Tíminn - 10.06.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐVR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFVR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1d.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AVGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h. f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjjavík, langardagiim 10. jjúní 1939
66. blað
Verður hör ræktaður til
nytja hér á landi
Frásögn af tilraunum frú Rakelar Þorleífsson
Norsk skip aS selveiðum í Grœnlandshaji. Sjá neðanmálsgrein Markúsar
Sigurjónsonar í blaðinu í dag.
Afstaða Estlendinga
og Letta
Frú Rakel P. Þorleifsson
hefir um nokkurra ára skeið
haft með höndum ræktun
margvíslegra nytjajurta og
skrúðplantna að heimili
sínu, Blátúni við Kapla-
skjólsveg í Reykjavík. Meðal
annars hefir hún gert til-
raunir með ræktun ýmissa
jurta, sem ekki hafa verið
ræktaðar hér áður, þar á
meðal hör, hamp, soyabaun
ir og fleira.
Tíðindamaður Tímans brá
sér nýlega vestur að Blátúni til
þess að kynna sér tilraunir þær,
er frú Rakel hefir gert þar með
ræktun hörs. Hina fyrstu tilraun
sina gerði hún sumarið 1937, og
haí'ði þá enginn annar reynt að
rækta hör hér á landi á seinni
árum. Náði hún þegar sæmileg-
mn árangri, og varð vöxtur hörs-
ins í Blátúni svipaður og sams-
konar tegundir ná erlendis. Úr
hör þeim, er frú Rakel ræktaði
sumurin 1937 og 1938, hefir hún
spunnið þráð og unnið dálitlar
dúkræmur og virðist hörinn að
öllu leyti vera fínn og góöur.
Sumt af hörfræinu náði góðum
þroska þessi ár.
Síðastl. haust réðist frú Rakel
til utanfarar og naut til þess
nokkurs opinbers styrks. Dvaldi
hún við allmargar stofnanir í
Danmörku, þar sem hún kynnt-
ist ræktun hörs, hagnýtingu og
vinnsluaðferðum. Skoðaði hún
meðal annars danskar hörekrur,
hörbleytistöðvar og verksmiðjur
<og naut góðra ráða hjá þekktum
mönnum á þessu sviði.
Verzlunar-
jöínuðurinn
óhagstæður um 5,708
þús. kr. fyrstu 5 uiáii-
uði árslns.
Hagstofan hefir nú gert
bráðabirgðayfirlit um út- og
innflutning fyrstu fimm mán-
uði yfirstandandi árs. Sam-
kvæmt því er verzlunarjöfnuð-
urinn óhagstæður um 5,708 þús-
und krónur.
Útflutningur hefir alls num-
ið kr. 16,868,440, en innflutning-
ur kr. 22,576,920. Síðastliðið ár
nam útflutningur á sama tíma
kr. 15,785,900, en innflutningur
kr. 21.466.120. Verzlunarjöfnuð-
urinn var þá óhagstæður um
kr. 5,680 þús. Er útkoman þess
vegna mjög svipuð í ár og í fyrra.
Sakir hinnar óvenju miklu
þátttöku i síldveiðunum, og
einnig vegna ófriðarótta, hefir
innflutningur orðið sérstaklega
mikill í maímánuði, eða 7,643
þús., en útflutningur í maí hins-
vegar ekki nema 3.801 þús. Hefir
því verzlunarjöfnuðurinn aflag-
ast um ca 3.8 miljónir í þessum
eina mánuði.
S1 y s
Síðastliðinn fimmtudag vildi
það slys til á vélbátnum Hulda
frá Þingeyri, að Jón Jónsson
stýrimaður féll útbyrðis og
drukknaði. Var hann á vakt og
urðu bátverjar ekki varir þess
að hann félli útbyrðis, en sökn-
uðu hans þó fljótlega. Leituðu
þ>eir hans um skipið en fundu
ekki. Snéru þeir þá við nokkurn
spöl. Skaut honum þá upp
skammt undan, svo hann náðist,
en- lífgunartilraunir báru engan
árangur.
Nú í ár hefir hún sáð fimm
tegundum hörs. Er það gert í
síðara hluta apríl eða byrjun
maí. Allar eru hörtegundirnar
komnar vel upp og gerir hún
sér nú von um enn betri árang-
ur en fyrr. Átti hún nú völ
nýrra og heppilegra frætegunda.
Fáeinir menn hafa orðið til
þess að fá fræ til reynslu hjá
frúnni, og hefir að minnsta
kosti sumum þeirra heppnast
ræktun hörsins.
Hörplantan er hávaxin, ein til
hálf önnur alin á hæð, eftir því
um hvaða tegund er að ræða.
Hún ber himinblá blóm. Vaxtar-
tíminn er fremur stuttur, um
hálfan fjórða mánuð. Jarðvegur
þarf að vera hreinn og laus við
illgresi, þar sem hör er ræktað-
ur, og nokkuð rakur. Sjaldnast
er hentugt að rækta hör til
lengdar á sama bletti. Hör er
ræktaður vegna tvennskonar
nytja, annarsvegar fræjanna,
hins vegar hörþráðarins. Úr
fræjum er unnin olía, efni í
lyfjavörur og fóðurkökur. En þó
gefa hörþræðirnir plöntunni
mest gildi. Þeir liggja innan i
leggnum og verður að fletta eða
mylja límvefinn utan af þráðn-
um. Algengasta aðferðin er sú,
að bleyta stráið og feyja það og
mylja síðan. Síðan er hörinn
kembdur, spunninn og ofinn.
Ef takast mætti að rækta hér
hör í allstórum stíl, og fá svipaða
eða litlu minni eftirtekju heldur
en í nágrannalöndunum, virðist
ótvírætt að hér sé um að ræða
nytjaplöntu, sem gefa á fullan
gaum. Þá er forganga frú Rak-
elar Þorleifsson í þessu efni
merkilegur þáttur í þeirri við-
leitni, að skapa sem fjölbreytt-
ast atvinnulíf í landinu.
Auk þeirra tilrauna, sem Rak-
el hefir gert um ræktun hörs,
munu samskonar tillraunir vera
framkvæmdar í sumar á til-
raunastöðvunum á Sámsstöðum
og Akureyri og ef til vill víðar.
Ætti því í haust að fást sú
reynsla, sem á má byggja, um
það, hve miklum þroska hör
geti náð hér á landi.
Á þessu ári er 65 þúsund krónum úr
ríkissjóði varið til styrktar barnaskóla-
byggingum utan kaupstaða og gengur
það fé ýmist til barnaskóla, sem þegar
hafa verið byggðir, en ekki hafa enn
notið lögákveðins fjárframlags frá rík-
inu, eða til skóla, sem eru í smíðum.
Samkvæmt upplýsingum fræðslumála-
skrifstofunnar eru nú í smíðum eftir-
taldir barnaskólar: í Sandgerði er ver-
ið að byggja stóran skóla, sem áætlað
er að kosti 64 þúsund krónur. Á Snæ-
fjallaströnd er verið að byggja heiman-
gönguskóla, sem kostar um 7500 krón-
ur. Skammt frá Hellu á Árskógsströnd
er heimavistarskóli í smíðum, áætlaður
byggigarkostnaður 32 þúsund krónur. í
Höfn í Hornafirði á aö reisa í sumar
heimangönguskóla með tveim kennsiu-
stofum. í Ólafsfirði, frammi í sveitinni,
á að byggja heimangönguskóla, er síð-
ar verði breytt í heimavistarskóla, á-
ætlað er, að sá hluti byggingarinnar,
sem reistur verði í ár, kosti um 10500
krónur. í Borgarfirði eystra á að reisa
heimangönguskóla með einni kennslu-
stofu í stað skólahúss, er eyðilagðist í
ofviðri síðastliðið ár. í Gaulverjabæ á
að byggja stóran heimavistarskóla, er
áætlað að kosti 40 þúsund krónur.
Munu Stokkseyringar sennilega eiga
hlut að þeim skóla, ásamt Gaulverja-
bæjarhreppnum. Auk þess er í smíðum
leikfimishús á Flateyri við Önundar-
fjörð. Þessar skólabyggingar njóta all-
ar nokkurs byggingarstyrks í ár, nema
Aðalfundur Kaup-
félags Héraðsbúa
Viðskiptaveltan nam
1 miljf. 116 þús. sl. ár.
Aðalfundur Kaupfélags Hér-
aðsbúa var haldinn á Reyðar-
firði dagana 15. og 16. maí s. 1.
Á fundinum mættu, auk stjórn-
ar, framkvæmdarstjóra, slátur-
hússtjóra og endurskoðenda, 24
fulltrúar og deildarstjórar úr 10
deildum félagsins í Héraði og
Reyðarfirði.
Formaður, Björn Hallsson á
Rangá, setti fundinn og stýrði
honum. Áður en gengið var til
dagskrár, minntist hann látinna
félagssystkina og þá m. a.
Benedikts Blöndals stjórnar-
nfendarmanns félagsins um 18
ára skeið. Ákvað fundurinn 3
þúsund króna minningargjöf í
sambandi við nafn hans.
Skýrsla framkvæmdarstjóra,
Þorsteins Jónssonar, um hag og
rekstur félagsins, var að vanda
fróðleg og ýtarleg.
Félagið átti við árslok 1938
fasteignir fyrir 176 þús. kr. að
loknum afskriftum, er fyrning-
arsjóður stendur straum af.
Sameignarsjóðir nema 248 þús.
kr., en stofnsjóður félagsmanna
er nálega 90 þús. kr.
Sala aðfluttra vara 1938 varð
560 þúsund, en innlendra 550
þús., og hefir því umsetningin
öll orðið rúmar 1 milj. og 100
þús. kr.
Tekjuafgangur ársins varð
11% af útlendri vöru, þar af3% í
stofnsjóð.
Fundurinn s'amþykkti reglu-
gerð fyrir bústofnslánadeild er
félagið hefir starfrækt innan
vébanda sinna um nokkurt ára-
bil.
Fundurinn samþykkti 5 þús.
kr. framlag í skuldtryggingar-
sjóð, 4 þús. í fyrningarsjóð. Þá
1 þús. kr. til sundlaugar á Eið-
um. Þá var og samþykkt að láta
fara fram stækkun og endur-
bætur á frystihúsinu svo fljótt
sem við yrði komið, og nauðsyn-
leg vélakaup þess vegna.
Umbætur, er félagið hefir
framkvæmt á síðustu tveim ár-
um, eru þessar:
Byggt hefir verið nýtt tvílyft
verzlunarhús með nýtízku búð-
um, vörugeymslum á neðri hæð,
skrifstofum, fundarsal og
Gaulverjabæjarskólinn og ef til vill
skólinn í Borgarfirði eystra. Verða þeir
að bíða útborgunar á styrknum til
næsta árs. Miklu fleiri aðilar hafa orð-
ið til að leita eftir styrk til skólabygg-
ingar heldur en hægt hefir verið að
sinna að nokkru, og til engra skóla, sem
nú eru í smíðum, verður styrkurinn
greiddur að fullu 1 ár, að fráskildu
leikfimishúsinu á Flateyri.
t t t
Friðgeir Ólason læknir að Breiðumýri
í Reykjadal í Þingeyjarsýslu hefir tvö
undanfarin vor lagt stund á að rann-
saka unglambasjúkdóma, er gert hafa
vart við sig þar um slóðir, einkum svo-
nefnda ostaveiki. Hefir sá sjúkdómur
oft valdið stórtjóni þar í sveitum og
stundum drepið allt að 20—30 unglömb
á bæ, og víðar um land hefir þessi
lambasjúkdómur valdið skaða. Drepast
lömbin oftast á öðrum eða þriðja degi.
Orsökin virðist sú, að á fyrsta degi,
sem lambið lifir, myndast í maga þess
harður og seigur ostur, sem aldrei
meltist. Friðgeir læknir bjó í fyrra vor
til meðal, er hann reyndi gegn veikinni,
og virtist að sögn bænda, þar nyrðra,
vera mjög til hjálpar. í vor hefir Frið-
geir haldiö rannsóknum og lækninga-
tilraunum áfram og virðist kominn vel
á rekspöl að vinna bug á þessum skað-
valdi.
t r t
Samband ungra Framsóknarmanna
heldur aðalfund sinn á Akureyri að
Meðal þess, sem talið er valda
því, að ekki hefir enn náðst
samkomulag milli Breta og
Rússa um bandalag gegn yfir-
gangi fasistaríkjanna, er af-
staða Eystrasaltsríkjanna Est-
lands, Letlands og Lithauen.
Rússar hafa sett fram það skil-
yrði, að þessum löndum væri
heitið samskonar aðstoð og Pól-
landi, Rúmeníu og Grikklandi,
ef á þau væri ráðizt. Færa þeir
fram þau rök, að það væri mjög
hættulegt fyrir Rússland, ef
fjandsamlegt stórveldi leggði
þessi ríki undir sig eða næði
þar yfirráðum á einn eða annan
hátt. Hinsvegar hafa þessi ríki
verið treg til þess að þiggja lof-
orð um slíkan stuðning, og Bret-
ar hafa ekki viljað gefa neina
slíka yfirlýsingu, án samþykkis
þeirra.
Ástæðan til þess að Eystra-
saltsríkin hafa ekki óskað eftir
þessu loforði, er vafalaust ótti
við það, að slíkt yrði skilið á
þann veg, að þau væru í banda-
lagi við Breta og Frakka og þau
yrðu þess vegna fyrir fjandskap
Þjóðverja. En utnaríkisstefna
saumastofu, sem nýlega er tekin
til starfa, á efri hæð. Þá er senn
að verða lokið uppsetningu á
kembi- og lopavélum, sem komið
hefir verið fyrir í gamla verzl-
(Framh. á 4. síðui
þessu sinni. Eiga 27 fulltrúar rétt til
sóknar á fundinn með atkvæðisrétti,
en auk þess munu allmargir ungir
Framsóknarmenn á Akureyri og nær-
sveitum taka þátt í störfum fundarins.
Fer aðalstjórn sambandsins og full-
trúar af Suðurlandi norður í dag. Fóru
þeir með Laxfossi til Akraness, en það-
an með hraðferðarbifreiðum. Verður
aðalfundurinn settur á morgun kl. 10,
en upp úr hádegi hefst héraðssamkoma
Framsóknarmanna í Eyjafirði að
Hrafnagili. Þar flytja m. a. ræður
Jónas Jónsson formaður Framsóknar-
flokksins og Eysteinn Jónsson við-
skiptamálaráðherra. En aðalfundar-
störfum verður síðan haldið áfram á
mánudag, og munu þau standa yfir alla
næstu viku.
t t t
Frá Vestmannaeyjum eru þegar
farnir 13 bátar á síldveiðar, en samtals
munu fara þaðan um 40 bátar að þessu
sinni. Er það margfalt meiri þátttaka
en nokkru sinni áður úr þessari veiði-
stöð.
t t t
Á Austurlandi hefir tíðin verið með
afbrigðum góð, og grasvöxtur svo mik-
_ill, að það *má fara að slá, eins og
heimildarmaðurinn orðaði það í sím-
tali í morgun. Gildir þetta bæði um
Fljótsdalshérað og fjörðuna austan-
lands, og hefir gras svo menn muni
aldrei verið jafn snemmsprottið þar
um slóðir.
þeirra hefir á nndanförnum ár-
um verið næstum hin sama og
Norðurlanda eða sú, að halda
sér utan við öll samtök og
bandalög stórveldanna. Með
þeim hætti telja þau hlutleysi
sinu bezt borgið og helzt verði
komizt hjá þátttöku í styrjöld.
Ýmsir telja það því brot á
þessari stefnu þeirra, að tvö af
þeim, Letland og Estland, hafa
nú nýlega gert öryggissáttmála
við Þýzkaland. Bauð þýzka
stjórnin þeim slíkan sáttmála
um líkt leyti og hún sendi
stjórnum Norðurlanda sams-
konar tilboð. í nokkrum heims-
blöðunum hefir þetta jafnvel
verið talið merki þess, að þau
væru að hneigjast á sveif með
Þýzkalandi. En vafalaust er það
rangt. Hitt er sennilegra, að þau
telji sig nauðbeygð til þess að
þiggja loforð Breta og Rússa um
hjálp, ef samningar takast milli
þeirra, og þess vegna sé hyggi-
legra að hafa gert slíka sátt-
mála við Þýzkaland áður, sem
sönnun þess, að þau vilji vera
vinur beggja og halda sér utan
við átök stórveldanna. Virð-
ist því miklu frekar ástæða til
þess fyrir þau en Danmörku að
gera öryggissáttmála við Þýzka-
land, þar sem Rússar og Bret-
ar hafa ekki boðið henni stuðn-
ing.
Það mun líka valda nokkru
um þessa afstöðu Estlands og
Letlands, að þeim stendur ekki
síður stuggur af Rússum en
Þjóðverjum, bótt meiri hætta
virðist stafa af þeim síðarnefndu
í bili. Þau hafa til skamms tíma
verið undir rússneskum yfir-
ráðurn og hafa ljóta sögu af
þeim að segja. Þegar þau reyndu
að grundvalla sjálfstæöi sitt
eftir fall rússnesku keisara-
stjórnarinnar, gerðu kommún-
istar sitt itrasta til að halda
þeim áfram undir rússneskum
yfirráðum. Sjálfstæði sitt fengu
þau ekki viðurkennt fyrr en
eftir harða og blóðuga baráttu
við hersveitir kommúnista. Bæði
Estlendingum og Lettum er
þetta enn vel minnisstætt og
eru því tortryggnir á loforð þess-
ara voldugu nábúa sinna, þótt
þeir hafi eftir megni reynt að
hafa sambúðina við þá sem
bezta seinustu árin.
Hinsvegar hafa Lettar og Est-
lendingar jafnan átt mjög vin-
gott við England, enda eiga þeir
sjálfstæði sitt Bretum að miklu
leyti að þakka, því þeir veittu
þeim mikilsverðan stuðning í
frelsisbaráttunni. England og
Þýzkaland eru líka helztu við-
skiptalönd þeirra.
Saga Estlendinga og Letta
er fyrir margra hluta sakir
merkileg. Þeir hafa furðanlega
verndað þjóðareinkenni sín,
þrátt fyrir margra alda undir-
okun.Menning þeirra og atvinnu
líf er í frekar góðu lagi. Land-
búnaðurinn er helzti atvinnu-
vegur beggja. íbúar Lettlands
eru nú um tvær milj. og íbúar
Estlands um 1,1 milj.
A víðavangi
íslendingum, sem ferðast hafa
um sveitir annarra landa, mun
hafa orðið ráðgáta, hinar ein-
kennilegu, stundum slitróttu,
trjáraðir á ræktarlöndum jarð-
anna. En þetta munu langoít-
ast vera skjóltré. Hér eigum við
merkilegt úrræði. Og í þessu á
hin almenna þátttaka og æfing
í hinni vaknandi skógræktar-
bylgju að vera fólgin, allir, bók-
staflega allir, hversu litla jörð
sem þeir fást við að rækta, allir
eiga þeir að koma sér upp skjól-
beltum. þreföld röð af víði-
stiklingum næst gaddavírsgirð-
ingu er ágæt byrjun. Víðirinn er
harðger og vex ört. Ræktunar-
aðferðin einföld, stiklingunum
stungið á ská ofan í moldina.
Síðan má planta birki, reyniviði
og öðrum trjátegundum í skjól-
ið, en síðar, þegar þetta belti er
vaxið úr grasi, nýtur túngróður
eða matjurtagróður sívaxandi
skjóls af þessum útvörðum, sem
svara mun árvissum arði af
fyrirhöfninni.
* * *
Vorið kom snemma. Verði
sumarið áfallalaust, nær allur
gróður fyllsta þroska, sem hér
þrýfst á annað borð. Ungu trén
í görðum Reykvikinga fengu
gott ár í fyrra, laufin oröin gul
og alla vega brún áður en haust-
frostin komu til sögunnar. Svona
mun þetta hafa verið um allt
land. Nú, þegar skilningur og á-
hugi á hverskonar ræktun er að
færast í aukana, þykir rétt að
benda á, hversu sjálfsagt er og
nauðsynlegt að safnað sé fræi
af þeim trjátegundum, sem hér
bera fullþroskað fræ. Er þar
fyrst og fremst um birki og
reynivið að ræða, en gsetu þó
verið fleiri tegundir. Innlent
fræ er öruggast. Sjálfsagt er að
sækjast fyrst og fremst eftir
fræi af þroskavænlegustu trján-
um. Til þessa kann að þurfa
margt fólk. En mundi ekki völ
nægra sjálfboðaliða til dæmis
úr nágrenni Vaglaskógar. Og
mundu ekki einhverskonar „far-
fuglar“ fáanlegir til hjálpar í
Bæjarstaða- og Hallormsstaða-
skóg. Og svona gæti þetta verið
víðar, þar sem um þroskavæn-
leg tré er að ræða. Skógræktar-
stjórinn notar blöðin og útvarp-
ið til leiðbeininga- og verk-
stjórnarstarfsemi sinnar um
þetta sjálfsagða mál. Er sárt- að
sjá t. d. allt fræið af fallegustu
reyniviðartrjánum fara í fugl-
ana á hverju ári, án þess að
almenningur reyni að keppa við
þá um þennan nytjagróður.
* * *
Morgunblaöið hefir tekið und-
ir þá tillögu, sem nýlega var
hreyft hér í blaðinu, að Far-
fuglahreyfingin tæki sér það
verkefni fyrir hendur, að gera
bílfært yfir Sprengisand. Segir
blaðið réttilega, að slikt starf
væri ólíkt hollara og skemmti-
legra en ferðalög, enda þótt þau
gætu verið gagnleg. Leggur það
til, að byr-jað verði samtímis á
veginum að norðan og sunnan,
þannig, að Farfuglar nyrðra
byrji sín megin og Farfuglar
syðra hinumegin. Væri þetta
fyrirkomulag hið skemmtileg-
asta, og myndi skapa heppilega
keppni. Vill Tíminn endurnýja
þá áskorun til forráðamanna
Farfuglanna, að þeir taki þetta
mál til meðferðar og láti verða
úr framkvæmdum.
* * *
Neyðin kennir —. Aldrei hefir
verið fitjað upp á jafnmörgum
nýjungum í atvinnuháttum til
sjós og lands hér á landi, eins
og síðan markaðurinn fyrir salt-
fisk gekk okkur jafn eftirminni-
lega og fyrirvaralaust úr greip-
um. Og þó er hér aðeins um
byrjun að ræða. Þjóð, sem í
þúsund ár hefir búið við ein-
hæfa atvinnuháttu og hrörn-
andi, sakir skorts á sjálfsfor-
ræði, á að vonum ekki fjörugt
ímyndunarafl né næmt auga
fyrir úrræðum í atvinnumálum,
(Framh. á 4. síðu).
A. KROSSGÖTUM
Byggingar barnaskóla. — Ostaveiki í unglömbum. — Aðalfundur S. U. F. —
Frá Vestmannaeyjum. — Grasspretta á Austfjörðum.