Tíminn - 02.11.1939, Síða 3

Tíminn - 02.11.1939, Síða 3
127. folað TÍMIIVIV, flmmtudagiim 2. nóv. 1939 507 r A IV IV Á L L Afmæli. Jón Ólafsson kaupfélagsstjóri er sextugur í dag. Foreldrar hans voru hin góð- kunnu sæmdarhjón, Ólafur Egg- ertsson hreppstjóri og Þuríður Runólfsdóttir, sem lengi bjuggu á Valshamri í Geiradal og síðan í Króksfjarðarnesi með miklum myndarbrag, sem kunnugt er. Með foreldrum sínum ólst Jón upp og naut hins bezta uppeld- is. Hann gekk, er hann fékk aldur til, í lýðskólann á Hey- dalsá, en starfaði annars að al- gengri sveitavinnu á sumrum. Gekk síðan í Möðruvallaskól- ann og útskrifaðist þaðan 1906. Þá um haustið fór hann svo til Hafnar í þeim vændum að kynna sér samvinnumál þar, og liefir það spor orðið happa- drjúgt fyrir verzlun og sam- göngur í þessum sveitum, sem þá voru í megnasta ólagi. En um störf Jóns í þágu samvinnunnar hefi ég áður skrifað um í tíma- ritið „Samvinnan" fyrir stuttu, og skal það ekki endurtekið hér. En önnur störf Jóns vildi ég drepa á lítillega, því öll eru þau unnin með sömu trúmennskunni sem verzlunarmálin. Jón hefir alla tíð verið mikill áhugamaður um landbúnað og starfað mikið á því sviði. Árið 1911 reisti hann bú á Svarfhóli í Geiradal, rýrðar jörð. Var hún þá í mestu niðurníðslu bæði að húsum og túni, enda var nú þeg- ar tekið til óspilltra mála í um- bótaáttina. Girti hann nú túnið og mikið land annað og ræsti að nokkru. Túnið sléttaði hann að mestu og stækkaði svo, að það mátti heita að mestu véltækt. Mun það síðustu ár hans þar hafa gefið af sér um 200 hest- burði, en 40 hesta er hann tók við því. Öll hús jarðarinnar byggði hann frá grunni, traust og vel járni varin, bæði íbúðar- og peningshús flest, svo þarna er nú risið upp hið snotrasta býli og mjög þægilegt umgöngu. Ak- fær vegur liggur heim i tún af þjóðvegi, fast að einum km. að lengd og lagði Jón drjúgum fé í hann, meðan hann bjó þarna. Allt þetta starf í þágu jarðar- innar innti hann af hendi á lið- ugum 20 árum og er slíkt meir en meðal manns verk, og mun þessi jörð lengi bera menjar at- hafna Jóns og umbóta. Jón var kvæntur Þuríði Bjarnadóttur frá Ásgarði, Jens- sonar, hinni ágætustu konu. Var hún búsýslukona mikil og skör- ungur í sjón og raun eins og hún átti kyn til. Var og heimili þeirra viðbrugðið fyrir reglu- semi, frábæra gestrisni við alla, æðri sem lægri, og háttprýði í hvívetna, og hafa þessir kostir einkennt heimili Jóns alla tíð. Var kona hans honum mjög samhent um þessa hluti, og svo hjartagóð að ekki mátti svo aurnt sjá, að eigi vildi bæta eft- ir mætti. Ekki varð þeim hjón- um barna auðið, en tvö fóstur- börn tóku þau. Annað dó á unga aldri, en hitt lifir og dvelur nú með fóstra sínum. En konu sína missti Jón eftir 10 ára farsæla sambúð, 24/6. 1931, og tregaði hana löngum þaðan af, sem vænta má um svo trygglyndan og vinfastan mann, sem hann er. Þegar Jón fluttist að Króks- fjarðarnesi var systir hans, Bjarney Ólafsdóttir, nýbúin að missa mann sinn frá fjórum börnum í ómegð, tók Jón hana og börnin þegar til sín og hefir alið upp og farist pi’ýðilega við þau á allan hátt. Er nú það elzta, Ólafur Ólafsson, orðinn önnur hönd frænda síns við Kaupfélag Króksfjarðar eftir tveggja vetra nám á Samvinnu- skólanum. Líkar mönnum prýði- lega við hann þar, enda er hann lipurmenni, og hyggja félags- menn hið bezta til hans í fram- tíðinni, þar sem hann líka nýt- ur nú forsjár Jóns í starfinu til að byrja með. Eins og að líkindum lætur hlóðust á Jón ýms trúnaðarstörf í þágu sveitar og héraðs. Hrepps- nefndaroddviti var hann um skeið, og alltaf í hreppsnefnd síðan hann lét af oddvitastörf- um. Sýslunefndarmaður var hann um eitt kjörtímabil, en gaf síðan eigi kost á sér til þess starfs. Formaður skóla- og sóknarnefndar hefir hann og lengst af verið, og hreppstjóri síðan faðir hans lét af því starfi. Frá Svarfhóli flutti Jón árið 1932 og að Króksfjarðarnesi og hefir búið þar síðan rausnarbúi með systur sinni Bjarneyju, og eru þau samtaka í að gera garð- inn frægan að gestrisni og fram- kvæma allskonar umbætur á hinu fagra óðalssetri. Síðan Jón fluttist að Króks- fjarðarnesi hefir á hann hlaðizt, auk þess er áður greinir, bæði III. Háskóllnn í Grand Forks tel- ur sér nú mikinn sóma, að Vil- hjálmur Stefánsson hefir verið þar lærisveinn, og hefir gert hann að heiðursdoktor við þessa menntastofnun. En æfintýri hans i sambandi við vagn rekt- ors og fleiri gáskamerki í fari hins unga íslendings, urðu þess valdandi, að honum var vísað sem námsmanni úr skólanum. Vilhjálmur Stefánsson lét það ekki á sig fá, og flutti sig í annan háskóla, og fékk þar leyfi til að taka próf jafn skjótt og hann væri nægilega undirbú- inn. Tók hann þá fjögur próf á eínu ári, og þótti sú námsraun vasklega gerð. Skömmu síðar fór hann til framhaldsnáms í elzta og frægasta háskóla Bandaríkjanna, en það er Har- vard í Boston. Dvaldi hann þar í þrjú ár og stundaði mann- fræði og samanburðartrúfræði. Á þessum árum kom Vilhjálmur Stefánsson tveim sinnum, sum- urin 1904 og 1905 til íslands og stundaði mannfræðirannsókn- ir, að nokkru leyti með styrk frá Harvard-háskóla. Á þessum ferðum rannsakaði Vilhjálmur höfuðkúpur í gömlum kirkju- görðum, og fann allmargar lítt skemmdar og með heilum tönn- um, frá kaþólsku öldunum. Hafði hann af þessum rann- sóknum mikinn stuðning síðar í sambandi við hinar frumlegu kennisetningar sínar um mat- arhæfi og heilsufar. Vilhjálmur Stefánsson stóð á þessum árum á vegamótum. Hann hafði frá æskuárurn feng- izt nokkuð við skáldskap. í blaði stúdenta i Grand Forks hafði hann á æskuárum birt kvæðið Heimspeki tvítugs manns, sem ber ótvíræð merki um skáldgáfu á háu stigi. Á íslandsferðum sínum kynnti hann sér islenzka ljóðagerð og þýddi þá á ensku nokkur íslenzk lcvæði. Óhætt er að fullyrða, að þessar þýðingar eru óvenjulega góðar. Þær eru í einu afar nákvæmar, en um leið léttar, myndríkar og ein- faldar. Það má telja fullvíst, að Vilhjálmur Stefánsson hefði getað orðið mikið Ijóðskáld á enska tungu, ef hann hefði haldið áfram á þeirri braut. Hin meðfædda skáldgáfa varð honum samt að ómetanlegu gagni í sambandi við landkönn- uðarstarf sitt. Hann er bæði mikill rithöfundur og mikill ræðumaður. Er mikið sótzt eftir honum sem fyrirlestrarmanni við háskóla og vísindastofnanir hvarvetna í Bandarikjunum. Veldur því bæði landkönnunar- frægð hans, og þó ekki síður al- veg óvenjulegir ræðumanns- hæfiieikar. IV. Skömmu eftir að Vilhjálmur Stefánsson kom heirn til Har- vard úr hinni síðari íslandsför sinni, var leitað til hans um þátttöku í rannsóknarför norð- ur í íshaf. Áður hafði hann lagt mikla stund á að búa sig undir ferðalög í Afríku, en nú 0stur-0stur-0stur Mjólkurbú Flóamanna hefur kynningarsölu á ostum í Ostakjallaranum á Laugaveg 30. Ódýr utalarkaiigi. Selt £ heiliim osiuiti. Verö frá kr. 2.60 pr. st. Ostur er hollasta, næringarrikasta og ódýrasta áleggið. Ostakjallariflin Laugaveg 30. Utsvör - Fasteígnagjald -- Dráttarvextír. Allt útsvarlð til foæjarsjóðs Reykjavíkur árið 1939 er fallifo í gjalddaga og mi um mán- aöamótiia falla dráttarvextir á fjórfoa hluta þess. Ilúseigendur eru og enn miuntir á fast- cignagjöldin, er féllu í gjalddaga 2. janúar 1939. RORGARRITARLVN. ÓhæSa hjá SláturSél. (Framh. af 2. síðu) eða rota með helgrimu, eða öðru þvílíku áhaldi. Byssan og helgríman eru því jafn lögmæt aflífunartæki, enda mun það álit þeirra, er til þekkja, að hvorttveggja sé jafn góð aflífunartæki fyrir sauðfé. Mr. Bedson, forstöðu- maður fyrir námskeiðum þeim í sauðfjárslátrun, sem Samband- ið gekkst fyrir undanfarin ár, lét svo um mælt, að helgríman væri eitt hið bezta aflífunar- tæki, er hann hefði kynnzt. Taldi hann, að það tæki skotum fram að því leyti, að með not- kun helgrímunnar blæddi bet- ur, svo að kjötið yrði blóðminna, blæfallegra og betri markaðs- vara. Ein ástæða til þess að taka helgrímu fram yfir skot- vopn, er því sú, að fullnægja betur kröfum Englendinga og annarra kjötkaupenda um vöndun kjötsins, — en ekki að fullnægja „blóðþorsta“ Reyk- vikinga, eins og greinarhöfund- ur virðist ætla. Hinu vil ég mótmæla, sem algerlega rakalausu, að starfs- menn Sláturfélagsins, sem með þessi tæki fara, séu svo kæru- lausir og óvandvirkir, að ástæða sé til umkvörtunar, og stað- festir eftirfarandi vottorð frá eftirlitsmanni Dýraverndunar- félagsins þau ummæli mín: símavarzla og póstafgreiðsla. Jón Ólafsson er meðalmaður á hæð en þrekinn vel, hægur og stilltur jafnan, en heldur með gætni fast á skoðunum sínum, þegar svo ber undir. En fjarri er honum allur hávaði og æsingar í hverju máli, sem er. Hann á fjölda vina og kunningja víðs- vegar, sem munu senda honum hlýjar og einlægar vinakveðjur á þessum merkisdegi hans, og óska honum allrar blessunar á ófarna áfanganum; og trúað gæti ég því, að héraðsbúar fjöl- menntu að Nesi daginn þann, og sú væri heitasta óskin þeirra að fá að njóta hans enn um langt skeið. Guðjón frá Brekku. opnaðist honum nýtt viðfangs- efni, rannsókn heimskautaland- anna í Ameríku. Hann tók þessu boði og stóð hin fyrsta norður- för hans eitt ár, frá 1906—07. En af framgöngu sinni í þess- um fyrsta rannsóknarleiðangri sínum var hann orðinn svo nafnkenndur maður, að árið eftir gat hann fengið fé í aðra og meiri ferð. Var hann þá í norðurhöfum og Eskimóa- byggðum í fjögur ár, og kom heirn 1912. — En ekki leið nema eitt ár, þar til lagt var af stað að nýju. Var sá leiöangur mann- margur og voru þá í fylgd og samstarfi með Vilhjálmi vís- indamenn frá mörgum þjóðum. Voru þeir félagar á norðurveg- um frá 1913 og öll árin meðan heimsstyrjöldin geisaði í Ev- rópu. Á báðum þessum löngu ferðum gerðu Vilhjálmur Stef- ánsson og félagar hans margar uppgötvanir, og söfnuðu meiri vitneskju en áður var til um öll hin víðáttumiklu heim- skautalandflæmi, sem tilheyra Kanada. Auk þess hafði Vil- hjálmur Stefánsson sannað á þessum ferðum, að hvítir menn gátu lifað heilsusamlegu lífi á hinni einhæfu fæðu úr dýra- ríkinu, sem kostur er á í heim- skautabyggðum. Studdist hann í fræðilegum deilum um þetta efni við rannsóknir sínar á beinum íslendinga frá miðöld- unum. Þeir höfðu vitanlega lif- að að langmestu leyti á íslenzkri framleiðslu og þó haft þann þrótt, að höfuðskeljar og tenn- ur voru heilar eftir margar aldir. Frh. á 4. síðu. „Ég undirritaður, sem hefi undanfarin haust haft á hendi daglegt eftirlit hjá Sláturfélagi Suðurlands, fyrir hönd Dýra- verndunarfélags íslands, vil að gefnu tilefni votta, að aflífun sauðfjár hjá Sláturfélaginu hefir ávallt farið fram á prýði- legan hátt, og allur söguburður um mistök í því efni algerlega tilhæfulaus. Reykjavík, 24. október 1939. Steinn Jónsson“ (sign.). Góðar og ódýrar bækur: Frfmann B. Arngrímsson: Mimiingar fa*á LeaEdmt og Farís. - Ak. 1932. F. B. A. dvaldi í London og París á árunum 1896—1914. Frá- sögn hans er fjörleg og lifandi, efnið margvíslegt og æfintýrin, sem hann rataði í, hin merkilegustu. Æfiágrip höf. og mynd fylgir bókinni. — Bókin hlaut beztu viðtökur hjá ritdómendum. Verð: 6.00 kr. ób. í bandi: 8.00. Þótt ég telji aðalefni grein- arinnar hér með svarað, vil ég þó svara hinum ýmsu spurning- um greinarhöfundar nokkru nánar, að því leyti, sem þeim er ekki svarað hér að framan, enda þótt nokkuð sé nú um lið- ið, þar sem ég tók ekki eftir umræddri grein fyrr en nú, að mér var bent á hana. Það var mjög æskilegt að losna við skotfærin úr slátur- húsinu, því að þrátt fyrir ítr- ustu aðgætni hafa hlotizt af þeim smávægileg slys á mönn- um hjá Sláturfélaginu og þó alvarlegri annarsstaðar. Mun óþarft að tilgreina þau hér. Af helgrímu er engin slík slysa- hætta og meðal annars af þeirri ástæðu hefir félagið nú tekið hana fram yfir byssuna og not- að hana, að noklcru leyti haust- ið 1938 og eingöngu á yfirstand- andi hausti, í fullu samráði við formann og eftirlitsmann Dýra- verndunarfélags íslands. Ekki virðist það ámælisvert, þótt af þessu hefði hlotizt ein- hver sparnaður fyrir félagið, — en svo er ekki. Við aflífun hverrar kindar þarf tvo menn þegar helgríma er notuð, en ekki nema einn til að skjóta kindina. Hér er því um að ræða aukinn vinnukostnað en spöruð skotfærakaup, sem nokkuð mun vega hvort á móti öðru fyrir fé- lagið. — En fyrir almenning gildir breytingin aukna atvinnu og sparaðan erlendan gjaldeyri þó í smáu sé, og mun hvorugt á- mælisvert, eins og nú er ástatt í landinu. Óhapp getur vitanlega allt af komið fyrir, alveg jafnt hvort notuð er helgríma eða byssa. En sem betur fer, er það sjald- gæft og því sjaldgæfara, sem menn eru starfinu vanari. En komi það fyrir, að afiífun kind- ar mistakist, er það í augum uppi, að slysahætta á mönnum er meiri, ef byssa er notuð. Reykjavík, 25. október 1939. Helgi Bergs. Jóhann J. E. Kúld: ísluiissefmtýri. — Ak. 1939. Bókin segir frá Norðuríshafsferðum höfundar, á norsku hvalveiðaskipi. Guðm. G. Hagalín segir um bókina: „Hún er prýðilegt rit. Frásögnin er fjörleg og skemmtileg, málið yfirleitt gott og lipurt, og setninga- og hugsanasambönd óvenju skýr og rökrétt. Er bókin hinn bezti skemmtilestur, en auk þess er yfir henni eitthvað af töfrum Norðurhafs, heillandi hetjublær“. (Skutull 13. maí 1939). Verð: kr. 4.00 ób. í bandi 6.00. Guy de Maupassant: Flóttameim. — Ak. 1939. Saga frá fransk-þýzka stríðinu 1870—71. Ein af fyrstu sög- um skáldsins, en með henni skipaði hann sér í fremstu röð franskra rithöfunda. — Verð: kr. 1.50. Steingrímur Matthíasson: Frá Japau og Kíaa. — Ak. 1939. Bókin segir frá ferðalagi höfundar til Japan og Kína árið 1903—04. Bezt skrifaða bók hins vinsæla höf. — Þorst. M. Jóns- son skrifar í N.-Kv.: „í bókinni er feikna fróðleikur. En hún er skrifuð af eldmóði þeim, lífsfjöri og gamansemi, sem ein- kennir Steingrím, svo að jafnvel þeir, sem ekki hafa skemmt- un af neinum fróðleik, munu lesa hana sem spennandi skáld- sögu“. — Verð: 4.80 ób. í bandi 6.80. Björgvin Guðmundsson: Ténheiidiir — nýtí safn. — Ak. 1939. Vinsælustu lög tónskáldsins, 12 að tölu, fyrir einsöng, karla- kór og blandaðar raddir. Vönduð útgáfa.. — Verð aðeins: 5.00. Allar þessar bækur fást hjá flestum bóksölum eða beint frá útgefanda, sem er R ÓKAÍJTG Á F A A: EDDA, Akureyri. íslenzkir námsmenn erlendis* Með bréfi dags. 26. þ. mán. hefir kennslumálaráðherra falið upplýsingaskrifstofu Stúdentaráðsins, að annast söfnun skýrslna um nám og námskostnað allra íslenzkra námsmanna erlendis. Skýrslur þessar munu síðan verða hafðar til hliðsjónar við út- hlutun gjaldeyris til náms erlendis. Eyðublöð til skýrslugerðar fást í Upplýsingaskrifstofunni í Stúdentagarðinum, sem er opin fyrst um sinn daglega ,kl. 4—5% e. hád., og hjá sendiherra ís- lands Ny-Vestergade 21, Kaupmannahöfn, Skýrslurnar afhendist Upplýsingaskrifstofunni hið fyrsta og eigi síðar en 15. des. n. k. Reykjavík, 31. okt. 1939. F. h. Upplýsingaskriístofu Stúdentaráðs. Lúðvig Gisðinumisson. 324 Willíavi McLeod Raine: — Ég er heill á húfi. Ég þvæ mér þegar við náum í vatn. Hann vék henni mjúklega til hliðar og hélt svo áfram. — Alvarleg störf fyrst, við skulum sjá fyrir Oakland. Hann náði í skothylkin og hlóð skammbyssurnar aftur. Síðan greip hann handjárnin og setti þau á úlfliöi Oaklands. Hin bláu augu Molly leiftruðu; — Ég hefi aldrei séð annað eins og það, hvernig þú barðist. Það var stór- kostlegt, en ég var svo hrædd. Ég hélt hann myndi merja þig. Það hefir eng- inn slegið hann út fyrr en þú, og ég sé ekki ennþá hvernig þér eiginlega tókst það. — Hann sigraðí sig sjálfur, bruölaði kröftunum. Hann skeytti ekki um rétta stöðu. Hann gat ekki haldið áfram leng- ur, því að fæturnir höfðu fengið nóg. — Þú ert viss um að þú sért ekki meiddur? — Ég er viss um, að ég verð allra stirðasti maðurinn í héraðinu innan ör- lítillar stundar, þ. e. a. s. að herra Oak- land undanteknum, sagði hann og hló. — En við skulum leggja af stað. Þau lögðu af stað út í mýrina, sem þau höfðu gengið yfir kvöldið áður. Oakland opnaði það augað, sem ekki var sokkið, rétt í því er þau voru að hverfa á bak við hæðina. Hann var sér Flóttamaðurinn frá Texas 321 bólgið og blóðstorkið og á því mátti sjá æðisgengna reiði. — Komdu ef þú þorir, hrópaði hann hranalega. Barnett svaraði ekki. Hann horfði í blóðstokkin augun til þess að lesa ætlan mannsins. Hann stóð á t-án- um til þess að láta ekki grípa sig á flötum fæti og vaggaði mjúklega til hliðanna. Oakland kastaði sér á hann og barði i blindni með báðum hnefum. Webb varðist og tók ógurlegt hnefahögg á oln- bogann og komst þannig með naum- indum undan því. Hann beygði sig og smaug til hliðar, en fékk þá hnefa Oak- lands á kinnina. Hann var ekki við þessu búinn og féll við höggið. Clem þaut áfram til þess að „negla hann niður“, en hann var sloppinn! Hann hafði velt sér við, komizt á fjóra fætur og þannig til hliðar. Höfuð hans var samt ruglað eftir höggið. Molly horfði á þá og náði varla and- anum fyrir ákafa. Hún hafði óttazt mjög þegar hún sá hann falla, en hún rak upp gleðióp, er hún sá hann kom- inn aftur á fætur og varð þess ekki vör, að hann væri neinu verri eftir höggið. Hún sá hann víkja sér undan og beygja sig, en datt auðvitað ekki í hug, að hann væri þá að gefa höfðinu tíma til þess að jafna sig eftir höggið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.