Tíminn - 21.09.1939, Side 4
436
TtMIM, fiinnitnilagliiii 21. sept. 1939
109. blað
Yfir landamærin
1. Stjórnmálaritstjóri Vísis lætur ó-
spart skína í það þessa dagana, að nú
sé hin rétta stund til þess að afnema
gjaldeyrisnefnd og þær hömlur, sem
hún hefir lagt á ógætilegar ráðstafanir
gjaldeyris okkar. Honum mun þykja
sú ráðstöfun hyggilegust á erfiðleika-
tímunum að láta allt skeika að sköp-
uðu um afkomu þjóðarbúskaparins, ef
heildsalarnir geta um skamma hríð
auðgazt á því hátterni. En varla mun
þjóðina fýsa að stiga á þann hátt um
borð í lettnesku skútuna með Árna
frá Múla og stýra beint út í tundur-
duflasundin.
2. Þjóðviljinn hefir í gær ill orð um
viðleitni gjaldeyrisnefndar um að
hamla svo gífurlegum innflutningi til
landsins, að leiða hlyti til stórkostlegs
viðskiptahalla. En í sama blaðinu er
fjandskapazt yfir því, að þrátt fyrir
góða viðleitni gjaldeyrisnefndar og
vegna hins ótrygga ástands að undan-
förnu, er verzlunarjöfnuöur enn óhag-
stæður. Ekki skýra þeir það, Þjóðvilja-
menn, hvernig þeir ætlast til að sinnt
sé báðum kröfum þeirra, að ná hag-
stæðum verzlunarjöfnuði og „hlúa“ að
því „eftir mætti, að menn fengju að
kaupa“ erlendar vörur. Enda líklega
sá einn tilgangurinn, að gera óbilgjarn-
ar kröfur.
FYRIRSPURN!
Er Þórbergur lífs eða liðinn?
Var lykkjan af hálsinum sniðin?
Hér lagðist smátt fyrir halinn,
að hengja sig fyrir Stalin.
Tilraunir um
notkun síldarolíu.
(Framh. af 1. síðu)
herða svo mikið af síldarolíu á
þenna hátt, að nokkxu nemi til
iðnaðar, þarf hins vegar mikið
af dýrum tækjum og vélum.
Jafnhliða tilraunum um að
gera síldarolíuna að nothæfri
matarfeiti, hefir verið leitazt við
að breyta henni í það ástand, að
hún verði hæf til annarrax
vinnslu, einkum sápugerðar og
málningarvinnslu.
Til sápugerðarinnar er síldar-
olían hert lítilsháttar, til þess að
lýsislyktin hverfi, og er ein sápu-
gerðarverksmiðj an að gera til-
raunir um að nota hana í blaut-
sápu.
Til málningarvinnslunnar er
síldarolían hreinsuð á annan
hátt. Er það nú á góðum vegi
statt, að hægt sé að nota hana
við málningarframleiðslu og er
raunverulega dálítið byrjað á
því. Fer hreinsun sú, sem nauð-
synleg er, svo að síldarolían
verði hæf við málningariðnað-
inn, fram hér í bænum.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. siðu)
bandið, íþróttasamband íslands, skátar,
samband ungmennafélaganna, Sam-
band bindindisfélaga í skólum, Slysa-
varnafélagið, Bandalag kvenna og
fjögur verklýðsfélögin í Beykjavík,
Dagsbrún, Sjómannafélag Reykjavíkur,
Iðja og Framsókn, heitið fulltingi sínu.
Stúlka óskast
í vist til Guðmundar Kr. Guð-
mundssonar, skrifstofustjóra,
Bergstaðastræti 82, frá 1. o kt.
næstkomandi.
IJR BÆMJM
Vörubirgffir í Reykjavík
reyndust að vera, samkvæmt vöru-
talningunni 16. september 116.4 smá-
lestir af kaffi, 139 smálestir af sykri,
538,4 smálestir af hveiti, 101,8 smálest-
ir af rúgmjöli, 131,4 smálestir af hafra-
mjöli og bygggrjónum og 80.8 smálestir
af öðrum kornvörum. Handa Reykvík-
ingum einum nægðu þessar birgðir
sem hér segir: Hveiti í fjóra mánuði,
rúgmjöl einn mánuð, haframjöl og
bygg þrjá eða fjóra mánuði, sykur í
röskan mánuð og kaffi í eitt ár. En að
sjálfsögðu verða þessar birgðir að
skiptast milli fleiri en Reykvíkinga.
Samkvæmt ákvörffunum
nefndar þeirra, er undirbúið hefir
matvælaskömmtunina, getur fólk, ef
einhver tegund af skömmtunarvörum
fæst ekki í þeirri verzlun, sem það er
vant að skipta við, keypt af hvaða ann-
ari verzlun, sem er, án þess að þurfa
að öðru leyti að binda viðskipti sín
við hana. Undir slíkum kringumstæð-
um þarf fólk aðeins að hafa, i hönd-
um gögn, er sýna að varan fæst ekki
í þeirri verzlun, sem það hefir aðal-
viðskipti sín við.
Síðiistn fregnlr.
(Framh. af 1. síðu)
kvað Rússa og Þjóðverja ætla í
sameiningu að skapa frið í Norð-
urálfunni. En Pólland myndi
aldrei rísa upp aftur í fyrri
mynd. Við munum aldrei gefast
upp, þótt stríðið vari 4, 5, 6 eða
7 ár, sagði Hitler. Hin þýzka
þjóð er gagntekin af anda Frið-
riks mikla.
Bretar og Frakkar hafa gefið
margar yfirlýsingar um það, að
stríðinu myndi haldið áfram,
þar til yfir lyki. Daladier hefir
gefið skýrslu til franska ráðu-
neytisins og Chamberlain flutti
ræðu í brezka þinginu í gær og
var hún að nokkru svar við Dan-
zig-ræðu Hitlers. Hann kvað
Breta ekki leggja í vana sinn að
viðhafa hótanir og vera stór-
orðir og væri það ef til vill á-
stæðan til þess, hve Þjóðverjum
gengi illa að skilja þá. Hann
mótmælti staðhæfingu Hitlers,
að þýzki herinn hefði gætt
mannúðar í hernaðargerðum í
Póllandi. Markmið okkar, sagði
Chamberlain, er að bjarga Norð-
urálfu, leysa þjóðirnar frá stöð-
ugum ótta við ágengni og of-
beldi. Hann sagði, að innrás
Rússa í Pólland hefði engin á-
hrif á ákvörðun Breta, að
standa við allar sínar skuldbind-
ingar gagnvart Pólverjum. Hann
ræddi og um viðureignina á
sjónum, kvað brezka flotann
halda uppi stöðugri sókn gegn
þýzkum kafbátum og sagði eitt
af helztu verkefnum brezku her-
skipanna vera það að vernda
siglingar Breta og verzlun við
önnur lönd. Færri kaupskipum
kvað hann hafa verið sökkt
upp á síðkastið heldur en fyrstu
vikuna.
Uppreist mun hafa brotizt
út meðal Tékka. Enskar fregnir
segja, að hún hafi hafizt í Prag
með bardögum milli tékkneskra
verkamanna og þýzku lögregl-
unnar í borginni, en síðan
breiðst út um landið, jafnvel til
Slóvakíu. Samkvæmt þessum
ensku fregnum hefir fjöldi
manna verið handtekinn og
margir líflátnir. Konur hafa
einnig tekið þátt í uppreisninni
og þeir, sem ekki hafa byssur að
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
Á hinu sama árabili og til var
greint Pupphafi hafa verið flutt
inn í landið ógrynni jarðvinnslu-
verkfæra og heyvinnuvéla. Inn-
fluttar dráttarvélar á þessu
tímabili eru um 90, sláttuvélar
talsvert yfir hálft þriðja þúsund,
rakstrarvélar nær 700 og mesti
sægur af plógum og herfum.
Verðmæti allra þessara véla og
verkfæra er afar mikið; sláttu-
vélarnar einar munu hafa kost-
að rösklega eina miljón króna.
* * *
Það orð hefir legið á, að um-
hirðu á þessum dýru verkfær-
um væri ærið óbótavant. Víða
hefir það átt sér stað, að þau
hafi verið látin dúsa þar yfir
veturinn, sem þau voru síðast
notuð sumarið áður. Maður einn,
sem ferðaðist norðan lands
snemma vetrar fyrir tveim eða
þrem árum, taldi í tveim sveit-
um sjö sláttuvélar og rakstrar-
vélar, sem hann á leið sinni sá
standa niðurfrosnar á túnum og
engjum. Og þetta mun ekki eins
dæmi. Ekki þarf að fara um það
mörgum orðum, hve slík meðferð
er fjarri allri skynsemd og hví-
lík sóun á verðmætum hún er.
Ending þessara véla er að miklu
leyti undir meðferð og umhirðu
komin. Nú, þegar allt þarf að
spara og borin von hvað hægt
verður að flytja inn, ekki sízt af
vélum, ættu menn að hugleiða
þetta.
* * *
Á sama hátt og jarðvinnslu-
og heyvinnuvélar ryðga oft og
tíðum og skemmast og ónýtast
miklu fyrr en eðlilegt er vegna
vanhirðu, fara margir verð-
minni hlutir forgörðum. Það eru
ekki undantekningar, heldur al-
siða, að vagnar, heygrindur,
heysleðar standi úti allan vet-
urinn. Margan bónda brestur
sjálfsagt húsrúm til þess að
geyma þessa hluti svo vel sem
skyldi og margir þurfa vagna
sína til daglegrar notkunar,
einnig að vetrinum. Engu að síð-
ur ríkir um þetta óþolandi hirðu-
leysi, sem mikið er hægt að bæta
úr. Ætli það ónýtist ekki líka á
ári hverju óþarflega mikið af
heyyfirbreiðslum, reipum og
fleiru slíku vegna trassaskapar?
Um bónda á Suðurlandi er sögð
sú saga, að eitt sinn hafi hnakk-
ur hans frosið niður á fjós-
haugnum um haust, en þar var
hann vanur að henda frá sér
reiðtýgjunum, þegar hann kom
úr ferðalögum. Að sjálfsögðu er
slíkt algerð undantekning, og
þess vegna á lofti haldið, en
ýmsir eru þó í hliöstæðum efn-
um í svipuðum sporum staddir
og þessi maður, sem átti hnakk-
inn sinn í vetrargeymslu á fjós-
haugnum.
vopni nota haka og kornsigðir.
Þýzkar fréttir segja, að nokkrir
menn hafi verið teknir fastir í
tékknesku héruðunum vegna
skemmdarstarfsemi.
Kopar
keyptur í Landssmiðjunni.
250; William McLeod Raine: Flóttamaðurinn frá Texas 251
— Ég hélt að þú myndir muna eftir
mér, sagði sá svolalegi, reif af sér
grímuna og hló grimmdarlega. — í
þetta sinn ætla ég að gefa þér ástæðu
til að minnast mín, einskonar for-
smekk helvítis, áður en ég hendi þér
þangað. Þú ert á mínu valdi, lagsmaður.
Taylor deplaði ekki einu sinni aug-
unum. Hann sagði ögrandi og dró
seiminn:
— Ég sé að þú stingur við, herra Oak-
land.
Andlit Oaklands varð purpurarautt
af reiði. Hann sló til vinstri hendinni
og stefndi á andlit fangans.
Taylor beygði sig, krepptur hnefinn
þaut fram hjá gagnauga hans og lenti
í málmklæðningi vagnsins. Höggið var
svo mikið, að stálið dalaðist.
Oakland öskraði af sársauka og reiði.
Hann greip hægri hendinni um háls
fangans til að kyrkja hann í greip sinni.
Flannigan hljóp til, greip um loðinn
úlflið húsbónda síns og reyndi af öllu
afli að losa takið.
— Hver skrattinn, Clem, stilltu þig,
hrópaði hann. — Við þurfum mannsins
með við það, sem við þurfum að gera,
dreptu hann ekki.
Oakland hrinti Flannigan svo fast til
hliðar með handleggnum, að hann
hraut upp að kletti, stóð þar upp við
andartak og lak síðan niður.
Þetta var samt nóg til þess, að morð-
fýsn Oaklands lægði. Hann beit tönn-
unum fast saman, til þess að reyna að
ná valdi yfir skapi sínu. Það sem Flanni-
gan sagði, var satt, hann þurfti á þess-
um manni að halda lifandi — — í
bráðina.
Rödd hans var loðin og þrungin
reiðiofsa, þegar hann tók til máls. —
Ég — ég skal rífa þig sundur, í tætlur,
ef þú narrar mig.
— Það ætti að vera auðvelt, úr því
að ég er með handjárn, sagði Taylor
háðslega.
— Þú hélzt að þú gætir haft mig að
fífli, án þess að fá það launað, öskraði
Oakland. Þú hélzt að þú gætir komið
þér í mjúkinn hjá Walsh og Prescott
með því að skjóta mig. Ég skal svei mér
sýna þér hvort þú getur haft Clem
Oakland að fífli.
Fyrirlitningin var augljós í augum
Taylors er hann svaraði:
— Maður getur ekki haft mann að
fífli, sem hugsar eins og þú, því að slík-
ur maður er það fyrir. Hvernig narraði
ég þig? Miðaðir þú ekki á mig byssu og
lagðir við dauðarefsingu ef ég ekki
fremdi morð fyrir þig? Ætlaðir þú
kannske ekki að skjóta mig eins og
KENNSLA.
Þeir sem hafa í huga að
koma börnum eða ungling-
um í kennslu til undirrit-
aðs næsta vetur geri svo
vel að tala við mig sem
fyrst.
Ilallgr. Jónasson
Sími 2653.
SHBPAUTCEPP
BrbhisbhsI
Vélskipið Helgi
hleður til Vestmannaeyja næstk.
föstudag. Tekur einnig farþega.
Losar viff bryggju í Eyjum.
T vennskonar
trúarbrögð
'Framh. aj 2. síðu)
friðnum og ráðizt á þjóð, sem
háði blóðuga styrjöld við fas-
ismann fyrir frelsi sínu og mætti
nú ætla, að kommúnistarnir hér
hefðu nú loksins séð hvert
stefndi. En því er ekki að heilsa.
Aldrei hafa þeir dýrkað Rússa
meira en nú. Aldrei hefir trú
þeirra á einræðisherranum frá
Moskva verið óbifanlegri en nú.
Þeir leggja bara hendur í skaut
sér og einblína á hann í frosinni
heimsku, gagndrepa af þræls-
ótta og segja: Yðar vegir eru
órannsakanlegir! Verði yðar
vilji!
„Skýringarnar“ á því, sem er
að gerazt, skortir þá auðvitað
ekki, þótt þær hafi að vísu aldrei
verið þær sömu frá degi til dags.
Niðurstaða þeirra hefir alltaf
verið á einn veg: Samningurinn
við Þjóðverja var gerður til þess
að berjast gegn „stríði og fas-
isma!“ Síðan hófst stríð. Samn-
ingurinn við Japani er líka gerð-
ur til þess að berjast gegn stríði
og fasimsa! Þeir hafa að
minnsta kosti fengið næði til að
drepa kínverska verkamenn.
Og auðvitað er innrásin í Pól-
land líka gerð til að berjast gegn
„stríði og fasisma“. Rússar hafa
nú allt í einu uppgötvað það, að
Pólverjar beittu rússneska
minnihlutann þar í landi ó-
heyrilegri kúgun. Hið sama
höfðu Þjóðverjar líka uppgötv-
að um þýzka minnihlutann í
Tékkoslóvakíu og nú síðast í
í Póllandi. Þessar „uppgötvanir"
þeirra virðast vera furðulega
skyldar.
Flestum heilvita mönnum
virðist trú kommúnista á að allt
þetta heiti barátta gegn stríði
og fasisma, líkust trú þess
manns, sem vaknar allt í einu
sannfærður um að hann sé orð-
inn keisari eða jafnvel guð al-
máttugur. Og slíkum mönnum
hefir ekki þótt hæfa nema einn
staður.
Hér hafa verið gerð að umtals-
efni trúarbrögð tveggja trú-
flokka. Og það er ekki að efa,
að kommúnistum finnst hinn
trúflokkurinn nauða lítilf jörleg-
ur. Þrátt fyrir það er trú hans
samanborið við trú kommúnista
jafn ólíkt og hvítt og svart.
Þeir, sem hafa laugað sig í
blóði lambsins, hafa að vísu ekki
haft stór orð um það, að berjast
gegn stríði og fasisma. Þeir hafa
því ekkert svikið. Þeir hafa fund-
ið hamingju sína í því, að trúa
á það, sem þeim finnst æðst og
göfugast. Og þeir vilja leiða aðra
með sér inn í dýrðina, án þess
að það sé á kostnað nokkurs.
Rússadýrkendurnir trúa aftur á
móti á málstað,sem hjálpað hefir
til að leiða yfir mannkynið hin-
ar dæmalausustu hörmungar. í
stað þess, að lauga sig í blóði
lambsins, lauga þeir sig í blóði
saklausrar þjóðar. Gegn slíkum
mönnum verður að hefja bar-
áttu, ekki méð vopnum, heldur
með fyrirlitningu.
T.
íslenzku
skákmemtirnii*.
(Framh. af 1. síðu)
Jón Guðmundsson 10 í 10 skák-
um, Einar Þorvaldsson 5 í 11
skákum og Guðmundur Arn-
laugsson 7 y2 í 10 skákum.
Mikið ánægjuefni má öllum
íslendingum vera þessi frammi-
staða skákmanna sinna.
-***GAML bÍÓ—~-*—-
Heimfararleyfi
gegn
drengskaparoröi
(„Urlaub auf Ehrenwort")
Framúrskarandi vel gerð
og áhrifamikil kvikmynd
er gerist á síðasta ári heims
styrj aldarinnar.
Aðalhlutv. leika:
ROLF MOEBIUS,
INGEBORG THEEK
og
FRITZ KAMPERS.
—— NÝJA BÍÓ—
Höfn þokunnar
Frönsk stórmynd, er gerist í I
hafnarbænum Le Havre og vakið i
hefir heimsathygli fyrir frábært 2
listgildi. Aðalhlutverkin leika: ?
Michéle Morgan i
og Jean Gabin
Höfn þokunnar er eftirtektar-
verð mynd. Hún kynnir okkur
margt, sem er okkur að ýmsu
leyti ekki eins gjörkunnugt og
skyldi, hún vekur samúð okkar
til lífsins, til þeirra, sem lenda !
í höfn þokunnar eftir að hafa |
barist á öldum hafrótsins í ;
mannlífinu. '%
Börn yngri en 16 ára fá ekki i
aðgang.
Kynnist franskri kvikmyndalist. !
Ttlkyniilng:.
Járniðnaðarpróf verður haldið í okt. n. k. Þeir, sem óska
að ganga undir það, sæki umsóknarbréf til
Ásgeirs Sigurðssonar
forstjóra í Landssmiðjunni.
SKÖMMTUN ARSKRIFS TOFA
RÍKISINS
Fríkirkjuvegi 11 (Rmdindisliölliii).
Afgreiðslutími kl. 10—12 og 13—15.
Viðtalstími forstjórans aðeins kl. 10—12.
Síiuar: 3946 og 4204.
Vegna vaxandi fyrirspurna um hvort endurtekiff verði
tilboff mitt um f jölbreytt heimilisbókasafn fyrir 10 kr., að
viffbættu einnar krónu burffargjaldi, vil ég enn gefa
mönnum kost á slíkum kjörum:
Steingrímur Thorsteinsson: Ljóðaþ. I. með mynd (208 bls.) og Ljóðaþ. II.
með mynd (58). Sawitri II. útg. með mynd (64). Sagan af Kalaf og keisara-
dótturinni kínversku (64). Eftir Axel Thorsteinsson: Börn dalannal.—/7.(198),
í leikslok, sögur úr heimstyrjöldinni 1.—2. útg. (148). í leikslok II. b. (58), Heirn
er liaustar, og nokkrar smásögur aðrar (96). Dokað við í Hrunamannahreppi og
Hannibal og Dúna (76). Greifinn frá Monte Christo I. b. (128), II. b. (164, III.
(192), IV. (176), — ítalskar smásögur I. (120). ítalskar smásögur II. (80
Ævintýri og smásögur með myndum (64). — Einstœðingur, hin ágæta saga
Margaret Pedler (504 bls.) og Ástarþrá, eftir sama höf. (354), líka falleg og
skemmtileg saga. Loks: Árgangur af Rökkri (heilir árg.) um 700 bls. — Hefir
nokkur boSið yður betri kjör? Pantendur sendi meðf auglýsingu og 11 kr. (ein
króna má vera í frímerkjum) í ábyrgðarbréfi (sendið ekki peninga í almennu
bréfi) — eða póstávísun og nægir að skrifa aftan á afklippinginn: Sendið
mér bækurnar samkv. tilb. Tímanum þ. 21. sept. 1939. Það er ódýrast að senda
peninga þannig og tryggt, en biðjið ávallt um kvittun fyrir póstávísun og
ábyrgðarbréf, til þess að fá leiðrétingu, ef nokkur vanskil verða.
í stað „Dokað við í Hrunamannahreppi" sem nú er uppseld kemur „Þöglar
ástir" eftir Musæus í þýðingu Steingr. Thorsteinssonar.
Virðingarfyllst.
AXEL THORSTEINSSON.
Sími 4558 Sellandstíg 1, niðri. Heima 7—9 síðd.
NB. — Notið þetta óvenjulega tækifæri fyrr en seinna, því að upplög bókanna
„Börn dalanna" og „Einstæðingur“ þrjóta fyrirsjáanlega á yfirstandandi ári.
THE WORLD#S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Neivspaper
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor
does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them,
but deals correctively with them Features for busy men and all the
family, including the Weekly Magazine Section.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston. Massachusetts
Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for
a period of
1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday issue, Including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25o
Name .
Sample Copy on Request
Til auglýsenda.
Tíminn er gefinn út í fleiri eintökum
en nokkurt annað blað á íslandi. Gildi
almennra auglýsinga er í hlutfalli við
þann fjölda manna, er les þœr. Tíminn er
öruggasta boðleiðin til flestra neytend-
anna í landinu. — Þeir, sem vilja kynna
vörur sínar sem flestum, auglýsa þœr
þess vegna í Tímanum
lnnlicimtumenn
Tímans.
Muniff aff haustiff er rétti tím-
inn til þess aff innheimta blað-
gjöld Tímans og vinna fyrir
hann á annan hátt. Haustiff
veitir mörg tækifæri til þess aff
hitta menn aff máli í réttum,
sláturtíff og á fundum og sam-
komum. — Tíminn er nú bezta
og ódýrasta blaff, sem fólk í
dreifbýlinu hefir völ á.
Vinnið ötullega
fyrir Tímann.
Sendiff innheimtu blaffsins í
Reykjavík greinargerff um inn-
heimtuna sem fyrst.
Hvert greitt árgjald er mikill
styrkur og hver nýr kaupandi
stór stuðningur.