Tíminn - 26.09.1939, Qupperneq 4
444
TÍMHVN, þrigjfndagiim 26. sept. 1939
111. blað
Yfir landamærín
1. Ef taka má nokkurt mark á Árna
frá Múla, ættu að vera tll nægar birgð-
ir í landinu af kornvörum óg kolum.
Árni segir, að allur galdurinn við að
hafa nægar vörur í landinu sé að láta
lnnflutninginn frjálsan, en þessar vör-
ur höfðu verið á frílista nokkra mánuði
áður en styrjöldin hófst.
2. Vísir læzt öðru hvoru vera með
sparnaði.En þú, þegar það er meiri þörf
fyrir þjóðina að spara erlendan varning
en nokkru sinni fyrr, leggur blaðið til
að allur innflutningur sé látinn frjáls,
svo kaupahéðnum sé mögulegt að flytja
inn allan mögulegan „skran”varning á
kostnað nauðsynjavara. Meiri óheilindi
er ekki hægt að hugsa sér en sparnað-
arhjal Vísis.
3. Mbl. þykist lika stundum vera með
sparnaði. En i dag leggur það til að
nokkrar ríkisstofnanir, sem yflrleitt
hafa verið mjög sparlega reknar, verði
lagðar niður og m. a. lagðar undir
mestu launaóhófsfyrirtækin í landinu,
en það eru Fisksölusamlagið og Eim-
skipafélagið. Það er ekki gott að segja,
hvort blaðið, Vísir eða Mbl., sýnir meiri
óheilindi i sparnaðarmálunum.
4. Þjóðviljinn er mjög kampakátur
yfir því að Hitler hafi ekki fengið allt
Pólland. En vel má Hitler vera ánægð-
ur yfir því að hafa náð yfirráðum yfir
stóru og allauðugu landssvæði með 17
millj. ibúa í stað þess að fá ekki neitt
eins og orðið hefði, ef hann hefði ekki
notið bandalags Bússa.
5. Ýmsir útvarpsnotendur hafa kvart-
að mjög undan því, að oft undanfarið
hefir mestur hluti innlendra frétta ver-
ið efnislítill vaðall, sem útvarpið hefir
haft eftir loðdýraræktarráðunautnum
og meginþorra almennlngs varðaði ekk-
ert um. Ef loðdýraræktarráðunauturinn
hefir endilega þurft að koma þessu á
framfæri, hefði mátt láta hann fá 10—
15 mín. til umráða á öðrum tíma. Hítt
er að misbjóða útvarpshlustendum að
bjóða þeim upp á slíkt sem fréttír kvöld
eftir kvöld.
x+y.
Skipting Póllands
(Framh. af 1. slðu)
Það virðist nú ljóst orðið, að
sklpting Póllands hafi verið á-
kveðin af Rússum og Þjóðverj-
um áður en styrjöldin hófst og
hefir m. a. Daladier forsætisráð-
herra fullyrt það í ræðu. Að vísu
sendu Þjóðverjar nýlega samn-
ingamenn til Moskva, sem
dvöldu þar örskamma stund, og
var látið heita að gengið væri
frá skiptingunni þar. Er talið, að
þetta hafi aðeins verið gert í
greiðaskyni við Rússa, til þess
að gera innrás þeirra afsakan-
legri.
Þrátt fyrir þetta samkomulag
er talið óvíst, að Rússar muni
veita Þjóðverjum verulegt lið í
styrjöldinni við Breta og Frakka.
Rússum er það áreiðanlega ljóst,
að Hitler myndi ekki til lang-
frama halda frið við þá, ef hann
sigraði Breta og Frakka. Sökum
mikils sleifarlags á hráefna-
vinnslunni og iðnaðinum, eru
þeir líka lítt aflögufærir á því
sviði, þar sem þörf Þjóðverja er
mest. Til þess að geta orðið vel
aflögufærir, þyrftu þeir að
njóta aðstoðar þýzkra verkfræð-
inga við skipulagningu og við-
reisn þessara atvinnugreina, en
ósennilegt er að þeir vilji verða
Þjóðverjum háðir á þann hátt.
Þótt Þjóðverjar hafi náð þriðj-
ungi Póllands á vald sitt, styrk-
ir það ekki verulega hernaðar-
aðstöðu þeirra í náinni framtíð
verður áreiðanlega það ófrið-
ÚR BÆNUM
í frásögn blaðsins
af vikurnáminu á Snæfellsnesi hefir
misritazt, að þurkhús þau, er komið
hefir verið upp hér í Reykjavík, taki
10 þúáund teningsmetra af vikri; þau
taka 10 þús. fermetra af steyptum vik-
urplötum. Vikurplöturnar eru látnar
þorna í þessum þurkhúsum áður en þær
eru notaðar. Hitaleiðslumar í bæjar-
kerfinu er fyrirhugað að einangra með
vikri og verður það gert með þeim
hætti, að vlkur verður látið i rennurn-
ar utan um pípumar, en ekki notaðar
til þess steyptar piötur.
Tveir lögregluþjónar
hafa í undirrétti’ verið dæmdir í
sektir fyrir handtöku Karls Jónssonar
læknis síðastliðinn vetur. Þeir hafa
áfrýjað dómnum til hæstaréttar.
Ostavikan
verður enn um nokkurra daga bil og
getur fólk því enn fengið keypta osta
við mjög lágu verðí.
Vegur eyðimerkurinnar.
í grein i Tímanum siðastliðinn laug-
ardag, er nefnist Vegur eyðimerkur-
innar, hefir misprentazt Suðurland
fvrir Suðurlendi.
Sirahei,
norska flutnlngaskipið, er leitaði hér
hafnar í byrjun stríðsins, fór héðan á
laugardagskvöldið.
Vetrarstarfsemi Leikfélagsins.
Leikfélagið mun innan skamms byrja
vetrarstarfsemi sína og verður fyrsta
leikritið, sem það sýnir á þessu hausti
eftir Loft Guðmundsson kennara í
Vestmannaeyjum og nefnist Brimhljóð.
Loftur er ættaður frá Þúfukoti í Kjós
og hefir fengizt við ýmsa þættl lista,
ljóða-, sagna- og leikritagerð, málara-
list og teikningar. Næsta leikrit verður
eftir Conan Doyle, leynilögregluleikrit.
Eftir nýár er í ráði að sýna leikrit, er
Lárus Sigurbjörnsson hefir samið upp
úr sögu eftir móður sína, Guðrúnu Lár-
usdóttur, og nefnist Á heimleið. Loks
verður sýnt leikrit eftir Gunnar Bene-
diktsson, er heitir „Að elska og að lifa“.
vænlegt í Póllandi, að Þjóðverj-
ar verða að hafa þar her til að
halda uppi reglu og Pólverjar
munu þrjózkast við, að hjálpa
þeim að ráði við framleiðslu
matvæla og annarra nauðsynja.
Á það er bent í enskum blöðum,
að Þýzkaland sé nú mun verr
statt en það var á heimsstyrj-
aldarárunum. Þjóðverjar höfðu
þá lengstum Belgíu, Norður-
Frakkland, Pólland allt, Eystra-
saltslöndin þrjú og nokkurn
hluta Ukrainu á valdi sínu og
höfðu þaðan öll hráefni og mat-
væli, ex þar voru fáanleg. Nú
er yfirráðasvæði þeirra langtum
minna og aðstaðan til að afla
hráefna að sama skapi verri.
Það virðist orðið ljóst, að
þýzku valdhafarnir hafa alið
þær vonir, að Bretar og Frakk-
ar myndu hætta stríðinu eftir
að Rússar og Þjóðverjar hafa
skipt Póllandi. Þýzk blöð segja,
að þýðingarlaust sé að reyna að
hjálpa Póllandi eftir að það sé
úr sögunni. Það er fyrst nú, sem
Þjóðverjar eru að komast að
raun um þá staðreynd, að þau
orð, sem Winston Churchill lét
falla í neðri málstofunni, þeg-
ar Chamberlain tilkynnti styrj-
aldaryfirlýsingu Breta, voru
sönn. En hann sagði: Styrjöldin
er ekki fyrst og fremst til að
hjálpa Póllandí, heldur til að
firra heiminn hinu nazistiska
ofríki.
Viðftal við rithöfund
(Framh. af 3. sidu)
leiðinlegur sá skáldskapur, sem
ætlað er að troða upp á mann
skoðun höfundar, hvort sem hún
er pólitísks, guðfræðilegs eða sið-
fræðilegs eðlis. Boðunin („tend-
ensinn“) má ekki hafa á sér á-
róðursblæ; hún verður að lýsa
eins og sál út úr svip listaverks-
ins, þannig nær hún bezt til-
gangi sínum. Annars er senni-
lega ekki hægt að setja listinni
neinar vissar reglur, hún er haf-
in yfir allar takmarkanir.
Framhald.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
hefir innlendu plöntuuppeldi
verið sinnt eftir því, sem aðstaða
hefir verið til, en þó engan veg-
inn svo, að enn hafi verið hægt
að fullnægja eftirspurn. Nú þeg-
ar stríð er skollið á og vafasamt
er að unnt verði að flytja trjá-
plöntur frá öðrum löndum, er
sérstök ástæða til að heita á á-
hugamenn og þá einkum skrúð-
garðaeigendur, um aðstoð við
plöntuuppeldi. Er þar auðveldast
við reyninn að eiga, fræið oft í
sjálfum garðinum, en aldrei svo
þröngt í garði, að ekki sé hægt
að fórna bletti í þessu skyni.
Reynifræinu er bezt að sá nú á
haustnóttum, nægilegt að hvert
frækorn hafi ferþumlung af
landi og sé aðeins hulið af mold.
Gott að afmarka fræreitinn með
fjölum, leggja mosa eða lyng
yfir hann að lokinni sáningu og
strengja síðan gisinn striga yfir.
Ungmennafélagar og aðrir á-
hugamenn, sem búa í nánd við
þroskavænlega birkiskóga, ættu
að beitast fyrir fræsöfnun í stór-
um stíl þegar á þessu hausti. —
Kemst heldur ekki skriður á
þessi mál, fyrr en allur almenn-
ingur ljær því lið, í orði og verki.
Breyftft viðhori
(Framh. af 1. síöu)
hefi líkað séð heilan hrepp, þar
sem svo mikið var lifað á heima-
fengnu og heimaunnu, að með-
alúttekt meðalheimilis var 372
krónur.
Ekki þori ég að segja um fólks-
fjölda á þessum meðalheimilum,
en ég hygg að hann sé ekki mjög
misjafn. En úttektin var mis-
mikil. Það er líka ráðgáta sum-
um bændum, sem mikinn fénað
hafa, hvetnig aðrir, sem hafa
fátt, kannske einar 40—50 ær,
sem þeir geta selt afurðir af,
geta lifað á því, án þess að safna
skuldum. En þetta heppnast
mörgum og þeim heppnast það
fyrst og fremst af því, að þeir
lifa eftir tveim meginreglum:
Að búa sem mest að sínu og
verzla sem minnst.
Að vera æfinlega öruggur með
fóður fyrir skepnurnar, svo að
þær geti sýnt fullt gagn.
Og þessar tvær höfuðreglur
eiga bændur landsins að hafa í
huga er þeir setja á heyin og
búa sig undir langan og harðan
vetur og þegar þeir leggja björg
í búin og gera innkaup til vetr-
arins. 17. sept. 1939.
Páll Zophoniasson.
M.s. Dronning
Alexandríne
fer að öllu forfallalausu á mið-
vikudag síðdegis til ísafjarðar,
Siglufjarðar, Akureyrar. Þeðan
sömu leið til baka.
Farþegar sæki farseðla í dag.
Tekið á móti vörum í dag.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
1 r
SKIPi ItUI rCERÐ
Vélskipíð Helgi
hleður til Veslmanna-
eyja á morgnn.
SÓLRÍK HERBERGI til leigu
á Bergstaðastræti 82.
HERBERGI óskast til leigu.
Upplýsingar 1 sima 4373._________
STÚLKA óskast í vist til Guð-
mundar Kr. Guðmundssonar
skrifstofustj., Bergstaðastr. 82.
Símaframkvæmdir.
(Framh. af 1. síðu)
síma yfir Holtavörðuheiði. Er bú-
ið að grafa jarðstreng niður á
20 kílómetra langri leið. Unnu
50—60 manns að því í tvo mán-
uði. Eindæma góð veðrátta auð-
veldaði mjög þetta verk.
Lagning nokkurra einkasíma,
sem fyrirhugaðir voru, er enn
ekki lokið. Til þess voru veittar
20 þúsund krónur sem að undan-
förnu og urðu 40 bæir styrks að-
njótandi í ár.
Rösklega 40 talstöðvum var
bætt við i báta og skip á árinu,
þar af voru 33 smiðaðar á verk-
stöðvum landsímans sjálfs.
Einnig lagði landsíminn til tal-
stöð í Esju og flugvélarnar Örn
og TF. Sux. Alls eru talstöðvar
landsímans orðnar um 300.
Ennfremur var settur nýtízku
fjarstýrður viðtökuútbúnaður í
loftskeytastöðvarnar í Reykja-
vík og Gufunesi fyrir talþjón-
ustu við skip og báta.
Við bæjarsímann í Reykjavík
hafa framkvæmdir orðið venju
fremur litlar í ár.
Frá sandgræðslu-
starfseminnf.
(Framh. af 1. síðu)
var, því að bæði var það venju
fremur snemmþroskað og mikið
af því.
— Má ekki nýta melkornið til
fóðurs eða jafnvel manneldis?
— í Skaftafellssýslu var það
áður malað og notað í soðkökur.
Samkvæmt efnagreiningum hef-
ir það meira næringargildi en
til dæmis rúgur. Á sama hátt
hefir melgras reynzt hafa meira
fóðurgildi en meðaltaða. En það
er erfitt að hreinsa kornið, hýð-
ið er þykkt og fyrirferðarmikið
og vantar tæki til að hreinsa það
og mala. Bændur hafa stundum
notað það til fóðurs handa hest-
um og láta vel af. Hænsnum
hefir það og verið gefið en þau
láta heldur illa við því.
Rætur melgrassins voru áður
notaðar á þá lund, að búnir voru
til úr þeim reiðingar.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
arlaginu, skömmu áður en hann æxlast.
Niðursuðan gekk vel og líkaði varan
vel, en framleiðslukostnaður hins vegar
svo mikill, að vanséð er hvort hægt
verður að keppa við erlenda framleið-
endur um niðursoðinn krækling. Enn
er óvíst, hvort gerð verður ný tilraun
með kræklinginn í vetur.
ÞÉR ættuð að reyna kolin og
boksið írá
Kolaverzlun
Slgurðar Olafssonar.
Símar 1361 og 1933.
.—GAMI BÍÓ———**
„Frú X“
Áhrifamikil og vel leikin
Metro-Goldwyn-Mayer-
kvikmynd, eftir hinu víð-
fræga leikriti ALEXAND-
RE BRISSON, sem leikhús-
gestir hér kannast við frá
því það var leikið hér fyr-
ir mörgum árum. — Aðal-
hlutv. leika:
GLADYS GEORGE,
WARREN WILLIAM
Og JOHN BEAL.
Börn, yngri en 12 ára, fá
ekki aðgang.
— NÝJA BÍÓ—’
Hertnr
til hetjndáöa
Amerísk kvikmynd frá
Columbia Film, sem er tví-
mælalaust langhlægileg- *
asta skemmtirnynd, er sést |
hefir hér í mörg ár.
Aðalhlutv. leikur hinn ó- |
viðj afnanlegi skopleikari I
JOE E. BROWN,
ásamt June Travis og Man j
Mountain Dean (heims- j
meistara í frjálsri glímu). ‘
Aukamynd: T
Þegar skyldan ballar. |
Amer. skopmynd, leikin af j
Andy Clyde.
258 Wllttam McLeod Raine:
mig nú! Þú mátt ekki fara þangað núna.
Molly svaraði þessu með því að slá í
Gypsy, svo að hann þaut á stökki upp
hallann. Það gat vel verið að Taylor
lægi þegar dauður á veginum, þarna
uppi í skarðinu. Hún varð að hraða sér,
hraða sér eins og hún gat. Hún kom
að gilinu og hélt upp með skriðunni.
Hún stanzaði, þegar hún sá vagninn, og
leit athugandi í kring um sig.
Enginn var sjáanlegur og ekkert
benti til að þarna hefði verið framinn
glæpur. Hún andaði léttara. En þá kom
hún auga á svartan klút, sem hafði ver-
ið notaður fyrir grímu. Hún fylltist aft-
ur ótta, þvi að á klútnum var blóð.
Molly beit á jaxlinn til að stilla sig.
Hún mátti ekki láta þetta gera sig skelk-
aða. Hún átti að einbeita sér til að
hjálpa fanganum, ef hjálpin kom þá
ekki of seint. Hún varð að hugsa skýrt
og ákveðið og mátti ekki láta geðs-
hræringuna hlaupa með sig í gönur.
Hvað myndi faðir hennar gera? Hann
myndi auðvitað rekja spor þeirra og
veita þeim eftirför. Hún steig af baki
og gekk varlega að vagninum. Sólar
naut sjaldan í gilinu, og jarðvegurinn
var þess vegna rakur eftir snjóinn.
Þarna var mikið af förum, sum þeirra
voru máð af öðrum, sem láu yfir þau.
Nokkuð af þessum förum hlaut að vera
Flóttamaðurinn frá Texas 259
eftir löggæzlumennina. Hún sá för eftir
tvo menn niður götuslóðann. Förin eftir
tærnar voru dýpri en förin eftir hæl-
ana, svo þau hlutu að vera eftir Martin
og félaga hans, en þeir forðuðu sér.
Önnur spor lágu til klettanna, til
hliðaT við götuna, og þeim fylgdi hún,
en fór gætilega. Faðir hennar myndi
brátt koma hingað og reyna að rekja
sporin. Hún vildi ekki gera honum erf-
iðara fyrir.
Henni- lá við að gefast upp, uppi i
klettunum, þvi að henni var ómögulegt
að sjá förin þar. í litlum bolla sá hún
merki þess, að hestar hefðu verið skild-
ir þar eftir, en hún sá ekki hvað margir.
En svo datt henni allt í einu 1 hug að
lilifra upp á einhvern klettinn á brún-
inni og þaut þegar af stað, stein af
steini. Hún leit 1 kring um sig og sá vítt
yfir, meðal klettóttra hæðanna.
Hún sá hóp fénaðar á beit í einum
dalnum, annað kvikt var ekki sjáan-
legt. Hún var í þann veginn að fara
niður aftur, þegar hún sá nokkuð, sem
kom henni til að hrópa upp yfir sig af
fögnuði. Þrír ríðandi menn komu upp
úr dalverpi í hæðunum, fóru yfir lágan
háls og hurfu niður i dalinn hinum
megin. Tveir þessara manna voru vopn-
aðir, því að Molly sá glampa á hlaup
rifflanna í sólskininu. Sá þriðji reið
Ný kennslubók í donskn
Eftir eand. mag. Ágúst Sigurðsson.
Bókin er byggð á nýjum kennsluaðferðum, og hefir
höfundur þar notið aðstoðar beztu kennara og mál-
fræðinga íslenzkra og danskra. í bókinni eru margar
fallegar myndir.
Fæst I öllum bókaverzlunum. — Aðalútsala:
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiöju.
Tilkynnín
tíl leígusala og leígutaka í Reykjavík.
Menn eru alvarlega áminntir um það, að koma með leigu-
samninga um húsnæði, gerða eftir 4. apríl s.l., til húsaleigunefhd-
ar til samþykktar og ennfremur að láta nefndina meta leigu eftir
ný hús og húsnæði, sem ekki hefir verið leigt áður.
Menn mega búast við að verða látnir sæta sektum fyrir van-
rækslu í þessu efni.
Nefndinni sé látið í té samrit eða eftirrit leigusamninga, sem
komið er með til samþykkis.
Viðtalstími nefndarinnar er á hverjum mánudegi og mið-
vikudegi kl. 5—7 síðdegis í bæjarþingstofunni.
Reykjavík, 25. sept. 1939.
HttSÁLEIGIJXEFND.
inllfiliiFnr -
llliiztliriliifnr.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
E.i. „ED»Aét
hleður væntanlega í Genoa, Livorno og Neapel dagana 21. til 31.
október til Reykjavíkur.
Umboðsmenn á öllum höfnum Northern Shipping Ageney.
Vegna takmarkaðs phiss í skipinu óskast
tilkynningar um vörur SENDAR OSS SKRIF-
LEGA þegar í stað.
GUNNAR GUÐJÓNSSON
skipamiðlari. — Símar 2201 og 5206.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
1 heUdsölu hjá
Samband ísl.samvinnufélaga
Sími 1080.