Tíminn - 11.11.1939, Blaðsíða 4
524
TlMlM, langardagian 11. nóv. 1939
131. Ma»
Yfir laatdamœrin
1. Kommúnistablaðið ber á móti því,
að nokkur maður á þess vegum hafi
sent skeyti til Moskva og geti Moskva-
útvarpið því ekki haft þá frétt eftir
neinu skeyti frá íslenzkum kommún-
istum, að íslenzk blöð hafi stutt kröfur
Rússa á hendur Finnum. Þetta kann
að vera rétt, enda getur þessi frétta-
flutningur Rússa alveg eins byggst á
því, að þeir hafi tryggingu fyrir því að
öll þau skeyti, sem þeý: senda komm-
únistablaðinu, birtist þar, og þeir vissu
því að skammaskeyti sín um Finn-
land væru komin út í íslenzka kom-
múnistablaðinu, þegar þeir birtu út-
varpsfréttina um stuðning íslenzkra
blaða við kröfur Rússa. Skiptir það
vitanlega heldur engu máli, á hvern
hátt þessi rússneska útvarpsfrétt er
til orðin. Hitt er aðalatriðiö, að aug-
ljóst er að Rússar hafa fullkomin yfir.
ráð yfir kommúnistablaðinu og geta
látið það gera allt, sem þá lystir.
I slíku felst sú hætta fyrir sjálfstæði
þjóðarinnar að hún verður að gefa
þessum málum meiri gaum en gert
hefir verið til þessa. Ef eitt óvinveitt
stórveldi getur haft slíka íhlutun í
írammi hér á landi, er vitanlega opin
leið fyrir önnur að gera slikt hið sama.
2. Kommúnistablaðið lætur í morgun
eins og það sé málssvari prentfrelsis-
ins. Blaðið ætti að lýsa prentfrelsinu
í Rússlandi áður en það fer að skipta
sér af því, hvernig Islendingar hátta
þessum málum.
3. Morgunblaðið segir í- morgun, að
ýmsir áhrifamenn þjóðarinnar tali um
„frjálsa verzlun eins og landplágu".
Blaðið getur hér ekki átt við annað en
baráttu heildsalanna á móti höfða-
tölureglunni, því að baráttan gegn
henni er fólgin í því, að reyna að
svipta neytendur réttinum til þess að
ráða því sjálfir hvar þeir verzla.
4. Það verður erfitt fyrir Gísla vél-
stjóra að fá stuðning Mbl. og helztu
manna flokksins við næstu kosningar.
Allir vita, að Gísli hefir á flokksfundi
vegið að samherjum sínum, með því að
búa til sögur um þá, sem áttu að sýna
og sanna að þeir væru óheilir flokki
sínum og málstað, af því að fjár-
hagsbönd andstæðinga krepptu að
þeim.
5. Barðstrendingar geta ímyndað sér
hvílík forstaða yrði um málefni þeirra
á Alþingi, ef fulltrúi þeirra væri jafn
lítilsvirtur og lítið treyst á Alþingi
bæði af Framsóknarmönnum og Sjálf-
stæðisflokknum.
6. Enginn frambjóðandi nokkurs
flokks á Islandi situr fastar í annarri
eins hengingaról og Gísli vélstjóri.
Hann sendir aðalblaði flokks síns árás-
argrein um þingmann Barðstrendinga
í því skyni að minnka veg hans. En
þá neyðist ritstjóri blaðsins til að bæta
athugasemd ofan við greinina, þar sem
hann. varar með hógværum orðum við
höf. af því að blaðið hafi reynslu fyrir
að hann sé miður áreiðanlegur — að
minnsta kosti til munnsins. Við þetta
kiknaði Gísli svo, að hann treysti sér
ekki til að láta niðurlag greinarinnar
sjást á prenti. x.+y.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síöu)
gerð, og hefir Björn Rögnvaldsson
húsameistari haft með höndum um-
sjón með smíði þeirra. Kostnaður er
talinn vera um sex þúsund krónur.
Fyrir nokkru síðan gaf Fr. le Sage de
Fontenay, sendiherra Dana, eitt þús-
und krónur til skýlisgerðarinnar.
Útbreiðið TÍMANK
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
III BÆNUM
Messur á morgun.
I dómkirkjumii kl. 11, Olafur Olafs-
son kristniboði prédikar, tekið verður
á móti gjöfum til kristniboðsstarfsins.
Kl. 2 séra Friðrik Hallgrímsson, barna-
guðsþjónusta, kl. 5 æskulýðsguðsþjón-
usta, séra Friðrik Hallgrímsson. — I
fríkirkjunni kl. 2, séra Arni Sigurðs-
son. — I Laugarnesskóla kl. 10, barna-
guðsþjónusta; engin síðdegismessa. —
I Landakotskirkju lágmessa kl. 6.30 og
8 árdegis; hámessa kl. 10 árdegis,
guðsþjónusta kl. 6 síðdegis.
Tveir lögregluþjónar,
Björn Vigfússon og Geir T. Sigurðs-
son hafa fengið lausn frá störfum sín-
um vegna afleiðinga áfalla, er þeir
hlutu í götubardögunum, sem risu
vegna uppþots kommúnista í Reykja-
vík 9. nóvember 1932. Fyrir síðasta
bæjarráðsfundi lá bréf frá lögreglu-
stjóra, þar sem þess var farið á leit,
að þeim verði greidd full eftirlaun og
bætur, þar eð þeir hefðu hlotið meiðsli
sín við skyldustörf í þágu almennings
og bæjarfélagsins. Þeir Björn og Geir
hlutu báðir innvortis meiðsli, og hafa
alla tíð síðan verið þjáðir, þó gegnt hafi
þeir störfum. Hefir heilsubrestur þeirra
ágerzt á síðari árum og telja læknar
þeirra þá ekki lengur færa að gegna
lögregluþjónsstörfum. Báðir eru þeir
menn á miðjum aldri, urðu báðir fer-
tugir á þessu ári. Hefir Björn verið
lögregluþjónn á tólfta ár, en Geir í
nær tíu ár.
Knattspyrnufélagið Valur
heldur hlutaveltu á morgun í íshús-
inu við Tjarnargötu. Hefst hún eftir
hádegi.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir á morgun sjónleikinn A heim-
leið kl. 3 og Brimhljóð klukkan 8 ann-
að kvöld. Lækkað verð á báðar sýn-
ingar. Innan nokkurra daga byrja sýn-
ingar nýs leiks, leynilögregluleiksins
Sherlock Holmes.
Bæjarráð
ákvað á fundi sínum í gær að láta
hefja atvinnubótavinnu innan skamms.
Verða þá 50 manns teknir í atvinnu-
bótavinnuna.
Esja
fer til Vestfjarða á mánudaginn. A
Patreksfirði verður bátur, sem tekur
póst og farþega, ef elnhverjir verða,
og flytur þá á hina firðina.
Hrútasýning
verður haldin í sláturhúsinu í
Reykjavík á morgun.
Sprengingin í kjallar-
aranum í Munchen
(Framh. af 1. síðu)
hafði verið. Þetta hafi verið gert
til þess að láta það líta eðlilega
út, að sprengingin misheppnast.
Enginn af forráðamönnum
nazista var viðstaddur. Þeir fara
allir jafn fljótt og Hitler og
eftir veröa aðeins óbreyttir
flokksmenn.
Vegna vaxandi óánægju með
stjórn Hitlers, er nauðsynlegt að
reyna að afla honum nýrrar
samúðar meðal þjóðarinnar og
einmitt slíkur atburður gat ver-
ið æskilegur í því augnamiði.
Það gengur illa að æsa Þjóð-
verja gegn Bretum og þess
vegna gat talizt æskilegt, að
geta fengið tækifæri til að
stimpla þá sem glæpamenn.
Einnig er hugsanlegt, að nota
eigi þennan atburð til réttlæt-
ingar einhverra fyrirhugaðra
Finskir landamœraverðir.
hermdarráðstafana gegn Bret-
um.
Samkoman í vínkjallaranum
var haldin í tilefni af því, að
Hitler gerði misheppnaða bylt-
ingartilraun í Miinchen þennan
dag 1923. Síðan Hitler kom til
valda hefir hann alltaf minnst
þessa atburðar þennan dag með
því að halda slíka samkomu í
vínkjallaranum, en þar komu
byltingarmenn saman áður en
þeir hófu uppreisnartilraunina.
Hefir Hitler alltaf flutt miklar
ræður við þessi tækifæri.
Hitler byrjaði ræðu sína að
þessu sinni J/2 klst. fyrr en
venjulega og fór strax, þegar
henni var lokið'. Er sagt, að
hann hafi verið kallaður í áríð-
andi erindum til Berlínar. Allir
helztu menn nazista, sem þarna
voru staddir, fylgdu honum á
járnbrautarstöðina. Eftir urðu
aðeins óbreyttir liðsmenn, aðal-
lega úr hópi gömlu byltingar-
mannanna.
Húsinu var lokað tveim dög-
um áður en þessi athöfn fór
fram. Allur viðbúnaður hafði
verið framkvæmdur undir um-
sjá þýzku leynilögreglunnar og
hún skoðað húsið áður en Hitler
kom, eins og venja liennar er
allsstaðar þar, sem Hitler kemur.
hítamælarnir
gera hverjum einstökum hita-
notenda hægt að spara mið-
stöðvarhitann eftir vild, að sínu
leyti eins og gas og rafmagn,
og gerir öllum unnt að njóta
sparnaðarins að fullu.
Gíslí Halidórsson
verkfræðingur.
Sími 4477.
Talið er að sprengjan hafi
verið múruð inn í loftsúlu, ná-
lægt ræðustól Hitlers, mörgum
dögum áður. Hafi klukka verið í
sambandi við vítisvélina og ráð-
ið þvi hvenær hún sprakk.
Mikill árangur ai
slörium veröLneindar
(Framh. af 1. síðu)
Átta menn hafa þegar látist,
um 70 særðust og sumir þeirra
hættulega.
Ýmsir þjóðhöfðingjar hafa
sent Hitler heillaóskaskeyti. M.
a. hafa honum borist heillaóskir
frá rússnesku stjórninni. í
Þýzkalandi er allt gert til að láta
sem mestan fögnuð í ljósi yfir
þessari frelsun hans og talið að
guðleg forsjón hafi verið að
verki. Hópar nazista hafa gengið
skrúðgöngur um borgirnar undir
kjörorðinu: Guð verndar for-
ingjann.
nefndarinnar við viðskiptamála-
ráðuneytið, sem sér um gjald-
eyrismálin og verzlunarmálin al-
mennt.
Helztu málin á dagskrá í gær
voru vinnulöggjafarfrv. Bjarna
Snæbjörnssonar, sem var til
umr. í efri deild, og útsvarsfrv,
Sigurður Kristjánssonar, sem
var til umræðu í neðri deild.
Bergur Jónsson og Steingrímur
Steinþórsson sýndu fram á
mestu vitleysurnar í frv. Sig-
urðar og taldi Steingrímur rétt-
ast að fella það við 1. umr., en
það er mjög fátitt að málum sé
slík óvirðing sýnd. Fékk frv. líka
að fara til 2. umr. í efri deild
urðu talsverðar umræður milli
Bjarna Snæbjörnssonar og Sig-
I. KAFLI
Upphafið.
1.
„Ungfrú Granton!" — Röddin var
hvöss og ofurlítið ergelsisleg. — „Ung-
frú Granton! Ég gleymdi blævængnum
minum uppi. Viljið þér hlaupa upp og
sækja hann fyrir mig?“
Stúlkan, sem talað var til, lagði þeg-
ar af stað, en virtist dálítið þreytuleg
í hreyfingum. Hún var vön þessari
þreytandi rödd. í meira en ár hafði
þessi rödd verið ráðandi aflið í lífi
hennar, sagt henni hvenær hún ætti að
setjast niður og hvenær hún ætti að
standa upp, ákveðið hvert smáatriði i
hennar daglega lífi, og venjulega á
þann hátt, sem hún sízt vildi sjálf. En
hún var orðin sér þess meðvitandi, að
sá, sem er fátækur og fjarskyldur, —
mjög fátækur og mjög fjarskyldur, —
verður að taka því, sem að höndum
ber frá hinum auðugu ættingjum og
gera sér það að góðu.
Hún hafði nú reynt þetta i heilt, já,
óralangt ár, síðan hún hlaut þessa
stöðu að vera frú Damerell til „skemmt-
unar og aðstoðar". Auðvitað var hún
Síður en svo öfundsverð af þessari
urjóns Ólafssonar um vinnulög-
gjöfina. Stefán Jóh. Stefánsson
lét þá ósk í ljósi, að samkomu-
lag gæti náðst um þessi ágrein-
ingsatriði innan verkalýðsfélag-
anna, Tók Ólafur Thors undir
það og taldi líklegt, að Bjarni
myndi taka frv. sitt aftur, ef
slíkt samkomulag næðist.
Talsvert karp hefir verið und-
anfarna daga milli kommúnista
og socialista í sambandi við ýms
mál. Hefir Finnur Jónsson
aðallega talað af hálfu hinna
síðarnefndu. Rússland hefir iðu-
lega borið á góma í þeim við-
ræðum.
Ný frumvörp.
Sigurður Kristjánsson flytur
frv. um breytingu á útsvarslög-
um. Aðalefni þess er að láta
tekjuskattinn renna til bæjar-
og sveitarfélaga og skattleggja
kaupfélögin eins og hlutafélög.
Allsherjarnefnd efri deildar
flytur frv. um breytingu á lögum
um rithöfundarétt og prent-
frelsi. Tilgangur frv. er sá, að
gera íslandi kleift að ganga í
svonefnt Bernarsamband, en
það er ekki hægt vegna núgild-
».«^.GAMLA BÍÓ“-°-~““-
KÁTIR
FÉLAGAR
Sprenghlægileg og fram-
úrskarandi spennandi
amerísk gamanmynd frá
Metro Goldwyn Mayer.
* Aðalhlutv. leika hinir
óviðjafnanlega skoplegu
GÖG og GÖKKE.
NÝJA BÍÓ—°—°—■
Leynileg
ógnarstefna.
Stórfengleg og spennandi
kvikmynd frá Warner Bros
er sýnir bardagaaðferðir
hins illræmda grímu-
klædda leynifélags, Ku-
Klux Klan og hina harð-
vítugu baráttu er Ame-
ríkumenn heyja gegn
þessari ógnarstefnu. - Að-
alhlutverkin leika:
HUMPHREY BOGART,
ANN SHERITAN og
DICK FORAN.
Aukamynd:
Pétur sterki.
Stríð stry ggíngaí élag
íslenzkra skípshaína
tilkynnir:
Skrifstofa félagsins er I Al-
þýðnhúsinu við Hverfisgötu.
Skrifstofutími er frá kl. 10—
12 og 1—5. Afgreiðslu annast
Pétur Halldórsson. Sími 1074.
Heimasími 2977.
TimburYerzlun
Símn.: Grttnfuru. Stofnuð 1824.
Carl Lundsyade — Köbenhtivn.
Afgr. frá fCaupmannaliöfn bæði stórar og litlar
pantanir og skipsfarma frá Svíþjjóð.
S. 1. S. og umboðssalar annast pantanir.
EIK OG EFÍVI I ÞILFAR TIL SKIPA. —
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Newspaper
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor
does not exploit crime or sensatlon; neither does lt ignore them,
but deals correctlvely with them Features for busy men and all the
family, including the Weekly Magazine Section.
The Christian Sclence Publishlng Socíety
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Please enter my subscription to The Christlan Science Monitor for
a period of
1 year $12 00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday lssue. including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25e
Name_________________ _ _________________
Address.
Samþle Coþy on ReqtiCKt
SKIPAUTCEHO
■ rihisinsi
Esja
fer frá Reykjavík mánudaginn
13. þ. m. kl. 6 síðdegis í hraðferð
til Akureyrar. Viðkomustaðir;
Patreksfjörður, ísafjörffur og
Siglufjörður í báðum ieiðum.
M.s. Helgí
hleður til Vestmannaeyja næst-
komandi laugardag.
Flutningur óskast afhentur
fyrir hádegi þann dag.
andi laga. Talið er að innganga
íslands í Bernarsambandið hafi
verulega þýðingu fyrir íslenzka
listamenn.
Leikfélatf Reykjjavíkur
T v æ r sýningar
á morgun:
A heimleið
Sýning á morgun kl. 3.
LÆKKAÐ VERÐ.
Næst siðasta sinn.
„Brímhljóð“
Sýning á morgnn kl. 8.
Lækkað verð.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
Aðgöngumiðar að báðum sýn-
ingunum eru seldir í dag frá kl.
4 til 7 og eftir kl. 1 á morgun.