Tíminn - 10.08.1939, Qupperneq 3
91. blatS
TlMlM, flmmtadagiim 10. ágúst 1939
363
ÍÞRÓTTIR
Draugeyjarsund.
Sundkappinn Haukur Einars-
son frá Miðdal synti síðastliðinn
sunnudag Drangeyjarsund, úr
eyjunni til lands á Reykja-
Haukur Einarsson
strönd. Er það átta kílómetra
leið og var Haukur 3 klukku-
stundir og 20 mínútur á sundi.
Erlingur Pálsson og Pétur Eiríks-
son hafa áður synt þessa leið og
var Haukur röskri klukkustund
fljótari en hinn fyrnefndi og
tveim stundum fljótari en sá
síðarnefndi.
Haukur lagði af stað úr eyj-
unni klukkan sjö síðdegis í góðu
veðri, en nokkurri ylgju í sjó.
Sjávarhiti var 8 stig, en lofthiti
10 stig. Synti hann bringusund
alla leið og neytti einskis. Er til
lands kom, gekk hann hjálpar-
laust til laugar að Reykjum, þar
sem hann tók land, og laugaði
sig þar. Er hann hafði þegið
veitingar að Reykjum, hélt hann
áfram ferð sinni um nóttina til
Sauðárkróks.
Haukur kom hingað til bæj-
arins í fyrrakvöld úr hinni
frækilegu för sinni.
Haukur hefir tvívegis áður í
sumar innt sundafrek af hönd-
um, synt bæði Viðeyjarsund og
Engeyjarsund.
tþróttamót
við Mcðalfellsvatn.
Ungmennafélögin Drengur í
Kjós og Afturelding í Mosfells-
sveit hafa um margra ára skeið
efnt til sameiginlegra íþrótta-
móta. Eru mót þessi haldin til
skiptis i Kjós og í Mosfellssveit.
í sumar var íþróttamót þetta
IIEIMILIÐ
Dafið tómatana
í lieiðri.
Ræktun margvíslegra nytj a-
plantna í gróðurhúsum hefir
aukizt stórkostlega hin síðustu
ár, tvö eða þrjú. Að sama skapi
hefir grænmeti það og ávextir,
sem framleiddir eru í gróður-
húsunum, orðið vinsæl neyzlu-
vara.
Ein af aðal framleiðsluvör-
unum úr gróðurhúsunum eru
tómatarnir og sennilega sú,
sem mestri almenningshylli
hefir náð. Nú er svo komið, að
mörg húsmóðirin telur sig alls
ekki geta án tómata verið; þeir
þurfi jafnan að vera á matborð-
inu, svo lengi sem þeir eru fá-
anlegir. Einn af leyndardómum
tómatanna er nefnilega sá, að
hver, sem neytir þeirra, verður
því sólgnari í þá, sem hann
bragðar þá oftar.
Skoðunum fræðimanna og því
áliti, sem myndazt hefir meðal
fjöldans, ber vel saman, og vís-
haldið við Meðalfellsvatn síð-
astliðinn sunnudag, í fyrsta
skipti á þeim st^ð. Áður hefir
það verið haldið í Kjósinni á
Hvalfjarðareyri og í Fauskanesi,
skammt 'þaðan sem Bugða renn-
ur í Laxá.
íþróttamótið var allfjölsótt,
en veður þó ekki sem hagstæð-
ast, skúraleiðingar fyrra hluta
dags. Úrslit mótsins urðu þau,
að Mosfellssveitarmenn sigruðu.
í hinum einstöku íþróttagrein-
um urðu sigurvegarar þeir, er
hér segir:
í 100 metra spretthlaupi varð
fyrstur Janus Eiríksson í Ós-
koti (Afturelding) á 11.5 sek.
í 3200 metra þolhlaupi varð
hlutskarpastur Sigurjón Jóns-
son á Hvítanesi (Drengur) á
10 mín. 54 sek.
í spjótkasti sigraði Njáll Guð-
mundsson í Miðdal (Drengur)
og kastaði hann 40,5 metra.
í langstökki var beztur Karl
Jónsson bifreiðarstjóri (Aftur-
elding), stökk 5,91 metra.
í hástökki vann Janus Eiríks-
son í Óskoti (Afturelding),
stökk 1.45 metra.
50 metra sund, frjáls aðferð,
var þreytt í Meðalfellsvatni og
sigraði Pétur Sigurjónsson á
Álafossi (Afturelding) á 34 sek.
íslenzk glíma var háð og voru
þátttakendur fimm alls, fjórir
úr Kjós og einn úr Mosfellssveit.
Sigurvegari varð Njáll Guð-
mundsson í Miðdal (Drengur).
Bar hann sigurorð af hinum
keppendunum öllum fjórum.
Að íþróttakeppninni lokinni
hófst dans á palli.
inginn var 19 ára gamall stúd-
ent, austurriskur ríkisborgari,
en hafði haft samband við áróð-
urstofnun í Serbíu og fengið
þaðan vopn.
Það upplýstist strax, að serb-
neska ríkisstjórnin hafði ekki á
neinn hátt stutt áróðurstarf-
semi þá, sem ógnaði austur-
rísku ríkisheildinni. En utan-
rikisráðherra Austurríkis,.
Berchtold greifi, taldi að þetta
væri tækifæri, sem ekki mætti
láta sér úr greipum ganga, til
að kveða niður sjálfstæðisvakn-
ingu hinna undirokuðu Slafa.
Hann skýrði þýzku stjórninni
frá þessari skoðun sinni og hún
féllst á hana, án þess að fá
nánari grein fyrir því, hvernig
Berchtold ætlaði að koma henni
í framkvæmd. Jafnframt lofaði
þýzka stjórnin að hjálpa Aust-
urríki, ef til styrjaldar kæmi
milli þess og Rússlands út af
þessum málum, en allar líkur
mæltu með því, að Rússar
myndu hjálpa Serbíu eftir
eftir megni, þar sem hún var
bezti bandamaður þess í Balk-
anmálunum.
Eftir að Austurríki hafði
tryggt sér þessa aðstoð Þjóð-
verja rak hver stórviðburðurinn
annan:
Þann 24. júlí setur Austurríki
Serbiu úrslitakosti, þar sem m.
a. var fyrirmælt, að Serbía
skyldi banna allan áróður fyrir
auknu sjálfstæði Slafa, reka alla
embættismenn frá embætum,
sem hefðu tekið þátt í þessum
áróðri, og veita austurrískum
embættismönnum leyfi til að
rannsaka þessi mál. Svar skyldi
koma innan 48 klst. — 25. júlí
svarar Serbia og fellst á allar
kröfurnar, sem ekki gengu í
bága við sjálfstæði hennar, enda
höfðu Rússar og Frakkar hvatt
hana til ítrustu undanlátssemi.
Strax og austurríski sendiherr-
ann í Belgrad fékk svarið, fór
hann heimleiðis. Um kvöldið var
tilkynnt hervæðing bæði í Ser-
bíu og Austurríki. — 26. júlí
lagði enska stjórnin til að Eng-
land, Frakkland og Ítalía reyndu
að miðla málum, en því var
hafnað af austurrísku stjórn-
inni. — 27. júlí bað enski utan-
ríkisráðherrann þýzku stjórnina
að reyna að miðla málum. —
28. júlí tilkynnti Austurríki—
Ungverjaland Serbíu stríð. — 29.
júlí tilkynnti enski utanríkis-
ráðherrann þýzku stjórninni, að
England myndi verða hlutlaust,
ef Frakkland drægist ekki inn í
ófriðinn. Sama dag hófst her-
væðing í Rússlandi. — 30. júlí
bauð rússneska stjórnin þýzku
stjórninni að hætta hervæðing-
unni, ef Austurriki vildi falla
frá þeim kröfum, sem brytu í
bága við sjálfstæði Serbíu. — 31.
júlí sendi rússneska stjórnin
þýzku stjórninni nýtt tilboð, en
fékk það svar, að Þjóðverjar
myndu fyrirskipa hervæðingu,
ef Rússar hefðu ekki hætt her-
væðingu sinni innan 12 klst. —
Jafnframt sendi þýzka stjórnin
fyrirspurn til Frakklands þess
efnis, hvort það myndi verða
hlutlaust í þýzk-rússnesku
stríði, og var óskað eftir svari
innan 18 klst. Sama dag spurði
enska stjórnin stjórnir Þýzka-
lands og Frakklands, hvort þær
indamenn reikna hollustu þeirra
með tölum, er sýna bætiefna-
auðgi þeirra. Meðal neytend-
anna sjálfra hefir myndazt nýr
málsháttur um tómatana, er
segir: Einn tómati á dag kem-
ur heilsunni í lag.
Nú stendur yfir sá tími árs-
ins, þegar tómatar eru ódýr-
astir. Mun sala á þeim hafa
náð hámarki sínu tvær síðast-
liðnar vikur. En innan skamms
tíma munu tómatarnir stíga
nokkuð í verði að nýju, vegna
minnkandi framboðs, þegar
lengra líður á sumarið.
En svo mikill kjörréttur sem
tómatarnir eru nýir, eru þó
grænir, niðursoðnir tomatar
ennþá meira sælgæti. Hver ein-
asta húsmóðir, sem aðstöðu hef-
ir til þess og ráð á því, ætti að
sjóða niður græna tómata til
heimilisnotkunar í vetur. Það,
sem til þess þarf, er alls ekki
dýrt, miðað við það að kaupa
hliðstæðar sultur og bætivörur
tilbúnar í verzlunarbúðunum.
Langflestir munu eiga greiðan
aðgang að leiðbeiningum um
niðursuðuna, svo að vankunn-
áttu í því mun baga fáum. Jóh.
Berin.
í sumar er víðast hvar meira
um bláber heldur en verið hefir
um margra ára skeið. Víða má
sjá miklar lyngbreiður þaktar
skærbláum og þroskavænum
bláberjum. Sólskinið og veður-
blíðan í sumar hefir veitt þeim
vænleg vaxtarskilyrði. Verði
hins vegar mikið um rigningar
seinni hluta sumarsins, eins og
margir óttast, eftir svo óvenju-
leg þurrviðri, má búast við, að
bláberin meyrni snemma og þoli
önnur veðrabrigði að sama
skapi illa.
Hér í blaðinu var fyrir nokkru
bent á, hvílík ógrynni berja ó-
nýttust hér á ári hverju, enda
þótt þau séu eitt hið mesta
lostæti, sem vex úr íslenzkri
mold, og íslendingum alveg tví-
mælalaust miklu hollari og
vænlegri til þrifa heldur en á-
vextir, er fluttir eru að frá öðr-
um löndum. Einnig fjárhags-
atriði að tína ber í saft og sultu
til heimaþarfa að minnsta kosti,
auk þess sem auðvelt er að selja
góða berjasaft og berjasultu
sæmilegu verðí. Ný bláber og
aðalbláber er hægt að selja
nokkrum verzlunum hér í
Reykjavík og hafa þau verið
keypt inn á kr, 2.50 hvert kíló-
gramm. Að sjálfsögðu þuífa
berin að vera hreinlega tínd.
Vitanlega getur þetta verð rask-
ast nokkuð, eftir því hve mikið
framboð er á þeim, en sam-
kvæmt upplýsingum, sem verzl-
anirnar hafa gefið, kemur tæp-
ast til þess, að það verði lægra
en kr. 2.00 hvert kílógramm.
Krækiber er hins vegar örðugt
að selja á þenna hátt. Jóh.
Austur að Laugarvatni
alla þriðjudaga kl. 5 e. h.
alla fimmtudaga kl. 5 e. h.
alla laugardaga kl. 3 e. h.
Frá Laugarvatni:
alla sunnudaga kl. 7,30 e. h.
alla miðvikudaga kl. 10 f. h.
alla föstudaga kl. 10 f. h.
Til Geysis i Haukadal alla
virka daga.
BIFREIÐASTÖÐIN GEYSIR
Sími 1633.
Sígurður Ólason &
Egíll Sígurgeírsson
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 3. Sími 1712.
Kopar
keyptur í Landssmiðjunni.
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, því þá veit ég að kaff-
ið hressir mig
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
Oddf ellowhúsið
Hraðlerðír B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. —
M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiðslan í Reykjavfk á
Bifreiðastöð íslands, sími 1540.
Bifrctðastöð Aknreyrar.
Húðir og skinn.
Ef bændnr nota ekki Éil eigin þarfa allar
HÉÐIR oS SKINW, scm falla til á heimilum
þeirra, ættn þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt
að koma þessnm vörnm í verð. — SAMBAIVD
tSL. SAMVKWIJFÉLAGA selnr IVAIJTGRIPA-
HÚÐIR, HROSSHÉÐIR, KÁLFSKEVN, LAMB-
SKIM og SELSKEVN tU útlanda OG KAIIPIR
ÞESSAR VÖRIJF TEL StTLNAR. - NAUT-
GRIPAHÉÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN
er bezt að salta, en gera verðnr það strax að
lokinni slátrun. Flánfngn verðnr að vanda
sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af sklnn-
nnnm, bæði úr holdrosa og hári, áðnr en salt-
að er. Góð og hreinlcg meðferð, á þessnm
vörum sem öðrnm, borgar sig.
Böknnardropar
Á, V, R,
Rommdropar
Vanilludropar
Citrondropar
Möndludropar
Cardemommudropar
Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi.
Öll glös eru með áskrúfaðri hettu.
Aíengísverzlun ríkisins.
ÞÉR ættuð að reyna kolin og
Innheimtumenn!
myndu virða hlutleysi Belgíu.
Franska stjórnin svaraði ját-
andi, en þýzka stjórnin óákveðið.
í Belgíu var hernum fyrirskipað
sama dag að vera viðbúinn til
varnar. — 1. ágúst var fyrirskip-
uð hervæðing í Þýzkalandi og
Frakklandi og sama dag fóru
þýzkar hersveitir inn í Luxem-
burg og var það fyrsta árásin í
styrjöldinni. Sama dag, kl. 12.52,
sagði Þýzkaland Rússlandi stríð
á hendur. Sama dag svöruðu
Frakkar áðurgreindri fyrirspurn
Þjóðverja á þá leið, að þeir
myndu „taka ákvarðanir í sam-
ræmi við hagsmuni sína“. — 2.
ágúst sögðu Þjóðverjar Belgíu
stríð á hendur, eftir að hún
hafði neitað þeim að fara með
her yfir landið, þar sem það
bryti í bág við hlutleysi sitt. —
3. ágúst sögðu Þjóðverjar Frökk-
um stríð á hendur. — 4. ágúst
fóru fyrstu þýzku hersveitirnar
yfir landamæri Belgiu og sama
dag sagði England Þýzkalandi
stríð á hendur.
Styrjöldin rnikla var byrjuð.
Miljónir manna höfðu verið
kvaddir frá vinnu sinni í sveit, í
verksmiðjum og skrifstofum —
og sendir til herbúðanna. Um
miðjan ágúst var talið að mið-
veldin hefðu 3,4 miljónir manna
undir vopnum, en Bandamenn
5,7 milj. Allir vonuðust eftir að.
vera komnir heim aftur innan
skamms tíma. Þær vonir rættust
ekki. Frh.
Þ. Þ.
Útbreiðiö TlMANN
s e 1 u r:
EINSTAKAR
MÁLTÍÐIR.
MÁNAÐARFÆÐI.
VIKUFÆÐI.
— Spyrjið um verð.
koksið frá
Kolaverzlnn
Sigurðar Ölafssonar.
Símar 1360 og 1933.
Útbreiöið TÍMAIVN
Vinnið ötullega að innheimtu
:jg útbreiðslu Tímans í ykkar
sveit. Svarið fljótt bréfum frá
nnheimtu blaðsins í Reykjavik,
ig gerið skil til hennar svo fljótt
sem möguleikar leyfa. Tíminn
er ódýrasta blaðið, sem gefið er
út á íslandi.
180 William McLeod Raine:
bar svip þess manns, sem lifað hefir
langt frá menningunni og rutt sér braut
af eigin rammleik, þrátt fyrir óróa og
villimennsku umhverfisins.
— Góðan dag, piltar, sagði sá eldri. —
Hafið þið séð reiðmann hér á ferð?
Sterklegur náungi, um þrítugt, gráeygur
og heldur snotur.
Sá.langleiti starði á hann. Báðir þessir
ókunnu menn voru vopnaðir rifflum, og
það gaf skýringuna.
— Hann hvarf þarna fyrir hæðina fyr-
ir fáum mínútum síðan.
Strákurinn rak upp óp.
Einn kúrekanna studdi höndunum á
réttarvegginn og spurði:
— Hver er hann?
— Hann er glæpamaður, sem lýst hefir
verið eftir og við erum að elta hann,
svaraði eldri leitarmaðurinn.
— Ert þú sýslumaður?
— Nei, hann særði sýslumanninn okk-
ar, Steve Walsh, hefir ef til vill drepið
hann. Ég er Clint Prescott frá Quarter
Circle XY og þetta er Bob sonur minn.
Langleiti maðurinn hafði aftur orð
fyrir kúrekunum.
— Ef við hefðum bara vitað þetta! Ég
býst þó varla við að við hefðum samt get-
að stöðvað hann vopnlausir. Hvað hefir
hann gert annað en að særa Walsh?
— Hann framdi bankarán 1 Texas og
Flóttamaðurinn frá Texas 177
XY. Þá var mál til komið að hann færi.
Hann stökk á bak og reið út í rökkrið.
Hann fylgdi læknum góðan spöl, til
þess að verða síður séður. Það virtist
ólíklegt að honum yrði þegar veitt eftir-
för. Prescott myndi meta meira að
hjálpa Walsh. En Taylor vissi að fréttin
frá Sjömílnakofanum yrði send svo
fljótt, sem unnt væri, til Tincup og
Meridian. Ef síminn var kominn i samt
lag aftur, vissu þetta allir löggæzlu-
menn innan hundrað mílna. Leitar-
sveitir myndu slá hring um hann og
hann yrði klófestur þegar á næsta sól-
arhring.
Taylor hafði ekki lengur neina von
um að sleppa, en hann hélt áfram,
vegna þess að hann vildi ekki gefast
upp. Skrítið hvernig sagan endurtekur
sig. Eftir slysið í Somerton hafði hann
verið særður og síðan eltur þúsundir
mílna. Nú lagði hann af stað aftur,
aftur var hann særður, sakaður um
nýtt morð og nýir löggæzlumenn á hæl-
um hans.
Hann vildi hvorki fara til Tincup né
Meridian, fremur en í fyrra sinnið, er
hann slapp frá Walsh. Honum virtist
ennþá, að ef undankomu væri von, þá
myndi það helzt með því að halda í suð-
ur og vestur.
Næturstaður hans var á árbakka.