Tíminn - 14.11.1939, Qupperneq 2

Tíminn - 14.11.1939, Qupperneq 2
526 TtMINlV, þrigjwdagiim 14. nóv. 1939 132. bla» ^ímmrt Þriðjudayinn 14. nóv. Afgreiðsla fjárlaganna Fjárlögin eru vafalaust það mál yfirstandandi Alþingis, sem mesta athygii vekur. Eins og áður hefir vexið skýrt frá hér í blaðinu má gera ráð fyrir að styrjöldin hafi þau áhrif, að rýrnun verði á ýmsum núverandi tekjustofnum ríkis- sjóðs. Að vísu eru allar áætlanir um það gerðar út í bláinn, því að enn getur enginn sagt fyrir um það mjög örðugar, því ur á næsta ári. Hinsvegar er það öruggt, að sökum verðhækkun- arinnar erlendis mun verðtoll- urinn, sem er einn hæsti tekju- stofninn, hækka verulega, ef ekki dregur þeim mun meira úr innflutningnum. Tekjuskattur- inn ætti heldur ekki að minnka, þar sem hann verður miðaður við tekjur yfirstandandi árs. Þrátt fyrir þetta er eigi að síður varlegra að gera ráð fyrir tals- verðri lækkun heildartekna rík- issjóðs, ef eingöngu er miðað við núverandi tekjustofna. Þá hefir áður verið gerð grein fyrir því hér í blaðinu að hækka verði ýmsa útgjaldaliði á fjár- lögum, eins og t. d. afborganir og vexti erlendra lána. Einnig bætist við kostnaður ýmsra styrjaldarráðstafana (skömmt- unin, rannsóknarnefndir o. s. frv.). Til þess að vega gegn tekju- rýrnuninni og útgjaldahækkun- inni eru m. a. þessi úrræði: Fyrir þinginu liggur nú ítar- legt frumvarp um nýja toll- skrá og má telja víst að það verði samþykkt. Þetta frv. ger- ir ráð fyrir að verðtollurinn leggist einnig á flutningsgjald vörunnar hingað og mun sú breyting frá núgildandi lögum skapa talsverðan tekjuauka fyr- ir ríkissjóð. Fyrir þinginu liggur einnig frv. um innheimtu tekjuskatts af vaxtafé. Það er opinbert leyndarmál að innheimta þessa hluta tekjuskattsins er nú næst- um óframkvæmanleg og myndi ríkissjóði aukast talsvert tekjur, ef þetta frv. yrði samþykkt. Þá virðist sjálfsagt að hér verði gripið til sömu tekjuöfl- unar og annarsstaðar á Norð- urlöndum, að hækka álagningu tóbaks og áfengis. Telja má líklegt að samkomu- lag náist um það, að láta þann hluta útflutningsgjaldsins, sem varið hefir verið til Fiskimála- sjóðs, renna í ríkissjóð á næsta ári. Það virðist einnig vel forsvar- anlegt, að taka um einnar milj. kr. innanlandslán til greiðslu á afborgunum lána. Má það telj- ast sæmilegt, ef ríkissjóði tekst á jafn erfiðum tímum, þegar miklar kröfur eru til hans gerð- ar, að halda skuldum sínum ó- breyttum. Styrjöldin hefir m. a. þau áhrif að sjálfsagt verður að lækka ýms útgjöld ríkissjóðs, eins og t. d. kostnaðinn við landhelgisgæzluna og framlög til ýmsra byggingarfram- kvæmda. Verði svo jafnhliða þessu unnið að ítrasta sparnaði á nú- verandi útgjaldaliðum ríkis- sjóðs, ætti að mega vænta þess, að hægt yrði að afgreiða tekju- hallalaus fjárlög. í sambandi viö afgreiðslu fjárlaganna þykir Tímanum rétt að leggja sérstaka áherzlu á eitt atriði. Það er, að fjárlögin verði samin þannig, að þau verði sem allra næst hinni raunverulegu afkomu ríkisins á árinu. Áður en Eysteinn Jónsson var fjármálaráðherra átti sá ósið- ur talsverð ítök í þinginu, að keppst var við að áætla útgjöld- in sem allra lægst. Slíkt þótti víst bera vott um einhvern sparnaðarvilja, en afleiðingarn- ar urðu þær, að greiðslurnar fóru langt fram úr fjárlögunum og menn voru farnir að líta á þau eins og ómerkilegt pappírs- gagn. Eysteinn Jónsson setti sér það markmið, að kveða þennan ósið niður og reyndi því, að hafa Morgunblaðíð og íyigiíéð Eftir Bjarna Ásgeirsson alþingismann Ég sé ekki ástæðu til að svo komnu, að lengja mikið deiluna við Morgunblaðið um fylgifjár- ákvæði jarðræktarlaganna, þó að það haldi áfram nuddi um málið. í fyrsta lagi er mál þetta nú í höndum búnaðarþings eins og ég skýrði frá i fyrri grein minni. Var þar kosin milli- þinganefnd, sem hefir það verk- efni, að freista þess hvort unnt sé að leiða deiluaðila saman í þessu ágreiningsmáli, eins og tókst á sínum tíma um ágrein- ingsatriði I. kafla jarðræktar- laganna. Þar eð höfundinum virðist, sem þeirri stofnun komi mál þetta ekki mikið við, þá vil ég upplýsa hann um það, að: a) Búnaðarþing er æðsta stofnun allsherjar félagsskapar bændanna í landinu, en fyrr- nefnd atriði snerta fyrst og fremst störf og afkomu bænda- stéttaxinnar. b) Búnaðarfélagið hefir með höndum framkvæmd jarðrækt- arlaganna fyrir hönd ríkisins og c) Hvort sem það tekst eða ekki að ná samkomulagi um málið á þeim vettvangi, þá kemur málið á eftir til kasta Alþingis og er þá nægur tími fyrir stjórnmálamennina að deila um það til úrslita, ef þeim finnst þess þá þörf. í öðru Iagi er það sýnilegt, að sá rithöfundur, sem Morgun- blaðið beitir fyrir sig í málinu botnar ekkert í því. Hann byrjar á að fullyrða, að fylgiféð muni, er fram líða stundir, yfirgnæfa allt fast- fjárlögin sem allra næst hinni raunverulegu afkomu ríkissjóðs- ins. Hann lét sig engu skipta þótt andstæðingarnir hrópuðu hátt um „útgjaldahæstu fjár- lög“. Hitt skipti meira máli að umframgreiðslurnar voru hlut- fallslega langtum lægri hjá honum en nokkrum öðrum fjár- málaráðherra. Frá þessari reglu, að reyna að áætla fjárlögin sem næst hinni raunverulegu afkomu ríkissjóðs, má þingið ekki víkja. Það er falskur sparnaðarvilji og verð- ur til ills eins, ef menn ætla að áætla útgjöldin lægri en vitan- legt er að þau verða — aðeins til þess að geta sýnt útgjalda- lækkun á pappírnum, enda þótt hún verði engin í framkvæmd. Þingmenn verða að gera sér ljóst hvernig ástandið er og hvers það krefst. Með hliðsjón af því eiga þeir að semja fjár- lögin og hafa það fyrir mark- mið, að þau verði sem næst hinni raunverulegu afkomu ríkissjóðs. eignamat jarðanna, og þannig smámsaman éta allt jarðarverð- ið út úr höndum eigendanna. En hverjum meðalgreindum manni, sem kynnir sér málið með samvizkusemi, hlýtur að verða það Ijóst, að fylgiféð verður að eins brot af fasteigna- matsverði þeirra umbóta, sem jarðræktarstyrkurinn er veittur til, og að fylgiféð er háð sömu ákvæðum um fyrningu og rýrn- un og heildarverð umbótarinn- ar. Það getur því aldrei vaxið henni yfir höfuð — hvað þá heldur öllu matsverði jarðar- innar. Höf. hefir nú farið ofan af þessari fjarstæðu í seinni rit- smíðum sínum, en fjargviðrast nú með almennum orðum yfir því áfalli, sem jarðræktar- starfsemin og bændurnir í heild verði fyrir af völdum þessa á- kvæðis. Og hann ræðir um þetta at- riði eins og að það sé með öllu ágreiningslaust og viðurkennt af bændum almennt, svo að ekki sé öðru til að dreifa en óafsak- andi lítilþægni og vöntun á skörungsskap af bændanna hálfu, að heimta ákvæði jarð- ræktarlaganna um fylgiféð ekki skilyrðislaust numin burtu úr lögunum. Ég kemst því ekki hjá að benda höf. á, ef hann hefir má- ske ekki orðið þess var fyrr, að það er sannarlega til og það meðal fjölmargra bænda, sjón- armið alveg gagnstætt því sem hann heldur fram. Og það er þetta: Umbætur þær, sem bændur framkvæma á býlum sínum og fjárstyrkur sá, sem ríkið veitir til þeirra, hefir sama gildi fyrir þá á meðan að þeir búa á jörð- um sínum, hvort sem fylgifjár- ákvæðið er í lögunum eða ekki. Hitt er svo annað mál, að verði fylgifjárákvæði laganna raun- hæft í framkvæmdinni, þá hef- ir jörðin þeim mun minna sölu- gildi, sem fylgifénu nemur, þar eð óheimilt er að selja það með jörðinni. En jörðin hefir að sama skapi meira gildi til bú- skapar fyrir hinn nýja eiganda, þar sem hann ekki þarf í bú- rekstri sínum að greiða vexti af upphæð þeirri, er fylgifénu nemur. Þannig hafa jarðirnar fyrir bændur framtíðarinnar því meira gildi til búskapar, sem fylgifé þeirra er meira, — því hærri sem sá hlutur er af jarð- arverðinu, sem þeir ekki þurfa að greiða af vexti eða leigu. Það er því rétt. að koma þeim styrk, er ríkið veitir til jarð- ræktarinnar þannig fyrir, að allir þeir bændur, sem á jörðun- um búa í framtíðinni, verði Athugasemd o g s v a r Eftirfarandi athugasemd hef- ir Tímanum borizt frá stjórn Eimskipafélags íslands: í blaði yðar, sem kom út í gær, er viðvíkjandi þingsályktunar- tillögu þeirri um að leitað sé eft- ir samkomulagi við félag vort um skip, aðallega vegna Amer- íkuferða, sem samþykkt var í sameinuðu Alþingi 26. apríl síð- astl., sagt um stjórn félags vors að hún „leyndi því í prentaðri skýrslu, sem félagsmönnum var veitt um málið, að Alþingi hefði gert nokkra samþykkt um það“. Hér getur varla verið átt við aðra skýrslu en skýrslu félags- stjórnarinnar til aðalfundar fé- lagsins — 24. júní þ. á., og eru þá ofangreind ummæli blaðs yðar algjörlega röng. — Fyrir aðal- fund hafði atvinnumálaráð- herra Ólafur Thors átt viðtöl við formann og framkvæmdastjóra félags vors um téða þingsálykt- un og með bréfi til félagsins, dags. 20. júní þ. á., staðfesti ráð- herra þessi samtöl. Er í bréfinu skýrt frá innihaldi þingsálykt- unarinnar. Þetta bréf er prentað orðrétt á bls. 25 í nefndri skýrslu félags- stjórnarinnar og vísað til þess á bls. 12. En það var ekki fyr en eftir aðalfund sem ráðherra var skrifað bréf það frá félagi voru, er staðfesti umrædd samtöl af hendi félagsins, og þar færð rök fyrir því, að ályktun Alþingis væri óframkvæmanleg vegna hins gífurlega reksturshalla, sem mundi verða á slíku skipi, sem þingsályktunin gerði ráð fyrir. Blöö landsins höfðu að sjálf- sögðu skýrt frá þingsályktun- inni í þingfréttum, og er því heldur undarlegt að halda því fram að félagsstjórnin hafi hugsað sér að leyna ályktuninni fyrir félagsmönnum. Út af ummælum í nefndri (Framh. á 3. síðu) hans beinlínis aðnjótandi en ekki aðeins þeir, er veita hon- um • móttöku. Búskapargildi jarðanna verður ætíð þyngra á metunum fyrir bændastéttina og þjóðfélagið í heild, heldur en sölugildi þeirra. Þetta er sjónarmið, sem ég tel að hafi meira til síns máls heldur en sjónarmið Morgun- blaðsins. En meðal annarra orða, gr-ein- arhöf. virðist hafa sofið á verð- inum þegar að Sjálfstæðisflokk- urinn gekk frá nýbýlalögunum ásamt hinum stjórnarflokkun- um og innleitt var fylgifjár- ákvæði, sem eru þó miklu strangari en ákvæði jarðrækt- arlaganna þrátt fyrir allt. Bjarnl Ásgeirsson Kirkjan í Laugarnesumdæmi Um nokkur undanfarin ár hefir fólk, sem býr innanvert við Reykjavík, í umdæmi hins nýja Laugarnesskóla, sýnt mik- inn áhuga fyrir því, að mynda sérstakan söfnuö. Hefir ungur prestur, Garðar Svavarsson, haft guðsþjónustu í Laugarnes- skóla undanfarin missiri. Áhugi hefir verið mikill fyrir þessum messugjörðum, og kirkjusókn í bezta lagi. Það má segja, að Laugarnessumdæmi sé sveitin í Reykjavík og að eðlilegt sé að hún vilji og þurfi að hafa sína eigin kirkju. Er nú ákveðið, að kirkju þessa skuli reisa, svo fljótt sem auðið er. Gjafir og framlög til kirkju þessarar munu vera orðin um 30 þúsund krónur. En nú í haust, einhvern af næstu dögum, fær þessi litli, tilvonandi Laugarnesskóiasöfn- uður leyfi til að safna um allan Reykjavíkurbæ, einn dag, þeim gjöfum, sem áhugasamir menn vilja láta af hendi rakna. Skát- ar munu þann dag fara um bæ- inn og taka við gjöfum. En þegar þessu er lokið verður áhuga Reykvíkinga og lands- manna yfirleitt beitt að því verkefni að reisa hina lútersku dómkirkju á Skólavörðuholtinu. Sú kirkja mun verða byggð áður en langt um líður, og á þann hátt, að sjálf Reykjavík þurfi ekki fleiri nýjar kirkjur fyrir það fólk, sem býr í sjálfri höf- uðborginni. J. J. Sjálfstæðísmálið og fánínn Utdráttur úr ræðu Jónasar Jónssonar á stú- dentafundí í Oddfellowhúsinu í nóvember 1939 IX. Talið er að Þorsteinn Gíslason ritstjóri og Guðmundur Hannes- son prófessor hafi einna fyrstir manna prédikað skilnað við Danmörku. Þorsteinn hélt þeirri skoðun fram í blaðinu ísland, laust fyrir síðustu aldamót. En eftir skilnað Noregs og Svíþjóðar 1905, ritaði Guðmundur Hannes- son bók, er hann nefndi Aftur- elding. Leitaðist hann þar við að sanna bæði að ísland ætti að skilja við Danmörku og gæti það líka. Taldist honum svo til, að landið gæti vel staðið á sínum eigin fótum, og verið þrátt fyrir fámennið, fullkomið menningar- ríki. Hvorugur þessara manna gerði meira en að hreyfa djarfri, og að mörguni fannst þá, draumóra- kenndri hugmynd. En engu að síður skýrðust hugmyndir manna um sjálfstæðismálið mjög á ára- bilinu fyrir og eftir aldamótin. Stjórn íslands fluttist frá Kaup- mannahöfn til Reykjavíkur 1904. íslendingur varð ráðherra og gaf sig eingöngu við málefnum þjóð- arinnar. Norðmenn fengu frelsi sitt til fulls árið eftir. Þessar tvær merkilegu breytingar höfðu djúp áhrif á hugi íslendinga. Þeir byrjuðu að trúa á mátt þjóðar- innar meir en verið hafði fyrr. Þjóðin hneigðist meir og meir í þá átt, að draga völdin úr hönd- um Dana til íslendinga. Stúd- entafélagið í Reykjavík var í fararbroddi um frelsiskröfurnar. Einar Benediktsson, Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson frá Vogi og Skúli Thoroddsen og fjölmargir aðrir minna þekktir menn, sóttu hart fram um aukið frelsi landsins. í þessum svifum verður blá- hvíti fáninn til. Það er talið, að Einar Benediktsson hafi ráðið gerð hans og litum, en þær frænkur Einars Benediktssonar, Þorbjörg Sveinsdóttir og Ólafía Jóhannesdóttir, hafi staðið yfir vöggu þessa sameiningartákns allra íslendinga. Einar Bene- diktssonar sannaði forustu sína við sköpun bláhvíta fánans, með því að yrkja um hann eitt af fegurstu kvæðum, sem til eru á málinu, „Fánasöng íslendinga": „Rís þú, unga íslands merki“. Og skáldið gekk svo vel frá því máli, að kvæðið á aðeins við þann fána, sem þjóðarsálin skapaði í baráttuhita sóknar sinnar í frelsismálínu. Það er enginn rauður litur í þeim fána, sem þessi orð voru sögð um: „djúp sem blámi himinhæða, hrein sem jökultindsins brún.“ Litlu síðar gaf dr. Helgi Péturs fánanum nafn, sem var eins fagurt og hæfði merkinu. Fán- inn skyldi heita „Hvítblá- inn“. Nafnið var myndað með þeim fíngerða málsmekk, sem mest er kunnur í ljóðum Jónasar Hallgrímssonar. Áhugalið ís- lendinga hafði skapað sér fána, skyldan hinum norrænu kross- fánum, en í nánu samræmi við yfirbragð og litfegurð landsins. Fáninn var í einu fagur, átti sérstaklega vel við náttúru landsins. Um hann hafði verið ort ódauðlegt kvæði, og honum gefið ódauðlegt nafn. íslenzkur fáni varð úr þessu tákn sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. X. Dönum líkaði stórilla þessi framkvæmd. Þeir litu á Hvít- bláinn sem uppreistartákn. Ilann var vitaskuld ekki helgað- ur að lögum, þó að þjóðarsálin hefði myndað hann. Allveruleg- legur hluti íslendinga vildi fara vægilega að Dönum og ekki særa tilfinningar þeirra. Einn mjög merkur maður í Reykjavík sagðist ekki vilja vera á íslandi, ef danski fáninn hætti að blakta hér á opinberum byggingum. Hannes Hafstein gerðist mjög andstæður fánanum, og olli þar nokkru um að margir af helztu meðhaldsmönnum bláhvíta fán- ans voru andstæðingar hans í landsmálum. Þegar Hafstein gisti á Þingvöllum árið 1907 með Danakonungi var Guð- brandur Magnússon og fleiri ungmennafélagar þar í tjaldi og drógu Hvítbláinn við hún. Einn af meiri háttar mönnum í þing- liði Hafsteins bað þá að draga uppreistarfánann niður og særa ekki tilfinningar konungs. En þeir synjuðu þeirri bæn. Friðrik VIII. var frjálslyndur maður og vingjarnlegur í garð íslendinga. Hann tók létt á málinu, og sagði, að það myndi gleðja Georg Grikklandskonung, bróð- ur sinn, að sjá gríska fán- ann úti á íslandi. Konungur hélt í þessu efni fram sömu skoðun eins og allir andstæðingar ís- lenzka fánans, að hann væri eins og fáni Grikkja. Það var að vísu alrangt. Fáni Grikkiands er með röndum, hvítum og blá- um, en lítill, jafnarma kross, blár og hvítur, í einu horni feldsins. Um mörg ár, og jafnvel þann dag í dag, halda sumir ófróðir og fljótfærnir menn því fram, að Hvítbláinn hafi verið alveg eins og Grikklandsfáni, en milli þeirra er engin líking. Bláhvíta fánanum óx nú mjög fylgi. Stúdentafélagið hafði stutt hann frá byrjun. Ungmennafé- lögin fylktu sér um hann hvar- vetna í byggöum landsins. Auk þessa var fánabreytingin studd af miklum hluta frjálslyndra manna í landsmálabaráttunni. Móti Hvítbláin voru Danir, bæði í Danmörku og á íslandi og sá hluti þjóðarinnar, sem vildi fara mjög gætiiega í öllum átökum við Dani. Ef þróun fánamálsins hefði orðið með eðlilegum hætti, myndi fánamálið hafa gersigrað á nokkrum árum, og þjóðin fengið þann fána, sem hún hafði myndað, og sem hún unni. Smátt og smátt hefðu allir íslendingar viðurkennt, að Dannebrog væri í sjálfu sér mjög fallegur fáni, og færi einkar vel við skógar- lunda Danmerkur. En hann átti aldrei heima á íslandi. Hann var þjóðernistákn annarrar þjóðar, og hún ein gat með réttu unnað honum. Auk þess átti rauöi lit- urinn í „Dannebrog“ jafnilla við í skógleysi íslands, með hinu djúpa skyggni, eins og hann fór vel í dönsku landslagi. En af undarlegu giftuleysi kom einskonar ofvöxtur í fána- hreyfinguna, sem varð þess vald- andi, að þjóðin missti, um stund að minsta kosti, af sínu rétta merki. Skömmu fyrir heimsstyrjöld- ina vildi svo til, að ungur verzl- unarmaður í Reykjavík var að róa á litlum bát á höfninni, með bláhvíta fánann blaktandi yfir kænunni. Danskt varðskip var þar nærri.Foringinn sá uppreist- arfánann á bátum og fannst að það myndi vera skylda sín að leyfa ekki þvilíkan ófögnuð. — Hann lét manna bát frá herskip- inu, elta íslenzka bátinn og taka Hvítbláinn sem herfang. Þegar þessi fregn varð heyrum kunn í Reykjavík, mátti heita að hún hleypti bænum i bál. Reiði og gremja við Dani fyllti hvers manns brjóst. Fylgi fánans óx með óvenjulegum hraða. í þing- inu voru um þessar mundir átök um ráðherradóminn. Fánamálið blandaðist inn í þær deilur. — Menn, sem höfðu verið eindregið móti fánahreyfingunni, voru nú allt í einu orðnir heitir stuðn- ingsmenn íslenzks fána. En hvort það var Hvítbláinn, eða einhver annar litaður feldur létu þeir sig litlu skipta. í þeirra

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.