Tíminn - 16.05.1939, Blaðsíða 4
224
TtMlM, frrigjudagiim 16. mal 1939
56. blað
Yfir landamærín
1. Mbl. hefir nú gengið vel og há-
tíðlega frá skottu þeirri, þjóðernissinn-
um, sem sótti á að fylgja Sjálfstæðis-
mönnum. Telur blaðið að sú útlenda og
mjög óþjóðlega hreyfing sé nú dauö og
molduð. Síðasta hervirki þeirra var að
auglýsa jarðarför sína undir merki er-
lends stórveldis.
2. Blað kommúnista hefir það sem
höfuðsakarefni á ríkisstjórnina, að hún
virðist eindregið mæla með því, að
hjartagóð kona, sem vill taka sér fóst-
urbarn, fái fremur lítinn íslending
heldur en lítinn Gyðing.
3. í blaði, sem kommúnistar í háskóla
íslands gáfu út fyrir skömmu, var
mynd af stúdent frá góðu heimili í
sveit, þar sem hann hangir niður líkt
og útigangshestur með hálfbrenndan
vindling við vangann sem menntunar-
merki. Sú mynd minnir á stúdenta frá
þeirri tíð, þegar sú þótti sæmdin mest
fyrir þá stétt, að lötra veiklulega eftir
götunni, dragast með göngustaf, og
stúdentshúfu lafandi aftan á höfðinu.
4. í hinni almennu niðurlægingu
kommúnista er einn maður, utan þeirra
skipulagða hóps, sem stendur í vináttu-
sambandi við þá. Það er Helgi Guð-
mundsson, sem kallar sig aðalbanka-
stjóra í Útvegsbankanum. Hefir hann
fram að þessu getað veitt þeim ýmis-
ÚR BÆIYtTM
Tíminn
kemur ekki út á fimmtudaginn, því
vinna fellur þá niður í prentsmiðj-
unni.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó sýnir nú franska stórmynd,
„Perlur ensku krúnunnar". Hefir hún
hlotið mikið lof erlendis og er af mörg-
um talin bezta sögulega kvikmyndin,
sem Frakkar hafa gert. Frægasti kvik-
myndastjóri Frakka, Sacha Guitry,
hefir stjórnað myndatökunni og leikur
sjálfur þrjú hlutverk. — Gamla Bíó
hefir sýnt hina frægu amerísku teikni-
mynd „Mjallhvít", nokkuð á aðra viku,
við mjög mikla aðsókn. Er hún vinsæl-
asta teiknimyndin, sem enn hefir ver-
ið gerð.
Garðrækt
Fræðslukvikmyndir um garðrækt og
kornyrkju verða sýndar í Nýja Bíó kl.
6. Árni G. Eylands skýrir myndimar.
Sjötíu ára
er í dag Áslaug Torfadóttir á Ljóts-
stöðum í Laxárdal.
Gestir í bænum:
Gunnar Bóasson útgerðarmaður á
Reyðarfirði, Loftur Jakobsson bóndi í
Neðra-Seli á Landi, Jón Þorkelsson í
Litla-Botni við Hvalfjörð.
Við þökkum af hjarta alla samúð og hjálp, sem okkur
var veitt við fráfall og jarðarför
Guðbjargar Þórðardóttur.
Suðurgötu 30, Keflavík.
Eiginmaður, foreldrar og systkini.
Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur
T e n n i $
Félagar, sem ætla að iðka tennis í sumar, eru
beðnir að gefa sig fram við Friðrik Sigurbjörnss'.
tennismeistara, sími 2872, kl. 6—7 e. h.
Byrjendum verður veitt kennsla.
jt|B a djm i n t o n
Kennsla í badminton byrjar í þessari viku. Allar nánari upp-
lýsingar um fyrirkomulag kennslunnar og tíma gefur Jón Jó-
hannesson, sími 4941, kl. 6—7 e. h.
NB. Félagið leggur mönnum til spaða.
Stjórn T. B. R.
NÝJA BÍÓ"
N,«—»GAMLA Eíó—0_0—o.
Hin heimsfræga litskreytta
æfintýrakvikmynd
Mjallhvít
Og
dvergarnlr sjö
eftir snillinginn
WALT DISNEY
sýnd í kvöld kl. 7 og
Perlur
ensku kninuimar.
Stórmerkileg söguleg kvik-
mynd, er gerist í Englandi,
Frakklandi, Ítalíu, Abes-
siníu, Austurríki og Þýzka-
landi frá árinu 1518 til
vorra daga.
Hlutverkaskrá:
Ermete Zacconi,
SACHA GUITRY,
Jacqueline Delubac,
Lyn Harding,
Emile Drain.
konar greiða, en þeir launa á móti með
því að styðja skrítna hugaróra hans.
5. Halldór Laxness hefir nýlega ritað
grein í eitt af blöðum kommúnista, sem
verkar á lesandann eins og væri þar
samansafnaður allur hinn dauði og
kaldi súr úr öllum óframræstum mýr-
um á íslandi. Menn furðar á því, að
hin stóra sál skáldsins skuli geta inni-
byrgt svo mikinn súr og kulda.
6. Halldór Laxness telur óhugsandi
að Gunnar á Hlíðarenda hafi verið svo
tígulegt glæsimenni, eins og Njála
hermir, þar sem hann hafi verið „bara
bóndi". Telur hann að fyrirmyndin
muni stafa frá riddaralífi Frakka. Ekki
gætir Laxness þess, að „bara bændur"
eins og Egill á Borg, Ari fróði, Snorri
í Reykholti og margir aðrir gerðu ó-
dauðleg ævarandi listaverk, sem standa
himinhátt yfir allt, sem aðall Frakk-
lands gerði á miðöldunum. X+Y.
Verðhækkun á sykri
(Framh. af 1. síðu)
segir: Molasykur úr 70 aurum
upp í 78 ura pr. kg., strausyk-
ur úr 60 aurum upp í 68 aura pr.
kg. — En kaup hafa nú verið
fest á það miklum birgðum af
sykri, að frekari verðhækkun
ætti varla að þurfa að verða
fram eftir sumrinu, enda þó er-
lenda verðið hækki eitthvað enn.
Annars er þess að vænta, ef
stríðsóttinn minnkar, að verðið
lækki aftur í eðlilegt horf.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
var um síðastliðin mánaðamót var
samþykkt að fela sambandsstjórninni
að leita álits skógræktarstjóra um það,
hvort ekki mundi fært að alfriða nokk-
urn hluta þessa umrædda svæðis. Vill
svo heppilega til, að skógrækt ríkisins
hefir fyrir skömmu keypt nokkurn
hluta landsins, er liggur að Hreðavatni.
Auk þess myndú aðrir eigendur senni-
lega verða tilhliðrunarsamir um af-
hendingu skóglendisins við Hreðavatn,
ef falað væri í þeim tilgangi að frið-
lýsa það. Að sjálfsögðu verða bæði
dýr og jurtir algerlega friðhelg innan
girts svæðis, ef til kemur.
Sveitapættir
(Framh. af 3. síöu)
Y. Niðurlagsorð.
í þessum smáþáttum hefi ég
tekið til meðferðar nokkur at-
riði um menningarlíf sveitanna
og íbúa þeirra.
Að minni hyggju ber nú að
leggja sérstaka áherzlu á það, að
efla starfs- og menningarlíf
dreifbýlisins. Slík hefir líka
yfirleitt verið stefna síðustu ára.
Það er stundum gert lítið úr
þeim hlut, sem landbúnaðurinn
leggur inn í þjóðarbúið. Þess er
eigi gætt, að hann er stórum
meiri en hagskýrslur sýna. —
Menningarhlutverk sveitanna er
þó eigi minna heldur en á at-
vinnusviðinu. Þar á kjarni þjóð-
menningar okkar að halda á-
fram að vera. Þar mun íslenzk-
ur andi njóta sín bezt við þá
stórkostlegu tign, við þau hár-
fínu blæbrigði og við þá óend-
anlegu fjölbreytni, sem birtist í
línum íslenzku sveitanna.
Meiri samhygð — fleiri sam-
eiginleg átök — á að vera svar
sveitafólksins við hinu nýja við-
horfi þess. — Flestar starfsheild-
ir þjóðfélagsins hafa sín á-
kveðnu samtök. Þau eiga ekki
að vera til þess að skapa stéttar-
baráttu, heldur til þess að auð-
veldara sé um lausn viðfangs-
efnanna. — Sérstaklega ætti
bændastéttin að minnast þess,
að á síðustu árum hefir tekizt
að vinna mörg glæsileg afrek í
sveitunum. Þau hafa fyrst og
fremst verið unnin vegna þeirr-
ar samheldni, sem þar hefir tek-
izt að skapa í félags og menn-
ingarlífinu. Sú samheldni þarf
einungis að verða enn sterkari.
Ekki til þess að þoka hinum at-
vinnuvegunum í skuggann né
bera fram ósanngjarnar kröfur
á hendur þeim. Heldur til þess
að finna betur samtakamáttinn
og verða þannig hlutgengari á
vettvangi starfs og dáða.
í sveitunum er hin sameigin-
Hallgrimskirkja
(Framh. af 2. síðu)
urssyni, hæfir því aðeins minn-
ingu hans, að það verði byggt
með það fyrir augum, að það
um óbornar aldir verði höfuð-
vígi kristninnar í landinu til út-
breiðslu hennar og heiðurs.
Vegna staðhátta gæti kirkja að
Saurbæ aldrei orðið slíkt vígi,
hversu mörgum 100 þús. krónum
væri í hana sóað. En í Reykja-
vík myndu ávextir þeirrar upp-
hæðar verða þúsundfaldir til
eflingar og viðhalds kristni
landsins.
Kirkja, þótt reist væri á gröf
Hailgríms, sem stæði þögul og
köld mest allt árið, í afskekktri
byggð, yrði, hversu dýrðleg, sem
hún annars kynni að vera, að
eins ytra tákn hnignandi trúar-
lífs borið saman við mikilleik
þess minnisvarða, sem kynslóðir
þjóðarinnar reistu Hallgrími
Péturssyni á umliðnum öldum,
þegar trúarljóð og sálmar hans
lifðu á vörum fólksins í orði og
söng, um gjörvallar byggðir
landsins.
í þregningu þess tíma reisti
þjóðin, óafvitandi, trúarskáldinu
mikla hinn veglegasta minnis-
varða. Minnisvarða, sem varð
þjóðinni meira virði í lífsbaráttu
hennar í hallærum og áþján
fyrri alda, heldur en köld og
þögul kirkja, á löngu gróinni
gröf skáldsins, getur orðið þeirri
kynslóð, sem þann minnisvarða
byggir.
Jónas Þorvaldsson.
lega arfleifð. Þar bíða líka ó-
numdar víðáttur í skjóli hárra
fjalla. Enn hlýtur vorönnin að
móta starfslífið þar. Á morgni
„nýrrar aldar“ er líka gott til
þess að hyggja, að framundan
sé bjartur starfsdagur og mikið
það dagsverk, sem af hendi þarf
að inna.
Jón Emil Guðjónsson
,,Selíoss“
fer annað kvöld um Vestmanna-
eyjar til Rotterdam og Ant-
werpen.
„Brúarfoss“
fer á fimmtudagskvöld 18. maí
um Vestmannaeyjar til Leith
og Kaupmannahafnar.
Pantaðir farseðlar óskast sótt-
ir i dag, verða annars seldir
öðrum.
,,Dettifoss“
fer vestur og norður Iaugardag
20. maf.
JB.S. Lyra
fer væntanlega fimmtudags-
kvöld 18. þ. m. til Bergen um
Vestmannaeyjar og Thorshavn.
Flutningi veitt móttaka til kl.
3 á miðvikudag. Farseðlar sæk-
ist fyrir sama tima.
P. Smith & Co.
r
Utborgun
tekjuafgangs
ACCUMULAT OREN-F ABRIK,
DR. TH. SONNENCHEIN.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Mðnrsuðnverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Reykhús. — Frystiluis.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Egg frá Eggjasölusamlagi Reykjavíkur.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar
BÉÐIR or' SKIiVN, sem falla til á heimilum
þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt
að koma þessum vörum í verð. - SAMBAND
ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur JVAUTGRIPA-
38 William McLeod Raine:
inn leikur að glíma við skaflana. Ég fer
nú að hátta. Góða nótt.
Hann dró af sér stígvélin, fór úr jakk-
anum og vestinu og hengdi það á stól.
Síðan smaug hann undir ábreiðurnar í
öðru rúminu. Þrem mínútum seinna
heyrði Molly á djúpum og jöfnum andar-
drættinum, að hann var sofnaður.
Hún bjó sig undir nóttina á svipaðan
hátt og hann. Hún hafði búizt við því að
liggja vakandi, trufluð og óróleg af nær-
veru hans, en í þess stað sofnaði hún
svo að segja undir eins.
Þegar hún vaknaði, var kominn morg-
un. Hann var kominn á fætur og var að
líta eftir eldinum.
V. KAFLI.
Vindstaðan hafði breytzt um nóttina
og var nú ekki lengur á hánorðan. Það
var heldur ekki eins hvasst og áður, en
hann var þykkur og útlitið ekki sem bezt.
Molly virti hinn veðurbarða félaga sinn
fyrir sér með svefnþrungnum augum, en
smátt og smátt vaknaði hún til fulls.
Henni fannst að hún yrði að fara á
fætur og hjálpa honum. En það var svo
notalegt undir teppunum, enda var lík-
ami hennar ekki vaknaður til fulls enn,
og hún fann til magnleysis, eins og mað-
ur finnur æfinlega eftir langan og
djúpan svefn. Hún teygði sig eins og
Flóttamaðurinn frá Texas 39
köttur og fannst sér líða ákaflega vel.
— Taktu lífinu með ró. Þú skalt ekki
hreyfa þig fyrr en hlýtt er orðið inni og
þá verður morgunmaturinn tilbúinn.
Hún lá kyrr um stund, en uppástunga
hans var samt á móti áætlun hennar.
Hún hafði ákveðið að hafast ekkert það
að, er minnti þau á að hann væri karl
en hún kona. Þetta var auðvitað ekki
hægt, það sá hún, en því færra, sem
benti til þess, því betra.
— Bylinn er að stytta upp, er það
ekki? spurði hún.
— Hann hvílir sig um stund, en við
eigum eftir að verða betur vör við hann.
Moily renndi sér fram úr rúminu og fór
í háleistana, hún var í bláa samfest-
ingnum um nóttina. Hún var ekki lengi
að ljúka við klæðnaðinn og kom svo
strax yfir að eldstónni.
Er þau höfðu matazt, sagðist hann
ætla að nota uppstyttuna til þess að ná
í meiri við ofan úr hæðinni. Hann hafði
fundið öxi og skóflu. Við vitum ekki, hve
við verðum lengi veðurteppt, bætti hann
við, og það er eins gott að búast við því
versta. Ég fer því og dreg inn nokkrar
klyfjar.
— Á ég að fara með þér?
— Nei, þú verður bústýran.
Molly tók stöðuna alvarlega. Hún var
alin upp á búgarðinum og var ekki ó-
hcldur stöðugt áfram
Þegar útborgað
50 þús. kr.
HÚÐIR. HROSSHÚÐIR, KÁLFSKIM, LAMB-
SKEVIV og SELSKEVIV til útlanda OG KAUPIR
ÞESSAR VÖRUR TEL SÚTUIVAR. - IVAUT-
GRIPAHÚÐER, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKEVN
eftir 34 þús. kr.
Æskilegt að félagsmenn sæki
tekjuafgang sinn sem fyrst.
er bezt að salta, en gera verður það strax að
lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda
sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinn-
unum, bæði úr holdrosa og hári, áður en salt-
að er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum
vörum sem öðrum, borgar sig.
V ortösknrnar
Tusknr
og VORHANZKARIVIR nýkomið.
fljótt vegna Hvítasunnunnar.
Komið
Kaupum allar tegundir
af tuskum og striga
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ.
Húsgagnavinnustofan
Baldursg. 30
Sími 4166.
►o-
Stofa við Eiríksgötu til leigu.
Uppl. í síma 1247 kl. 6—8 í kvöld.
Vinnið ötulleya fyrir
Tímann.