Tíminn - 09.09.1939, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavík, Iau^ardaginii 9. sept. 1939
104. blað
Mynd þessi er tekin nokkru áður en styrjöldin liófst og er frá hátíðahöldunum, sem haldin voru í Vilna til minn-
ingar um þann atburð fyrir 20 árum síðan, þegar Pólverjar hrökktu rússneskar kommúnistahersveitir úr borg-
inni. Sjást pólskir hermenn ganga framhjá minnismerki Pilsudskis, en á heiðururspallinum er forseti Póllands
og margir aðrir helztu menn ríkisins.
Áhrif styrjaldarinnar á
utanríkisverzlun þjóðarinnar
Undírbúníngur ríkísstjórnarinnar
Enn verður ekki sagt um
það með neinni vissu, hvaða
áhrif styrjöldin muni hafa
á siglingar til landsins og
utanríkisverzlun þjóðarinn-
ar. Eins og sakir standa er
allt í óvissu með þá hluti.
Eins og kunnugt er hafa Eim-
skipafélagsskipin haldið kyrru
fyrir seinustu dagana, eitt í
Kaupmannahöfn, tvö i Englandi
og þrjú hér heima. Hefir verið
beðið eftir því að skipin fengust
stríðsvátryggð og barst tilkynn-
ing um það í morgun, að vá-
tryggingin væri fengin og munu
því skipin, sem eru erlendis,
leggja af stað heimleiðis í
dag, og Gullfoss, sem er
ferðbúinn hér, áleiðis til Kaup-
mannahafnar. Að öðru leyti mun
ekkert afráðið um siglingar
skip.anna í framtíðinni. Ríkis-
stjórnin mun hafa óskað eftir
því, að ferðir þeirra yrðu ekki
ákveðnar, án vitundar hennar.
Stjórninni barst sú tilkynning
frá Englandi í gær, að þeir samn-
ingar, sem veittu okkur leyfi til
að selja ísfisk og frystan fisk í
Englandi, væru fallnir úr gildi.
Fyrirspurn, sem send var héðan
í gær í tilefni af þessari uppsögn,
var í morgun svarað á þá leið,
að litið væri svo á, að innflutn-
ingur frá íslandi á þessum vör-
um væri orðinn frjáls. Hér í
landinu eru nú um 400—500
smál. af frystum fiski og hrogn-
um, sem hefir verið selt fyrir-
fram í Englandi. Um ísfiskveiðar
togaranna mun ekki neitt end-
anlega ákveðið.
í landinu eru nú um 26 þús.
smál. af saltfiski. Rúmlega y3
hluti þessara birgða eða 9 þús.
smál. hafa nýlega verið seldar til
Portúgals, en skipakostur hefir
en ekki fengizt til að annast
flutninginn.
Um útflutning síldarafurð-
anna hefir ekkert verið afráðið.
Skömmtun nauðsyiija.
Samkvæmt upplýsingum við-
skiptamálaráðherra er undir-
búningi að skömmtun ýmissa
nauðsynjavara svo langt komið,
að hún mun hefjast síðari hlut-
ann í næstu viku. Hefir undir-
búningurinn tekið þennan tíma,
sökum þess að ætlast er til að
skömmtunin hefjist um allt
land samtímis.
Ríkisstj órnin hefir þessi mál
öll til vandlegrar athugunar og
mun gera eins fljótt og unnt er
ráðstafanir til þess að fá úr því
skorið, hvernig viðskiptum við
útlönd og siglingum þangað
verður bezt fyrir komið. Þarf þar
að taka tillit til margra atriða
og verða menn því að vera und-
ir það búnir að þetta gangi ekki
eins greiðlega og ákjósanlegt
væri og gexa mætti ráð fyrir á
friðartímum.
Sennilega mun ríkisstjórnin
skipa nefnd til að hafa eftirlit
með útflutningnum og fleira því,
sem til greina kemur í sambandi
við hann.
Innkaup erlendra vara fara
vitanlega fyrst og fremst eftir
því, hvernig tekst til með sölu og
flutning útflutningsvaranna.
Fimm þýzk skip
samtals 17,500 smál.
hafa flúið híngað
Hin útlendu kaupför, sem leit-
að hafa hafnar í Reykjavík
vegna stríðsins, eru nú orðin sex,
fimm þýzk og eitt norskt. Toll-
gæzlumenn hafa innsiglað vöru-
birgðir skipanna og lögreglan
loftskeytastöðvarnar og skips-
mennirnir verða að hafast við í
skipum sínum, nema skipstjórar
fá landgönguleyfi til þess að tala
við ræðismenn þjóðar sinnar.
Tveimur skipum, sem fyrst
komu, hefir verið lagt inn í sund-
um. Heita þau Erik Henrik Fis-
her, 3300 smálestir brúttó, og
Sardinia, 4200 smálestir. Þau voru
bæði tóm, er þau komu hingað.
Á ytri höfninni liggja Byanca,
1200 smálestir, er hefir meðferð-
is talsvert af kolum, Lúbeck, 3700
smálestir, er kom frá Vestur-
Indíum með ýmiskonar vörur,
einkum sykur, kaffi, romm, ka-
kao, hunang, tóbaksvörur, sút-
unarefni, húðir, hamp, baðmull
(Framh. á 4. síöuI
Hrun kommúnismans
í Frakklandi
Það er einróma álit erlendra
blaðamanna í Frakklandi að sú
skyndilega stefnubreyting rúss-
nesku stjórnarinnar, að leggja
baráttuna gegn fasismanum á
hilluna og styðja óbeint ágengni
þýzku nazistanna á hendur Pól-
verjum, hafi nær útrýmt franska
kommúnistaflokknum í einni
svipan.
Til sönnunar þessu þykir rétt
að tilgreina frásögn tveggja
norrænna blaða, sem meira en
flest önnur blöð hafa gagnrýnt
stefnu Chamberleins, en hins-
vegar verið vinveitt í garð Sovét-
Rússlands. Þessi blöð eru ,,Dag-
bladet" í Oslo og „Göteborgs
Handels- och Sjöfartstidning" í
Gautaborg.
í „Dagbladet“ 30. f. m. skrifar
fréttaritari blaðsins i París,
Hans Heiberg, á þessa leið:
„Önnur umskipti á útliti barg-
arinnar eru þau að kommúnist-
arnir eru fullkomlega úr sög-
unni. Þýzk-rússneski sáttmálinn
særði þá ólífissári. Vegna langr-
ar þjálfunar í blindri flokks-
hlýðni reyndu foringjarnir enn
einu sinni að fylgja fyrirskipun-
um, en tilraunin til að sanna að
Sovét-Rússland stæði enn í
fylkingarbrjósti friðarvinanna
og að samningurinn væri ósigur
fyrir nazismann, varð árangurs-
laus og mætti svo mikilli andúð,
að gizka má á, að flokkurinn hafi
misst um helming hinna virku
liðsmanna á einum degi. Það
bætti ekki neitt úr skák, þótt
flokksforingjarnir lýstu yfir há-
tíðlega því, að þeir myndu ekki
bregða fæti fyrir hernaðarráð-
stafanir stjórnarinnar, og héldu
fast við hina andnazistisku og
lýðræðissinnuðu afstöðu sina.
Franski kommúnistaflokkurinn
hafði verið mizkunnarlaust tor-
tímt og það kom þvi engum á
óvart, þótt Daladier notaði tæki-
færið til að banna blöð komm-
únista og stigi með því alvarlegt
skref fyrir franskt lýðræði, en
sem ekki tjáði að sakast um eins
og ástatt var.“
í „Göteborg Handels- och Sjö-
farstidning“ 25. f. m. skrifar
fréttaritari blaðsins í París á
þessa leið:
Síldveiðarnar. — Úr Eyjafirði. — Kornræktin að Klauf. — Etirlit með fjár-
flutningum á bifreiðum. — Síldarrannsóknir. — Nýr hrossaræktarráðunautur.
Síldveiðarnar eru nú að daprast aft-
ur og líklegt að flest skip hætti veiðum
hvað úr hverju. Reknetabátar fengu
þó nokkurn afla í gær. Margir af tog-
urunum, sem voru norðan lands í sum-
ar, eru komnir til Reykjavíkur og liggja
nú hér á höfninni. Eru það Tryggvi,
Kári, Jón Ólafsson, Baldur, Hilmir,
Sindri, Þorfinnur, Hafstein, Gulltopp-
ur, Þórólfur og Belgaum. Aðrir eru á
leið til Reykjavíkur. Einn vélbátur úr
Reykjavík, Víðir, er kominn heim af
síldveiðunum. Allmargt af fólki, er
síldarvinnu hefir sinnt í sumar, er
komið til bæjarins, en aðrir koma á
næstunni. Af Akureyrarskipum er Jarl-
inn hættur síldveiðum.
/ t r
Samkvæmt símfregn úr Eyjafirði
er heyskap þar lokið á flestum bæjum.
Er heyfengur manna, þar svo sem víð-
ast annars staðar, um venju fram að
gæðum og einnig nokkuð yfir meðal-
lag að vöxtum. — Göngur og réttir
hefjast í Eyjafirði um og upp úr ann-
arri helgi. Haustslátrun byrjar eftir
röska viku og áætlað að álíka mörgu
verði slátrað i haust og undanfarin ár,
22—24 þúsund kindum í fjórum slát-
urhúsum Kaupfélags Eyfirðinga, Akur-
eyri, Dalvík, Svalbarðseyri og Greni-
vík.
t t t
Þessa dagana er verið að ljúka við
að slá kornið á ökrunum að Klauf í
Eyjafirði. Þreskingin hófst í morgun.
Gizkað er á, að á annað hundrað tunn-
ur af byggi fáist af akurlendinu, en auk
þess er dálítið af höfrum og rúgi. Alls
var byggi sáð í 8 hektara lands í ár,
en fyrirhugað er, að byggekrurnar
verði 20 hektarar næsta sumar. Verða í
því skyni brotnir 10 hektarar af nýju
landi í haust. Allt korn, sem fæst í
Klauf í haust, á að nota til útsæðis að
ári. Þykir þriggja ára reynsla, er
fengizt hefir í Klauf, benda til þess,
að kornyrkja geti verið bændum í Eyja-
firði * til talsverðra hagsbóta. Mun
Kaupfélag Eyfirðinga því stuðla að
aukinni kornrækt þar um slóðir og er
ráðið, að forstöðumaður kornræktar-
búsins í Klauf, Erlingur Davíðsson frá
Hámundarstöðum, leiðbeíni bændum í
þessum efnum, ferðist i vetur um hér-
aðið í því skyni og skrifi um komrækt.
Má því búast við, að verulegur skriður
komist á kornræktina í Eyjafirði á
sumri komanda.
r r t
Dýraverndunarfélag íslands hefir
þrjú undanfarin ár haft á sínum veg-
um mann til eftirlits um meðferð og
aðbúnað að fénaði, sem fluttur er á
bifreiðum til sláturhúsanna í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Hefir bóndi austan
úr sveitum haft þetta starf með hönd-
um. í fyrrahaust ferðuðust einnig tveir
menn um Norðurland og litu þar á
ýmsum stöðum eftir sláturhúsum og
aðbúnaði að sláturfé. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem Tímin hefir fengið hjá
Þórarni Kristjánssyni hafnarstjóra, en
hann er formaður Dýraverndunarfé-
lagsins, er eftirlitsmaður félagsins tek-
inn til starfa fyrir nokkru. Mun hann
verða til eftirlits fram í októbermánuð
að venju. Annars má gera ráð fyrir, að
í minnsta lagi verði gert að fjárflutn-
ingum á bifreiðum í haust.
t t t
Árni Friðriksson fiskifræðingur hefir
i sumar, svo sem endra nær, starfað að
rannsókn á síldarmögum og öðrum
síldarrannsóknum norðan lands. Er
þetta níunda sumarið, sem slíkar at-
huganir eru framkvæmdar. Hann er nú
um það bil að ljúka störfum sínum
nyrðra að þessu sinni. Árni hefir 1
sumar rannsakað um 2500 síldir og
komizt að raun um, að átan hefir nú
hagað sér allt öðru vísi en að undan-
förnu. Mðalátumagn er talið 6—7 rúm-
sentimetrar í síldarmaga, en ef það
fer niður úr 6 rúmsentimetrum, er ekki
hægt að búast við að veiði haldist. Síð-
ustu daga júnímánaðar var átumagnið
mikið um venju fram. Síðan fór það
minnkandi og var um miðjan júlímán-
uð komið niður fyrir lágmarkið. Minnst
var átumagnið hinn 5. ágúst, en hefir
aukizt síðan.
t r r
Stjórn Búnaðarfélags íslands ákvað
nýlega á fundi, að ráða Gunnar
Bjarnason búfræðikandidat frá Húsa-
vík sem hrossaræktarráðunaut í stað
Theodórs Arnbjarnarsonar frá Ósi, er
lézt í byrjun þessa árs. Ekki er enn
ráðið, hvenær Gunnar tekur við ráðu-
nautsstarfinu, en hann dvelur um
þessar mundir erlendis.
t r r
„Eðlileg afleiðing af svikum
Rússa er vaxandi fjandskapur
gegn stjórn kommúnistaflokks-
ins, sem gegn betri vitund reyn-
ir að verja Stalin eftir ítrasta
megni og segir að Rússar hafi
ekki brugðist fyrri stefnu sinni.
Þessir furðulegu látaláta-föður-
landsvinir, sem fyrir 24 klst.
börðust fyrir styrjöld gegn Stal-
in, reyna að telja liðsmönnum
sínum trú um, að Rússar muni
hjálpa Frökkum, ef þeir lenda í
styrjöld við Þjóðverja, sökum
skuldbindinga sinna við Pólland.
Það væri ekkert undrunarefni,
þótt þessir málflutningsmenn
Moskva yrðu fyrir barðinu af
múgæsingum. Innan herbúða
kommúnista sjálfra, þar sem hin
óvæntu svik Rússa hafa skapað
vonleysi og örvæntingu, ríkir
takmarkalítill hefndarhugur
(lynchningsstámning), sem hin-
ir fáu kommúnistaforingjar
munu finna til, ef eitthvað ber
út af leið.“
í sama blaði 30. f. m. skrifar
fréttaritari þess í París eftirfar-
andi:
,Nokkru áður en Parísarblöð
kommúnista voru bönnuð, hafði
risið ágreiningur innan rit-
stjórnarinnar og helztu starfs-
mennirnir höfðu færzt undan að
halda starfi sínu áfram. Mikill
ágreiningur hefir risið innan
flokksstjórnarinnar og þykir lík-
legt að Thorez, vinsælasti mað-
ur flokksins, Cachin, brautryðj-
andi flokksins, og færasti blaða-
maður flokksins í utanríkismál-
um munu fara úr flokknum, á-
samt fjölmörgum mönnum öðr-
um.
Þeir mega hinsvegar hraða
brottförinni, ef þeir ætla að gera
það áður en flokkurinn verður
bannaður. En það getur skeð á
hverri stundu. Stalínklíkan í
flokksstjórninni hefir hafið bar-
áttu gegn hervæðingunni með
flugritum og haldið þar fram að
Frakkland og England vildu
heldur fara í stríð en semja við
Rússland. Eins og málum er nú
komið mun þetta teljast til land-
ráða. Stjórn jafnaðarmanna-
flokksins hefir skorað á komm
únistana, að segja skilið við
Moskva. En hvað, sem kann að
gerast hér eftir, er það samt
öruggt, að Stalinisminn er dauð-
ur í Frakklandi í ýmsum bæjum
utan Parísar hefir múgurinn
ráðizt á kommúnistiska blaða-
sala og hefir lögreglan með
naumindum bjargað þeim frá
meiðingum.“
Til viðbótar þessu má geta
þess, að danski „Social-Demo-
kraten" skýrir frá því, að á
mörgum sellufundum franskra
kommúnista hafi kommúnista-
blöðunum verið brennt i mót-
mælaskyni við túlkun þeirra á
þýzk-rússneska sáttmálanum
Geta má þess einnig, að kom-
múnistar eiga ellefu menn
stjórn franska Alþýðusambands-
ins. Hún samþykkti fyrir nokkru
að lýsa andúð sinni á þýzk-
rússneska samningnum með 18
gegn 8 atkv. Þrír af kommúnist-
unum sátu hjá við atkvæða
greiðsluna.
Þessar og aðrar fregnir benda
hiklaust til þess, að kommúnism-
inn sé að renna skeið sitt á enda
í Frakklandi, en þar hefir hann
verið langsterkastur, utan Rúss
lands, seinustu árin.
FRÁ ST YR J ÖLDINNI.
ÞJÓÐVERJAR tilkynntu í gær-
kveldi að þýzkar hersveitir
brynvörðum bifreiðum og skrið-
drekum væru að brjótast inn í
Varsjá. Samkvæmt síðustu
fregnum virðist þessi sókn þeirra
hafa misheppnast.Pólverjar hafa
útvarpsstöðina þar enn á valdi
sínu og tilkynna að 120 þús
manns vinni að því að grafa
skotgrafir kringum borgina og
öflugur her sé þar til varnar og
A víðavangi
Sökum hinnar yfirvofandi
kolaeklu hefir kennari í kaup-
túni einu vestan lands varpað
fram þeirri tillögu, að tekin yrði
upp sú tilhögun barnafræðsl-
unnar í kauptúnum að börnin
væru ekki látin koma saman í
skólann, nema t. d. tvisvar i viku
og væri þá gefin verkefni, sem
Dau ynnu að heima, og gætu
kennararnir notað tímann þá
daga, sem skólinn starfaöi ekki,
til þess að fara heim til barn-
anna og hjálpa þeim við verk-
efnin eftir því, sem ástæða þætti
til. Telur þessi kennari að bæði
sé athyglisvert að prófa þetta
kennslufyrirkomulag og auk
sess myndi það hafa talsverð-
an kolasparnað í för með sér.
Getur hæglega farið þannig, að
skólarnir stöðvuðust alveg, sök-
um kolaskorts, þegar kemur
fram á veturinn og virðist því
hyggilegra, að byrjað sé að spara
strax. Ætti fræðslumálastjórnin
að taka þessa tillögu til athug-
unar.
* * *
Ríkisstjórnin hefir sent áskor-
un til almennings um sparnað á
eldsneyti og segir þar meðal
annars: 1. Leggið ekki í mið-
stöðvar þegar hlýtt er í veðri.
2. Notið rafmaghsofn í stað
kolakyndingar, þar sem það er
hægt. 3. Lokið fyrir miðstöðv-
arofna í öllum herbergjum, sem
lítið þarf að nota, fyrst og fremst
í kjöllurum, á göngum og loftum.
4. Ef lokað er fyrir helming ofn-
anna minnkar kolaeyðslan um
nærri helming. 5. Gætið sparn-
aðar við notkun á heitu vatni.
6. Komið yður upp hitakössum
til suðu. Þeir spara mjög mikið
eldsneyti.
* * *
í landinu eru nú allmargar
rafmagnsstöðvar, en mikið vant-
ar á að öll sú orka, allt það hita-
gildi, sem vatnsafliö framleiðir,
notist til hlítar. Sogsstöðin með
Elliðaárstööinni mun til dæmis
búa yfir 3—4 þúsund hestöflum
umfram rafmagnsnotkunina
eins og hún hefir komizt hæst.
— Og enn fleiri þúsundum
hestafla nema rétt þá stuttu
stund, sem verið er að sjóða mál-
tíðir handa Reykvíkingum og
Hafnfirðingum. Ekkert af þess-
ari miklu orku er komið í gagn.
Og á næturnar er rafmagns-
notkunin hverfandi. Með hóf-
legu verðlagi, sem þá yrði til
hagsbóta fyrir báða aðila, raf-
veituna og viðskiptamenn þeirra,
þarf að búa svo um, að megin-
orka hverrar stöðvar notist til
hins ítrasta. Hið virkjaða vatns-
afl er reiðubúið til þess að hita
upp híbýlin, meðan við sofum!
En það er með raforkuna eins og
tímann, henni verður ekki safn-
að í kornhlöður! Raforkan, sem
unnt var að nota í gær til gagn-
legra hluta, er ekki tiltæk
í dag. Hver stund, sem líður fæst
aldrei aftur! Þessvegna þurfa
rétt stjórnarvöld að snúast við
þessu atriði til almennings-
heilla, og það við fyrstu hentug-
leika.
muni hann verjast til seinasta
manns. Þjóðverjar halda uppi
stöðugum loftárásum á borgina
og valda miklum usla. Hafa þeir
gert miklar skemmdir á járn-
brautarlínum til borgarinnar og
torveldar það mjög flutninga til
og frá borginni. Konur og börn
hafa verið flutt þangað undan-
farna daga. Á öðrum vígstöðv-
um í Póllandi virðist hafa verið
rólegt undanfarinn sólarhring,
því Þjóðverjar leggja allt kapp
á sóknina til Varsjá. Herinn, sem
sækir þangað, er sá sami og lok-
aði pólska ganginum, en mun
hafa fengið nokkurn styrk frá
Austur-Prússlandi.
Á VESTURVÍGSTÖÐVUNUM
tilkynna Frakkar að þeir sæki
fram og hörfi Þjóðverjar undan
og sprengi þeir uppi vegi og brýr
á undanhaldinu. Byrjað er að
(Framh. á 4. siðu)