
Júlíus Jónsson.
Bifreiðastöð Reykjavíkur.
Svefnpokar og kerrupokar
margar gerðir fyrirliggjandi. — Einnig HLÍFÐARDÚKAR. —
Maglii ll. f., Þingholtsstræti 23. — Simi 2088.
—QAMLA BÍÓ*
GRlMUDANS-
LEIKUR
(„Háxnatten")
Hrífandi fögur og skemmti
leg sænsk kvikmynd.
Aðalhlutv. leika mesti
leikari Norðurlanda:
GÖSTA EKMAN
og hin nýja, glæsilega leik-
kona
SIGNE HASSO.
- IfÝJA bíó*0—<H
SUEZ
Söguleg stórmynd frá Fox-
félaginu, er sýnir tildrögin
til þess, að hafizt var
handa á einu af stærstu
mannvirkjum veraldarinn-
ar, Suez-skurðinum, og
þætti úr hinni ævintýra-
ríku æfi franska stjórn-
málamannsins Ferdinand
de Lessep’s, sem var aðal-
frumkvöðullinn að því
mikla verki.
Aðalhlutv. leika:
TYRONNE POWER,
LORETTE YOUNG,
ANNABELLA O. FL.
Jainvel ungt iólk
eykur velliðan sína ineð því að nota
harvötn og ilmvötn
Víð framleiðum:
EAU DE PORTUGAL
EAU DE QUINEVE
EAU DE COLOGIVE
RAYRHUM
ÍSVATN
Verðið í smásölu er frá kr. 1,10 til kr. 14,00, eftir
stærð. —
Þá höfum vlð hafið framleiðslu á
ILMVÖTXUM
úr hinum beztu erlendu efnum, eg eru nokkur
merki þegar komin á markaðinn.-
Auk þess höfum við einkainnflutning á erlendum iimvötn-
um og hárvötnum, og snúa verzlanir sér því til okkar, þeg-
ar þær þurfa á þessum vörum að halda.-
Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bökunardropa þá,
sem vér seljum. Þeir eru búnir til með réttum hætti úr
r é 11 u m efnum. — Fást allsstaðar.--
Aiengísverzl. ríkisins.
BílaYerkstæði Hafnarfjarðar h.f.
Strandgötu 13, sími 9163, tilkynnir: Höfum opnað fyrsta flokks
viðgerðaverkstæði (verkstæðisform. Sigurður Þorsteinsson). —
Framkvæmum allskonar bíla- og mótorviðgerðir. — Höfum
varahluti, smurningsolíu og gúmmí.
Abyggileg vlnna. — Saiingjarut verð.
Hreinar
Samvinnuskólinn
(Framh. af 1. síðu)
Ragnar Pétursson, Neskaup-
stað í Norðfirði.
Salómon Einarsson frá Selár-
dal, Arnarfirði.
Sigfús Jónsson, Neskaupstað
í Norðfirði.
Sigurður Jóhannesson, Gilja-
landi í Dalasýslu.
Sigrún Pálsdóttir, Blönduósi.
Stefán Einarsson, Stóra-
Steinsvaði, Múlasýslu.
Stefán H. Halldórsson, Króki
í Gaulverjabæjarhr., Árnessýslu.
Sveinbjörn R. Jónsson, Hvylft
í Önundarfirði.
Sveinn Guðmundsson, Siglu-
firði.
Vernharður Bjarnason, Húsavík.
Hæstu einkunn hlaut Númi
Kristjánsson, 9,13 í aðaleinkunn.
Aðrir, er fengu meira en 8
í aðaleinkunn, voru Björn Guð-
mundsson, er var næsthæstur,
8,17, Sigrún Pálsdóttir, 8,08 og
Stefán Einarsson og Kristján
Guðmundsson, 8,03.
Skilyrði fyrir mó-
vinnslu hér á landí
(Framh. af 1. síðu)
þess að birta fleira af því, sem
Guðjón Samúelsson hafði að
segja um þetta merkilega mál.
En ósjálfrátt varð manni
hugsað til þess nú, snortnum af
hinum óvenjulega áhuga húsa-
meistarans, að maður las fyrir
nokkrum áxum mikla grein
eftir þennan mann um stór-
fellda kartöflurækt, saltvinnslu
og samvinnubyggðir, sem sjálfs-
bjargarúrræði gagnvart gjald-
eyrisskorti og atvinnuleysi.
„Loftkastalinn“ um kartöfl-
urnar er á leiðinni niður á jörð-
ina. Og úr því að við erum orðn-
ir í vanskilum fyrir útlendar
vörur, sem svarar þriggja ára
kolaúttekt, þá verður það að
teljast óeðlilegt að við höldum
áfram að kaupa eingöngu er-
lent eldsneyti, og séum jafn-
framt í standandi vandræðum
með hvað við eigum að finna
okkur til að gera, eftir að búið
er að benda okkur á úrræðið um
móinn!
Og hefir ekki margt ótrúlegra
E.s. Lyra
fer héðan í dag, fimmtudaginn
4. maí kl. 7 síðdegis til Bergen
um Vestmannaeyjar og Thors-
havn.
Flutningi veitt móttaka til há-
degis í dag.
Farseðlar sækist sem fyrst.
P. Smith & Co.
S e n d u m yður gegn
póstkröfu:
REIÐHJÓL
og alla varahlutí.
BAKPOKA,
SVEFNPOKA,
FILMUR,
SAUMAVÉLAR.
Öllum fyrirspurnum svarað
um hæl.
Laugavegi 8.
Syeitabændur!
Þrátt fyrir gengislækkun
hækkar ekkert verð á saltfiski
og verður hann seldur með sama
lága verðinu og undanfarið.
Hafliði Raldvinsson.
Sími 1456.
Takmarkaðar birgðir. —
— Pantið tímanlega.
skeð en það, að við gætum kom-
izt upp á að nota jarðhita til
þess að framkvæma sama verk
og sólarhitinn er látinn vinna á
Suðurlöndum, úr því að salt-
magnið í sjónum hér virðist
engu mínna en suður í Miðjarð-
arháfi.
léreftstnskur
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
- Kaup og sala -
UHarefni og silkf,
(margar tegundir), BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomið.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
Útbreiðið TÍMANN
18 William McLeod Raine:
Ið að lifa, hafði gætt hann mikilli þol-
inmæði. Skaðsemi flaustursins er eitt af
því, sem fljótt lærist í villtum auðnun-
um, enda mundi hann komast að þessu
öllu fyr eða síðar.
— Við getum ekki hafzt hér við lengi,
án matar og að mestu án eldsneytis.
Hvað er langt til næstu bæja?
— Um fjórar mílur heim og þangað
er skemmst, nema til kofa, sem smalar
okkar nota. Hann er upp með læknum,
svo sem tvær mílur í burtu.
— Og þar er matur og eldsneyti?
— Já. Sennilega er einn af piltunum
þar núna.
— Þangað verðum við að brjótast
undir eins og lægir, sagði hann. En það
verður ekki í kvöld. Við verðum því að
gera okkur þetta að góðu í bráðina. Ertu
soltin?
— Já.
Hann fláði kanínuna sem hann hafði
skotið fyr um daginn og ætlað til kvöld-
verðar, gerði að henni og hjó hana í
skaftpottinn. Síðan tók hann salt og
lauk úr hnakktösku sinni. Molly hugði
að suðunni, meðan hann tók upp úr
leðurpokanum, sem hann bar við belti
sér, tvo tindiska, hníf og tinskeiðar.
Hún hataði þennan mann með ofsa
ungrar stúlku, én þó gat hún ekki annað
en dáðst að honum af og til. Hann var
Flóttamaðurinn frá Texas 19
kaldur og harður, en hann var sterkur
og réttlátur. Hann mundi ekki mæla
æðruorð þó allt snérist gegn honum í
tafli lífsins.
m. KAFLI.
Stundum er æskan ekki sjálfri sér
samkvæm. Tilfinningar hennar eru
stundum ærið breytilegar. Hún hafði
haft viðbjóð á Clem Oakland árum sam-
an, og hún tók það sem einskonar skyldu.
Hann var óvinur, sem ekki kom til mála
að sættast við og hafði gert margt illt
af sér. Hún fann að þetta, að hitta hann
í dag, myndi gefa hatri hennar til haps
nýja orsök, en ekki draga úr því, það var
nú persónulegt, en ekki bara sjálfsögð
skylda. Hún fann, hve hún skammaðist
sín innilega, þegar sársaukinn minnti
hana á svipuhöggin, að hann hafði lagt
hendur á hana og hún orðið að biðjast
vægðar.
En nú voru þau félagar í trylltu æfin-
týri og um líf og dauða var að tefla.
Úti í myrkrinu æddi stormurinn, en þau
voru nú komin í bráðabirgðaskjól. Byl-
urinn skyldi þau frá umheiminum jafnt
og um úthaf væri að ræða. Þetta var
skrítinn og æsandi félagsskapur og
krafði samstarfs, þó ekki væri það ljúft.
Þau voru eins og hermenn úr tveim
„Hcfur þú reynt þvottaduftíð PERLA,
sem allír lofa svo míkíð“
„Já, ég held það nú, það er hreint það
bezta þvottaduft, sem ég nokkurn-
tíma hefi notað. Þú ættir að nota jiað
í næsta þvott“.