Tíminn - 28.09.1939, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR :
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUIÍÚSI, Llndargötu 1 D.
Simi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 23. sept. 1939
112. blað
Mynd þessi er tekin í Laxárgljúfri, þar sem reist hefir verið hin nýja raf-
stöð Akweyrarbœjar, miðja vegu milli stöðvarhússins, er sézt á miðri mynd-
inni, og árstlflunnar. Einnig sést greinilega vatnsleiðslan frá stíflunni að
stöðvarhúsinu. Fram úr gljúfrinu sést niður í Aðaldal.
Rafstöðin víð Laxá tekur
til staría innan skamms
Viðtal við Stein Steinsen
bæjarstjóra á Akureyri
Virkjun Laxár að Brú-
um í Suður-Þingeyjarsýslu
er nú senn lokið og líklegt
að hin nýja rafstöð taki til
starfa um miðjan næsta
mánuð. — Steinn Steinsen
bæjarstjóri á Akureyri hefir
verið á ferð hér syðra ný-
lega. Átti tíðindamaður
Tímans tal við hann og fara
hér á eftir helztu atriði þess
samtals snertandi Laxár-
virkjunina og aflstöðina þar.
— Á framkvæmdunum við
Laxá var byrjað miðsumars í
fyrra, mælti bæjarstjórinn. Var
þá stöðvarhúsið byggt að mestu
og frárennslisskurður úr því að
ánni grafinn að mestu og vegur
lagður frá því að árstíflunni.
í vor og sumar hefir verið unn-
ið að því aö ganga frá húsinu,
stíflan steypt, leiðslur lagðar frá
henni að stöðvarhúsinu og lokið
við frárennslisskurðinn. í sum-
ar voru einnig lagðar leiðslurn-
ar frá Laxárstöðinni til Akur-
eyrarbæjar og verða þær með 30
þúsund volta spennu. Vega-
lengdin er um 60 kílómetrar.
Enn er að sjálfsögðu eftir að
leggja síðustu hönd á ýmislegt
við stöðina.
— Hvenær tekur stöðin til
starfa?
Verzlunarfulltrúí
Islands í Ameríku
Vilhjálmur Þór bankastjóri
hefir orðið við þeim tilmælum
ríkisstjórnarinnar að verða
verzlunarfulltrúi íslands í
Bandaríkjunum fyrst um sinn.
Hafði Vilhjálmur ætlað sér að
koma heim fyrir áramót, en
hefir nú frestað heimförinni af
þessum ástæðum um óákveðinn
tíma.
Fyrir atbeina Vilhjálms hefir
samningum um sölu Faxasíldar
til Ameríku fengizt breytt þann-
ig, að nú má selja fleirum en
þeim kaupanda, sem upphaflega
var samið við, og verður þetta
vafalaust til þess að hægt verð-
ur að auka söluna.
— Það hefir svo verið ráð fyr-
ir gert, að hægt verði að hefja
starfrækslu stöðvarinnar um
miðjan októbermánuð. Ég býst
við að hægt verði að framfylgja
þeirri fyrirætlun.
— Hafði það verið lengi í ráð-
um, áður en til framkvæmda
kom, að Akureyrarbærinn léti
reisa nýja og aílmikla rafmagns-
stöð?
— Um nokkurra ára bil hafði
verið um stórfelldar fram-
kvæmdir hugsað í rafmagnsmál-
um kaupstaðarins. Var á þeim
árum rannsökuð aðstaða til
virkjunar ýmissa fallvatna.
Meðal annars var um skeið helzt
ráðgert að virkja hluta af Goða-
fossi í Skjálfandafljóti og voru
gerðar ýmsar mælingar þar til
að byggja á í því efni. Síðar var
þó að því horfið, að ráði sérfræð-
inga, að virkja Laxá hjá Brúum,
þar sem hún brýzt fram úr Lax-
árdalnum niður í Aðaldal, aust-
an vert við Grenjaðarstað.
— Hve aflmikil er nýja raf-
stöðin?
— Hún er miðuð við 4 þúsund
hestafla orku. Fyrst um sinn
verður þó aðeins höfð ein 2 þús-
und hestafla vél, en ef þörf kref-
ur rná bæta við annarri slíkri
vél, án þess að þurfa að hrófla
(Fravih. á 4. síðu)
Fyrstu hrúta-
sýningrarnar
23 hrálar fengu fyrstu
▼erdlaun í Hruna-
mannahreppi
Hrútasýningar verða haldnar
á Suðurlandi í haust og eru
fyrstu þrjár sýningarnar af-
staðnar. Voru þær í Hruna-
mannahreppi, Gnúpverj ahreppi
og á Skeiðum.
Halldór Pálsson sauðfjárrækt-
arráðunautur dæmdi um hrút-
ana á sýningunum.
Á sýningunni í Hrunamanna-
hreppi, er var hin fyrsta, voru
sýndir 87 hrútar og hlutu 23
þeirra fyrstu verðlaun. Munu
aldrei svo margir hrútar úr sömu
sveit hafa hlotið fyrstu verð-
laun á sömu sýningu áður.
Á þessari sýningu bar mest á
góðum hrútum af tveim kynj-
um, þingeysku fjárkyni og
Kleifakyni. Frá engu einu heim-
ili voru ættaðir jafnmargir hrút-
ar, er fengu fyrstu verðlaun, sem
Hrafnkelsstöðum. Hlutu fyrstu
verðlaun átta hrútar undan
Norðra á Hrafnkelsstöðum, en
hann var kynjaður frá Hellu-
vaði í Mývatnssveit. Einnig voru
þarna nokkrir mjög góðir hrút-
ar frá Sóleyjarbakka, er fengu
fyrstu verðlaun, af þingeysku
kyni. Sömuleiðis voru þar fram-
úrskarandi góðir hrútar af
Kleifakyni og fluttist það fjár-
kyn að Núpstúni í Hrunamanna-
hreppi frá Ólafsdal fyrir nokkr-
um árum.
Á sýningunni var keppt um
silfurskjöld, sem er fenginn þeim
til varðveizlu, er álízt eiga bezta
hrútinn, sem sýndur er. Grip
þenna hefir Helgi Haraldsson
bústjóri á Hrafnkelsstöðum gef-
iö. Var í fyrsta skipti keppt um
hann á hrútasýningunni 1934 og
hreppti hann þá hrútur af
Kleifakyni frá Guðmundi Guð-
mundssyni bónda í Núpstúni.
Nú vann skjöldinn þrevetur
hrútur, Núpur að nafni, eign
Sveins Kristjánssonar í Efra-
Langholti. keyptur lamb frá
Núpstúni. Eru þeir báðir undan
sama hrút, Óðni frá Ólafsdal,
Núpur og sá, er skjöldinn hlaut
1934.
(Framh. á 4. síðuj
Stórveldísdraumar Rússa
Daginn, sem rússneski herinn
réðist inn í Pólland, skrifaði
M:me Tabouis, sem er heims-
fræg fyrir skrif sín um utamík-
ismál, í franska blaðið Oeuvre:
„Vorosjiloff yfirhershöfðingi er
talinn hafa verið þeirrar skoð-
unar, að Sovét-Rússland ætti
að nota fljótt það tækiíæri, sem
pólsk-þýzka styrjöldin bauð, til
að endurheimta hin töpuðu lönd
Rússa, Pólland, Estland, Lett-
land og Lithauen".
Hinn frægi franski blaðamað-
ur Petinax lét einnig sömu
skoðun í Ijós.
Auk þess kom sú skoðun fram
í ýmsum blöðum, að Rússar
myndu einnig heimta Bessara-
bíu frá Rúmeníu, en hana urðu
þeir að láta af hendi nokkru
eftir heimsstyrjöldina. Bessara-
bía er landbúnaðarhérað með
um 3 millj. íbúa og er 50% þeirra
Rúmenar og 30% Ukrainumenn.
Miklar horfur virðast til að
spádómar þessir muni rætast og
að Estland verði fyrsta fórnar-
lamb Rússa, næst eftir Póllandi.
Rússar nota það tilefni til að
hefja deilur við Estlendinga, að
pólskur kafbátur, sem kom til
Tallin í Estlandi, slapp þaðan
aftur, þrátt fyrir bann yfirvald-
anna. Estlendingum féll þessi at-
burður svo þungt, að yfir-
flotaforinginn varð að láta af
völdum,- Þetta létu Rússar sér
ekki nægja og ásökuðu Estlend-
inga um hlutleysisbrot og gerðu
ýmsar kröfur, sem estlenzka
stjórnin mun hafa talið ósam-
rýmanlegar sjálfstæði landsins.
Hefir estlenzki utanríkisráðherr-
ann farið tvívegis til Moskva síð-
an þessi atburður varð og dvelur
hann þar nú. Þykir sennilegt, að
Rússar hafi gert úrslitakröfur
um að gera Estland að einskonar
leppríki þeirra. Fregnir herma,
að Rússar hafi dregið saman
allmikinn her við landamærin.
Estlenzki hershöfðinginn hef-
ir lýst yfir því, að Estlendingar
rnuni berjast með vopnum, ef
þörf krefji.
Estland er minnst af Eystra-
saltsríkjunum svonefndu. Þar
er ágæt höfn, Tallin. Það, sem
fyrir Rússum vakir með undir-
okun Eystrasaltsríkjanna, er að
hafa greiðan aðgang að Eystra-
A. KROSSGÖTUM
Samanburður á geldingum og hrútlömbum. — Brennisteinsverksmiðjan
endurreist. — Þyngd sláturdilka. — Haustveðráttan. — Ensk hernaðarflug-
----- vél á Raufarhöfn. — Sundnámskeið fyrir sjómenn. -
Halldór Pálsson sauðfjárrœktarráðu-
nautur hefir gengizt fyrir því, að gera
í ár ítarlega rannsókn um hvort fjár-
hagslegur ávinningur sé að því fyrir
bændur að gelda hrútlömbin á vorin.
Hafa nokkrir bændur veitt honum lið í
þessu efni, svo að hægt væri að efna
til nægjanlega umfangsmikilla og á-
byggilegra tilrauna. Bændur og aðrir
hafa verið skiptra skoðana um það,
hvort að því væri vinningur eða tap
að gelda hrútlömbin. Ætlun Halldórs
er að rannsaka þetta vísindalega og
komast að öruggri niðurstöðu um
deiluatriðið. Mun hann bæði gera sam-
anburð um skrokkþyngd og kjötgæði
geldingslamba og finna þann mismun,
sem að öðru leyti kann að vera á af-
urðunum. Endanlegar niðurstöður fást
þó ekki af þessum rannsóknum fyr en
í vetur, því að þær krefjast mikillar
og langvarandi vinnu við margháttað-
an samanburð. Tilraunir þær, sem
hingað til hafa verið gerðar hér á landi
um þetta, og einstaklingar hafa staðið
að, hafa hins vegar ekki verið svo ná-
kvæmar, umfangsmiklar eða byggzt á
svo traustum grundvelli, að árangur af
þeim sé óyggjandi. Nú hefir öllu verið
svo til hagað, bæði um val tilrauna-
lamba og annað, að hvergi brestur á
um ítrustu nákvæmni.
t t t
Þegar brennisteinsverksmiðjan í
Námaskarði brann, er hún var nýtekin
til starfa, var ákveðið, að hún skyldi
endurbyggð undir eins í haust. Var þeg-
ar hafizt handa um framkvæmdir. Er
nú langt komið að byggja yfir áhöld
verksmiðjunnar og er sú bygging öll úr
steinsteypu, jafnvel þakið steypt. Þess
er vænzt, að verksmiðjan geti tekið til
starfa að nýju áður en langt um líður.
t t t
Sláturtíðin stendur nú sem hæst um
allt land. Samkvæmt upplýsingum frá
kjötverðlagsnefnd hefir meðalþungi
dilkakroppa reynzt yfir 17 kílógrömm,
það sem af er haustslátruninni, á þess-
um stöðum: Hólmavík, Borðeyri,
Hvammstanga, Borgarnesi og Búðar-
dal. Að Hurðarbaki í Borgarfirði er
slátrað á vegum Kaupfélags Borgfirð-
inga. Vænsti dilkurinn, sem hefir verið
slátraö, var frá Gunnlaugsstöðum í
Stafholtstungum og hafði 27% kg.
kjöts. Mun það eins dæmi þar um slóð-
ir. Að því er séð verður, af þeim
skýrslum er fyrir liggja, virðist slátur-
féð vera viðlíka vænt nú og í fyrra, en
þá skaraði það mjög fram úr því er
verið hafði nokkur undanfarin ár.
t r t
Haustveðráttan hefir til þessa verið
hin ákjósanlegasta um land allt. Al-
títt mun að byrjað sé að gefa kúm
með beitinni um réttaleytið, ef þá er
hægt að beita þeim nokkuð vegna ó-
veðra. En nú er tíðarfar svo blítt, að
ekki hefir enn þurft að gefa þeim og
getur það dregið nokkuð og verið góð
endalok þessa ágæta heyaflasumars, ef
svo helzt nokkuö fram yfir mánaða-
mótin, að ekki þurfi að grípa til veru-
legrar heygjafar. Að sjálfsögðu njóta
þó þeir kúaeigendur, er hafa þröng eða
ofsetin beitilönd, þessa ekki jafnmikið
og aðrir. Gróður er enn furðulítið söln-
aður, þótt snemma tæki að gróa í vor,
og þess vegna kjarnbetri heldur en
ætla mætti að óreyndu. Einnig er
það alsiða að nota hána á túnunum
til beitar handa kúnum í lok beitar-
tímans, þegar öllum eftirslætti er
lokið.
r t r
Samkvæmt fregnum frá skrifstofu
sýslumanns Þingeyinga og frá Raufar-
höfn nauðlenti stór, brezk hernaðar-
flugvél við Raufarhöfn í fyrradag
nokkru eftir hádegi. Samkvæmt fyrir-
mælum stjórnarvaldanna og ákvæðum
hlutleysislaga hefir flugvélin verið
kyrrsett þar, að minnsta kosti til
bráðabirgða. Hefir flugforinginn bund-
izt heitorðum að flýja ekki brott. Flug-
vél þessi mun vera allstór, tveggja
hreyfla og með níu manna áhöfn. Hún
mun hafa verið í eftirlitsleiðangri yfir
hafinu, en villst vegna dimmviðris.
Fimm klukkustundir voru sagðar um-
liðnar frá því, að hún lagði af stað frá
Englandi, þar til hún lenti við Raufar-
höfn. Agnar Kofoed-Hansen fór norður
til Raufarhafnar í gær til þess aö ráða
ráðum sínum við hina ensku flugmenn
um hvernig ætti að firra flugvélina
skemmdum og stóð til að færa hana
hingað suður, þar eð tæpast munu tök
á að koma henni örugglega fyrir
nyrðra. (Frh. á 4. síðu.)
A uppdrcettinum eru þau lönd, sem
Rússar misstu eftir heimsstyrjöldina,
merkt með svörtum lit. Svarta rœman
nyrzt í Rúmeníu er Bessarabía.
salti og að Þjóðverjar geti ekki
gert þau að bækistöðvum fyrir
sig, því þrátt fyrir öll vináttu-
merki grunar Stalin Hitler enn
um græzku.
Finnar fylgja þessum viðskipt-
um Estlendinga og Rússa með
mikilli athygli. Ef stórveldis-
draumar Stalins færast í auk-
ana, hafa Finnar það að óttast,
að Rússar reyni að tryggja sér
íslausar hafnir við Atlantshaf,
en láti sér ekki nægja aðgang
að innhöfum. En þá er ekki um
annað að ræða en að þeir leggi
undir sig Norður-Finnland o g
Norður-Noreg.
Rúmenar eru einnig mjög
skelfdir yfir hinum mikla liðs-
safnaði Rússa við rúmensku
landamærin. Hafa Rúmenar
því kvatt aukið herlið til vopna
og sent það til landamæranna.
Mikla athygli vekja ferðalög
utanríkisráðherra Tyrkj a og
Ribbentrops til Moskva, en þeir
eru nú báðir staddir þar. Fór
tyrkneski ráðherrann á undan
og er það talið erindi hans, að
fá Rússa til að gerast einskonar
verndarar bandalags, sem Bal-
kanríkjaþjóðirnar og Ungverja-
land mynda. Er Þjóðverjum vit-
anlega mjög illa við þessa ráða-
gerð og fór Ribbentrop því
skyndilega til Moskva og kom
hann þangað með miklu föru-
neyti í gær. Er frétta af þeim
viðræðum, sem nú fara fram í
Moskva, beðið með mikilli. ó-
þreyju um allan heim.
Það er því af sem áður var,
þegar heita mátti, að Rússar
(Framh. á 4. síðu)
Aðrar fréttir.
Varnarliðið í Varsjá gafst upp
í gær eftir 22 daga vörn, sem
telja má einhverja hina hetju
legustu í allri veraldarsögunni.
Meira en helmingur borgarinnar
er í rústum, vatnsból borgarinn-
ar hafa verið eyðilögð og var
óttast að drepsótt myndi gjósa
upp þá og þegar. Varnarliðið
taldi þýðingarlaust að halda
vörninni lengur áfram. Samn-
ingar standa nú yfir og þykir
líklegt að Þjóðverjar fari ekki
inn i borgina fyr en á morgun.
Ameríski blaðamaðurinn, Hu
bert Knickerbocker, hefir nú
blaðinu „Paris Soir“ ítarleg
sönnunargögn fyrir því, að sjö
foringjar nazista hafi komið
fyrir um 7 milj. steringspunda í
bönkum utan Þýzkalands. Göbb
els hafði véfengt fyrstu frásögn
hans og skorað á hann að birta
sannanir. Hefir Knickerbocker
nú orðið við þeirri áskorun. Hitl-
er er ekki meðal þessara gjö.
Fréttastofa Reuters hefir ný
lega birt viðtal við pólskan her
foringja, sem segir, að innrás
Rússa í Pólland hafi verið hafin
þegar horfur voru orðnar fyrir,
að pólski herinn myndi geta veitt
(Framh. á 4. síðui
A víðavmngi
Kaffidrykkja hefir til þessa
verið mjög mikil hér á landi. Á-
vallt þegar gest ber að garði,
er kaffi fyrst fram borið. Hvenær
sem fólk neytir einhvers utan
venjulegra máltíða, er gripið til
kaffikönnunnar. Oft á dag hefir
lótt sjálfsagt að hressa sig á
kaffi. Næstu missiri má gera
ráð fyrir að hörgull verði á kaffi
hér á landi og víst er, að fólk
verður að draga neyzlu þess viö
sig til mikilla muna nú um langa
hríð. f sjálfu sér ætti það til
engra óþæginda að leiða og er
jafnvel furðulegt, að íslendingar
skyldu ekki stilla kaffinotkun-
inni meira í hóf en gert var, enda
þótt engin nauð ræki þá til þess.
Jafnhliða því, sem hætt verður
að drekka kaffi, á mjólkurneyzl-
an að aukast mjög mikið, þó sér-
staklega í bæjum og kauptúnum.
Hér í Reykjavík er starfsfólk
ýmissa stofnana, þar á meðal
Landsbankans og Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis, farið
að drekka mjólk á þeim tímum
dags, er það áður drakk kaffi.
Næstu vikur verður sú siðvenja
tekin upp miklu víðar og er gott
til þess að vita. Að sama skapi
á notkun mjólkur í heimahúsum
að aukast. Er fátt svo með öllu
illt, að ekki fylgi nokkuð gott, og
bót er það í máli, ef þrengingar
stríðsins kenna okkur íslending-
um ýmsa góða siði um mataræði
og betri en við höfum áður til-
einkað okkur.
* * *
Að gefnu tilefni þykir rétt að
taka það fram, að sé þurrð á
skömmtunarvörum hjá einhverri
verzlun og þeir, sem hafa haft
skipti við hana, geta þess vegna
ekki fengið þær vörur þar, hafa
þeir fullan rétt til þess að fá þær
í öðrum verzlunum, sem hafa
þær á boðstólum. Verði menn
fyrir einhverri ógreiðvikni eða
stirfni í þessum efnum, ættu þeir
að gera skömmtunarskrifstofu
bæjarins eða ríkisins aðvart.
* *
Frá öllum hinum hlutlausu
löndum Evrópu berast stöðugar
fréttir um aukið eftirlit ríkis-
valdsins með utanríkisverzlun-
inni og víða hefir vexið komið á
víðtækum innflutningstakmörk-
unum. Þannig hafa t. d. Finnar
bannað innflutning ýmsra vara
og aðrar má ekki flytja inn,
nema með leyfi ríkisvaldsins.
Engin innflutningshöft voru í
Finnlandi áður. Svíar ætla að
reyna að fylgja því fyrirkomu-
lagi, að fá útflutningsafurðir
sínar aðallega greiddar með þeim
vörum, sem þeir þurfa að flytja
inn, og geta þeir þannig fylgzt
vel með innflutningnum. Þess-
ar ráðstafanir hlutlausu land-
anna að láta ríkisvaldið beint
og óbeint taka utanríkisverzl-
unina í sínar hendur þykja ó-
hjákvæmilegar öryggisráðstaf-
anir, enda þótt mjög margir telji
slíkt fyrirkomulag óheppilegt á
venjulegum tímum. Af hálfu
kaupsýslumanna virðast þessar
ráðstafanir yfirleitt mæta full-
um skilningi, enda þótt þær
brjóti að ýmsu leyti í bága við
hagsmuni þeirra. í blöðum kaup-
sýslumanna í þessum löndum
birtast heldur ekki þær kenn-
ingar, að réttast sé að hafa allt
frjálst og óheft, enda þótt ein-
hverjir þeirra kynnu að geta
grætt á slíku fyrirkomulagi.
Enska Slugvélm
strokln
Rétt um það bil, sem blaðið
fór í prentun, kom sú fregn frá
Raufarhöfn, að ensku flugmenn-
irnir, sem nauðlentu þar í fyrra-
dag, hefðu árdegis í morgun
strokið brott. Áður hafði flug-
foringinn bundizt heitorðum að
flýja ekki burtu.
Samkvæmt þeim fregnum, sem
borizt hafa, hóf flugvélin sig til
(Framh. á 4. síðu)