Tíminn - 31.10.1939, Page 4
TlMINN, þrigjjiidagfim 31. okt. 1939
504
126. blaff
Yflr landamœrin
1. Árni frá Múla er að reyna að telja
framleiðendum trú um, að þeir eigi
samleið með heildsalastéttinni. Það er
mjög ósennilegt, að þeir framleiðendur
séu til, er láta glepjast af þessari slepju
Árna. Þeir muna eftir krónuhækkun-
inni, sem kaupmennirnir fengu fram-
kvæmda á stjórnarárum íhaldsins. Þeir
vita að markmið heildsalana er að okra
sem mest á vöruverðinu, en af því leiðir
kröfur um hærra kaupgjald. Þeir hafa
jafnframt daglega fyrir augunum á sér,
hversu grálega þeir eru leiknir af heild-
sölunum, þar sem er Árni frá Múla
sjálfur. Nauðþrengdir útgerðarmenn
hafa um langt skeið þurft að hafa Áma
á framfæri sínu og framfærið hefir
hann endurgoldið með því einu, að
skrifa fyrir kaupmennina gegn hags-
munamálum útgerðarmanna eins og t.
d. krónulækkuninni I vetur. Ekkert
sýnir betur niðurlægingu framleiðend-
anna í Sjálfstæðisflokknum en það, að
þeir eru látnir ala önn fyrir manni,
sem ver öllum kröftum sínum til að
vinna fyrir heildsalana gegn hagsmun-
um framleiðenda.
2. íhaldsblöðin halda áfram að tala
um sparnað. Enn hefir þó enginn orðið
var við sparnaðinn hjá Fisksölusam-
laginu, Reykjavíkurbæ eða Eimskipa-
félaginu.
3. Seinasta Jínan", sem kommún-
istablaðið hefir fengið, er sú, að þjóð-
st.iórnin hafi verið sett á laggirnar til
að „svelta þjóðina" og því séu and-
stæðingum hennar vitanlega leyfilegt
að beita hverskonar baráttuaðferðum
gegn slíku meinvætti!
x+y.
Yfirráðin á hafinu
(Framh. af 1. síðu)
smál.) og 41 smærra skip. Alls
áttu þeir 133 herskip, sem voru
samtals 240 þús. smál. Á næstu
þremur árum var ætlunin að
fullljúka 3 stórum orustuskip-
um, tveim flugvélaskipum, 5
beitiskipum, 29 tundurspillum
og 22 kafbátum. Eftir þann
tíma átti þýzki flotinn að vera
orðinn 475 þús. smál.
Sovét-Rússland: Rússar áttu
í seinustu árslok 3 orustuskip
(70 þús. smál.), 7 beitiskip (46
þús. smál.), 39 eltingarskip og
tundurspilla (49 þús. smál.),
160 kafbáta (81 þús. smál.) og
60 smærri skip. Alls áttu þeir
259 skip, sem voru samtals 265
þús. smál. Á næstu þremur ár-
um var ráðgert að ljúka smíði
tveggja orustuskipa, þriggja
flugvélaskipa og þriggja beiti-
skipa.
Síðan um áramót hafa verið
fullgerð nokkur skip, sem þá
voru í smíðum, en það mun ekki
raska stærðarhlutföllum milli
flotaeignar þessara ríkja. Einn-
ig hefir verið ákveðin smíði
nýrra skipa, m. a. hafa Þjóð-
verjar ákveðið að auka kaf-
bátaflota sinn að miklum mun.
Geta má þess, að allmörgum
herskipum Bandaríkjanna hefir
tfR BÆXUM
Framsóknarfélag Reykjavikur
heldur fund í Kaupþingssalnum ann-
að kvöld kl. 8.30. í fundarbyrjun mun
Jónas Jónsson gera stuttlega grein fyrir
horfum í stjómmálum og ástandi at-
vinnumálanna. Síðan verða framhalds-
umræður frá síðasta fundi um málefni
bæja- og sveitafélaga og tekur for-
sætisráðherra fyrstur til máls.
Farfuglafundur
verður í Kaupþingssalnum í kvöld.
Hefst klukkan 8,30. Ungmennafélagar
eru minntir á að fjölmenna.
M. A. kvartettinn
söng í Gamla Bíó síðastliðinn sunnu-
dag fyrir fullu húsi, og fékk eins og
æfinlega ágætar viðtökur áheyrenda.
Voru þeir félagar margklappaðir fram
og urðu að syngja nokkur aukalög.
Bjarni Þórðarson aðstoðaði við undir-
leik.
Ekið fram af bryggju.
Um miðjan dag í gær bar það til,
að vörubifreiðin R. 1267 ók fram af
Loftsbryggju. En um leið og bifreiðin
féll í sjóinn hrökk önnur hurðin upp
og komst bifreiðarstjórinn út og bjarg-
aðist. Bifreiðinni hefir verið náð upp
aftur.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Thyra Olsen og Sveinbjörn
Finnsson hagfræöingur.
Blaðamannafélag íslands
efnir til kvöldvöku að Hótel Borg á
föstudagskvöldið kemur. Verða þar
ýms ágæt skemmtiatriði. Meðal annars
syngur M.A.-kvartettinn, Tómas Guð-
mundsson les upp kvæði, Alfred And-
résson syngur nýjar gamanvísur, tvær
telpur leika á gítar og syngja, Björn
Ólafsson leikur á fiðlu og hljómsveit
Jack Quinets leikur fáein lög. Ymislegt
fleira verður til skemmtunar. Að síð-
ustu verður dansað. Kvöldvakan hefst
klukkan 9.
Rithöfundakvöld.
Norræna félagið hefir gengizt fyrir
rithöfundakvöldi, sem haldið verður
að Hótel Borg á miðvikudagskvöldið.
Munu þrír af þekktustu rithöfundum
landsins lesa þar upp úr ritverkum
sínum og eitt ljóðskáld flytja kvæði.
Rithöfundarnir eru Guðmundur G.
Hagalín, Kristmann Guðmundsson og
Halldór Kiljan Laxness, en ljóðskáld-
ið Tómas Guðmundsson. Á eftir upp-
lestrinum verður dansað. Samkoman
hefst kl. 8.30.
verið lagt upp seinustu árin og
hafa þau því ekki nýtízku út-
búnað og myndi það taka tals-
verðan tíma og mikið fé að
koma þeim í nýtízku horf. Þeg-
ar tillit er tekið til þessa verð-
ur brezki flotinn langsamlega
öflugastur.
Eins og þessar tölur sýna, eiga
Rússar flesta kafbáta. En þeir
eru flestir litlir og ætlaðir til
notkunar á innhöfum. Þannig
eiga þeir t. d. helmingi fleiri
kafbáta en Frakkar, en sam-
anlögð smálesta stærð þeirra er
svipuð og frönsku kafbátanna.
Einar Jónsson
myndhöj4gvari.
(Framh. af 3. síðu)
sonar frá síðari árum hans, sem
allar eru meira eða minna gegn-
sýrðar af hinu nýja viðhorfi
hans, indverskri speki og dul-
hyggju. Gestir og góðvinir
spyrja listamanninn af og til
hvað sé bak við þessar líkingar.
Hann svarar með góðlátlegu
brosi, að ef hann væri rithöf-
undur, þá mundi hann skýra
hugsun sína með orðum. Hann
lætur menn hafa fyrir því að
skilja hans mál, þegar stein-
arnir tala, eða vera án svars,
þar sem dulrúnir hans verða á-
horfendum ofurefli.
Fyrir nokkrum árum hefir
Einar Jónsson gert eina konu-
mynd, sem lengi mun verða
minnst, af frú Önnu, konu
sinni, í fullri stærð. Þessi mynd
er í einu mjög lík hinni ágætu
dönsku konu, sem fylgdi boðum
ritningarinnar, yfirgaf föður
sinn og móður, land sitt og ætt-
ingja og hefir um langa æfi
staðið við hlið manns síns á
erfiðri listamannsbraut. Frú
Anna hefir meir en bætt manni
sínum allan þann kulda og
misskilning, sem hann átti ann-
ars við að stríða í ættlandi
hennar. Og hann hefir fyrir sitt
leyti minnst hennar í list sinni,
svo sem bezt mátti vera. Yfir
þessari mynd er fullkomin ró og
friður. Hún er minnismerki
hinnar sterku, fíngerðu konu.
Hvergi í myndum Einars Jóns-
sonar er fullkomnara samræmi.
Ytri einkenni eins og tilburðir
handanna, eða fellingar klæð-
anna, eru með léttleik Suður-
landa, en þó er myndin öll nor-
ræn, með því yfirbragði, sem
bezt er sýnt í kvenlýsingum í
íslendingasögum.
Jón bóndi í Galtafelli skildi
raunar eðli Einars sonar síns
furðu vel, er hann vildi láta
hann ganga í þjónustu kirkj-
unnar og kenna söfnuði sínum
um guðsríki og góða siði. Þrátt
fyrir mótmæli sín hefir Einar
Jónsson orðið prestur, nokkurs-
konar æðsti prestur fslendinga.
Móses flutti þjóð sinni hinar
hörðu siðareglur skráðar á stein.
Einar Jónsson hefir alla æfi ort
í stein meginatriði allra ljós-
sækinna trúarbragða. Hann
hefir orðið forustumaður í ný-
sköpun og landnámi íslenzkrar
listar. Og hann hefir beitt allri
orku sinni æfilangt til að sann-
færa þjóðina um, að ljósið
myndi vinna sigur yfir myrkr-
inu. Einar Jónsson er skáld
nýrrar dögunar á íslandi.
J. J.
Uppblástnr á fjöllum.
(Framh. af 3. síðu)
óðfluga í Skjaldbreið, bæði að
austan og vestan og hraunum
þeim, er að honum liggja, en
þar hefir víða verið þykkur
jarðvegur og mikill gróður. Erf-
itt mun þar til varnar, en nauð-
syn ærin til að hafizt verði
handa, til að stöðva þá ger-
eyðingu gróðurs, er þar vofir
yfir. I. Á.
Játning
Morgunblaðsins.
(Framh. af 1. siðu)
myndi hafa neikvæðar afleið-
ingar fyrir ríkissjóð og lýsa þess-
ar tillögur því æði lítilli ráð-
deildarsemi.
En sleppum því. Eftir að blað-
ið hefir gert framangreindar
athugasemdir kemst það að svo-
hljóðandi niðurstöðu, sem er
þungamiðja greinarinnar:
„Af því, sem nú hefir sagt
verið, er ljógt, að ekki verður
unnt að afgreiða forsvaranleg
fjárlög á þessu þingi, nema með
breyttri löggjöf. Við verðum
einnig að gera okkur það Ijóst,
að sá niðurskurður á útgjöldum
ríkisins, sem nú er óumflýjan-
legur, verður að verulegu leyti,
að grípa inn á verksvið, sem allir
eru sammála um, að séu í eðli
sínu gagnleg og nauðsynleg."
Betur getur Mbl. ekki stað-
fest þær röksemdir Eysteins
Jónssonar, að ekki sé hægt að
lækka ríkisútgjöldin svo nokkru
nemi öðru vísi en með breyting-
um og afnámi laga, sem al-
mennt eru talin sjálfsögð, og
með því „að grípa inn á verk-
svið, sem allir eru sammála um,
að séu í eðli sinu gagnleg og
nauðsynleg". Betur getur það
ekki skýrt það, hversvegna for-
vígismenn Sjálfstæðisflokksins
hafa ekki orðið við þeim áskor-
unum Eysteins Jónssonar á
undanförnum þingum að bera
fram ákveðnar tillögur, sem
staðfestu fullyrðingar þeirra um
„óhófið og taumlausu eyðsluna.“
Betur getur það ekki mótmælt
og hrundið þeim þráláta áróðri
ihaldsblaðanna, að „óhófið" í
ríkisrekstrinum væri orðið svo
gegndarlaust að það myndi
spara ríkinu margar miljónir
króna, ef því yrði hætt.
Sú játning Mbl. að ríkisút-
gjöldin verði ekki spöruð ,,að
verulegu leyti“, nema með því
„að grípa inn á verksvið, sem
allir eru sammála um, að séu í
eðli sínu gagnleg og nauðsyn-
leg“, er varanlegur legsteinn á
fjármálabaráttu Sjálfstæðis-
flokksins á undanförnum árum
og styrkir þær vonir, að hér eftir
megi vænta frá honum ábyrgari
orða og athafna í þeim málum
en verið hefir hingað til.
Fundahöld
Framsóknarflokksins.
(Framh. af 1. síðu)
í Morgunblaðinu 28. þ. m. er
svo frá skýrt, að á Reykjanes-
fundinum hafi komið fram ó-
ánægjuraddir frá Framsóknar-
mönnum þar í héraðinu í garð
þingmanns kjördæmisins, og um
samstarf við sósíalista. Þessi
frásögn Mbl. er alröng.
í Reykjanesi hafa orðið miklar
ræktunarframkvæmdir siðustu
árin, þó að skilyrði til ræktunar
séu fremur erfið. Umgengni er
þar hin prýðilegasta. Skólann
vantar leikfimishús, og er það
mikið áhugamál skólastjórans
og annarra aðstandenda skól-
ans, að kom þvi upp við fyrstu
hentugleika.
Eftir að lokið var almenna
fundinum í Reykjanesi, héldu
Framsóknarmenn flokksfund
þar, og var á þeim fundi stofnað
Framsóknarfélag Norður-fsa-
fjarðarsýslu og ísafjarðarkaup-
staðar.
Dagana 23.—26. október mætti
ég á fundum í Bolungarvík, Flat-
eyri, Þingeyri og Patreksfirði.
Fundirnir voru allir boðaðir af
Framsóknarfélögunum á þessum
stöðum, en öllum frjáls aðgangur
Voru fundirnir yfirleitt vel sóttir,
og varð ég alls staðar var áhuga
fyrir að efla flokksfélögin og
auka fylgi Framsóknarflokksins
á Vestfjörðum.
Af viðtölum við menri í vest-
firzku sjóþorpunum, komst ég
að þeirri niðurstöðu, að afkoma
fólks þar mætti teljast vel við-
unandi. Fiskiveiðar eru aðalat-
vinnuvegurinn, eins og kunnugt
er. Hraðfrystihúsin á Flateyri
og Bíldudal hafa bætt mjög af-
komu útgerðarinnar og aukið
atvinnu á þeim stöðum. En auk
útgerðarinnar er töluverður
landbúnaður í sjóþorpunum, t. d.
er allmikil sauðfjárrækt og
garðrækt hefir aukizt mjög síð-
ustu árin.
Ég vil biðja Tímann að færa
Vestfirðingum þakkir mínar fyr-
ir ágætar viðtökur, sem ég hlaut
þar alls staðar á ferðalaginu.
Framsóknaríél. Reykjavíkur
Fundur annað kvöld kl. 8.30 í Kaupþingssalnum.
FUNDAREFNI:
Hvað er framundan ?
Jónas Jónsson, formaður Framsóknarflokksins.
BÆJAR- OG SVEITASTJÓRNARMÁL, framhald frá síðasta fundi,
Hermann Jónasson forsætisráðherra hefur umræður.
Fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIN.
318
Willíam McLeod Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
319
Honum kom ekki til hugar, að orrustan
gæti haft nema einn endi.
Oakland tæmdi skothylkin úr skamm-
byssunum og smeygði þeim niður í bak-
vasa sinn, en henti byssunum burtu.
Hann dróg lykilinn upp úr öðrum vasa
sínum, kippti Barnett harkalega að sér
og opnaði handjárnin.
— Hvað ætlar þú að gera? hrópaði
Molly.
— Ég ætla að láta hann hafa það,
sem hann vill, svaraði Oakland og var
loðmæltur. — Hann sagði að ég væri
heigull, — að ég þyrði ekki að berjast
við hann. Ég skal slá hann sundur og
saman!
Molly steig skref áfram, en Barnett
rétti út hendina og stöðvaði hana um
leið og hann fylgdi hreyfingum Oak-
lands með augunum.
— Vertu kyrr, Molly! Þú ert ekki með
í þessu, sagði hann ákveðið.
Clem rauk á hann eins og ljón, áður
en hann hafði lokið setningunni.
XXXV. KAFLI.
Andstæðurnar í líkamsbyggingu þess-
ara tveggja manna voru áberandi, Oak-
land var að byggingu líkur steinstöpli,
en mótstöðumaður hans eins og grísk-
ur guð. Mennirnir höfðu kastað af sér
jökkunum og vöðvarnir sáust hnykl-
ast undir flónelsskyrtunum, sem þeir
voru í innanundir. Brjóst stóra manns-
ins var innfallið en herðarnar áberandi.
Vöðvarnir á fótum hans og handleggj-
um voru í stórum hnyklum. Hreyf-
ingar hans höfðu sama stirðleik og
manni virðist um hreyfingar bjarnar-
ins við fyrsta tillit, en þær gátu verið
hraðar og öruggar.
Oakland virtist svo ægilegur frammi
fyrir Webb, að Molly skalf af ótta. And-
lit hans var logandi af bræði, þegar
hann sló til andstöðumanns síns. Stúlk-
an bjóst við að sjá granna og liðlega
líkamann barinn niður undir eins. Hún
spennti greipar í angist, en varp svo
öndinni léttar. Texasbúinn hafði hreyft
höfuðið lítið eitt til hliðar, svo að hægri
hrammur Oaklands snart aðeins öxl
hans, um leið og hann flaug framhjá.
Barnett hafði um leið slegið vinstri
hnefanum undir höku Oaklands svo
snöggt, að Molly gat varla auga á fest.
Risinn urraði af sársauka, og um leið
skall hægri hnefi hins á síðu hans, rétt
fyrir neðan hjartað. Webb beygði sig og
var kominn úr höggfæri áður en Oak-
land fékk áttað sig.
Hraðinn á hreyfingum Barnetts og
það, hve honum virtist létt um þær,
minnti Molly á fjallaljón. Vöðvahreyf-
ingar hans höfðu sama fagra stílinn.
“-GAMLA BÍÓ
ZAZA
Áhrifamikil og vel leik-
in amerísk kvikmynd gerð
eftir heimsfrægu sam-
nefndu leikriti eftir Pierre
Berton.
Aðalhlutv. leika:
CLAUDETTE COLBERT
og
HERBERT MARSHALL.
NÝJA BÍÓ'
VANDRÆÐA-
BARNIÐ
Amerísk kvikmynd frá
Wamer Bros, er vakið hef-
ir heimsathygli fyrir hina
miklu þýðingu er hún flyt-
ur um uppeldismál.
Aðalhlutverkið leikur hin
15 ára gamla
BONITA GRANVILLE.
Aukamynd:
MUSIKCABARET.
AF SÉRSTÖKUM ÁSTÆÐUM er öllum viðkomandi sem óvið-
komandi mönnum bönnuð refaveiði innan landamerkja allra
jarða, byggðra og óbyggðra, innan Hálshrepps í Fnjóskadal í
Suður-Þingeyjarsýslu, svo og á afréttum þeim, er til heyra
nefndum hreppi, eða einstökum mönnum búandi innan hans.
F. h. eigenda og umráðenda.
Fjallskilastjórfim.
Samvínnuskólinn
verður settur á morgun (míðvíkudag)
kl. 10 f. hád.
Skólast j órinn.
Tilkynníng,
Sainkvæmt auglýsingum vorum í dag-
blöðunum viðvíkjandi lánsviðskiptum,
viljum vér hérmeð vekja athygli við-
skiptavina vorra á, að vér munum að-
eins veita þeim lán, sem greiða
reiknínga sína upp mánaðarlega.
Lávus G. Lúðvígsson
skóverzlun.
Atvinnulevsisskýrslur
Samkvæmt lögum um atvinnuleysisskýrslur fer fram
skráning atvinnulausra sjómanna, verkamanna, verka-
kvenna, iðnaðarmanna- og kvenna í Goodtemplarahús-
inu við Templarasund 1., 2. og 3. nóv. n. k. kl. 10—8
að kvöldi.
Þeir, sem láta skrásetja sig, eru beðnir að vera við-
búnir að gefa nákvæmar upplýsingar um heimilisástæður
sínar, eignir og skuldir, atvinnudaga og tekjur á síðasta
ársfjórðungi, hve marga daga þeir hafi verið atvinnu-
lausir á síðasta ársfjórðungi vegna sjúkdóms, hvar þeir
hafi haft vinnu, hvenær þeir hafi hætt vinnu og af hvaða
ástæðum, hvenær þeir hafi flutt til bæjarins og hvaðan.
Ennfremur verður spurt um aldur, hjúskaparstétt,
ómagafjölda, styrki, opinber gjöld, húsaleigu og um það
í hvaða verkalýðsfélagi menn séu. Loks verður spurt um
tekjum manna af eignum mánaðarlega og tekjur konu
og barna.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 30. okt. 1939.
Pétur Halldórsson.
Ferðabæknr
Válhjálms SteSánssonar
tru nú allar komnar út. Fást með hentugum af-
boi-ganaskilmálum.
Arsæll Ar\ \so\
Bankastræti 9 Reykjavík
• ÚTBREIÐIÐ TÍM ANN •