Tíminn - 15.06.1939, Page 4
272
TÍMOny, fimmtiirtagiim 15. jiiní 1939
68. blað
MOLAR
Ríkisverndari Bœheims og Má-
hren, von Neurath, hefir flutt
frá höllinni Hradshin og býr nú
á gistihúsi. Sú saga gengur með-
al Tékka, að Masaryk sálugi hafi
gengið aftur og ákaft varað von
Neurath við því að kúga Tékka,
og þess vegna hafi hann ekki
getað haldizt við í höllinni. Þetta
er auðvitað aðeins draugasaga,
en liún er ákaflega útbreidd
bœði meðal þeirra, sem trúa
henni og hinna, sem ekki trúa
henni. Sagan er líka mjög merki-
leg fyrir það, að hún sýnir um-
talið á bak við tjöldin, og það,
hvað fólkið brýtur heilann mikið
um viðhorfið til Þjóðverja. Það
er og víst, að andi Masaryks lifir
í tékknesku þjóðinni, þótt ólík-
legt sé, að hann gangi Ijósum
logum.
* * *
Fágœt atkvœðagreiðsla fór
fram nú fyrir skömmu i New
York. 50 þús. giftra kvenna og
karla létu í Ijósi álit sitt um
tengdamóðurina. Syurningin, er
sett var fram, var svohljóðandi:
Fellur yður vel við tengdamóður-
ina? Af konunum sögðu 92% já,
en 51% karlmannanna sögðu nei.
* * *
Skrítinn atburður gerðist í
Paris fyrir skömmu siðan. BUnd-
ur beiningamaður, horaður og
aumlegur ásýndum, hefir lengi
haldið sig fyrir framan St. Ger-
main de Pres kirkjuna. Einn
prestanna komst svo við af út-
liti betlarans, að hann lánaði
honum stól til að sitja á. Bein-
ingamaðurinn fór œtið heim til
sín í strœtisvagni, og þar var
hann ekki vel liðinn, þar eð hann
lét rigna ókvœðisorðum yfir
hvern þann mann, sem kom ná-
lœgt honum. Um daginn fór
vagnstjórinn eitthvað að skipta
sér af honum. Betlarinn flaug
þá á hann og beit hann í kinn-
ind. Vagnstjórinn kallaði á lög-
regluna og farið var með þá
báða til lögreglustöðvarinnar.
Úrslit málsins urðu þau, að hin-
um blinda beiningamanni var
gert að greiða 4 franka, þ. e.
borgun fyrir að kallað var á lög-
reglubifreið. Máttu þetta heita
góð málalok fyrir beininga-
manninn, en hann neitaði samt
að borga, og sagðist enga pen-
inga eiga. Lögregluþjónarnir
leituðu þá á honum og fundu
leðurpoka, sem hann hafði í
snúru um hálsinn. í pokanum
voru 250 þús. frankar. Lögreglu-
þjónarnir tóku 4 franka, en létu
betlarann hafa afganginn, eða
249,996 franka. Ætti þetta að
nœgja honum í framtíðinni, sér-
staklega ef hann heldur áfram
sinni fyrri iðju frammi fyrir
kirkjunni.
* * *
Gibraltar-viginu er nú veitt
töluverð athygli, og er það mjög
að vonum, eins og á stendur um
stjórnmál á Spáni. Það er ekki
úr vegi að rifja nokkuð upp ein-
stök atriði úr sögu Gibraltar, og
þá einkum hersögu þess. Á fyrri
hluta miðalda voru mikil átök
um Gibraltar milli Mára og
Spánverja. 1540 undirbjuggu sjó-
rœningjar í Algier árás mikla á
Gibraltar, og hugðust með því að
tli BÆJVUM
F. U. F.
efnir til útilegu að Þingvöllum um
helgina, ef veður leyfir. Verður lagt af
stað á laugardagskvöld og komið aft-
ur til bæjarins á sunnudagskvöld. Þeir
sem hafa hug á að taka þátt í förinni,
skulu sem fyrst tilkynna það á skrif-
stofu Tímans, sími 2353. Kaffi og syk-
ur verður sameiginlegt, en menn sjá
sér sjálfir fyrir nesti og drykkjarílát-
um, svo sem venja er. Séð verður fyrir
tjöldum þeim, sem þess óska, og er
æskilegt að menn láti vita um hvort
þeir hafa tjald sjálfir, um leið og þeir
tilkynna þátttöku sína.
Slys.
Það slys vildi til að afliðnu nóni á
þriðjudaginn hér í Reykjavík að Finn-
bogi Kristófersson frá Galtalæk í
Rangárvallasýslu varð fyrir bifhjóli
og fótbrotnaði. Var Finnbogi á gangi,
ásamt öðrum manni, er tveir menn á
bifhjóli komu á móti þeim og varð þá
Finnbogi fyrir hjólinu. Var hann fyrst
fluttur á sjúkrahús og þar gert að
meiðslunum, en síðan var hann fluttur
til fólks þess, er hann dvelur hjá hér í
bænum.
Síldarafli
hefir ennþá enginn orðið fyrir Norð-
urlandi svo teljandi sé. Hafa aðeins tvö
herpinótaskip lagt afla á land, en það
eru þau Dagný frá Siglufirði með 370
mál og Helga frá Hjalteyri með um 100
mál. Síldveiðiskip eru alltaf að streyma
til veiðisvæðanna.
Norrænt stúdentamót
verður haldið i Osló dagana 23.-27.
þ. m. Héðan fara 13 stúdentar á mót
þetta, en nokkrir eru erlendis, bæði í
Noregi og Danmörku, svo alls verða
rúmlega tuttugu íslenzkir stúdentar á
mótinu. Á undan stúdentamótinu sjálfu
verður haldið mót læknanema, og geta
íslenzkir læknanemar, en þeir eru
nokkrir í hópi stúdentanna, sem héðan
fara, tekiö þátt í því, þar eð þeir verða
komnir til Osló tveim dögum áður en
mótið hefst. Alls munu þátttakendur í
stúdentamótinu verða nær tveim þús-
undum. Fararstjóri íslenzku stúdent-
anna er Einar Magnússon mennta-
skólakennari.
„Selfoss"
fer á laugardag 17. júní um
Vestmannaeyjar til Antwerpen.
Brúarfoss“
fl
fer á mánudag 19. júní um Vest-
mannaeyjar til Grimsby og
Kaupmannahafnar.
ná lyklavöldum að Miðjarðar-
hafi. Spánverjar komust að ráða
gerðinni í tœka tið og sjórœnihgj-
arnir guldu afhroð mikið. Sam-
einað lið Hollendinga og Eng-
lendinga tóku Gibraltar, undir
stjórn Sir George Rooke árið
1704. Siðan hefir Gibraltar verið
í eigu Englendinga. Árin 1779—
83 sátu Frakkar og Spánverjar
um Gibraltar, en 7000 Englend-
ingar vörðu vígið. Höfðu þeir
verið þvínœr matarlausir í mán-
uð, er umsátinni lauk með þvi,
að Englendingar létu Spánverja
hafa nýlendur sinar á Florida
fyrir Gibraltar. Spánverjar töp-
uðu aftur þessum nýlendum í
frelsisstríðinu.
K. R. og Víkingur
mefstaraflokkar.
Kappleikur á íþróttavellmum I kvöld kl. 8.30.
KOMIÐ og s jáið
FRITZBUCHLOH
í markl Víkings.
BiinatSarbankmn
tíu ára.
(Framh. af 1. siöu)
bú á Akureyri seint á árinu 1930
og lagði fram sem stofnfé þess
300 þús. krónur. Síðan hefir
stofnféð verið aukið um 200 þús.
krónur.
Sparifjárinnstæður útibúsins
um síðustu áramót voru 145 þús.
krónur.
Skuldlaus eign Búnaðarbank-
ans var í árslok:
1930 ..... 4 milj. 860 þús.
1938 ..... 8 — 375 —
Teiknistofan.
Ein mjög þýðingarmikil
starfsgrein, sem bankinn starf-
rækir, er Teiknistofa landbún-
aðarins. Henni veitir forstöðu
Þórir Baldvinsson. Vinna þar,
auk forstöðumanns, tveir fastir
starfsmenn og aðstoðarmenn
eftir þörfum.
Af því sem nú hefir verið
greint, verður að álykta, að Bún-
aðarbankinn hafi fyllilega látið
þær vonir rætast, sem tengdar
voru við stofnun hans í upp-
hafi.
Aðalbankastjórar Búnaðar-
bankans hafa verið Páll E. Óla-
son, Tryggvi Þórhallsson og
Hilmar Stefánsson. En aðstoðar-
bankastjórar til ársloka 1937
voru þeir Bjarni Ásgeirsson og
Pétur Magnússon.
Er bankanum nú flutt sú ósk,
að hann í framtíð megi jafnan
reynast styrk stoð hinum far-
sæla atvinnuvegi, landbúnað-
inum, og megi með honum bless-
ast og blómgvast.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. síðu)
að fullu liði. Það er svo um
margt stritið og stríðið, að ekk-
ert gengur, nema tekið sé á með
karlmennsku, barizt með hnú-
um og hnefum. Og það er þess-
vegna sem mér finnst svo bjart
og vistlegt hér á íþróttavellin-
um; íþróttirnar stæla vöðvana,
styrkja heilsuna, magna kjark
og áræði; drengirnir okkar, sem
alast upp á íþróttavellinum, þeir
eru manna líklegastir til að
nema landið á ný, elska landið,
græða landið, ganga þar fram,
sem erfiðast er og berjast með
hnúum og hnefum. Verið því
velkomin, og vitið fyrir víst, að
þessi nýgirti íþróttavöllur hérna
i höfuðstaðnum, — hann er einn
fegursti sólskinsblettur þessa
blessaða lands.“ Þannig lauk
Guðm. Björnsson ræðunni, sem
vígði íþróttavöll en fjallaði um
bæjarskóg!
Ifrefnar
léreftstuskur
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
86
William McLeocL Raíne:
Flóttamaöurinn frá Texas
87
Ný flughöfn við Oslo.
(Framh. af 1. siöu'
göngur innanlands, en hafa ekki
ennþá vélar eða menn til þess
að taka að sér millilandaflugið,
enda láta þeir útlendinga sjá
um það. Hollenska flugfélagið
hefir tekið að sér flugið milli
Oslo og Amsterdam, með holl-
enskum vélum og hollenskum
flugmönnum, en Noregur kostar
þó flugið að hálfu. Danir hafa
tekið að sér flugið milli Kaup-
mannahafnar og Kristiansand,
og fá ákveðna fjárhæð fyrir
starfrækslu þess. Enda getur
það ekki haft nema gott eitt í
för með sér fyrir Noreg, að Dan-
ir starfræki fastar flugferðir,
sem hljóta að leiða af sér all-
mjög aukinn ferðamannastraum
frá Þýzkalandi, því þangað
liggja flugleiðir þeirra. Þessi að-
ferð mun og verða Norðmönnum
kostnaðarminni til að byrja með,
þótt þeir verði að greiða nokkra
fjárhæð fyrir þessar samgöng-
ur.
Það er auðvitað takmark
Norðmanna að annast sjálfir
flugsamgöngur við önnur lönd,
með norskum mönnum og norsk-
um vélum. Hver og einn getur
sagt sér sjálfur, ef hann hug-
leiðir dugnað þeirra, t. d. í sigl-
ingum. Og nú er flughöfnin tek-
in til starfa, en hún er frumskil-
yrði þessa. En það er að færast
nokkuð mikið í fang, að taka
þetta allt í einu, og þessvegna
er það að þeir láta útlend félög
annast flugferðirnar fyrst um
sinn. Norðmenn fara hér eftir
fyrirfram ákveðinni áætlun, og
þeir ná áreiðanlega takmarki
sínu.
“""““GAMLA EÍÓ"'0*"0—0*
Fornmonja-
prófessorinn.
Sprenghlægileg og framúr-
skarandi spennandi ame-
rísk gamanmynd, frá Para-
mount-Harold Lloyd Pro-
duction. — Aðalhlutverkið
leikur hinn ódauðlegi
skopleikari
HAROLD LLOYD,
er síðastl. 20 ár hefir verið
vinsælasti gamanleikari
heimsins, og er þetta 500.
hlutverkið hans og um leið
það langskemmtilegasta!
>—~*°-0*NÝJA bíó“—"
„Alexander’s
Ragtiine Band“
Stórfengleg og hrífandi
skemmtileg músikmynd frá
FOX FILM, þar sem á-
horfendum gefst kostur á
að heyra 27 af vinsælustu
lögum eftir frægasta tízku-
skáld veraldarinnar IR-
VING BERLIN. — Myndin
gerist á árunum 1911—
1939. — Aðalhluv. leika:
TYRONE POWER,
ALICE FAYE og
DON AMECHE.
Ópernsöng'vari
Steián Guðmundsson
syngur í Gamla Bíó á kvöld kl. 7.15
ineð aðstoð Árna Kristjánssonar píanóleikara
Pantaffir aðgöngumiðar, sem ekki hafa verið sóttir, seldir
öðrum.
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar
HUÐIR og SKIM, sem falla til á lieimilum
þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt
að koma þessnm vörnm í verð. — SAMBAJYD
ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selnr NAUTGBIPA-
HÚÐIB, HBOSSHÚÐIR, KÁLFSKFVIY, LAMB-
SKINN og SELSKLYN til útlanda OG KAUPIR
ÞESSAR VÖRIR TIL SÚTUNAR. - NAUT-
GRIPAHÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLI SKINTV
er bezt að salta, en gera verðnr það strax að
lokinni slátrun. Fláningn verðnr að vanda
sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinn-
iininii, bæði úr holdrosa og hári, áðnr en salt-
að er. Góð og hreinleg meðferð, á þessnm
vörum sem öðrum, borgar sig.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Niðursuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Reykhús. — Frystihús.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niffursoðið kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Egg frá Eggjasölusamlagi Rcykjavíkur.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
fyrir hann og fyrir, að hann skyldi vilja
tala um ást við hana og sýna jafnframt
að hann væri aumingi. Heimska hans
virtist leggja áherzlu á ómennskuna,
sem hann hafði gert sig sekan um. Molly
var alin upp í hinu vilta vestri og það
krefst þess enn, fyrst og fremst, af íbú-
um sínum, að þeir sýni hugrekki. Að
hafa áræði var kostur, en að hafa það
ekki var óbætanlegur ókostur.
Hann duldi ósigur sinn með stærilæti.
— Gott og vel, ef þú ætlar að haga þér
þannig, sagði hann drembilega.
— Þanig ætla ég einmitt að haga mér.
— Þú hefir alltaf sett þig á háan hest,
eins og þú værir drottningin af Saba, eða
eitthvað þess háttar, sagði hann gremju-
lega.
— Var hún nú líka þannig, spurði
Molly sakleysislega.
Hann þaut út úr herberginu í reiði og
nú var stærilætið gleymt.
10. KAFLI
Það var ánægjulegt að hvíla sig í setu-
stofunni á Quarter Circle XY. Molly
hafði séð um búnað stofunnar. Hún
hafði ráðgast við húsbúanda frá Denver
og árangurinn var ágætur. Svipur
gluggatjaldanna fór mjög vel við hús-
gögnin og geysistóran arininn í öðrum
enda stofunnar.
Jane Macmillan sat í hægindastól og
prjónaði. Hún var af gamla skólanum
og leið betur ef hún hafðist eitthvað að.
Walsh var við spilaborðið og lagði kapal,
en Taylor sat nærri arninum og las í
bók. Molly var fjórða mannveran í stof-
unni. Hún var á eilífu flökti, eirðarlaus,
ýmist að fikta við útvarpið, eða hún
staðnæmdist snöggvast, til að horfa á
kapalinn hjá Walsh.
Taylor horfði ekki á hana, en hann
var greinilega var nærveru hennar. Fjör
hennar fyllti herbergið, hún var létt í
svifum og bar sig tígullega, göngulagið
var fjörugt og ákveðið. Taylor fannst
að María Skotadrottning myndi hafa
borið sig þannig, er hún gekk inn í and-
dyri Hollyroad, þegar hún heillaði
Chastelard. Taylor brosti með sjálfum
sér, er honum datt þetta í hug. Hann
veitti henni óþægilega mikla athygli.
Honum féll hún ekki vel í geð og hon-
um mislíkaði framferði hennar alger-
lega. Hún var eigingjörn, skemmd af
ofmiklu dálæti og villt. Þó var það sjald-
gæft að finna, meðal kvenna, slíkan
járnvilja, svo ákveðna og ósveigj anlega
einbeittni, sem fór svo dásamlega sam-
an við mýktina í fari hennar. Hon-
um datt ekki í hug að verða ást-
fanginn í henni. Hann myndi, síst
allra, vilja giftast henni, og er það þó
allt land.
Sumargestlr sveitaiina
(Framh. af 3. síöu)
sveitirnar líka. Þetta fólk er
helzt á ferðinni um helgar. Má
þar sjá málverk með ýmsum
litum. Einnig fölleita pilta og
veiklulega. Þetta fólk er þrótt-
laust að sjá og manndómslítið.
En Bakkus er með í förinni og
bætir hann upp manngildið. —
Þetta fólk stundar ekki útileg-
ur eða íþróttir sér til þroska. En
á aflíðandi laugardögum og
sunnudögum safnast það í bíla
sína og ekur út í sveitirnar.
Það spyrst fyrir, hvar dans-
skemmtanir muni vera og þang-
að er svo haldið. Þar unir það
sér í góðu næði, því enginn er
til eftirlits. En gestrisni heima-
fólks er mikil og ekki um það
fengist, þó siðferði gesta sé ekki
á háu stigi.
íslenzkar sveitastúlkur hafa
enga Pólverja eða Kínverja til
að veita blíðu sína eins og stall-
systur þeirra í höfuðstaðnum.
En þessir gestir munu áreiðan-
lega vera skör lægri en þeir út-
lendu í allri framkomu. N.
Aðalfundur
Sjóvátryggingarfélags íslands h.f. verður haldinn á skrifstofu
félagsins mánudaginn 26. júní kl. 2 e. h.
Reikningur félagsins fyrir árið 1938 liggur frammi frá í dag,
til sýnis fyrir hluthafa.
Reykjavík, 14. júní 1939.
STJÓRNIN.
TilkynnÍDg
Ég undirritaður tilkynni hér með, að ég hefi flutt bakarí
mitt frá Vesturgötu 14 í "Þingholtsstræti 23, og vænti ég þess, að
viðskiptavinir mínir haldi viðskiptum áfram.
Virðingarfyllst.
S. Jensen,
Þingholtsstræti 23. — Sími 4275.