Tíminn - 29.07.1939, Blaðsíða 4
348
TÍMlNiy, langardagiim 29» júlf 1939
87. blað
Yfir landamærín
1. Vísir heldur þvi réttilega fram í
gœr að það „sé varhugaverð og óvið-
eigandi, þegar íslenzkir stjórnmála-
flokkar sækja fé og ráðleggingar til
erlendra stjórnmájaflokka, og gefa
þannig tækifæri til íhlutunar um ís-
lenzk stjórnmál". Blaðið gleymir hins-
vegar að geta þess, að einn af yngri
fyrirliðum Sjálfstæðisflokksins, Gunn-
ar Thoroddsen, hefir fyrir skömmu síð-
an lagt til, að við ættum að tryggja
okkur vináttu Þjóðverja með því „að
fullnægja vissum skilyrðum um stjórn-
arfar vort innanlands". Slik stefna er
vissulega betur til þess fallin en nokkuð
annað, að gefa erlendum stórveldum
íhlutunarrétt um innlend mál.
2. Vísir ásakar Alþýðuflokkinn fyrir
samningamakk hans við kommúnista,
meðan Héðinn Valdemarsson var í
flokknum. En blaðið getur ekki um
annað samningamakk við kommúnista,
sem er mun yngra. Það er t. d. bæjar-
stjórakosningin í Neskaupstað, verk-
fallsrósturnar í Hafnarfirði síðastl. vet-
ur og atkvæðagreiðsla í Dagsbrún síð-
astliðið haust. Hverjir-unnu þá með
kommúnistum og í hvaða markmiði?
Vísir á ekki erfitt með að upplýsa það,
ef hann vantar ekki viljann.
3. Kommúnistablaðið spyr í gær,
hvað líði afnámi hálauna. Hefir það
sent fyrirspurn til h. f. Olíuverzlunar
íslands eða aðalbankastjóra Útvegs-
bankans?
4. Kommúnistablaðið segir, að Cham-
berlain sé „þarfasti þjónn“ fasista-
ríkjanna. Láti Pólland undan í Danzig-
deilunni, verði það honum að kenna.
Blaðið getur þess ekki, að Bretar hafa
lofað Pólverjum fullum stuðningi fyrir
löngu siðan en Rússar hafa enn ekki
heitið þeim neinni aðstoð. Vegna land-
fræðilegrar aðstöðu væri slíkt loforð
Rússa miklu meira virði fyrir Pólverja
en loforð Breta. Hefðu Pólverjar vissu
fyrir hjálp Rússa, myndu þeir. ekki
láta undan síga. Kommúnistablaðið
heggur því nærri vinum sínum, þegar
það fer að tala um „þarfasta þjóninn"
í þessum efnum.
x+y.
Erlend blöð skýra frá því, að
rúmlega 1000 Pólverjar hafi þeg-
ar lofað því, ef styrjöld brytist
út, að stýra eldsprengju, sem
skotið er á óvinaskip, en mað-
urinn sem stjórnar henni, deyr
vitanlega samstundis og hún
springur. Hafa þeir menn, sem
gefið hafa slíkt loforð, myndað
með sér félagsskap. Það var með
slíkum hœtti, sem Japanar
grönduðu fjölda rússneskra
skipa í striðinu 1905.
* * *
Enska þingið er stöðugt að
auka fjárveitingar til hermál-
anna. Á fjárlögum nœsta fjár-
hagsáirs er gert ráð fyrir að
verja 260 milj. sterlingspunda
til flughersins. Til samanburð-
ar má geta þess, að siðan 1918
hefir Lundúnarborg látið rifa
verstu fátœkrahverfin og byggja
ný hús fyrir 800 þús. íbúa. Allar
þessar framkvœmdir hafa kost-
að tœpar 130 milj. sterlings-
punda — eða meira en helmingi
minna en ríkið ver til flughers-
ins á einu ári. Slikt er brjálœði
vigbúnaðarins.
* * *
Sérkennilegur reipdráttur fór
nýlega fram í dýragarðinum í
Árhúsum í Danmörku. Börn sem
vógu samtals 1500 kg., tókust á
við fil, sem einnig vóg 1500 kg.
Börnin unnu allar þrjár loturn-
ar. Fíllinn var kvendýr, sem átti
kálf. í seinustu lotunni var kálf-
tlR BÆNUM
Messur á morgun:
í Dómkirkjunni kl. 11 árdegis, séra
Friðrik Hallgrímsson. í Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 5 síðdegis, séra Garðar
Þorsteinsson. í Laugarnesskóla kl. 2
síðdegis, séra Garðar Svavarsson.
Dráttarvextir
falla á fyrsta hluta útsvaranna (%)
um næstu mánaðamót.
Kvikmyndahúsin.
Gamla Bíó sýnir í fyrsta sinn í
kvöld ameríska mynd: Persneski nœt-
urgalinn. Er þetta gamanmynd með
nokkrum söng og hljómlist. — Nýja
Bíó sýnir spennandi „cowboy“-mynd,
sem nefnist: Hefnd Indiánanna.
íslandsmótið.
Annar kappleikur íslandsmótsins fer
fram annað kvöld og keppa þá Valur
og Fram.
Eitir norræna
heimsókn
(Framh. af 2. síðu)
að
alvöru, unz réttlætið fær
njóta sín líka í því máli.
Á þeim mannsaldri sem lið-
inn er síðan Stauning varð á-
hrifamikill maður í Danmörku,
hefir réttlæti og virðing fyrir
rétti nábúans vaxið meir á
Norðurlöndum en á öllum und-
angengnum árum, sem menn
hafa búið í norrænum löndum.
Og í þessari þróun aldarandans
hefir Stauning verið einn hinn
einlægasti brautryðjandi. ís-
lendingum munu jafnan verða
kærar heimsóknir hans. Þess
mun lengi minnst, að hann
gerist landnámsmaður í því að
móta ísland sem sumardvalar-
stað fyrir stjórnmálamenn úr
heimsborgunum. Hans mun þó
enn lengur minnst hér á landi,
sem hinn framsýna og tillögu-
góða stjórnmálamanns í Dan-
mörku, sem um langt árabil og
oft undir mjög erfiðum kring-
umstæðum hefir átt mikinn
þátt í að láta réttlæti en ekki
vald hins sterkara ráða í skipt-
um Dana og íslendinga. En
lengst af öllu munu íslendingar
minnast Staunings sem þess
manns, sem tók ungur forustu
í málum fátækustu og vanrækt-
ustu stéttar í Danmörku. Hann
gerðist baráttumaður í fylking-
arbrjósti í máleínum þessarar
stéttar. Og undir forustu hans
varð þessi stétt frjáls og sterk,
án þess að misbeita styrk sínum.
Með þessu langa og þýðingar-
mikla lífsstarfi hefir hann ó-
beðið gerst hollvinur íslendinga.
Þeir hafa tekið sér til fyrir-
myndar fordæmi hans. íslend-
ingar sækja líka fram til að ná
aftur fullu frelsi, og þeir hafa
hvorki löngun eða aðra aðstöðu
til að misbeita þeim sigrum, er
þeir kunna að vinna.
Norðurlandaþjóðirnar á meg-
inlandinu óttast stundum, að
einbúinn í Atlantshafi kunni að
urinn hafður fyrir framan
mömmuna svo hún sœkti heldur
þangað, sem hún líka gerði. En
það hjálpaði ekki — og börnin
unnu.
„Qnebeck6 minknr
Nokkux hreinræktuð Övre-Boe karldýr til sölu.
Sel einnig nokkur pör af Alaska bláref.
Helgi Ingvarsson,
Vífilsstöðum.
Tilkynniné
firá vinnuhælinu á Litla-Hrauni
Heimsóknartími til fanganna á vinnuhælinu er hér eftir
aðeins á sunnudögum kl. 13 til 15. Aldrei á öðrum tímum.
Símakvaðningum til fanga verður ekki sinnt.
Litla-Hrauni 29. júlí 1939.
Teitur Eyjólfsson
AdTÖrun
I»eir, sem eiga matvörur geymdar í fryst-
ingu h|á okkur, verða að vitja þeirra fyrir 15.
ágúst n. k.
Frystihúsið Herðubreíð
Fríkirkjuvegi 7.
VIDtækjarafgeyigr
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. SONNENCHEIN.
villast burtu frá frændum sín-
um. Sá ótti er tilefnislaus. Bönd
frændsemi og uppruna eru sterk
og raunar órjúfanleg. íslending-
ar finna vel, hve sterk eru
frændsemis- og menningar-
162
William McLeod. Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
163
forðar þú þér burt úr fylkinu. Hvað væri
sanngjarnara?
— Ég — ég ge-get ekki haldið þannig
áfram að dre-drepa hvern einasta lög-
gæzlumann, sem ég sé.
— Þetta er undir sjálfum þér komið,
ég hefi sagt þér hvernig það á að fara,
sagði Oakland skipandi.
— En-en hva-hvað um hinn mann-
inn?
— Hann tekur til fótanna þegar þú
hefir skotið Walsh. Kærðu þig kollótt-
an um hann. Heldurðu að snaps mundi
styrkja taugarnar, ha?
— Taugar mínar eru í góðu lagi, lags-
maður, sagði Taylor gortandi. Ef annað
hvort er að hrökkva eða stökkva, þá
stekk ég og sé um þennan náunga fyrir
þíg.
— Ekki fyrir mig, heldur fyrir þig
sjálfan, sagði Oakland og glotti slægð-
arlega.
— Jæja þá, hafðu það eins og þér
sýnist. Hann er hér að þvælast á sína
eigin ábyrgð. Það er ekki við mig að
sakast, ef hann vill endilega lenda í
illdeilum.
— Nei, sannarlega ekki, sagði Flanni-
gan og leit út undan sér á húsbónda
sinn. — Ég vissi það alltaf að þessi
Walsh kæmi þér ekki til að blikna.
Taylor einbeitti huga sínum til að
reyna að finna einhverja undankomu.
Hræðslan var nppgerð. Þeir myndu hafa
stöðugt auga á honum, en það var ekki
ómögulegt að eftirlitið yrði lélegra, ef
þeir héldu hann huglausan. Eina leið-
in var að gera þá nógu athugalausa,
svo að hann gæti gripið til örþrifaráða.
— Ég bað hann ekki að koma hingað
og elta mig, hélt Taylor áfram, og virt-
ist vera að brýna sig fyrir verknaðinn.
— Hann má vita það, að hann er ekki
á neinni skemmtigöngu. Það er ekki
hægt að saka mig um það þótt ég verji
mig.
— Ég hefði nú haldið það, sagði Flan-
nigan, um leið og hann losaði um
skammbyssu sína.
Oakland gekk aftur á bak út í horn,
tók annan riffilinn og athugaöi hvort
hann væri hlaðinn.
— Ég hitti hann áreiðanlega, hrópaði
Taylor og það var auðheyrt að hann var
æstur. — Það er úti um hann þennan
náunga, algerlega úti um hann.
Meðan hann sagði þetta var hann sem
óðast að reyna að finna einhver ráð.
Það gerði ekki til þó hann leitaði færis,
en ekki var útlitið gott. Það var þýðing-
arlaust að reyna að beina rifflinum að
þessum mönnum. Kúlurnar úr skamm-
byssunum yrðu lentar í heila hans, áð-
ur en hann gæti hreyft einn fingur.
böndin, sem tengja þá við Norð-
urlönd. En þeir kunna að meta
uppruna sinn og læra af langri
reynslu. Þeir vita að frelsið er
þeim jafn nauðsynlegt og lífs-
loftið heilbrigðum manni. En
eyjan hvíta liggur mitt í hinu
mikla úthafi. Evrópa er á aðra
hönd og Ameríka á hina. ís-
lenzka þjóðin mun á ókomnum
árum og öldum bæði kunna skil
á uppruna sínum og minnast
þeirra mörgu andlegu tengsla,
sem tengja hana við þau lönd,
sem landnámsmennirnir komu
frá. En íslendingar munu líka
minnast þess, að þeir fundu Vín-
land hið góða, og að það er ná-
búi þeirra í vesturátt. Yfir höfin
á báðar hendur munu íslending-
ar vilja tengja þúsund þræði
frelsis og gagnkvæmrar menn-
ingaráhrifa. J. J.
•GAMLA EÍÓ"
Persiieski
næturgalinn.
„Romance in the Dark“
Fjörug og létt Paramount-
gamanmynd, með söng og
hljómlist og hressandi
fyndni. — Aðalhlutverkin
leika:
JOHN BARRYMORE,
Metropolitan söngkonan
GLADYS SWARTHOUT
og JOHN BOLES.
Aukamynd:
SKIPPER SKRÆK
°~NÝJA BÍÓ——
Hefnd
Indíánanna.
Hrikalega spennandi og
æfintýramikil Cowboy-
mynd.
Aðalhlutverkið 1 e i k u r
Cowboykappinn
DICK FORAN og
PAULA STONE.
Aukamynd:
GLEÐITÓNAR
Amerísk músikmynd
Börn fá ekki aðgang.
Smásöluverð
á rafmagnsperum,
algeng'ustu g'erðuin.
VEDÐ PR. STYKKI:
Osram ítalskar
Perustterð: kr. kr.
25 Hekalumen eða minni 1.10
25 watt eða minni 1.10 0.95
40 Dlm 1.40
40 watt 1.40 1.25
60 watt 1.75 1.55
65 Dlm 1.75
75 watt 2.20 1.95
100 watt 3.00 2.35
100 Hlm 2.20
125 Dlm 3.00
150 Dlm 3.30
950 watt 4.40 3.40
M © e watt 6.00 4.50
300 watt 8.00 6.20
Raitækjaeinkasala ríkisins.
Flngsýning.
Svifflutifélay íslands efnir til fluysýninti-
ingar tí Sandskeiði n. k. sunnudati kl. 4 e. h.
M$öfi fjölbretitt dayskrá.
Töfrandi sviffluy oq tauyaœsándi listflug
að mestu leyti framkvtemt af íslenzkum
flufimönnum.
Komið tímanlefia. Ferðir frá flestum
bílastöðvum btejarins.
VEÍTMGAR A STAÐWM.
NORRUR SILFIJRREFAPöK
af góðu kyni, til sölu hjá refabúinu „Feldur“ á Sturlureykjum.
Upplýsingar gefur
Jón Hannesson, Deildartuntiu.
Notaða en viðgerða mótora af ýmsum gerðum, frá
tveggja til 30 hestafla, tilbúna til notkunar á sjó eða
landi, vil ég selja.
AXEL BJÖRNSSON, Framnesvegi 6 B,
Reykjavík. — Sími 4396.
I. s. I.
K. R. R.
/
Islandsmótið og landsmót 1. ilokks
heldur áfiram á morgun
Ísfirðingar og K. R. 1. flokkur
keppa kl. 7.
I
Frain og Valur meistaraflokkar
keppa kl. 8,45.
Tveír leíkir - eítt verð