Tíminn - 04.07.1939, Page 4
304
TÍMINN, |>riðjiidagiiin 4. jtilí 1939
76. blað
Vegleg gjöf til siád-
entaskíptamíllíAme-
ríku og Islands
Steingrímur Arason kennari
afhenti Háskóla íslands í gær
12,500 kr. sjóð, sem verja skal
til að standa straum af stú-
dentaskiptum milli Columbia-
háskólans í Bandaríkjunum og
háskólans hér. Gjöf þessa til-
kynnti Steingrímur á Vest-
mannadeginum á Þingvöllum og
er sjóðurinn stofnaður í tilefni
af honum.
Steingrímur hefir sjálfur gefið
5000 kr. í sjóðinn, en 7500 kr. eru
frá félaginu „fslendingur", sem
stofnað var um 1920 til að vinna
að nánari samvinnu íslendinga
austan og vestan. hafs. í stjórn
félagsins voru Einar H. Kvaran
rithöfundur, Baldur Sveinsson
blaðamaður og Garðar Gíslason
kaupmaður. Félagið er hætt
störfum fyrir alllöngu síðan. En
Garðar Gíslason, sem var gjald-
keri þess, hefir stöðugt ávaxtað
fé félagsins, og hefir það orðið
að ráði milli hans og Steingríms,
að verja því í þessu skyni.
Gjöf Steingríms er þannig til
komin, að hann stundaði nám í
fjögur ár við Columbiaháskóla
og var honum gefið skólagjald í
þrjú ár, en það er mjög hátt.
Taldi hann sig því standa í
þakkarskuld við skólann og
vildi launa það á einhvern hátt.
Columbiaháskólinn hefir fyrir
alllöngu síðan komið á stúdenta-
skíptum við háskóla á Norður-
löndum og hefir háskólanum
hér staðið það einnig til boða.
Áleit Steingrímur að gjöf sín
myndi bezt ná tilætluðum á-
rangri með því að stofna sjóð,
sem greiddi fyrir slíkum stúd-
entaskiptum.
LEIÐRÉTTING:
í frásögn af aðalfundi S. í. S.
í seinasta blaði hafði orðið
meinleg prentvilla. Var sagt að
tekjuafgangur S. í. S. á síðastl.
ári hefði orðið 709 þús. kr. en
átti að vera 409 þús. kr.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. síSu)
forráðamenn þess fullan hug á að
hlynna að laxagengd í Botnsá. Verður
laxinn mikil hlunnindi þeim, er njóta,
og erninum á Dröngum óvænt krás.
t t t
Við Breiðafjörð er mikið um erni og
segja kunnugir, að þeim fjölgi sífellt
og það allmikið. Víða sér fólk þar fleiri
eða færri erni daglega og eru þeir yfir-
leitt ekki vinsælir fuglar, enda eru þeir
sumstaðar orðnir hreinasta plága.
Einkum þykja þeir vargar véum í
varplöndum og eru þess mörg dæmi,
að þeir hafi stórspillt þeim.
Fyrstl Vestmannadag-
urinn á Þingvöllmn.
(Framh. af 1. siðu)
an G. Stephansson. Gat hann
þess m. a. að ýmsir merkir fræði-
menn í Vesturheimi, sem kynnst
hefðu skáldskap Stephans, teldu
hann mesta Ijóðskáld Vestur-
heims. Stephan, sagði hann,
væri einn glæsilegasti fulltrúi
sjálfsmenntunar, sem jafnan
hefði verið undirstaða íslenzkrar
menningar, og ljóð hans væxi
hin mikla samtenging milli ís-
lendinga austan hafs og vestan.
Hátíðahöldunum í gjánni lauk
með upplestri Emilíu Borg á
kvæði eftir Steingrím Arason.
Síðar um daginn flutti Matthí-
as Þórðarson þjóðminjavörður
erindi á Lögbergi um sögustaði
á Þingvöllum. Um kvöldið sungu
Stefán Guðmundsson og Karla-
kór Reykjavíkur í Valhöll og
síðan var stiginn dans.
Hátíðahöldin fóru í alla staði
mjög prýðilega fram og voru
forstöðunefndinni til hins mesta
sóma, og þá ekki sízt forseta
hennar, Sigfúsi Halldórs frá
Höfnum, sem stjórnaði hátíðinni
með smekkvísi og skörungs-
skap. Sérstaka athygli og á-
nægju vakti að tekin hafði ver-
ið upp sá siður frá þjóðhátíðum
Vestur-íslendinga, að minnast
ættlandsins og fósturlandanna
tveggja með því, að láta konur
koma fram sem Fjallkonuna,
Miss Ameríku og Miss Kanada.
Má hiklaust fullyrða, að há-
tíðahöldin hafa náð þeim tilgangi
sínum, að auka samhug hér
heima í garð Vestur-íslendinga.
í forstöðunefnd dagsins áttu
sæti: Sigfús Halldórs frá Höfn-
um (formaður), frú Elisabet
Jensen-Brand, frú Halldóra
Sigurjónsson, Pétur Sigurðsson
rithöfundur og Steingrímur Ara-
son kennari. Þeim til aðstoðar
starfaði fjölmenn starfsnefnd,
og voru í framkvæmdastjórn
hennar Ari K. Eyjólfsson, Egill
Vilhjálmsson og Thor Jensen-
Brand. Vökumenn hjálpuðu til
að halda uppi reglu á hátíðinni
og margir fleiri veittu aðstoð
sína á ýmsan hátt. Hefir Tíminn
verið beðinn að flytja þakkir
forstöðunefndar til allra þeirra,
sem veittu henni aðstoð.
Skrlfstofa
Framsóknarfloklísins
í Reykjavík
er á Lindargötu 1 D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Allmargir menn hafa orðið til
þess að skrifa Tímanum greina-
góð bréf, og er þeim hér með
þakkað fyrir.
tR BÆNIJM
Landsýning barnaskólanna.
Þær ákvarðanir hafa verið teknar,
vegna vaxandi aðsóknar og fjölda
áskorana að hafa hana opna næstu
daga frá 8—11 á kvöldin.
Þórður Eyjólfsson
hæstaréttardómari hefir verið kjör-
inn forseti hæstaréttar fyrir timabilið
frá 1. september 1939 til 1. september
1940.
Á íþróttavellinum
fer fram í kvöld knattspyrnuskeppni
milli meistaraflokks K. R. og Tvöroyar
Boldfélag, sem er hér í boði K. R.
Er það fyrsti kappleikur Færeyinga
hér.
Leiðrétting.
Skemmtiferð Hins íslenzkra garð-
yrkjufélags um Akranes og Borgarfjörð
verður farin dagana 8. og 9. þ. m., en
ekkí 7. og 8. eins og auglýst var í síð-
asta blaði.
Christmas Möller,
fyrverandi formaður íhaldsflokksins
danska, kom hingað með Dronning
Alexandrine í gærmorgun og fór
áfram með skipinu til Akureyrar. Það-
an mun hann fara til Mývatns og síð-
an landleiðina hingað suður. í ferð
með honum er frú hans og sonur.
Christmas Möller er einn af þekktustu
stjórnmálamönnum Dana og nýtur
mikils álits.
Prjónlessýningin
í Iðnskólanum er opin frá 10—10.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó sýnir nú ameríska litmynd,
sem nefnist Hetjur skóganna. Gerist
hún meðal skógarhöe-o'smanna í Kana-
da. Er hún hin æfintýraríkasta, lýsir
vel hinu fagra landslagi þar og ýmsum
starfsháttum skógarhöggsmanna. —
Gamla Bíó sýnir þýzka mynd, Heim-
þrá, og leikur hin þekkta sænska leik-
kona, Sarah Leander, aðalhlutverkið.
Nýung.
Samkvæmt auglýsingu í blaðinu í
dag, liefir Verzlunin Bristol hér í bæn-
um tekið upp þá nýung, að senda gegn
póstkröfu út um land, sitt viðurkennda
skorna neftóbak, á lokuðum flöskum.
Vatnaleiðin
gegnum Svíþjóð
(Framh. af 3. síðu)
grænar greinar hávaxinna trjáa
teygjast upp með báðum hlið-
um. Það er engu líkara en að
skipið renni um sjálfan skóg-
inn, hljótt, hægt, en viðstöðu-
laust. Á einum stað liggur skurð-
urinn yfir alldjúpt gil eða vatna-
farveg.
Skipið siglir um langa stál-
rennu eða stokk, sem gengur frá
einum gilbarmi til annars. Á hlið
að sjá, er þetta alveg eins og
brú á vatnsfalli, enda er það svo.
Það er einungis sá munur á
henni og slíkum mannvirkjum,
að um hana fara skip ein, enda
eru sporðar hennar tengdir við
skurðinn báðum megin.
Ferðin yfir Váttern gengur
fljótt. Vatnið er að vísu afar
langt, en ekki meir en 30 km. á
breidd. Og nú er siglt með fullri
ferð. Fá vötn eru jafn tær og
gegnsæ sem Váttern.
Það er sennilega fátt, sem fs-
lendingum finnst jafn heillandi
við veru eða ferðalög erlendis
sem skógarnir, a. m. k. meðan
þeir hafa ekki átt kost á að
kynnast þeim verulega. Og víst
118 William McLeod Raine:
— Hann hefir slegið þig í klessu og
stungið af, ha?
— Jú, rétt, en klóraði sig úr pokanum
fyrst, sagði Walsh, en bætti svo við til
skýringar: — Molly heyrði hávaðann og
varð fyrst á orustuvöllinn til aðstoðar.
Clint leit á dóttur sína og svo á sýslu-
manninn.
— Það lítur út fyrir að þú hafir verið
óaðgætinn, Steve?
— Það var ég sannarlega, sagði Walsh
með nokkrum ákafa.
Það var eitthvað i þessu, sem Pres-
cott skildi ekki, en ætlaði sér að kom-
ast að.
— Ég er hissa. Þetta er ekki líkt þér,
Steve, að láta fangann fara svona með
Þig-
— Okkur verða öllum á skyssur. Ég
hélt ég hefði bundið náungann nógu
rammlega. Ég hafði jafnvel bundið um
hann bandi, sem ég batt svo um fót
mér, til þess að ég vaknaði ef hann
hreyfði sig mikið.
Prescott horfði á dóttur sína meðan
hún bar joð á sárið. Er hún hafði bund^
ið um höfuðið, spurði hann hana allt í
einu:
— Hvernig stendur á því, að þú ert
í samfesting og flúnelsskyrtu, Molly?
— Ég býst við að það hafi verið næst
hendi, svaraði hún.
Flóttamaðurinn frá Texas 119
— Handhægara en morgunsloppur,
spurði hann hranalega.
— Ég var ekki háttuö, ég var að máta
föt.
' — Hversvegna kallaðir þú ekki á mig,
þegar þú heyrðir hávaðann hérna?
— Hún hefir sennilega haldið að við
værum bara að kasta af okkur stígvél-
unum og ætluðum að fara að sofa, sagði
Walsh.
— Ég spurði þig ekki, Steve, heldur
Molly.
— Þetta þýðir ekki, Steve, sagði Molly
lágt. — Við verðum að segja pabba allt
af létta.
— Ég er enginn bjáni, sagði Prescott.
— Það væri líka meira en meðal
asni, sem tæki þetta þvaður ykkar trú-
anlegt. Ég vil fá að vita sannleikann.
Molly rétti úr sér og leit á föður sinn.
Hún fann að blóðið hljóp fram í kinn-
arnar.
— Ég gerði það, sagði hún. — Ég kom
inn um gluggann og skar böndin af
þessum Taylor.
— Bölvaður villikötturinn þinn,
hvæsti faðir hennar. — Ertu alveg
bandvitlaus!
— Ég sagði þér, að ég myndi hjálpa
honum, ef þú gerðir það ekki, svaraði
hún.
Crodafoss
fer á miðvikudagskvöld 5. júlí
vestur og norður, Farseðlar ósk-
ast sóttir fyrir hádegi sama dag.
Skipið fer 13. júlí til Leith og
Hamborgar.
GllllfOSS
fer á fimmtudagskvöld kl. 10 um
Vestmannaeyjar til Leith og
Kaupmannahafnar.
ALLTAF
S A M A
TÓBAKIÐ
í BRISTOL
Bankastræti 6.
- Sími: 4335. -
REYKJAVÍK.
Þetta þjóðfræga neftóbak, sem
er selt á snyritlegum flöskum.
er sent gegn póstkröfu um
land allt.
•GAMLA EÍÓ*
eru þeir yndislegir og til ómetan-
legrar fegurðar og gagns. En þó
getur ferðamaðurinn fengið
meir en nóg af þeim, einkum ís-
lendingurinn, sem er svo vanur
hinum víða sjóndeildarhring og
tæru fjallalofti.
Rúmlega hálf Svíþjóð er skógi
vaxin, þ. e. svæði, sem er meir
en tvöföld stærð íslands, eða sem
næst 225,000 ferkm. Að ferðast
um þessi afar víðlendu skógar-
flæmi, t. d. með járnbraut, verð-
ur þreytandi, þegar til lengdar
lætur. Útsýnin er engin. Aðeins
þéttar trjáraðir til beggja handa.
Maður fer að þrá að komast út
úr þessu endalausa og óyfirsjá-
anlega skógarþykkni. Jafnvel
hver háls, hvert hinna lægri
fjalla t. d. um miðbik landsins,
er klætt viði, ýmsra tegunda,
þótt mest beri á björkinni með
hinn hvíta stofn. Það er hún,
sem er drottning sænsku skóg-
anna, á sinn hátt eins og beykis-
skógarnir einkenna Danmörku
og linditré Þýzkland.
En það er allt annað og ólíkt
æfintýralegra að ferðast gegn-
um víðáttur skóganna á skipi en
járnbraut. Það er svo óvenjulegt,
svo furðulega heillandi, líkara
draumi en vöku.
Þegar komið er þvert yfir
Vattern, er aftur haldið inn í
Gautaskurðinn, sem gengur hér
beint til austurs, gegnum mörg
smávötn og allt út í Eystrasalt.
En norður úr honum er og enn
skipaleið eftir sænsku sléttunni
og út í þriðja stórvatnið, Löginn,
og þann veg til Stokkhólms.
Þetta ferðalag tekur upp undir
vikutíma, er mun dýrara en með
járnbraut, en aftur á móti ein-
hver einkennilegasta leið og
fegursta, sem hægt er að hugsa
sér.
Hægt og rólega hafa farþeg-
arnir siglt gegnum þvert landið,
séð einn fegursta hluta þess,
siglt fram hjá og í gegnum frjó-
sama akra, framhjá borgum,
kaupstöðum og þorpum, fornum
hallarrústum, snotrum bænda-
býlum, stórum herrasetrum og
margskonar risafengnum mann-
virkjum.
Nær hvarvetna hefir birkiskóg-
urinn blasað við augum. Hvitir
stofnar hávaxinna trjáa glitra
í sólarbirtunni, hvert sem augu
sjá, limamiklir, vasklegir full-
trúar hinna víðlendu sænsku
skóga.
Hallgr. Jónasson.
Heimþrá
Framúrskarandi vel leikin
ov efnismikil UFA-kvik-
mynd, gerð samkvæmt
hinu þekkta leikriti:
„Heimat“ eftir Herman Su-
dermann.
Aðalhlutverkið leikur hin
fagra sænska söng- og leik-
kona
ZARAH LEANDER.
NÝJA BÍÓ-
Ðetjnr skógaima.
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros., samkvæmt
hinni víðlesnu sögu, Gods-
Country and the Woman,
eftir James Oliver Curwood.
Aðalhlutverkin leika:
George Brent, Beverly Ro-
berts, E1 Brendel o. fl.
Myndin sýnir spennandi
og æfintýraríka sögu, er
gerist á meðal skógar-
höggsmanna og öll tekin í
eðlilegum litum í hinni
töfrandi náttúrufegurð
Kanada.
Hjartans þakkir til allra hinna fjölmörgu, skyldra og
vandalausra, sem veittu okkur margháttaða og ógleyman-
lega gleði og sæmd í tilefni af gullbrúðkaupi okkar.
Ingunn og Einar á Tóftum
Vigdís og Þorvarður frá Meðalholtum
Hraðferdír B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. —
M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á
Bifreiðastöð íslands, sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
GISTIHÚSIÐ VIÖ GEYSI
tekur á móti ferðamönnum til lengri eða skemmri dvalar.
Sundlaug til afnota. Hestar leigðir til ferðalaga.
Allt selt sanngjörnu verði.
--- Daglegar bílferðir frá Bifreiðastöðinni GEYSI. -
Kaupiélög!
Ifiafið s liySSiinuiii vörur, seus allir
biðja um, ug þjóðfrægar eru fyrir
gæði:
FALOMA-haiulsápa
FAVORI
MlMI -”-
MÁM A-stais gasápu
TIF TOP þvottaduft
FlX-þvottaduft
LlOO-snyrtivörur
REX-ræstiduft
MÁXA-skóáburður, bóu og leður-
feiti, vagnáburður, kristalssápa.
Tökum góða tólg, kjöt, fisk, smjör,
egg o. fl. íslenzkar afurðir.
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Newspaper
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monitor
does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them,
but deals correctively with them Features for busy men and all the
family. including the Weekly Magazine Section.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street. Eoston, Massachusetts
Please enter my subscripMon to The Christian Science Monitor for
a period of
. 1 year $12 00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday issue. ’ncluding Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25c
Name_______________
Saviple Copy on Recfuett
Knattspyrnumeistarar Færeyja komnirtil Reykjavíkur
Tvoroyap Boldfélag og K. R.
keppa í kvöld kl. 8,30.
Sjáid meistarana frá FæreyjumZ Sjáið K. R.