Tíminn - 06.07.1939, Side 4
308
TfMIATV, funmtiiclasinii 6. júlí 1939
77. blaO
Sjoðcignir
sambandsfélaganna.
(Framh. af 1. slðu)
framleiðslu og voru eftirfarandi
tillögur samþykktar í því máli:
„Aðalfundur S. í. S., haldinn
að Reykholti 2. júlí 1939, skorar
á stjórn S. í. S. að beita sér fyrir
því, að kaupfélögunum verði
veittar leiðbeiningar og aðstoð
til að koma upp rjómabúum og
smjörsamlögum.
í sambandi við væntanlega
aukningu smjörframleiðslunnar
telur fundurinn nauðsynlegt. að
takmörkuð sé framleiðsla á
smjörlíki, annaðhvort beinlínis
eða með aukinni smjörblöndun,
og skorar fundurinn á þing og
stjórn að breyta gildandi ákvæð-
um um þau efni, til þess að
tryggja markað fyrir smjörið.
Jafnframt sé lögð áherzla á að
auka smjörneyzlu með auglýs-
ingastarfsemi. Ennfremur beinir
fundurinn því til Alþingis að
setja lagafyrirmæli um heiti á
smjörlíki eins og öðrum gerifi-
vörum og sé hætt að nefna það
nafni, sem minnir á smjörið“.
„Fundurinn skorar á stjórn
S. í. S. að fela hæfum mönnum
að rannsaka og gjöra tillögur um
á hvern hátt undanrenna geti
orðið bændum að mestum not-
um og verðmætust og gefa
skýrslu um árangur þeirra rann-
sókna á næsta sambandsfundi,
ef unnt er“.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt um iðnaðarmál:
„Fundurinn felur stjórn S. í.
S. að skipa nefnd, er rannsaki
hina ýmiskonar iðnaðarstarf-
semi, sem hafin hefir verið á
landinu hin síðari ár, meira og
minna í skjóli innflutningshaft-
anna og leitist nefndin við að
leiða í ljós, hvað af þessum iðn-
aði geti talizt eiga rétt á sér við
venjuleg skilyrði. Ætlast fund-
urinn til að áliti nefndarinnar
verið komið á framfæri við milli-
þinganefnd þá í tolla- og skatta-
málum, sem nú starfar“.
Ennfremur var samþykkt að
fela stjórn S. í. S. að athuga,
hvort ekki væri rétt, að S. í. S.
setti á stofn ýms ný iðnfyrirtæki
og væri þá jafnframt athugað,
hvort ekki væri rétt að velja
þeim aðsetursstað í sveit.
Þá var samþykkt að hefjast
handa um aukna fræðslustarf-
semi um samvinnumál eins og
t. d. með útgáfu á smáritum og
námskeiðum.
Gengið var frá stofnun á líf-
eyrissjóði fyrir starfsfólk S. í. S.
og samþykkt að láta rannsaka,
hvort ekki væri tiltækilegt að
stofna lifeyrissjóð fyrir starfs-
fólk kaupfélaganna.
Eitt félag gekk í Sambandið
á fundinum, Verzlunarfélag
Norðurfjarðar á Norðurfirði.
Mættir voru fulltrúar á fundin-
um frá öllum sambandsfélögun-
um, nema tveimur.
Fyrsti júlí var alþjóðasam-
vinnudagur, en hann er haldinn
hátíðlegur fyrsta laugardag
júlímánaðar ár hvert. Var þá
samvinnufáninn dreginn að hún
í Reykholti og dagsins minnst
með ræðu. Þá var og að tilhlut-
tH BÆ3VUM
Jóannes Patursson kóngsbóndi
í Kirkjubæ í Færeyjum, hinn þekkti
forvígismaður sjálfstæðisbaráttu Fær-
eyinga, kom hingað til lands með Lyru
síðastliðið mánudagskvöld, ásamt frú
sinni. Munu þau dvelja hér nokkurn
tima. Þau eru hingað komin í heim-
sókn til dætra sinna tveggja, sem gift-
ar eru Scheving Thorsteinsson lyfsala
og Júlíusi lækni Sigurjónssyni. Nú sem
stendur eru þau í ferðalagi norðan
lands og munu í dag vera stödd að
Hólum í Hjaltadal. Patursson hefir all-
oft komið til íslands, síðast alþingis-
hátíðarárið 1930.
Norræna mótinu,
sem haldið var á Laugarvatni, lauk
með samsæti í Oddfellowhöllinni í
fyrrakvöld. Aðalræðuna þar flutti Ivar
Wennerström landshöfðingi í Svíþjóð,
sem dvelur hér nú ásamt frú sinni,
Lóu Guðmundsdóttur frá Nesi. Ræða
landshöfðingjans fjallaði einkum um
norræna samvinnu og var hin snjall-
asta. Margir þátttakendur í mótinu
fluttu ræður. Hefir mót þetta tekizt
mjög vel.
Tvöroyrar Boldfelag
og Valur keppa á íþróttavellinum kl.
SVz í kvöld. K. R. sigraði Færeyingana
í fyrrakvöld með 5 : 1. Leikur Færey-
inganna var þó betri en þessi úrslit
gefa til kynna. Ósigur þeirra mun líka
hafa stafað nokkuð af því að þeir eru
vanir grasvelli og að þetta var fyrsti
leikur þeirra hér. Má vænta betri leiks
hjá þeim móti Val í kvöld.
Karlakór Reykjavíkur
heldur samsöng í Gamla Bíó í kvöld
kl. 7.15. Einsöngvari er Stefán Guð-
mundsson. Er þetta síðasta tækifæri
til að hlusta á Stefán í bili, þar sem
hann fer utan í kvöld.
Leiðfétting.
Nokkrar prentvillur hafa orðið í
grein Sigurðar Ólasonar lögfræðings
um umferðamál, sem nýlega birtist
hér í blaðinu. í niðurlagi greinarinnar
er meinleg prentvilla. Þar stendur: „i
hverju þessi tilfelli hefir hann skaða-
bótarétt," en á að vera: „hvorugu þessu
tilfelli" o. s. frv. Þetta leiðréttist hér
með.
Landbiinaður
í Revlijavík.
(Framh. af 2. siðu)
sem orsakaði óeðlilega verð-
hækkun á löndum og vinnulaun-
um. Eftir að skipulagið kom, ætl-
aði einn slíkur að nota það til
að gera fyrirtæki sitt að ríki í
ríkinu og sjálfan sig að nokk-
urskonar einræðis- eða yfirráð-
herra yfir mjólkurmálunum, en
sú ríkisstjórn stóð nú ekki öllu
lengur en ríkisstjórn Jörundar
forðum. Mjólkurmálið var þegar
í byrjun skipulagsins dregið inn
í illvígar pólitískar flokkadeilur,
til mikils tjóns fyrir það á marga
vegu, og ýmsax aðrar plágur
hafa að því sótt, þó þeirra verði
ekki getið að þessu sinni.
Ég hefi hér að framan, fyrst
allir aðrir þegja, leitast við að
skýra rétt og hlutlaust frá flest-
um megin atriðum þessa máls,
ef verða mætti til nokkurs skiln-
ingsauka þeim, sem um það eiga
að fjalla, og öðrum þeim, er um
það vilja hugsa á sanngjörnum
og hlutlausum grundvelli.
Sigurður Þorsteinsson.
un sambandsstjórnar minnst
Benedikts Jónssonar bókavarð-
ar frá Auðnum, sem lézt á árinu.
En hann var einn af frumherj-
um samvinnustefnunnar hér á
landi.
íþrótfamót Borgíirðinga
vift Hvítá
verður haldið næstkomandi sunnudag og hefst kl. 1.
DADSKRÁ verður í aðalatriðum þessi:
1. íþróttakeppni: Sund, stökk, hlaup, stutt og löng, kringlu-
kast, kúluvarp og handknattleikur, — kvennaflokkar frá
Akranesi keppa.
2. Kórsöngur: Karlakór iðnaðarmanna.
3. Ræðuhöld: Sigurður Einarsson dócent o. fl.
4. DANS: Fyrsta flokks músik.
Veitingar verða seldar á staðnum.
aður aðgangur.
Ölvuðum mönnum bann-
Laxfoss fer tvær ferðir frá Borgarnesi: Klukkan 7,30 um
kvöldið og kl. 1 að nóttu.
Uiigmeimasamband Rorgarfjarðar.
Þegnskaparuppeldi.
(Framh. af 3. síðu)
legt að lifa án þess að vinna.
Og ég veit enga hættulegri fals-
kenningu en þá, að iðjuleysið,
hóglífið, séu eftirsóknarverðir
hlutir. Hún er leið til úrkynjun-
ar og allskonar þjóðfélagsvand-
ræða. Hitt er svo annað mál, að
sá æfilangi þrældómur, sneydd-
ur flestum tækifærum til að
njóta lífsins er þyngra böl en
tárum taki. En þrátt fyrir allt, er
það samt vinnan, starfið, sem
er okkar hollasti skóli. Verð-
mæti hennar eru ekki fyrst og
fremst fólgin í því, að hún er
vara, sem hægt er að selja, held-
ur af hinu, að hún er hlutverk,
eitthvað að lifa fyxir, eitthvað,
sem gefur lífinu tilgang og gildi.
Framhald.
Stórbrunl í
sænska frystihúsinu.
(Framh. af 1. síðu)
magnaður þegar slökkviliðið
kom á vettvang. Nokkru eftir að
slökkvistaxfið byrjaði, varð mik-
il sprenging og flaug stór hluti
af þakinu í loft upp. Asparse-
sementsplöturnar, sem húsið var
klætt með, sprungu og brotin úr
þeim þeyttust í allar áttir. Héldu
plöturnar síðan áfram að
springa og má telja mesta lán
að þær skyldu ekki valda slysi.
Þykkan reykjarmökk lagði yf-
ir bæinn frá brunastaðnum og
þusti þegar fjöldi fólks á vett-
vang. Lögreglan gætti þess, að
það héldi sér í hæfilegri fjar-
lægð.
Fyrirspurn.
Hefir merkingin í orðinu „ekkja“
breytzt í nútímamáli? Ef ekki, er það
þá rétt að nota orðið öðruvísi en í
hinni almennu merkingu þess? Sv. Þ.
Báðum þessum spurningum má vafa-
laust svara neitandi og skal viður-
kennt, að nokkurs misgánings hefir
gætt um notkun þessa orðs í frásögn,
sem nýlega birtist hér í blaðinu.
ÞÚR ættuð að reyna kolin og
koksið frá
Kolaverzlun
Sigurðar Olafssonar.
Simar 1360 og 1933.
122
William McLeod Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
123
um hvað við eigum að segja og hlust-
aðu nú á uppástungu mína: Við heyrð-
um lýsingu á Webb Barnett í útvarpinu.
Seinna komst ég að þeirri niðurstöðu,
að Taylor væri maður sá, sem lýst var
eftir og ætlaði að handtaka hann, en
hann sá hvað til stóð, sló mig í höfuð-
ið með byssuskeftinu og forðaði sér. Ef
þetta ekki nægilega sennilegt?
— Ég sé ekkert að því, samsinnti
Prescott.
— Steve ætti ekki að fara út í kvöld,
sagði Molly. — Hann gæti fengið kvef,
eða jafnvel lungnabólgu.
— Þú ert svei mér orðin umhyggju-
söm um hann, sagði faðir hennar háðs-
lega, — Þó þú hafir gefið þessum Bar-
nett tækifæri til að drepa hann, er hann
var að sleppa. En þetta er satt hjá þér,
og hlustaðu nú á mig, Steve. Ég legg á
Blakk og lít sjálfur í kring um mig í
þinn stað. Það verður ekki auðvelt að
sjá hvaða leið hann fór, því að piltarnir
hafa skilið eftir sig spor í allar áttir,
þegar þeir voru að huga að fénaðinum,
en ég skal gera hvað ég get.
— Þetta er mitt verk, Clint. Ég er
sýslumaður.
— Molly hefir hér á réttu að standa,
drengur minn, þú hefir ekkert að gera
út núna. Ég verð fulltrúi þinn í nótt og
ég held að mér sé óhætt að segja, að ég
geti rekið spor rétt eins vel og þú.
— Betur, sagði Walsh. — En það er
engin ástæða til-------
— Þá verður þú kyr. Er við höfum
komist að, ef hægt verður, hvert hann
heldur, þá dreg ég mig til baka, en þú
tekur við. Það er sú rétta leið.
Walsh vissi, að Prescott hafði þarna
á réttu að standa, höfuðhöggið gerði
hann valtan á fótunum.
— Jæja þá. Ég fer að hátta, en þú
lætur mig vita, ef þú verður einhvers
vísari, sagði hann.
Prescott fór inn til sín og klæddi sig.
Molly beið hans í anddyrinu, er hann
kom niður.
— Lof mér að koma með þér, pabbi,
bað hún.
Til hvers?
— Þú þarft að hafa einhvern með þér.
Piltarnir eru þreyttir og ég get ekki
sofið hvort sem er. Ég er of æst til þess.
Mér þætti gaman að koma með þér, og
ég gæti ef til vill orðið að liði.
Hann hélt að þetta stafaði af iðrun
hjá henni, og kenndi í brjósi um hana.
— Ertu vel klædd, spurði hann.
— Já.
— Jæja, kom þú þá. Þú getur snúið
heim, þegar þú ert orðin þreytt.
Prescott stakk á sig vasaljósi og síðan
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, því þá veit ég að kaff-
ið hressir míg
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
i BsFREYJA” ViKiÍoV •^CTBmHIWMWnwiHi
■„V- •■■■■ X 1,1,
KAFFiaÆTiíN^aaa
Húsnæði
tíl leigu
á Fríkirkjuveg 11.
Til sýnis kl. 2—4 þessa viku. —
Nánari upplýsingar í síma 1140.
‘GAMLA EÍÓ*
Heímþrá
Framúrskarandi vel leikin
ov efnismikil UFA-kvik-
mynd, gerð samkvæmt
hinu þekkta leikriti:
,,Heimat“ eftir Herman Su-
dermann.
Aðalhlutverkið leikur hin
fagra sænska söng- og leik-
kona
ZARAH LEANDER.
NÝJA BÍÓ-~°*~—
Daisy g’erist glettin
Amerísk skemmtimynd frá
Warner Bros., um kenjótta
dollaraprinsessu.
Aðalhlutverkin leika:
Bette Davis og
George Brent.
Hér kynnast hinir mörgu
aðdáendur þessarar frægu
leikkonu listhæfileikum
hennar frá nýrri hlið, því
hlutverk hennar hafa
hingað til verið alvarlegs
efnis, en hér leikur hún
gamansamt hlutverk af
mikilli snilld.
Aukamynd:
Talmyndafréttir
Karlakór Reykjavíkur
Söngstjóri: Sigurðup Þórbarson.
Samsöngur í Gamla Bió fimmtudaginn 6. þ. m. kl. 7.15l
Einsöngvari: STEFANO ISEANDI
Við bljóðfærið Guðríöur Guðmiindsdóttir.
Aðgöngumiðar verða seldir í hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga-
dóttur og Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Samsöngurinii verður ckki enclurtekinn.
Hraðferðír B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. —
M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á
Bifreiðastöð íslands, sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
Að röntgendeild
Landsspítalans
verður ráðinn fastur deildarlæknir frá 1. ágúst næstkomandi.
Mánaðarlaun kr. 600,00 hækkandi upp í kr.
700,00.
Umsóknir sendist fyrir lok þessa mánaðar.
Reykjavík, 1. júlí 1939.
Stjórnurncfnú ríhisspítulannu, Arnarhvoli.
Flskhöllin
Frá og með deginum í dag, flytjum við fiskverzlun
okkar í hin nýju húsakynni í Tryggvagötu 2 (á horni
Tryggvagötu og Norðurstígs — móti vélsm. Hamar h.f.).
Munum við sem áður hafa á boðstólum flestar tegundir
af nýjum fiski, þegar á sjó gefur, og alltaf fyrirliggjandi
hraðfrystur fiskur.
Væntum við þess, að neytendur virði viðleitni okkar
til að bæta meðferð og sölu á nýjum fiski í bænum, og láti
okkur njóta viðskiptanna, ekki síður en áður.
Virðingarfyllst,
Jón & Steingrímur
Sími 1240 (3 línur)
ÚTBREIÐIÐ TÍMANN
Tvöroyrar Boldfelag og Valur
keppa í kvöld kl. 8,30.
Nú er tækifærid að sjá Færeyjameístarana keppa
við íslands- og Reykjavíkurmeístarana.