Tíminn - 16.05.1939, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.05.1939, Blaðsíða 2
222 TfMIW. j»rIgjutlaginn 16. maí 1939 56. blað ^ímimt Þriðjudaginn 16. mat. Víðtökur þjóðstjórnarínnar Frjáls verzlnn i. Nú um stund stySja flestir fylgismenn kaupfélaga og kaup- manna á íslandi sömu ríkis- stjórn, við að leysa sameiginleg viðfangsefni, sem leiða af heims- kreppunni, og þeirri miklu ný- skipun, sem orðið hefir á íslandi við hina öru myndun kaupstaða og kauptúna. Aðeins eitt af þeim vandamálum er fátækrafram- færið. Reykjavík ein hefir heilan her, um 5000 manns, sem ekki vinnur, er verður að fá framfæri sitt af vinnu annarra manna. Ríkissjóður leggur í einu 700 þús. kr. til fátækraframfærslu í illa stöddum bæjum. Auk þess hefir óhemjufé verið varið til hinna svo kölluðu atvinnubóta, sem er í raun og veru beinlínis fram- færslustyrkur. Samhliða þessu vantar fólk í stórum stíl við gagnlega vinnu víðsvegar á land- inu. Þetta vandamál og mörg fleiri, sem snerta undirstöðuna að framtíðargengi íslendinga, á að fást við af öllum lýðræðis- flokkum í landinu. En þó að kaupmenn og kaup- félagsmenn og það lið, sem þeim fylgir á báða bóga, finni höfuð- nauðsyn samstarfs um allmörg stór þjóðmál, þá verða samt eftir til nokkurrar meðferðar sum af hinum gömlu, varanlegu hags- munamálum þessarra aðila. Þar er efst á baugi skipting viðskipt- anna milli kaupmanna og kaup- félaga. Vísir hefir hreyft nokk- þess að framkvæma hvert mál, eingöngu frá sjónarmiði al- menns réttlætis og alþjóðar- heilla — en án tillits til krafna frá félagsheildum, stéttum eða einstaklingum, framar því, sem þetta sjónarmið markar. Ef félagsheildir, stéttir eða einstaklingar, sem standa að baki ráðherrum í ríkisstjórninni, sýna ásælni í því að fá dreginn sinn taum eitt fet framar því, sem réttlátt er, samanborið við aðra, og framar því, sem alþjóð- arheill leyfir, og látið verður undan þeirri ásælni, þá mun samstarfið, að mínu áliti sem forsætisráðherra, mistakast.“ Menn viðurkenna orðið til fulls réttmæti þeirrar viðleitni, sem forráðamenn Pramsókn- arflokksins hafa beitt sér fyrir, að reyna að fylkja þjóðinni sam- an á hættutímum. Þjóðstjórn- inni hefir því verið vel tekið. En dómurinn um hana sjálfa fer vitanlega ekki eftir því, heldur hinu, hver verk hennar verða og hvernig henni og ein- stökum ráðherrum hennar tekst að rækja hagsmunamál heild- arinnar og víkja á bug órétt- mætri ásælni stétta og ein- staklinga. urri óánægju um þetta efni, frá sjónarmiði kaupmanna. Ég benti þá á, í grein hér í blaðinu, skömmu eftir að núverandi rík- isstjórn tók til starfa, að mér fyndist að nú um stund væri hægt að ræða þessi ágreinings- mál með fullum rökum og engum kala til þeirra, sem hafa aðra skoðun. Ég ætla að freista að leggja nokkurn skerf til umræð- anna um þetta mál á þessum grundvelli. Málinu er í eðli sínu þann veg háttað, að það mun auðveldara að leysa það á frið- samlegan hátt, heldur en með hinni löngu, harðfengu hitabar- áttu undangenginna manns- aldra. II. Andstæðingar Sambandsins og kaupfélaganna halda því fram, að Framsóknarmenn hafi á ó- eðlilegan og óvenjulegan hátt dregið taum samvinnufélaganna í landinu, þannig að viðskipta- velta landsins síðan 1931 hafi ranglega dregizt frá kaupmönn- um til kaupfélaga. Þeir telja að innflutningsnefnd hafi látið Sambandið og kaupfélögin fá tiltölulega of mikil innflutnings- leyfi, og að Sambandið hafi auk þess haft umráð yfir öllum sín- um gjaldeyri til eigin þarfa. Efni þessara ritgerða verður að miklu leyti það, að sýna fram á að báð- ar þessar kenningar séu rangar. Og til að gefa strax nokkra hug- mynd um hve mikils ókunnug- leika hefir gætt í þessum áróðri, vil ég strax taka það fram, að Sambandið og kaupfélögin hafa síðan innflutningshöftin byrj - uðu, alltaf verið afskipt um inn- flutning á þeim vörum, sem mestur hagur þykir að verzla með, og að Sambandið lætur ár- lega allt af % af gjaldeyri fyrir vörur sínar til annarra. Mikill hluti af þeim gjaldeyri gengur til að greiða vöruinnflutning kaupmannastéttarinnar. Fyrir þessum tveim staðhæfingum, mun ég leggja fram rök, sem ekki verða véfengd. III. Orðið „frjáls verzlun" hefir verið vígorð nokkurra af mál- svörum íslenzkra kaupmanna á undanförnum árum. Þeir hafa með réttu fundið að verzlun landsins var bundin. Sú nýjung hefir að vísu skapað sumum þeirra mikla fjáraflamöguleika, en í heild sinni bakað öllum, sem við verzlun fást, margháttaða erfiðleika, sem jafnvel hafa orð- ið hinum gróðasælu kaupmönn- um hugstæðari en óvænturgróði. Mörgum kaupmönnum hefir því farið líkt og Gyðingunum 1 út- legðinni. Þeir þráðu að komast heim til ættlands síns og Zions- borgar. íslenzka verzlunarstéttin hefir táknað sitt hugsjónaríki með orðinu „frjáls verzlun“. í huga margra þeirra mun það hafa verið það Nýja ísland, þar sem ekki væru neinar innflutn- ingshömlur, engin gjaldeyris- skömmtun, engar ríkisverzlanir, ogekki alltof umsvifamikið Sam- band eða kaupfélög. Ég hygg, að allir fylgismenn kaupfélaganna muni vera fúsir til að vænta, með leikbræðrum sinum úr kaupmannaverzlunun- um, að lifa aftur það Paradísar- ástand, þar sem ekki þarf að skammta innflutning og gjald- eyri fremur en var fyrir heims- styrjöldina. En því miður er þetta framtíðarríki ekki alveg við hendina. Við íslendingar þurfum að verzla tiltölulega mikið við aðrar þjóðir, af þvi að framleiðsla landsins er ekki nógu fjölbreytt. Og af viðskipta- stríði stórþjóðanna erum við ís- lendingar fjötraðir svo að segja á höndum og fótum með verzl- unarsamningum. Bændur á ís- landi fá of þröngan og alveg tak- markaðan markað fyrir saltkjöt í Noregi og frosið kjöt í Englandi. Útvegsmenn hafa alveg tak- markaðan markað fyrir fisk í Þýzkalandi, Englandi og Ítalíu. Spánn er svo að segja lokaður fyrir innflutningi saltfisks, vegna fátæktar landsins síðan borgarastyrjöldinni lauk, en þangað var árið 1930 flutt fyrir 20 miljónir króna. Jafnvel ostur hefir sinn stranga „kvóta“ í því eina landi,sem kaupir þá vöru af íslendingum. Pólverjar kaupa nokkuð af síld, en í stað þess verðum við að kaupa af þeim kol. Nokkur frjáls og óbundinn markaður hefir verið síðustu missirin, þrátt fyrir allar hömlur um síld til Svíþjóðar, saltfisk til Portugal, og síld, ull, og lýsi í Bandaríkjunum. Vitaskuld dreif- ist nokkuð af íslenzkum vörum víðar, en langmestur hluti hins íslenzka útflutnings er bundinn við vissar þjóðir og við vöru- skipti. Og þessi bundnu viðskipti er algerlega óhugsandi að nota, nema með því að leyfum sé skipt milli innflytjenda eða þá að láta ríkið taka alla erlendu verzlun- ina í sínar hendur, eins og Rúss- ar gera í sínu landi. Nokkur hluti kaupmannastétt- arinnar stendur að nokkuð að- súgsmiklu tímariti, sem heitir „Frjáls verzlun". En vafalaust er stuðningsmönnum þessa rits fullkomlega ljóst, að eins og heimsviðskiptunum er nú háttað, er algerlega óhugsandi fyrir ís- lendinga að tala um frjálsa verzlun við útlönd. Þó að myndað væri á morgun ráðuneyti, þar sem sæti ættu fimm stærstu heildsalar landsins og þó að þeir hefðu jafnöruggan stuðning eins og núverandi ríkisstjórn, þá myndi sú stjórn þurfa að hafa sína innflutnings- og gjaldeyr- Hallgrímskirkja Fyrir nokkrum árum síðan var, sem kunnugt er, hafizt handa til fjársöfnunar kirkju- byggingar að Saurbæ á Hval- fjarðarströnd, sem reisa skyldi þar til minningar um sálma- skáldið Hallgrím Pétursson. Sýndu forgöngumenn þessa mál- efnis mikla einbeitni og dugnað við fjársöfnunina, enda má segja að málefnið, sem fyrir var unnið, yrði landsfólkinu hugnæmt á- hugamál, innan þeirra tak- marka, sem í upphafi voru því ákveðin af forgöngumönnum þess. Hefi ég heyrt að um 100 þús. krónum sé þegar safnað, og eigi þegar á næstkomandi sumri að hefja byggingu hinnar miklu kirkju að Saurbæ — Hallgríms- kirkju —, en þó í von um að meira fé safnast fljótlega, þar sem kirkjan mun kosta miklu meira. Frá upphafi hefi ég verið and- vígur því, að kirkja sem þessi yrði reist að Saurbæ í hinni litlu og afskekktu sveit. Tel ég það vera gáleysislega með fé .fa-rið að ofbyggja svo eina sóknarkirkju, þegar vitað er, að fjöldi safnaða hér á landi, bæði stórra og smárra, eru svo að segja kirkju- vana fyrir fátæktar sakir, Auk þess tel ég, að Hallgrímskirkja að Saurbæ ynni ekki það hlut- verk, sem hæfði minningu hins heittrúaða andans manns. Hallgrímskirkja má ekki verða kaldir og þöglir steinveggir og steinhvelfingar, þótt fagrar kunni að vera frá listrænu sjónarmiði. En sú hlýtur til- vera Hallgrímskirkju að verða, sé hún byggð innan fámenns safn- aðar, í afskekktri byggð, þar sem sjaldan er messað. Slíkur minn- isvarði hæfði ekki trúarskáldinu mikla. Það er mín bjargföst skoðun, að dýr og mikil kirkjubygging isnefnd. Eini munurinn yrði þá sá, að Oddur Guðjónsson, en ekki Einvarður Hallvarðsson, hefði forsæti í nefndinni. Út á við yrði starfið hið sama. Út á við yrði verzlunin jafnharðfjötr- uð eins og hún er nú vegna of lítils gjaldeyris. En inn á við gætu orðið breytingar. Kaupfé- lögin fengju ef til vill enn minni innflutning heldur en þau hafa nú. Það er þessvegna nauðsynlegt fyrir menn að athuga það, að öll átök um „frjálsa verzlun" á ís- landi, fyrst um sinn eru aðeins innanlandsmál. „Frjáls verzlun" í daglegu máli mun fyrst um sinn ekki þýða annað en mis- munandi viðhorf um það, hversu innflutningur á þeim vörum, sem íslendingar telja sér fært að kaupa og borga, skiptist milli ríkisverzlana, kaupmanna og kaupfélaga. Frh. J. J. eigi ekki að framkvæmast að Saurbæ. Þar á að byggja snotra en íburðarlausa sóknarkirkju, sem hæfði söfnuðinum og þeim sögulegu minjum, sem við hann eru tengdar. Ég lít svo á, að meg- inhluta þess fjár, sem safnast hefir til Hallgrímskirkju og sem safnast kann, eigi að verja til kirkjubyggingar á þeim stöðum, sem kirkna er mest þörf á hverj- um tíma og séu slíkar kirkjur nefndar Hallgrímskirkjur. En höfuðkirkja sú, sem reist yrði fyrir þetta fé yrði reist í Reykja- vík nú þegar. Þar er hennar þörf. f Reykjavík myndi hið veglega guðshús, sem fremur öðrum sé helgað minningu Hallgríms Pét- urssonar, verða í vissum skiln- ingi kirkju allra landsmanna. í Reykjavík eru öll þau skil- yrði, fyrir hendi, sem stuðla að því, að Hallgrimskirkja þar gæti orðið voldugt vígi til viðhalds og þroska kristilegrar menningar meðal þjóðar vorrar. Frá Hallgrímskirkju í Reykja- vík myndi hið talaða orð í anda Hallgríms, lestur og söngur hinna sígildu sálma hans, berast að eyrum landsfólksins á öldum ljósvakans. Myndi sá minnis- varði, betur en nokkur annar, verða reistur í anda Hallgríms og í samræmi við þessa bæn hans sjálfs: Gefðu að móðurmálið mitt, minn drottinn, þess ég beiði, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt útbreiði, um landið hér, til heiðurs þér, helzt má það blessun valda, meðan þitt ráð, lætur vort láð lýði og byggðum halda. Ég veit, að því verður borið við, að ekki sé hægt að víkja frá hinni fyrirhuguðu kirkjubygg- ingu að Saurbæ, vegna þess að hin mikla fjárhæð hafi fyrst og fremst safnast til hennar. En þær rökfærslur met ég léttvæg- ar. — Fénu er safnað, og féð er gefið, til þess að heiðra minn- ingu Hallgríms, af unnendum kristindómsins í landinu. Það er því þegnleg skylda við þjóðfé- lag okkar fátæka lands, að hinu mikla fé, sé varið á þann hátt, sem verða má kristindómi og trúarlífi landsmanna til mestrar blessunar í nútíð og framtíð. Það þarf eigi að undrast, þótt sá hluti þjóðarinnar, sem and- vigur er kristindómi, láti sig litlu eða engu skipta, hvar reist verði minnismerki Hallgrími Péturssyni til virðingar. Hitt má telja öllu undarlegra, þegar áhugamenn um trúarlíf og and- leg málefni þjóðar vorrar, koma eigi auga á það, að minnismerki, sem reist verður Hallgrími Pét- (Framh. á 4. siðu) Jón Emíl Guðjónsson: §yeltaþættlr Nú er liðinn mánuður síðan að þjóðstjórnin kom til valda. Yfirleitt hefir þeirri forgöngu miðstjórnar og þingmanna Framsóknarflokksins að reyna að sameina þjóðina sem mest á hinum viðsjárverðu tímum, ver- ið vel tekið. Þrátt fyrir hina hörðu flokkabaráttu á undan- förnum árum og tilraunir ým- issa til að draga menn í fjand- samlegar og ósættanlegar fylk- ingar, hefir sá skilningur reynzt ríkari, að nauðsynlegra sé að standa saman, þegar óvenjulegir aðkomandi örðugleikar ógna fxelsi og fullveldi þjóðarinnar. Til er samt lítill hópur manna, sem er þrungin mikilli óánægju yfir hinni vaxandi einingu þjóð- arinnar. Það eru leiðtogar kom- múnista. Það er eins og þeim finnist, að gæsin sé sloppin úr höndum þeirra. Þeir höfðu ætl- að sér að hagnast á sundrung- unni í þjóðfélaginu. Hún átti að skapa það umrót, er bæri þá næstum sjálfkrafa í valdastól- inn. Hefir þeim vonum þeirra nýlega verið lýst hér í blaðinu með ummælum þeirra Brynjólfs Bjarnasonar og Einars Olgeirs- sonar sjálfra. Fyrir þremur mánuðum síðan stikaði Héðinn Valdimarsson um í þingsölun- um með þóttabragði Jörundar hundadagakonungs. Það mátti næstum halda að honum finnd- ist hann eiga allt landið og þjóðina. Þá stóð hin illræmda deila í Hafnarfirði sem hæst. Lögleysismönnunum veitti betur í fyrstu atrennu og kommúnist- ar voru farnir að gera sér vonir um að hægt yrði að nota þessa deilu til að brjóta vinnulöggjöf- ina niður. Með slíkum deilum og róstum átti smámsaman að eyðileggja þjóðfélagið allt. Héð- inn virtist gera sér góðar vonir um að allmargir sjálfstæðis- flokksmenn myndi fást til að- stoðar við þetta starf, en þakk- lætið, sem þeim var ætlað fyrir það, var svipað og nazistar í Þýzkalandi auðsýndu Thál- mann og Torgler. — Frá þessum heilabrotum Héðins stafar nafnið „hinn frjálslyndi hluti Sjálfstæðisflokksins.“ Nú virðast þessar draumahallir kommúnistanna hrundar, a. m. k. í bili. Þingræðisflokkar lands- ins hafa skipað sér í sameigin- lega varðstöðu gegn erlendum hættum — og þá ekki sízt gegn erlendum öfgastefnum. Komm- únistaleiðtogarnir eru „hljóðir og hógværir menn“ um þessar mundir. Héðinn Valdimarsson er hættur að leika hundadagakon- unginn. Óánægja og vonleysi markar andlitsdrættina í stað yfirlætisins áður. Þegar undan er skilinn hinn fámenni hópur kommúnista- leiðtoganna hefir þjóðstjórnin undantekningarlítið fengið góð- ar viðtökur. En hinn endanlegi dómur, sem hún fær, byggist vitanlega ekki á þeim viðtökum, sem hún hlýtur í fyrstu. Hann ,fer eftir störfum hennar og þeim framkvæmdum, sem hún beitir sér fyrir. Hún fær til viðfangs margt stórra verkefna, sem þjóðin þráir að séu leyst. Engin íslenzk ríkisstjórn hefir haft þvílíka aðstöðu til að fylgja fram stórum málum. Fyrverandi stjórnir hafa oftast haft veikan þingmeirihluta og átt i höggi við liðsterka og harðsnúna and- stæðinga. Þessi stjórn hefir hinsvegar næstum allt þingið að baki sér og nýtur stuðnings allra þeirra stjórnmálaflokka, sem áhrif hafa í landinu. Vegna þessarar óvenjulegu að- stöðu vænta menn mikils af þjóðstjórninni. Menn hafa fund- ið, að eins og nú er ástatt, sé nauðsynlegt að ríkisstjórnin hafi nægan styrkleika' til fram- kvæmda. En þrátt fyrir þetta vofir ein hættan yfir þjóðstjórn- inni. Enginn hefir lýst því jafn- skýrt og. forsætisráðherrann, þegar hann tilkynnti stjórnar- myndunina í þinginu. Hann sagði: „Til samstarfsins er stofnað til þess að stjórnin geti haft nægi- legan styrkleika og öryggi til FRAMHALD íslenzk sveitamenning er nú stödd á merkilegum tímamót- um. Ný og margbreytileg áhrif berast nú svo að segja daglega til sveitanna í stað þeirrar ein- angrunar, sem áður var. Þetta hefir eðlilega haft mikil áhrif á menningarlíf þeirra. — Breyt- ingarnar hafa verið svo miklar. Þjóðin öll — og ekki sízt bænda- stéttin — hefir á síðustu árum verið að keppast við að vinna verk margra kynslóða. Þess vegna hefir hún tæpast mátt vera að því að athuga allt það nægilega vel, sem til hennar hefir borizt handan yfir djúpa íslands ála, né heldur að varð- veita að fullu það, sem henni hefir dugað vel um aldir. — Þess gætir nú líka mjög, að ís- lenzk sveitamenning er að verða rótslitin og festulaus. — Þó mun hægt að vinna það aftur, sem eftirsjá hefir verið að og skapa að nýju þróttmikið menn- ingarstarf í hinu breytta um- hverfi sveitanna. Hið óleysta verkefni er í stuttu máli þetta: Menning sveitanna þarf að verða ríkari af þrótti og festu. Hún þarf að tileinka sér kosti nútímatækn(innar, án þess þó að glata því af fortíðar- arfi sínum, sem vel hefir reynzt. Þetta er erfitt hlutverk og get- I ur aðeins orðið leyst með sam- Ihygð sveitafólksins sjálfs. Mögu- | leikarnir eru til. Hér þurfa að- eins að taka höndum saman eldri sem yngri. Það skiptir ekki mestu máli, á hvaða vettvangi það er. Það getur verið í menntastofnunum sveitanna, í hinum ýmsu félagssamtökum þeirra og eigi sízt innan vébanda heimilanna sjálfra. Það, sem mestu máli skiptir, er að þoku- hjúpar deyfðar og áhugaleysis sé ekki látinn byrgja útsýn og varna athöfnum í þessu máli, sem fyrst og fremst á að vera metnaðarmál sveitanna sjálfra. Sú bændakynslóð, sem nú hef- ir senn lokið dagsverki sínu, var arftaki hinnar gömlu, sam- ræmdu sveitamenningar, en hlaut eigi skilyrði til ytri lífs- þæginda. Hin yngri kynslóð sveitanna tekur við miklum efn- islegum arfi, en rótslitinni og festulítilli byggðamenningu. Ef hún reynist hlutverki sínu vax- in, mun hún gera hvort tveggja í senn: að halda áfram hinni atvinnulegu framsókn og end- urskapa þróttmikið menningar- líf í hinum dreifðu byggðum þessa lands. IV. „Heim að Hólum“. Á dögum Jóns biskups Ög- mundssonar hófu Skagfirðing- ar að segja „heim að Hólum“. Þótti slíkur myndarbragur á menntasetri þessu, að það varð í augum héraðsbúa sem þeirra annað heimili. Þar var ekki að- eins merk uppeldisstofnun fyr- ir þá, sem komu þar til náms, heldur líka menningarlegt vígi og höfuðstaður alls héraðsins. Svo náin tengsl voru milli fólks- ins sjálfs, menntastofnunar þess og höfuðkirkju. íslenzkt dreifbýli hefir á liðn- um öldum átt allmörg rausnar- setur, sem hafa gnæft yfir allan þorra sveitabýlanna, bæði í at- vinnuháttum og andlegu lífi. Oft hafa þau verið einskonar miðstöð menningarlífsins í sínu héraði. Æskulýðurinn í kring hefir sótt þangað, oft til nokk- urrar námsdvalar, eða til að kynnast þeim myndarskap í verklegri tilhögun og umgengni, sem eigi var að finna heima fyrir. Á slíkum heimilum hefir oft verið furðu góður bókakost- ur. Hefir því oft verið þangað leitað af öðrum bæjum um bókalán, auk þess sem heim- ilin sjálf hafa tíðast verið mjög mannmörg. — Þessi gömlu íslenzku sveitabýli munu hafa haft mjög mikla þýð- ingu fyrir menningu sveitanna í heild. Mörg hafa þau verið sem höfuðstaður sveitar .sinn- ar. — Þau hafa dregið að sér þá, sem næst dvöldu, og þannig myndað einskonar tengsl milli fólksins í byggðarlaginu. — En hér hefir nú mikil breyting á orðið. íslenzku rausnarbýlin eru að vísu til enn. AÖstaða þeirra og hlutverk hefir hins vegar gerbreytzt. Þau geta ekki lengur verið „skólar“ í þeim skilningi, sem þau voru fyrr. Breyttir atvinnuhEettir ráða þar miklu um. — Sveitirnar hafa líka eignazt ný heimili — ný menningarvígi. Þær hafa eignazt sína . eigin skóla — bæði héraðsskóla og skóla yngri nemenda. — Slíkt er sveitunum mjög mikil gæfa, að hafa þannig fengið sérstakar menntastofnanir í sínu eigin umhverfi. Þeim ber líka að ætla mikið hlutverk. Skólar sveit- anna verða nú að mörgu leyti að afreka það, sem áður var unnið af gömlu myndarbýlun- um. Heimilismenningu byggð- anna hefir nú hrakað þannig, að ekki þýðir að hefja nema að nokkru leyti sóknina þar íyrir nýrri framsókn í menningu sveitanna. — En það á ekki að gleyma heimilunum. Þvert á móti. — Arineldur menningar þeirrar hefir fölvast. Frá sveita- skólunum þarf að koma sá andblær, sem lífgar þar hinar hálfkulnuðu glæður, svo að enn megi þar tendra þau blys, sem brugðið geta Ijóma yfir menn- ingarlíf íslenzku þjóðarinnar. Ég vil hér sérstaklega taka fram örfá atriði í sambandi við héraðsskólana. Þeir þurfa að vera í nánari tengslum við um- hverfi sitt heldur en þeir hafa yfirleitt verið hingað til. Slíkt er að vísu auðveldara í umtali en framkvæmd og getur aðeins orðið með gagnkvæmu samstarfi skólanna og fólksins í umhverfi þeirra. Nokkrar athyglisverðar tilraunir hafa þó þegar verið gerðar, t. d. við héraðsskólann að Reykjanesi. — Sérhvert ís- lenzkt byggðarlag þarf að eign- ast þánnig menningarsetur, að það verði í vitund fólksins þar sem þess annað heimili. Hvert hérað þarf að eignast sína „Hóla í Hjaltadal“. Sveitaskólarnir eiga ekki að- eins að miða starf sitt við nem- endurna á meðan námsdvöl þeirra varir. Þeir eiga að fylkja sveitaæskunni saman. Láta hana eigi hverfa frá námi án tengsla við skólastaðinn og um- hverfið. Þangað á hún að leita aftur, þegar tóm gefst til, til að vera þar að leik og starfi. — Reykjavík né aðrir kaupstaðir eiga ekki að vera hið eina fyr- irheitna land fyrir unga sveita- fólkið til að skemmta sér í og finna félagsþrá sinni fullnægju. Atvinnulíf sveitanna þarf framvegis að leggja meiri á- herzlu á í starfi þessara skóla. Vinnukennsla hefir nú verið aukin í ýmsum þeirra. í sam- bandi við hana þarf að taka húsgagnagerð og byggingarmál dreifbýlisins til sérstakrar með- ferðar. Það þarf að vinna að fegrun sveitalífsins og sveita- heimilanna. Þar gætir nú mjög festuleysis og ósamræmis. Sveit- irnar hafa ekki verið nógu sjálf- stæðar gagnvart kaupstöðunum. Þær eiga ekki að kasta sérein- kennum sínum á glæ né láta umrót þéttbýlisins hafa sífelld áhrif á sig. Meðal annars þurfa þær að eignast samræmdari

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.