Tíminn - 10.08.1939, Page 4
364
TÍMIM, fiiiimtwdagiim 10. ágást 1939
91. blað
Yfir landamærin
1. Mbl. segir á sunnudaginn „að al-
menningur vilj i fyrst og fremst að
rétt og satt sé skýrt frá.“ I sömu grein-
inni skýrir blaðið frá því, að það sé
mikill munur á því, þótt innflutningur
nauðsynjavara sé ekki takmarkaður,
hvort þær séu á „frílista" eða ekki!
Það sé miklu betra að hafa þær á
frílista, því þá „notist betur viðleitni
manna til að kaupa vörurnar inn í
landið fyrir sem hagkvæmast verð“.
Blaðið getur hinsvegar ekki skýrt það,
hversvegna þessi viðleitni notist bet-
ur, enda er það ekki hægt, því að að-
staðan til innkaupa er hin sama í
báðum tilfellum. Þessi ummæli blaðs-
ins eru því hreinasta blekking og
sýnir hve lítið það virðir þann vilja
almennings í verki, „að skýra rétt og
satt frá“.
2. Árni frá Múla er að barma sér
yfir því í Vísi í gær, að Eysteinn Jóns-
son hafi skýrt frá því í á Hrafnagils-
hátíðinni í vor, að kommúnistar hafi
reynt að semja við lakari hluta íhalds-
ins í vetur og orðið nokkuð ágengt. Ef
Árna finnst ástæða til að skammast
sín fyrir slíka samvinnu á hann að
beina gremju sinni til sjálfs sín og
nokkurra flokksmanna sinna, en ekki
til Eysteins Jónssonar. En að þræta
fyrir þetta ætti hann að gera sízt af
öllu. Bæjarstjórnarkosningin í Nes-
kaupstað, brottreksturinn og ólöglega
verkfallið í Hafnarfirði í vetur og
hvatning Mbl. og Vísis til Sjálfstæðis-
verkamanna um að greiða atkvæði með
kommúnistum í Dagsbrúnaratkvæða-
greiðslunni síðastliðið haust er í svo
fersku minni að öll mótmæli eru þýð-
ingarlaus.
3. Halldór Kiljan Laxness skrifar
skrítna grein í kommúnistablaðið á
sunnudaginn. Hann segir að íslending-
ar ættu að fagna yfir þegnréttindum
í Danmörku, vegna þess að Danir séu
ríkari og stærri þjóð en við. Finnst
honum, að ástæða væri til fyrir Dani
að fagna yfir þegnrétti í Þýzkalandi,
ef Þjóðverjar nytu gagnkvæmra rétt-
inda í Danmörku?
4. Kiljan heimskar sig jafnframt á
því, að éta upp dylgjur kommúnista-
blaðsins um þýzku kafbátana og
Stauning. Sé hægt að segja, að „varg-
ar dansk-íslenzkrar samvinnu hafi
verið að verki“ þá eru það Halldór
Kiljan og sá ritstjóri kommúnista-
blaðsins, sem reyndi að koma þessari
Gróusögu á loft. x+y.
Verzlunarjofnuður-
ínn óhagstæður um
11,1 míllj. kr.
Samkvæmt bráðabirgðayfir-
liti Hagstofunar nam innflutn-
ingur orðið í lok seinasta mán-
aðar 36.6 milj. kr., en útflutn-
ingur 25.1 milj. kr. Verzlunar-
jöfnuðurinn hefir því verið ó-
hagstæður um 11.1 milj. kr. um
mánaðamótin.
Á sama tíma í fyrra nam inn-
flutningurinn 30.9 milj. kr. og
útflutningurinn 22.7 milj. Verzl-
unarjöfnuðurinn hefir þá verið
óhagstæður um 8.2 milj. kr.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
I Reykjavík
er á Lindargötu 1 D
Framsóknarmenn utan af landi, sem
koma til Reykjavíkur, ættu alltaf að
koma á skrifstofuna, þegar þeir geta
komið þvi við. Það er nauðsynlegt
fyrir flokksstarfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði að hafa
samband við sem flesta flokksmenn
utan af landi.
tJR BÆNIJM
Knattspyrnufélagið Valur
heldur kveðjusamsæti fyrir hinn
enska þjálfara sinn, J. Divine, í Odd-
fellow-húsinu á laugardaginn. Sam-
sætið hefst klukkan 9 síðdegis.
Landsmót
fyrsta flokks knattspyrnumanna hélt
áfram í gærkvöldi. Kepptu Víkingur og
K. R. og Fram og Valur. Sigraði K. R.
Víking með 4:0 og Valur Fram með
7:0. Isfirðingarnir, sem þátt tóku I
mótinu, hafa þar með sigrað og unnið
bikar þann, er um var keppt.
Knattspyrnukappleikur
verður háður í kvöld milli meistara-
flokka Vals og K. R. Hefst hann klukk-
an 8,30.
Hauki Einarssyni,
er síðastliðinn sunnudag synti
Drangeyjarsund, sömu leið og ætla má
að Grettir hafi synt forðum, svo sem
skýrt er frá á öðrum stað í blaðinu,
var haldið kaffisamsæti í K.R.-húsinu
í gærkvöldi. Voru þar ræður fluttar og
honum fagnað hið bezta og þökkuð
sundraun þessi. — Haukur er prentari
og vinnur í prentsmiðjunni Eddu h.f.,
þrjátíu ára að aldri.
Happdrætti háskólans.
í dag verður dregið í sjötta flokki
happdrættisins. Vinningarnir eru alls
350 og er hinn hæsti þeirra 15 þús. kr.
að upphæð.
Úr íslenzk-danska
sáttmálasjóðnum
verða í ár veittir styrkir, er nema
20 þúsundum króna. Umsóknir um
styrkinn á að senda stjórn sjóðsins i
síðasta iagi fyrir lok ágústmánaðar.
í frásögn
af íþróttamótinu við Meðalfellsvatn
í Kjós síðastliðinn sunnudag hefir í
nokkrum hluta upplagsins misprent-
azt tími Sigurjóns Jónssonar á Hvíta-
nesi, en hann var sigurvegari í 3200
metra þolhlaupinu. Hann rann þessa
vegalengd á 10 mín. 40 sek. (ekki 10
mín. 54 sek. eins og misprentazt hefir).
Ýmsar íréttir.
(Framh. af 1. síðu)
ar og hermenn voru nýlega flutt-
ir frá Póllandi til Frakklands.
Flýðu þeir til Póllands, þegar
Þjóðverjar réðust inn í Tékkó-
slóvakíu. Margir tékkneskir her-
menn og liðsforingjar hafa áður
farið til Frakklands. Er ætlunin
að Tékkar myndi sérstaka
herdeild í franska hernum. Slík-
ar herdeildir mynduðu Tékkar
í Rússlandi og Frakklandi á
styrjaldarárunum og voru þeir
undirstaða tékkneska hersins,
þegar Tékkar fengu sjálfstæðið.
Daily Telegraph skýrir nýlega
frá því, að tveir tékkneskir her-
menn hafi fyrir nokkru verið með
þýzkum hermönnum í æfingum,
sem fóru fram við pólsku landa-
mærin. Áttu þeir að leiðbeina
við notkun tékkneskra vélbyssa.
Þýzka liðsforingjanum mislík-
aði þá eitthvað við annan tékk-
neska hermanninn, barði hann
í andlitið og skaut hann síðan,
þegar hann snérist til varnar.
Hinn tékkneski hermaðurinn
komst þá að einni vélbyssunni
og beindi henni gegn þýzku her-
mönnunum. Hafði hann drepið
27 þýzka hermenn áður en hann
var stöðvaður. Reynt hefir verið
að halda þessum atburði leynd-
um..
l in innhelmtu
Tímans.
(Framh. af 2. siðu)
blað, sem selt er í sveitum lands-
ins, en þó ódýr. Vegna þessa
ættu að minnsta kosti allir
Framsóknarmenn að kaupa
blaðið og borga það skilvíslega.
Á næsta nýári endar annar á-
fanginn í innheimtustarfinu.
Það veltur mikið á innheimtu-
mönnum glaðsins í sveitunum,
og jafnframt öllum Framsókn-
armönnum, hvort árangurinn
af innheimtunni í ár verður
eins góður og helzt yrði á kosið.
Að því eiga allir Tímamenn að
vinna sameiginlega. E. B.
Héraðsskólinn að Reykjum
í Hrútafirði
starlar Irá veturnóttum til
sumarmála. — Dvalarkostnaður
kr. 350,00 -400,00 yíir skólatímann.
Dagfæði pilta sl. vetur var kr. 1,37,
stúlkna kr. 1,23. — Skólinn hefst
28. október. — IJmsóknir sendist
undirrituðum fyrir 25. september.
Reykjaskóla, 10. ágúst 1939.
(iillðlIllllHÍlll' CMlSlaSOll, skólastjóri.
Svifflugiiámskeið.
(Framh. a) 2. síðu)
framt á þriggja vikna svifflug-
námskeiði.
Umsögn sinni um samanburð
á svifflugíþróttinni og öðrum í-
þróttum, lauk Fritz Schauerte
með þessum orðum:
„Enginn maður kemst í jafn
náin kynni við náttúruöflin og
svifflugmaðurinn.“
Á krossgötum.
(Framli. af 1. síðu)
ir vélbátar með 2—4 manna bátshöfn,
og höfðu af því góðar tekjur. í sumar
stunda allmargir bátar kolaveiðar í
firðinum og' eru þeir bæði frá Flat-
eyri og úr sveitinni. Afli er yfirleitt
lakari en í fyrra. Kolinn er flakaður
og frystur í hraðfrystihúsinu á Flat-
eyri.
Vegna vaxandi fyrirspurna um hvort endurtekið verði
tilboð mitt um fjölbreytt heimilisbókasafn fyrir 10 kr., að
viðbættu einnar krónu burðargjaldi, vil ég enn gefa
mönnum kost á slíkum kjörum:
Steingrímur Thorsteinsson: Ljóöaþ. I. með mynd (208 bls.) og Ljóðaþ. II.
með mynd (58). Sawitri II. útg. með mynd (64). Sagan af Kalaf og keisara-
dótturinni kínversku (64). Eftir Axel Thorsteinsson: Börn dalannal.—//.(198),
/ leikslok, sögur úr heimstyrjöldinni 1.—2. útg. (148). / leikslok II. b. (58), Heim
er haustar, og nokkrar smásögur aörar (96). Dokað við í Hrunamannahreppi og
Hannibal og Dúna (76). Greifinn frá Monte Christo I. b. (128), II. b. (164, III.
(192), IV. (176), — ftalskar smásögur I. (120). ítalskar smásögur II. (80
Ævintýri og smásögur með myndum (64). — Einstœðingur, hin ágæta saga
Margaret Pedler (504 bls.) og Ástarþrá, eftir sama höf. (354), líka falleg og
skemmtileg saga. Loks: Árgangur af Rökkri (heilir árg.) um 700 bls. — Hefir
nokkur boðið yður betri kjör? Hér er einstakt tækifæri til þess að eignast
fyrir lítið verð margar skemmtilegar bækur, sem hlotið hafa vinsældir almenn-
ings í landinu. (Athugið, að margar af þeim bókum, sem ég hefi auglýst í til-
boðum mínum undanfarin ár, eru nú uppseldar. Notið því tækifærið fyrr en
seinna. Bækurnar eru þess verðar, að eiga og geyma og meðal þeirra eru engin
rit hálffull af auglýsingum. Flestar bækurnar eru settar með drjúgu letri og
flestar í sama broti og Eimreiðin og Iðunn og gefur blaðsíðufjöldinn, þótt
mikili sé, ekki fulla hugmynd um hvert kostaboð hér er um að ræða. Rit Stgr.
Th. eru sígild listaverk. — Pantendur sendi meðf. auglýsingu og 11 kr. (ein
króna má vera í frímerkjum) í ábyrgðarbréfi (sendið ekki peninga í almennu
bréfi) — eða póstávísun og nægir að skrifa aftan á afklippinginn: Sendið
mér bækurnar samkv. tilb. Tímans þ. 10 ágúst 1939. Það er ódýrast að senda
peninga þannig og tryggt, en biðjið ávallt um kvittun fyrir póstávísun og
ábyrgðarbréf, til þess að fá leiðrétingu, ef nokkur vanskil verða.
Virðingarfyllst.
AXEL THORSTEINSSON.
Sími 4558 Sellandstíg 1, niðri. Heima 7—9 síðd.
“—~~GAMLA BÍÓ
Samkeppni
siálsmidjarana
Afar spennandi mynd um
ægilega samkeppni milli
verksmiðja vestan hafs. —
Myndin er gerð eftir sög-
unni „BIG“, eftir Oven
Francis.
Aðalhlutv. leikur:
VICTOR MCLAGLEN.
Myndin bönnuð börn-
um innan 14 ára.
nýja bíó——
Gull og jörð
Söguleg stórmynd frá
Warner Bros, gerð eftir
hinni frægu sögu Clements
Ripley.
Aðalhlutv. leika:
GEORGE BRENT,
OLIVA DE HAVILLAND, f
CLAUDE RAINS o. fl. ,
Börn fá ekki aðgang. I
Auglýsing
um takmörkun umferðar og
umferðarmerki í Reykjavík.
Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur, er
akstur hvers kyns ökutækja, svo sem bifreiða, reiðhjóla
og hestvagna bannaður um Austurstræti frá vestri til
austurs.
Þá er og einnig samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar
auk þess, sem áður hefir verið ákveðið, bannaður allur
akstur bifreiða (þar á meðal bifhjóla) um Veltusund
milli Hafnarstrætis og Austurstrætis, um Bjarkargötu
NB. — Notið þetta óvenjulega tækifæri fyrr en seinna, því að upplög bókanna í^á Tjörninni í attina að SkothÚSVegÍ, Og Um LÍljugÖtu
„Börn dalanna" og „Einstæðingur" þrjóta fyrirsjáanlega á yfirstandandi ári. Laufásvegi í áttina að Hringbraut.
Til leígu
eru 6 herbergi auk eldhúss og
baðherbergis frá 1. okt. n. k. í
Túngötu 5, til íbúðar eða fyrir
skrifstofur.
Magnús Mattliíasson.
Símar 3532 og 2724.
Fiiuleikaflokkai*
Ármanns.
(Framh. af 1. síðu)
fyrir mikla fjölbreytni í stað-
æfingum, meiri æfingar á slá og
stökk en aðrir fimleikaflokkar,
mjúkan stil og ákveðinn. Taka
sum blöð í föðurlandi hins
fræga Bukhs svo djúpt í árina,
að karlaflokkur Ármanns hafi
í Tivoli gert sumar æfingar
fallegar og betur en flokkar
Bukhs sjálfs.
Er ánægjulegt til þess að vita
Á Suðurlandsbraut innan við Tungu, og Hafnar-
fjarðarveg sunnan Laufásvegar eru sett merki með
áletruninni 25 km., öðrum megin gegnt umferð í bæ-
inn, og 45 km. hinum megin (gegnt umferð úr bænum),
og er þýðing þessara merkja sú, að á nefndum vegum
gilda reglur lögreglusamþykktarinnar um hámarkshraða
innan merkjanna, en utan þeirra (fjær bænum) gilda
reglur bifreiðalaganna um hámarkshraða. Hefir þetta
verið ákveðið með hliðsjón af 94. gr. lögreglusamþykktar
Reykjavíkur, og gildir regla þessi fyrst um sinn, unz
öðruvísi verður ákveðið.
178
William McLeod Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
að íslenzk líkamsmennt skuli
sækja slíka dóma til föðurlanda
179 Lings og Bukhs.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 3. ágúst 1939.
Hann kveikti eld, sauð mat og át. Það
var þó ekki af þvi að hann hefði löngun
í mat, heldur af því að hann þurfti að
halda við kröftum sínum. Sárið á hand-
leggnum olli honum mikils sársauka,
nema þegar hann festi blund, en það
var aðeins öðru hvoru.
Er dagur rann bjó hann aftur um
sárið og gætti þess vel að umbúðirnar
væru ekki of fastar. Hann drakk kaffi,
át dálítið af brauði og fleski og hélt
síðan af stað.
Hann hélt áfram allan daginn, án
þess að sjá nokkurn mann. Og hann
var enn frjáls, er myrkrið skall á.
Nú tjóðraði hann klárinn í góðu hag-
lendi, kveikti eld og hitaði sér flesk og
baunir á pönnunni. Hann verkjaði
ennþá í sárið á handleggnum. Þreytan
eftir erfiði dagsins gerði hann gram-
an. En nú svaf hann vel og hafði góða
matarlyst, þegar hann vaknaði.
Snemma dags rakst hann allt í einu
á rétt, þar sem þrír menn voru að starfi
sínu við stóra nautahjörð. Einn mann-
anna kom auga á hann áður en hann
gat falíð sig. Hann hélt því til þeirra og
sagði þeim sögu um bróður, sem hann
ætti í Meagher-héraðinu.
Langleytur náungi, með döpur augu,
þurrkaði svitann framan úr sér með
skyrtuerminni áður en hann spurði:
— Hvað heitir bróöir þinn?
Taylor leit sakleysislega á hann og
enginn óróleiki sást í skeggjuðu and-
litinu.
— Brown, Jack Brown, svaraði hann.
— Ég man ekkert eftir honum og þó
vann ég nú í Magher-héraðinu í fyrra.
Hvar á hann að eiga heima?
— Ég man ekki nafnið, enda er ég ó-
kunnugur hér. Póststöðin er Cottonwood.
— Ég hefi aldrei heyrt það nafn. Á það
að vera við járnbrautina?
— Nei. Jack er enginn skriffinnur og
ég hefi ekki nema einu sinni haft fréttir
af honum á þremur árum.
Þeir reyktu vindlinga í makindum og
svo hélt Tallor leiðar sinnar, eftir að
honum höfðu enn einu sinni verið gefn-
ar leiðbeiningar, sem hann gat ekki not-
fært sér. Menn héldu auðvitað að hann
vildi fara eftir byggð, þar sem almanna-
leiðir lágu.
Hann hafði farið frá réttinni án þess
að vekja minnsta grun, en koma hans
þar átti samt eftir að hafa afdrifaríkar
afleiðingar. Tíu mínútum eftir að hann
var farinn, komu tveir aðrir reiðmenn og
stönzuðu hjá réttinni, til þess að hafa tal
af kúrekunum. Annar þeirra var strákur,
enn á gelgjuskeiði. Hinn var hátt á
fimmtugsaldri, stór, svíradigur, veður-
barinn, loðbrýndur og hvasseygur. Hann
»Brúarfoss«
Jónafan Hallvardsson
settur.
( (^rðbréfabankin
<^;A-cisttJY\stir. á sirni Á652.0pi6 M.11-12oq4 J
9
SELUR
fer vestur og norður föstu-
dag þ. 11. þ. m. Aukahafn-
ir á norðurleið Skagaströnd
og suðurleið Flateyri, Bíldu-
dalur og Stykkishólmur.
Farseðlar sækist fyrir há-
degi á föstudag.
Kreppulánasjóðsliréf bænda
Bæjar- og sveitarfélaga Kreppubréf. Veðdeildarbréf. Skuldabréf
Reykjavíkurbæjar.
VILL KAUPA:
Hlutabréf Eimskipafélags íslands h.f. — Hlutabréf Útvegsbanka
íslands. — Ennfremur vel tryggð skuldabréf. — Annast allskonar
verðbréfaviðskipti.
»Selfoss«
fer héðan föstudagsmorgun
norður- og austur um land
til Rotterdam og Ant-
werpen.
• ÚTBREIÐIÐ TÍMANN •
T í M I N N er víðlesnasta anglýsingablaðið!