Tíminn - 15.08.1939, Page 4
372
TÍMIM, þriðjudagiim 15. ágúst 1939
93. blað
IMIOIjJLIR,
Sennilegt þykir að samkomulag hafi
náðst um það milli Hitlers og Mussolini,
að þýzki og ítalski herinn skuli settir
undir einn yfirhershöfðingja, ef til
ófriðar komi.
Líklegasti maður til aö hljóta þá
stöðu er Walter von Brauchitch, for-
maður þýzka herforíngjaráðsins.
Walter von Brauchitsch er 58 ára
gamall og er kominn af gömlum prúss-
neskum herforingjaœttum. Faðir hans
var hershöfðingi og hann lét son sinn
í œsku á franskan skóla í Berlín. Hann
talar því frönsku reiprennandi og er
talinn mikill aðdáandi franska hers-
ins, einkum liðsforingjanna, en hann
telur Frakka hafa verið hœttulegustu
andstœðinga Þjóðverja í heimsstyrj-
öldinni.
Brautchitsch var kominn til tals-
verðra metorða 1914 og vann alla
heimsstyrjöldina í þjónustu hers-
höfðingjaráðsins. Þótti hann sýna
mikil hyggindi í starfi sinu. Sökum
dugnaðar síns og hygginda hefir hann
stöðugt verið að hœkka í tigninni.
Hann hefir aldrei verið yfirlýstur
nazisti, en hinsvegar verið vinsamleg-
ur hinni nýju stjórn. Hann er ekki
talinn þeirrar skoðunar að Þjóðverjar
geti unniö skyndisigur og traust hans
á ítalska hernum er sagt lítið. Hann
er því á margan hátt á annari „línu“,
en ýmsir helztu foringjar nazista, en
eigi að síður telja þeir sig ekki geta
án hans verið, meðan þeir hafa ekki
öðrum jafnhœfum og vinsœlum manni
á að skipa í hans stað.
* * *
Tveir bræður í Ameriku hafa nýlega
sett nýtt heimsmet í þolflugi. Héldu
þeir flugvél sinni á flugi t 344 klst. án
þess að lenda. Oamla heimsmetið var
218 klst.
* * *
Göbbels hefir nýlega lýst yfir því, að
Þjóðverjar muni fljótlega byrja á
framleiðslu fjarsýnistœkja, sem ekki
munu kosta nema 650 mörk, en þau
kosta nú frá 2000—3000 mörk.
tJR BÆNUM
Utanför
rlr 25 árum
knattspyrnumannanna.
Knattspyrnuflokkur sá úr Val og
Víking, sem ráðinn var til Þýzkalands-
farar, fór utan með Goðafossi í gær.
Keppa íslendingarnir líklega á fjórum
stöðum og verður fyrsti kappleikurinn
háður í Essen 25. ágúst.
Jarðskjálftakippur
fannst hér á sunnudaginn klukkan
6,15. Annars kipps varð vart á mánu-
dagsmorguninn.
Drengjamót Ármanns
hófst í gærkvöldi. Var keppt á
íþróttavellinum. Keppni fór fram í
spretthlaupi, kúluvarpi og þrístökki.
Drengjamótinu heldur áfram í dag.
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman af séra
Ragnari Benediktssyni ungfrú Ragn-
heiður Jónsdóttir (prests Þorvaldsson-
ar á Stað) og Ólafur Siggeirsson, stud.
mag., Sjónarhóii í Reykjavík.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Inga Erlendsdóttir, starf-
andi hjá Tóbakseinkasölunni, og Borg-
þór Björnsson, starfsmaður hjá S. í. S.
Leiffrétting.
í nokkrum hluta upplagsins af blað-
inu i dag er prentvilla i fyrirsögn
fyrstu greinarinnar á annari síðu.
Stendur þar „Öfugstreymi fjárhagsins"
í staðinn fyrir „Öfugstreymi fjár-
magnsins".
Frá heimssýmngunni
(Framh. af 1. síðu)
Lebanon og íslands væxu þær
merkilegustu á heimssýning-
unni, því þær bæru mestri anda-
gift vitni. Þá minntist hann
þess, að íslendingar hefðu fyrst-
ir stofnað þing á lýðræðisgrund-
velli, þeir væru sjálfstætt ríki,
og afrek þeirra væru slík, að
það mætti draga úr sjálfsþótta
sumra hinna yngri þjóða.
Þessi ræða La Guardia hefir
birzt í helztu blöðum Banda-
ríkjanna.
Myndin hér að ofan var tekin í Berlin 2. ágúst 1914. Mikill mannfjöldi
hafði þá safnazt saman við minnismerki Bismarcks til að heyra opinberar
tilkynningar, sem voru lesnar þar upp, en daginn áður liöfðu Þjóðverjar
sagt Rússum strið á hendur. Þótt undarlegt megi virðast hafði sú fregn
vakið mikil fagnaðarlœti í Þýzkalandi, enda var traust þjóðarinnar á hern-
um svo mikið, að menn bjuggust við fullnaðarsigri eftir fáar vikur.
Heimilið
(Framh. af 3. síðu)
Kópavogsjátningin
og Sveinn Björnsson
Á víðavangi.
(Framh. af 1. slðu)
Auk þess er svo höfuðstaður-
inn sjálfur. En eins og þessu er
nú háttað, eru það bifreiðaeig-
endur og benzínsalar, sem ein-
oka á fólkinu með því að egna
fyrir þ'að með Geysi og Gullfossi.
Og þegar það kemur til baka,
kysu víst flestir, að sér væri séð
fyrir sjúkraflutningi, það sem
eftir er leiðarinnar í þeirra eigin
koju. Að það gái í búðarglugga,
til þess er það orðið of þreytt!
Hvað þá að það freistist til að
kaupa nokkurn hlut, eftír slíka
útreið.
* * *
Hvað rista hin stóru skip
djúpt? Hvað þyrfti að dýpka
höfnina mikið til þess að þau
gætu lagzt hér að bryggju?
Hvergi mundu þau fá betra vatn.
Fisk og lax gætum við selt þeim
og þá okkar ágæta blómkál og
óefað enn fleiri hluti, þegar til
kæmi. Hafnarvöldin ættu að at-
huga þessa hlið málsins.
Útbrelðtð Tí M ANN
Ágústmánuður 1914
(Framh. af 3. siðu)
inn milli sín og Þjóðverja í þeim
Hitt er svo annað mál, að skipt-
ing nýlendna, hráefna og mark-
aða var með þeim hætti, að eðli-
legt mátti telja, að Þjóðverjum
fyndist þeir þurfa að rétta hlut
sinn. Úr þessum ágalla var
ekki bætt með Versalasamn-
ingnum, nema síður væri. Það er
ekki sízt vegna þess, að heimur-
inn bíður nú í stöðugum ótta við
það, að á næstu dögum hefjist
svipaðir ógnaratburðir og i á-
gústmánuði 1914. Þ. Þ.
Austur að Laugarvatni
alla þriðjudaga ki. 5 e. h.
alla fimmtudaga kl. 5 e. h.
alla laugardaga kl. 3 e. h.
Frá Laugarvatni:
alla sunnudaga kl. 7,30 e. h.
alla miðvikudaga kl. 10 f. h.
alla föstudaga kl. 10 f. h.
Til Geysis í Haukadal alla
virka daga.
BIFREIÐASTÖÐIN GEYSIR
Sími 1633.
SiuúrasaluL
Fröken Helga Thorlacius er
þekkt kona fyrir tilraunir sínar
um hagnýtingu og matreiðslu
ýmissa íslenzkra jurta, sem al-
menningur hefir ekki komizt
upp á lag með að nota til mann-
eldis. Nýlega hefir Helga búið til
smárasalat, er bæði þykir ljúf
fengt og er af fræðimönnum tal-
ið hið hollasta. Fer hér á eftir
uppskrif tin:
50 gr. smári, 50 gr. blaðbeðja,
50 gr. pípulaukur, nokkur
heimanjóla eða hvannablöð, 2
eggjarauður, y2 teskeið salt, ldl.
matarolía, 2 matskeiðar rjóma-
skúm, 1 matskeið tómat-mauk,
y2 matskeið sitrónsafi. — Eggja-
rauðurnar hrærist með saltinu,
olían sé látin i smátt og smátt,
grænmetið á að skera í mjög
smáar ræmur. Njólablöðin látist
í hring á salatskálina, þar á hið
smáttskorna grænmeti og yfir á
að láta góða maíonnaise. —
Skreyta á með tómat og fleiru.
Vinnið ötullega fyrir
Títnunn.
186 William McLeod Raine:
— Hvað áttu við með því að segja
nei, spurði Clint.
— Þú myndir ekki trúa mér þó að ég
segði þér það.
— Ég býst þá við að þú hafir skotið
þig sjálfur af slysum, sagði Bob.
— Nei, Clem Oakland skaut mig.
— Clem Oakland, át Clint undrandi
eftir, en var jafnframt tortrygginn.
— Hvenær hittir þú hann?
— Morguninn eftir að ég slapp frá
bænum.
— Þú lentir bara svona í flasið á hon-
um af hendingu, ha, spurði Prescott
hæðnislega.
— Já, svaraði Taylor blátt áfram. —
Ég sagði þér undír eins að þú mundir
ekki trúa mér.
— Það er rétt hjá þér, ég trúi þér
ekki, sagði Clint og hló hranalega. —
Þetta er lagleg saga, að Clem hafi gert
þetta. Ég býst þá við að hann hafi
skotið Steve líka! Þú skalt bara halda
frásögninni áfram.
— Hann gerði það, svaraði Taylor jafn
látlaust og áður, — en þú munt heldur
ekki trúa þvi.
— Heldur þú að ég sé einhver bein-
asni, spurði Clint. — Hvað kemur til að
þú talar svona mikið um Clem allt í
einu? Þú sagðist ekki þekkja hann?
— Ég þekkti hann ekki þá.
Flóttamaðurinn frá Texas 187
— Saga þín er ekki einu sinni senni-
leg. Dug Peters sá þig líka koma út úr
kofanum með rjúkandi byssuna og
hann sá þig skjóta og slá Steve af baki.
— Hann sá mig þó ekki gera þetta
síðasta. Walsh kastaði sér sjálfur af
baki, til að látast vera særður. Það var
ekki fyrr en seinna, að Oakland skaut
hann.
— Ég trúi ekki einu orði af því, sem
þú segir, sagði Clint. — Ég er ekki alvit-
laus. Það kann vel að vera, að þú
þekkir Oakland og mér þætti líklegt
að þið væruð vinir. En þú getur ekki
komið þessu á hann.
— Seg þú mér eitt, sagði Taylor. —
Hvers vegna leitaði ég að Peters og
sendi hann til bæjar eftir hjálp?
Hvers vegna beið ég klukkustundum
saman hjá Walsh, ef ég hefi skotið
hann? Hvers vegna forðaði ég mér ekki
undir eins?
— Þú leitaðir ekki að Dug. Það er
einmitt sennilegast að þú hafir verið að
forða þér, þegar hann kom að þér.
Síðan þvingaðir þú hann til að fara til
bæjar, til þess að þú kæmist undan á
meðan. Og úr því að þú spyrð mig, þá
skal ég segja þér, að þú varst ekki eina
einustu mínútu hjá Walsh eftir að Dug
fór af stað.
— Er Walsh mikið særður, spurði
(Framh. af 2. siðu)
byssunni að brjósti ferðamanns-
ins og segir: ,,Peningana eða
lífið“, hafi þar með eignazt ó-
afturkræfan rétt til þeirra verð-
mæta, sem hann kann að ná
með þessum hætti.
Ég efast ekki um hinn góða
vilja Sveins Björnssonar sendi-
herra til að vinna gagn þjóð
sinni og góðu og eðlilegu sam-
starfi Dana og íslendinga. En ég
efast mjög mikið um, að hann
sé á réttri leið í þessum efnum.
Að minni hyggju er allt skraf
og öll skrif um grundvöll Kópa-
vogsjátninganna betur fallið til
að fjarlægja íslendinga frá því
samstarfi, sem þeir annars
myndu fúsir til að hafa við
dönsku þjóðina í framtíðinni.
Eftir lausafregnum, sem bor-
izt hafa frá Danmörku, er talið
að Stauning hafi sagt við flokks-
blað sitt í Kaupmannahöfn með
nokkrum kuldagusti, að ég
myndi vera einskonar undan-
tekning meðal landa minna, að
því leyti, að ég vildi ekki sætta
mig við neitt minna en fullkom-
ið frelsi þjóðinni til handa. Ég
geri ráð fyrir, að orð Staunings
séu ekki rétt eftir höfð í Mbl.,
en ef svo er, þá hefði hann þurft
að dvelja hér nokkru lengur. Þá
mundi hann komast að raun um,
að hér á landi er ekki vitað að
nokkur maður sé svo aumur og
dáðlaus, að hann vilji sætta sig
við minna en fullt frelsi. Og ég
þykist mega fullyrða, að sendi-
herra landsins mun á sínum
tíma verða í fremstu röð þeirra
manna, sem endurheimta þetta
frelsi og að héðan af verður
Kópavogsjátningin í huga hans
eins og endurminning um ljótan
og leiðinlegan draum, sem eng-
inn man eftir, þegar sól hins
fulla frelsis skín yfir fjöllum þess
lands, sem gert hefir hann að
sínum fyrsta trúnaðarmanni í
öðrum löndum.
J. J.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
í Reykjavík
er á Lindargötu 1D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
k.....-gamla BÍÓ-*°~°~°~
Bifreíða-
stjórinn
Fyrirtaks mynd.
Aðalhlutverk leika:
SPENCER TRACY,
LUISE RAINER,
sem allir muna eftir úr
myndunum „Sjómannalíf"
og „Gott land“.
——°—°~ NÝJA BÍÓ-~<-~«-~~
TVjósnariiin
frá Snieniki
mikilfengleg og spennandi
stórmynd frá United Art-
ists. — Gerð undir stjórn
þýzka kvikmyndasnillings-
ins
G. W. PABST.
Aðalhlutverkið leikur hin
fagra þýzka leikkona
DITA PARLO
ásamt
PIERRE BLANCHAR,
LOUIS JOUVET o. fl._
Börn fá ekki aðgang.
accumulatoren-fabrik;
DR. TH. S0NNENCHEIN.
íshúsid á Eyrarbakka
er til sölu.
Upplýsingar hjá
Jóni Stefánssyni
HoSi, Eyrarhakka.
IJ nalsrifgerðir
Jónasar Jónssonar
Samband ungra Framsóknarmanna gefur á þessu ári
út nýtt bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónssonar og verð-
ur það álíka stórt og það, er kom í fyrra vetur, Merkir
samtíðarmenn. Verð þess verður og hið sama, fimm krón-
ur óbundið, en 7.50 í snotru shirtingsbandi. Verður band-
ið þrennskonar, brúnt, grænt og rautt.
Eins og kunnugt er og áður hefir verið skýrt frá hér
í blaðinu, verða í hinu nýja bindi greinar frá æskuárum
Jónasar og birtust flestar þeirra í Skinfaxa, ungmenna-
félagsblaðinu, á sínum tíma. Þessar greinar voru þá und-
anfari almennrar æskulýðsvakningar í landinu og jafn-
framt túlkun á þeim skoðunum, sem ungt fólk ól í brjósti,
en ekki höfðu áður fallið í einn farveg.
„Merkir samtíðamenn“ var gefin út í upplagi er nam
2100 eintökum og seldist þó með öllu á hálfu ári. Þótt
upplag bindisins, sem kemur út í haust, verði nokkru
stærra, má eiga það víst, að það selzt alveg upp á mjög
skömmum tíma. Þess vegna þurfa menn að gerast áskrif-
endur hið allra fyrsta.
Útsölu á bókunum og áskriftasöfnun verður hagað á
sama hátt og áður, þannig að bókaútgáfan hefir um-
boðsmenn í öllum sveitum og kauptúnum, sem taka á
móti áskriftum og áskriftagjaldi, ef borgað er fyrirfram.
En ef menn óska þess geta þeir sent pöntun sína til Jóns
Helgasonar, pósthólf 961, Reykjavík, eða hringt í síma
2353. Einnig munu áskriftarlistar liggja frammi á af-
greiðslu Tímans í Reykjavík.
Bókaútgáfa S. U. F. heitir jafnframt á umboðsmenn
sína til dugnaðar í starfi fyrir sambandið og málefni
þess og væntir þess, að áskriftalistarnir verði sendir út-
gáfunni svo fljótt, sem tími og ástæður til áskriftasöfn-
unarinnar leyfa.
Innheimtumenn!
Vinnið ötullega að innheimtu
jg útbreiðslu Tímans í ykkar
sveit. Svarið fljótt bréfum frá
nnheimtu blaðsins í Reykjavík,
)g gerið skil til hennar svo fljótt
:em möguleikar leyfa. Tíminn
er ódýrasta blaðið, sem gefið er
út á íslandi.
SMIPAUTCERÐ
nn
Trl
Sildin
vestur um fimmtudaginn 17. þ.
m. kl. 9 síffdegis.
f érðbréfabankinn
W jAostwstr. ó simi 5652.Opið kl.11-l2o<|1.3^
Annast kaup og sölu verðbréfa.
Flutningi veitt móttaka I dag
og til hádegis á morgun.
Pantaffir farsefflar óskast sótt-
ir á morgun.