Tíminn - 11.05.1939, Síða 1

Tíminn - 11.05.1939, Síða 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. 23. árg. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 1D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1d. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h. í. Simar 3948 og 3720. Reykjavík, finimtiidagmn 11. maí 1939 54. blað RáðNtafanir vejsiia Síldarverð Herskyldan í Englandi stríðshættnnnar Víðtal víð Guðbrand Magnússon varaformann stríðsnefndarínnar Tíðindamaður Tímans hefir snúið sér til Guð- brands Magnússonar for- stjóra, sem í forföllum Skúla Guðmundssonar fyrrv. at- vinnumálaráðherra gegnir nú formannsstarfi í stríðs- nefndinni, og bað hann að skýra frá hver verkefni nefndin hefði haft með höndum undanfarið. — Starf nefndarinnar er ein- göngu ráögefandi. Tilgangurinn með skipun hennar var sá, aö hún yrði ríkisstjórninni til að- stoðar og ráðuneytis um að- gerðir, sem fært þætti að gera með hliðsjón af yfirvofandi stríðshættu. En tillögur nefndarinnar tak- markast að sjálfsögðu af gjald- eyrisörðugleikum þjóðarinnar, og hingað til hefir verið unnið á þeim grundvelli að örfa inn- flytjendur til þess að hraða inn- flutningi á brýnustu nauðsynj- um til framleiðslustarfseminn- ar, að svo miklu leyti sem gjald- eyrisnefndin og bankarnir hafa séð fært. Undantekning frá þessu eru þó kolakaupin, sem ríkið fram- kvæmdi í haust, þegar það keypti 12 þúsund smálestir til þess að auka kolaforðann. í vor hefir starfsemi nefnd- arinnar einkum beinzt að því að hraðað yrði aðdráttum á olíu, kolum og salti vegna síldarver- tíðarinnar. Eru nú olíubirgðir að kalla jafnmiklar og olíugeymar rúma, og þó eru það ekki nema 6—7 mánaða birgðir. Shell hefir að vísu allt að ársbirgðum, en önn- ur félög flytja í smærri förmum. Kolaþörf, vegna síldarútvegs- ins, bæði handa skipum og síld- arverksmiðjum, er talin að vera 32.400 smálestir. Af þessu var í birgðum 22. apríl eða keypt á floti 10 þús. smál., 16.300 smál. höfðu verið keyptar til hleðslu í maí, 1800 smál. til hleðslu í júlí. Afganginn skyldi kaupa, þegar vitað yrði um starfrækslu síld- arverksmiðjanna á Sólbakka og Húsavík og svo jafnóðum og rúm leyfði á móttökustöðum. Saltbirgðir eru óvenju miklar í landinu, einkum í Reykjavík, Hafnarfirði, Patreksfirði og ísa- firði. Saltfarmur er nýkominn til syðri fjarðanna austanlands Einar Jónsson 65 ára Einar Jónsson myndhöggvari er 65 ára í dag. í tilefni af því mun Jónas Jónsson skrifa all- itarlega um Einar og list hans og mun sú grein birtast í Tím- anum síðar. og 1800 smál. farnar til ýmsra smærri hafna á Norðurlandi. Tveir stórir farmar eru væntan- legir til Siglufjarðar og Eyja- fjarðax í þessum mánuði, en til Seyðisfjarðar, Norðfjarðar, Breiðafjarðar og Bíldudals eru væntanlegir tveir saltfarmar í byrjun næsta mánaðar. Um aðdrætti á ýmsum smærri vörum, sem stríðsnefndin i samráði við viðskiptamálaráð- herra hafði farið fram á við gjaldeyrisnefnd, að heimilaðir yrðu, er gleggst að birta þá á- kvörðun gjaldeyrisnefndarinn- ar: „.... að ef innflytjendur vilja og geta gert aukainnkaup á netagarni, hampi til veiðar- færagerðar, köðlum, vélareim- um, önglum, síldarnetum og nótum, grasfræi, baðlyfjum, kjöttunnum eða efni í þær, ull- arböllum, ljáum, ljáblöðum og brýnum, ullarkömbum, band- prjónum og hóffjöðrum, mun nefndin veita þeim aukagjald- eyris- og innflutningsleyfi til þeirra kaupa eftir því, sem hún telur hæfilegt, miðað við notk- unarþörf á yfirstandandi ári. Ennfremur mun nefndin, ef þess er óskað, veita þeim innflytj- endum, sem fengu leyfi fyxir búsáhöldum, skófatnaði og skotfærum við fyrstu úthlutun þessa árs, sérstök leyfi til inn- flutnings nú þegar fyrir olíu- lömpum og tilheyrandi, sjóstíg- vélum og skotfærum, enda skoð- (Framh. á 4. síðuJ ISigíús Einarsson I tónskáld Sigfús Einarsson tónskáld varð bráðkvaddur í gær. Verður þessa merka manns getið nánar'. í blaðinu síðar. Samkvœmt upplýsingum, sem Emil Jónsson vitamálastjóri hefir veitt tið- indamanni Tímans, verður talsvert um nýbyggingar vita og endurbætur á gömlum vitum í sumar. Verður alls varið um 65 þúsund krónum til ný- bygginga á þessu ári. Er um þessar mundir verið að íullgera Knarrarós- vita við Stokkseyri og verður kveikt á honum í sumar. Var hann steyptur í fyrra og er einn af hæstu vitunum hér við land. Kostar hann 50 þúsund kr. fullgerður. Vitanum á Brimnesi við Seyðisfjörð og Hafnarnesi við Fá- skrúðsfjörð verður breytt í gasvita, en þeir hafa verið litlir olíuvitar. Á næst- unni verður byrjað að byggja vita á Þrídröngum við Vestmannaeyjar og að því loknu verður hafin vitabygging á Miðfjarðarskeri í mynni Borgarfjarðar. Verða sennilega báðir fullgerðir í sum- ar og eiga að lýsa 12—14 sjómílur. Tal- að hefir verið um að reisa radiovita á Hornbjargi, en eigi er enn að fullu ráðið, hvort úr þeim framkvæmdum verður í ár. Loks verður sett hljóð- og ljósdufl við Sandgerðissund. Kostar það um 20 þúsund krónur og á að vera fullgert seinni hluta sumars. Auk þess er að sjálfsögðu lagt til viðhalds og smærri umbóta á gömlu vitunum. t t t Síðasta sunnudag í aprílmánuði var sýning haldin á vefnaði og handa- vinnu námsmeyja í Laugalandsskóla. Var hún fjölsótt, ekki hvað sízt af Akureyri, en þaðan fór margt bifreiða ríkisverksmíðjanna Síldveídiilotian verður stærri en i fyrra Stjórn síldarverksmiðju ríkis- ins hefir undanfariö verið á fundum hér í bænum og m. a. haft til ákvörðunar kaupverð síldarinnar, sem verksmiðj- urnar taka til vinnslu í sumar. Niðurstaðan af þeim athug- unum hefir orðið sú, að stjórn- in hefir lagt til við atvinnu- málaráðherra að veita verk- smiðjustjórninni heimild til þess að kaupa síldina fyrir kr. 6.70 málið (135 kg.) af þeim, sem óska frekar að selja hana en að leggja hana inn til vinnslu. Þeim, sem leggja síldina inn til vinnslu, skulu greidd 85% af á- ætlunarverðinu (kaupverðinu) við afhendingu síldarinnar og síðar sá hagnaður af rekstrar- afgangi verksmiðjanna, sem þeim hlutfallslega ber. í þessu sambandi má geta þess, að aðeins eitt skip, Stella frá Norðfirði, valdi síðari leið- ina í fyrra og mun það hafa fengið nokkru hærra verð en hin skipin. Þetta verð, kr. 6.70 fyrir síld- armálið, er með því hæsta, sem verið hefir. í fyrra var verðið ekki nema kr. 4.50. Horfur um síldarsöluna eru nú mun betri en þær voru í fyrra. Verðið á síldarlýsinu er nokkru hærra eða frá 13.10— 14 sterl.pd. á móti 12.10 sterl.pd. þá. Verðið á síldarmjölinu er svipað. Ríkisverksmiðjurnar eru búnar að selja um 5000 smál. af sildarlýsi og 4000 smál. af síld- armjöli eða sem svarar 40—50% af venjulegri framleiðslu. Svip- að mun vera ástatt hjá hinum verksmiðjunum. Vegna gengislækkunarinnar er líka hægt að greiða hærra verð en i fyrra. Gert er ráð fyrir að síldveiði- flotinn íslenzki verði nokkru stærri í sumar en í fyrra eða sem svarar 10%. Ríkisverksmiðjurnar munu sennilega byrja að taka síld til vinnslu um miðjan júní. ingin þótti hin glæsilegasta og bar bæði kennurum og nemendum góðan vitnisburð. Meðal þeirra muna, sem á sýningunni gat að líta, voru glugga- tjöld, ábreiður, borðreflar, flosofnar mottur, veggreflar, kjólaefni, borðdúk- ar og þurrkur, allt ofið af námsmeyj- um sjálfum; sumarkjólar, ísaumaðar treyjur og kápur, saumað af náms- meyjum, og efnin ofin af þeim. Auk þess var sýndur margsháttar ísaumur, allt úr íslenzku bandi og sumu lituðu íslenzkum jurtalitum. Stíll og gerð saumsins ramíslenzk. t t t Hafnfirðingar hafa sýnt mikinn áhuga fyrir trjárækt og skógrækt, enda náð undraverðum árangri. Fámennt félag, sem upphaflega hafði allt annað markmið, hefir komið upp í utanverð- um bænum einum sérkennilegasta og fegursta skrúðgarði, sem til er hér á landi, Hellisgerði. Hafnfirðingar eiga og tvær skóggirðingar, aðra í Undir- hlíðum, en hina í Sléttuhlíðum. Auk þess, sem hlúð er að kjarrinu, sem fyrir er í þessum girðingum, eru á hverju vori gróðursettar nýjar plöntur í skjóli þess. í fyrra vor voru 2 þúsund plönt- ur gróðursettar og störfuðu skólabörn bæjarins í þrjá daga að þvi verki. í vor verður að venju plantað allmiklu í þessar girðingar, einkum í Sléttu- hlíðagirðinguna, bæði greni og furu, og nokkuð af birki. Verður byrjað á þvi verki innan fárra daga. í Hellis- Enska þingið hefir undan- farið rætt frumvarp stjórnar- inar um almenna herskyldu og er það nú komið langt áleiðis. Efni frv. er í stutu máli það, að ríkisstjórninni er heimilt að kveðja menn á aldrinum 20—21 árs (þ. e. tvo árganga i einu) til sex mánaða herþjónustu. Að þeim tíma loknum gefst þeim tækifæri til að ganga í landher- inn, ef þeir óska þess, og verða þeir að vera þar í 3^/2 ár. Eins og kunnugt er hafa Eng- lendingar aldrei haft almenna herskyldu, nema seinni ár heimsstyrjaldarinnar 1914—18. Skoðun þeirra hefir verið sú, að það skapaði hollari hugsunar- hátt meðal hersins, ef menn gengu í hann af frjálsum vilja, en væru ekki þvingaðir til þess. Er þessi skoðun í góðu samræmi við frelsishugsjónir Englend- inga. Hún hefir heldur ekki orð- ið þeim til neinna vonbrigða fram á þennan dag, því alltaf hafa gefið sig fram nægilega margir sjálfboðaliðar á styrj- aldar- og friðartímum. Ensk al- þýða hefir síður en svo misnot- að sér þetta frelsi. Hinsvegar telja margir, að þetta frjálsræði hafi skapað meðal hennar meiri skyldutilfinningu og fórnarhug, en þekkzt hafi annarsstaðar og þessvegna hafi England aldrei brostið sjálfboðaliða, þegar heill þess og hagsmunir voru í hættu. Það er þvi mjög eðlilegt að skapazt hafi rótgróin andúð gegn almennri herskyldu í Eng- landi, einkum meðal verkafólks- ins. Seinustu mánuðirnir hafa heldur ekki leitt í ljós nein hnignunarmerki, því aldrei hefir framboð sjálfboðaliða verið jafn mikið á friðartímum. Andstaða verkamannaflokksins gegn her- skyldulögunum er því á ýmsan hátt skiljanleg. Ein mikilvæg- asta röksemd hans er sú, að góð- ur vilji hermannanna sé öllu meira virði en viss hernaðar- þekking og þvi sé hættulegt, að gera nokkuð, sem getur lamað áhuga þeirra og fórnarhug. Þá heldur hann því fram að réttara hafi verið að þyngja álögurnar á auðmönnunum og til eflingar vígbúnaðinum og auka hernað- arstyrkleika Breta á þann hátt. gerði er þessa dagana unnið að venju- legum vorstörfum. Fá bæjarbúar það- an talsvert af blómplöntum og dálítið af trjáplöntum og ber bærinn þess ljós- an vott, að svo hafi verið um nokk- uð langa hríð. t t t Flensborgarskólanum i Hafnarfirði var sagt upp í síðustu viku. í honum stunduðu nám um 130 nemendur síð- astliðinn vetur, en 23 luku burtfarar- prófi. 24 nemendur voru í heimavist, en auk þess borðuðu þar nokkrir fleiri. Fæði, þvottar og þjónusta kostaði kr. 1.31 á dag fyrir pilta, en kr. 1.05 fyrir stúlkur. Munu þess fá dæmi, að dval- arkostnaður hafi orðið jafn lítill í skólum, jafnvel sjaldan I fjölmenn- um sveitaskólmn, sem eiga við góða aðstöðu að búa. Viðurværi var þó ágætt. Heimavistarráðskona var ung- frú Margrét Auðunsdóttir úr Skafta- fellssýslu. t t r Nemendaskipti milli ísl. og danskra menntaskóla verða í sumar á líkan hátt og áður hefir átt sér stað, síðast 1936. 1. júlí leggja nemendur frá Östre- Borgerdyd-skóla í Kaupmannahöfn af stað til íslands með Brúarfossi. Dvelja þeir hér um tveggja vikna skeið. Um 20. júlí halda þeir heimleiðis og verður þá einn íslendingur úr menntaskól- unum á Akureyri eða í Reykjavík í fylgd með hverjum Dana. íslenzku nemendurnir verða í Kaupmannahöfn til 9. ágúst. Cecil lávarður, aðalleiðtogi Jriðarsinna í Englandi hefir mœlt með herskyldunni eins og ástatt sé nú í heiminum. Þegar athugað er þetta gamla viðhorf Englendinga til her- skyldunnar, vekur það mikla furðu, hversu lítilli mótstöðu herskyldufrumvarp stjórnarinn- ar hefir sætt. Til þess liggja ýmsar ástæður. Vegna aukinnar tækni og meiri fjölbreytni hern- aðartækjanna þarf lengri tíma nú en áður til að geta gegnt her- þjónustu svo að fullum notum komi. Þessvegna getur maður, sem gerist sjálfboðaliði í styrj- aldarbyrjun, ekki gegnt her- mennsku fyr en eftir nokkra mánuði. En það, sem Bretar og Frakkar hafa mest að óttast, er að keppinautar þeirra muni leggja aðaláherzluna á öfluga skyndiárás, því langvinna styrj- öld hafa þeir litlar vonir um að vinna. Þessvegna er lýðræðis- þjóðunum nauðsynlegt að ráða yfir nægilega fjölmennum mannafla, í styrjöldarbyrjun. Sú ástæða, sem vafalaust hefir orðið þyngst á metunum, var vantrú bandaþjóða Breta á hernaðarstyrkleika þeirra, sök- um þess, að þeir höfðu ekki her- skyldu og hinn fasti her þeirra er tiltölulega fámennur. Einkum hefir þetta vakið óhug meðal Frakka og gert Bretum erfitt fyrir í samningum þeirra við önnur ríki seinustu vikurnar. Með herskyldulögum er ekki hvað sízt stefnt að því, að efla þetta traust og sýna andstæð- ingum Breta að þeim sé nú full alvara. Eitt franska stórblaðið hefir líka sagt „að herskyldu- frv. ensku stjórnarinnar væri stærsta sporið, sem enn hefði verið stigið til verndar friðinum í álfunni“. Jarðaríör Þorbcrgs Þorleif ssonar Jarðarför Þorbergs Þorleifs- sonar alþingismanns í Hólum fór fram síðastliðinn mánudag. Var athöfnin mjög virðuleg og há- tíðleg. Um 400 manns fylgdu hinum látna þingmanni til graf- ar og hefir svo fjölmenn jarðar- för eigi áður farið fram í hér- aðinu. Af utanhéraðsmönnum voru viðstaddir Páll Hermanns- son alþingismaður á Eiðum og Guðmundur Hlíðdal póst- og símamálastjóri, er flaug austur. til þess að vera viðstaddur at- höfnina. Húskveðju flutti heima í Hól- um séra Eiríkur Helgason í Bjarnanesi. Heiman frá Hólum og til kirkju er um tveggja kíló- metra vegur og skiptust ung- mennafélagar og bændur á um að bera kistuna þessa leið. Lík- ræðu í kirkju flutti séra Eiríkur Helgason, en auk þess töluðu þar Páll Hermannsson, er flutti kveðju alþingis og lagði blóm- sveig á kistuna, Steinþór Þórð- arson í Hala. Sigtryggur Davíðs- son í Brekku í Lóni og Bjarni Bjarnason i Brekku í Hornafirði. A KROSSGÖTTTM Vitabyggingar í sumar. — Handavinnusýning á Laugalandi. — Trjárækt og skóggræðsla Hafnfirðinga. — Flensborgarskólinn.— Gagnkvæmar heimsóknir fram að Laugalandi þenna dag. Sýn- A víðavangi í Mbl. segir í dag, að það hafi verið fyrst nú í vor eftir myndun þjóðstjórnarinnar, sem ríkið hafi látið leita að fiskimiðum. Þetta er ekki rétt. Þótt núver- andi ríkisstjórn beri þakkir fyr- ir þessa ráðstöfun hennar, er rangt að eigna henni frum- kvæði þessa máls. Slíkir leitar- leiðangrar hafa á undanförnum árum verið sem hér segir: Haustið 1935 leitaði „Þór“ að karfamiðum fyrir Norðurlandi. Auk þess styrkti Fiskimálanefnd þá leit að karfamiðum á togur- um fyrir Norðvesturlandi. V/s. „Þór“ var í rannsóknarleið- angri á vegum Fiskimálanefnd- ar 1936 frá 22. júní til 10. ágúst. B/v. „Maí“ leitaði fiskimiða á vegum Fiskimálanefndar út af Faxaflóa 9 daga í febrúar 1937. V/s. „Þór“ var í rannsóknarleið- angri og fiskileit 1937, frá 23. maí til 15. júlí. V/s. „Þór“ var í rannsóknarleiðangri og fiskileit 1938 frá 22. júní til 20. júlí. Auk þess hefir Fiskimálanefnd látið framkvæma fiskirannsóknir innanfjarða á minni skipum. * * * Kommúnistar vonuðu, að breytingin á verðgildi krón- unnar myndi skapa óánægju, sem yrði þeim að liði flokkslega. Þeir þóttust ennfremur fullvissir um að samstjórnin myndi verða óvinsæl, og að óánægðir menn í öllum stj órnarflokkunum myndu koma í hinar rauðu herbúðir. * * * » En þessar vonir hafa ekki orðið að veruleika. Vitaskuld var í öllum stjórnarflokkunum töluvert af fólki, sem ekki var hrifið af nýjum nábúum. En ekki er vitað um einn einasta mann, sem taldi sér meinabót í því að fara til olíukarlsins með útlendu vikapiltana. * * * En tiltölulega fljótt sáu kom- múnistar, að hér var meira á seiði. Þeir höfðu hálfvegis búizt við allskonar harðrétti, svip- uðu því og þeir höfðu áður boð- að öðrum — framtíðarríki bylt- ingarmanna. Þeir sáu ekki bóla á neinu píslarvætti, heldur á rólegu og skipulegu álitsleysi. Orka aðalflokkanna gekk 1 að vinna nauðsynlega vinnu, og kommúnistarnir biðu utan garðs, eins og Héðinn Valdi- marsson á stórbýlinu í Borgar- firði. * * * Mbl. hefir sagt frá því, að hinn nýi atvinnumálaráðherra, Ólafur Thors, ætli að sjá um að úrvalssaltfiskur frá sölusamlag- inu verði jafnan til sölu innan- lands, og hlutfallslega með sama verði og fæst fyrir hann í Suð- urlöndum. Þetta er skemmtileg nýjung, og eins merkileg fyrir íslendinga og þegar Sambandið hefir hvarvetna á boðstólum sitt góða hangikjöt af Hólsfjöllum. Næsta spor ríkisstjórnarinnar verður væntanlega í áframhaldi af þessu að koma sölu á nýjum fiski í bænum líka í gott horf. Með bættu skipulagi má tryggja betur afkomu sjómannanna, fisksalanna og neytenda. Og umfram allt ætti ekki lengur að sýna erlendum og innlendum gestum þá hörmulegu aðbúð, sem fisksalarnir verða að þola fram við höfnina. * * * Það er eitt af stærstu vel- ferðarmálum Reykvíkinga og margra annarra manna hér á landi, að eiga kost á góðum og vel með förnum fiski, nýjum og söltuðum, með verði, sem er sambærilegt við erlenda verðið á þeirri vöru. Ef til vill er skipu- lagning fisksölunnar eitthvert bezta ráðið til að minnka dýr- tíðina í höfuðstaðnum. Séra Páll Þorleifsson á Skinna- stað, bróðir Þorbergs, gat ekki náð skipsferð suður og var því fjarstaddur jarðarförina.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.