Tíminn - 29.08.1939, Síða 1

Tíminn - 29.08.1939, Síða 1
RITSTJ ÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. 23. ár£. Reykjavík, þriðjudaginii 29. ágúst 1939 / gœr, 28. ágúst, átti Sesselja Guðmundsdóttir frá Fossi nirœðisafmœli. Hún er fœdd að Grafarbakka í Hrunamannahreppi, en ólst upp að Fossi í sömu sveit. Hún giftist Jóni Jónssyni frá Hörgsholti og bjuggu þau á nokkr- um bœjum þar í hreppnum. Eignuðust þau tíu börn og eru fimm þeirra á lífi, þar á meðal Ingimar skólastjóri. Sesselja missti mann sinn um alda- mótin og sá þá ein fyrir börnum sínum, sem ekki voru uppkomin, og var þá oft fremur þröngt í búi. Hún er kona prýðilega gefin, slmnnandi og kjark- mikil. Hún fylgist vel með öllum atburðum, sem gerast, innan lands og utan, og oft situr hún við viðtœkið og hlustar, líkt og hér á myndinni. — Sesselja býr nú í franska spítalanum hjá dóttur sinni. Vígsla sundlaugannnar í Varmahlíð í Skagaíírði Míkíll áhugi fyrír héraðsskólamálínu Uppdráttur, sem sýnir legu Danzig og hvernig „pólsku göngin“ skilja Aust- ur-Prússland frá Þýzkalandi. Friður helzt ennþá, en ófriðarhorfurnar aukast Þýzk-riissueski viiiáttusanminguriim er or- sök þcss. ef styrjöld liefst nú. Hin nýja sundlaug Skagfirð- inga í Varmahlíð var vígð á sunnudaginn, að viðstöddum á tíunda hundrað manns, þar á meðal margt Skagfirðinga, sem búsettir eru utan héraðsins. Veður var hið bezta. Laugin hefir verið í smíðum í sumar, en grunnur hennar var steyptur í fyrríi,. Laugin er 33 y2 meter- að lengd og að öllu leyti mjög vönduð. Teikningu að sundlauginni gerði Sigurður Guðmundsson húsameistari, en um smíðið sá Hróbjartur Jónas- son frá Hamri. Varmahlíðarfé- lagið hefir staðið undir kostnað- inum, en hann mun vera um 30 þúsundir króna. Vígsluhátíðin hófst með pre- dikun séra Tryggva Kvaran á Mælifelli. Að henni lokinni setti Árni Hafstað bóndi í Vík, formaður Varmahlíðarfélagsins, samkomuna. Síðan afhenti Gísli Jónasson yfirkennari í Reykja- vík kappsundsbikar fagran, er Skagfirðingar í Reykjavík gefa staðnum. Er hann nefndur Grettisbikar og á hann mörkuð útsýn yfir Skagafjörð, frá Drangey til Reykj astrandar. Pétur Hannesson á Sauðárkróki lýsti lauginni og þeim áfanga, er væri náð í starfsemi Varma- hlíðarfélagsins. Pálmi Hannes- son rektor talaði um drengskap- arbrögð í Skagafirði og rök- studdi með sögulegum tilvitnún- um, Steingr. Steinþórsson talaði um Hólaskóla og hinn fyrirhug- aða Varmahlíðarskóla og kvað þá mundu styðja hvern annan, svo sem „hönd veitir hendi og fótur fæti.“ Loks flutti Hermann Jónasson forsætisráðherra vígsluræðuna. Talaði hann meðal annars um íþxóttirnar og þá þýðingu, sem þær hefðu í lífsbaráttunni. Minntist hann í því sambandi atvika frá bernskuárum sínum, er hann leitaði næturlangt að týndum kvíaám langt fram til fjalla og hvernig hann þá hefði yfirunnið sjálfan sig. Karlakór Sauðárkróks söng á milli ræðanna. Að loknum ræðuhöldum og söng steypti Jónas Halldórsson sundkappi sér í laugina og sýndi þar ýmsra sundlistir. Varð síðan mikill fjöldi fólks til þess að synda í lauginni. Um kvöldið var dansað á palli, í tjaldbúð Skagfirðinga, sem reist hafði verið skammt frá lauginni. í sambandi við vígsluhátíðina sendi stjórn Varmahlíðarfélags- ins Jónasi Jónssyni alþingis- manni og Magnúsi Jónssyni prófessor skeyti, þar sem þeim var þökkuð margháttuð lið- veizla við framkvæmd fyrsta á- fangans í fyrirætlunum félags- ins. Mörg skeyti bárust þenna dag, bæði frá einstaklingum og fé- lögum, meðal annars svohljóð- andi skeyti frá Hannesi Magn- ússyni kennara á Akureyri: „Megi æskan alla tíð eiga, sumar, vetur, við þitt hjarta, Varmahlíð, voldugt menntasetur." Með sundlauginni er náð fyrsta áfanganum í byggingu veglegs skólaseturs i Varma- hlíð. Bar vígsluhátíðin vott um mikinn áhuga Skagfirðinga fyr- ir því máli og er fullvíst, að því verður fylgt fast eftir. Brennisteinsverksmiðjan við Náma- skarð tekur til starfa þá og þegar. Verksmiðjuhúsin voru reist í vor og í sumar og var þeim valinn staður vest- anvert við skarðið. Sjálft brenni- steinsnámið fer aðallega fram i skarð- inu og í fjallinu sunnan við það. Er búið að fylla birgðaskemmur verk- smiðjunnar af óunnum brennisteini. Hefir þess verið biðið, að hinn steypti vinnsluofn verksmiðjunnar þornaði til full, að starfrækslan gæti hafizt. Brennisteinn verður hreinsaður á þann hátt, að honum er breytt í lofttegund- ir, en síðan þéttaður aftur. Verður hinn hreinsaði brennisteinn síðan fluttur fullhreinsaður til hafnar í Húsavík. / t t Samkvæmt niðurstöðutölum Fiski- félagsins var síðastliðið laugardags- kvöld búið að salta 186.727 tunnur síld- ar. Á hliðstæðum tíma í fyrra sumar var búið að salta í 242.260 síldartunnur. Til bræðslu hafa verið teknir í sumar 916.286 hektólítrar, en um sama leyti í fyrra höfðu 1.416.654 hektólítrar verið látnir í bræðslu. — Veiðiútlit er nú gott nyrðra, veður gott og svartur sjór af síld á stórum svæðum. Virðast síldar- torfurnar vera mjög þykkar. Má því gera ráð fyrir, að mikið af síld berist á land á næstunni, enda mörg skip kom- ið til hafnar síðasta sólarhringinn með mikinn afla síldar. Tíu skip komu til síldarverksmiðjanna í gærkvöldi, auk þeirra, sem síðan hafa komið. „S a m f y Ikíng ar“- f undur á Sí gluf irdí Kommúnístar opinbera hug sinn til málirelsis og jafnréttis Skringilegur fundur var hald- inn í Siglufirði síðastliðinn sunnudag. Gengust fyrir honum samfylking kommúnista og jafnaðarmanna, sem enn er þar á lífi, og nokkrir brotthlaups- menn úr Sjálfstæðisflokknum. Það vakti furðu, að sjómönn- um og útgerðarmönnum, sem eru aðkomandi á Siglufirði, var meinuð fundarseta. Varðar þá þó ekki minna um síldarverk- smiðjumálin en Siglfirðinga. Fundarefni var Rauðkumálið svonefnda og var meirahluta stjórnar síldarverksmiðja, þeim Þormóði Eyjólfssyni, Þorsteini M. Jónssyni og Sveini Bene- diktssyni, boðið á fundinn. Fundurinn hófst með því að Erlendur Þorsteinsson flutti ræðu í nær hálfa aðra klst. og deildi hann í ræðu sinni fast á meirahluta síldarverksmiðju- stjórnarinnar. Þegar hann hafði lokið máli sínu óskaði Þormóður Eyjólfsson eftir ræðutíma til andsvara, en þá var tilkynnt að meirahluta síldarverksmiðju- stjórnar væru ekki ætlaðar til umráða nema 20 mínútur af 3i/2 klst. fundartíma og átti hún ekki að fá þann ræðutima fyrr en síðar á fundinum. Fengu fundarboðendur fundarmenn til að samþykkja þetta og mót- mælti meirihluti síldarverk- smiðjustjórnarinnar þessu of- beldi með því að ganga af fundi og fylgdi honum eftir allmargir fundarmenn. Það vakti athygli, að bæjar- stjórinn, Áki Jakobsson, lét mjög tryllingslega meðan þessu fór fram og mun hann m. a. hafa hvatt liðsmenn sína til að fleygja Þormóði, Sveini og Þorsteini á dyr. Fundurinn hélt þó áfram eftir þetta og voru samþykktar nokkrar marklausar tillögur. Það eina, sem gerir fund þenn- an frásagnarverðan, er ofbeldi það, sem fundarboðendur sýndu (Framh. á 4. síðu) Um þessar mundir er verið að vinna að raflýsing Staðarfellsskóla. Verð- um þar settur upp mótor til rafmagns- framleiðslu, því að aðstaða til vatns- virkjunar er ekki fyrir hendi. Þetta verður mikilvæg umbót fyrir skólann og er fyrirhugað að verkinu verði að öllu leyti lokið áður en kennsla hefst í haust. r r r í Skagafirði var í gær 17 stiga hiti, hægur sunnanblær, sólfar mikið og ágætur heyþerrir. Síðastliðna viku var tíðarfar ysjótt, en nú gott útlit um áframhaldandi blíðviðri. Heyskapur bænda er nú orðinn bæði meiri og betri heldur en hann hefir verið að jafnaði og halda þó allir áfram að heyja af kappi. Verður heyskap sinnt fram í miðjan mánuðinn víðast í hér- aðinu, ef tíðarfar verður sæmilegt. Út- lit er fyrir að kartöfluuppskera verði með afbrigðum góð. — Göngur hefjast í Skagafirði sunnudaginn í 22. viku sumars, bæði að austan og vestan, en samt nokkru fyrr í þeim byggöarlögum, sem upprekstur eiga á víðlendustu af- rettina. Réttað verður í þeirri viku, frá mánudegi til fimmtudags. r r r Á Suðurlandi hefir verið votviðra- samt upp á síðkastið. Eftir því, sem Tíminn hefir frétt, eiga bændur á Suðurlandsundirlendi og á Suðvestur- landi úti talsvert af heyi, allstaðar það sem losað hefir verið síðastliðna viku og víðast einnig nokkuð frá næstlið- inni viku. Yfirleitt er heyfengur orðinn Hinn mikli ófriðarundirbún- ingur í nær öllum löndum Ev- rópu seinustu dagana virðist benda til þess, að menn geri sér sama og enga von um að friður muni haldast. Það hefir aukið stríðsóttann stórkostlega, að í orðsendingum, sem farið hafa milli Hitlers og Daladiers, hefir Hitler lýst því yfir, að lágmarkskröfur sínar væru, að Þýzkaland fengi Dan- zig og „pólsku göngin“. Þessi yf- irlýsing Hitlers er svo ákveðin, að ómögulegt virðist fyrir hann að falla frá henni öðruvisi en að stofna vinsældum sínum innan- lands í mikla hættu. Það er líka víst, að meðal Þjóðverja, eink- um Prússa, eru engar landa- kröfur jafn vinsælar og þessar, því Þjóðverjum þótti hálfu verra að missa þetta land eftir heims- styrjöldina en t. d. nýlendurnar. Það særði þjóðarheiður Þjóð- verja dýpra en nokkuð annað, að landi þeirra skyldi vera skipt í tvennt til að fullnægja þörfum þjóðar, sem þeir álitu sér langt- um óæðri og tæpast hefði rétt mikill og góður, mun betri en venju- lega og víða meiri að vöxtum. Gras- spretta austan fjalls var þó ekki veru- lega fram yfir meðallag, nema þá á stöku stað. r r r Sauðfjárslátrun var hafin á Blöndu- ósi hjá Sláturfélagi Húnvetninga hinn 22. ágúst. Var þá slátrað 115 dilkum frá 9 bæjum. Meðalkroppþyngd þessara lamba reyndist um 14 kílógrömm. Hjá þeim bónda, sem átti vænstu lömbin, var meðalþyngdin 16,5 kg. Þyngsti skrokkurinn vóg 20,5 kg. Gærurnar af lömbunum vógu til jafnaðar 3 kg. — Kjötið af þessum dilkum var sent á Reykjavíkurmarkað. — Óvíst er hvort fleira fé verður slátrað á Blönduósi fyrir réttir. r r r Úr Borgarfirði er blaðinu skrifað: Kvenfélagið í Borgarhreppi á um þessar mundir tuttugu ára starfsaf- mæli og var þess minnst með sam- komu í Svignaskarði 20. ágúst. Auk félagskvenna var þar allmargt gesta, meðal annars stjórn sambands borg- firzkra kvenna. Ræður voru allmargar fluttar, m. a. af Elínborgu Sigurðar- dóttur á Hamri, Kristínu Ólafsdóttur í Rauðanesi, séra Birni Magnússyni á Borg, Sigurjóni Kristjánssyni bónda í Krummshólum og Sigurbjörgu Björnsdóttur í Deildartungu. Stóð hóf- ið fram til kvölds við sameiginlegt borðhald og kaffidrykkju, söng og spil. til sjálfstæðis. Endurheimtun þessa lands er því eitt helzta metnaðarmál þýzku þjóðarinnar og þess vegna getur Hitler vænzt þess, að hafa þjóðina sameinaða að baki sér, ef til styrjaldar kemur. Hinsvegar er endurheimtun þessa lands ekk- ert sérstakt hagsmunamál Þjóðverja og virðast það full- komnar öfgar hjá Hitler í orð- sendingunni tii Daladiers, að telja Danzig eins nauðsynlega fyrir Þýzkaland og Marseille fyrir Frakkland. Hinsvegar er Danzig enn þýðingarmeiri fyrir Pólland, en Marseille fyrir Frakkland. Þess vegna má telja fullvíst, að Pólverjar muni aldrei fallast sjálfviljugir á þessar kröfur Hitlers. Hinn vaxandi áróður þýzkra blaða gegn Póllandi þykir líka sanna, að Hitler sé fullkomin alvara. Sögusagnir þýzkra blaða um kúgun og illa meðferð Þjóð- verja í Póllandi taka jafnvel fram lýsingum á verstu píslum miðaldanna. Tilgangurinn virð- ist fyrst og fremst sá, að æsa hugi þjóðarinnar gegn Pólverj- um. í Þýzkalandi, Póllandi, Frakk- landi og Bretlandi má heita að öllum hugsanlegum viðbúnaði undir styrjöld sé lokið. Matar- skömmtun hefir meira að segja verið hafin í Þýzkalandi. Landa- mærum Þýzkalands og Frakk- lands hefir verið lokað. Að vísu munu þessar ráðstafaniT ekki aðeins gerðar, sökum þess að stjórnirnar vænti stríðs, því að allar vonast þær vafalaust eftir, að eitthvað gerist á seinustu stundu, sem afstýri ófriði. Þetta eitthvaff, sem hver þjóðin um sig vonast eftir, er að andstæð- ingarnir láti undan, þegar þeir sjái að mótaðilanum er það al- vara að láta koma til styrjald- ar. Sumar af þessum ráðstöfun- um er því alveg eins mikið þátt- ur í „taugastríðinu" eins og við- búnaður undir styrjöld. SEINUSTU FRIÐARVONIR. Seinustu friðarvonir manna eru nú tengdar við orðsendingar þær, sem farið hafa milli Hit- lers og ensku stjórnarinnar. Eins og áður hefir verið skýrt frá kvaddi Hitler Henderson, sendiherra Breta í Berlín, á fund sinn síðastliðinn föstudag og ræddi við hann á aðra klst. Afhenti hann honum jafnframt orðsendingu til ensku stjórnar- innar. Henderson flaug síðan til London á laugardaginn og hafði stjórnin orðsendingu Hit- lert til athugunar á sunnudag- inn og lauk svari sínu til Berlín í gærkvöldi og ræddi við Hitler alllengi eftir komu sína þangað. Hitler kvaddi að því loknu (Framh. á 4. síðu) A KROSSGÖTUM Brennisteinsverksmiðjan í Námaskarði. — Síldaraflinn. — Raflýsing Staðar- fellsskóla. — Úr Skagafirði. — Heyskapur sunnan lands. — Sauðfjárslátrun . á Blönduósi. — Kvenfélag Borgarhrepps. 99. hlað m A viðavangi Heyskapartíð hefir verið með hagstæðasta móti í sumar, og býr heyjaforðinn nú yfir hlut- fallslega meira fóðurgildi en oft- ast áður. Er þetta mikil blessun. Og vel mættu bændur reisa þessu sjaldgæfa sumri minnis- varða með þeim hætti, að brynja sig gegn úrkomusumrum og ó- þurrkum framtíðarinnar, en það geta þeir gert með því að taka enn almennara í Jjónustu sína úrræðið um vot- heysverkun! Daprar minningar úr búskaparsögu þjóðarinnar um harðrétti fólks og horfelli búfénaðar á rót sína aö rekja til þess, hve berskjalda menn voru gegn áföllum af völdum náttúrunnar, og þá meðal ann- ars óþurrkatíðinni. * sþ En eins og nú er komið mætti ietta vera á annan veg. Búskap- arþekkingu hefir fleygt fram. Nú vita menn hvernig á að standa að því að rækta jörðina. Nú vita menn að hagstæðara er að eiga færri skepnur vel fóðr- aðar, en fleiri vanfóðraðar. Nú er tiltæk fræðsla um fóðurfræði og fóðurgildi, og staðreyndirnar um þetta blasa við einhversstað- ar í hverju byggðarlagi. Bænd- ur eiga nú eða gætu átt sér þá „regnhlíf“, sem hlífði að nokkru jafnvel í hinu mesta óþurrka- sumri. En það er votheysgerðin. * * * Þegar dönsku blaðamennirnir komu að Korpúlfsstöðum á dög- unum, skýrði Lorentz Thors frá því, að kúnum þar væru gefin 10 kg. af votheyi á dag, og kæmi það fyrir, að votheyið entist ekki allan gjafatímann, þá yrffi það ekki bætt upp meff neinu kjarn- fóffri. Svona er votheyið úr ís- lenzkum túngrösum stórkostlegt að fóðurgildi, sé það rétt verk- að. Hitanum er ekki hleypt upp fyrir 55 stig. Ætli hann hærra, er nýju grasi af ljánum bætt í gryfjuna, hún kúffyllt, en marg- fylla þarf hverja gryfju sakir þess, hve heyið sígur mikið við hitann. En að lokum er grjót- farg sett ofan á, til þess endan- lega að kæfa hitann. * * * Votheysgerð er orðið svo þrautreynt úrræði, að sjálfsagt er að allir bændur, sem þess eru með nokkuru móti umkomnir, komi sér upp steyptri votheys- tóft. Aðeins ein framkvæmd mætti teljast jafn sjálfsögð, en það er hin steypta safngryfja! Er bágt til þess að vita, að svo skuli aðgangsfrekjan um hið vafasama bjargráð, að halda uppi byggingaratvinnu fyrir hina hlutfallslega fjölmennu húsasmiðastétt í hinum þegar yfirbyggða höfuðstað, að það sem landið í gjaldeyrisfátækt sinni ver til sementskaupa ár- lega, skuli lenda í fleiri ný í- búðarhús í Reykjavík en súr- heysgryfjur og safnþrær til samans úti um byggðir lands- ins! Síðsumarmót við Þrastalund Framsóknarmenn í Ár- nessýslu og i Reykjavík eru minntir á sameiginlega samkomu viff Þrastalund á sunnudaginn kemur. Jör- undur Brynjólfsson, Þór- arinn Þórarinsson og Guff- brandur Magnússon flytja þar ræffur. Síffdegis verffur dansaff í Þrastalundi. Auk þess verffur söngur, glíma og fleiri skemmtiatriði. Reykvíkingum, sem til- kynna þátttöku sína í tæka tíff, verður séff fyrir mjög ódýru bílfari. Framsóknarmenn beggja megin Hellisheiffar! Fjöl- menniff á síffsumarmótiff á sunnudaginn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.